|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
31.10.01
Og þá er farið að snjóa....ansk...
Frú Achbar flutti hluti sína í mosku tyrkjans í gær. Afleiðingarnar eru léttar harðsperrur og ógrynni af pappakössum í stofunni. Mest kom tyrkjanum á óvart hvað hún átti mikið af skóm, tveir heilir pappakassar og stór taska full af skóm voru í för. Ætli hún sé eitthvað skyld frú Sjálfseslkú fyrrverandi fyrsta frú Rúmeníu?
Jóla hvað... Í Fréttablaðinu er heilsíðuauglýsing um jólahlaðborð. Nóvember hefur ekki enn gengið í garð, og tyrkjanum þykir þetta viðbjóðslegt. Skreyta á þorláksmessu, og halda upp á jólin um jólin, annað er rugl...
30.10.01
Vandræði í smjerbolla
Hrikalegar hörmungar eiga sér stað í dag, ekki bara í afganistan og á pósthúsum víðsvegar um heiminn, heldur einnig hér á okkar litla landi. Í grein á strik.is er rætt um sorgleg vandræði innan stórhljómsveitarinnar buttercup sem títt hafa verið rædd að undanförnu. Fyrir þá sem ekki fylgjast með fréttum virðist sem svo að trymbill hljómsveitarinnar (sem n.b. fær ekki umfjöllun eins og hinir í bandinu ) hafi stungið undan söngvaranum og giljað söngmær hljómsveitarinnar. Einhverra hluta vegna virðist þetta hafa einhver neikvæð áhrif á móralinn innan hópsins og virðist sem svo að hljómsveitin ætli að halda áfram, en án nýja parsins (sagan segir að þau búi saman í íbúð söngvarans...). Tyrkinn skyldi ekki betur en plata sé einmitt ný tilbúin til útgáfu og verður þetta allt saman svolítið sérkennilegt. Tyrkinn mun hins vegar ekki tapa svefni yfir þessu öllu saman. Langaði bara að deila þessu með ykkur...
Bötterköpp * (af 5, söngmærin fær þessa einu fyrir snilldarleik....)
Sjónvarpið fær plús
Tyrkinn vill ekki þurfa að borga nauðugur fyrir ríkissjónvarpið né ríkisútvarpið, þ.a.m.t. rás 2. Samt sem áður eru þessar stofnanir ekki að gera allt rangt. Sjónvarpið hefur t.d. gert ágætis hluti að undanförnu og sýnt óvenju mikinn lit fyrir ríkisstofnun. Mánudagar eru til dæmis nokkuð góðir, eins og sjá mátti í gær. Tyrkinn var búinn að leigja sér Krjúpandi tígrisdýr, falinn dreka en neyddist til að geyma diskinn til morguns. Þátturinn um sæta lögfræðingin Ed er reyndar ekki upp á marga fiska, en það sem á eftir kom var ljómandi. Heimildarmyndin um Islam kom einmitt þar á eftir og er hún gríðar vel gerð og varpar ljósi á forfeður tyrkjans sem hann var ekki með á hreinu fyrir. Í gær var sýndur 2 þáttur af þremur og kemur sjónvarpið með þetta á hárréttum tíma þegar allir eru allt í einu komnir með skoðun á þessu fólki öllu saman án þess að þekkja það að neinu marki. Sjónrænt eru þættirnir líka flottir, allt sett á svið og útskýrt vel. Nú, eftir þessum þætti kom ómissandi maður á skjáinn. Sigurður Rickter er merkilegur maður. Hann hefur ekkert breyst í aldanna rás og segir hann ætíð sömu hlutina. Reyndar er tyrkinn með kenningu um þann mann. Samkvæmt kenningunni er hann ekki til, heldur nokkurs konar Max Headroom ef einhver man eftir honum. Róbotinn Sigurður byrjar alltaf á sömu orðunum; "Komiði sæl, í þættinum í dag ætlum við að fylgjast með X og X", "Fyrsta myndin í dag fjallar um X" og undir lok þáttarins kemur; "Og þá er það ekki meira að sinni, veriði sæl". Algjör klassík. Uppáhalds þáttur tyrkjans alveg frá "blautu barnsbeini" (fyrir þá sem ekki vita er þetta orðatiltæki rangur misskilningur úr dönsku en ætti að vera "frá mjúkum barnsfótum" sem dönskusérfæðingur tyrkjans vill meina að þýði óstöðugir barnsfætur). Eftir Nýjustu tækni og vísindi taka við 10 fréttir sem senn heyra sögunni til, tyrkinn er alveg sáttur við það , sérstaklega ef það sparar eitthvað fyrir skattborgara. Eftir fréttir kemur svo einn flottasti þáttur seinni tíma, Sopranos. Þetta er alveg keppnis. Alvöru mafíósaþáttur, sýnir blóð, gor og túttur jafnvel sem þykir flott miðað við blessaða kanana. Þessi þáttur er ein af fáum ástæðum fyrir því að tyrkinn vill geta haft val á því að hafa þessa stöð (Steinunn Ólína er t.d. ekki að gera mikið fyrir tyrkjann). Ætli tígrisdýrið og drekinn fari ekki í tækið í kvöld.
Sjónvarpið * * (af 5) Róbotinn Sigurður * * * * * (af 5) Sópranós * * * * 1/2 (af 5)
Það er ekkert leiðinlegra en þegar maður bíður til 10:00 á morgnana með að fá sér kaffi, og svo þegar maður fer fram á kaffistofu er ekkert kaffi til. Grrrrrrr...
29.10.01
Sjómannaafsláttur fyrir alla
Við hádegisverðarborðið komu fram áhugaverðar hugmyndir. Verið var að ræða heimskupör stjórnvalda í gegnum tíðina og hófst umræðan á því að ræða um að japanska ríkið kaupir öll hrísgrjón af bændum þar í landi og selur á lægra verði út úr landi. Þetta svipaði mjög til annarar eyju í atlantshafi sem kýs að greiða bændum fyrir að mega vera með aumar 200 rollur að naga það litla sem eftir er af gróðri. Annað fyrirbæri er hinn svokallaði sjómannaafsláttur. Þar sem sjómenn eru mun merkilegri fólk en annað fólk þurfa þessir stórkostlegu menn að greiða minna í skatta en ósjómenn eins og tyrkinn kýs að kalla okkur óæðri fólk. Var rætt hvernig hægt væri að afnema þetta fyrirbæri, og barst tal út í það að sennilega væri erfitt að taka þetta af, því ekki má styggja við þessum æðri kynstofni. Að lokum komust viðstaddir að þeirri niðurstöðu að sennilega væri auðveldast að láta bara alla hafa sjómannaafslátt. Ef fólk fyndist það vera eitthvað asnalegra en margt annað hér á landi væri hægt að senda fólk á skattstofuna með veiðistöng til að sanna sjómennsku sína. Bara ef hægt væri að finna svipaða lausn á stóra alþingismálinu, þ.e. að fólk sem rembist við að búa úti á landi og er styrkt í þá vitleysu hafi meiri völd til að velja leiðtoga landsins. Ef hægt væri að leysa það mál yrði Ísland jafnvel einhvern tíman lýðræðisríki. (Myndin er fengin af vef ÚA, www.ua.is )
Tyrkinn fer í hálendisferð Tyrkinn fór í jeppaferð á laugardaginn upp á hálendi. Veðrið var ágætt, svo lengi sem maður hélt sér inni, því það var anskoti kalt þarna uppfrá. Eftir góðan bíltúr var ákveðið að reisa búðir við álftavatn, þ.e.a.s. hertaka skálann þar. Þar var etið, drukkið, sungið og farið mikin, og var það vel. Var það svo vel að uppkast-hlutfallið var með því hæsta sem tyrkinn hefur séð. Alls köstuðu um 66,7% ferðalanganna upp á þessum sólarhring, þó með mis glæstum árangri. T.d. náði tyrkinn ekki að kasta nema í nef sér, og var það ekki mjög gott, og alls ekki eins glæsilegt og húrluhrinan hans sigurdz sem var sá flottasti þann morguninn. Einhverjar kenningar voru uppi um að ket það er Inginn og sigurdz keyptu hefði annað hvort verið skemmt eða andsetið, en kenning tyrkjans er sú að drykkjan, sem var góð skv íslenskum siðum, hafi verið valdurinn af þessum ósköpum. Allt í allt, stutt en góð ferð. Tyrkinn þakkar samferðafélögum sínum fyrir túrinn.
Voða fínt hjá poppstjörnunni
Tyrkinn fór ásamt frú heim til Poppstjörnunnar til matarboðs. Þess má til gamans geta að þetta er sú íbúð er notuð var í "Piparsveinninn og Kokkurinn" sem sýndur er á Skjá 1 þessa dagana. Poppstjarnan og eiginkona hans nýbökuð, tóku höfðinglega á móti gestum sínum og var það vel. Boðið var upp á ljúffengan mat að hætti indverja og gott vín með. Svo var setið fram á nótt við glas, þangað til frýrnar sofnuðu værum svefni ásamt títt umtalaða kvikindinu Tyson. Tyrkinn þakkar fyrir sig og sína, og hlakkar til að snæða aftur á þessu myndarlega heimili. Spurning um hvort þessi kokkur leynist þarna ennþá...
26.10.01
Tyrkinn býður góða helgi...
Tyrkinn tók simbann sér til fyrirmyndar og prufar nú blogbuddy í fyrsta sinn, voða fínt. Annars er tyrkinn að fara í matarboð til Poppstjörnunnar í kvöld, og var lofað einum þremur tegundum af koniaki og góðum mat, gott ef ekki má búast við hundskvikindinu á aðra löppina líka. Svo eru bara Landmannalaugar á morgun.
Meira um dýrahald
Móðir tyrkjans var að segja honum frá sjónvarpsþætti nokkrum á ónefndri sjónvarpsstöð (hún er ónefnd því tyrkinn man ekki hvaða stöð). Þar var viðtal við einhverja konu eða "dýravin" sem var stoltur kattareigandi. Þar var hún búin að klippa allar klær af kettinum sínum sínum svo hann gat ekkert athafnað sig eins og kettir gera. Þetta gerði hún svo að kötturinn hennar klóraði hana ekki á meðan hún var að baða kvikindið, nazi style. Kötturinn vældi eins og stunginn grís á meðan konan þreif hann upp úr sápuvatni með bros á vör. Eftir það mátti kötturinn ekki gera neitt svo hann væri nú vel til hafður fyrir einhverja sýningu. Svipaða sögu sagði poppstjarnan tyrkjanum um daginn þegar hann sýndi tyrkjanum doberman hvolp sinn sem er óðum að verða að drápsmaskínu. Hann sagði að algengast væri í þessum doberman bransa að stífa eyrun á kvikindunum með aðgerð sem örugglega er ekki sársaukalaus fyrir hundinn, og auk þess klippa af honum rófuna. Ef tyrkinn væri trúaður mundi hann telja þetta helgispjöll við sköpunarverk allah. Þetta er gert til að gera hundinn ógnvænlegri til yndisauka fyrir Sado-maso eigendur sýna. Sem betur fer hafa poppstjarnan og frú hans manngæsku til að hlífa "syni" sínum (eins og þau kalla kvikindið) við þessum viðbjóði. Tyrkjanum finnst að banna eigi allar dýrasýningar þar sem dýra-öfuguggar hittast til að monta sig af afskræmdum dýrum sínum, sem búið er að raka til, stífa, skrúbba, klæða í föt og pynta á annan hátt. Þetta er gert til að fullnægja duttlungum dýra-öfugugga, en ekki til að skapa dýrunum betra líf, þvert á móti er þetta sennilega kvöl og pína. Tyrkinn vill banna sýningar og aðrar afskræmingar á dýrum, ætti e.t.v. að taka www.stoppumdyraofugugga.is frá... (mynd er fengin af tilverunni)
Loksins er kominn almennilegur MP3 spilari... Tyrkinn á MP3 spilara frá Samsung eða einhverju svoleiðis fyrirtæki og er búinn að eiga hann í 2 ár eða svo en notar ekki neitt. Ástæðan fyrir því er sú að hann tekur ekki nema 32MB og því kemst ekki nema hálf plata eða svo inn á hann, auk þess að það tekur óratíma að dæla inn á hann. Tyrkinn kíkti inn á tilveruna áðan og sá þá að nú er komin bót á þessu, ipod frá Apple. Þessi náungi tekur 5 GB eða ca. 1.000 lög inn og er hann með "firewire" tengi sem þýðir að hægt er að dæla heilum geisladisk inn á um 10 sec. Ef tyrkinn ætti svoleiðis mundi hann nota svoleiðis, jafnvel nenna að fara í gimmið aftur. Aftur á móti er hann ekki ódýr, kostar rúmar 40 þús krónur, líklega 50-60 þús kominn til íslands. Vonandi er þetta byrjunin á nýrri kynslóð af svona græjum sem verði soldið ódýrari...
25.10.01
Tyrkinn býður lesenda númer 666 velkominn á vef tyrkjans. Lesandi þessi er væntanlega starfsmaður "þjónustu"borðs símans (800-7000). Bendi honum sérstaklega á að lesa pistla um símann víðsvegar í "eldra" hér á vinnstri spássíunni...usss...
Talandi um syndrome (á síðunni hans simba, rætt um Hard Rock Syndrome), datt tyrkjanum í hug annað syndrom, eða Karate-Kid syndrom. Þetta heilkenni, eins og tyrkinn kýs að kalla það, verður vart um sig þegar fólk er nýbúið að sjá bíómyndir og fyllist spenningi sem lýsir sér þannig að fólk setur sig ósjálfrátt inn í karaktera eða hlutverk í viðkomandi mynd. Nafn sitt dregur heilkennið af því þegar Karate Kid var sýnt og aragrúi af ungum drengum (e.t.v. stúlkum líka) kom út úr bíósölum landsins sparkandi í allt sem í vegi þeirra varð, og mátti sjá ungdóm landsins standa á staurum víðsvegar um sveitir með annan fótinn á straurnum, hina með hnéð upp í loft og hendur upp í loft. Af þessum sökum eru óvenju margir á aldrinum 18-25 ára ófrjóir í dag. Nú, afleiðingar Karate-Kid má sjá í kjölfarið af hinum ýmsu myndum, og þá helst svokölluðum hasarmyndum, þar sem adrenalín er stór þáttur af heilkenninu. Sem dæmi má nefna um heilkennið er fólk með kústsköft að skylmast eftir Star-Wars myndirnar, tilkomu Nauthólsvíkur eftir Baywatch þættina, og stóraukningu í flugnemum eftir Top Gun á sínum tíma. Einnig mátti sjá afleiðingar heilkennisins eftir E.T. mynd Spielbergs, svo og Footlose, en Jassballet skóli Báru var einmitt stofnaður í kjölfar þeirrar myndar. Stöndum saman, vörumst stórvarasamar afleiðingar Karate-Kid heilkennisins. Tyrkinn, phoooone hoooooome.
Tyrkinn ætlar í hálendisferð á laugardaginn, þá skal keyrt, drukkið og dáið, og haldið aftur heim að gömlum góðum sið.
"Nútíminn er trunta með tóman grautarhaus hjartað það er hrímað því heilinn gengur laus
Hún er kenjótt eins og kráka köflótt efni í kjól Kjarklaus eins og klerkur sem klifrar upp í stól
Einhver verður undir að gömlum góðum sið undalegt hvað öllum er annt um kvikindið" (Þursaflokkurinn, Nútíminn)
"Vinir bílsins"
Bílainnflytjendur og aðrir sem hag hafa af því að fólk kaupi sér nýja bíla hafa nú hafið nýja herferð til að örva sölu á nýjum bílum á landinu. Yfirskrift átaksins er "Vinir bílsins". Í hinu innihaldsríka fréttablaði er heilsíðuauglýsing í dag: "Þolinmóður bíðar hann þín um nætur. Hann skýlir þér í vondu veðri og fer með þig á staði sem þú kæmist annars ekki á. Hann kemur börnunum þínum í skólann og hjálpar þér við innkaupin. En hann er alltaf skilinn eftir þegar farið er út að skemmta sér. Án hans myndi atvinnulífið lamast og Íslands væri óbyggilegt. Hann kvartar aldrei, þó meira að segja hundarnir ofsæki hann. Og við getum ekki án hans verið. Hvað er langt síðan þú hefur strokið bílnum þínum? Verum stolt af bílunum okkar, Vinir bílsins ". Þetta þykir tyrkjanum ekki "töff". Þetta lið er að reyna að persónugerva bíla og lokka fólk til að endurnýja bílaflota landsins. Er þörf fyrir það, ekki heldur tyrkinn það. Ef hann man rétt eru hvergi fleiri bílar per haus en á íslandi og það er ekki það besta að kaupa sér nýja bíla þegar hagkerfið er í samdrætti. Eftir gríðargóða sölu hafa bílaumboðin ekki hægt nógu mikið á innflutningi og sitja því uppi með þúsundir bíla, það má sjá á planinu í sundahöfn þar sem hrúgurnar af nýjum bílum bíða þess að riðga. Einnig hafa verið útsölur á notuðum bílum eftir bílakaupin miklu og tyrkjanum sýnist bílakostur landsmanna vera bara nokkuð vel á sig kominn. Það er ekkert verið að tala um kostnaðinn við að eiga bíla í dag, bara tryggingarnar hafa hækkað um heilan haug síðan tyrkinn keypti Albatrossinn fyrir ekki svo löngu síðan. Tyrkinn er nokkuð sáttur og stoltur af sínum 21 árs gamla eðalvagni og hefur ekki ekki áhuga á að kaupa nýjann til að gerast "vinur bílsins", Albatrossinn er vinur í raun.
24.10.01
Tyrkin mældist 26% "Gík" Tyrkinn tók nördapróf umrættog fékk 26% og umsögn "You probably work in computers, or a history deptartment at a college. You never really fit in with the "normal" crowd. But you have friends, and this is a good thing.", sem hann kýs að kalla rangt. Tyrkinn kýs því að kalla sig kvartnörd.
...Marsbúarnir þeir komu í gær...
Bandaríkjamönnum hefur tekist að koma geimfari á sporbaug Mars eftir 2 misheppnaðar tilraunir , skv. frétt af mbl.is. Grátlega mistókst síðasta tilraun þegar rangur misskilningur var á milli tveggja manna. Annar þeirra nefndi tölu í fetum en hin skildi hana sem metra eða öfugt, þetta varð til þess að skrilljón dollara verkefni fór í vaskinn, örugglega nægur peningur til að fæða allan þriðja heiminn (hvar er annar heimurinn?). Þetta er ein vitleysan. Af hverju í andskotanum eru mismunandi mælikvarðar í gangi, sérstaklega á milli Vesturlandanna? Til hvurs í andsk. eru notuð fet í UK og USA en metrar í öðrum keppnislöndum. Af hverju nota kanarnir farenheit en við hin celsius. Af hverju eru bæði notuð pund og kg? Þetta er hin mesta vitleysa. Tyrkinn spáir því að þetta hljóti að vera lagað áður en fleiri geimför fara til anti-allah. Síðan að lokum verður náttúrulega bara eitt tungumál, a.m.k. á milli siðaðra landa (Ísland, Frakkland, Tyrkland, Bandaríkin o.s.frv.), og það tungumál verður ekki íslenska. Synd hvernig fór fyrir lausn lausnanna, esperanto. The turk, many miles, feets, meters from home, signing off...
23.10.01
...er ekki kominn tími á að fara sýna miami vice aftur á íslandi?
Athyglisverð tilraun (af visi.is)
22.10.01
Meðferð skotvopna í Afganistan
Um daginn var birt frétt um að náinn samstafsmaður Ósóma Bin Ladens hefði látist þega félagi hans kastaði til hans ósprunginni sprengju, sem þeir höfðu fengið að "gjöf" frá könunum. Þetta kemur tyrkjanum ekki á óvart. Hefur þú, lesandi góður, tekið eftir því að þegar sýndar eru myndir af afgönum eru vopn þeirra ekki mjög sannfærandi. Flestir eru með eldgamlar rússneskar AK47 byssur í misgóðu ástandi. Furðu vekur einnig að þegar sýndar eru myndir af mönnum að springa úr stolti yfir vopnum sýnum er yfirleitt einn töffari með eldflaugavörpu (sbr. amerísku Bazooka byssurnar í WW2) rússneska að gerð, og undantekningalaust eru skeytin sem þeir troða ofan í hólkana beygluð til helvítis eins og það hefði verið notað til niðurrifsstarfsemi eða aðra svipaða starfsemi. Gæti verið að ef kanarnir fljúga bara hringi í kringum þá að þeir ná að lokum að sprengja sjálfa sig í loft með þessum græjum. Tyrkinn spyr sig að því...
...já komdu vinur minn
Tyrkinn varð fyrir gríðarlegum vonbrigðum í gær. Eftir dágóðann útúrdúr (hvergi eru fleiri ú í íslensku orði m.v. stafafjölda) í massívri þoku renndi tyrkinn í hlað kántrýbæjar og var planið að fá sér kúrekaborgara með frönnum. Á leiðinni á Skagaströnd heyrði tyrkinn í kúreka norðursins þar sem hann ræddi rekstrarerfiðleika kántrýbæjar og að öllu batteríinu yrði lokað ef hann greiddi ekki um milljón króna vangoldin stefgjöld. Þar hugsaði tyrkinn með sér að nú væri ekki seinna vænna en að líta í hinn víðfræga kántrýbæ. Tyrkjanum til gríðarlegra vonbrigða var staðurinn ekki opinn, og hafði tyrkinn ekki tíma til að bíða eftir opnun. Í sárabætur fékk hann þó að hlusta á fagra gítartóna og tragafullan söng langleiðina heim.
Tyrkinn keyrði heim í gærkvöldi frá Hofsós city. Þar eyddi hann ásamt frú sinni helginni í ættaróðali Achbar fjölskyldunnar, í sveitasælunni. Aldrei hefur tyrkinn keyrt í jafnmikilli þoku og á föstudaginn, hann sá ekki nema 1-2 vegstigur áfram og glitti aðeins í himinn á stuttum köflum inn á milli. Á tímabili virtist vera göng í gegnum þoku skrattans og hugleiddi tyrkinn þá hvort þetta væri leiðin til anti-allah eða útí skurð. Ferðinn hafðist þó á rúmum 5 tímum stórslysalaust. Lítið varð úr skoðunarferðum um undur skagafjarðar, en úr varð afbragðs afslöppun í Skjaldbreið (ættaróðalinu). Ætli tyrkinn fari ekki aftur þegar kemur að þorrablótum, ef ekki fyrr.
19.10.01
EVE online
Tyrkinn var að skoða heimasíðu EVE leiksins og er nokkuð spenntur að sjá útkomuna úr því. Það er greinilega mikið lagt í grafík í þessu og þeir í CCP virðast vera að gera góða hluti með þetta. Fyrir þá sem ekki vita veltir tölvuleikjabransinn töluvert meiri fjármunum en hollywood bransinn. E.t.v. eftir að soga peninga inn í íslenska hagkerfið svo við getum farið að eyða aftur eins og hauslausar hænur. Tyrkinn býður góða helgi til sjávar og sveita, og er haldinn til Hofsós City. (myndin er af heimasíðu EVE )
Ha-ha lag Featuring Colin Powell and George Bush jr. on drums: Flash myndband...
Tyrkinn fór í fótbolta í gær ásamt félagi sínu, FC-Sokks. Að vanda gerði tyrkinn lítið gagn fyrir lið sitt nema þá helst að hvíla aðra liðsmenn. Að lokum fór hann heim og hlammaði sér í sófann, alveg búinn á því. Því næst neyddist hann til að horfa á alla dagskránna á Skjá 1, því ekki nennti hann að standa upp, né teygja sig í fjarstýringuna. Malcom in The middle var ágætur að vanda, svo kom einhver dæmigerður amerískur þáttur "King of Queens" ef tyrkinn man rétt, ekki merkilegur. Þá næst kom enn einn "veruleikaþáttur", ekki eins og tyrkinn hafi lennt á eyðieyju með 15 manns og átt að redda sér með fullt af myndavélum í andlitinu. Nú, þessi þáttur var eins og einhver tsípó útgáfa af temptation island sem er alveg pistill út af fyrir sig. Þarna eru 16 manns sett á stórt seglskip og virðist tilgangurinn vera sá að fá þetta fólk annað hvort til að slást eða eðla sig. Þetta lið sem fer í þetta er náttúrulega búið að horfa á alla þessa þætti og kemur með mjög ákveðið hugarfar hvernig þau ætla að vinna leikinn, þ.e. tilheyra því pari sem síðast fer. Strax á fyrsta degi voru komnir ágreiningar og fólk farið að hata hvert annað, þ.e.a.s. yfirleitt konur sem hötuðu aðrar konur. Þetta var eins og að horfa á kattaslag, reyndar þora þær ekki að segja neitt við hverja aðra, en baktalið var gríðarlegt. Verstu útreið fékk blondína sem hafði látið stækka júgur sín um allt of margar stærðir og var vinsæl meðal karlanna. Samferðakonur hennar hreinlega tættu hana í sig og voru gríðarlega hneikslaðar á þeirri ljóshærðu. Svo fór önnur að væla þegar henni var hælt því hún hafi verið svo ljót þegar hún var lítil. Svona var þetta allt saman, ein var alveg að fara hamförum þegar hann var að yrkja klisjukennt ljóð til einnar konunnar sem hann hafði hitt fyrst fyrr þann sama dag. Only in Amerika. Held að tyrkinn horfi á þetta öðrum augum en kanarnir, tyrkinn hefur gaman af því að sjá hvað þetta er í raun klikkað lið, en kanarnar hafa gaman af þessu því þetta er eins og lífið sjálft, eða þannig. Stundum er þetta bara of mikið...
Tyrkinn ætlar til Hofsós City um helgina. Þar ætlar hann að chilla on the country side, eins og Kenny Rodgers gerir ásamt Wyclef Jean. Þar er margt gott að finna, Vesturfarasetrið, Ölhúsið Sigtún og gott fólk.
Hofsós City * * * * (af 5)
18.10.01
Nýjustu fregnir herma að Tyson, nýji hvolpur poppstjörnunnar, hafi nú þegar kjammsað vel á síma poppstjörnunnar og sé nú þegar farinn að pæla í super-sófa þeirra hjóna, þ.e.a.s. tók smá törn á púða svona til að byrja með. Fylgist með frá byrjun, alltaf nýjustu fréttir á Tyrkjasíðunni. Vonandi eru þetta fréttir sem má birta, kvartanir berist í tölvupóst tyrkjans (sjá ofar á síðunni)...
Hið ótrúlega hendir Tyrkjann !
Eftir leiksýninguna í gær (sjá síðasta pistil) fór tyrkinn heim eftir viðkomu á The Celtic Cross. Í vonleysi sínu og tár í auga tekur tyrkinn upp símtólið góða og jafnframt ónotaða í von um að heyra són. Lítinn són sem hleypa gæti ljósi í símalaust líf tyrkjans, lítið ljós sem gæti tengt tyrkjann við internetið, lítinn són sem gæti gert tyrkjanum kleyft að hringja í móður sína á vondum dögum þegar tyrkinn gleymir farsímanum í vinnunni, lítinn vonarneista sem gæti gert Tyrkjann að sönnum íslenskum borgara með númer í símaskránni. Niðurlútur dregur tyrkinn upp tólið með svartsýnisglampa í auga og dregur að eyra. Tyrkinn trúði ekki sínum eigin eyrum, lítill fallegur sónn fékk hverja einustu heilasellu til að tifa af ánægju og tærnar til að kurlast upp undir yljar og roðna. Hann grét af gleði, hann hoppaði upp úr sandölunum, hann vafði túrbaninum um brjóstkassann á sér og söng; "I just called to say, I love you, I just called to say how much I care". Þriggja mánaða baráttu við ríkisbálknið Símann var lokið, var lokið með sigri Tyrkjans. Tyrkinn vs. Ríkið: 1:983 , loksins einn sigur Tyrkjans gegn óréttlæti stofnanamenningar. Aldrei aftur sendur á milli fulltrúa síma"þjónustunnar" (800-7000), aldrei aftur kennt um að bera sök á skortinum á sónleysinu, aldrei aftur svívirtur af grimmum starfsmönnum símans sem alltaf eru hissa á að allt skuli ekki virka og halda að það hljóti að vera símtækin bæði tvö. Eftir að hafa grátið af gleði eins og fegurðardrottningar gerðu á níunda áratugnum, fór tyrkinn aftur að hugsa rökrétt. Er þetta búið? Hvað með reikningana fyrir þessa þrjá mánuði sem síminn kaus að senda til móður tyrkjans, alla upp á 1.100 kr. eða mánaðargjald símans. Það kemur greinilega engum þarna á óvart að þegar síminn "er í lagi" í þrjá mánuði og notandinn vill bara borga mánaðargjaldið en ekkert nota gripinn. Alltaf jafn hissa. Nú er bara að láta reyna á það hvort tyrkinn nái fram réttlæti og láta fella niður þessa reikninga, þegar síminn játar sig sigraðan og áttar sig á hver á sök á þriggja mánaða símaleysi.... er einhver með módem til sölu?
Tyrkinn 1 Síminn 0
Fyrir áhugasama er númerið hið sama og hjá móður tyrkjans en byrjar á 562 í stað 565. Tyrkinn birtir ekki símanúmer sitt opinberlega í heild sinni til að forðast aðkast frá aðdáendum.
Tyrkinn fer í leikhús
Gyðnið hringdi í tyrkjan í gær og bauð í leikhús ásamt frú, og var það vel. Liðin voru nokkur ár síðan tyrkinn fór í leikhús og sló hann til. Ástæðan fyrir skort á leikhúsferðaleysi tyrkjans var sú að hann er ekki mikill leikhúsmaður, honum finnst leikhúsformið vera of ýkt og oft á tíðum fullmikil dramatík fyrir hans smekk. Einnig fer mikið í taugarnar á honum þessi íslenska leikhúskurteisi íslendinga, en oft finnst tyrkjanum allir klappa voða mikið þrátt fyrir slappa sýningu, heldur væri ráð að selja ferska ávexti (þurfa reyndar ekki að vera ferskir) í hléinu þegar fólk er búið að fá nasasjón af sýningunni. Að lokum fer voðalega mikið í kapítalísku taugar tyrkjans að á Íslandi skulu vera í kringum 35 leiksýningar í gangi í einu! (upphrópunarmerki). Nú eru litlu leikhúsin farin að væla yfir að fá ekki styrki eins og þjóðleikhúsið og borgarleikhúsið, í stað þess að krefjast þess að fella niður alla styrki og berjast eins og menn. Tyrkinn sér ekki ástæðu fyrir því að styrkja þennan bransa þegar gríðarlegt offramboð er að sýningum hér á landi. Af hverju ættum við að setja peninga skattborgara í að halda uppi allt of mörgum sýningum þegar þetta er greinilega ekki að standa undir sér, þ.e. fólk hefur ekki nægan áhuga á að fylla þessar 35 sýningar. Til dæmis heldur tyrkinn að flestir ef ekki allir á sýningunni í gær hafi verið með boðsmiða, og litla sviðið í þjóðleikhúsinu tekur ekki nema örfáar hræður. Ekki vill tyrkinn borga fyrir þessi ósköp. Af hverju ekki að hætta öllum styrkjum og leyfa sýningum að fækka (nema allir vilji tapa á þessu, ekki hægt að tapa endalaust...) þangað til að þetta stendur undir sér, tyrkinn getur alveg þolað það að það séu ekki nema 15 sýningar sem hann er ekki að sjá, í stað þeirra 35 sýninga sem hann er ekki að sjá í dag (mínus einn fyrir gærdaginn). Einnig grunar tyrkjann að það séu fáir aðrir en allir þessir leikarar sem eru að fara á sýningarnar hjá hverjum öðrum, restin er borguð af ríkinu, þ.e.a.s. tyrkjanum og ykkur hinum.
Nóg um leikhúslíf tyrkjans, hann ætlaði nú að segja ykkur aðeins frá gærkvöldinu. Umrædd leiksýning heitir "Hver er hræddur við Virginíu Woolf" og er sýnd í Þjóðleikhúsinu. Fannst honum þetta vera hið dæmigerða leiksýning sem hann hefur rambað inná, yfirleitt í fylgd kennurum og öðrum nemendum, því yfirleitt fer tyrkinn ekki óneyddur á svona atburði. Litla sviðið í Þjóðleikhúsinu er gríðarlega lítið svið og salur og komast kannski um 80 manns þarna fyrir. Þetta gerir það að verkum að maður finnur táfýlu aftur á aftasta bekk (sem var reyndar bara þriðji bekkur) og ólánsamir áhorfendur á fremsta bekk hafa örugglega verið úðaðir af munnvatni Pálma, meira um það síðar. Leikmyndin var stofa hjá hjónum á miðjum aldri sem orðin eru nokkuð súr á hverju öðru, húsgögn og listaverk voru frammúrstefnuleg (einhvern tíman a.m.k.) og jafnvel klámfengin (einn "sófinn" var tveggja metra langur böllur ásamt pung). Alla vega, þetta miðaldra par býður yngra pari í eftirparí og er mikið drukkið. Allt fer náttúrulega í bál og brand og algengustu orðin voru "Þegi þú" sem voru endurtekin oft af öllum persónum. Auðvita var líka allt í bennideplinum eins og flestum svona leikritum, morð, sifjaspell, framhjáhöld, mikill biturleiki, grátur, öskur og alles. Pálmi Gestsson lék eldri karlinn og gerði það vel, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir lék frú hans, Grease stjarnan Rúnar Freyr Gíslason sýndi hvað hann lærði í þeim stórkostlega söngleik og Inga María Valdimarsdóttir lék miður gáfaða konu hans og leysti það mál vel. Leikararnir stóðu sig nokkuð vel, en mesta plúsinn fær Pálmi Gestsson fyrir stórkostlega þrumuræðu sína þar sem hann stóð uppi á borði og munnvatninu rigndi niður. Þetta eru ekki ýkjur, það bæði lak niður úr skolti hans og stórt ský af munnvatni frussaðist fram úr honum beint í sviðsljós svo það fór ekki fram hjá neinum. Ræðan var líka nokkuð löng, og furðaði tyrkinn sig á því hvurdnig í andskotanum hann færi að því að frussa ómældu magni af munnvatni af svona miklu offorsi. Tyrkinn var líka ekki frá því að Rúnar Freyr væri agndofa sjálfur þar sem hann hélt varla andliti þegar hann horfði á regnboga myndast í skýjinu umtalaða. Einnig átti Pálmi góða spretti með saxafón. En ef við tölum um stykkið sjálft var þetta ekki tebolli tyrkjans. Svona yfir-dramatík öskur og yfirleikur eins og tíðkast í leikhúsi er bara ekki fyrir tyrkjann eins og áður sagði. Því er tykinn e.t.v. ekki bestur í svona gagnrýni, en e.t.v. deila fleiri þessum skoðunum fyrst ekki tekst að fylla 35 sýningar að jafnaði.
...Hver er hræddur við Virginíu Woolf * * (af 5 mögulegum)
Gleðifréttir frá Noregi
Fékk þetta sent frá drykkjumanninum í morgun:
"Major spennufall vard i midborg Oslo tegar islenskur madur a tritugsaldri fekk atvinnutilbod eftir fjoldan allan af arangurslausum tilraunum.
Heimildir herma ad madurinn er mjog hamingjusamur med tilbodid sem virdist falla mjog vel ad ahugasvidi hans. Fyrirtækid sem mun njota tjonustu islendingsins heitir Winsoft (www.winsoft.no) og er stadsett a besta stad i midborg Oslo. Tar sem hann situr nu a skrifstofu tar sem einungis er leifilegt ad leita ad atvinnu, verdur hann nu ad yfirgefa stadinn og finna ser eitthvad ahugaverdara ad gera.!
Drykkjumaðurinn"
17.10.01
Mæli með útskýringarvef www.mbl.is um hryðjuverkin og árásirnar á Afganistan. Stuttur texti með útskýringarmyndum um ýmislegt þessu tengt.
Enn um skilvirkni ríkisstofnana
Tyrkinn fékk óþægilegt bréf fyrir um 1 og hálfum mánuði síðan. Skattmann ætlaði að draga af honum ca. 35 þús af launum (á mánuði) það sem af er ári. Eftir gaumgæfilegar athuganir tyrkjans og Fritz Gerber, skattasérfræðings tyrkjans, komust þeir að því að misfarist hafði að slá inn tvær tölur í skýrsluna góðu á vef skattmanns. Þetta varð til þess að allar vaxtabætur tyrkjans fóru til anti-allah og debet kort tyrkjans hefur fengið að svitna síðan. Eftir ráðleggingar hr. Gerber sendi Tyrkinn kæru á skattmann til að fara ekki á hausinn vegna tveggja reita. Nú er liðinn um 1,5 mánuður og kortið farið að bráðna af álagi, svo tyrkinn tók sig til og hringdi í skattinn. Þar fékk hann þau svör að þetta tæki svona 2-3 mánuði, og á meðan er verið að draga tugi þúsunda af á mánuði. Sveiattan. Gott dæmi um skilvirkni í ríkisstofnunum, og svo vill fólk ekki einkavæða símann og bankana...
Skatman * (af 5, stjanan fær skatturinn fyrir netframtalið)
Dýravinurinn Halim
Nú er tyrkinn ekki þekktur fyrir að vera mikið fyrir gæludýr, og ekki að ástæðulausu. Að mati tyrkjans eru dýr sjálfsagður hluti af náttúrunni og yndisleg þar sem þau eiga að vera. Heimili er einn af þeim stöðum þar sem þau eiga ekki að vera, a.m.k. ekki til þess eins að svala áhugamálum eða losta mannfólks. Tyrkjanum þykir ekki rétt að ala dýr í þeim eina tilgangi að vera mannfólki til skemmtunar. Þessi dýr eru flest ekki þar að fúsum og frjálsum vilja, heldur eru þau alin til að þekkja ekki annað en húsveggi gerandans (dýraeigandans í þessu tilviki). Þessi dýr eru mörg svift eðlunarhæfni sinni og verða því ónáttúruleg auk þess að lifa í umhverfi sem ekki er ákjósanleg, enda mundu flest þessara dýra ekki lifa á þessu landi án manna. Tala nú ekki um þegar dýr eru keypt sem leikföng fyrir börn, eða fullorðna, sem verða þreytt á þeim og enda mörg hver í vanrækslu og viðbjóði. Hver hefur ekki heyrt hund gelta sig hásan einhvers staðar úti í skúr eða lokaður inni einhvers staðar þar sem enginn nennir að viðra skepnuna né sinna henni á neinn hátt. Frábært líf að vera hamstur t.d. og fá að vera lokaður inni í búri allt sitt líf, éta (yfirleitt a.m.k.) og hlaupa í hjóli. Eða gullfiskarnir sem verða geðveikir á því að synda sama hringinn mörgþúsundsinnum á dag. Allavega, tyrkinn sér þetta sem misþyrmingu á saklausum dýralífum og vill ekkert með það hafa. Annað mál er náttúrulega með blindrahunda og einhver dýr sem þjóna einhverjum tilgangi öðrum en að svala skemmtunarlosta þeirra sem kalla sig "dýravini", sem og dýr sem þjóna sínum tilgangi á sveitabæjum landsins og víðar. Dýravinir sameinist, og bönnum tilgangslaust dýrahald á Íslandi.
16.10.01
Skrifræðisríkið Ísland
Tyrkinn ákvað í dag að drífa sig í því sem hann hefur skotið á frest í um 5 ár, þ.e.a.s. að sækja um leyfi á AK-47 byssuna sína. Sumir mundu halda að það væri nú lítið mál, en hinir þeir sömu hafa rangt fyrir sér. Síðast þegar tyrkinn reyndi að fá leyfi á gripinn lærði hann nokkra hluti. T.d. lærði hann að læknisvottorð þarf til að fá svona leyfi, tyrkinn getur ímyndað sér að það sé til þess að fá læknisfræðilegt mat á geðheilsu einstaklingsins. Nú, tyrkinn hóf þá ferð sína á því að fara til læknis, reyndar fór hann fyrir rúmu ári í þessum tilgangi en það vottorð hefur nú runnið út. Þegar tyrkinn kemur til móttöku þarf hann að útfylla eyðublað, skrifa undir á 3-4 stöðum o.s.frv. Þá þurfti hann að fylla út annað eyðublað til að sækja um heimilislækni. Þá þurfti hann að borga fyrir heimsóknina, einar 700 kr. íslenskar sem tyrkinn gat greitt með debetkorti. Gott og vel, eftir svolitla bið kemur læknirinn, sem var litlu eldri en tyrkinn sjálfur og töluvert myndarlegri en tyrkinn sjálfur þar sem hann var nú einu sinni kvenkyns. Eftir að hafa kvartað undan meltingartruflunum vegna skorts á almennilegu kebabi bað tyrkinn um vottorð vegna byssuleyfis, og var það lítið mál. En nú þurfti tyrkinn að greiða einar 1.700 kr. íslenskar fyrir aðgerðina sem fólst í því að læða einu A4 blaði í prentarann og þrýsta á hnapp. Jæja hugsaði tyrkinn, ég er farinn að sakna byssunnar minnar og taldi sig reiðubúinn til að láta þær krónur (íslenskar) af hendi. Þá var galli á gjöf Njarðar, þótt tyrkinn hafi greitt fyrir heimsóknina með debet korti þýddi nú aldeilis ekki að það væri nógu góður gjaldmiðill fyrir vottorðið forláta. Því fór tyrkinn skömmustulegur út í nýlenduvöruverslun og keypti nýlenduvörur til að fá seðla fram yfir. Nú gekk tyrkinn aftur og greiddi fyrir vottorðið og fékk það afhent. Af hverju í ósköpunum er ekki hægt að greiða með kortum á svona ríkisbatteríum á Íslandi?! Skatturinn treystir ekki svona plast-apparötum heldur, en í þetta skipti kom það tyrkjanum á óvart því hann var nýbúinn að greiða á sama stað. Fara aurarnir í skemmtanasjóð starfsmanna, eru heilsugæslustöðvarnar miðstöð fyrir peningaþvætti á Íslandi eða komast aðeins 3 tölustafir fyrir á posanum hjá heilsugæslunni. Skrítið, en þar með lauk fyrsta hluta ferðar tyrkans til skotvopnaheimildar.
Nú hófst annar hluti ferðarinnar, viðkoma á stöðina. Nú ætlaði tyrkinn að afhenda vottorðið góða með bros á vör og sækja um leyfið. Ekki var það svo gott. Þar var annað eyðublað, nú þurfti tyrkinn að fylla út svipaðar upplýsingar og áður hjá heilsugæslunni, en þar kom ýmislegt í ljós. Nú þurfti álit tveggja persónulegra vina tyrkjans sem hafa byssuleyfi fyrir, sem votta þurftu fyrir geðheilsu tyrkjans, því læknisvottorðið virtist ekki nóg. Svo þurfti nýlega mynd (af hverju er ekki ljósmyndasjálfsali á svona stöðum fyrir ökuleyfi, byssuleyfi og svoleiðis). Að lokum þurfti sakavottorð, sem af sjálfsögðu er á höndum lögreglunnar. Sækja þurfti um það, fylla út fjórða (eða fimmta) eyðublaðið með sömu upplýsingum og ganga til gjaldkera. Þegar þangað var komið þurfti tyrkinn að greiða 1.200 kr. Íslenskar fyrir herlegheitin sem ættu ekki að vera flóknari en læknisvottorðið, nema nú þurfti maður að bíða eina þrjá daga þangað til einhverjum sýnist kominn tími til að setja blað í prentarann og þrýsta á hnapp. Gott og vel... Nú er tyrkinn búinn að fá undirskriftir frá ábyggilegum samstarfsfélögum og bíður þess eins að geta skilað inn vottorði, umsókn, mynd, og sakavottorðs. Þetta er heldur tyrkinn að sé ekki búið enn...
Áhugaverð hugmynd... (af tilverunni) PornBomb
Fænal Fantasí
Tyrkinn fór ásamt Herkúlesi á Final Fantasy í gær. Fyrr um morguninn hafði hann heyrt frekar slæma dóma í Tvíhöfða og fór með litlar væntingar. Að sögn stríðsguðsins er þetta fyrsta mynd sem gerð er með öllum aðalpersónum sem eru í mannslíki, þ.e. ekki eins og leikföng í Toy Story eða maura eða eitthvað. Grafíkin í þessari mynd er ótrúleg vægast sagt. Af sjálfsögðu eru ekki svipbrigði á andlitum persónana ekki alveg raunveruleg enda skipta þau þúsundum að mér skilst. Líkamsburður fígúranna var þó næstum alveg raunverulegur, enda er það unnið með einhverju sem þeir kalla "Motion-capture" að sögn stríðsguðsins. Allt umhverfi og svoleiðis var líka nær lýtalaust og saman spilaði þetta vel saman. Tyrkinn hafði gaman af því að sjá teiknimynd svona raunverulega og má búast við því að eftir nokkur ár verði haugur af svona myndum gerður og að þær verði enn flottari. Spurning hvenær maður hættir að sjá muninn... Myndin er byggð á ágætis hugmynd sem er japönsk að uppruna og sækir rætur sínar í japanska hjátrú og minnir tyrkjann helst á teiknimyndina Princess Mionfurdfurd (man ekki alveg hvað hún hét...). Söguþráðurinn hins vegar var náttúrulega klisjukenndur eins og við mátti búast. T.d. var alveg dæmigert "tím" í kringum karlhetjuna er kaus að kalla sig "Gray", en það samanstóð af hvítum manni (rödd Steve Bushemi, sem er snillingur), svörtum manni miklum að vexti, konu sem var hörkutól (nokkurs konar dyke on a bike) og náttúrulega karlhetjunni sem Alec Baldwin talaði inn á fyrir. Af sjálfsögðu voru allar flaugar merktar að hætti bandaríska hersins og aðalborgin var New York. Annar hver maður sem vann að myndinni var þó með japanskt nafn. Alveg þess virði að fara á ef fólk vill sjá framtíð í "animeituðum" myndum.
Fænal Fantasí * * * (af 5)
15.10.01
Ámeríkan pæ tú
Tyrkinn fór á ha-ha myndina American Pie 2 í gærkveldi. Hann var þá tiltölulega ný búinn að sjá fyrri myndina á myndbandi. Seinni myndin kom ekki á óvart. Af sjálfsögðu voru allir sömu leikarar í þessari og þeirri fyrri og svipaður húmor, t.d. límdi aðaljúðinn hendina við böll sér í þessari en setti sama böll í epla "pæ" í þeirri fyrri eins og nú er orðið frægt. Að mati tyrkjans var verið að mjólka fyrra handritið óþarflega mikið í þessari og var það ekki nógu vel. Það eina sem reddaði þessari mynd frá hauskúpu voru nokkur ha-ha fyndin atriði og hló tyrkinn nokkrum sinnum dátt að þeim eins og móðins er í dag. Hins vegar skildi þessi mynd ekkert eftir sig (var reyndar ekki hægt að búast við því) og eru ágætis líkur á því að tyrkinn slysist til þess að taka hana á myndbandi (eða disk vonandi) eftir 10 ár eða svo og velta því mikið fyrir sér hvort hann hafi nú séð ræmuna. Fyrir þá sem ekki vita ganga þessar myndir út á það að nokkrir ungir sveinar gera hvað sem þeir geta til að fá á broddinn og gengur það misjafnlega. Tónlistin var ekki upp á marga fiska, ekki nokkurn fisk ef tyrkinn er aðspurður, og samanstendur hljóðrás ræmunnar af völdum lögum frá amerískum háskólaböndum, sem sjúga í rass eins og er alvitað. Tyrkinn ætlar ekki að sjá þessa aftur, en sér um leið ekki eftir ferðinni.
Ámeríkan pæ tú * * (af 5)
...Ísland volaða land... Hver er ekki orðinn hálf þreyttur á þessu roki og rigningu sem hefur verið undanfarnar vikur? Tyrkinn fær tár í augun þegar hann hugsar til æskustöðva sinna í Istanbúl, þar sem smjör draup af hverju strái...
Tyrkinn er nett fyllibytta... Nú þegar á mánudegi er búið að læna upp drykkju fyrir báða dagana um næstu helgi...
Matseðill Mötuneytis dauðans þessa vikuna: Gullkorn: "...pasta með pylsum og lauk." , "...Saltkjöt og baunir." , "...Sítrónu krem með þeytum rjóma" Þetta verður dýr vika, skyndibiti á hverjum degi....
Matseðill vikunnar * (af 5)
Gyðnið bauð tyrkjanum og frú ásamt Herkúlesi í mat á laugardaginn. Var Gyðninu og frú hans mikil prýði af heimboðinu í alla staði og kann tyrkinn honum vel að þakka fyrir gott boð. Þegar líða fór á gleðskapinn leiddi Gyðnið Tyrkjann einnig í allan sannleikann um Megas og Bob Dylan, og var það vel. Aldrei að vita nema einhverjir diskar þessara manna bætist í safn tyrkjans á næstu dögum og mánuðum. Takk fyrir mig.
Tyrkinn fékk poppstjörnu í heimsókn til sín á föstudagskvöldið ásamt frú. Var hann brattur og fór mikinn. Hafði frúin reynt að fá hann til að kaupa hundstík í nokkurn tíma og hafði augastað á hvolp nokkrum er ekki kostaði meira en 200 þúsund íslenskar krónur eða svo. Poppstjarnan talaði þá digurbarkalega um það að hann réði nú fjármálum heimilisins og væri hann búinn að stræka á svona hundavesen, og var það vel að mati tyrkjans. Nú drukku söguhetjur mikið og fóru mikinn á einum af betri börum bæjarins ásamt frúm. Tveimur dögum síðar berst það til eyrna tyrkjans að nú hafi popp-frúin fest kaup á umtöluðum Doberman skratta. Kemur þar strax í ljós hver er bæði húsbóndi og hver ræður á því heimilinu, svei. Þá kýs tyrkinn Doberman-Kebab yfir þetta helvíti, svei svei.
Hundahald 1/2 (af 5 mögulegum, ef hægt er að nota kvikindin í veiðar)
12.10.01
..sko tyrkjann; skömmu eftir fréttafluting Tyrkjans um Sjakalann kemur sama frétt á www.mbl.is...
Halim Al Achbar, alltaf fyrstur með fréttirnar....og nú er hann farinn á púbbinn.
Tyrkinn býður góða helgi
Af tilverunni:
Star-Wars Persónuleikapróf ,soldið fyndið konsept, ekki alveg ha-ha fyndið þó...
Hann Fritz Gerber var að segja tyrkjanum frá áhugaverðum samræðum á árshátíð arkitekta síðastliðinn laugardag:
Arkitekt 1: "...djöfullinn mar, ég hannaði ristórt fuck-merki fyrir nokkrum árum á fjölförnustu gatnamótum reykjavíkur, og þeir byggðu húsið án nokkurra athugasemda..." Arkitekt 2: "Þú toppar mig ekki Bjössi minn, ég hannaði 500 metra langt reðurlíki, og sauðirnir í Kópavogi byggðu það án þess að fatta neitt...."
...og svo er þetta komið á einhverja sorasíðu í útlandinu... :
http://www.consumptionjunction.com/feat/cc/detail.asp?ID=6408
Sjónvarpshandbók Talibanastjórnarinnar...
MONDAYS: 8:00 - "Husseinfeld" 8:30 - "Mad About Everything" 9:00 - "Suddenly Sanctions" 9:30 - "The Brian Benben bin Laden Show" 10:00 - "Allah McBeal"
TUESDAYS: 8:00 - "Wheel of Terror and Fortune" 8:30 - "The Price is Right If Osama Says Its Right" 9:00 - "Children Are Forbidden From Saying The Darndest Things" 9:30 - "Afganistans Wackiest Public Execution Bloopers" 10:00 - "Buffy The Yankee Imperialist Dog Slayer"
WEDNESDAYS: 8:00 - "U.S. Military Secrets Revealed" 8:30 - "When Northern Alliance Attacks" 9:00 - "Two Guys, a Girl, and a Pita Bread" 9.30 - "Just Shoot Everyone" 10:00 - "Veilwatch"
THURSDAYS: 8:00 - "Matima Loves Chachi" 8:30 - "M*U*S*T*A*S*H" 9:00 - "Veronicas Closet Full of Long, Black, Shapeless Dresses and Veils" 9:30 - "My Two Baghdads" 10:00 - "Diagnosis: Heresy"
FRIDAYS: 8:00 - "Judge Laden" 8:30 - "Funniest Super 8 Home Movies" 9:00 - "Captured Northern Alliance Rebels Say the Darndest Things" 9:30 - "Akhmeds Creek" 10:00 - "No-witness News"
Meira af Reuters Einhver snillingur í London hefur stofnað fyrirtæki sem heitir því stórgóða nafni Q4U (sem lesa má que for you). Viðskiptavinir fyrirtækisins geta ráðið manneskju til að standa í röð fyrir sig fyrir 20 pund á klst (um 2900 kr). Snillingurinn bak við þetta fékk hugmyndina þegar hann frétti af frægum milljóner sem borgaði einhverjum 300 pund fyrir að bíða í röð eftir að sækja um að kaupa milljón punda íbúð, og vinna nú um 80 manns sem biðlar (eins og tyrkinn kýs að kalla þá). Auðvelt er að fá fólk í þessa vinnu vegna þess að fólka þarf ekki að kunna neitt eða geta neitt, og þurfa aðeins góða þolinmæði. Allt er nú til hvenær kemur www.q4u.is, væri ekki hægt að reka svoleiðis niðrí bæ um helgar inn á skemmtistaði. Jafnvel selja stöðu í röð, þ.e. biðlar taki sér stöðu í röð og selja hana svo, af sjálfsögðu hækkar verðið eftir því sem biðill færist nær inngangi...
Hryðjuverkamaður í góðum fílíng... Tyrkinn var að blaða í reuters fréttir og komst þá að því að ekki eru allir hryðjuverkamenn jafn stressaðir og Ósómi bín laden. Það er nefnilega þannig að Carlos the Jackal eða Sjakalinn Karlós eins og tyrkinn kýs að kalla hann er líklega að fara gifta sig kallinn. Sjakalinn, sem er þekktastur fyrir að taka 70 gísla á OPEC ráðstefnu (þar á meðal 11 olíuráðherra) og bera ábyrgð á yfir 80 morðum, afplánar nú lífstíðar dóm fyrir að myrða 2 franska leyniþjónustumenn í fangelsi í París. Nú hafa Sjakalinn og franskur lögmaður hans tekið ástum saman og eru að skipuleggja brullaup. Þess má geta að verðandi brúður segir hann vænsta mann. Bara eins og í bíó...
Öryggi í stjórnklefum flugvéla
Bretar eru núna að íhuga að láta flugmenn í farþegavélum hafa svokallaðar "stun-guns" eða lostabyssur eins og tyrkinn kýs að kalla þær. Það er náttúrulega alveg út í hött hvernig þetta hefur verið hjá flestum flugfélögum, að hver sem er geti skellt sér frammí og athugað hvort ekki sé hægt að fá að taka í gripinn. Það sást best í hryðjuverkunum í bna fyrir mánuði síðan þegar nokkrir menn með dúkahnífa ákváðu að skella sér á einar stærstu byggingar heims. Fyrst núna er verið að pæla í að hafa einshvers konar öryggishurðir fram í stjórnklefa. Tyrkjanum þykir stórsniðugt að láta flugmennina, og jafnvel fleiri í vélinni hafa svona lostabyssur til að lama óþekka farþega tímabundið. Íslenskar fyllibyttur mundu líklega halda sig á mottuni líka ef þeir ættu von á að fá smá stuð ef þeir höguðu sér ekki eins og menn. Fólk mundi eflaust líka ekki vera að tala mikið í símann ef þeir fengu nokkur volt í aftanverðan hálsinn. Þetta er alla vega góð hugmynd að mati tyrkjans (minnir hann líka á stórgott skets með Monty Python frá 1971 þegar kurteis farþegi með byssu vildi ekki fara til Kúbu eins og aðrir farþegar, heldur vildi fara til einhverrar lítillar borgar í bretlandi)
11.10.01
...áfram um símann
Jæja, eftir þriggja mánaða bið kom loks símvirki í heimsókn. Eftir að hafa legið yfir þessu í um hálftíma komst hann að niðurstöðu, að vísu eftir að hafa verið sá mest hissa maður sem tyrkinn hefur séð. Maðurinn var alveg agndofa að ég hefði beðið þrjá mánuði eftir að fá venjulegan heimasíma til að virka, tyrkinn var jú ekki að reyna að ná sambandi við Iridium gervihnetti sem búið er að taka úr notkun. Niðurstaða mannsins, sem var almennilegur í alla staði, var sú að ungi maðurinn sem mætti fyrst (hann fær nú samt plús fyrir viðleytni, hinir næstu tveir sýndu sig aldrei) hafði ekki gert þetta rétt og þetta væri nú sök símans því þeir bera ábyrgð á línunni inn í húsið. Auk þess tjáði hann tyrkjanum að ekki þyrfti að greiða þennan 5000 kr. plús fyrir heimsóknina, því þetta væri jú sök símans. Að lokum kvaddi hann mig og sagði að ég þyrfti ekki að gera neitt, aðeins hinkra í einhvern óskilgreindan tíma meðan snillingarnir á símanum löguðu þetta fyrirbæri. Nú er bara að vona að þetta gangi upp, og að ég þurfi ekki að skrifa upp á víxil fyrir herlegheitunum. Tyrkjann hlakkar mikið til að prufa glæsisímann eftir árfjórðungsbið.
Viðgerðarmaður * * * (af 5 mögulegum; fyrir viðmót, flotta undrun og lipurð að ógleymdum svörunartíma) (mynd af www.mbl.is, Þórarinn fimmti til hægri og frekar stressaður Neyðarlínumaður)
Viti menn, það hringdi í mig maður frá símanum og ætlar að kíka á þetta snöggvast!!! Hann hlýtur að hafa heyrt um landsátakið og Þórarinn fimmti hlýtur að hafa hringt í hann sjálfur (nema hann sé hættur strax karlinn...). Þetta sýnir hvað gerist þegar þjóðin sameinast um málefni sem varða alla. Skrepp þá heim..... (vona að þetta sé ekki bara grín....)
Þórarinn V (fimmti): * (af 5 mögulegum, stjörnuna fær hann fyrir að bregðast skjótt við ógnun í markaðsmálum Símans)
Af mbl.is: "AP F-18 orrustuþota í flugtaki frá flugmóðurskipinu USS Enterprise, sem tekur þátt í hernaðaraðgerðunum gegn Afganistan."
Tyrkjanum finnst þetta skringilegt flugtak, er glerflugbraut út úr hlið Enterprise?...
Tyrkinn þakkar kærlega fyrir mikinn og góðan stuðning frá Simbanum í máli Tyrkjans gegn símanum. Hann veit að það er aumingjalegt, en biður aðra viðskipta"vini" símans að vera ekki að hringja næstu daga svo þeir nái að sinna 1 máli í þessari viku. Takk - takk, Tyrkinn.
Simbinn * * * * * (af 5 mögulegum)
Enn um þjónustuborð símans...
Eftir að hafa lesið sorgarsögu um símann af snilld.net, ákvað Tyrkinn að reyna enn einu sinni að fá símann sinn tengdan. Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með þessu sótti Tyrkinn um símanúmer og tengingu 10. júlí s.l. og hélt nú að það ætti ekki að vera mikið mál. Nú þegar 3 mánuðir eru liðnir er nýja (eða 3ja mánaða gamla) glæsilega símtæki tyrkjans enn að safna ryki. Enn og aftur komu allir á þjónustuborði símans af fjöllum og voru nánast alveg vissir um að síminn virkaði heima hjá tyrkjanum þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hans til að hringja í gemsann sinn. Stúlkan sem svaraði sættist þó á það að reyna að senda viðgerðarmann í fjórða sinn til tyrkjans, en aðeins sýndi slíkur maður sig í fyrsta skiptið til að segja tyrkjanum að engin lína væri lengur í húsið. Í þetta skiptið sagði stúlkan að henni væri skilt að rukka mig um 5.000 krónur í startgjald á heimsóknina, en tyrkinn hefur ekki heyrt það áður frá símanum. Það sem verra er, hann veit ekki hvort hann hafi verið rukkaður 4 sinnum fyrir þetta gjald, því einhverra hluta vegna sendir síminn alltaf reikningana til móður tyrkjans þar sem tyrkinn bjó löngu áður en hann flutti (þjóðskrá var rétt og alles). Einnig hefur síminn náttúrulega rukkað mánaðargjald fyrir að geta horft á símtækið glæsilega allan þennan tíma. Nú er spennandi að sjá hvort símvirki sýni sig á morgun og lagi vandamálið, eða segi tyrkjanum að línan í húsið sé aftur farin. Símsvörunin er ekki upp á marga fiska heldur. Í þetta skiptið svaraði reyndar stúlka í bilanir óvenju fljótt, en tyrkinn beið einar 13 mínútur eftir að fá að tala við innheimtudeildina, sem kom náttúrulega alveg af fjöllum líka eins og allir starfsmenn símans. Kannski skánar þetta eins og margt annað ef þeim tekst einhvern tímann að einkavæða þetta ríkisbákn sem kommúnistar landsins vilja ólmir eiga áfram eins og aðrar óskilvirkar ríkisstofnanir. Tyrkinn er orðinn langþreyttur og farinn að íhuga reykjarmerki úr gasgrillinu af svölum hýbýla sinna.
Síminn: hauskúpa (af 5 mögulegum)
(ef vel er aðgáð má sjá GG á myndinni hér að ofan, sást allavega í blaðaauglýsingunni)
...the land of the free (up to some point at least...) Nú eru kanarnir farnir að ritskoða fréttaflutning frá arabískum sjónvarpssöðvum, skv. frétt af visi.is. Fimm stærstu "nettvörkin" í bna eru búin að samþykkja að ritskoða ávörp bin ladens eftir tiltal frá stjórnvöldum. Spurning hvort þetta sé sniðugt fyrir ritfrelsi þeirra kana sem þeir eru svo stoltir af...
Var að fá tölvupóst frá stóru systur í baunalandi. Þar sagði hún mér frá því að mágur minn þurfti að sýna ökuskýrteinið sitt í verslun eftir landsleikinn sáluga, en þá hóf verslunarmaðurinn að hlæja að honum í opið geðið á honum. Einnig sagði hún mér að danir höfðu reiknað með 12 marka mun eins og forðum daga þegar íslenska landsliðið fór heim með aumt rassgatið eftir 14-2 ósigur. Tyrkjanum finnst að íslenska ríkið eigi að gera tilkall til álagningar danskra kaupmanna þegar þeir nauðguðu landi og þjóð á sínum tíma. Þegar búið er að safna saman álagningu einokuninnar og leggja vexti á það í nokkur ár ætti þetta að vera asni góður aur í þjóðarbúið. Fyrir seðlana gætum við svo sent námsmenn okkar til almennilegra landa í stað þess að senda þá alla á bölvaðan sósíalinn hjá baununum. Síðan væri hægt að leggja niður öll stjórnmálaleg tengsl við dani og síðast en ekki síst keypt okkur almennilega knattspyrnumenn. Allavega hugmynd...
10.10.01
Enn um Smáralind...
Hver man ekki eftir því þegar fyrsta almennilega mannvirki Íslands, Kringlan, var opnuð með prompi og prakt (...hvað í ansk. þýðir annars promp og prakt?...) og allir sem vildu teljast menn með mönnum flyktust að til að skoða ferlíkið. Flugleiðir, sem þá sáu um innanlandsflugið, hafa aldrei haft jafn mikið að gera og fylltu þeir hverja vélina af fætur annarri af dreifurum sem urðu ólmir að upplifa alþjóðavæðingu Íslands. Himinhátt ljósaskilti í lit og alles knæfði yfir bílastæðabygginguna og menn urðu agndofa á meðan þeir lögðu bílum sínum á næstu umferðareyju til að hlaupa til og skoða. Börn roðnuðu af æsingi og ellilífeyrisþegar slógust um bílastæði í bygginguni forlátu. Menn höfðu aldrei séð annað eins. Nú virðist sem leikurinn sé að endurtaka sig. Eftir miklar kynningar í öllum miðlum landsins er lýðurinn orðinn æstur eins og naut í flagi og malbikið nær ekki að kólna í kringum bygginguna sem á að draga landsmenn inn í 21. öldina. Nú, þegar Smáralindin hefur verið opin í um 5 tíma, hafa meira en 20 þúsund manns lagt leið sína þangað, og það á meðan fólk á að vera í vinnunni. Enginn verður talinn til mikilmenna eftir viku ef hann hefur ekki barið herlegheitin augum, og þá helst á fyrsta degi klukkan 10:10 (sjá fyrri pistil um áhugaverða dagsetningu...). Allir merkustu listamenn landsins hafa verið boðaðir til að skemmta og er dagskráin fullskipuð alveg fram á mánudag. (Tyrkinn neyðist til að laga túrbanin svolítið eftir æsinginn). Forsætisráðherra og önnur fyrirmenni halda tölur og eru þeir sem standa fyrir þessu í óða önn í að taka á móti verðlaunum frá verktökum. Þetta er rosalegt!!! Það er örugglega minna skemmtilegt fyrir verslunareigendur í Kringlunni þessa dagana. Sennilega standa þar nokkrir vandræðaunglingar nú og prufa hversu vel hljóð endurvarpast af veggjum byggingarinnar sem kom Íslendingum í alþjóðasamfélagið á sínum tíma. Þá fer tyrkinn að hugsa um hvað verður um þetta mikla verslunarveldi sem Smáralindin er, og ekki síður um gömlu góðu Kringluna. Hvað verður um verslun yfir höfuð á höfðuborgarsvæðinu þegar búðir spretta eins og gorkúlur hér og þar. Ekki virðist fólk hafa mikið meira á milli handana til að kaupa sér Finlux sjónvörp og tískufatnað frá útlöndum. Þó framboð af verslunum og vörum eykst eins og raun ber vitni, býst tyrkinn ekki við því að fólk eyði í samræmi við það. Fleiri verslanir, fleira starfsfólk, meiri marmari og jafn miklir peningar (eða hér um bil...). Búast má við að gjaldþrot verslana fari að aukast upp úr þessu (tala nú ekki um frá degi dauðans, sjá aftur fyrri grein). Hver borgar fyrir gjaldþrot? Þau teygja út anga sína víða, og hafa fáir hag af því (nema þá kannski lögfræðingar, sem hafa tekjur sínar af öllu illu...). Það má vel vera að þetta gangi allt upp og allir verða ánægðir, en tyrkinn segir nei nei. Kannski verða gerðar bergmálstilraunir í Kópavog |