|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
30.11.01
Borinn lagður á hilluna Skv. Forsíðugrein í Fréttablaðinu er töluverður niðurskurður á fyrirhuguðum útgjöldum í samgöngumál. Meðal annars á að fresta göngum milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarða, og göngunum milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Er þetta vel að mati tyrkjans, algjör óþarfi að bora göt á einhver fjöll þarna. Annars heyrði tyrkinn góðan pól á byggðastefnuna svokölluðu um daginn sem hann var hjartanlega sammála. Í stað þess að reyna að halda einhverjum sveitaþorpum byggðum ef enginn vill vera þar ætti byggðastefnan að ganga út á það að halda Íslandi byggðu og hætta þessu rugli, þ.a.m.t. borunarmaniu Framsóknarmanna.
Mikill missir Tyrkjanum finnst rétt að fara að fordæmi annarra bloggara og votta virðingu sína vegna andláts George Harrison. Illa farið með góðan dreng.
28.11.01
Góða ferð þú dökki keisari Sagan segir, alla vega á síðu hljómalindar, að Godspeed you black emperor sé að koma til landsins í mars til að leika nokkur lög fyrir sótsvartan almúgann á skerinu. Þetta eru góðar fréttir fyrir þá sem ekki vita. Hljómsveitin er þekkt fyrir sérstaka tónlist sem erfitt er að skilgreina. Ágætis pistill er á síðu hljómalindar um herlegheitin en þetta er 9-20 manna band sem breytist sífellt og virðist sem svo að þetta fólk vilji ekki láta mikið á sér bera þrátt fyrir síauknar vinsældir undanfarið. Tyrkinn segir alla vega: gaman-gaman og ætlar að láta sjá sig. Fyrir áhugasama er hér síða með ýmsum lögum með snillingunum sem tyrkinn fann: sækið hér.
Tyrkinn ætlar í bústað um helgina. Þar verður drukkið að gömlum góðum sið og farið óðslega, er verður dólgsháttur hafður í fyrirrúmi. Sbr. "Hellti í glas, aftur í glas, ældi. Enn í glas, söng, saup, vældi" (Þursaflokkurinn 1981)(tek ekki alveg ábyrgð á tilvitnunni, hún er eftir minni og það minni hefur oftar en ekki brugðist tyrjanum).
27.11.01
...volaða land Tyrkinn er ekki búinn að setja nagla undir albatrossinn (þess má geta að albatrossinn er næst langlífasti fugl í heimi á eftir fýlnum, lifir í um 50 ár) ennþá. Í morgun þegar tyrkinn ætlaði að halda til vinnu komst hann ekki út úr bílastæðinu sem hallar örlítið frá veginum. Þetta var ekki gaman. Eftir að jugga albatrossinum til og frá og freista þess að komast upp á veginn hálfum metra aftar í um 10 mín, gengu fram hjá hjón á miðjum aldri. Konan rauk þá galvösk að tryllitækinu og ýtti tyrkjanum með hjálp eiginmanns síns út á veg. Það er enn til gott fólk á Íslandi, tyrkinn þakkar fyrir sig.
Darwin verðlaunin
Aldrei hefur tyrkinn fengið svo fljótt út úr prófi, niðurstaðan úr prófi sem tyrkinn tók klukkan 22:00 í gær barst fyrir klukkan 12:00 daginn eftir!
Kæri veiðimaður,
Halim Al Achbar 060666-6669
Veiðitímabil.............26 Veiðiaðferðir..............4 Hlunnindanýting.........9 Fuglagreiningar.........16 Ýmislegt..................14 Náttúruvernd.............14 Stofnvistfræði...........10 Veiðisiðfræði..............4 Veiðiréttur..................0
Einkunn...................97 %
...geri aðrir betur....
Fuglar Íslands
Tyrkinn fór í gærkvöldi á námskeið veiðimálastofnunar til að fá veiðikort, sem aftur eru nauðsynleg til að skjóta fugla löglega. Þetta stóð frá klukkan 18:00 til klukkan 23:00 með prófi og má segja að tyrkinn hafi verið lúinn undir lok eftir vinnudag og námskeið. Veiðimálastofnun stóð sig samt vel. Fyrirlesarinn sem tyrkinn náði því miður ekki nafninu á var heimsmeistari í fuglum og veit eflaust allt sem viðkemur fuglum þessarar plánetu, eða náði allavega að hljóma þannig. Hann var einnig mikill veiðimaður og var því ekkert með neitt rugl eins og sumir mundu kannski halda um fuglafræðing. Hann talaði hátt og skýrt og fór víða og var það vel. Námsefnið var einnig mjög vel gert og var kappinn með kjöltutölvu (eða leppisteppi eins og sumir kalla svoleiðis græjur) og bauð m.a. upp á myndbandsbúta með gæsum til að sýna fram á mun á Heiðargæs og Grágæs, very nice you know. Pjá, pjá.
26.11.01
Dagbók tyrklandsdeildar lögreglunnar Óvenjulítið var um brennivínsumferð um kverkar tyrkjans þessa helgina, þó einhver væri. Föstudagskvöldið var rólegt heima fyrir og ekki meira að segja um það. Á laugardagsmorguninn vaknaði tyrkinn "eldhress" klukkan 8:00 og keyrði niður á BSÍ. Þaðan var farið með rútu til Reykjanesbæjar og á skotvöll. Þetta var síðasti liður í námskeiðinu vegna skotvopnaleyfis tyrkjans. Þar skaut tyrkinn á 4 leirdúfur og hæfði 2, en þess má geta að enginn gerði betur (amk í þeim helmingi hópsins). Ennig var skotið úr litlum rifflum á skotmörk, en eitthvað var búið að eiga við völlinn og því var ekki einu sinni athugað hvort menn væru að hæfa eitthvað þar. Þess má geta að aðeins ein dama var á námskeiðinu og var hún eitthvað tense. Þegar henni var fengin haglabyssa (falleg Baretta, undir/yfir, 12 gauge) og hún búin að hlaða hana, sagði kennarinn dúfa til að vara hana við að nú færi að koma leirdúfa, en daman var svo spennt að hún skaut strax út í loftið nokkuð áður en dúfunni var skotið. Nú, eftir að tyrkinn var orðinn kaldur var rokið í bæinn. Eftir að þýða á sér rasskinnarnar á sófanum góða hélt tyrkinn ásamt freu Achbar suður að Flúðum þar sem snætt var og eitthverju hellt í kverkar. Á leiðinni var þó svo slæm færð að tyrkinn missti stjórn á frúardósinni nokkrum sinnum og keyrði loks á 40 km hraða til leiðarenda. Planið var að vera fram á kvöld, en gist var sökum færðar. Síðan var keyrt heim í skafrenningi og viðbjóði. Næstu helgi á að gera meiri ferð í Sumarbústað og er það vel.
...ljótt að kalla flólk sluxa...
23.11.01
Eyðmerkurrómantík
Fréttaflutningur frá Afganistan hefur nær einskorðast við stríðsátökin sem þar ganga yfir. Færri hugsa um líf fólksins sem þar þarf að þola, og ekki síst hermennirnir sem búa við ótta hvern dag. Hér meðfylgjandi er upptaka frá samtali tveggja hermanna Norðurbandalagsins sem snarað hefur verið á íslensku fyrir þá sem ekki tala tungumál innfæddra.
Abdullah: "Finnst þér sólarlagið ekki fallegt Khalid?" Khalid: "Jú þetta er fallegasta landslag sem ég hef séð hérna í mörg ár, það minnir mig alltaf á okkar fyrsta kvöld saman, það var hamingjusamasta kvöld sem ég hef upplifað, ástargeitin mín" Abdullah: "Já, úlfaldahnoðrinn minn, hver getur ekki hugsað til þeirrar unaðsstundar þegar sólin sest svo fallega. Ef Talibanarnir hefðu ekki náð völdum gætum við átt öll kvöld saman, unaðsstundir við bálköst öll kvöld, það fer um mig hrollur..." Khalid: "Ekki æsa mig svona Abdullah núna, við þurfum að standa hér vaktina eins og atvinnumenn, við megum ekki láta það eftir okkur núna að fallast í faðma, ekki fyrr en við komum þessu liði frá" Abdullah: "En ég mun bíða þín Khalid, þótt það taki 1000 ár af eyðimerkur-eymd, ég mun bíða þín" Khalid: "Og ég þín, ástin mín"
Gæsileg heimasíða indversku prinsessunnar Leoncie !! (athugið sérstaklega hljóðdæmin, þau eru frábær). Hún er brautryðjandi á sínu sviði, jafnvíg á tónsmíðar að hætti níunda áratugarins og nektardans. Eina manneskja sem sýnt hefur á sér brjóstin í hátíðarþætti Hemma Gunn.
22.11.01
Fuglabjarg
Er tyrkinn rölti upp stigaganginn í gærkvöldi tók á móti honum stigmagnandi niður, ekki ólíkt því þegar maður nálgast fuglabjarg. Er hann lauk upp dyrum blasti við honum sægur kvenfólks, en frau Achbar hafði þá boðið svokölluðum saumaklúbb í heimsókn. Létu hnáturnar vel fara um sig og hafði húsfrúin lagað dýrindis köku og osta og annað góðgæti handa gestunum. Eftir hrós fyrir glæsilega íbúð og einn tebolla, hóf tyrkinn kenningasmíðar að tyrkneskum sið og grunaði tyrkjann að ekki væru sömu umræðuefni og fyrir magnaða innkomu húsbóndans, þótt vel færi á meðal "saumakvennanna" (fullt af n-um þar...). Eftir að láta lítið fara fyrir sér hóf hópurinn þó að ræða hvort málið gengi ekki út á að þegar konur væru með tær sem væru stærri en svokölluð "stóratá" ætti hún að ráða heima fyrir, en ekki var laust við að einn gestanna hikstaði einmitt þegar hún lét þetta út úr sér og mundi akkurat eftir tyrkjanum sem sat bak við hópinn og gæddi sér á bakstri frú Achbar. Til að koma ekki frekar í veg fyrir mikilvægar umræður klúbbsins um lífsins nauðsynjar, hellti tyrkinn sér upp á annan ljúffengan bolla af tyknesku tei (eða er það te-i....?) og lokaði á eftir sér inn í svefnherbergi og hóf lestur um skotvopn fyrir námskeiðið. Eftir að heyra sannkallaðan fuglabjargsnið um það að karlmenn pissi standandi, hvaða konur væru of mjóar og hvernig statusinn væri á barnapössun í dag, ákvað tyrkinn að troða í sig eyrnatöppum sem húsfrúin hefur reiðubúna fyrir stórhrotunætur tyrkjans, til að geta klárað lesturinn. Næst ætlar tyrkinn í púbbinn þegar svona stendur á, svona "saumaklúbbar" geta orðið hættulegir ef maður fer ekki varlega...
Er ekki ráð að huga að geimferðum, einn nettur breti ætlar að gera þetta bara sjálfur, sjá frétt á mbl.is
PjáPjá
Eftir 5 ára frestun skellti tyrkinn sér á byssunámskeið. Fyrra kvöldið var í gær og mætti tyrkinn uppí árnagarð og var ekki laust við að gömul próf fóru að rifjast upp fyrir tyrkjanum þegar tyrkinn lauk upp hurðinni á stofu 301. Stofan var setin af 39 karlmönnum á öllum aldri (eða svo til) og 1 kvennmanni sem auðvitað sat fremst. Fyrirlestrarnir voru mis skemmitlegir, og var þá byssusmiður nokkur lágmæltur öllu betri en lögfræðingurinn sem sagði 90% af efninu ekki skipta máli og nennti varla að vera þarna. Seinni kvöldið er einmitt í kvöld og enda herlegheitin á prófi. Á laugardagsmorguninn verður svo brunað upp í keflavík þar sem verklegi hlutinn er tekinn, þ.e.a.s. fólki leyft að freta úr hólkum. Einn punktur hjá byssusmiðinum var áhugaverður, á meðan verið er að loka skotvöllum (sem hann mundi ekki betur en hefðu verið slysalausir frá upphafi), ætlar Ingibjörg Sólrún að bæta við 3 golfvöllum. Þess má geta að nokkur þúsund skotveiðimenn búa á höfðuborgarsvæðinu, en við þurfum að fara alla leið til Keflavíkur til að fá að skjóta. Pjá, Pjá.
ÞeirTveir Þeir tveir kvykmyndagerð er kominn með nýja síðu, sbr. hér.
Tyrkinn rambaði á þessa einhvers staðar á netinu. Þetta á greinilega að verða næsta útflutningsvara íslendinga, en tyrkinn segir nei, nei af breskum sið. Þessi verslómær er "frægust" fyrir að taka þátt í öllum söngleikjum versló (sem flestir hafa verið misþyrmingar á þekktum söngleikjum) síðustu ár, en ekki síður fyrir að syngja með tvíhöfða í laginu "Miss My Bitch" sem hún gerði reyndar mjög vel. Tyrkinn hlustaði á einhver tóndæmi af síðunni hennar, og fannst ekki merkilegt, reyndar ekki par merkilegt. Soldið smart síða samt. (I'm missin my bitch, i miss my bitch, say what, say what....)
21.11.01
Hressir strákar
 Sagan segir að þessir drengir gefi út jólalag í ár, og eru að leggja lokahönd á myndbandið, geri aðrir betur! Meira á heimasíðu svörtu drengjanna smellið hér til að fara þangað
...man einhver eftir Rín-lyktinni (Hljóðfæraverslunin Rín)...ætli þetta sé eitthvað tengd mál?....
Mikil hetja...
Nú er tyrkinn latur að eðlisfari, og er það vel. Til dæmis hefur hann aldrei skilið það fólk sem hefur gaman af og stærir sig af því að hafa labbað upp á fjall eða staðið í því að reyna að komast á ákveðinn punkt án vélarhjálpar og vera nærri því að missa fingur og aðra útlimi. Annað og verra mál þykir tyrkjanum þegar alþjóð fylgist með af kostgæfni og gríðarlegum áhuga þegar samlandar þeirra standa í svona geðveiki. Hvert mannsbarn fylltist hér stolti þegar íslendingurinn Haraldur Örn komst á pólinn forðum daga eftir að félagi hans hafði næstum drepið sig á vitleysunni. Gott að fólk nenni að fylgjast með einhverjum rölta hingað og þangað hálf dauður úr þreytu og vosbúð. Nú virðist sem Haraldur Örn hafi atvinnu af vitleysunni og stærri fyrirtæki á Íslandi berjast um að fá að henda peningum í kappann vegna göfugs málstaðar hans, þ.e.a.s. svo hann geti sagst hafa verið á 7 hæstu tindum heimsálfanna. Það gerir náttúrulega hinn sótsvart almúga að mun betri mönnum að hafa átt samlanda sem ekki er bara sterkur, þrautseigur, þrjóskur og ákveðinn, heldur snar geðveikur. Í frétt af moggavefnum er sagt frá þrautargöngu þessarar íslensku hetju, en núna er kappinn að bíða eftir herfylgd í Indónesíu vegna þess að mikill ófriður ríkir þar í landi, og þeir treysta sér ekki til að senda bleiknefja eina á þessi landsvæði. Indóníski herinn hefur líklega ekkert betra að gera á ófriðartímum en að fylgja duttlungafullum íslendingi upp í fjall með hersveitum og þyrlum. Og Haraldur hefur ekkert betra að gera heldur en að eyða aurum sínum og annarra í að uppfylla sérkennilega draumóra sína.
...tyrkinn vonar að það sé í lagi með ömmu sína sem er á kanó....
Jólaársfjórðungurinn Jólaársfjórðungurinn er hafinn, svei mér þá, og er það ekki vel. Ekki má misskilja tyrkjann og halda að hann sé ekki ánægður með jólin sem slík, heldur vill hann hafa jólin um jólin, ekki í nóvember og þaðan af síður í október. Það er fyrst og fremst verslunariðnaðurinn sem virðist eyðileggja þennan ársfjórðung fyrir manni með alls kyns látum, ótímabærum öllum saman. Sem dæmi má nefna Ikea sem byrjaði að auglýsa amerískan jólasvein á motorhjóli fyrir löngu síðan og var búðin farin að selja úrval af ljótu jólaskrauti fyrir mánuðum síðan. Ómögulegt verður að ganga laugarveginn og líklega líka að fara í Kringluna eða limalind fljótlega, ef það er ekki ónýtt nú þegar. Svo verður ekki hægt að hlusta á útvarpið því það breytist í viðbjóð þegar nær dregur jólum.
Tyrkinn var á heimleið í gær og sá, sér til mikillar skelfingar, 6 körfubíla í röð við tjörnina og ca 20 starfsmenn borgarinnar á yfirvinnulaunum standa við þessa körfubíla og spjalla saman, líklega um lífið og tilveruna eða boltann. Tyrkinn sér ekki hvers vegna í andskotanum það þarf 6 bíla í einu við að setja upp jólaskraut í nóvember, ekki sá tyrkinn alla vega neina stærðarhagkvæmni í þessum framkvæmdum. Nema þá helst að það voru fleiri að spjalla við, ef einhverjir þeirra hafa verið óvenju leiðinlegir. Svo borgar tyrkinn þessu liði með sköttunum sínum á þessum síðustu og verstu tímum. Skrítið að hafa 6 stk. bíla í röð við 6 ljósastaura. Líklega þurfa þá þessir 6 bílar að keyra 6 sinnum lengra svo þeir geti haldið þessari halarófu sinni. Hver er snillingurinn bak við þetta, ætli það sé ekki PR meistarinn Ingibjörg Sólrún sem fannst það alveg nauðsynlegt að bera það undir borgarbúa hvort flugvöllurinn ætti að vera þarna eftir 16 ár þegar hún verður vonandi löngu farin frá völdum. Svei henni.
Körfubílaherinn * (af 5 mögulegum, fyrir að vera í góðum fílíng á þriðjudagskvöldi að tjilla við tjörnina)
20.11.01
Sniðugir strákar
Blóðsog
Skv. frétt á mbl.is á núna að hækka afnotagjöld fyrir RÚV um 7%. Núna þarf því að borga 7% meira fyrir það efni sem maður hefur e.t.v. engann áhuga á. Drykkjumaðurinn hélt all skemmtilega ræðu í sumar fyrir Bjarkann og Tyrkjann og stóð í vænu rifrildi yfir RÚV í nokkurn tíma á eftir. Drykkjumaðurinn Norski vildi meina að það væri algerlega nauðsynlegt að ríkið héldi upp fréttastofu fyrir landsmenn í því yfirskyni að hún væri óháð. Tyrkjanum sýnist sú forsenda, þ.e.a.s. að hún sé óháð, vera löngu farin til fjandans, og er skemmst að nefna edduverðlaunahafan Ómar Ragnarson í því sambandi. Frábært að vera með "óháða" fréttastofu sem eyðir tíma og fjármunum í það að styrkja málefni að geðþótta þessa manns sem þekktastur er fyrir barnaplötur á síðustu öld. Fuss og svei. Væri alveg eins hægt að senda peningana beint til stöðvar 2 eða skjás eins, eða láta láta útvarpsfréttirnar nægja sem "óháða" fréttamiðilinn og sleppa ríkissjónvarpinu. Þá ætti tyrkinn jafnvel efni á því að kaupa sér örbylgjuloftnet til að geta horft á Skjá 1 og fleiri góðar, snjólaust.
7% viðbótarblóðtaka hauskúpa (af 5 mögulegum)
Kominn tími til að gera eitthvað í málinu!
Stjörnustríðskenning Tyrkinn er með kenningu eftir að hafa lesið færslur á www.gummijoh.net. Sjálfur lék tyrkinn sér með starvors kalla þegar hann var ungur drengur í Istanbúl. Málið er með Boba Fett er það að hann lúkkar helvíti vel. Átfittið hans er svalara en flest önnur í þessum stórgóðu myndum, og ekki spillir bakpokinn hans fyrir. Tyrkinn vildi alltaf vera Boba Fett þegar hann var snáði.
19.11.01
Íslensk StarWars mynd væntanleg (tekið af tilverunni). N.b. Þarf hraða tengingu og hljóðkort til að njóti sín.
Marinering Hr. und Frau Achbar buðu nokkrum vinahræjum til drykkju á laugardagskvöldið, sökum skorts á brennivínsleysi undanfarið. Þeir sem heiðruðu Achbar fjölskylduna með nærveru sinni þetta kvöld voru eftirtaldir; Herkúles, Gyðnið, Siggan, Slumma, Poppstjörnurnar tvær, frú Já, Inga Lind og Árni. Var fólk í góðu stuði, en enginn þó í eins góðu stuði og Árninn. Er hann og frúin komu af árshátíð stóð kappinn varla í lappirnar og fór mikinn. Eftir heiðarlega tilraun til að leika á gítar fór hann þó fljótlega ásamt frú. Eftir nokkurn gleðskap fór fólk að ráfa niður í bæ, poppstjörnurnar fóru náttúrulega á Gaukinn, en þar hafði víst sprungið eitthvað rör og allur staðurinn á floti, svo þær fóru bara heim, ekki mikið úthald það. Nokkrir fóru þó á Hverfisbarinn þar sem troðið var út úr dyrum. Þar voru fyrir mikilmenni eins og Fritz Gerber og FXbjössi svo einhverjir séu nefndir. Þegar búið var að henda tyrkjanum á dyr þar eftir lokun var rölt aftur á the Achbar residency og skreið tyrkinn í hektarann upp úr klukkan 6. Ekki varð mikið úr gærdeginum sökum þess. Ágætis kvöld það.
16.11.01
Akkurat það sem Íslendinga vantar mest í dag!
Skv. grein á mbl.is fer nú að líða að því að kynna tímaramma útboðs vegna jarðgangna milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar annars vegar og milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hins vegar. Þetta er einmitt það sem við þurfum í dag, að bora göt á milli fjalla sem standa fyrir því að það taki nokkrar hræður svolítið lengri tíma að heimsækja hverjar aðrar. Væri ekki ráð frekar að gera slaufu á kringlumýrarbrautinn þar sem fara fleiri bílar um á dag en á áratug um Fáskrúðsfjörð? Þetta eru afleiðingar af því að dreifarar hafa of mikið vægi í kosningum og að allt of margir stjórnmálamenn eru að þjóna allt of fáum hræðum úti á landi. uss-fuss. grrr. Gera slaufur, ekki bora göng.
Fann þjáningarbróður tyrkjans á tilverunni
Góður danskur pjá-pjá leikur á netinu Sniðugur leikur...tyrkinn fann þetta á tilverunni
15.11.01
Lögreglumenn háloftanna
Tyrkinn reyndar efast um titilinn á þessum pistli eða færslu eða hvernig sem fólk íslenskar svona "blogg". Alla vega, þetta á að vera tilvísun í Strætóbílstjórar háloftanna eins og tyrkinn kallar flugmenn (með fullri virðingu fyrir flugmönnum). Nema hvað, þar sem ekkert hefur verið skrifað í dag datt tyrkjanum ekkert betra í hug en að ræða aðeins um blessaða flugumferðastjórana. Þetta fólk sem virðist allt vera með forstjóralaun er tók á það ráð að hóta verkfalli um daginn. Tyrkjanum er reyndar illa við verkföll yfir höfuð, en það er efni í annann pistil. Nú, þegar allur flugbransinn er á leiðinni í postulínið tekur þetta fólk á það ráð að ætla að stöðva flugumferð svo þau geti krafist enn hærri launa. Þetta er náttúrulega ekkert sniðugt þegar nokkrar vel launaðar hræður geta stöðvað alla eðlilega umferð á skerið vegna sjálfs sín. Sem betur fer sýndi Dabbi í sér vígtennurnar og sagði þeim að fara í fúlan pytt, jafnvel fullan af draugum, og vonandi hefur þetta lið áttað sig eitthvað á stöðu mála. Vonandi átta þau sig nú á að þau hafa engan stuðning landsmanna fyrir þessar æfingar og ættu að geta setið sátt við sitt með sínar 500-900 þús á mánuði eins og sagan segir. Málið er reyndar að þessi laun og störf fara reyndar ekki eftir markaðslögmálum og eru "tjúnuð" upp með mafíuaðferðum, að tyrkjanum skilst. Á hverju ári sækir víst haugur um að fá að komast í þennan bransa en aðeins brotabrot af þeim kemst í vinnu. Fyrst það er svona mikil eftirspurn, af hverju ekki að lækka launin svolítið á hverju ári og hleypa fleirum inn ef fólk er svona ósátt við sinn 500-900 þús kall á mánuði svo þessir útvöldu sitji ekki röflandi á sínu gulleggi þangað til það fer á eftirlaun (sem eru nú örugglega rífleg). Þetta minnir mann á háskólamafíuna sem hleypir bara ákveðnum hluta af fólki í gegnum nám, og fer sú tala ekki eftir hæfni nemenda heldur fjölda hæfra nemenda, þ.e. aðeins ákveðið margir fara í gegn sama hversu góðir nemendur þeir eru (oft kallað "klásus"). Alveg út í hött að leyfa fólki í áveðinni stétt halda uppi umframeftirspurn eftir fólki með sinni menntun með því að stýra framboði á menntuninni, og þar af leiðandi stýra hvað útskrifaðir fá í laun. Ef tyrkinn fer með rétt mál eru þarna læknar, tannlæknar og lögfræðingar fremstir í flokki. Hálfur klásusfnykur af þessu flugumferðarstjóra máli öllu saman. Með öllum fyrirvörum, tyrkinn...
14.11.01
Nú loks eftir rúmt ár er tyrkinn kominn með heimatengingu við internetið svokallaða. Þetta eru semsagt fyrsta færsla tyrkjans úr heimahúsum, og er það vel. (weeeeeeee)
Tyrkinn fór í afmælissteik hjá móður sinni í gær. Bróðir tyrkjans, achmed, var þá veikur og fór mikinn. Frú Achbar sat við hliðina á achmed, og liggur núna veik heima. Ekki góður tími fyrir tyrkjann að veikjast. Mælt var með Jagermeister í ómældu magni til forvarna, spurning um hvort það verði reynt..
13.11.01
@ Nú er kominn enn einn unglingaþátturinn á RÚV (þetta eru svosem ekki nýjar fréttir...). Að þessu sinni fékk hann nafnið at eða @ eins og það er stundum kallað. Útlitið á að vera voða "hip" og höfða til ungu kynslóðarinnar, en tyrkinn hefur grun um að það sér svolítið að misfarast. En þar sem þátturinn fjallar um unglinga og inniheldur hrúgu af unglingum ýmis konar má búast við að áhorf sé sæmilegt. Tyrkinn sá einn slíkann þátt um daginn og bút úr öðrum nokkru seinna. Það sem fór í taugarnar á tyrkjanum (og það er nú ekki margt....) var græju umfjöllun Villa nokkurs sem tyrkinn man ekki betur en hafi verið í eða sé í 200.000 Naglbítum. Villi þessi var fenginn til að sjá um umfjöllun á pleisteisjön leikjatölvu þetta skipti sem tyrkinn horfði á og oftar en einu sinni sagði kappinn "talva" með bros á vör er hann dáðist af gripnum. Í broti af næsta þætti endurtók hann þetta a.m.k. einu sinni. Umfjöllun um tölvur á ríkissjónvarpsstöðinni fyrir ungt fólk og maðurinn fer rangt með þetta grundvallar orð sem líklega er eitt mest notaða orð landsmanna þessa síðustu og verstu tíma. Fuss... Þegar tyrkinn var að leita af mynd af hjúunum í at rakst hann á mikinn snilling, ljósmynara er heitir atli og náði e-mail addressunni " at@at.is " , sniðugur strákur...
Knattspyrnuáhugamaðurinn Ósómi bín Laden
Tyrkinn var að lesa á snilldinni að Ósómi væri knattspyrnumaður og áhangandi engilsaxneska knattspyrnuliðsins Arsenal. Eitthvað finnst tyrkjanum það skrítið að öfgamaðurinn Laddi væri að fylgjast með íþróttum í kapítalista-svíns-landinu Englandi á milli þess sem hann sprengir sendiráð eða flýgur farþegaþotum á háhýsi. Enn fremur er tyrkinn með kenningu, sem er tyrkjans. Kenning tyrkjans, sem er í hans eign, gengur út á það að Laddi hafi verið að stæra sig af vopnabúri sínu, sem málfróðir menn vita að er "Arsenal" á engilsaxnesku, og fréttamaður BBC hafi eitthvað misskilið ladda kallinn. Skv. kenningu tyrkjans gæti samtalið farið svona fram;
Fréttamaður BBC: "So what do you do in your free time?" Laddi: "I love looking at my arsenal, my arsenal is the best in all Afganistan" BBC: "So, you are a gunner?" Laddi: "Yes, I am a gunner, never leave home without my AK" BBC: "This is extraordinary, so arsenal is your favorite team?" Laddi: "Yes, my team is always playing with my arsenal at my camps" BBC: "You have football camps?" Laddi: "Yes, always one foot at my camps, training to use the arsenal, lots of guns"
12.11.01
...og enn af símanum
Tyrkinn fékk sendingu í ábyrgðarpósti á föstudagskvöldið. Síminn hefur séð sér sóma í því að endurgreiða hálft upphafsgjaldið og sendu menneskju með bréf og kvittun þess efnis í ábyrgðarpósti, og er það vel. Batnandi stofnun er best að lifa...
Grín frá bandaríkjunum, íslenskur veruleiki....(minnir þetta engann á hús verslunarinnar?)...
...o-ó, flugslys rétt við Kennedy flugvöll í NYC, ekkert vitað enn um orsakir...
Þetta hefur lengi vantað hingað til Íslands, samhæfða iðnaðarmenn sem þjónustar fólk eins og þjónusta á fólk (þ.e.a.s. ef þeir standa við eitthvað af þessu)
Íslensku viljaverurnar...
Í gær fór fram verðlaunaafhending fyrir Eddu verðlaunin svokölluðu. Þetta er svona Oscar-wannabe fyrir þá sem ekki þekkja, og því kallar tyrkinn íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíuna svokölluðu safn viljavera. Tyrkinn hafði séð þetta fyrir sér á mun gáfulegri hátt, allir leikarar og annað kvikmyndafólk mundi hittast einhvers staðar fyrir luktum dyrum, stæðu í einum stórum (þó ekki svo stórum) hring og klöppuðu hverju öðru á bakið og lofuðu hvert annað, ekki á ósvipaðan hátt og í flösu-stuðningshóp nokkrum í fóstbræðrum. Eins og búast mátti við fékk Mávahlátur öll þau verðlaun sem hægt var að vinna, þrátt fyrir að hún sé nú ekki merkilegasta mynd sem íslendingar hafa gert að mati tyrkjans, enda voru bara 3 myndir sem komu til greina, og Mávahlátur að þeirri gerð sem verðskuldar flest bak-klöpp í leiklistarstéttinni. Aðstandendur fá smá plús fyrir að veita Jóni Gnarr viðurkenningu til síns framlags til skemmtanabransans auk verðlauna til fóstbræðra fyrir besta leikna sjónvarpsefnið. Einnig hlaut Lalli Johns verðlaun sem tyrkjanum þykja verðskulduð fyrir frumlega og skemmtilega heimildarmynd. Eitt var þó til skammar, hlutdrægasti sjónvarpsfréttamaður Íslands Ómar Ragnarsson fékk verðlaun fyrir sín störf sem tyrkjanum þykir alveg fáránlegt. Maðurinn virðist vera í einskonar pílagrímsferð fyrir sínar skoðanir á kostnað skattborgara og fær verðlaun fyrir, þetta mundi ekki gerast þar sem fólk kann að meta óhlutdrægan fréttafluting, og sérstaklega á ríkissjónvarpsstöð. Enn ein ástæðan fyrir að einkavæða allt RÚV batteríið. Ef RÚV getur ekki sagt frá hlutum án þess að taka afstöðu, er engin ástæða til að halda því batteríi uppi, þrátt fyrir Sopranos. Tyrkinn sá því miður ekki alla verðlaunaafhendinguna til að geta hraunað yfir allt með pompi og prakt, en sá aðeins síðustu afhendingu. Það var þó fyndin upplifun, því þetta endaði með ósköpum. Kynnarnir lásu allt af borðinu og flögguðu því hársverði sínum allan tímann áhorfendum til skemmtunar, sérstaklega hársnyrtum. Eftir síðustu verðlaunin stóðu kynnarnir eins og álkur og vissu ekki hvað átti að gera, að lokum gengu þau af sviði. Þegar einhver áttaði sig á því að það gleymdist að "rúlla titlunum (e. roll the titles)" hljóp Valgeir Guðjónsson stuðmaður aftur inn á sviðið og sagði að þau þurftu að teygja lopann með einhvers konar gríni. Allt fór í panik og einhver snillingur rúllaði titlunum (sbr. áður) á methraða, tók svona 3 sekúndur að sýna alla sem komu nálægt þessu. Til að teygja þetta báðu þau alla um að vera áfram í salnum og báðu svo alla sem fengu verðlaun að koma á svið. Ekkert gerðist í einhvern tíma, en að lokum tókst að fá þetta fólk á svið til að standa álkulega þar í nokkrar mínútur, allir hafa líklega haldið að nú væru þakkarlistarnir að rúlla yfir skjáinn, sem áður sagði að fóru á mettíma. Þarna stóð fólkið og vissi ekki hvað það átti að gera við sig, nokkrar leikkonur úr Mávahlátri stigu þó nokkur lúðaleg dansspor með verðlaunagripina í hönd til að gera eitthvað. Svo var sýnt þegar fólkið var að rölta af sviðinu og væntanlega í yfirhafnaröð skrattans sem hótel Ísland er þekkt fyrir. Þessar nokkrar mín sem tyrkinn sá af þessum ósköpum voru gríðarlega pínlegar, og vonar tyrkinn að þessi stétt bak-klappara sjái sér fært um að sleppa þessu öllu saman á næsta ári, það væri alveg feyki nóg að gera þetta á 5 til 10 ára fresti að mati tyrkjans. End ðí edda gós tú, laughter of sea gulls!!!!
Eddan * (af 5, fyrir fóstbræður)
9.11.01
...og tyrkinn býður góða helgi
Hressir krakkar með hausinn í lagi...
N.b. hvað sprengjan er rispuð, sbr. meðferð skotvopna í afganistan pistli...
Einhver heppinn lesandi hefur verið gestur númer 1000 í morgun eða gær, til hamingju...
8.11.01
...og seðlabankinn hefur lækkað vexti um 80 punkta (0,85) sem þýðir að Skeggert getur rakað sig aftur. Fyrir áhugasama...
Edduverðlaunin
Hér á landi eru allir smákóngar. Landsmenn halda að það allra flottasta í öllum heiminum sé sannur íslendingur, og að allir útlendingar vilji koma hérna og kaupa íslenskar vörur og "fíflast" í bláa lóninu. Við eigum fallegasta landið, fallegasta fólkið, svölustu tónlistina, besta vatnið og af sjálfsögðu eru íslenskar bíómyndir og sjónvarp á heimsmælikvarða. Og fyrst við erum best í öllu, nema íþróttum og öðrum mælanlegum hlutum, þurfum við auðvitað að vera með nokkurs konar íslensk óskarsverðlaun. Edda er voða þjóðlegt, sbr. snorra edda o.fl. og þar af leiðandi betra en oscar og því hefur það sennilega orðið fyrir valinu. Þá er bara að tilnefna myndir og fólk í íslenska skemmtanabransanum. Það er bara einn hængur á, það eru bara ekki nógu margar myndir eða nógu margir í þessu yfirleitt til að standa undir "ðí æslendik sínema akedemí" og því virðist sem svo að allir þessara leikara sem við "eigum" og fengu einhverja vinnu í ár hafa verið tilnefndir. En þegar maður fer að skoða listann yfir tilnefningar (hægt bæði á mbl.is og visi.is) kemur í ljós að nefndin hafði ekki úr miklu að moða. T.d. man tyrkinn ekki betur en að allar tilnefningar fyrir bestu leikkonur hafi verið úr myndinni Mávahlátur. Svo er allt annað annað hvort úr Mávahlátri, Íkingut (með fyrirvara um stafsetningu) eða Villiljós (sem fór nokkurn vegin fram hjá tyrkjanum á sínum tíma), sem virðast hafa verið einu myndirnar sem framleiddar voru hér í ár. Spurning um hvað margar heimildarmyndir voru framleiddar líka (Lalli Johns var reyndar góð og gott skilið). Að lokum getur tyrkinn ekki staðið á sér að segja eitt, Ómar Ragnarsson er tilnefndur sem besti fréttamaðurinn. Þessi maður vinnur hjá RÚV sem við landsmenn borgum fyrir nauðugir, og er svo hlutdrægur á allan fréttaflutning að manni verður illt að horfa á. Allur hans fréttaflutningur er litaður af hans eigin skoðunum, og vegna þess hve sniðugur hann var í den (gefa út barnaplötur og sitja á hagyrðingakvöldum úti á landi, "Í þá gömlu góðu daga þegar Ómar hafði hár") virðist flestum landsmanna vera sama þótt hann fái að mata þá með sínum eigin pólitísku skoðunum. Ef hann vinnur er þetta skandall, það segir tyrkinn.
Edduverðlaunin * (af 5)
Tyrkinn fer í bíó
Tyrkinn fór í bíó í gær með Herkúlesi. Planið var að fara á forsýningu á einhverja norska mynd "Elling" en tyrkjanum til mikillar gremju og niðurlægingar, komst hann að því að myndin var sýnd kvöldið áður, tyrkinn varð fyrir röngum misskilningi. Til að hylja þessi mistök tók tyrkinn þá ákvörðun í skyndi að fara frekar á íslensku stórmyndina "Mávahlátur". Svo virtist sem nær allar tilnefningar fyrir Eddu verðlaunin hafi verið fyrir þessa mynd og kannski ekki af ástæðulausu (ætli tyrkinn gefi því fyrirbæri ekki sinn eigin pistil). Nú, þessi mynd er nokkuð vel unnin, og þó ekki lýtalaus frekar en flestar myndir sem hér eru gerðar. Sagan á að gerast á "eftirstríðsárunum" í smábæ á Íslandi (myndin var tekin upp að stórum hluta í eldri hluta Habnafjarðar (með b-i og n-i)) og var umhverfið allt mjög sannfærandi, gaman að sjá marga gamla bíla og húsin og göturnar virtust ævafornar. Leikararnir stóðu sig líka ágætlega, og finnst tyrkjanum eðlilegt að minnast á Hilmi Snæ og Margréti Vilhjálmsdóttir í því sambandi. Hilmir Snær var góði gaurinn sem lögga, en Margrét sem dularfulla illkvendið, eins og tyrkinn kýs að kalla það. Ugla Egilsdóttir stóð sig einnig mjög vel, en ekki sér maður oft svo unga íslendinga standa sig vel í þessum bransa. Eitt atriði vekur furðu tyrkjans, af hverju í ósköpunum var hinn þýski Heino Ferch fenginn til að leika íslending í þessari mynd? Það var enginn ástæða til þess, nema helst þá að uppfylla þetta "einn útlendingur í hverja mynd" snobb sem virðist vera í gangi þessa dagana. Þegar Heino opnaði munninn var eins og leikstjóri Bruce Lee myndanna tæki við stjórn myndarinnar í nokkrar sekúndur í senn. Það virðist vera ómögulegt fyrir íslenska kvikmyndamenn að "sínka" tal við varir í íslenskum kvikmyndum, og þegar útlendingur er ráðinn í hlutverk íslendings fer allt til anti-allah. Hljóðsetning er löstur í of mörgum íslenskum kvikmyndum, eins og þær eru oft flottar sjónrænt. Að lokum vill tyrkinn setja aðeins út á uppbyggingu myndarinnar, sem væntanlega má kenna handritinu um. Eins og með margar aðrar íslenskar myndir vantar ákveðna spennuppbyggingu sem væntanlega er mjög erfitt að gera rétt. Sem dæmi má nefna kom það manni á óvart þegar titlarnir runnu yfir skjáinn við lok myndarinnar, því það var eins og ákveðið "punchline" vantaði og maður yppti öxlum og labbaði út. Þessi mynd er dæmigerð íslensk og alveg ágæt, en vantar töluvert í myndir eins og Englar Alheimsins sem var schnilld og aðrar sniðugar myndir sem fórna ákveðnu artí-fartí fyrir skemmtun eins og Sódóma, sem var ein sú besta.
Mávahlátur * * 1/2 (af 5)
ágætis dilbert í dag af mbl.is :
7.11.01
Bonnie "Prince" Billy
Tyrkinn fór á tónleika á Gauknum í gær. Um var að ræða tónleika með Will Oldham eða Bonnie "Prince" Billy eins og hann kýs að kalla sig þessa dagana. Maður þessi leikur á gítar og syngur með afar sérstökum tilbrigðum, og þykir fínt. Hann er gríðargóður textasmiður og er ekki smeykur við að segja hluti sem aðrir mundu ekki þora (dæmi ef þú færir músina yfir myndina af meistaranum). Hann olli tyrkjanum ekki vonbrigðum í gær, og er ekki ólíklegt að hann kaupi einhverja fleiri diska með meistaranum. Á undan honum lék íslendingur nokkur sem kýs að kalla sig GKÓ, og segja gárungarnir að hann hafi verið í Kuklinu og Þeyr á sínum tíma. Hann var með nokkuð sérkennilega sviðsframkomu og lék sönglaust á gítar og sagði furðulega hluti inn á milli laga. Endaði sitt prógramm á klassísku verki sem ég man ekki hvað heitir við fögnuð viðstaddra. Þetta var semsagt bara fínir tónleikar. En, ...Tyrkinn er ekki sáttur við eitt, Gaukurinn er ekki staðurinn fyrir svona tónleika. Helming tímans sá tyrkinn ekki nema efstu lufsurnar á hausnum á kappanum, og var örmagna á því að standa og teygja sig allan tímann. Svona tónleikar eiga að vera með nóg að sætum svo allir sjá og slappa af, best væri að vera með þá í leikhúsi eða tónleikasal, tyrkinn mun hugsa sig tvisvar um áður en hann fer á gaukinn aftur á tónleika. Nú fer að styttast í Low tónleikana og ætlar tyrkinn að fara á annan stað ef tónleikarnir eru ekki báðir á gauknum eins og Will Oldham tónleikarnir. Þess má geta að aðrir tónleikar eru með kappanum í kvöld á Gauknum fyrir áhugasama.
Gaukurinn * (af 5) Will Oldham * * * * (af 5) GKÓ * * 1/2 (af 5)
6.11.01
Dagamunur
Tyrkinn gerði sér dagamun og fékk sér lummu og kanilstangir í h-deginu með Fritz og FxBjössa. Lumman var ljómandi og kostaði eðlilegu verði, eða um 1000 kr., finnst engum öðrum lummur vera orðnar dýrar? Þetta er nú ekki merkilegur matur og ekki kostar mikið að útbúa svona... Það sem athygli vakti var það að með komu þessar kanilstangir sem eru gríðarlega skrítnar, sambland af sykursnúð og brauðstöngum. Ágætt í hófi, en eflaust klígjugjarnt eftir eitthvað magn. Þetta á eftir að floppa á íslandi, meira svona ameríku pródúkt.
Landsbyggðarpólitík Tyrkinn var að blaða í DV og lesa grein um fund sem var haldinn á vegum fyrirtækja á Norðurlandi. Nú vilja þeir sem einhverra hluta vegna vilja búa úti á landsbyggðinni fá hærri persónuafslátt, endurgreiðslur fyrir flutninga til og frá Reykjavík, niðurfellingu tryggingargjalds og afslátt á endurgreiðslu námslána! Ekki nóg með það að landsmenn borgi allir fyrir það að verið sé að bora göt í öll fjöll sem örfáar hræður vilja keyra í gegnum heldur vill þetta lið fá greitt fyrir það að vilja búa þar sem ekki borgar sig að búa. Þetta finnst tyrkjanum ófyrirgefanleg frekja. Af hverju á tyrkinn að borga einhverjum sveitamanni fyrir það að búa þar sem dýrt er að búa? Og ekki nóg með það, þessi sami sveitaómagi vegur meira í kosningum til þings því hann vill búa þar sem dýrt er að búa og erfitt að láta gott af sér leiða. Þetta er sveitafasismi sem við búum við á þessu landi, á kosnað þeirra sem hugsa til framtíðar, og til ágóða fyrir íhaldsseggi sem finnst gott að búa í dreifbýli. Voðalega sniðugt að vera styrkja bændur til að búa til kjöt og aðrar vörur sem greinilega eru ekki þess virði miðað við kostnað. Af hverju ekki að láta markaðinn fækka bændum sem eru með stærri bú, og þannig hagkvæmari, frekar en að láta alla súpa dauðann úr skel með sínar 200 ær eða hvað það nú er. Tyrkinn er orðinn leiður á að búa í ríki sem enn lyktar af styrkjum og ólýðræðislegum vinnubrögðum. Það er bölvuð framsóknarlykt af þessu öllu saman...
Síminn biðst afsökunar
Eftir þrautargöngu tyrkjans og baráttu við þessa merku ríkissofnun fékk síminn símtal, þá fyrsta skipti sem síminn hefur frumkvæði að símtali ef svo má að orði komast. Markaðsmenn símans hafa sennilega rekist á þessa síðu og áttað sig á því hversu gríðarleg neikvæð áhrif það hefur að allur þessi fjöldi fólks viti um þá vitleysu sem hefur verið í gangi, svo og ráðningu myrkrahöfðingjans á þjónustuborðið. Eftir skriflegu kvörtunina hringdi hingað starfsmaður símans, gríðarlega hissa náttúrulega eins og allir sem vinna fyrir símann, og baðst afsökunar á þessum vandræðum öllum. Í sárabætur bauð hann tyrkjanum að endurgreiða símleysisreikningana eins og tyrkinn kýs að kalla þá (þ.e. rukkanirnar fyrir að hafa ekki síma) og einnig að fella niður hálft skráningargjaldið sem nam um 8 þúsund krónum (4 þús endurgreitt af því.) Einnig bauðst hann til að senda reikningana í framtíðinni á réttan stað. Tyrkinn þáði það, þó ekki með þökkum þar sem þetta er það minnsta sem þeir geta gert. Maðurinn er hringdi var allur hinn kurteisasti og leysti málið ágætlega ólíkt mörgum samstarfsfélögum sínum. Tyrkinn vonar að þetta séu síðustu samskipti hans við símann í bili.
Símvirki 1 * (af 5, Lipur, en gerði ekkert rétt) Símvirki 4 * * * (af 5, Lagaði hlutina, númer 2 og 3 mættu aldrei) Þjónustuborði hauskúpa (þeir fjölmörgu sem tyrkinn talaði við gerðu ekkert rétt) Árni Jóhannsson * * * 1/2 (af 5, hringdi og baðst afsökunar, n.b. getur lækkað ef þetta heldur áfram að klikka. Síminn * (af 5, stjörnu fær síminn fyrir að ná þessu á endanum)
...og aldrei þreytist tyrkinn á því að tala um símann...
Í gær var svari lofað innan sólarhrings. Það tók sólarhring að fá þessi svör: "Ég hef nú komið ábendingu þinni áfram til réttra aðila og sem munu skoða málið og hafa svo samband við þig." Tyrkinn var svo að blaða í Fréttablaðið og rakst á grein um "Stóra raftækjamálið", þ.e. sokkurinn sem auglýsti raftæki á gjafaverði og rukkar svo 5.000 kr. fyrir vörulistann. Þar fór fréttamaður Fréttablaðsins á stjá og reyndi að hafa upp á snillingnum sem stendur á bak við þetta. Hann hringdi í 118 og fékk þau svör að þetta væri leyninúmer. Þá hringdi hann bara í bilanir og fékk uppgefið nafnið á eiganda símans. Þetta er semsagt öryggið á "símanúmeraleynd" símans, bara að hringja í bilanir fyrir allar upplýsingar. Minnir mig á það þegar Drykkjumaðurinn hringdi í flugleiðir og einhver stúlka í símanum las upp leyninúmerið hans í símann, þ.e. allir þar höfðu aðgang að "leyninúmeri" hans. Öryggi spöryggi...
5.11.01
...eitthvað fiskalegt... Grein á vísi um nágranna ofsóknir. Þetta er eitthvað fiskalegt mál, ástæður að baki ofsóknum nágranna hljóma alla vega ekki sannfærandi...
Enn enn um símann
Tyrkinn var að kvarta í símann enn og einu sinni, og prufaði nú að nota innsláttarform á netinu í stað þjónustusíma dauðans. Hljóðaði svo; "Nú er ég nýbúinn að fá símatengingu eftir rúmlega 3ja mánaða bið og mikla fyrirhöfn. Allan þennan tíma sem ég var að bíða eftir þessari þjónustu hef ég verið rukkaður í hverjum mánuði um grunngjaldið sem hefur verið dregið af visa korti mínu jafn óðum. Einnig tók það þessa þrjá mánuði að fá reikningana senda heim til mín, en áður fóru þeir þangað sem ég bjó fyrir meira en ári síðan. Loks þegar heimilisfangi var breytt var reikningurinn sendur á húsið við hliðina á mínu húsi. Nú finnst mér eðlilegt að ég fái þessi gjöld endurgreidd og að heimilisfang mitt verði loks skráð rétt (sjá að neðan). Þetta finnst mér lágmarks krafa eftir alla þessa fyrirhöfn, og ef vel ætti að vera mætti fella niður grunngjaldið í ár. Þjónustan sem ég hef fengið í þjónustusíma ykkar hefur verið afar slök og þess vegna vona ég að þessi póstur skili sér betur en að bíða í símanum í lengri tíma." Nú er því lofað að þessu verði svarað innan sólarhrings, við sjáum hvað setur
Tyrkinn fer á árshátíð
Á laugardaginn fór tyrkinn á árshátíð í góðum fíling. Einhverra hluta vegna þurfti hver deild að velja sér þema. Eftir miklar vangaveltur voru tyrkinn og Fritz Gerber settir í að redda málunum sem þeir og gerðu. Fyrir valinu varð nokkurs konar "Deliverence" þema, sem byggðist á því að starfsmenn deildarinnar báru fallegan tanngarð sem keyptur var í síðustu viku (sjá mynd). Þetta eru svokallaðar Billy-Bob tennur sem vöktu mikla athygli viðstaddra. Voru starfsmenn deildarinnar reyndar mis duglegir við að bera tennurnar góðu, og þá sérstaklega kvennkyns makar sem kunnu illa við að bera svona lýti þegar búið var að dressa sig upp. Þegar liðið var á skemmtunina tók maður einn að horfa skingilega á tyrkjann með tennurnar góðu, og eftir nokkra stund tók maðurinn út úr sér alllan efri góminn með öllu settinu á og brosti... Margir góðir skemmtu þarna og fór Herbert Guðmundsson fremmstur í flokki með "Can't walk a away" og "Hollywood". Einnig var Einar Ágúst þar (og fullorðnar konur tístu eins og smástelpur þegar hann gekk í salinn) og síðast en ekki síst var meistari Júró-Eyvi mættur og lék á alls oddi. Ágætis kvöld þegar horft er til baka, en tyrkinn var alveg búinn á því fyrir klukkan 2 eftir langa drykkju.
2.11.01
...og þá ...býður tyrkinn góða helgi. Á morgun fer hann á árshátíð svo vonandi verður eitthvað slúður á mánudaginn. Kvöldið fer væntanlega í bíóferð og einhvers konar kælingu. Seinna, tyrkinn
Söngmær smjörbollans syngur út árið
Í grein á strik.is segir frá því að nýjustu fréttir herma að söngmær bötterköpp syngi með þessari stórmerkilegu hljómsveit fram að áramótum, öllum aðdáendum til mikillar ánægju, eða hvað? Í gesta bók á síðu hljómsveitarinnar fá allir að tjá sig og virðist sem svo að ungir aðdáendur rífa söngmærina í sig og kenna henni um allt illt. Kannski væri betra að láta hana fara strax... Ætli hún og trymbillinn stofni ekki aðra selfyssingasveit fyrir vikið, "just what we need, another selfoss-band"
1.11.01
Ramadam, dam the ram
Undanfarið hafa menn verið að velta því fyrir sér hvort kanarnir ætli ekki að gera hlé á árásum á talibanana á meðan föstumánuður múslima gengur yfir. Tyrkinn telur litlar líkur á því, eins og háttsettir kanar hafa reyndar bent á. Í grein á mbl.is er vitnað í háttsettan yfirmann í Norðurbandalaginu þar sem hann segir að líklega muni norðurbandalagið halda áfram sókn sinni, enda hafi talibanar ávallt gert það undanfarin ár. Hlé á árásum mundi bara gefa talibönum frið til að safna saman herliði og vopnum fyrir áframhaldið. Tyrkinn telur að ef þetta lið tekur ekki pásu sjálft er engin ástæða til að gefa þeim frið, ekki fyrst þeir eru að þessu á annað borð. Er ekki kominn tími til að senda inn Apache þyrlur og landher, setja smá fútt í þetta? Mundu e.t.v. hætta að sprengja spítala og byggingar rauða krossins (eða rauða hálfmánans eins og það heitir sennilega í afganistan, þeir vilja ekki þyggja af einhverju sem kennt er við kross...)
Tyrkinn ekki að gera góða hluti... svaf yfir sig í morgun, og með roknar hausverk núna...
|
|
|
|
|