|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
31.1.02
...og júggarnir að taka spánverjana, staðan er 25:20, og ísland í undanúrslit...
30.1.02
Tyrkinn tekur undir með Simbanum, dæmigert að einhverjar freðýsur taki sig saman gegn því að sýna vinsælasta sjónvarpsefnið á RÚV. Bera því fyrir sig að þegar heimilisfeður (ekki það að bara karlmenn hafi gaman af þessu) sundri heimilinu allt sumarið ef þeir vilja vakna snemma og horfa á bolta í sjónvarpinu. Þetta yrði ekki sýnt allan sólarhringinn og tyrkinn efar að margir öl-óðir heimilisfeður muni splundra fjölskyldum vegna HM. Minni tyrkjann á "Konur gegn klámi" fyrirbærið... ussss
Freðýsur hauskúpa (af 5 mögulegum stjörnum)
29.1.02
Dómaraskandall !!! Er þetta ekki alveg týpískt fyrir greiið landsliðið, áfram Ísland
Kvót dagsins "I was born, Yes I was, I blew my horn, yes I does...." [Deep Jimi and the Zep Creams]
Sörvævör
I gær lauk þriðju seríunni af Sörvævör þáttunum á Skjá 1. Vegna skorts á loftnetsleysi gat tyrkinn ekki flygst með bróður hluta seríunnar en náði lokaþættinum í gær, og meira að segja í lit. Kappinn á myndinni sigraði leikinn að þessu sinni og hlaut að launum 1 milljón bandaríkjadala (um 103.600.000 kr) og einhvern amerískan bílskrjóð. Tyrkinn spáði nú 56 ára konunni sigri rétt fyrir upplestur atkvæða dómnefndarinnar, en kappinn náði þó að murka út sigur, og er það vel. Þá fáu þætti sem tyrkinn sá, bar ekki mikið á þessum náunga og lét hann lítið fara fyrir sér, sem ég held að sé ágætis strategía fyrir þennan leik, þar sem þeir frekustu og fyrirferðamestu fá yfirleitt að fjúka tiltölulega snemma. Greinilega er betra að lauma sér svona í gegnum þetta eins og þau tvö gerðu sem eftir voru síðast. Þó heldur tyrkinn þó að þetta hafi nú ekki verið eins mikið afrek af þessu liði að lifa þarna af, því mest allan tímann var liðið með stóran vatnsgeymi og hættur af rándýrum voru held ég óverulegar þrátt fyrir að ljónahópur hafi hrætt þau ögn framan af. Líklega hafa verið um 20 skyttur með riffla með nætursjónaukum til að vernda liðið, því ekki væri gott fyrir þáttinn ef allir keppendur yrðu étnir lifandi á öðrum degi. Tyrkinn bíður enn eftir "veruleika" þættinum þar sem sérsveitir herja bandaríkjanna keppa sín á milli, en það sá tyrkinn á netinu fyrir meira en ári þótt ekkert bóli enn á honum. Hann man reyndar ekki eftir nafninu á þessum þætti, en lýsingin var góð.
Sörvævör III * * * 1/2 (af 5 mögulegum)
28.1.02
Naddakross Tyrkinn fór í gær á tónleika í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir voru kenndir við Naddakross nokkurn, en til er þjóðsaga um það þegar kappi nokkur sigraði óvættinn Nadda með hjálp guðs, og lét reisa þar kross með bæn á sem ferðalangar áttu að fara með áður en þeir fóru um svæðið. Flutt voru nokkur verk sem beint eða óbeint tengdust þessari sögu og var sumt tekið úr gömlum handritum og eitt verkið var samið af Huga Guðmundssyni tónskáldi, sem er svo heppinn að geta kallað sig vin tyrkjans. Um flutninginn sáu Matthías Hemstock slagverksleikari, Hörður Áskellson organisti og Vocale Thule [með fyrirvara um stafsetningu] kórinn. Úr þessu kom sérkennileg, en jafnframt skemmtileg blanda af orgeli, miðaldalegum söng og slagverki og rafrænum hljóðum sem Mattíhas framkallaði. Lengst framan af var kórinn innst í kirkjunni og Hörður og Matthías fremst sem skappaði furðulega stemningu þegar maður sat með kórinn í hnakkann og hljóðfæraleikarana fyrir framan sig. Að lokum gékk kórinn hægt í gegnum kirkjuna sitt hvorum megin við hlustendur á meðan þeir sungu sem skapaði skemmtilega þrívídd í flutninginn og stóðu að lokum hjá hljóðfæraleikurunum, og Hugi slóst í lið með kórnum. Þráðurinn í tónleikunum var sterkur þrátt fyrir mismunandi tónlist og var verkið góð heild og skemmtileg. Kirkjan er skemmtilegur staður og orgelið og söngurinn kemur gríðar vel út í þessu umhverfi, og gaman var að heyra furðulegar upptökur af steinum, sjó og þessháttar í bland. Góðir tónleikar
Naddakross * * * * * (af 5 mögulegum)
Magnaður náungi Í Silfri Egils í gær var símaviðtal við skáksnillinginn Bobby Fischer sem lék við Spasský hér fyrir allnokkrum árum. Þessi kappi er staddur í Japan núna í "útlegð" en handtökuskipun hefur verið gefin út á hann. Þessi náungi er alveg brjálaður út í bandaríkin og allt skák-apparatið of fer mikinn. Hann segir að gyðingarnir í bandaríkjunum hafi rænt hann í mörg ár og ráði landinu, sem sennilega er mikið til í sbr. óskiljanlega framkomu bandaríkjamanna í málum Ísraels. Þetta viðtal var stórmerkilegt og oft missti kappinn sig og notaði öll verstu orð á enskri tungu um gyðingana og stjórnvöld í bandaríkjunum. Fyrir þá sem misstu af þættinum mælir tyrkinn með því að horfa á endursýninguna. Hérna er heimasíða kappans sem hann benti á í þættinum. Þarna er að finna handtökuskipun á kappann og fullt af viðtölum við kappann. Tyrkinn hlustaði á einn mp3 fæl að handahófi á síðunni og þar er hann að tala um einvald gyðinga og það að hann voni að Washington DC verði þurrkað út með efnavopnum m.a. Hann segir líka að allt skáksambandið séu bara svindlarar og því hefur hann fundið upp nýja tegund af skák sem hann kallar "the Fischerandom" þar sem skákmönnum fyrir aftan peðin eru raðað upp að handahófi svo ekki sé hægt að svindla með því að nota fyrirfram ákveðna leiki af tölvum. Hann sagðist einnig hafa hring í forseta Íslands og beðið hann um að fá að koma fram í útvarpi hér á landi. Það er tilvalið fyrir íslenskar útvarpsstöðvar að taka viðtal við hann, því hann er alveg stórskemmtilegur þegar hann kemst á flug. RÚV fer nú líklega ekki í málið sökum þess hversu grófur hann er. Silfur Egils fær plús fyrir þetta viðtal.
Lúkkalæks

25.1.02
Bötterköpp
Stórhljómsveitin Bötterköpp er komin með nýja söngkonu. Til að tryggja lúkkið á bandinu völdu þau hnátu úr ungfrú island.is, og ku hún hafa sungið í uppfærslu vélritunarskóla íslands á "Veik mí öpp bífor jú gó gó". Það vill svo skemmtilega til að nýr trommuleikar hljómsveitarinnar hringi í hana og bauð henni í bandið, en þess má geta að síðasti trommuleikari hljómsveitarinnar stakk undan söngvara bandsins með því að tæla þáverandi söngkonu þess. Ætli það verði gert aftur?
24.1.02
KISS Tyrkinn er búinn að vera að hlusta á ofur-rokksveitina KISS undanfarið á MP3. Þetta voru svo sannarlegar rokk-guðir og er þetta gríðar góð skemmtun. Þar sem tyrkinn er ungur að aldri missti hann svo til alveg af Kiss-byltingunni þegar þetta voru hörðustu rokkararnir og miklir foreldraskelfar. Í dag er margt af þessu eins og saklaust disko, sbr. lagið "I was made for loving you" sem er með glaðlegri disko-bassalínu. Það hvítnar í dag við hliðina á þungarokki nútímans og öllum þeim fauta-textum sem nú þykja hvað flottastir. Mörg gullkorn í textunum þeirra líka... :
"God of thunder, and rock'n'roll" "I wanna rock'n'roll all night, and party every night" "The amplifiers start to humm, the carnical has just begun" "The make-up running down my face, we're wiped out from the human race"
"2000 nú er 2000 ég kemst ekki í sund, verð að fara á fund..." [HAM] Lubbi nokkur tíkarson sendi tyrkjanum póst þess efnis að hann væri lesandi númer 2000 í gær. Einnig notaði hann tækifærið og kallaði tyrkjan ýmsum illum nöfnum. Þar sem tyrkinn hefur verið varaður við þessum vafasama manni kom honum ekkert á óvart. Lubbi sendi þó ekki sönnun þess að hann hefði verið númer 2000 og því er tyrkinn í vafa um að Lubbi sé algjörlega hreinskilinn, sérstaklega í ljósi þess hversu slæmt mannorð hann hefur. T-tengið er því enn í vörslu tyrkjans um stundarsakir.
23.1.02
Sniðug fréttasíða Ananova er sniðug fréttasíða. Hægt er að velja sér málaflokka (haugur af þeim) til að fylgjast með, og ef eitthvað vekur sérstaklega áhuga þá er hægt að láta síðuna senda allar fréttir tengdar málefninu.
Airnet 2000 Skjárinn er kominn í lag hjá tyrkjanum, eða næstum því. Zie Jude í næsta húsi er með örbylgjuloftnet í beinni sjónlínu milli tyrkjaloftnesins og vatnsenda og eitthvað box sem fylgir þessu örbylgjuloftneti hans er ekki nógu vel einangrað. Þetta orsakar það að allar rásir á milli 46 og 66 á sjónvarpi tyrkjans eru með truflunum sem lýsa sér í lóðréttum línum. Þess má geta að Skjár 1 er á rás 55 og ekki nógu góðan sendi til að yfirbuga truflunina. Einhverra hluta vegna er Ómega með mun stærri sendi og er því án truflana, eða svo til. Eitt kvöldið mun tyrkinn grýta teppi yfir loftnet nágrannans.
___
Nú fer hver að vera síðastur í það að verða lesandi númer 2.000 á þessari síðu. Sá heppni hlýtur coax t-tengi fyrir tölvunet sem tyrkinn keypti óvart þegar hann ætlaði að kaupa loftnets t-tengi. Vinninga skal vitjað með tölvupósti á tyrkjann, skaufi@hotmail.com .
___
Og þá er ekki fleira í þættinum að sinni, veriði sæl (Sigurður H. Richter, 1966-2002)
22.1.02
UHF Tyrkinn fékk loks menn til að setja upp UHF loftnet á slot sitt. Skjár 1 hefur ekki verið til staðar í sjónvarpstæki tyrkjans í yfir ár, nema svarthvítt með mikilli snjókomu á góðum dögum. Tyrkinn tók tilboði upp á 11.500 kr. fyrir loftnet og uppsetningu og var nokkuð sáttur þar sem 3 íbúðir eru um reikninginn. Ekki var það svo gott. Eins og alltaf þegar maður kaupir þjónustu iðnaðarmanna lendir maður í einhverju veseni. Hver hefur farið með bílinn sinn í viðgerð, beðið um sirka upphæð og borgað sömu upphæð eða minna. Enginn hefur lent í því, enginn. Nú, það kom á daginn að allar loftnetssnúrur í veggjum slotsins voru að rotna hægt og bítandi. Því var brugðið á það ráð að þræða nýjar um alla íbúð sem tók bæði tíma og hráefni sem ekki er ókeypis. Þetta tók því 3 tíma en ekki 1 og hálfan og mun kosta tyrkjan á bilinu 25-30 þús spírur. Það er greinilega ágætt að margfalda allar kostnaðaráætlanir með pí eins og vanir menn vita. Nú er tyrkinn vanur og á ekki efni á svona munaði að hafa skýra mynd og virkandi símalínur. Usss....
Mörrarnir hefna sín Lögreglan les greinilega vef tyrkjans eins og stjórn Símans. Tyrkinn fékk strax 2.500 kr. sekt fyrir það eitt að geyma Albatrossinn í ólöglegu stæði....
Enn um mörrana ...Þeir eru ekki barnanna bestir, sjá myndir
21.1.02
Talandi um bíó ...þá heyrði tyrkinn eitt sinn hvernig bíóhús eru í Indónesíu (..eða var það malasíu...). Þennig er mál með vexti að ektafrú poppstörnunnar var eitt sinn einhver hópstjóri í sumarbúðum barna þar og skellti hún sér í cine. Þá var engir ákveðnir sýningatímar á myndunum, heldur voru dyrnar opnar og fólk kom og fór eftir hentilsemi. Þannig kom fólk inn í miðja mynd og þegar myndin var búin var horft á byrjunina. Þegar fólk var komið á þann stað sem það kom inn á, stóð það upp og fór út. Sérkennilegt, og ekki eins gott fyrirkomulag á öllum myndum. Til dæmis ekki gott á "the crying game", "usual suspects" eða nokkra aðra mynd sem hefur eitthvað plott eða óvæntan endi. Skrítið...
Hringvöðvasaga
Tyrkinn skellti sér loksins á "ðí lorts of ðí ríng" á föstudaginn ásamt frú. Í þetta skipti var farið snemma að kaupa miða því áður hafði mistekist tilraun til að sjá hana, svo vinsæl er þessi ræma. Nú, fyrir nokkrum árum byrjaði tyrkinn að lesa bókina, en komst aðeins á síðu ca. 50 af 1200 og þekkti því ekki söguþráðinn. Tyrkinn gerði líka tilraun til að hlusta á söguna á mp3, en náði aðeins 1 klst af 13 áður en hann skellti sér í bíóhúsið. Af sjálfsögðu las hann þó Hobbit á sínum tíma og vissi nokkurn veginn hverju við mátti búast. Til að gera langa sögu stutta varð tyrkinn ekki fyrir vonbrigðum með myndina. Hún er gríðarlega flott að öllu leiti, og sérstaklega hvernig þeir náðu að láta einn leikara vera pínulítinn og annan risastóran og láta þá leika eðlilega saman og yfirleitt marga misstóra í hóp. Öll gerfi voru líka flott og voru fautarnir sérlega ógeðfelldir og sætir. Sagan er náttúrulega hið besta ævintýri og fyrir alla, þótt það er ekki fyrir ung börn að fara á þetta vegna þess hversu grófir sumir karakterarnir eru og hefur tyrkinn heyrt nokkrar sögur um martraðir í einhverjar vikur eftir að hafa séð myndina. Ef tyrkinn man rétt er búið að framleiða allar myndirnar og aðeins beðið með hinar til að mjólka þessa fyrstu í nokkurn tíma eins og tíðkast í bransanum. Það sem er þó öðruvísi með þessa mynd miðað við aðrar er sú staðreynd að þetta er ein saga, en ekki framhöld af hverri annarri. Afleiðingin af þessu er sú að myndin endar allt í einu án þess að "mission" aðalhetjanna er ekki nærri búið. Þessu bjóst tyrkinn ekki við, enda ekki lesið söguna. Því var hálf furðulegt að ganga út af sýningunni, engu nær um afdrif hetjanna. Ef tyrkinn fengi að ráða væri best að taka heilan dag í þetta ævintýri. Þá væri hægt að taka t.d. sunnudag í þetta, byrja snemma og taka pásur á milli mynda, ekki hætta í miðri setningu eins og tíðkast í bíóum hér á landi (og líklega hvergi annars staðar í heiminum...). Eftir 2 myndir væri síðan hægt að fá sér snarl á pizzahut eða eitthvað og klára síðan síðustu myndina á meðan hinar tvær veru enn í fersku myndir. E.t.v. dettur einhverjum þetta í hug og selur þetta allt í einum pakka þegar hinar myndirnar eru komnar í sýningu. Sagan segir líka að þessi fyrsta mynd sé löngu búin að greiða upp allan kostnað við allar þrjár myndirnar, þannig að þetta er sannkölluð peningavél, og er það vel. Til að summera þetta upp þá var þetta fín ræma, skemmtileg, flott og eiginlega var eini ókosturinn við hana að þetta var ekki nema 1/3 af mynd þótt hún væri um 3 tímar á lengd.
LOTR * * * * (af 5 mögulegum)
Tjékk át Tyrkinn var að rekast á www.yo.is sem er íslenskur vefur með vídeóum. Alls kyns vídeó, frá Ren&Stimpy niðrí/uppí Enska boltann.
Helgarskýrsla Tyrkjans Tyrkinn var ósköp rólegur þessa helgi, enda búinn að vera duglegur undanfarnar vikur. Föstudagurinn fór í sjónvarpsgláp og bíóferð og lítið meira en það. Á laugardaginn fór tyrkinn út að borða með Svenn hjónunum og síðan í sjónvarpsgláp. Ekki merkilegt það...
18.1.02
Mörraskrattarnir
Nú liggja mörgæsirnar á Sæbrautinni og hraðamæla saklausa bílstjóra. Gaui nokkur stakk upp á því að útbúa skilti sem stæði á "Varúð, lögreglan er að mæla" og vera alltaf nokkuð fyrir framan mörrana til að vara fólk sem væri að keyra í áttina að þeim. Gaman væri að fá lögfræðiálit á því hvort það sé löglegt og hvort hægt væri að gera eitthvað annað sem væri löglegt í staðinn. T.d. væri fínt ef einhver útvarpsstöðin væri búin að koma því upp að fólk hringdi alltaf inn og léti vita hvar mörrarnir væru þann daginn og myndi tilkynna það jafnóðum. Radio-X væri tilvalið í að byrja á þessu, með tilliti til fyrri afreka Tvíhöfða á sviði laga og reglna. E.t.v. væri hægt að nota skilti á sem stæði "Varúð - Mörgæsir" sem væri hægt að verja með því að maður væri ekki að tala um lögregluna. Pæling...
17.1.02
Myndarlegi tyrkinn
Tyrkinn ætlaði nú aldeilis að gera gott mót í gærkvöldi, og elda fyrir frúnna. Elda átti kjúkling að hætti "Chicken tonight" eins og auglýsingarnar góðu sýna. Til að byrja með klikkaði tyrkinn á því að kaupa nan-brauð, en til var eitthvað annað brauð þannig að það breytti ekki öllu máli. Fyrir þá sem ekki þekkja vörurnar frá Kjúkling-í-kvöld kemur þetta yfirleitt í tveimur krukkum. Tyrkinn hóf ósköpin á því að setja innihald minni krukkunnar á pönnu við háan hita eins og sagði í leiðbeiningum. Þetta var svokallaður "Sizzle n' stir" réttur og því átti innihald minni krukkunnar að "sizzla" á pönnunni áður en kjúklingurinn átti að fara á. Tyrkinn gerði það, en um leið og það fór að "sizzla" brann kryddlögurinn til fjandans á nokkrum sekúndum, og vildi ekki betur til en svo að plast spaðinn sem tyrkinn notaði við eldamennskuna gleymdist líka á pönnunni og hafði bráðnað með viðbrenda leginum. Nú voru góð ráð dýr. Ekkert annað var í stöðunni en að krydda bara kjúllann með einhverju úr kryddskápnum og hita nýja pönnu, að þessu sinni á aðeins lægri hita. Þá komst upp á tyrkinn hafði gleymt að hita ofninn fyrir brauðið, svo ljóst var að aðgerðin myndi seinnka um nokkurn tíma. Þá komst einnig upp að tyrkinn hafði gleymt hrísgrjónunum og til að flýta fyrir því setti tyrkinn hraðsuðuketilinn á fullt og hitaði um leið pott á einni hellunni. Þá hófst kjúlla steikingin sem gekk nokkurn vegin áfallalaust. Eftir nokkra stund var vatnið í katlinum við suðu og hellti þá tyrkinn vatninu í brennandi heitan pottinn sem orsakaði ofsasuðu. Ofsasuða lýsir sér þannig að vatnið er að rembast við að gufa upp á methraða með tilheyrandi látum og vatnsdreyfingin er allnokkur. Að lokum tókst að hemja gufuna í sjóðandi vatn og þá fóru grjónin út í. Þegar brauðið var tilbúið og stærri sósukrukkan farin á kjúllann var þetta borið á borð. Eftir þessi ósköp var útkoman framar vonum og alls ekki svo slæm. En það er sennilega langt í að tyrkjanum verði hleypt aftur í eldhúsið... Það má svo sannarlega segja að mér hafi liðið eins og kjúkling í gær; "I feel like Chicken tonight...."
16.1.02
Á þessu Monsoon tímabili aldrei að ljúka?!...
15.1.02
Góður puntur...
Af www.theonion.com: Bush Sr. Apologizes To Son For Funding Bin Laden In '80s MIDLAND, TX? Former president George Bush issued an apology to his son Monday for advocating the CIA's mid-'80s funding of Osama bin Laden, who at the time was resisting the Soviet invasion of Afghanistan. "I'm sorry, son," Bush told President George W. Bush. "We thought it was a good idea at the time because he was part of a group fighting communism in Central Asia. We called them 'freedom fighters' back then. I know it sounds weird. You sort of had to be there." Bush is still deliberating over whether to tell his son about the whole supporting-Saddam Hussein-against-Iran thing.
Einnig góð grein um það hvernig maður á að útskýra WTC árásina fyrir krökkum
14.1.02
Auli vikunnar
Auli vikunnar í þetta fyrsta skipti á síðu tyrkjans er Bush yngri bandaríkjaforseti. Í þetta skipti fær hann þennan vafasama titil fyrir að reyna að gleypa saltkringlu (pretzel) án þess að tyggja, og falla þess vegna í yfirlið og detta af sófa í hvíta húsinu. Að launum fékk hann skrámu á kinn og mar á vör. Auk þess lét hann það fréttast út. Ef þetta er eitthvað yfirskyn yfir kókaínneyslu eða þessháttar fær hann hvort eð er þennan sama titil fyrir að koma með þessa hálfvitalegu afsökun. Ritstjórn Tyrkjans spáir því að þetta sé ekki í síðasta skipti sem Bush yngri mun fá þennan titil.
..tyrkinn er ánægður með framtak baggalútanna (www.baggalutur.com), duglegir að uppfæra, góðir þrífarar og fyndnar "fréttir".
Röss áer tú
Tyrkinn tók þessa ræmu í gær. Af sjálfsögðu með litlar væntingar, en myndir með svona koverum, og tala ekki um númerið, eru sjaldan schnilld. Nú, móðir tyrkjans fór einhverra hluta vegna á þessa ræmu í sumar og sagði hana gaman, en hún er ekki þekkt fyrir að vera fyrir amerískar vellumyndir. Því tók tyrkinn hana í gær og glápti. Svo varð úr að þessi ræma er bara ha-ha fyndin og fín til síns brúks, og er alveg óhætt að mæla með henni, tala ekki um á þunnudögum. Jackie Chan er alltaf fyndin (meira að segja bara þegar hann stendur og horfir furðulostinn á félaga sinn) og Tucker er líka fyndinn þegar maður er ekki ný búinn að sjá aðra mynd með honum, hann er orku-suga nefnilega. Fullt af spörkum, auka-hluta-slagsmálum og ha-ha bröndurum, svo ekki sé minnst á stunt-atriði Chan, hann er góður drengur.
Rush hour 2: * * * (af 5 mögulegum)
Helgarskýrsla Tyrkjans Á föstudaginn bauð Tyrkinn ásamt frú í kvöldverð, og voru heppnu gestirnir voru að þessu sinni móðir tyrkjans og foreldrar frúnnar. Frúin bauð upp á ljúffengan kjúklingarétt og var almenn ánægja með tilþrif hennar í eldhúsinu. Það sem kom á óvart var úthald "gamla" fólksins en setið var að drykkju til klukkan eitt um nóttina og þykir það vel.
Á laugardaginn varð það úr að bjóða einnig fólki heim, en að þessu sinni ekki í mat, heldur til almennrar drykkju og dólgsláta. Munnræpa var mikil á liði og fór megin hluti kvöldisins hjá tyrkjanum að ræða mál ríkisútvarpsins við Gyðnið, Hugann og frú Huga, og var fólki mikið niðri fyrir. Þar sem tyrkinn er frjálshyggjumaður var hann auðvitað á öndverðu meiði við viðmælendur og tókst honum að æsa fólk nokkuð upp með hugmyndum um að leggja rás 2 niður með öllu, svo og ríkissjónvarpið (eða stytta dagskrá eða afnema skylduáskrift). Allar hugmyndir tyrkjans féllu í grýttan jarðveg hjá viðmælendum og á tímabili virtist sem svo að tyrkinn væri í lífshættu þegar þrír reiðir unnendur klassískrar tónlistar görguðu ofan í hvern annan. Sem betur fer komst tyrkinn undan með nokkrar skrámur og mar.
11.1.02
Viðvörun!
Stjórnarmaður í Evrópska Seðlabankanum hefur varað fólk við því að borða meira en 400 seðla af nýju evrunum sem verið var að gefa út um áramótin. Komið hefur í ljós að blekið sem var notað til að prenta seðlana er eitrað, en einnig var mælt út að það væri ekki hættulegt nema því væri neytt í meira en 400 seðla magni. Tyrkinn varar því lesendur síðunnar við því að borða þá, og mælir frekar með að þeir verði sendir til heimilis tyrkjans í öruggt skjól. (frétt af Reuters)
9.1.02
Heimur versnandi fer
Tyrkinn fór í Elko í gær til þess að kaupa þvottavél. Elko auglýsti einu útsölu ársins svo haldið var þangað að skoða græjurnar. Sölumenn Elko eru sérstaklega þjálfaðir í því að vinna úr svona auglýsingum, og í hvert einasta skipti sem tyrkinn hefur verið þar eftir útgáfu stóra Elko blaðsins fær hann að kenna á Elko-trikkinu eins og tyrkinn kýs að kalla það. Elko-trikkið virkar þannig að búðin auglýsir einhverjar voðalega ódýrar vörur, eins og í þessu tilviki, þvottavél. Því næst þegar nýskupúkar eins og tyrkinn spyrja sölumann út í vöruna, er búið að stilla næst ódýrustu vörunni upp við hliðina á þeirri ódýrustu. Svo eyðir sölumaðurinn nokkrum mínútum í það að hæla næst ódýrustu vélinni og bera hina ýmsu eiginleika við þá ódýrustu svo meirihluti kúnna endar á því að kaupa þá næst ódýrustu. Tyrkinn lét til leiðast. Þegar haldið var á kassann hrundi tölvukerfi RB og 20 metra löng biðröð myndaðist. Þar sem tyrkinn er ákaflega þolinmóður og rólegur maður stóð hann það af sér, þótt margir færu að ókyrrast. Þá kom ungur drengur sem tróð sér fram úr allri röðinni, haldandi á einhverjum kassa sem tyrkinn sá ekki betur en að væri einhvers konar tölvuhlutur, t.d. geisladrif. Hann mjakaði sér nær útganginum og spurði kassadömuna hvar hann ætti að skila hlutnum. Hún spurði hann þá hvort hann væri búinn að borga fyrir hann, en hann spurði hana bara aftur hvar hann ætti að skila honum. Hún bennti á upplýsingar og hann rölti áleiðis þangað, en þó í gegnum innganginn. Þar stoppaði hann í augnablik og þegar kassadaman leit af honum rauk hann eins og fætur toguðu út með ránsfenginn. Þetta var ansi gróft þar sem eflaust voru um 30 manns sem stóðu rétt við hann. Djöfull er fólk steikt að standa í þessu, og það fyrir ekki meiri pening. Heimur versnandi fer.
8.1.02
Error: Connection lost to host.... Símamál tyrkjans vekja enn óhug meðal þeirra sem til þekkja. Eftir 3 mán bið eftir línu hefur tyrkjanum ómögulega tekist að nota internetið svokallaða vegna tæknilegra örðuleika. Sambandið slitnar í gríð og erg og er tengingin asnalega hægvirk. Í gær hringdi tyrkinn enn eina ferðina í þjónustuborð kölska, en í þetta skipti fékk hann svar strax og súri náunginn hinu megin á línunni lofaði mér viðgerðamanni í dag. Og svo varð! Vegna ótta símans við meiri skandal í viðskiptum sínum við símann þótti öruggara að senda 2 menn fullvopnaða, og voru þeir óvenju hjálpsamir og vingjarnlegir. Eftir nokkuð maus kom þó í ljós að línan í húsið var í lagi, en línan upp í íbúðina líklega eitthvað ekki alveg... Því þarf líklega annan mann frá símanum sem rukkar fyrir þjónustu sína til að fixa það.
Sérsveit Símans * * * (af 5 mögulegum)
Kannski tyrkinn ætti að fara í atvinnumennsku í körtuakstri
Tyrkinn var að ráfa á mbl.is þar sem hann rakst á þessa áhugaverðu grein. Hér að neðan er kafli af þessari grein:
"Guðmundur segir að fyrstu dagar mótsins séu í raun æfingar þar sem tækifæri gefist til að venjast brautinni sem sé 1,2 metra löng, en hún er mjög hlykkjótt og besti tími sem náðst hefur í henni er 1:05 mínútur. Keppnin standi svo yfir í þrjá daga, tvær umferðir fari fram hvorn dag fyrstu tvo keppnisdagana og úrslitalotan síðan á lokadeginum. Í hverjum riðli verða 34 keppendur. "
Tyrkinn er nokkuð bjarsýnn á að ná þessari 1,2 metra braut á innan við 1:05 mín, hann var alla vega ekki síðastur í afmæliskörtukeppni Tyrkjans og Gyðnisins í september s.l....
Hringvöðvasaga, eða ðí Lorts og ðí "ríng" Tyrkinn er ekki enn búinn að sjá Lorta hringsins, og virðist sem svo að planið um að hlusta á BBC útgáfuna á MP3 sé að klikka ætli hann að sjá hana í stórum sal. Sagan segir hins vegar að myndin sé ekki bönnuð börnum sem er víst vafasamt að sögn sjónarvotta. Tyrkinn var að heyra út undan sér að 9 ára drengur hafi farið á myndina með föður sínum og hafi verið með martraðir síðan. Heimur versnandi fer....
Nýr Æ-makk
Yfir makkarinn Stefán kynnti nýja Æ-makkinn í gær við hátíðlega athöfn. Þetta er nokkuð gæjaleg vél og allt öðruvísi en eldri æ-makkar, þótt þeir hafi verið bylting í útlitshönnun einkatölva á sínum tíma. Tyrkjanum þykir það stórfurðulegt að PéSjé menn séu ekki að gera svona hluti, flestallar PéSjé vélar eru forljótar og hafa ekkert breyst að ráði síðan IBM kynnti þær á sínum tíma. Eftir að Æ-makkinn kom fyrst hélt tyrkinn að sú söluaukning hjá Appúl myndi sparka duglega í nörrana hjá stærstu PéSjé framleiðendum og þeir fara að hugsa út í þetta, en ekkert hefur gerst að ráði. Þessi nýja vél minnir tyrkjan á gamlar framtíðarsýnir, samanber vélar úr Startrek á þeim tíma sem öll áhöfnin var í náttfötum, svona pínu fjútjúr retró, eða retró fjútjúr. Hægt er að fá þessa vél líka með svokölluðu súper drifi, sem getur skrifað venjulega RW geisladiska og einnig DVD diska, en þá er hún reyndar orðin helvíti dýr held ég (1.800 USD auglýsa þeir sem yrði sennilega um 300 þús hér með allri álagningu.)
Amerískt grín...
Renaming Afghanistan
Now that our B-52's are reorganizing Afghanistan's landscape, U.S. intelligence has discovered that the Taliban have renamed some of their towns to confuse us.
These new names include: 1. Wherz-myroof 2. Mykamel-izded 3. Oshit-Disisabad 4. Waddi-El-Izgowinon 5. Pleez-Ztopdishit 6. Kizz-Yerass-Goodbi 7. Ikantstan-Disnomore 8. Wha-Tafuk-Wazi-Tinkin 9. Myturbin-Izburnin 10. Imma-Dedshmuck
7.1.02
-
Bæ Tyrkinn fór á laugardagskvöldið út að borða með hóp fólks að kveðja Hjörsdísi nokkra sem kýs að búa á Ítalíu. Varð Tapas fyrir valinu og var setið þar fram eftir að mat og drykkju. Maturinn þar var bara ágætur þetta kvöld þótt oft hafi maður heyrt misjafnar sögur af Tapas. Eftir mat var haldið á óðal tyrkjans og þar var drykkju haldið áfram. Síðan var haldið á rölt og einhverra hluta vegna enduðu Achbar fjölskyldan og poppstjörnufjölskildan á kaffi Lizt þangað til þeim var hennt út. Poppstjarnan tjáði tyrkjanum að nýtt lag væri á leið í spilun og bíða sjálfsagt margir eftir að heyra það, tyrkinn er alla vega spenntur. Þess má geta að nýja lagið heitir "Adrenalín" Poppstjarnan var einnig næstum því búinn að vinna 28 milljónir (sem reyndar færu til góðgerðamála) í útvarpsþætti Gulla Helga á bylgjunni, en höfðu þó 400 þús upp úr krafsinu fyrir þá sem minna mega sín, góðir drengir það. Svo svaf tyrkinn til klukkan 16:15 í gær sem olli því að hann náði aðeins um 3 tíma svefni í nótt. zzzz
Tapas * * 1/2 (af 5 mögulegum)
Hermenn eða morðingjar
Fréttaflutningur um stíðið í Afganistan hér á landi er af stærstum hluta tekinn af bandarískum fréttastofum og ber hann þess greinileg merki. Til dæmis má nefna frétt á mbl.is er fjallar um hvað verði um 14 ára afganskan pilt sem skaut bandarískan hemann til bana. Nú fundar ættbálkaráð um hvað eigi að gera við þennan unglingspilt. Eitt vakti athygli tyrkjans, orðalag fréttarinnar er eins og í mörgum fréttum um þessar mundir. Pilturinn er náttúrulega morðingi á meðan hermaðurinn er bara í vinnunni og alsaklaus og náttúrulega alveg fáránlegt að hann falli fyrir kúlum innfæddra. Bandaríkjamenn eru nefnilega alltaf bara í vinnunni að sinna heimslögguvinnu sinni sem áður, en allir innfæddir eru náttúrulega bara morðingjar, hryðjuverkamenn og verkfæri djöfulsins því einhvers staðar í landinu leynist maður sem talið er að hafa skipulagt árásina á bandaríkin.
4.1.02
Eftir glæsilegan sigur í Beib-test 2001 eða íslandsmótinu í ljúfuþekkingu (sjá lufsutestið á vinstri spássíunni), hefur tyrkinn misst forustuna á nýju ári (eða Beib-test 2002) þegar Fritz Gerber náði 100% miðað við aumar 93,3% Tyrkjans. I'll be back....
Bónus býður ekki görn
Til að framfylgja sparnaðaráformum Achbar heimilisins hélt tyrkinn ásamt frau Achbar í Bónusverslunina við Holtagarða í gær. Þar átti að versla fyrir viku eða svo þar sem matarbúrið var orðið tómt. Tyrkinn fór þangað þrátt fyrir að vita hversu leiðinlegt væri að versla í þessum verslunum því þar á að vera ódýrt og verslunin það stór að allt ætti að fást. Annað kom á daginn. Það má vel vera að Bónus séu ódýrar verslanir, en þarna fæst ekkert nema maður reki munaðarleysingjahæli. Eina sem ákveðið var að kaupa voru kjúklingabringur, Indverskt "Chicken Tonight" kit og brauð. Þarna fékkst reyndar brauð, en bara 2-3 tegundir og allar í iðnaðarstærðum sem henta ekki litlum búskap. Kjúklingabringur voru ekki til og ekki kittið góða heldur. Sama hvaða hugmyndir komu upp, ekki neitt var til í minni einingum en fyrir 10-12 manna fjölskyldur eða stofnanir. Til að kaupa t.d. egg í Bónus, þarf maður að kaupa um tylft eða svo sem tyrkinn getur ekki hugsað sér að innbyrða innan fyrningartíma. Þegar tyrkinn var orðinn öskuvondur og pirraður var haldið að kassanum með brauð í iðnaðarstærð, ost, jógúrt og hreinlætisvörur sem voru ekki þeirra tegunda sem Achbar heimilið kýs að nota, og voru greiddar um 7000 kr. fyrir herlegheitin. Annað hvort verður farið fljótlega í almennilega verslun, eða tyrkinn borðar samlokur með osti út vikuna. Fuss, og grrr, Tyrkinn fer aldrei aftur þangað nema sem forstöðumaður einhverrar stofnunar sem hýsir kröfulitla einstaklinga.
Bónus: hauskúpa
3.1.02
Ocean´s Eleven
Þessa mynd prýða fjölmargar stjörnur og stendur m.a. á kynningarplaggatinu "In alphabetical order" til að móðga enga stjörnuna. Júlía Róberts er þar, Brad Pitt, Djors Klúní, Matt Deimon, Andí Garsía og fleiri góðir. Þetta er ekki frumleg mynd, en gríðargóð Bankaræningjamynd og það er alltaf gaman af góðum bankaræningjamyndum ef plottið er gott. Í þessari mynd er plottið nokkuð gott og stendur fyllilega fyrir sínu. Eins og með allar góðar bankaræningjamyndir (reyndar ekki að ræna banka í þessari) er ránið óframkvæmanlegt, en hópur snillinga telur að ekkert sé ómögulegt og hoppa í djúpu laugina. Líkt og í öllum slíkum myndum er hópurinn alltaf samsettur af gríðarlega ólíkum karakterum frá ólíkum þjóðum með ólíka hæfileika og persónuleika. Til dæmis er alltaf einn voða stressaður á meðan flestir aðrir eru sallarólegir við verk sín. Þetta er ein sú besta þynnkumynd sem tyrkinn sá á síðast ári og er óhætt að mæla með henni, tala ekki um ef maður hefur hesthúsað meira en 7 áfengistegundum kvöldið áður
Ósjans íleven * * * * (af 5 mögulegum)
Elling Tyrkinn hefur verið nokkuð lamaður undanfarið og því ekki séð sér fært að skrifa nokkrar línur fyrr en nú. Er ekki ágætt að fjalla um nokkrar myndir til að koma sér í gang? Tyrkinn fór um daginn á norsku myndina Elling en það er búið að standa til síðan hún kom í bíó. Myndin fjallar nokkuð sérstakan mann sem alinn er upp af móður sinni og þekkir ekki aðra menn, þrátt fyrir að vera kominn á miðjan aldur. Hann er sendur á "vitleysingahæli" eins og hann kallar það og þaðan hefst myndin. Þetta er mjög fyndin og skemmtileg mynd þótt plottið sé ekki flókið sem slíkt. Karakterarnir eru stórkostlegir og er myndin mjög skemmtileg í alla staði. Gaman að sjá norska mynd sem einnig er skemmtileg, en norðmenn eru annars ekki þekktir fyrir neitt annað en leiðindi og dólgshátt eins og allir vita. Reyndar man tyrkinn ekki eftir að hafa séð norska mynd áður, og má það eflaust skýra með því að allar aðrar eru leiðinlegar, því litlar líkur eru á að tyrkinn hafi náð að forðast skandinavískar myndir sjónvarpsins í gegnum tíðina. Tyrkinn mælir hiklaust með þessari, öðruvísi og skemmtileg.
Elling * * * * (af 5 mögulegum)
|
|
|
|
|