Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

28.2.02

:: tyrkinn 11:45 [+] ::


Góða ferð þú svarti keisari
Eins og vonandi margir vita er hljómsveitin Godspeed you black emperor á leiðinni til landsins og mun leika á tónleikum 13. og 14. mars í Íslensku óperunni. Tyrkinn varð svekktur þegar hann heyrði að uppselt væri á tónleikana, þangað til hann heyrði að þeim seinni hefði verið bætt við. Þá tryggði hann sér miða og hlakkar mikið til að berja bandið augum. Sagan segir að "Stafrænn Hákon" muni leika á undan og því fór tyrkinn á stúfana að kanna það fyrirbæri. Á www.jon.is má finna lög Hákons þessa á mp3 formi. Þessi lög hljóma vel við fyrstu hlustun og er tyrkinn ekki undrandi á að Hákon skuli vera valinn til að leika á undan GYBE. Meira má lesa um Godspeed á www.hljómalind.is og fyrir þá sem ekki þekkja bandið má niðurhlaða tónleika upptökum af þessari síðu; "Godspeed You Black Emperor Concert Chronology". Ekki missa af þessu!



:: tyrkinn 10:08 [+] ::


Prump á BYKO
Tyrkinn á rotinn sturtuklefa. Plastið í hurðunum er sprungið og einhver snillingur ákvað að það væri þjóðráð að setja spónarplötur í veggina og mála þá bara svo þeir færu ekki í spað. Þeir fóru í spað. Þeir eru allir uppbólgnir og eflaust nokkrir lítrar af vatni inni í spónarplötunum góðu, þetta lítur ekki par vel út. Þá var haldið í gær í leiðangur til að kaupa annan klefa. Fyrst var farið í Húsasmiðjuna þar sem voru til 2 klefar og engin mál á þeim og aðeins verð á öðrum, einar 63 þús. krónur. Þá var haldið í verslun BYKO alla leið inn í Kóparvog, sem er á hjara veraldar fyrir þá sem ekki kannast við þann bæ. Þar er auglýstur opnunartími til 19:00 og fannst tyrkjanum það vera vel, þar sem hann vinnur yfirleitt til klukkan 18:00. Þegar þangað var komið var haldið á neðri hæðina þar sem sturtuklefar eiga að fást undir merkjum "Hólf og gólf". Í stiganum niður hafði myndast örtröð þar sem fólk var að glíma við læstar dyr, og aðrir að andvarpa í örvæntingu "það er lokað...". Tyrkinn hélt þá á upplýsingaborð og krafðist svara. "Það er bara opið til klukkan 18:00 niðri" sagði þá maður í bláum smekkbuxum. BYKO hafði dregið tyrkjann á asnaeyrunum alla leið í Kópavog. Það er aðeins hægt að draga tyrkjann einu sinni á asnaeyrunum.

BYKO prump (af 5 stjörnum mögulegum)


26.2.02

:: tyrkinn 15:45 [+] ::


...innlegg í umræðuna um tungumál í textum
Tyrkinn var að lesa síðu Hr. Muzak og eldræðu hans um íslenska tungumálafasista og verður að taka það nokkuð til sín þar sem rekja má komment til ritara Tyrkjans, Ballar Rotingarnar (skaufi@hotmail.com). Ef til vill hefur þó Hr. Muzak misskilið tyrkjann og starfsmenn hans eitthvað hvað varðar skoðanir á þessum málum.

Fyrir örfáum árum síðan þótti ekki flott að yrkja texta á íslensku við popp/rokklög og var enska allsráðandi í þeim bransa hjá flestum hljómsveitum hér á landi. Sérstaklega má nefna rapp/hiphop tónlist í þessu sambandi. Ef til vill má rekja það til þess að flestar fyrirmyndir að utan sungu á enskunni og þótti eðlilegast að gera slíkt hið sama. Einnig má rekja hluta af þessu til stórhugar varðandi útflutning á ýmis konar tónlist. Vandamálið við þessa tísku (eða tízku jabbnvel...) var það að þar sem enska var (og er) ekki móðurmál tónlistarmanna hér á landi áttu textarnir það til að verða klaufalegir og oftar en ekki klisjulegir auk þess sem framburðurinn varð oft pínlegur. Í dag hefur nokkur breyting orðið þarna á. Æ fleiri semja nú texta á íslensku sem undirrituðum þykir oftar en ekki koma betur út.

Þó hefur tyrkinn ekkert á móti tónlistarmönnum sem kjósa ensku yfir íslensku, og vill ekki kannast við það að vera tungumálafasisti af neinni sort. Og ekki var þetta koment tyrkjans ætlað til að gagnrýna texta hr. Muzak sem virðast vera prýðilega ortir á enska tungu. Tyrkjanum finnst bara betra að lesa íslenska texta en enska því þeir skila sér betur til hans og hann skilur þá betur en þá ensku, þrátt fyrir góða enskukunnáttu hans.



:: tyrkinn 12:29 [+] ::


Tryggingasalar dauðans
Tyrkinn var að lesa síðuna hjá Rocco-manninum og las að hann hefði lent í tryggingasokki í gær. Tyrkinn lenti í því sama, einhver drengur hjá Ísvá hringdi með þessar 3 spurningar. Tyrkinn leysti þó málið á mannúðlegri hátt, svaraði öllum þremur spurningum með snöggu já-i, sem gerði áframhaldandi sölumennsku ómögulega, geri aðrir betur...


25.2.02

:: tyrkinn 16:33 [+] ::


Fréttaskot
...frá Reuters

* Verið er að vinna að útgáfu tölvuleiks er ber nafn Britney Spears fyrir Playstation 2 tölvur. Þar verður spilandinn í gervi Brittu í leðurátfitti að dansa við hennar lög...

* Ali G mun skrifa um áhugamál sín (Kynlíf og eiturlyf) í næsta hefti af karlablaðinu Esquire sem gefið er út í Bretlandi. Hann mun einnig skarta forsíðu ritsins. Kappinn kom sér nýlega í vandræði er hann blótaði í þátt á BBC radio 1, sem ku þykja íhaldssöm.

* McDonald's hefur opnað "Drive-through" lúgu fyrir vélsleða í Svíþjóð í bænum Pitea þar sem um 6.000 snjósleðar eru skráðir

* Maður nokkur í Flórída var stunginn af öðrum manni er hélt á "nefi" af sverðfiski í síðustu viku. Að sögn lögreglu voru mennirnir drukknir. Þess má geta að fórnarlambið sem hafði lamið árásarmannin í hausinn með bjórflösku, lifði stunguna af.

Fleira var það ekki í þættinum að sinni, verið þið sæl [Sigurður Richter, Nýjasta Tækni og vísindi]



:: tyrkinn 14:16 [+] ::


Vonandi verður þetta til breytinga! (sjá frétt á mbl.is)



:: tyrkinn 11:27 [+] ::


Sjómanna afsláttur
Nú hafa Pétur Blöndal og Katrín Fjeldsted unnið að frumvarpi um niðurfellingu sjómanna afsláttar í áföngum. Tyrkinn fagnar þessu. Af hverju ættu sjómenn ekki að greiða eðlilegan skatt eins og aðrir? Tyrkinn hefur oft velt þessu fyrir sér og sér ekki af hverju þetta ætti að vera svona. Einhvern tíman rökræddi hann þetta við ungan sjómann fyrir norðan sem var um tvítugt og átti landkrúser og íbúð og sá ekkert athugavert við það að hann fengi afslátt af sköttum þar sem sjómenn væru að vinna svo gríðarlega góða vinnu í þágu landsmanna þar sem fiskurinn er náttla lífið fyrir íslendinga. Fuss. Við búum því miður ekki ennþá í lýðræðisríki, meira í áttina að "animal farm" þar sem sumir eru jafnari en aðrir eins og dreifarar eru töluvert jafnari en höfuðborgarbúar. Meira fuss



:: tyrkinn 10:41 [+] ::


A næts teil
Þessa ræmu tók tyrkinn á föstudaginn ásamt Snatch. Hana hefði verið hægt að gera betur satt að segja. Það mætti halda að leikstjóri og framleiðendur væru í einhverju rugli því lítið þarf til að gera til að þetta verði sæmileg b-mynd. Einungis þyrfti að endurskoða nokkur atriði, eða öllu heldur sleppa nokkurm atriðu, og reka þann sem valdi tónlistina í hana. Hún byrjaði afar illa vægast sagt. Þetta snýst allt saman um burtreiðar og hóp svindlara sem ferðast til að "ríða burt". Fyrsta atriðið byrjar á því að þegar sokkarnir koma til keppni er "We will rock you" með hljómsveitinni Queen leikið undir og allir áhorfendur á burtreiðunum tromma og klappa í takt við lagið eins og verstu handboltaáhorfendur. Þetta á ekki við um mynd sem á að gerast á miðöldum. Fleiri lög voru alveg út úr karakter eins og "The boys are back in town" og fleiri slík. Annars er þetta bara hetju-ástarvella og ekki vel gerð. Tyrkinn getur ekki mælt með þessari nema fyrir afmarkaðan hóp barna og unglinga.

A næts teil * (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 10:26 [+] ::


Vanilla skæ
Tyrkinn fór á "Vanilla sky" í gær með hæfilegum væntingum. Leikaraflóran í þessari mynd er nokkuð góð með þau Tom Cruise, Penélope Cruz spúsu hans og Cameron Diaz í fararbroddi, enda er hún nokkuð vel leikin og ekki leiðinlegt að hafa þær stöllur til skiptis á tjaldinu. Myndin var nokkuð margslungnari en tyrkinn bjóst við og verður hann að viðurkenna að hann var alveg týndur á tímabili og vissi ekkert hvað var að gerast fyrr en í lok myndarinnar. Tyrkinn hefur heyrt það utan á sér að skiptar skoðanir eru um þessa mynd og virðist sem fólk skiptist í tvær fylkingar, þá sem drulla á hana og þá sem lofa hana í hásterrt. Tyrkinn verður að skipa sig í síðarnefnda fylkingu því gaman hafði hann af myndinni. Þetta er svona mynd sem fólk þegir í nokkra stund eftir hana þegar hún er enn að gerjast í hausnum á fólki, og er það vel í þessu tilviki a.m.k. Nokkuð gott plott líka sem tyrkinn ætlar ekki að tíunda hér svo hann eyðileggi hana ekki fyrir neinum. Þegar myndin var hálfnuð fór tyrkinn að velta því fyrir sér hvort Sigurjón Sighvatsson væri eitthvað viðriðinn hana því björk var bæði nefnd og sýnt brot úr myndbandi hennar og Sigurrós fékk góð móment með þrjú lög sýn. Ekki sá tyrkinn þó Grjóna á credit-listunum undir lok myndarinnar. Meðal annars var lag Sigurrósar leikið undir miklu drama atriði í lokin sem gæti fengið hár til að rísa og kom það mjög vel út. Tyrkjanum þykir óhætt að mæla með þessari fyrir hugsandi fólk, getur þó ímyndað sér að gelgjur sem halda einna mest upp á myndir eins og "60 seconds" og "Josie and the pussycats" haldi ekki mikið upp á þessa.

Vanilla Skæ * * * 1/2 (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 10:06 [+] ::


Helgarskýrsla Tyrkjans
Þessi helgi var nokkuð róleg hjá Tyrkjanum og var t.d. engin drykkja af ráði þessa helgi. Á föstudaginn var glápt á vídeo fram á nótt og lítið meira en það. Á laugardaginn fór tyrkinn heim til móður sinnar og fékk ADSL tengingu hennar til að virka á nýju vélinni hennar, við góðar undirtektir systkyna tyrkjans og móður. Eftir það sótti hann Herkúles og saman fóru þeir og keyptu kjúlla á grillið. Þá var haldið til heimilis tyrkjans og kjúllinn grillaður og snæddur. Svo var horft á Antz og að lokum horfði tyrkinn á síðasta þátt Dune sem tekið var upp á meðan tyrkinn var á Flúðum. Í gærkveldi fór tyrkinn svo ásamt frú sinni að éta á nýjum tælenskum stað sem heitir eitthvað líkt og "Kuna Tai" eða eitthvað í þá áttina. Svo fóru þau á Vanilla Sky í cine. Tiltölulega róleg helgi, en tyrkinn er samt nokkuð rotinn á þessum mánudagsmorgni.


22.2.02

:: tyrkinn 14:05 [+] ::


Fann þessa síðu um Íslenska afbrotamenn á www.tilveran.is. Þar eru íslenskir afbrotamenn tilgreindir, og oft með kennitölu og afbrot þeirra talin upp. Þetta finnst tyrkjanum vera á mörkunum með að vera siðlegt, en það er aftur annað mál að dómar fyrir ofbeldisverk eru náttúrulega fáránlegir hér á landi.



:: tyrkinn 10:58 [+] ::


Athugasemdir við sjónvarpsrekstur
Undanfarið hefur verið að mótast ný tíska í sjónvarpsbransanum hér á landi. Nú þykir voða flott að þylja upp hvað muni gerast í næstu þáttum nokkru áður en þeir eru sýndir. Tyrkjanum þykir þetta ekki flott, og reyndar má segja að þetta fari mikið í taugarnar á honum. Sérstaklega kemur þetta illa út hjá Skjá 1 sem er orðinn grimmur í þessu og ættu flestir sjónvarpssjúklingar að hafa heyrt það 2-4 sinnum hvað gerist í þætti áður en þeir fá að sjá hann. Tyrkinn er með kenningu, þar sem þessir þættir eru flestir svipaðir (þ.e.a.s. flestir þættir innan seríu eru keimlíkir, eða ekki mikill eðlismunur á innihaldi þátta af sömu seríu) þarf ekki að kynda áhorfendur til að horfa á næsta þátt ef þeir vilja horfa á viðkomandi þáttaröð yfir höfuð. Því ætti þetta að virka einungis til þess að eyðileggja þá litlu spennu sem myndast um innihald þáttana sem fyrir var. Tyrkinn er farinn að skipta um stöð (yfirleitt tímabundið) þegar þetta helvíti byrjar ef hann skyldi horfa á viðkomandi þátt seinna meir. RÚV er einnig farið að segja hvað gerist í þáttunum nokkrum sekúndum áður en þeim er varpað til alþýðunnar, ekki veit tyrkinn hvaða tilgangi það þjónar að láta Evu Sólan segja manni hvað er að fara gerast. Ef maður kann ekki að lesa og skilur ekki ensku hefur maður hvort eð er lítið gaman af því að horfa á þáttinn og græðir lítið á útskýringum hennar Evu. Þetta er svipað og sú pervertíska athöfn sums fólks að lesa síðustu síðurnar í bókum áður en þær eru lesnar. Fuss á það. (Er tyrkinn bara að röfla þessa dagana...)


21.2.02

:: tyrkinn 15:41 [+] ::


Í frétt á mbl.is segir frá að innan við 1% af því blóði sem fólk gaf vegna árásanna 11. sept hafi verið notað. Ætli þetta hafi ekki verið gert til að efla samhug fólks, og auka stuðning til fautaskapar stjórnvalda þar á bæ? Fuss


20.2.02

:: tyrkinn 16:52 [+] ::


Rotturnar yfirgefa sökkvandi skip...
Það er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á. Það ættu flokksmenn samfylkingarinnar að vita því þeir virðast vera með sérþekkingu á því sviði margir hverjir. Sama liðið og fannst fáránlegt að selja símann á sínum tíma er núna búið að vera að bauna á stjórnvöld fyrir að vera ekki búið að selja hann áður en verð á hlutabréfamörkuðum fór að lækka. Eins og flestir vita veit enginn hvernig verð á svona hlutum þróast fyrr en eftir á. Gríðarlega auðvelt að fara að röfla eftir að hlutirnir hafa breyst. Núna þegar störf stjórnar landssímans eru í eldlínunni ákveða nú þeir fulltrúar samfylkingarinnar að hætta bara og gagnrýna aðra stjórnarmeðlimi. Hefði þetta lið ekki átt að byrsta sig fyrr, eða var það ekkert að pæla í því sem var í gangi. Og af hverju ekki að reyna að láta eitthvað gott af sér leiða þarna frekar en að hætta til að geta bent á aðra úr öruggri fjarlægð. Fuss



:: tyrkinn 15:35 [+] ::


Hér er nýtt myndband með Björk. Heyrði í morgun að Jón Gnarr hefði verið að lýsa því "í beinni" fyrir hlustendur Tvíhöfða. Hún kemur nebblilega nakinn fram í þessu myndbandi og rauður þráður kemur úr geirum hennar og munni og myndar um hana púpu. Áhugaverð hugmynd...


19.2.02

:: tyrkinn 14:27 [+] ::


Ríkisbruðl
Athugulir vegfarendur um Lækjargötuna hafa væntanlega tekið eftir gríðarstóru rafmagnsmastri á miðjum (eða svo til) Arnarhól sem gnæfir yfir umhverfi sitt (sjá mynd af vef Landsvirkjunar). Fyrir þá sem ekki hafa séð er þetta svona mastur á tveimur fótum sem njörvað er niður með þykkum stálstrengjum í báðar áttir og má helst sjá út á landi undir þær línur sem ekki eru grafnar í jörðu. Tyrkinn sér ekki betur en að þetta sé glænýtt apparat og kostar eflaust góðan skilding. Þegar tyrkinn fór að huga að því hvurn skrattann þetta væri að gera þarna nálgaðist hann apparatið með óttablandinni óvirðingu og komst að því að neðarlega á því væru tveir borðar sem strengdir hafa verið milli lappa kvikindisins. Á þessum borðum var auglýsing á einhverri sýningu sem Landsvirkjun er að halda, líklega á gríðarlega merkilegri sögu raflagna á Íslandi síðastliðin 60-70 ár. Þessi sýning er í einhverjum tengslum við svokallaða "Ljósahátíð" Reykjarvíkurborgar. Spurningin sem tyrkinn spyr sig er; er þetta ekki bölvað bruðl með almannafé? Það er líklega bruðl að halda þessa sýningu sem er líklega er fyrir ákaflega takmarkaðan markhóp og kostar sennilega slatta. Ekki nóg með það, heldur er örugglega ekki ódýrt að stilla þessu ferlíki upp á besta stað í borginni til að auglýsa þessa merku sýningu. Tyrkinn telur þetta vera bruðl og ekkert annað, þrátt fyrir að rafhausarnir í Landsvirkjum (með fullri virðingu, eða svo til) telji það vera algjöra nauðsyn að upplýsa sótsvartann almúgan um merkilega þróun í raflögnum hér á landi. Væri ekki nær að nota þessa aura í eitthvað annað? Ljósahátíðin sjálf verður með ýmis konar atburðum á sviði menningar, lista og fræðslu. Kenning tyrkjans um þessa hátíð er sú að þetta sé PR-stunt (ísl. Almannakynningaráhættuatriði) til að auglýsa Reykjarvíkurlistann svona fyrir kosningar. Tyrkinn hélt að menningarnóttin ætti að gegna þessu hlutverki....


18.2.02

:: tyrkinn 15:19 [+] ::


Mekka Sveitaballahljómsveitanna
...er af sjálfsögðu Selfoss. Enginn gerir það gott á Selfossi nema hafa verið í poppgrúppu, og þykir ekki smart að vera með upprunalegan hárlit, heldur verður helst að aflita 2-3 í mánuði og greiða hárið hæfilega mikið út í loftið. Um 73% af öllum húðflúrum (eða tattoo eins og það heitir á engilsaxnesku) á landinu búa á Selfossi og eru einna vinsælust ýmiskonar mynstur eins og gaddavír eða kínversk tákn sem flest þýða eitthvað eins og friður eða "massa flottur". Um 81 % af öllum ermalausum bolum eru líka búsettir þarna og eru þeir flestir nokkrum númerum minni en eigandinn. Þessar tölur verða að teljast stórar miðað við það að Selfoss er smáþorp.

Tyrkinn var á leiðinni heim frá Flúðum á fimmtudaginn og stoppaði um stund á Hróa Hetti þar í bæ til að snæða kvöldverð. Eins og búast mátti við urðu Achbar hjúin fyrir barðinu á FM-hnökkum á þessum veitingastað þótt lítill sé. Þegar þau höfðu aðeins setið í nokkrar mínútur og rifist um hvort tyrkinn þyrfti að segja hver "Maðurinn" væri. [formáli: Tyrkinn og frú Achbar fóru í "Hver er maðurinn" bílaleikinn á leiðinni og frúin var að verða ljóshærð á að geta ekki hver maðurinn var fyrst hann var ekki stjórnmálamaður, listamaður, sjónvarpsmaður o.s.frv. og tók þessi lota um 1 - 1,5 klst. Seinna kom í ljós að maðurinn var náttla Lalli Johns, en frúin var aldrei nærri þrátt fyrir margar og góðar vísbendingar]. Nú, þegar þau fengu loksins lummuna sína stigu inn nokkrir óvenju "hressir" og háværir ungir menn og létu sem þeir þekktu alla og allir þekktu þá. Eftir nokkrar mínútur steig einn pjakkur fram, líklega forsprekki síns sveitaballabands, í forstofu staðarins sem var rétt við borð tyrkjans, eða tyrkjaborðið eins og það heitir framvegis. Svo fór hann að gaspra hátt (en ekki snjallt) í síma sinn og virtist vera að tala við eigendur skemmtistaða á austfjörðum (eða vildi láta alla halda að hann væri að því). Hann talaði svo hátt að það fór ekki framhjá neinum hvað kostaði að fá þetta stórkostlega band til að spila, og í leið og hann lagði á hringi hann í annan og byrjaði á ný. Vandaði sig líka mikið að nota mikið af bransaorðum; "Þið þurfið bara að redda flugi fyrir okkur, og hljóðkerfi, vera með mæka og mixer. Þetta verður bara ódýrt fyrir ykkur, 175 kall plús flug og gistingu..." Tyrkinn var alveg við það að taka símtæki Selfyssingsins og troða því í óæðri enda hans undir lokin en sem betur fer náðu þau að klára lummuna og forða sér út fyrir þriðja símtalið.

Eitt er víst, keppnis-poppstjanan mundi aldrei hegða sér svona, enda er hann ekki Selfyssingur þótt poppari sé.



:: tyrkinn 13:44 [+] ::


Hva...
Tyrkinn var að rýna í texta Herra Muzak sem finna á klan-listanum góða. Þar má finna þessa línu; "sem labba um og lemja ljóta Tyrki". Svei þér Múzak, þrátt fyrir kaldhæðni í textanum er alveg bannað að setja orðin Tyrki og Ljóta í sömu setningu. Tyrkinn er nebblilega afar fallegur.



:: tyrkinn 12:51 [+] ::


Ferðaskýrsla Tyrkjans
Eins og dyggir lesendur þessarar síðu (báðir tveir) vita fór tyrkinn í sumarbústað í nágrenni Flúða fyrir skömmu síðan og var þar tæpa viku. Þetta var ljúfur tími og var töluverð leti í tykjanum að leggja í hann aftur til borgar óttans. Þar fór mestur tími í leti, lestur og þessháttar en auk þess var frúin látin uppfylla lágmarkskröfur nútíma samfélags með því að horfa á Starwars IV - VI sem einhverra hluta vegna fór úrskeiðis í uppeldi foreldra hennar. Að sögn vitna hafði hún gaman af. Þar síðast laugardag litu nokkrir vinir og vandamenn á Achbar fjölskylduna. Þar komu Herkúles, Gyðnið, Sigga, Bjarki, Kolla, Poppstjarnan heiðraði okkur með návist sinni, frú Poppstjarna, Fritz Gerber mætti einni einsamall. Poppstjarnan mætti einnig með "son" sinn, eða rottuhundinn Tyson sem fór mikinn og veigraði sér ekki við að tæta í sig beljuskinsbeini og tuskudýri við mis mikinn fögnuð áhorfenda. Kvikindið er nú orðið mannhæðar hátt en hegðar sér enn eins og hvolpur og var aldrei kyrr. Drukkið var nokk, og var ýmsu fleygt á grillið. Þegar fólk var svo búið að hella í báðar fætur var komið nokkur galsi í mannskapinn. Þá héldu ævintýrasólgnir gestir ásamt tyrkjanum á Hestabarinn sem var nokkurn spöl frá bústaðnum. Þar var nokkuð sérkennileg stemning en fólk skemmti sér vel og stúlkurnar dönsuðu eins og gert er í Lundúnum. Svo var haldið aftur í bústaðinn þar sem hinir gestirnir höfðu komið sér vel fyrir í pottinum góða. Tyrkinn og Fritz stóðu tveir eftir þegar líða fór á nóttu og skelltu sér aftur í pottinn og ræddu um lífsins nauðsynjar við skál. Ekkert varð úr ælukeppninni þessa nóttu þótt tyrkinn hafi verið nokkuð spenntur fyrir því, enginn þorði greinilega í hann í því ástandi sem hann var í. Morguninn eftir þurfti poppstjörnufamilían að drífa sig í bæinn til að fara með kvikindið í hunda-sunnudags-skólann og flaut Fritz með (eflaust ekki verið mjög hress þó). Tyrkinn svaf meira og minna fram á sunnudaginn einn manna, en vaknaði þó til að fá sér bústaðarmorgunverð áður en hann lagði sig aftur. Fyrir þá sem ekki þekkja bústaðarmorgunverð samanstendur hann af tveimur brauðsneiðum, smurosti (í þetta sinni villisveppa smurostur) og kartöfluflögum. Restin af vikunni fór í afslöppun meira og minna, fyrir utan túristaferð á Gullfoss og Geysi, og einhverjar ferðir í búðina á Flúðum.

Flúðaferð * * * 1/2 (af 5 mögulegum)


Mummi fimmtugur
Faðir frú Achbars varð fimmtugur þann 8. síðastliðinn. Til að forðast venjulegt umstang flúði hann ásamt frú sinni til Lundúna yfir helgina. Til að bæta það upp höfðu afkomendur hans skipulagt prógram síðustu helgi. Töluverður tími fór í að útbúa ljósmynda album með hnittnum athugasemdum sem kallinn fékk að gjöf. Einnig samdi tyrkinn vísu sem átti að fara á pela, en varð úr að ein lína úr henni fór á pela ásamt upphafsstöfum kappans og restin fór í kort. Síðastliðnn laugardagur fór svo í óvissuferð með famílíu frú Achbar. Þar kom mannskapurinn askvaðandi með sætabrauð úr bakaríinu á heimili kappans og svo var haldið í fjölskyldumót í keilu þar sem nýliðinn tyrkinn vann með yfirburðum þrátt fyrir gullmedalíu afmælisbarnsins. Frú Achbar fylgdi síðan á eftir og varð önnur. Svo var haldið í bláa lónið og að lokum varð allsherjar kvöldverður í húsnæði tyrkjans. Til hamingju Mummi.


Hálft ár
Í gær var hálfs árs þolinmæði frú Achbar fagnað með pompi og prakt. Þar sem tyrkinn er svo góður náungi fór hann í bakaríið í H-deginu og um kvöldið var frúnni boðið í mat á Apótekið. Þar snæddi tyrkinn gríðargóðan saltfisk að hætti hússins og frúin prufaði túnfisk í fyrsta skipti (sem aðalrétt á veitingastað þ.e.). Var almenn ánægja með staðinn og var kvöldið gott.


8.2.02

:: tyrkinn 16:20 [+] ::


Þá er hann farinn, kemur aftur galvaskur 18. n.k.

Fyrir hönd tyrkjans,
Böllur Rotingörn, einkaritari Tyrkjans



:: tyrkinn 11:38 [+] ::


Geðheilsupróf í "boði" drykkjumannsins



:: tyrkinn 11:27 [+] ::


Á fjallabíl á flúðir þjótum
fjandinn verður seinna laus
laugardaginn bakkus blótum
brennivínið upp fyrir haus

Höldum til í heitum potti
hellum víni upp í kok
og þó að einhver dauður dotti
dregið getum á hann lok

Oftar en ekki ælukeppni
undir lokin vinsælust
húrlum vel, það mikil heppni
Halim vinnur, þetta er burst




:: tyrkinn 10:18 [+] ::


Frí
Tyrkinn er að fara í stutt frí. Planið er að fara í bústað á Flúðir og hafa það gott í viku eða svo. Á morgun ætla svo góðir gestir að sýna sig, Poppstjarnan og frú, stríðsguðinn Herkúles, Bjarkinn og Kollan, og Gyðnið og Siggan. Þá verður stuð og vel af því.


7.2.02

:: tyrkinn 12:45 [+] ::


Inntökupróf
Á vísi er grein um inntökupróf í læknisfræðina í HÍ. Tími til kominn segir tyrkinn. Mætti taka upp inntökupróf í mun fleiri greinum en læknisfræðinni. Af hverju ekki að sigta út áður en fólk byrjar í náminu? Á hverju ári er haugur af liði að dunda sér í einhverju námi sem það hefur mismikinn áhuga á og leggur sig mis mikið fram við það. Þetta er allt gert á kostnað skattborgaranna, og eyðileggur fyrir því fólki sem er einhver alvara með náminu þegar fjöldi manns er á hven kennara sem ekki ná að sinna kennsluni nægilega vel.



:: tyrkinn 10:57 [+] ::


Góður punktur
Yfir Kópavogs-strumpurinn og ofur-bassinn Gunnar Birgisson bendir réttilega á hið augljósa í grein á strik.is . Þannig er mál með vexti að einum milljarði var eitt í vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu á meðan um 4 jarðar fóru í framkvæmdir úti á landi. Það er skiljanlegt að Gunnar tekur sig til og bendir á þetta því vegakerfið í Kóparvogi virðist henta best undir hesta umferð en ekki fyrir bíla.



:: tyrkinn 10:26 [+] ::


Norður og niður
Tyrkinn var að lesa grein í Fréttablaðinu um Radío-X. Samkvæmt Þossa er búið að segja öllum upp á útvarpsstöðinni nema Tvíhöfða sem tryggðu sig í einhver ár með samningi þegar þeir fóru til Norðurljósa, og Pétur í DingDong. Í staðinn fyrir þossa var fyrrverandi dagskrárgerðarstjóri Létt 96,7 ráðinn og samkvæmt Þossa á núna að reyna ná til eldra fólks en áður. Tyrkinn telur að Norðurljós séu að skjóta sig í löppina/pissa í skóinn með þessum aðgerðum. Radíó-X er eina útvarpsstöðin fyrir ungt fólk sem ekki eru FM-hnakkar á meðan mikið úrval er af stöðvum fyrir eldri markhópa. Ætli það mundi ekki vera sterkari leikur að segja upp markaðsdeildinni á stöðinni og hrista upp í þeim málum en stöðin er það vinsæl að eitthvað ætti að vera hægt að selja með þessa sérstöðu á markaðinum. Að sögn frú Achbar var Tvíhöfði líka að hrauna á þetta lið fyrir breytingarnar í þætti sínum í gær. Það einhvern vegin gengur ekki upp að setja inn Land og syni eftir samtöl þeirra Tvíhöfða. Enda þótt einum of mikið hefur verið um Creed-lega tónlist á stöðinni undanfarið er ýmsa góða tónlist þar að heyra sem ekki heyrist nema á Rás 2 af og til, og einkum af íslenskum böndum sem eru ekki undir handleiðslu Skífunnar. Og ef dagskrárgerðarstjóri Létt er mættur á svæðið má ekki búast við merkilegum hlutum ef líkum lætur. Bette Middler lög á milli tvöhöfða sketsja? Uss..

Norðurljós * (af 5 mögulegum, fyrir Tvíhöfða)


6.2.02

:: tyrkinn 17:03 [+] ::


...og Stöð 2 eða/og Sýn eru búnar að tryggja sér HM2002 og 2006...
...ætli maður verði ekki að splæsa eins og allir hinir?

Stýn * * * (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 16:58 [+] ::


Skrítið
Simbinn tekur undir þá furðu að frú Achbar skuli ekki vera búin að sjá StarWars myndirnar (þær gömlu), og er tyrkinn ekki hissa á því. Tyrkinn vill hins vegar koma því á framfæri við Simbann að það sem er enn furðulegra er að tyrkinn og frú Achbar fæddust á sama ári, en líkleg skýring á skorti á Starwarsleysi frúnnar er sú að frúin bjó í nágrenni við sveitabýli í Kópavogi langt framanaf og þangað hafa líklega ekki borist menningarviðburðir eins og StarWars. Kópavogur, skítapleis....


5.2.02

:: tyrkinn 17:28 [+] ::


Fín möllett síða sem tyrkinn fann á tilverunni



:: tyrkinn 11:46 [+] ::


Rapids city
Tyrkinn ætlar á Flúðir næstu helgi og ætlar að vera þar heila viku í fríi. Glöggir muna eftir því að ekki er svo langt síðan tyrkinn var þar yfir helgi og á nú að endurtaka leikinn í lengri tíma. Einhverjar heimsóknir verða líklega um helgina en vikan á að fara í afslöppun mestmegnis. Er tyrkinn að hugsa um að reyna að fara skrifa eitthvað, en tónskáldið bað hann um texta á verk sem hann var beðinn um að semja fyrir eitthvað sam-norrænt verkefni. Svo er planið að taka einhverjar bækur og vídeótækið einnig. Frú Achbar hefur nefnilega ekki séð gömlu StarWars myndirnar!! Það er náttúrulega mikil skömm af því og ekki ætlar tyrkinn að láta bendla sig við einhvern trúleysingja.

Mörgæsirnar snúa í sókn
Bölvaðar mörgæsirnar leggja nú tyrkjann í einelti. Ekki veit hann hvort þetta séu hreinar kynþáttaofsóknir eða hörð viðbrögð við skrifum tyrkjans um þá helvíska. Tyrkinn lagði Albatrossinum á Stýrimannastíg á föstudaginn og hreyfði hann ekki fyrr en í morgun. Þá lá miði undir rúðuþurrkunum með skilaboðunum "Brot yðar verður kært og lögregluskýrsla gerð á málið". Þetta hrikalega brot fólst í því að fremendi albatrossins (eða goggurinn ef svo má að orði komast) snéri til suðurs en bílnum var lagt austan megin götunnar. Hann var ekki fyrir neinum eða í ólöglegu stæði heldur virðist sem svo að hann hafi sært fegurðarskyn lögreglumannana þar sem hann hefði átt að snúa til norðurs. Ekki sér tyrkinn hvenig það skiptir máli hvernig bílum er lagt þegar maður skapar ekki hættu þegar lagt er eða keyrt af stað. Lítil umferð er þarna og var Albatrossinn náttúrulega hverfinu til mikils sóma þar sem íbúar fengu að dást að honum í eina 3 daga, gjaldfrítt. Gangfarendur hafa jafnvel haldið að íbúar hafi átt Albatrossin og þannig aukið virðingu íbúa. Mörrarnir taka ekki mark á því. Ætli tyrkinn verði handtekinn og laminn af löggunni?

Lögreglan hauskúpa með eldingu í gegnum sig (af 5 stjörnum mögulegum)


4.2.02

:: tyrkinn 11:05 [+] ::


Handbolti
Tyrkinn horfði á alla leikina í EM í handbolta og skemmti sér vel, a.m.k. yfirleitt. Handbolti var nánast gleymdur hér á landi fyrir keppnina og var lítið rætt um hann fyrir en mótið hófst. Það var fljótt að breytast þegar liðinu fór að ganga vel á móti sterkum liðum. Fjórða sætið var gríðar góður árangur þrátt fyrir að leikirnir í undanúrslitunum gengu illa. Eftir mikla törn var liðið orðið ansi þreytt sem er skiljanlegt eftir erfiða törn. Tyrkinn er stoltur af liðinu og hlakkar til að sjá það spila næstu leiki. Í fréttum stöðvar 2 í gær var rætt um þessa síðustu leiki og sett í einskonar myndsyrpu. Þar fannst tyrkjanum fréttamenn stöðvarinnar vera kvikindislegir og þegar þeir tóku viðtal við Guðmund þjálfara beint eftir síðasta leikinn var tyrkjanum öllum lokið. Guðmundur var alveg búinn á því og mjög svekktur og brotnaði niður þegar fréttasokkurinn spurði hann hvort hann væri ekki svekktur. Að lokum fór hann að gráta og hallaði sér að Einari aðstoðarþjálfara. Þetta sýndi stöð 2 allt saman og gerði meira úr þessu með að sýna þetta allt aftur í "slómó" með einhverri Richard Kleiderman tónlist undir sem tyrkjanum fannst vera ódrengilegt og illa væri farið með góðan dreng.

"Strákarnir okkar" * * * * 1/2 (af 5 mögulegum)
Stöð 2 hauskúpa (af 5 mögulegum)


1.2.02

:: tyrkinn 15:07 [+] ::


Heimur versnandi fer
Tyrkinn var að fá hringingu þar sem honum var tjáð að brotist hefði verið inn í hús hans í nótt. Tvær aðrar íbúðir eru í húsinu og gekk einn íbúinn fram á ræningjana þar sem þeir voru að ferja hluti úr geymslum hússins út á götu. Lögreglan hefur handsamað þjófana og endurheimt allt þýfi er talið er. Almannatengsla fulltrúi tyrkjans vill greina frá því að þessi stórglæpur mun ekki hafa áhrif á verk tyrkjans, og harmar það að slíkir sokkar skuli ráðast á goðsögnina. Usss, hengjum þá.



:: tyrkinn 14:11 [+] ::


Hugsandi tollverðir
Skv frétt á ananova.com , komst upp um stóran smyglhring fyrir skömmu síðan. Maður nokkur var stöðvaður að handhófi í tollinum og þegar tollverðir grömsuðu í dótinu hans fundu þeir sjampóflösku, sem er ekki frásögu færandi, nema það að maðurinn er sköllóttur. Það varð til þess að þeir opnuðu hana og fundu 400 gr. af kókaíni. Maðurinn sagði seinna til fleiri manna sem tengdust smyglinu. (af hverju þurfti þetta að vera í sjampóflösku...



:: tyrkinn 13:57 [+] ::


Íslenska Rapp byltingin...
Tyrkinn var að svamla um á netinu og rakst á síðu með íslenskum Hip-hop lögum , og fór að hugsa um hvaða þróun hefur verið í þessum bransa undanfarin ár. Eins og flestir vita hefur verið mikil gróska í þessu undanfarin ár og hafa vinsældir íslensks rapps rokið upp síðan Rottweilerhundarnir sigruðu músíktilraunir á sínum tíma. Áður fyrr reyndu margir fyrir sér með enskum textum, en þegar illa talandi unglingar reyna að belgja sig með enskum textum fer það yfirleitt illa, og sem betur fóru hugrakkir rapparar af stað og þeim tókst að taka hallæris stimpilinn af íslenskumælandi röppurum. Sennilega eiga rottuhundarnir heiðurinn af því. En lengi getur vont skánað án þess að verða gott. Tyrkinn er ekki hrifinn af þessum bransa. Virðist sem svo að megin hluti íslenskra rappara séu náfölir unglingsdrengir með tilbúin viðhorf sem aðlöguð eru af kollegum þeirra í norður ameríku, og textar eru margir hverjir fyrir neðan allar hellur þótt yfirleitt séu þeir fluttir með töluverðri færni. Tyrkjanum þykja líka sviðsframkoma vera drep fyndin. Fáránlegar handahreyfingar sem svartir skoðanabræður rapparana þykja ekki töff í herbúðum tyrkjans, og hvað þá þegar fölir og renglulegir mömmudrengir taka upp á hinu sama. Textarnir virðast flestir ganga út á það að mikla söngvarann, eða öllu heldur MC-inn eins og þeir kjósa að kalla sig, og segja frá því hversu arfaslæmir þeir séu. Þegar búið er að finna öll rímorð við "ég er fokking bestur" og þessháttar setningar er yfirleitt gripið til þess að svívirða skoðanabræður sínar með því að segja frá því hversu slappir þeir eru og hversu lélegar "rímur" þeir kveða. Oftar en ekki er undirleikurinn líka arfalélegur að mati tyrkjans.

Ragir drengir rembast við
rímurnar að semja
Svívirða að svörtum sið
sviti fúll og gremja



:: tyrkinn 12:56 [+] ::


Gott veruleikasjónvarp!
Meistari Heffner er núna að leita að 12 keppendum til að taka þátt í veruleikaþættinum "Who wants to be a Playboy Playmate" , skv Ananova fréttavefnum. Stúlkurnar tólf sem keppast um það að verða leikfélagi Heffners munu búa saman í tvær vikur og fylgst verður með þeim á meðan þær fara í myndatökur, sem og daglegu lífi.



:: tyrkinn 08:48 [+] ::


Englar Alheimsins
Í gær komu einir 20 meðlimir Hells Angels (Danmerkurdeild) til landsins í góðu stuði, skv. frétt á mbl.is .Þar biðu þeirra þó tugir lögreglumanna af öllu stór Reykjavíkursvæðinu, og margir þeirra meira að segja vopnaðir skammbyssum, auk þess sem víkingasveitinn leit við. Þó náðu þeir ekki að meina nema um helming um landgöngu, en hinir fara væntanlega í góðum fílíng til Suðurnesja þar sem einhverjir öðlingar sóttu um inngöngu fyrir skemmstu, skv. heimildum mbl.is.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra