Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

31.12.01

:: tyrkinn 12:00 [+] ::


Áramót nálgast
Nú fer að styttast í áramót. Eins og allt jólastandið eru áramótin nokkuð fastskorðuð í Achbar fjölskyldunni. Byrjar á mat og endar í drykkju, semsagt. Svo á að fara í teiti hjá frú Guðmundsdóttur, bauna. Tyrkinn óskar báðum lesendum sínum góðrar skemmtunar og ekki síðri þynnku.


28.12.01

:: tyrkinn 13:32 [+] ::


Skilda vera jólahjól
Eins og "allir" hafa tekið eftir, hefur tyrkinn verið í myndarlegu fríi í tvær vikur núna. Eftir rjúpnaleitina miklu og árangurslausu tók hann sér áfram frí og hefur það verið vel. Ein afleiðing af fríi þessu var sú að tyrkinn kláraði jólainnkaupin óvenju snemma. Jólin hafa svo farið meira og minna í átveislur ýmsar. Að venju var rölt niðrí bæ á Þorláksmessu, og auðvitað fór tyrkinn heim til móður sinnar í rjúpur á aðfangadag, sem að þessu sinni þurfti að redda að austan vegna ógnarhræðslu íslenska rjúpnastofnsins við stórskyttuna Halim Al Achbar. Tyrkinn er ekki frá því að eldamennska móður sinnar hafi hljóðað upp á 5 stjörnur þetta árið, en hún hefur reyndar aldrei farið undir þessar 5 stjörnur. Ekki er ólíklegt að tyrkinn muni aldrei elda jólamatinn sjálfur sökum þess. Á jóladag var prógram. Þá var farið á fætur og farið í jólagallan aftur og haldið heim til foreldra freu Achbar og þar biðu hátt í 30 forvitin augu að berja Tyrkjann í fyrsta sinn, en í þetta skipti var það föðurætt frúnnar. Fólkið var allt ákaflega indælt og slapp tyrkinn nokkurn veginn við algengar spurningar á svona mannamótum, sbr. "Hverra manna ert þú", "Segðu mér frá sjálfum þér" og þess háttar. Þar var troðið í sig dýrindis hangikjeti með öllu tilheyrandi og eftir úttroðslu var ekki laust við að tyrkinn sæi svart-hvítt í nokkra stund. Eftir þá veislu var haldið beint til móður tyrkjans í meira hangikjet. Eftir meiri troðslu missti tyrkinn sjón með öllu eftir að hafa innbyrt metmagn af hangikjeti með öllu tilheyrandi (2x eftirrétt af sjálfsögðu). Eftir þessar erfiðu þolraunir sem jafnframt voru af sjálfsögðu ánægjulegar héldu herr und freu heim að hvíla sig fyrir næstu törn. Annan í jólum var svipað prógram, fyrst var haldið í Árbæinn að hitta móðurætt frúnnar. Það reyndist einnig gott fólk og fullt af mat. Beint þaðan var svo aftur haldið til móður tyrkjans að hitta móðurætt hans. Þar var allsherjar hlaðborð þar sem allir komu með eitthvað. Ávaxtasalat Achbar hjónanna kom vel út, en þessi jól ákvað reynar annar hver maður að koma með sama rétt. Eftir að hafa náð hálfu "Gettu Betur" þar, var haldið heim til Geira Agg, þar sem spilað var meira "Gettu Betur". Af sjálfsögðu var tyrkinn ósigraður í spilinu, og var hann einna stoltastur yfir því að vinna lið Gyðnisins, en þess má geta að Gyðnið virðist vita um 90% af hlutum sem koma bara að notum í spurningarleikjum. Enda var Gyðnið fyrsti sigurverari í Spurningarkeppni Hemma Gunn hérna um árið og vann þar ferð til Dublin og Ghettoblaster og var frægur eitt kvöld á jamminu, ekki amalegt það. Síðan þá hefur tyrkinn verið að slappa af heima fyrir, með þeirri undantekningu að skreppa í fótbolta í gærkveldi og standa sig gríðar-illa að venju. Í gær sigraði svo tyrkinn frúnna í "Viltu vinna milljón" spilinu sem þau fengu í jólagjöf. Tyrkinn er ósigraður þessi jól, óstöðvandi með öllu.

Jólarjúpur mömmu tyrkjans * * * * * (af 5 mögulegum)
Hangikjet í augnaveislu * * * *
Hangikjet móður tyrkjans * * * * * (mamma tyrkjans er alltaf best í þessum bransa)
Kaffihlaðborð í Árbænum * * * (taka þarf tillit til ógnaráts tyrkjans daginn áður)
Furðuhlaðborð Achbar stórfjölskyldunnar * * * *
Gettu betur * * * * (ekki gallalaust spil, en heldur fólki á tánum og skemmtilegt)
Viltu vinna milljón * * * (eftir að koma reynsla á fleiri en 2 spilara)


19.12.01

:: tyrkinn 11:35 [+] ::


Á sunnudaginn hélt Tyrkinn ásamt FXBjössa og Gauja (eða Nearly God eins og hann kýs að kalla sig) á Hofsós City, þar sem þeir félagar ætluðu á rjúpu. Þar sem löggan er enn að velta því fyrir sér hvort tyrkinn fær að kaupa byssurnar sýnar hafði hann fengið lánaðann fauta-hólkinn hans Lýðs (Benelli pumpa, svört og töffaraleg). Á mánudaginn héldu þeir félagar upp á nærliggjandi fjöll, að sjálfsögðu með leyfi innfæddra, en sáu engann einasta fugl. Þessi þjóðsaga um lítinn fugl í ár er semsagt sönn. Eftir töluverða göngu héldu þeir félagar aftur í bæinn og fengu sér öl og landsbyggðarborgara á Sigtúni, skemmtistað/veitingarstað "borgarinnar". Í gær héldu þeir svo heim á leið en stoppuðu í Bröttubrekku og gengu þar góðan spotta. Tyrkinn og Gaui sáu ekki kvikindi en FXBjössi náði að henda nokkrum höglum eina rjúpu sem var heildarafrakstur þriggja daga, og þótti fínt. Nú er tyrkinn bara í góðum fíling heima hjá sér, því hann tók sér bara frí fram að jólum, og er það vel. pjá, pjá.


14.12.01

:: tyrkinn 14:19 [+] ::


Viltu vinna milljón á netinu, gott...



:: tyrkinn 10:13 [+] ::


Dagur í lífi Tyrkjans (framhald)
Í gær fór tyrkinn í fótbolta ásamt öðrum meðlimum FC Sokks. Reyndar gleymdi tyrkinn sér í CS og leit ekki á klukkuna fyrr en á slaginu 18:00 þegar hann átti að vera mættur inn í sal. Þetta skiptið var tyrkinn bara svona meðal slakur í boltanum og þykir það bara fínt. Átti reyndar 2-3 spretti sem gerðu vel sbr. skallamark aftur á bak og boltastuldur sem endaði í netinu, en fyrir þá sem ekki vita er tyrkinn afleitur knattspyrnumaður og heyra mörk til tíðinda. Fyrir áhugasama er frumgerð heimasíðu Sokksins hér, falleg mynd af tyrkjanum m.a. sem sést hér til vinstri. Undir lok boltans gerðist sérkennilegur atburður. Í tennishöllinni í Kóparvogi eru ljósakrónur sem eru einskonar kúpur sem snúa upp í loftið, rúmur hálfur metri í þvermál og vísa upp í loft. Þessar ljósakrónur (eða hvað það er kallað) eru allar varðar með grind ofan á svo boltar fara ekki ofan í þær. Í þetta skiptið fór knötturinn ofan í einu ljósakrónuna í öllu húsinu sem ekki er með grind. Eftir ca. hálfa mínútu fór að stíga megn reykur upp úr ljósakrónunni og endaði allt á því að boltinn sprakk ofan í ljósakrónunni og öryggi sló út ca. 10 ljós. Þetta hefði geta orðið til þess að tennishöllin brynni til jarðar. Stúlkan sem var að vinna þarna vissi allavega ekkert hvað hún ætti að gera. Ef einhver snillingur hleypir rafmagni á draslið gæti svosum allt farið til fjandans...

"Á fjórtándu öld var rokkið ekki til, en í dag er rokkið staðreynd"
Eftir boltann snæddi tyrkinn ásamt gyðninu á Megavótum og svo var farið á frumsýningu myndarinnar "HAM, Lifandi dauðir" sem fjallar um líf, dauða og upprisu hljómsveitarinnar HAM, sem er ein af 3 bestu hljómsveitum sem ísland hefur alið (HAM, Þursaflokkurinn og Sigurrós) að mati tyrkjans. Gyðninu hafði áskotnast miði fyrir tvo sökum tengsla hans við þotulið íslands (annað hvort það eða vegna afgreiðslustarfa) og var svo sætur í sér að bjóða tyrkjanum, elsta og besta vini sínum. Nú, myndin var gríðargóð, og er þetta skyldugláp fyrir alla sanna HAM aðdáendur og aðra rokkskaddaða einstaklinga. Tyrkinn afrekaði það reyndar að sjá bandið aldrei á sviði á sínum tíma og einnig að missa af öllum tónleikum HAM í sumar og hefur verið gert óspart grín af kappanum fyrir vikið, sem eðlilegt er. Allavega, þetta eru viðtöl við kappana í HAM og aðra eins og vini þeirra, rótara, gagnrýnendur og fleiri góða (m.a. Einar Örn, Dr. Gunna, Björk, og fleiri), sem klippt eru inn í tónleikamyndbönd, gömul tónlistarmyndbönd (m.a. úr Poppkorni á RÚV) og aðrar frásagnir og er það listavel gert. Salurinn hló mikið og hafði gaman af. Kíkja á þessa. Credid list: Gyðnið, HAM.

HAM, lifandi dauðir * * * * * (af 5 mögulegum, ein besta heimildarmynd allra tíma)



:: tyrkinn 09:20 [+] ::



13.12.01

:: tyrkinn 15:32 [+] ::


Dagur í lífi tyrkjans
Tyrkinn var erfiður í gang í morgun, og örlaði á kaffilöngun eins og aðra morgna, en af sjálfsögðu lét hann sig ekki bugast. Þess í stað tók hann með sér öskju af "Green Energy" tei sem kennt er við Yogi Bhajan's sem tyrkinn fékk í jólagjöf í fyrra frá systkynum sínum í þessu fína te-kitti. Þetta bragðast ótrúlega vel og hálf sætt miðað við flest önnur te sem tyrkinn hefur drukkið. Svo er Guarana og Kombucha í því sem væntanlega er eitthvað voða fínt og hollt... Nú má kötturinn fara að vara sig. Jafnvel kötturinn í hálsinum líka. Mjá.
Eftir drykklanga stund í vinnunni (tyrkinn kýs að kalla drykklanga stund þann tíma sem tekur að slafra í sig vondum drykk, því ekki getum við kallað drykklanga stund þann tíma sem tekur að drekka ljúffengan drykk, sá tími er of stuttur...) fékk tyrkinn að skjótast í útréttingar. Hófst förin á að fara með Albatrossinn í smurningu, en olíuþrýstingsmælirinn í honum er búinn að valta töluverðum svefntruflunum að undanförnu. Í ljós kom við rannsókn í smurningunni að pústið var að hrynja undan vagninum, en það var sett á í sumar af Pústþjónustu BJB (eða eitthvað í þá áttina) í habbnafirði og var það ekki betur gert en svo, og hékk allt á einum gúmmíhring í stað nokkurra. Ekki góður frágangur það. Einnig kom í ljós að þegar tyrkinn fór með Albatrossinn í skoðun í sumar í Garðabænum hafði einhver snillingur tekið rúðupiss brúsann úr festingunni sem hann er festur í til að komast að ljósunum og ekki fest hann aftur. Það varð til þess að brúsinn hefur verið að slást í viftuspaða við hliðina og var allur í henglum fyrir vikið. Ekki furða að framrúður Albatrossins hafa verið óvenju skítugar undanfarna mánuði. Eftir smuringuna var allt annað hljóð í glæsivagninum og tyrkinn getur sofið betur, en 5.700 krónum fátækari.
Þá var haldið á lögreglustöðina til að afgreiða byssumál. Þar lagði tyrkinn inn umsókn um eigandaskipti á byssum föður síns, og tókst það eftir svolítið maus tveggja annars ágætra starfsmanna lögreglunnar. Hins vegar fékk tyrkinn ekki leyfi til að fá byssurnar lánaðar frá dánarbúinu á meðan löggan er að afgreiða skiptin (tekur sjálfsagt um 2 vikur að afgreiða pappírana). Og tyrkinn sem ætlar að reyna að komast einu sinni á rjúpu fyrir jól (rjúpnaveiðitímabilið endar 22. des). En sem betur fer bauðst einn herramaður úr vinnunni að lána tyrkjanum frethólk sinn í næstu viku, og á hann allar þakkir fyrir. Bara að vonandi verði veðrið bærilegt til fugladrápa. And for you ladies out there: pjá, pjá.
Drykkjumaðurinn sendi einnig tyrkjanum línu og bað um að fá Úlpu á MP3 senda til Noregs með hraðsendingu, en drykkjumaðurinn á einmitt amli á morgun. Til hamingu Drinkman! Kiss-kiss. Er tyrkinn að rippa diskinn í þessum töluðu orðum.



:: tyrkinn 13:16 [+] ::


Íþróttanördahúmor, Beckham bjargar heiminum...


12.12.01

:: tyrkinn 14:40 [+] ::


Tyrkinn er búinn að vera súr í göddninni undanfarnar vikur og mánuði. Í gær hófst tilraun til að enda það sem felst í því að hætta að drekka kaffi í einhvern tíma, en tyrkinn er mikill kaffimaður. Þetta virðist vera að ganga, því rétt í þessu las tyrkinn að roccoman (sjá listann til vinstri) hefur ákveðið slíkt hið sama. Spurning hvernig tyrkinn verður á tauginni næstu daga....grrrr...



:: tyrkinn 10:18 [+] ::


Ali G
Asskoti svöl heimasíða Alla Guðmunds



:: tyrkinn 09:18 [+] ::


Bjór minn vor
þú sem ert í flösku
frelsist þinn tappi
tilkomi þín froða
freyði þínir humlar
svo í glasi sem í munni
svalaðu í dag mínum daglega þorsta
og skeyttu ei um vísaskuldir
svo og líka hjá þyrstunautum mínum
eigi leið þú oss á Astró
heldur ei á Nasa
því að þitt er valdið
gleðin og stuðið
að eilífu
Carlsberg


11.12.01

:: tyrkinn 12:40 [+] ::


Abbnendi skrattans...
Kötturinn gerði óheiðarlega árás á tyrkjann í gær. Svo gróf var árásin að tyrkinn neyddist til að fara heim til sín og hrauna þar fram eftir degi, ekki góður dagur það. Nú hangir hann bara heima súr og lætur sér leiðast. úfff, kodddu kisi kisi, ég ætla að snúa aðeins upp á hálsinn á þér.......


10.12.01

:: tyrkinn 11:38 [+] ::


Tyrkinn tók á því á laugardaginn. Gyðnið, Siggið og Herkúles komu í heimsókn til Achbar fjölskyldunnar til brennivínsdrykkju. Miklar rökræður voru í gangi sem Herkúles leiddi og afvegaleiddi til skiptis að venju, og aldrei þessu vant tók tyrkinn einhvern þá í þeirri umræðu, en yfirleitt hafa þetta verið einkarifrildi Gyðnisins og Herkúlesar. Að lokum var komin púki í mannskapin og því haldið á gaukinn þar sem svartrafatamenn léku fyrir dansi. Áfram var drukkið þar og Sviðarson mætti þangað auk Fritz gerber og Bjarkans. Eftir mikla heift af drykkju var síðustu hræðunum hennt út þegar lokað var og dreyfðu poppstjörnurnar Bacardi Breezer á liðið og haldið var heim. Þá var tyrkinn orðinn það vitlaus af drykkunni að hann hélt áfram að súpa á leiðinni heim í bólið, en það reyndist ekki sniðugt. Í dag er tyrkinn hins vegar hand ónýtur og er ekki laust við að kötturinn hafi náð að endurnærast yfir helgina. Grrrrr.


7.12.01

:: tyrkinn 12:24 [+] ::


Englar
weeeeeee



:: tyrkinn 11:51 [+] ::


Rokkstjarna
Tyrkinn fann svona leik á netinu fyrir nokkru síðan og spilar þarna á hverju degi, tekur 3 mín á dag, og hefur gaman af. http://www.zigire.com



:: tyrkinn 11:40 [+] ::


"Spam, spam, spam, spam, spam, eggs, spam, spam, spam, beikon and spam" (Monty Python, Flying Circus, 1970)
Tyrkinn er veikur og þreyttur á heimasíðum sem endalaust skjóta upp fullt af auglýsingagluggum og opna nýja um leið og maður lokar þeim. Grrr. Nú síðast fór tyrkinn á www.uglypeople.com og var þá búið að spama hana til skrattans. It's the devil...



:: tyrkinn 11:35 [+] ::


Krypplingurinn Tyrkinn
Í morgun vaknaði tyrkinn með tak skrattans í bakinu, og var það ekki vel. Þegar frau Achbar vakti tyrkjann í annað eða þriðja skiptið í morgun til að snúa honum (tyrkinn hefur hrotið óeðlilega mikið síðan hann fór að taka slímlosandi saft sem tilraun til að losna við hrotur og kverkaskít) gat hann ekki sofið lengur vegna bakverkja og rauk á lappir, og það um klukkan 7, en það hefur ekki gerst í einhverja mánuði. Þegar hann hóf að hella upp á kaffi réðst bakið á hann og lá við að hann lægi í gólfinu veinandi, en strangt tyrkneskt uppeldi kom í veg fyrir það. Á tímabili ætlaði tyrkinn meira að segja ekki í vinnuna, heldur liggja grafkyrr á sófanum góða, en á endum nennti hann því ekki og dreif sig inn eftir. Samt sem áður er hann eins og gömul kerling í limaburði, þótt hann sé auðvitað alltaf gríðarlega fallegur.

Bak hauskúpa (af 5 mögulegum)


6.12.01

:: tyrkinn 14:21 [+] ::


The Clock of death...


5.12.01

:: tyrkinn 15:36 [+] ::


Ha-ha
Á heimasíðu Mána Svavarssonar má finna link á þessa vafasömu heimasíðu sem virðist hafa verið þýdd með einhverri vél yfir á íslensku. Textinn verður drepfyndinn eftir þessa meðferð.... "Íslensk" Vafasíða. Gerberinn benti tyrkjanum á þessa.



:: tyrkinn 13:42 [+] ::


Kjúklingar
Hetjur alheimsins, amerikanar, eru að gera góða hluti á Afganistan. Þessar hetjur háloftanna eru svo ragar að einu hermenn úr liði kananna sem falla eru þeir sem verða fyrir sprengjum eigin félaga þegar þeir varpa þeim úr skrilljón metra hæð á röng skotmörk. Sjá frétt á mbl.is


4.12.01

:: tyrkinn 16:02 [+] ::


Bardot hundleiðinleg
Hver kannast ekki við endalausa röflið i Brigitte Bardot? Þessi kerling virðist fá endalausa athygli vegna fornar frægða og nýtir sér það óspart til að koma sínum sérkennilegu skoðunum á framfæri. Tyrkinn var að blaða í gegnum Fréttablaðið og rakst þá á grein um umtalaða. Var hún stödd í Suður-Kóreu og var beðin um að koma fram í sjónvarpsviðtali. Þar fór hún mikinn og fordæmdi hundaát innfæddra en mikil hefð er fyrir því að snæða hunda þar í landi, og er það vel að mati tyrkjans. "Ég viðurkenni að munur er á menningu í öllum löndum, en því miður eru kýr aldar til þess að borða þær, en hundar ekki. Ég samþykki að margt fólk borði nautakjöt, en siðmenntað land leyfir ekki þjóð sinna að borða hunda" sagði frúin. Einn innfæddra svaraði henni: "Suður-Koreubúar borða ekki dúfur, sem eru friðartákn hér. Myndu frakkar vera ánægðir með það ef Suður-Kóreubúar segðu þá vera andvíga friði vegna þess að þair borða dúfur?". Þetta er ansi góður punktur að mati tyrkjans. Reyndar eru þessir hundar sem eru borðaðir í S-Kóreu sérstaklega ræktaðir til þess og því fellur kenning Bardot.

Hvað gerir eitt dýr heilagara en annað, (ef maður horfir fram hjá trúarlegum ástæðum eins og að borða ekki svín, kýr eða apa)? Kanar eru ansi duglegir við svona rugl, þar sem þeir virðast flokka heilagleika dýra eftir því hvort þeim finnast dýr sæt eða ekki. Þannig er alveg ógeðslegt að einhver vilji borða dýr sem kanar nota (eða misnota?....) sem gæludýr vegna hefða. Þetta er allt mismunandi eftir því hvað fólk er alið upp við og hvað einhver hefur ákveðið að gera skuli fyrir löngu. Til dæmis eru ýmsir sérkennilegir siðir hér á landi í sambandi við það hvað er matur og hvað ekki. Sem dæmi má nefna að spörfuglar eru ekki hugsaðir á matardiska hér á landi, þó svo að þegar þeir fljúga áfram til evrópu enda þeir oft á matardiskum frakka eða annara evrópubúa og þykja lostæti. Einhvers staðar heyrði tyrkinn kenningu um þetta þess efnis að íslendingar tengi þessa fugla við vorið (sbr. vorboðinn ljúfi) og vilji ekki veiða þá þegar þeir eru önnum kafnir við að þýða á sér eistu og eggjastokka. Svo eru aðrir fuglar sem veiddir eru hér, en aðrir hugsa ekki um sem mat. Könum finnst dauðasynd að drepa höfrunga því þeir eru svo sætir, og hver man ekki eftir öllu írafárinu í sambandi við hvalveiðar, en einhverjum finnast þeir greinilega sætir, má ekki veiða svo sæt dýr. Minna er kvartað yfir veiðum á ljótari dýrum. Þetta finnst tyrkjanum vera bölvað rugl allt saman, og styður hvers kyns jöfnun á stöðu dýranna, en þó með útrýmingarsjónarmiðum. Hundaát hljómar ekki verr en hvað annað þrátt fyrir að fólk skuli vilja eiga svoleiðis kvikindi sér til yndisauka. Reyndar deilir bróðir tyrkjans, Achmed Abdullah Achbar, þessu sjónarmiði og hver veit nema þeir geti panntað sér hundaborgar hér eftir nokkur ár. Ef einhver er ósammála tyrkjanum, mætti alveg svara með einhverjum rökstuðningi ef einhver er til.



:: tyrkinn 15:11 [+] ::


Mikill metnaður þar Hin íslenska Brittney spears síða!



:: tyrkinn 12:26 [+] ::


Samkvæmt frétt á www.strik.is hitaðu hinir íslensku Quarashi upp fyrir þesssa náunga nú fyrir skemmstu - tékkaðu á heimasíðunni þeirra!!! http://www.quigsmss.com/kingzhomepage2.htm
(Þetta hefur tyrkinn eftir Gyðninu)



:: tyrkinn 09:39 [+] ::


Drykkjumaðurinn er kominn með MSN message, þá er e.t.v. hægt að krefja hann fregna frá Noregi. Fyrir áhugasama er tyrkinn einnig með svoleiðis og má bæta honum við með addressunni hans; skaufi@hotmail.com .


3.12.01

:: tyrkinn 11:36 [+] ::


Ræma
Eftir þrekraun helgarinnar var frau Achbar heldur framlág í gærkveldi og hofði meira og minna á tyrkjann með hvolpaaugum seinni part dags. Til að gera vel við frúnna rölti tyrkinn út í ræmuleiguna og tók Bridget Jones Diary, sem frúin hefur mikið lofað og talað um. Eftir að hafa horft á ræmuna skilur tyrkinn ekki alveg hvað er svona merkilegt við þessa mynd. Það voru nokkur fyndin atriði og þessháttar en svona yfir höfuð finnst tyrkjanum þessi ræma ekki merkilegri en margar svipaðar ha-ha myndir. En að venju er tyrkinn með kenningu; þetta er nefnilega ekta kellingamynd. Þetta er meira og minna svona einhver húmor sem snertir taugar allra kvennmanna og er því óskiljanleg á köflum fyrir tyrkneska karlmenn, eða allavega ekki eins mikil snilld og margir (margar) vilja meina. Að leikslokum kallaði frúin tyrkjan leiðilegan fyrir að gagnrýna slíka snilld, og fannst tyrkjanum sú gagnrýni óréttlát.

Briddjét djóns dæarí * * (af 5)



:: tyrkinn 11:06 [+] ::


Hljómar gaman
Herkúles mætti með áhugaverðan disk í bústaðinn, menn sem kjósa að kalla sig olnboga eða elbow á frummálinu. Þetta eru hressir strákar frá Manchester í Bretlandi og alveg þess virði að kanna betur, ef einhver veit um góða síðu til að niðurhlaða diskum án þess að nota napster eða sjóleiðis forrit má endilega senda línu á tyrkjann. Þegar tyrkinn skoðaði bandið á allri tónlist, rakst hann einnig á doves sem hljómar vel, en er óplægður akur fyrir fögur eyru tyrkjans. Verst að maður þarf orðið að selja ömmu sína til að kaupa tónlist í dag, sagan segir að búðir jóns vonda, skífubúðirnar, hafi hækkað geisladiskaverð um 200 kr. og kostar því nýjar plötur allt að 2.700 krónur, ekki gott það.



:: tyrkinn 10:45 [+] ::


Tyrkinn fer út úr bænum
Tyrkinn fór á Flúðir aðra helgina í röð um helgina. Tyrkinn fór ásamt frau Achbar á föstudaginn eftir að hafa skipt við móður sína á Albatrossinum og Slyddujeppa móður sinnar. Ekki veitti af skiptunum því allt var á kafi í snjó og snjóaði mikið yfir helgina. Klofa þurfti snjó til að komast í sumarbústaðinn en ómakið var þess virði. Bústaðurinn var glæsilegur og vel út búinn, og var þar potturinn að gera góða hluti. Daginn eftir kom hópur ungs fólks og má þar nefna Gyðnið og Siggið, Herkúles, og Bjarkann og er hópurinn þar allur talinn. Eftir mikið þras og ásaknir um það hver átti sök á því hversu langan tíma tók að finna bústaðinn, hóf fólk að hella í sig brennivíni og var það vel. Tyrkinn var reyndar ásakaður að hafa gefið lélegar upplýsingar um vegamál þar í sveit, en af sjálfsögðu var það bull og vitleysa, og er nær að kenna ökumanninum Gyðninu eða þessum þremur backseat drivers sem góluðu alla leiðina. Nú, eftir góða drykkju, grill, og meiri drykkju var kominn meiri og betri hugur í mannskapinn og var það vel. Potturinn kom náttúrulega að góðum notum. Eftir heiðarlega tilraun til að spila actionary fór þó að sjá á mannskapinum og fóru minni menn og konur að týna sig í háttinn. Þegar kvöldið er tekið saman var árangurinn góður og náðist 33% æluhlutfall sem verður að teljast gott fyrir fólk á þessum aldri...


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra