Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

28.9.01

:: tyrkinn 17:33 [+] ::


Tyrkinn er farinn í frí í nokkra daga eins og þið hafið vonandi tekið eftir. Tyrkinn kemur aftur, tyrkinn kemur alltaf aftur. Respect.


24.9.01

:: tyrkinn 15:34 [+] ::


Góð grein um víngerð í Chile af strik.is



:: tyrkinn 14:20 [+] ::


Í tilefni af afmæli tyrkjans fór hann ásamt frú á holtið á laugardaginn, geri aðrir betur. Þar sá hann eitt sem hann hefur ekki rekið augun í áður á vínseðlum borgarinnar, Montes Alpha M rauðvín frá 1997 og 1998. Þar sem tyrkinn var í flottræflaskapi ákvað hann að skella sér á 1998 flöskuna og varð ekki fyrir vonbriðum, gríðargott vín eins og búast mátti við úr smiðju Montes. Keep it real.

Montes Alpha M 1998:
* * * * * (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 13:30 [+] ::


Olmóst feimös
Tyrkinn tók líka þessa ræmu. Skemmtileg og fyndin, og gríðarlega góð tónlist, tala ekki um ef fólk hefur gaman af rokki frá 1970-1975. Kate Hudson og Frances McDormand fara á kostum, en aðalleikarinn Billy Crudup ekki eins sannfærandi. Alveg þess virði að glápa á.

* * * 1/2 (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 13:25 [+] ::


Enemy at the gates
Tyrkinn leigði þessa ræmu í gærkvöldi. Prýðisgóð ræma það, og svolítið skemmtilegt "vjú" á WW2, þ.e.a.s. ekki út frá könum eða bretum, heldur frá sjónarhóli rússa þegar þeir börðust við Þjóðverja um Stalíngrad á sínum tíma (síðari part 1942). Fjallar um snæper úr röðum rússa sem gerður er að nokkurs konar stríðshetju og skýtur mann og annan. Af sjálfsögðu er skellt smá "lof" dæmi í hana, en er engu að síður nokkuð góð.

* * * 1/2 (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 11:04 [+] ::


Tyrkinn fór í óskalaga-partí um helgina. Fámennt en góðmennt og var fólk í góðum fílíng. Það sem mest kom á óvat þetta kvöld var rammíslenskt brennivín. Nú var langt síðan tyrkinn bragðaði á þessu gómsæta víni, og má búast við því að keypt verði flaska fyrir gesti og gangandi á tyrkjabarinn. Takk fyrir tyrkjann.

Óskalagapartí Elmars og Eddu:
* * * * (af 5 mögulegum)

Íslenskt brennivín:
* * * * * (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 09:38 [+] ::


Kommonistabúllan Hljómalind
Sbr. umfjöllun um Low og hljómalind hér að neðan, þá fór tyrkinn á stúfana á laugardaginn að leita sér að fleiri Low diskum því þeir eru til um 6-7 talsins a.m.k. Hljómalind er með umboð fyrir gamla plötufyrirtæki Low og því endaði Tyrkinn þar og ætlaði nú að eyða þar aurum sínum. Þá kom í ljós að það eina sem þeir áttu var ein EP plata ("Songs for a dead pilot") og ein fjögurra laga plata með söngkonunni k. .(þetta er svona setningapunktur, hinn tilheyrir henni k.) Eftir smá spjall við manninn sem hlaut nafnið "The cheerful communist" í þarsíðasta tölublaði Hagfræðingsins (eða "The Economist") komst tyrkinn að því að schnillingarnir í Hljómalind ætla að fá inn eitthvað af low plötunum, bara með hljómsveitinni þegar hún kemur 15-16. n.k., ekki fyrr. Dæmigert fyrir þessa búð, bókhaldið í rassvasanum og aldrei neitt til sem selst, það þykir sjálfsagt ekki töff að selja mikið af sömu plötunni, helst bara eina af hverri sort. Tyrkinn endaði þó á að kaupa EP plötuna "Songs for a dead pilot" og er hún góð, þó hún sé ekki sú sem tyrkinn ætlaði að kaupa.

"Songs for a dead pilot"
* * * * (af 5 mögulegum)

Innkaupastefna Hljómalindar
* (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 09:29 [+] ::


Massive Respect
Þakka Simbanum og Rocco - manninum fyrir lagfæringar á listanum góða, Tyrkinn var farinn að sakna hans


21.9.01

:: tyrkinn 16:47 [+] ::


Tyrkinn býður góða helgi, til sjávar og sveita



:: tyrkinn 15:40 [+] ::


Hljómalind hættir ekki...

Tyrkjanum var að berast til eyrna að hljómsveitin LOW ætlar að heimsækja eyjuna og leika fyrir okkur ljúf lög. Ekkert hefur Tyrkinn séð til húsnæðis undir tónleikana, en það kæmi mér ekki á óvart ef gaukurinn yrði fyrir valinu eins og svo oft áður. Tónleikarnir eru fyrirhugaðir 17. okt. n.k. og mælir tyrkinn með mætingu. Fjárfest var í síðustu breiðskífu hljómsveitarinnar um síðustu jól, "Things we lost in the fire", og hefur hún verið meira og minna í geislaspilara tyrkjans í svefnherberginu, því þessi tónlist er ein sú besta til að sofna út frá (sbr. færslu fyrir nokkru síðan). Hljómsveitina skipa mormónahjónin Alan Sparhawk og Mimi Parker ásamt Zak Sally og hafa þau verið að spila saman í um 8 ár. Nánar er um þessa tónleika og hljómsveitina á vef Hljómalindar sem er með nokkra áhugaverða tónleika á næstu vikum. Einnig mun Trans Am leika fyrir landsmenn, en þeir héldu hér tónleika fyrir ekki svo löngu síðan og voru gríðar skemmtilegir að mati tyrkjans, og nokkuð júník með bland af rokki og raftónlist. Mæli einnig með að kíkja á þá. Gott er að lesa um tónlist á All Music Guide fyrir þá sem ekki þekkja



:: tyrkinn 10:21 [+] ::


Tyrkinn var að horfa á "þáttinn" í gær, og átti eftir að sjá eftir því. Tveir selfyssingar (eða selfyssinga vonnabí sem er verra) úr Land & Synir, eða Sand og Linir eins og ég kýs að kalla þá, sátu fyrir svörum. Kom þá í ljós að þessir miklu schnillingar eru komnir á samning hjá einhverju dótturfyrirtæki Warner bros. Einhver kani (sennilega gamall og með eipkött) sá þá hér heima og hreifst svo mikið að hann fékk yfirmenn sína til að fá þá á samning. Kani þessi hefur unnið með ekki ómerkilegri "tónlistarmönnum" en Svölu Bo-dóttur og Mandy Mooresem er popp glyðra í USA fyrir þá sem ekki þekkja. Nú, þessir selfyssingar töluðu stoltir um það að kanarnir kölluðu þá ýmist "Green 182" eða "Blink Day" með tilvísun í háskólarokksveitirnar Blink 182og Green Day. Þá var tyrkjanum nóg boðið. Nú á semsagt að taka ostalega íslenska sveitaballahljómsveit og ýkja klisjur þeirra enn meira með að gera háskóla"rokk" úr þessu öllu saman. Sveiattan. Til að eyðileggja fyrir mér kvöldið endanlega, spiluðu þessir snillingar nýtt lag úr sinni smiðju er bar nafnið "Most Popular" og er álíka merkilegt lag og nafnið gefur til kynna, semsagt algjör viðbjóður. Ekki nóg með það heldur er þetta þannig lag að það hringlar í hausnum á manni þangað til að maður vill rífa úr sér tennurnar til að hugsa um eitthvað annað. Tyrkinn er orðlaus.

Hauskúpa (af 5 stjörnum mögulegum)


20.9.01

:: tyrkinn 12:03 [+] ::


Getraun dagsins:
Úr hvaða lagi, og hver flytur, er þessi frasi: "All the girls say, who's that honey in the tight pants, to the boys I'm just good with the ball, to grandparents and little children, I sacrafice my self to them all..."
Verðlaun eru óskalag á www.muzik.is að þeirra vali



:: tyrkinn 10:40 [+] ::


Hennti inn nýjum teljara á síðuna í gær, sá svona græju á síðunni hjá Simbanum , en þess má geta að Simbinn hefur gert mikið fyrir þessa síðu síðan hún var sett upp. Reyndar felur þetta í sér að þau fáu "hitt" sem voru fyrir þurrkast út þar sem ekki er hægt að setja inn byrjunargildi, en það skiptir einu. Svo er bara að sjá hvort þetta virkar ekki alveg.



:: tyrkinn 10:36 [+] ::


Tyrkinn veit ekki með ykkur, en hann fær aldrei leið á meisturunum í Tvíhöfða. Hann getur varla hugsað sér að keyra í vinnuna á morgnana án þess að hlusta á þessa snillinga. Að mati Tyrkjans er Jón Gnarr einnig einn besti leikari sem land, utan tyrklands, hefur alið og fer hann á kostum í fóstbræðrum. Útvarpsþættir í gegnum tíðina, þ.e.a.s. svona á léttari nótum, hafa iðulega endst stutt og hefur húmor flestra orðið ansi þreyttur eftir ár eða svo. Til dæmis má nefna þá Radíus bræður sem slógu í gegn á síðustu öld. Þeir voru það heitasta í nokkra mánuði og gerðu góða hluti, og mega þeir vera stoltir af. Eftir skamma stund urðu þeir hins vegar ansi súrir og þegar afleiður af þeirra þætti voru komnar í loftið var ekkert varið í þá. Tvíhöfði hefur verið eini þátturinn af þessum toga sem hefur haldið út allan þann tíma sem þeir eru í loftinu, og þykir tyrkjanum þeir vera alveg jafn fyndnir í dag og þeir voru fyrir 5 árum eða svo. Total respect.

* * * * (af 5 mögulegum)


19.9.01

:: tyrkinn 15:01 [+] ::


Plata dagsins
Þetta er nýjasta plata Tool, eða Tólsins eins og ég kýs að kalla það. Ekki tók það mig margar hlustanir að sökkva ofan í þessa og stendur hún alveg undir væntingum eftir Aenima sem ég bjóst ekki við að hægt væri að toppa. Mæli eindregið með að fólk kynni sér þessa skífu sem allra fyrst. Tyrkinn fílar Tólið.

* * * * * (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 13:21 [+] ::


...Jöri töff...



:: tyrkinn 11:50 [+] ::


...Mötuneyti
Hvernig er með það, hvernig tekst atvinnumanneskjum á matvælasviði að klúðra einföldustu hlutum í mötuneytum landsins. Sjálfsagt eru þau misjöfn eins og þau eru mörg, en persónuleg reynsla Tyrkjans af mötuneytum í gegnum tíðina hefur verið frekar slæm. Nú vinna um 5-7 manneskjur í mötuneyti Tyrkjans og eru þær eflaust í fullu starfi við að fæða samstarfsmenn hans, auk mannsins. Í fyrstu leit þetta vel út, en eftir 1-2 mánuði fór tyrkinn að taka eftir ákveðnu mötuneytisbragði í munni sér eftir þráláta átu í mötuneyti dauðans, eins og það er oft kallað. Vissulega tekst þeim oft ágætlega upp, en mestu furðu vekur hvað þeim tekst oft að klúðra einföldustu málum, sbr. pastaréttum MD. Oftar en ekki er óæskilegt hráefni í þessum pastaréttum, og þá yfirleitt afgangar undangengins dags. Stundum er þetta hráefni dulbúið þannig að fólk veit ekki alveg hvaðan það kemur, þ.a.l. hefur pastaréttur með óskilgreindu kjeti verið kallað "mannakjötspasta" ákveðnum starfsmönnum til gamans. Einnig er oft pasta sem lítur út fyrir að vera venjulegt pasta (eins og flestir vita eru pastaréttir engin kjarneðlisfræði í eðli sínu) en þegar bragðað er á því er þar um misheppnaða tilraun að ræða. Suma daga er tekin ákvörðun um að hafa kjet í matinn og hljómar það oft vel (t.d. lambalæri eða lettur), en þá daga er stórvarasamt að snæða í MD þar sem kjet sem keypt er í MD er yfirleitt af hinu illa og eru oft kenningar um að þar sé að ræða vegalömb eða farmar einhverra vörubíla sem endað hafa í jökulám landsins. Á kjetdögum tekur því yfirleitt til starfa skyndibitaklúbburinn Fratmatur sem stendur fyrir kaupum á matvörum úr öruggari höfnum eins og KFC eða McDóna. Bestu dagarnir eru, að mati Tyrkjans, þeir dagar sem fiskur er á boðstólnum (töluvert betra hráefni en vegalömbin), eða grænmetisréttir sem eru, öllum til furðu, furðugóðir. Það sem vekur undrun tyrkjans er það að að hans mati ætti ekki að vera mikið mál fyrir hóp fólks að útbúa sæmilegan mat sem ekki þyrfti að kosta mikið á haus, en þetta virðist vera flóknara en frá augum leikmanns eins og tyrkjans. Bara svona hugleiðing...


18.9.01

:: tyrkinn 17:43 [+] ::


Annað sjónarhorn á heitasta málinu í dag:

Tamim is an Afghani-American writer. He is also one of the most brilliant
people I know in this life. When he writes, I read. When he talks, I
listen.
Here is his take on Afghanistan and the whole mess we are in.

- Gary T.

****************************************

Dear Gary and whoever else is on this email thread:

I've been hearing a lot of talk about "bombing Afghanistan back to the
Stone
Age. " Ronn Owens, on KGO Talk Radio today, allowed that this would mean
killing innocent people, people who had nothing to do with this atrocity,
but "we're at war, we have to accept collateral damage. What else can we
do?" Minutes later I heard some TV pundit discussing whether we "have the
belly to do what must be done. "

And I thought about the issues being raised especially hard because I am
from Afghanistan, and even though I've lived here for 35 years I've never
lost track of what's going on there. So I want to tell anyone who will
listen how it all looks from where I'm standing.

I speak as one who hates the Taliban and Osama Bin Laden. There is no doubt
in my mind that these people were responsible for the atrocity in New York.
I agree that something must be done about those monsters.

But the Taliban and Ben Laden are not Afghanistan. They're not even the
government of Afghanistan. The Taliban are a cult of ignorant psychotics
who
took over Afghanistan in 1997. Bin Laden is a political criminal with a
plan. When you think Taliban, think Nazis. When you think Bin Laden, think
Hitler. And when you think "the people of Afghanistan" think "the Jews in
the concentration camps. "

It's not only that the Afghan people had nothing to do with this atrocity.
They were the first victims of the perpetrators. They would exult if
someone
would come in there, take out the Taliban and clear out the rats nest of
international thugs holed up in their country.

Some say, why don't the Afghans rise up and overthrow the Taliban? The
answer is, they're starved, exhausted, hurt, incapacitated, suffering. A
few
years ago, the United Nations estimated that there are 500,000 disabled
orphans in Afghanistan--a country with no economy, no food. There are
millions of widows. And the Taliban has been burying these widows alive in
mass graves. The soil is littered with land mines, the farms were all
destroyed by the Soviets. These are a few of the reasons why the Afghan
people have not overthrown the Taliban.

We come now to the question of bombing Afghanistan back to the Stone Age.
Trouble is, that's been done. The Soviets took care of it already. Make the
Afghans suffer? They're already suffering. Level their houses? Done. Turn
their schools into piles of rubble? Done. Eradicate their hospitals? Done.
Destroy their infrastructure? Cut them off from medicine and health care?
Too late. Someone already did all that.

New bombs would only stir the rubble of earlier bombs. Would they at least
get the Taliban? Not likely. In today's Afghanistan, only the Taliban eat,
only they have the means to move around. They'd slip away and hide. Maybe
the bombs would get some of those disabled orphans, they don't move too
fast, they don't even have wheelchairs. But flying over Kabul and dropping
bombs wouldn't really be a strike against the criminals who did this
horrific thing. Actually it would only be making common cause with the
Taliban--by raping once again the people they've been raping all this time.

So what else is there? What can be done, then? Let me now speak with true
fear and trembling. The only way to get Bin Laden is to go in there with
ground troops. When people speak of "having the belly to do what needs to
be
done" they're thinking in terms of having the belly to kill as many as
needed. Having the belly to overcome any moral qualms about killing
innocent
people. Let's pull our heads out of the sand. What's actually on the table
is Americans dying. And not just because some Americans would die fighting
their way through Afghanistan to Bin Laden's hideout. It's much bigger than
that folks. Because to get any troops to Afghanistan, we'd have to go
through Pakistan. Would they let us?Not likely. The conquest of Pakistan
would have to be first. Will other Muslim nations just stand by? You see
where I'm going.

We're flirting with a world war between Islam and the West. And guess what:
that's Bin Laden's program. That's exactly what he wants. That's why he did
this. Read his speeches and statements. It's all right there. He really
believes Islam would beat the west. It might seem ridiculous, but he
figures
if he can polarize the world into Islam and the West, he's got a billion
soldiers. If the west wreaks a holocaust in those lands, that's a billion
people with nothing left to lose, that's even better from Bin Laden's point
of view. He's probably wrong, in the end the west would win, whatever that
would mean, but the war would last for years and millions would die, not
just theirs but ours. Who has the belly for that? Bin Laden does. Anyone
else?

Tamim Ansary



:: tyrkinn 15:55 [+] ::


Fyrir þá sem ekki þekkja adcritic er þetta soldið sniðugur vefur. Haugur af sjónvarpsauglýsingum og má þarna finna "wassup" auglýsingar Budweiser fyrir þá sem ekki eru komnir með leið á þeim...



:: tyrkinn 14:43 [+] ::


Ali G fer á kostum í viðtali við Beckham hjónin, fengið af tilverunni.



:: tyrkinn 09:39 [+] ::


Tyrkinn fagnar endurkomu Sopranos í sjónvarpið. Ef það er alveg nauðsynlegt að þvinga íslendinga til þess að borga fyrir RÚV, þá er eins gott að eitthvað sé á að horfa þarna. Það er líklega hægt að kaupa 3-5 góða þætti að utan fyrir einn súran þátt með Steinunni Ólínu eða Hemma Gunn, og ef ég þarf að borga fyrir þetta, þá vel ég frekar Tony en Hemma. "He's a friend of ours..." Respect


17.9.01

:: tyrkinn 15:40 [+] ::


Nú er friðhelgi einkalífs að líða undir lok, á netinu a.m.k....



:: tyrkinn 14:38 [+] ::


Getraun vikunnar:
Hvurn andskotann át Geiri Agg fyrir Laugardaginn?! Það eru stórir brunablettir í parkettinu hjá tyrkjanum eftir óhóflega loftmengun á laugardagskvöldið. Í verðlaun er 1 stór Necks bjór á Tyrkjabarnum.



:: tyrkinn 09:59 [+] ::


Amli Tyrkjans og GyðnisinsÁ föstudaginn tóku tyrkinn og Gyðnið upp á því að halda upp á fimmtugsamli sitt sameiginlega (eða 2 x 25 ár). Hófst leikurinn á körtukeppni í Njarðvík (sjá vef þeirra ) sem vakti gríðarlega lukku meðal gesta. Þessi braut er helvíti flott, og er svona nettur múlufílíngur í að keyra þarna. Hins vegar er ástandið á bílunum mismunandi, og má til gamans geta að bíll tyrkjans var töluvert máttlausari en aðrir bílar í keppninni og lennti því tyrkinn ekki nema í sexta sæti, og einungis Gyðnið og kvennfólkið á eftir honum. Þetta var þó ekki þyngdarvegið eins og í öllum góðum körtukeppnum og samkvæmt alþjóðareglum vann tyrkinn með yfirburðum þegar tekið var tillit til líkamsþyngdar. Annars er þetta lið drullusokkar upp til hópa, því þegar tyrkinn og gyðnið bjóða í svona keppni, ættu gestir að hafa vit á því að lúffa fyrir amlisbörnunum og auk þess að kaupa handa þeim bikara. Við munum það bara næst. Í stað þess óð fólk uppi og fór Herkúles offörum og reyndi að þvinga mann og annan út af brautinni og endaði með því að hann lauk fyrstur keppni. Stríðsguðinn hefði mátt mæta með stafrænu myndavélina sína svo ég gæti sýnt myndir af öllu samana. Á heildina litið var þetta gríðar-skemmtilegt og hyggst tyrkinn prufa þetta betur seinna, e.t.v. með einhverjum skemmtilegri... Eftir körtureiðina var haldið í bláa lónið og aðeins slappað af eftir átökin. Eftir það var haldið á hardrock og þar etið og drukkið, þá drukkið meira, og örlítið vættar kverkar. Eftir það fór hópurinn til hýbýla tyrkjans þar sem taumlaus drykkja og gleði var fram á morgun. Mikið stuð var á fólki, og e.t.v. of mikið stuð á köflum. Eftir að hafa botnað AC/DC á fóninum og hálfur hópurinn sungið með (eins hátt og fólk gat) varð stríðsguðinn var við þáð að einhverjir trúðar voru að lýsa undir hurðina út á gang, og opnaði hann þá hurðina, og fann þar tvo lögregluþjóna með "attitjút"-vandamál. Þegar mörgæsirnar voru búnar að lýsa svolítið í augun á viðstöddum báðu þeir um að tónlistin yrði lækkuð og var það gert (en þó ekki mikið). Skítugu mörgæsir. Svo var haldið áfram fram á rauða nótt, og var amliskokteillinn "Galim" teygaður af mikilli fergju, en færri þorðu þó í "Necks" (sjá fyrri færslur) og var tyrkinn sá eini sem fékk sér annan Necks. Gærdagurinn var hörmung, vægast sagt... Svona þunnur hefur tyrkinn ekki verið í marga mánuði, og íbúð hans hefur ekki verið eins sjúskuð í álíka marga mánuði. Svo bætast við harðsperrur í alls kyns vöðvum sem maður vissi ekki að væru til eftir körtureiðina. Úff.

* * * * (af 5 mögulegum) (mörrarnir eyðilögðu síðustu stjörnuna)


14.9.01

:: tyrkinn 15:15 [+] ::


Ég get staðfest fjarvistarsönnun Satans, ég talaði við hann í 800-7000 umræddan dag, sbr. yfirlýsingu Simbans. Annars mun ritari hans taka við símtölum 1-800-SATAN.



:: tyrkinn 12:18 [+] ::


Húmor hjá Microsoft...
Prufið þetta, þetta er svolítið sérkennilegt...

Give this exercise a go. Under Word create a new document, and using a big
font size type the following in capitals:-

NYC

Yep it's the abbreviated version of New York City. Highlight the letters and
change the font to Webdings, then read it. Finally, highlight and change the
font to Wingdings........ check out the saying........ somebody at Microsoft
had a nasty sense of humour many moons ago.......



:: tyrkinn 10:47 [+] ::


Mikill snillingur


Öðlingurinn Drinkman lánaði tyrkjanum disk með haug af MP3 með Bill Hicks á í vor. Þessi stand up grínisti var sniðugur kauði og var ekki hræddur að láta skoðanir sínar í ljós. Tyrkinn mælir með því að fólk athugi málið, og ég held að þessi síða sé nokkuð góð til þess. Farið á "other" ef hljóðfælarnir virka ekki og athugið gömlu útgáfuna af síðunni. Ha-ha fyndinn maður. Þess má til gamans geta að ofur-rokkararnir í Tool tileinkuðu Hicks Aenima plötuna sína sem er gríðargóð, og klipptu m.a. hans standup inn í eitt lagið. Blessuð sé minning hans, respect.

* * * * (af 5 mögulegum)


13.9.01

:: tyrkinn 10:31 [+] ::


Þessir skítugu sandskrattar eru búnir að plana þetta helv... í langan tíma. BBQ veisla hjá könunum í nánd...



:: tyrkinn 10:04 [+] ::



Sá Planet of the apes í gær, eða pleibs eins og ég kýs að kalla hana. Myndin var ekki merkileg sem slík, en vel tókst upp með öll gervi og grafík alla. Marky Mark er ekki mjög sannfærandi sem hetjan, og er hann alltaf keimlíkur hvort sem hann er að leika geimfara, klámmyndaleikara eða leigumorðingja (var helv. góður reyndar í big hit). Tim Roth var betri sem skúrkurinn, en hann virðist vera fastur í skúrkahlutverkum. Handritið var rennandi blaut af Hollywood og fannst mér óþarfi að blanda einhverjum rómans í þessa mynd. Svona yfir allt þá held ég að leikstjórinn, Burton, sé ekkert merkilegur pappír, meira svona steik.

* * (af 5 mögulegum)


12.9.01

:: tyrkinn 15:31 [+] ::


Stórkostleg þjónusta Símans

Nú er tyrkinn búinn að vera um hálftíma að hlusta á "enn eru allar línur uppteknar, við bjóðum þér að bíða". Nú eru ca. 2 mánuðir síðan tyrkinn fór í raftækjaverslun og keypti sér símtæki þar sem nú þykir móðins að vera með heimasíma. Síðan tók erfiðara mál við þegar átti að tengja línuna. Fyrst var valið númer, en þá tóku leiðindin við. Þegar átti að tengja línuna, var það ekki hægt. Einhver tími leið frá því tyrkinn flutti í bæinn og þar til hann gleymdi GSM símanum í vinnunni og var símalaus heima, sem varð til þess að hann ákvað að fá sér línu. Þá kom símvirki frá Símanum og komst að því eftir nokkurt hark að nú væri ekki laus lína inn í húsið. Hann sagði þá að það ætti ekki að taka nema 1-2 vikur að fá línu inn í húsið. Eftir rúman mánuð fór tyrkinn að ókyrrast og hringdi í hið magnaða þjónustuver símans (800-7000) og var fræddur um það að það væri löngu búið að redda málunum, það bara láðist að láta hann vita. Tyrkinn fór þá glaður heim og ætlaði að vígja símtækið, en varð fyrir miklum vonbrigðum þegar hann komst að því að enginn sónn var til staðar og nýmóðins símtæki verða jú að hafa són. Daginn eftir hringdi tyrkinn aftur í Símann og eftir að hafa verið sendur á milli þjónustufulltrúa í nokkurn tíman var honum tilkynnt að þetta ætti allt að virka og það væri sennilega símtækið. Það var jú prufað og seinna bað tyrkinn um að þetta væri nú fixað, eftir 2 mánaða bið eftir vígsluathöfninni. Viku seinna (í dag) hringir tyrkinn aftur og kvartar, nú orðinn langþreyttur á biðinni eftir athöfn. Tyrkinn skellti á rétt í þessu eftir að hafa beðið mettíma í þrígang eftir að tala við þrjár manneskjur, eina vegna bilunarinnar, aðra vegna 10 þús. kr. símreikning (!) og þá þriðju til að geta svarað þessu með símreikninginn. Samtals tók þetta um hálftíma (tók reyndar ekki tímann) og hlustaði á lyftutónlist á milli gáfulegra samtala við þjónustufulltrúa. Nú bíður tyrkinn eftir öðru símtali frá símvirkja, þegar honum þóknast að kíkja við og laga þetta, hvenær sem það verður. Tyrkinn bíður nú með eftirvæntingu eftir einkavæðingu símans, því lítið annað getur breytt þessu batteríi úr harðkjarna ríkisstofnun í almennilegt fyrirtæki sem hefur einhvern áhuga á að halda viðskiptavinum sínum góðum, a.m.k. fram til þess tíma sem þeir geta farið að eyða í símtöl. Prump.

* (af 5 mögulegum) (stjörnu fær síminn fyrir lyftutónlistina)



:: tyrkinn 12:20 [+] ::


Vinsældir Nostradamusar,
Nú á þessu síðustu og verstu tímum hafa tilvitnanir í Nostradamus (reyndar flestar falsaðar eftir hentilsemi) gengið eins og eldur um sinu í póstkerfum landsmanna. Nafn þessa miðaldarakuklara hefur alltaf birst á ólíklegustu stöðum um leið og eitthvað hefur gerst í heimsmálunum eins og stríð. Þessi bóla skaust upp þegar persaflóastríðið stóð sem hæst, og hver man ekki eftir heimsendaspám Nostradamusar í kringum aldamótin, ofan í allt Y2K vesenið. Málið með Nostradamus er það, að mínu mati, að hann skrifaði eina 1.000 spádóma í eins konar ljóðaformi sem hægt er að túlka á ýmsa vegu. Spádómurinn um aldamótin var nokkuð augljós að fólki fannst, og talað um 7. mánuðinn árið 1999, en ég man persónulega ekki eftir heimsendi í þeim mánuði (góður mánuður mínu lífi...). Fyrir samsæriskenningamenn er þetta nátturulega hið besta mál að geta vísað í einhvern snilling á miðöldum sem vissi allt sem ætti að gerast næstu aldir, en fyrir mína parta er þetta sulta.Í morgun fékk tyrkinn tölvupóst sem innihélt texta á engilsaxnesku sem átti að koma frá snillingnum ("In the year of the new century and nine months, From the sky will come a great King of Terror... The sky will burn at forty-five degrees. Fire approaches the great new city... "In the city of york there will be a great collapse, 2 twin brothers torn apart by chaos while the fortress falls the great leader will succumb, third big war will begin when the big city is burning" - NOSTRADAMUS). Eftir nokkra leit á veraldarvefnum telur tyrkinn sig hafa fundið aðra texta frá Nostradamus sem svipar mjög til þessa texta, en þó með allt annað innihald ("In the year 1999 and seven months... o.s.frv.) og er það kenning tyrkjans, on hún er hans, að þessi texti svo og aðrir eru samsettir af einhverjum snillingum til að vekja óhug meðal saklausra borgara. Nostradamus er ekkert merkilegri en tyrkinn...
* * (af 5 mögulegum) (fyrir skemmtanagildi og PR vinnu)


11.9.01

:: tyrkinn 14:22 [+] ::


Ég er með kenningu og hún er mín. Þetta mayhem er ekki búið í USA og þess verður hefnt með því að kanarnir munu núka þá sem bera ábyrgð. This is going to be hell.



:: tyrkinn 13:20 [+] ::


Og önnur vél í hinn turninn, þeir segja að vélunum (farþegavélar, stórar) hafi verið rænt rétt áður. Tugir þús. eflaust látnir.



:: tyrkinn 13:00 [+] ::


Stór farþegaflugvél var að fljúga inn í World Trade Center á Mannhattan nú rétt í þessu. Flaug beint í 80-ca87 hæð. E.t.v. 737 farþegaþota, og logar í hálfu húsinu. Þetta er ekki grín, er að horfa á þetta á CNN.


10.9.01

:: tyrkinn 12:32 [+] ::


Leigði einnig Boondock Saints um helgina, gríðargóð ræma það. Fjallar um írsk-ættaða bræður í NYC sem taka að sér að vera eins konar sjálfskapaðir lögreglumenn, mikið pjá-pjá og ferskur blær yfir myndinni. William Dafoe leikur þarna samkynhneigðan FBI náunga og fer á kostum. Taka þessa næst.


* * * * (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 10:59 [+] ::


Fór á Tillsammans á fös í bíó. Þetta er sænsk mynd sem gerist í hippakommúnu árið 1975. Góð mynd, mikill húmor og tíminn vel útfærður hvað föt og hluti varðar. Mæli með að fólk skelli sér á hana áður en þeir hætta að sýna hana í Háskólabíó, því hún er komin í sal 5 og aðeins sýnd einu sinni á dag.


* * * * (af 5 mögulegum)


7.9.01

:: tyrkinn 16:21 [+] ::


Alltaf gott að hoppa svolítið...



:: tyrkinn 14:21 [+] ::


Þetta er alltaf jafn gaman! Mækúl djakksonn alltaf svalur...



:: tyrkinn 14:12 [+] ::


Silly fact dagsins
Ef maður setur upp gleraugu sem snúa öllu við (þ.e.a.s. eins og maður standi á haus) og gengur með þau í nokkra daga, fer maður að sjá aftur eðlilega. Það er að segja, líkaminn aðlagast því að sjá öfugt. Fyndnasta við þetta er að þegar maður tekur þessi gleraugu af sér eftir þessa daga, þá sér maður öfugt aftur án gleraugnanna.

"Spliff, donk og gengja, á 20.000 kr., geri aðrir betur!" (Fóstbræður, 1998)



:: tyrkinn 10:04 [+] ::


Tyrkinn fór á sjókajak í gær, sem var gaman. Í áframhaldi af því var haldið í heimahús í mexíkanskan mat og mexíkanska drykki. Og þess vegna er tyrkinn þunnur í vinnunni í dag.... Westurbærinn


6.9.01

:: tyrkinn 14:20 [+] ::


Snillingar á Húsavík, þeir ætla að flytja inn krókódíla til að éta úrganginn úr fiskvinnslum bæjarins. Þetta er komið á vef BBC....



:: tyrkinn 10:10 [+] ::


Tyrkinn mælir eindregið með því að hafa græjur í svefnherberginu. Mælir einnig með því að hafa Low í spilaranum, "Things we lost in the fire" er gríðargóð plata í það herbergi. Einnig má benda á Karate, Jeff Buckley, The For Carnation og UndraStefán af og til. Westurbærinn.

Halim



:: tyrkinn 08:59 [+] ::


Hvað sagði tyrkinn...?


5.9.01

:: tyrkinn 16:40 [+] ::


Í hvert skipti sem Íslendingar gera eitthvað af viti (sem er ekki oft) fyllast landsmenn af stolti og fá tár í augun af því einu að heyra minnst á íslensku hetjurnar. Um leið og það kemur í ljós að lukka viðkomandi er ekki langvarandi (og hún er það sjaldnast) verða stoltir íslendingar sárir og oft reiðir út í þær hetjur sem ekki ná að kreista fram annað kraftaverk. Til dæmis má nefna afrek hennar Völu okkar sem setti hvert heimsmetið á fætur öðru í nýfæddri íþróttagrein á sínum tíma.
Það er mín kenning, og hún er mín, að strákarnir okkar (eins og við kjósum að kalla þá) nái ekki að kreista fram sigur í kvöld á Nírum. Það er einnig mín kenning að margir verða gáttaðir á því, nú vegna þess að Ísland er ein fremsta knattspyrnuþjóð í heimi eftir sigurinn á Tékkum. Vonum að það verði ekki mikil reiði. Tyrkinn ætlar ekki að vera reiður, en massa stoltur ef strákarnir okkar ná að knýja fram annan sigur. Áfram Ísland...


4.9.01

:: tyrkinn 13:09 [+] ::


Byssueign íslendinga...

Okkur íslendingar vantar einskonar Charlton Heston og byssuvinafélag sem allra fyrst. Til að geta talist til alvöru vestrænna ríkja ættum við að stuðla að því að hvert mannsbarn sé frætt um skotvopn og helst láta kirkjuna gefa hverju barni almennilegan riffil eða skammbyssu í fermingargjöf. Þetta myndi gera líf hér á Íslandi mun skemmtilegra og spennandi og mundi auðga alla fréttamiðla svo um munar. Til dæmis las ég í fyrsta skipti í langan tíma forsíðu fréttablaðsins um "stóra Tómasarhagamálið" í dag, en venjulega tek ég það merkisblað með mér í vinnuna til að fylla ekki ruslatunnur heimilisins. Tyrkinn lærði snemma af kananum þegar hann var sendur þar ytra rétt eftir fermingu í sumarbúðir. Þar kenndu kanar honum allar lífsins kúnstir við að munda frethólka og að sjálfssögðu var honum leyft að skjóta af 38 kalíbera skammbyssu, svona því hann var fermdur og þannig. Að lokum fékk hann skírteini frá NRA eða National Riffle Association fyrir góða frammistöðu í skotfimi, og tiltilinn "Marksman". Kanarnir kunna þetta....

...eða ekki...

Halim Al Acbar, Marksman


3.9.01

:: tyrkinn 16:34 [+] ::


...talandi um Sukk-on 2001, algjört möst að prufa "Necks" , hátíðardrykk Sukk-On 1997 að mig minnir. Nafnið hlýtur drykkurinn úr hráefninu, þ.e.a.s. Becks bjór og Nescafé instantkaffi. Hellið ölinu í hátt bjórglas, bætið nokkrum skeiðum af Nescafé út í og hræðið. Ekki fyrir þá sem ekki drekka kaffi...

Respect, Halim



:: tyrkinn 13:35 [+] ::


...mæli eindregið með því að taka lufsuprófið fyrir þá sem ekki gera það...

Halim



:: tyrkinn 13:06 [+] ::


Ég fann upp nýja týpu af þynnku um helgina, ofurþreytu, eins og ég kýs að kalla hana. Þennan hvimleiða sjúkdóm var ég með á laugardaginn, svo og sunnudaginn eftir brullaupið. Þetta lýsir sér þannig að maður getur ekki verið sofandi né vakandi, heldur er maður að deppla augunum gríðarlega hægt og veit ekki hvort maður er sofandi eða vakandi. Mjög gott. Svo dreymir maður vakandi og hrekkur við af og til með tilheyrandi látum. Annars ætti maður ekki að vera að segja þetta þegar meðlimir Sukk-on samtakana gætu verið að lesa. zzz

Achbar



:: tyrkinn 12:42 [+] ::


Mánudagur til þynnku...

Tyrkinn fór í brullaup síðastliðinn laugardag til Svenna Svenn sem ákvað að giftast þrátt fyrir að hafa fundið kynhneigð sína í steggjarveislunni. Athöfnin var létt og skemmtileg og var tónlist leikin af Ómari Guðjóns gítarleikara, einhverjum saxafónleikara og ungri söngkonu sem fór á kostum (eitthvað Gröndal, ekki orðin 17 ára og söng eins og engill). Brúðurinn var reyndar alveg að missa sig þegar séra spurði hana stóru spurningarinnar, og iðaði öll við hlártrasköll viðstaddra. Brúðguminn var eðlilegri á að líta, þrátt fyrir hneikslun föður síns fyrir að velja brúna skopparaskó fyrir stóra daginn. Bjarkinn fór líka á kostum þegar hann fékk sér sæti vinstra megin í kirkjunni þar sem aðeins konur sátu fyrir, þetta braut svolítið upp stemninguna í kirkjunni og var hlegið að ýmsum atvikum eftir það.

Veislan var gríðargóð líka og þar tók enginn sig alvarlega og var baunað á brúðhjónin hægri vinstri, og þá helst frá ættingjum þeirra hjóna. Myndband frá steggjaveislunni vakti líka mikla kátínu, og þá sérstaklega leðurhomma-átfittið á steggnum svo og rass-klóra hans sem sýnd var í sló-mó undir fögrum tónum Right-said Fred ("I'm too sexy for this..."). Hljómsveit brúðgumans (Í svörtum fötum) lék svo fyrir dansi og fór Tyrkinn ekki heim fyrr en upp úr 4 um nóttina þegar starfsmenn veislusalarins hentu honum út ásamt öðrum duglegri drykkjumönnum. Gríðargott kvöld það.

* * * * * (af 5 mögulegum)

Halim


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra