Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

31.8.01

:: tyrkinn 16:08 [+] ::


Slow dagur í vinnunni í dag... búinn að grafa ofan í undirheima "bloggara" á íslandi og endurbæta síðuna nokkur (vonandi að einhver taki eftir því.....halló....er einhver hérna...uhh). Bætti við svona fínum teljara eins og tíðkast í útlöndum sem telur heimsóknir á síðuna, þ.e.a.s. hversu oft ég skoða hana sjálfur... Fann nokkrar flottar svona síður og náði held ég að troða mér á listann sem ég bætti á síðuna. Tyrkinn ætlar hins vegar að drekka eitthvað brennivín í kvöld að gömlum góðum sið og svo á morgun verður tekið á því í brullaupi akkerisins, blessuð sé minning hans. hic.

Halim Al Acbar, signing out for now



:: tyrkinn 11:36 [+] ::


Maður er að verða gamall... Þetta hugsar tyrkinn oftar og oftar. Íbúð og bíll og skólinn búinn, krakkar farnir að kalla mann ýmist karl eða mann og þar fram eftir götunum. Tala nú ekki um þegar fólk úr sama árgangi er farið að skjóta niður krógum hægri vinstri, gifta sig og safna í stell!

Fór heim í foreldrahús um daginn þar sem litli frændi minn var í heimsókn. Þegar ég heilsaði honum horfði hann á mig furðulostinn. Þegar það fór að verða vandræðalegt spurði ég kauða hvort hann kannaðist ekki við frænda sinn Halim, kom mikið hik á dreng og loks sagði hann; "....en, en, þú ert maður....". Þá var ég reyndar klæddur í súð sem börn telja eflaust til fullorðinsfatnaðar, en samt sem áður....

Tyrkinn og Gyðnið hafa reyndar rætt það einhvern tíman að halda upp á sameiginlegt hálfrar-aldar-afmæli einhvern tímann á milli 8. sept n.k. og 23. sept n.k. , er einhver stemning fyrir því hjá fólki?

Halim


30.8.01

:: tyrkinn 14:00 [+] ::


Er bergmál hérna?...



:: tyrkinn 11:37 [+] ::


Nú hefur verið ákveðið að hafa háhyrninginn Keikó áfram í víkinni góðu í Vestmannaeyjum. Tyrkinn telur þetta vera komið út í vitleysu. Fyrst eyddu einhverjir væmnir kanar grilljónum í að fljúga með kvikindið frá útlandinu með tilheyrandi veseni, t.d. miklum skemmdum á flugvellinum o.s.frv (og auðvitað allt sýnt í beinni útsendingu í imbakassanum...). Svo er búið að eyða tíma og peningum í það að láta helvítis kvikindið veiða sér til matar og synda sinn sjó. Æ dónt ðínk só. Alveg síðan hann var veiddur við íslandsstrendur á sínum tíma hefur hann verið alinn af mönnum og af sjálfsögðu þekkir hann ekki annað. Til hvers ætti hann svosem að fara þegar hann er í góðu yfirlæti í eyjum þeim er kenndar eru vestmenn. Allt þetta er svo gert svo amerískir krakkar geti trúað því að kvikindið sem var alltaf að frelsast (eða til næstu framhaldsmyndar) muni frelsast í raun og veru. Keiko, eða Vilhjálmur eins og hann kýs að kalla sig, heldur sjálfsagt að hann sé maður eins og hann lætur. Um daginn var drepfyndin (eða a.m.k. ha-ha fyndin) frétt í blaðinu þar sem Vestmanneyingur nokkur var að veiðum í gúmmíbát við strendur eyjanna þegar hann finnur fyrir einhverri veru bak við sig og sér vígtennur "drápshvals" við tærnar á sér. Þessi drápshvalur reyndis auðvitað vera Vilhjálmur sem ætlaði bara að spjalla við kauða.

Tyrkinn telur allt þetta vera vitleysu mikla. Hann sér aðeins tvennt í stöðunni; annað hvort selja Vilhjálm sem 1000 vænar (og rándýrar) Willy-steikur í Vestmannaeyjum (Tyrkinn mundi borga gott fé fyrir að hafa étið kvikmyndastjörnu), eða sökkva honum á hafsbotn og senda myndskeið til bandaríkjanna þegar svipaður drápshvalur sést synda frá Vestmannaeyjum út á sjó með dagsveiði í kjaftinum (það myndi sjálfsagt væta vanga margra ungmenna víðsvegar um heim af gleði).

Vestmaðurinn Vilhjálmur:
* (af 5 mögulegum)

Willy-steik:
* * * * * (af 5 mögulegum)

Feik frí villí:
* * * (af 5 mögulegum)

Halim Al Acbar



28.8.01

:: tyrkinn 11:35 [+] ::


Sá "Blynkende lykter" (með fyrirvara um stafsetningu) á sunnudaginn. Voða fín mynd það. Þær dönsku myndir sem ég hef séð undanfarið hafa ekki ollið mér vonbrigðum og þar má nefna "I kine spiser de hunde" (annar fyrirvari), "Festen" og "Bleeder" sem allar voru prýðis góðar myndir. Þessi er helst í anda hundaátsmyndarinnar þó hún sé ekki neitt vandræðalega lík henni. Danskur fautahúmor eins og hann gerist bestur og maður hlær alla myndina þótt hún sé ekki gamanmynd sem slík. Voða fín. Mæli hiklaust með henni, og tala ekki um ef valið er á milli hennar og "Pearl Harbor", "Dr. Doolittle 2", eða annarra snilldarmynda sem er í bíó þessa dagana. Reyndar eru eiginlega ekkert nema súrar framhaldsmyndir í bíó í dag og voða erfitt að eyða tíma sínum í sölum bíóa borgarinnar. Hvað varð um C-daginn......?

Stjörnugjöf:
* * * * (af 5 mögulegum)

Halim


27.8.01

:: tyrkinn 12:08 [+] ::


Svenni Svenn fann sjálfan sig síðastliðinn föstudag, og búast má við því að hann komi út úr skápnum fyrir næsta laugardag þegar greyið var búið að plana að kvænast. Ástæðan var að sjálfsögðu steggarveislan sem haldin var honum til heiðurs. Herlegheitin hófust fyrir miðjan dag s.l. föstudag þegar haldið var með drenginn í WC hér í bæ og drengurinn látinn syngja við góðar undirtektir allra sílíkondrottninga og FM-hnakka sem voru viðstaddir. Söng hann þar uppáhalds lag sitt "Nakinn", og fórst honum vel úr hendi þrátt fyrir að vera með kjaftinn stútfullan af gervitönnum og gríðarlega óþægilegar (a.m.k. litu þær þannig út) g-strengs naríur sem fengnar voru að láni úr óskilamunum World Class. Þar næst var drengurinn færður í verslunarmiðstöð allra landsmanna og endurtók hann þar söng sinn fyrir gesti, bæði yngismeyjar og drengi. Á þessum tímapunkti var kappinn klæddur í þjóðbúning San Fransico búa, sem fór Leðurmanninum í Village People best allra auk steggsins:

http://www.villagepeople-official.com/glenn-People.html

Viðstöddum fannst drengurinn nú finna sig betur þegar hann söng fyrir ljóshærðan yngissvein en þegar hann söng fyrir stúlknahóp, og einnig virtist hann kunna ágætlega við sig í leðurklæðunum, a.m.k. mun betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Það má e.t.v. álykta út frá þessu að hópurinn (sem steggjaði drenginn) hafi náð takmarki sínu með að fá drenginn til að íhuga tilvonandi stórmistök, þó ástæðan sé sé stór vafasöm. Svo vel fann hann sig að í keilumóti sem var haldið í beinu framhaldi fór hann hamförum og náði langbesta skori þeirra 15 manna sem þar voru. Þegar haldið var í mat brotnaði þó kappinn niður þegar hann mundi eftir giftingunni og fór úr gallanum með tár á vanga. Sem betur fer tók hann sig til í andlitinu þegar fór að líða á kvöldið og naut Dyravarðarsteikarinnar sem meistari Bjarni Friðriksson kokkaði ofan í veislugesti með stakri prýði. Kvöldinu lauk svo með söng steggjarins með því vafasama bandi "Land og synir".

Að mati tyrkjans fór dagurinn fram úr væntingum og allir skemmtu sér stórvel, burtséð frá stund sannleikans í "búningsklefa" Hrellu.

Stjörnugjöf:

* * * * * (af 5 mögulegum)

Halim Al Achbar


23.8.01

:: tyrkinn 12:13 [+] ::


Jæja, Tyrkinn fór á tónleikana í gær með Coldplay. Ágætis tónleikar, þ.e.a.s. bandið stóð sig ágætlega. Hins vegar stóðu áhorfendur sig ekki eins vel, vægast satt. Eins og fólk þekkir er gríðarlega auðvelt að læra textana þeirra og syngja með lögunum, og margir tónleikagestir misskildu svolítið hvað svona tónleikar ganga út á. Sjálfur var ég svo lánsamur að vera ætíð nálægt einhverjum tilvonandi stórsöngvurum Íslands sem sáu sig tilneydda til að deila sinni undurfögru rödd með því fólki sem var í 10m radíus frá börkum þeirra. Þá komst ég einnig að því að Íslendingar eru upp til hópa vita laglausir og taktlausir. Þetta var orðið það slæmt að í einni ballöðu sem söngvari þeirra kvefmanna hóf leik á ljúfum slaghörputónum, að hann sá sig tilneyddan til að stoppa og reyna aftur með smá takt-tilsögn til áhorfenda.

Þrátt fyrir öll þessi ósköp náði tyrkinn að einbeita sér ágætis hluta tónleikanna að tónlistinni sem barst úr hátölurunum og hafði nokk gaman af. Eftir nokkra stund fór hann að velta því fyrir sér hvort söngvarinn hefði eytt miklum tíma í bandaríkjum norður ameríku, því hann lagði sig mikið fram við að skjalla áhorfendur, land og þjóð að hætti kana. Ekki heyrði tyrkinn betur að söngvari hljómsveitarinnar minntist meira að segja á mekka Sukk-on hreyfingarinnar, PHS9, sem betur er þekkt sem Kaffibrennslan. Mátti þá sjá stakt stolts-tár renna niður vanga tyrkjans, sem varð nánast til þess að tenórum kvöldsins var fyrirgefið.

Stjörnugjöf:
*** (af 5 mögulegum)

Halim Al ( hal@isfba.is )


22.8.01

:: tyrkinn 16:46 [+] ::


I heard a silly rumor...

Þeir segja (Gárungarnir, þ.e.) að Maus (Meysi) og Sálin munu hita upp fyrir Coldplay (Kvefleik) í kveld. Hefði tyrkinn verið beðinn um að sjá um þetta hefði þetta ekki verið svona. Maus mundi vissulega vera þar, en hvaða snillingur setur Sálina í þetta dæmi? Tyrkinn hefði frekar sett mettnaðarfyllri bönd í dæmið, e.t.v. ungliðana í Úlpu (þeir stóðu sig vel þegar ég sá þá síðast), Tristian væru flottir þarna og reyndar mætti setja allt annað en tyggjókúlubandið Sálina fyrir framan svo stóran hóp af fólki án þess að þurfa að skammast sín. Það segir tyrkinn...

http://www.tilveran.is/Apps/WebObjects/tilveran.woa/wa/lrIMG?id=1001529


21.8.01

:: tyrkinn 16:20 [+] ::


Ætlar enginn annar að vera sniðugur?



:: tyrkinn 12:07 [+] ::


...ég er með kenningu, og hún er mín.

Þessi kenning, sem er mín, kom úr mínum hugarskotum og engra annarra, og er mín eign. Þegar ég setti fram þessa kenningu mína, sem er í minni eign algerlega, eignaðist ég þessa kenningu og enginn annar. Þó hún, kenningin mín, sé ekki gömul, er hún mín og ekki þín (lesandans), einfaldlega vegna þess að hún er mín. Hóst, hóst. Kenningin, sem er mín, fjallar um hugtakið "Blogg", og kemur úr mínum hugarheimi, þ.e.a.s. kenningin, ekki hugtakið. Hóst. Sem sagt, kenningin mín fer á þann veg: hóst, hóst. Orðið "Blogg" samkvæmt minni kenningu, sem er mín, er samsett orð af orðunum "Bullshit" og "Log", en það er innihald kenningarinnar, sem er mín, og engra annarra eign.

Halim



:: tyrkinn 11:55 [+] ::


Nú þegar fer að líða að steggjun Svenna Svenn, (næstu helgi) fer maður að hugsa um svona batterí. T.d. hvers vegna er þetta kallað að "steggja" eða "gæsa" liðið? Og hver var upphaflegur tilgangur með þessu. Sennilega er þetta tengt því að fá viðkomandi til að hugsa um hvort hann sé ekki að fara að gera einhverja ranga vitleysu, sbr. sá siður að reyna að fá hann/hana til að hætta við allt rétt fyrir herlegheitin. Einnig má sennilega hugsa þetta sem síðasta séns að níðast á tilvonandi brúðguma áður en maður á von á að fá kerlingu hans með kökukefli á lofti heim til mans...

Svo er spurning um hvað þetta á að vera pínlegt fyrir viðkomandi, því það virðist gegna einhverjum tilgangi þarna, einhverra hluta vegna. Klæða hann upp í einhvern skrúða og láta hann láta (hann láta) óðslega öllum öðrum til skemmtunar eða ama.

Í tilviki Svenna finnst mér tilvalið að höfða til karlmennsku hans (macho macho man, I want to be a macho (nacho) man) og angra hann að því leyti. Láta hann dansa, syngja og klæðast einhverju átfitti sem ekki er dæmigert fyrir Van Damme, Bond eða neinn annan alvöru karlmann.

Mín skoðun er sú, að Hrellan komst allt of auðveldlega út úr þessu hérna um árið, og við eigum að skipulegga næstu helgi töluvert betur....

...hvað finnst fólki?

Achbar


17.8.01

:: tyrkinn 12:29 [+] ::


Erlent | 17.08.2001 | 11:43

Fossett gefst upp á loftbelgsferð


AP
Fossett á flugi yfir Tahiti.


Bandaríski ævintýramaðurinn Steve Fossett hefur hætt tilraun til að fljúga einn í kringum jörðina í loftbelg. Ástæðan er slæm veðurskilyrði á Atlantshafi en útlit er fyrir þrumuveður þar á næstu dögum. Einnig eru súrefnisbirgðir í loftbelgnum farnar að minnka. Fossett hefur verið í 13 daga á flugi og var yfir Brasilíu á leið austur þegar ákvörðunin var tekin í morgun.

Að sögn Joe Ritchies í stjórnstöð leiðangursins, var ljóst að Fossett myndi hreppa slæmt veður yfir Atlantshafinu. Því hafi verið ákveðið að hætta við frekara flug í dag, áður en belgurinn færi út á Atlangshaf. Mun Fossett lenda í suðurhluta Brasilíu síðar í dag.

...hvernig er með þetta loftbelgja lið, verða þessir menn aldrei þreyttir á því að reyna þetta stunt. Ég man ekki betur en þessir menn gefist alltaf upp, en þetta kemur samt alltaf í fjölmiðlum eins og þetta sé það merkilegasta sem er að gerast. Who cares? Þetta er álíka gáfulegt og þessir "snillingar" sem eru að klífa fjöll og pólana og alþjóð fylgist með öllum fréttum af þessari vitleysu. Gáfulegar hetjur að labba eitthvað eins og þeir séu að gera mannkyni greiða... Þetta er allt klikkað lið að mínu mati.



:: tyrkinn 12:19 [+] ::


Jæja, er einhver stemning fyrir Laugardeginum? Þeir segja (gárungarnir) að veðrið verði reyndar ekki upp á sitt besta (10-13 metrar á sec og rigning, úff) en síðustu ár hefur þetta kvöld gert ágætis hluti. Það væri t.d. hægt að hanga og drekka öl og vera menningarlegir...., eða gíra sig upp og drepast á arnarhóli... eða ekki...



:: tyrkinn 12:05 [+] ::


Jæja, mig langaði að prufa að setja upp svona síðu, bara svona til að gera eitthvað sniðugt á föstudegi. Hef reyndar ekki hugmynd um hvað á að vera hér, eða hvort einhver hafi áhuga á þessu nema ég... Get þá a emm ká notað þetta sem dagbók. Westside. Halim


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra