Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

27.3.02

:: tyrkinn 15:11 [+] ::


No-go
Tyrkinn heyrði í bjarka áðan og bjarkinn sagðist ekki vera búinn að lakka hurðirnar hjá sér, þannig að ekkert verður af innflutningspartíi í kvöld, en vonandi þó um páskana.

...ansi skemmtileg mynd á www.mbl.is af manni með "eineygðan" stein.....hvað sem það á nú að þýða....


26.3.02

:: tyrkinn 19:37 [+] ::


Djúpa laugin
Tyrkinn var að horfa á endursýningu á djúpu lauginni rétt áðan með öðru auganu. Þetta er svolítið fyndið fyrirkomulag á keppninni. "Keppendur" horfa út í sal þar sem vinir og vandamenn engjast úr hlátri yfir vandræðagang þeirra þar sem spyrjendur bauna spurningum eins og "hefuru einhverja fantasíu um það hvar þú vilt geraða". Gott og blessað, þetta á að ganga út á það að spyrjandinn á að velja einn af þremur "keppendum" samkvæmt röð spurninga, þ.e.a.s. hver svarar þeim best. Einhverra hluta vegna velur hann þó alltaf þann sem lítur best út, en ekki þann sem svarar minnst asnalega. Til dæmis var áðan tekið skýrt fram að keppandi númer 3 hefði svarað spurningunum best skv. spyrjanda en einhverra hluta vegna valdi hann þó númer 2, sem var töluvert myndarlegri að mati tyrkjans. Þetta virðist byggjast á því hvaða keppandi kemur vinum spyrjanda best fyrir sjónir frekar en hver svarar minnst vitlaust. Frú Achbar kom með þá tillögu að stilla bara þremur manneskjum upp fyrir vini spyrjandans út í sal og láta þá velja, það mundi óneytanlega stytta þáttinn og kannski mundi þátturinn framleiða fleirri pör, ef þau gætu afgreitt 10-12 pör í þætti.

Einnig finnst tyrkjanum nokkuð merkilegt hvað þetta lið gerir á þessum stefnumótum sem eru í kjölfar þáttanna. Ósjaldan enda "keppendurnir" með einhverjum öðrum, helst einhverjum subbulegum fautum á sveitaballi, og hinn aðilinn er skilinn eftir með sárt ennið, og báðir aðilar gera sig að fíflum fyrir framan alþjóð, en enginn virðist skammast sín. Getur þetta lið ekki beðið eina helgi með að leggjast undir/á einhvern úti í bæ?



:: tyrkinn 16:48 [+] ::


Stóra flísamálið
Tyrkinn fór áðan í ferð að sækja svokallaðar fúur (skemmtilegt orð) á milli flísanna sem hann keypti fyrir sturtuna góðu í dag. Búið var að hringja áður þannig að þetta átti ekki að vera neitt mál. Svo var náttúrulega ekki og var hann sendur til samkeppnisaðila (skítabúllan vídd í kópavogi er ekki góður staður). Þar kom í ljós að leiðbeiningar starfsmanna Víddar vita ekki neitt í sinni haus, og lauk kaupunum með því að versla aðra vöru en þeir víðu mæltu með. Tyrkinn verslar ekki þar oftar.



:: tyrkinn 16:44 [+] ::


Púki
Í dag (eða í gær) hljóp púki í þessa stórkostlegu síðu. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum kom upp önnur síða en síða tyrkjans þegar slóðin var slegin inn, og sú síða var ekki sambærileg tyrkjasíðunni, svei. Tyrkinn biðst afsökunar á þessu, en simbinn reddaði málunum, náttla. Takk simbi.


25.3.02

:: tyrkinn 15:43 [+] ::


Spurning
Veit einhver hvar er best að fá sér "dómein" fyrir lítinn pjéning? Hugmyndin væri að setja upp síðu á www.eitthvað.com og geta kannski verið með einhver skjöl þar fyrir sem allra minnsta aur? Endilega sendið línu á tyrkjann ef þið vitið um slíkt.

Virðingarfyllst, tyrkinn



:: tyrkinn 15:21 [+] ::


nohhh, bara flaggað fyrir tyrkjanum í dag!



:: tyrkinn 10:46 [+] ::


Shnilldarforrit af síðu grettis, www.grettir.net, forrit til að losa mann við pop-up glugga sem gera mann gráhærðann. Takk Grettir




:: tyrkinn 10:42 [+] ::


Helgarskýrsla Tyrkjans
Á föstudaginn var tyrkjanum boðið í lambalæri hjá móður sinni, og var það vel. Tyrkinn hafði ekki snætt svoleiðis kjet í um hálft ár vegna óþols frúarinnar á þessum þjóðarrétti íslendinga. Að venju var það ljúffengt eins og allt sem móðir tyrkjans býr til. Eldri systir (eða "Stóra" eins og hún kýs að kalla sig) tyrkjans og hennar fjölskylda var að þessu sinni í mat, en þau eru í 2 vikna heimsókn frá baunaveldi. Frúin var á uppsetningu FG á Hárinu þetta kvöld og sagði hún sýninguna vera snilldargóða og talsvert yfir væntingum viðstaddra. Sagan segir líka að sýningin hafi fengið snilldar dóma í mogganum, og líklega er kominn tími á að verslingar játi sig sigraða í þessum bransa. Eftir matinn fór tyrkinn heim og horfði á eina og hálfa "Carry on" mynd fyrir svefninn, merkilegar myndir það.

Á laugardaginn stóð meira til. Að vísu var innflutningspartí Bjarkans fellt niður í bili, en sem betur fer voru menn með "bakköpp" plan, eða plan C. Plan A var innflutningspartí, plan B var nauðungarpartí (ekki náðist í stefnuvott þannig að það gekk ekki upp heldur, og plan C var pókerkvöld. Að þessu sinni var spilað í húsarkynnum föður drykkjumannsins á hjara veraldar, álftanesi. Byrjað var tiltölulega snemma í þetta skipti og var galsi í fólki. Einnig var nokkuð stíft drukkið og fór að sjá all alvarlega á liðinu þegar nálgaðist miðnætti. Herkúles fór á kostum þetta kvöld og virtist vera áskrifandi að bestu spilunum í gullfoss-spilastokknum þetta kvöldið. Undir lokin stóðu Herkúles og tyrkinn einir eftir og var þá byrjunarpotturinn hækkaður í 200 nýkrónur á haus og spilað hratt þar til Herkúles hafði hreinsað allan pjéningabunkann hjá tyrkjanum. Ef tyrkinn man rétt var þetta í fyrsta skiptið sem kúles tók alla í nefið, en hann var þó með mest síðast þegar liðið neyddist til að hætta eftir 7 klukkustunda spil. Þegar spilið var búið var tyrkinn orðinn ansi hýfaður þótt meira verði ekki sagt. Haldið var niðrí bæ í leigara sem eflaust kostaði eitthvað á þriðja tug þúsunda (frá álftanesu sjáið til) og haldið á rölt. Á þessum tímapunkti stóð tyrkinn varla í lappirnar og treysti sér ekki inn á einhvern stað og rölti heim á leið. Svo leið einhver tími þar til hann gat lagt sig niður, slík var ölvunin. Frúin hló seinna að honum því að hennar sögn var allt endurtekið svona 4-5 sinnum sem sagt var eftir heimkomu...

Á sunnudaginn fór tyrkinn svo hel-þunnur í þrítugsafmæli mágs síns að heimili hlöbbanna. Þar var haugur liðs enda á mágurinn stærstu fjölskyldu á íslandi. Til hamingu hlöbbi. Kvöldið fór svo í vídeó gláp. Drykkjumaðurinn leit reyndar í heimsókn, og þegar hann fór hafði pústið losnað undan Albatrossinum, en tyrkinn lánaði kappanum gripinn á meðan hann heimsækir okkur. Drykkjumaðurinn fór þá í það að binda það upp svo hann kæmist með hann á pústverkstæði í habbnafirði. Var bíllánið kallað bjarnargreiði fyrir vikið.


22.3.02

:: tyrkinn 14:05 [+] ::


B-Dagurinn
Fimmtudagar eru B-dagar, samkvæmt dagatali Sukk-on samtakanna. Þegar samtökin voru hvað virkust var hann haldinn heilagur í hverri viku. Yfirleitt voru C-dagarnir teknir líka, þ.e.a.s. á sunnudögum þegar farið var í þynnku-bíó. Form B-dagsins er nokkuð einfalt. Meðlimir halda á Brennsluna (eða PHS9 eins og þeir kjósa að kalla hana) og drukknir nokkrir bjórar og röflað eitthvað fram eftir kvöldi, einnig var stundum gripið til þess að halda á aðra af betri börum bæjarins, sérstaklega ef PHS9 var yfirsetinn eða þar lélegt útsýni. Þessi hefð var sterk og var hún nær óslitin í a.m.k. ár eða svo. Á tímabili var reyndar haldið upp á hann 3-4 daga vikunnar, auk helga. Í seinni tíð hafa þó ferðum fækkað og reyndar var ekki farið í marga mánuði þar til í gær. Þar sem drykkjumaðurinn var mættur var ákveðið að halda hann heilagann í gær, og varð svo úr. Í þetta skiptið var PHS9 yfirsetinn og héldu þá tyrkinn, Herkúles og Drykkjumaðurinn upp eftir laugarveginn og var farið inn á svokallað Kaupfélag. Þetta var eiginlega fyrsta skiptið sem tyrkinn kom þangað (stungið nefinu inn einu sinni áður). Staðurinn lítur ágætlega út en svolítiið flottræfilsyfirbragð á liðinu þarna. Hópurinn samanstóð aðallega af sirka þrítugum flottræflum í sparidressinu sem er þeirra hversdagsdress og nokkrum smápíum sem sennilega dreymir að vera í farþegasætinu á bimma eins flottræfilsins. Var þar teygaður einn Guinnes og haldið víðara. Á endanum var sest niður á Megavót og þar drukknir 2-3 í viðbót, en Gyðnið slóst þar í hópinn. Þegar Herkúles var búinn að útskýra fyrir þeim hinum hvernig heilahvolfin vinna saman, var haldið heim upp úr miðnætti.

Kaupfélagið * * (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 10:21 [+] ::


Eldra
Tyrkinn var loks að átta sig á því hvernig átti að setja inn "Eldra" eða Archives eins og það heitir upp á enska tungu. Þá geta þeir sem hafa áhuga skoðað allar færslur á þennan vef alveg aftur til fyrsta dags, þ.e.a.s. ef einhver hefur áhuga. Tyrkinn fær hinsvegar ekki síðu Ferskeytlufjelagsins Ferskeytla til að "elda" eða "arkíva", e.t.v. vegna þess að hún er vistuð á blogspot.com , kannski ekki. Ef einhver kann á það má hann endilega senda línu á tyrkjann tyrkinn@hotmail.com.


21.3.02

:: tyrkinn 14:40 [+] ::


Drykkjumaðurinn stígur fæti á land ísa
Drykkjumaðurinn kom til byggða í gær, eftir langa dvöl í neðra (Osló, eða úslú eins og Drykkjumaðurinn ber það nú fram). Af því tilefni fór tyrkinn alla leið út á Álftanes til að hitta hann í gær. Allar kenningar um "eip-kött" og snjóþvegnar gallabuxur voru fyrst afsannaðar og getur tyrkinn staðfest að Drykkjumaðurinn er nær óskaddaður eftir þessa svaðilför sem gengið hefur yfir hann síðan í ágúst á síðasta ári. Ævintýrinu er því miður ekki lokið enn því hann er aðeins í heimsókn hér á landi í um 2 vikur. Í gær var hann staddur í nýju húsi föður síns sem hann er strax búinn að selja, en þess má geta að þetta er fínasta slot. Drykkjumaðurinn mun gista heima hjá Móður sinni á meðan dvöl hans stendur en því miður veit tyrkinn ekki hvernig hægt er að ná í hann þessa dagana. Velkomin heim Drykkjumaður.

Starfsfólk tyrkjans hafði samband við Bjarkann áðan með fyrirspurn um það hvort innflutningi yrði fagnað á laugardaginn, en fékk ekki skýr svör. Þannig er mál með vexti að Bjarkinn og Kollan fengu íbúðina síðusta sunnudag, en fyrri eigandi hafði gengið berserksgang með málningarprufur frá Hörpu einhverjum árum síðan og segja sjónarvottar að íbúðin sé ekki mönnum bjóðandi fyrr en búið sé að mála allt slotið eða svo, en að öðru leiti segir sagan að hún (íbúðin) sé fín. Til hamingju Bjarki&Kolla. Tyrkinn telur það þó æskilegt að drífa þetta málningarvesen af svo hægt sé að láta óðslega þarna á laugardaginn kemur. Helgina þar eftir skal spilaður póker af heift og getur því Drykkjumaðurinn ekki kvartað yfir þessari heimsókn, a.m.k. ekki ennþá.

Ferskeytlufjelagið Ferskeytla var stofnuð í vikunni. Verið er að koma upp heimasíðu, en væntanlegir meðlimir hafa skilað sér illa inn og fáir svarað boðspósti tyrkjans. Huginn og Fritz Gerber tóku þó vel við sér og sendu inn vísur um hæl, tykjanum og öðrum til yndisauka. Ætli þetta lið skoði einhvern tíma póstinn sinn?...


20.3.02

:: tyrkinn 10:28 [+] ::


Nú er tyrkinn klæddur og kominn á ról...
...og mættur til vinnu. Í gærkvöldi voru gerða lítilvægar breytingar á vefnum sem aðallega fólust í uppfærslur á tenglum og þessháttar. Bætt var við link á snilldarforritið "Popup killer" sem tyrkinn fann á síðu grettis, www.grettir.net (nútt lúkk, voða fínt) , og uppfærði mjúsik listann að einhverju marki.

Drykkjumaðurinn kemur í dag frá borg eymdarinnar, Osló. Hann mun heiðra okkur með nærveru sinni í heilar 2 vikur og er það vel.


19.3.02

:: tyrkinn 15:51 [+] ::


Ekkert lögbann
Samkvæmt frétt á mbl.is fengu aðstandendur ekki lögbann á kvikmynd Hrannar Sveinsdóttur um Fegurðarsamkeppnina ungfrú ísland.is. Fyrir þá sem ekki fylgjast með tók hún þátt í keppninni og var með video tökuvél allan tíman og tók upp baksviðs og gerði úr því mynd. Þá varð allt brjálað þegar átti að birta myndina og krafist lögbanns. Það varð ekki úr og nú á að sýna myndina. Forvitnilegt að sjá vitleysuna sem hlýtur að vera í kringum svona keppnir. Ætli þetta verði til þess að stelpur hætti að nota þessa frasa; "Þetta er ótrúlega gefandi, sko, maður kynnist fullt af frábærum stelpum og lærir ýkt mikið á þessu", "maður verður að vera með bein í nefinu (eins og ungfrú skandinavía sagði, notað í trailer á S1)". Tyrkinn ætlar að sjá þessa mynd.

-Viðbót-
Svo heyrði tyrkinn að búið væri að áfrýja, gæti enn orðið bið í að sjá þetta...



:: tyrkinn 14:38 [+] ::


Létt hraun
Tyrkinn var að lesa um þáttöku Hr. Muzak í söngvakeppni MH og bar þá kennsl á kauða. Ef tyrkinn man rétt þá var Muzak alltaf hress og tók þátt í öllum mögulegum söngvakeppnum MH og bar þar ætíð hatt nokkurn sem var hans framlag til "Flipp-keppni" MH-inga sem staðið hefur í allmörg ár og enginn verið lýstur sigurverari enn. Gott ef hann var ekki eitt árið með túbu í bandinu. Annars voru þessar söngvakeppnir MH yfirleitt ein stór Flipp-keppni þar sem meirihluti þáttakenda ætlaði að gera það gott sem flipparar. Gott ef tyrkin lék ekki sjálfur undir hjá vinkonu sinni eitt árið, það var þó eigi flipp, enda vann hún ekki. (Minni tyrkjans hefur orðið fyrir all mikilli rokksköddun - það stendur varla steinn yfir steini ef reynt er að rifja upp gamla tíma). Annars er Flipp-keppni þeirra MH-inga nokkuð fyndið fyrirbæri. Það er hægt að bera kennsl á þennan þjóðflokk úti á götu, alla vega keppendur, með nær óyggjandi hætti. Það er nefnilega þannig að þegar allir rembast við að vera öðruvísi verða allir eins, íklæddir fötum ömmu sinnar utan á föt langömmu sinnar.

Tyrkinn - ennþá veikur


18.3.02

:: tyrkinn 13:24 [+] ::


Drulla
Í dag er tyrkinn búinn að vera veikur í 10 daga. Á föstudaginn þegar hann var að verða ljóshærður á hellum dauðans tók hann á það ráð að reyna að blása út þrýstinginn. Það gerði illt verra, mun verra nú var kominn stingandi verkur í annað eyrað. Þá var fengið húsráð hjá tengdó sem fólst í því að fylla eyrað af volgri ólífuolíu. Það virkaði ekki. Þegar verkurinn var farinn að æra tyrkjann var haldið á læknavaktina. Þá kom í ljós að tyrkinn var með heljar eyrnabólgu vegna einhverrar sýkingar. Það kom einnig í ljós að það var farið að blæða úr öðru eyranu, voða fínt. Pensilín og eyrnadropa bættust þá á matseðilinn hjá tyrkjanum.


15.3.02

:: tyrkinn 16:53 [+] ::


Godspíd Jú Blekk Emperor
Tyrkinn fór á tónleika í gær sem hann hafði beðið eftir. Seinni tónleikar Godspeed voru haldnir í Íslensku óperunni í gær. Óperan er ágætis staður fyrir svona tónleika, allir fá sæti, enginn troðningur (nema kannski fyrst) og allir komnir til að hlusta en ekki til að láta óðslega eða drekka brennivín (þótt það sé gott og blessað). Minni troðningur var reyndar í gær þegar hurðir voru opnaðar en tyrkinn bjóst við, þótt húsið hafi verið fyllt á endanum. Eftir að hafa hlustað á "kontrý" tónlist herra Nash var komið að upphitun. Tyrkjanum til undrunar var ekki eitthvað "heitt" íslenskt band sem fékk að hita upp heldur voru það fyrst tvær systur sem léku saman á harmonikkur og kom það betur út en það væntanlega hljómar hér, þótt þær hafi nokkrum sinnum verið tæpar á spilamennskunni. Öðruvísi og ágætis tilbreyting. Önnur "óvartkoma" var svo þegar kynnt var annað upphitunaratriði, sem kom í ljós að væri annað harmonikkuatriði, og í þetta skipti var það ungur drengur sem leit frekar út fyrir að vera í underground bandi en í harmonikkusveit. Hann kom líka á óvart með spilamennsku sinni, byrjaði á tveimur lögum úr Godfather en lék svo lög úr öðrum áttum. Fór hann mikinn og sýndi mikla færni, á tímabili leit þetta út fyrir að vera svona "spilaðu það erfiðasta sem þú kant" dæmi. Eitt lagið var þó nokkuð sérstakt og hefur sennilega verið frumsamið, og þar náði hann hljóðum út úr "nikkunni" sem tyrkinn hefur aldrei heyrt úr slíku hljóðfæri og líktust meira tölvumúsík en nikkumúsík og var það nokkuð flott. Loks steig aðalnúmerið á svið eftir hlé. Fyrir þá sem ekki þekkja þessa hjómsveit er þetta flokkur fólks sem fæst við tónlist og öðru tengdu henni og inniheldur eitthvað á þriðja tug manns þegar mest er en tyrkjanum skilst að það sé eitthvað rokkandi. Í gær voru 9-10 manns á sviðinu. Tveir trommu/slagverksleikarar, tveir bassaleikarar, þrír gítarleikarar, cellóleikari og fiðluleikari. Einn maður var á kvikmyndasýningavél og sýndi myndir á meðan hljómsveitin lék. Og lék hún vel. Þetta var þéttur múr af tónlist og oft vissi maður ekkert hvaða hljóð voru að koma úr hvaða hljóðfæri og þurfti oft að leita að viðkomandi hávaðaframleiðanda. Lögin eru mjög löng, byrja yfirleitt á lágu nótunum en smá magnast upp og enda í berlínarmúr af hljóðum ýmiskonar sem fá hár til að rísa. Fyrsta lagið var til dæmis mikil upplifun og kom manni á lagið. Tónleikarnir stóðu frá 9 til rúmmlega 12 og er það nokkuð mikil törn fyrir svona þunga tónlist, en jafnframt var þetta mikil upplifun og kom manni oft í sérkennilega stemningu sem ekki gerist oft á svona tónleikum. Þetta voru án efa einir bestu tónleikar sem tyrkinn hefur farið á og mundi ekki hika við að fara aftur, ef færi gefst. Þess má geta að drykkjumaðurinn náði þeim ekki, en bandið verður einmitt í Osló þegar hann er heima, tíhí. Þess má einnig geta að Geiri Agg missti af miklu, því knéfiðluleikarinn var ekki af verri endanum...

GYBE tónleikar 14/3 2002 * * * * * (af 5 mögulegum)



:: tyrkinn 09:42 [+] ::


Emil
Tyrkinn er kominn með nýjan t-póst, tyrkinn@hotmail.com



:: tyrkinn 09:08 [+] ::


Baunatalning
Tyrkinn var að fá tölur yfir heimsóknir á síðuna og rak augun í að þann 8. s.l. höfðu verið um 120 heimsóknir sem er svona tífallt á við venjulega (tveir lesendur, kíkja 5-6 á síðuna yfir daginn). Þetta var einmitt dagurinn sem blogger lá niðri, en tyrkinn náði að henda inn einni færslu snemma um morgunin og var því sá eini sem ekki var á sluxalistanum, geri aðrir betur. Duglegur.


14.3.02

:: tyrkinn 14:17 [+] ::


DV gerir það gott
Tyrkinn er svo lánsamur að vera með eintak af DV í höndunum þessa stundina. Fyrsta afrek þeirra blaðamanna er að tífalda tap deCode sem þeir segja að hafi numið um 48 milljörðum í stað 4,8 milljörðum, munar ekki nema um 43 milljörðum þar. Villan er svo endurtekin í textanum "...rekið með 47,8 milljarða tapi á síðasta ári." og engum hefur tekist að rekast á þessa villu sem er á baksíðu blaðsins. Svo er það forsíðan. Stór mynd er á henni með tveimur mönnum er halda á afar ljótum furðufiski sem veiddist í net við strendur landsins. Næst stærsta dagblað landsins er með þennan stóratburð á forsíðunni og fyrirsögnin er "Vogamær var það, heillin". Gríðar gott blað, DV.



:: tyrkinn 12:40 [+] ::


Fjöltengdur Tyrki
Tyrkinn hóf í gær tilraunir til tengingar við hið svokallaða alnet með þeim búnaði er hann fékk frá Fjöltengi. Eftir margar árangurslausar tilraunir með USB tengið gekk það loks upp með venjulegur ethernet tengi í netkortið. Hraðinn er góður og er allt útlit fyrir að símamódemið fái að fjúka út af svölunum í nánustu framtíð. Voða fínt.



:: tyrkinn 12:36 [+] ::


Gestir
Nokkrum vinum tyrkjans hefur lengi staðið til boða að skrifa á þennan vef, en enginn hefur þorað því ennþá. Tyrkinn skorar á viðkomandi að láta í sér heyra.



:: tyrkinn 12:25 [+] ::


Foxy
Það má kannski benda hr. Muzak á það að refaskyttum er borgað fyrir að farga dýrunum og er það ólíklegt að það yrði fangað og sleppt til þess að láta einhvern annan skjóta það seinna.



:: tyrkinn 09:40 [+] ::


Rítörn off ðí Djeddæs
Nú er von á tveimur vöskum drengjum aftur úr klóm útlendinga á næstu dögum. Drykkjumaðurinn kemur heim 21. mars n.k. og ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni í viku. Samkvæmt skýrslum Interpol hefur hann haldið sig í Osló í Noregi undanfarna mánuði, en þess má geta að það er skítapleis og hefur Drykkjumaðurinn sagt tyrkjanum frá því að norskur bjór sé hið allra versta hland sem hann hefur lagt sér til munns, og hefur hann lagt ýmislegt sér til munns í gegnum tíðina. Hann nær þó að missa af Godspeed tónleikunum í kvöld, og nær meira að segja að afreka það að missa svo aftur af þeim spila í Osló rétt þegar hann hefur komið hingað, bad timing. Ætlar þó að ná Dianogah að sögn vitna.

Einnig er von á Geira Agg sem tyrkinn heyrði í í gær (alltaf gaman af tveimur stökum sérhljóðum) sem ætlar að koma 24. mars n.k. en hann hefur alið manninn í Köln í vestur-germaníu síðan hann kláraði nám sitt í bandaríkjum norður ameríku. Hann tjáði mér að hann hefði verið að festa kaup á cello-boga nokkrum á einar 1,3 milljónir króna sem tyrkjanum þykir nokkuð mikið fyrir hestahár strengd milli enda á priki... Hann ætlar að vera viku og þar sem þeir kappar verða hér báðir hefur verið nefnt að taka almennilegan pókerleik með öllu tilheyrandi

Einnig má geta þess að systir tyrkjans M.P.K.L. Achbar ætlar að koma heim þessa sömu viku ásamt fjölskyldu sinni og er það vel.


13.3.02

:: tyrkinn 16:45 [+] ::


Tyrkinn fjöltengdur?
Tyrkinn fór áðan upp í orkuveitu og sótti sér svokallað fjöltengi, sem fyrir þá sem ekki vita er internettenging gegnum raflagnir. Þar sem tyrkinn hefur átt í gríðar miklu basli með símalínu dauðans, eins og heyrst hefur, hljómar þessi lausn vel, þótt tyrkinn hafi ekki hugmynd um hvernig í ansk... þeir fara að þessu. Þá er bara að vita hvort raflagnirnar í húsinu séu ekki mökksúrar líka. Notarlegt að hugsa til þess að geta verið lengur en 10 mín í einu á netinu og jafnvel ekki þurft að bíða meira en mínútu eftir að morgunblaðssíðan hleðst inn. Skemmtilegt orð líka; niðurhalning eins og þeir þýða dánlód.



:: tyrkinn 10:35 [+] ::


ZZZZZZ

"Sauðdrukkinn úti í hrauni lá Hallgrímsson Jónas
og hraut eins og sögnarverksmiðja í Brasilíu
Mamma komd'ekki nálægt með nefið þitt fína
það er nálykt af honum, þú gætir fengið klígju" (Megas, Megas)

Tyrkinn afrekaði það um daginn að halda vöku fyrir frú sinni heila nótt með hrotum, og vill frúin kenna kókómjólk um ódæðið. Að sögn hennar virkaði ekkert að pota eða ýta, ekkert lægðu drunurnar úr vitum tyrkjans. Þegar klukkan hringdi óttaðist tyrkinn um líf sitt, slík var ánægja frúnnar. Úfff, er ekki hægt að fara í aðgerð út af þessu?



:: tyrkinn 10:31 [+] ::


A bjútífúl mænd
Tyrkinn fór á þessa mynd í gær, og kom hún nokkuð á óvart. Aldrei þessu vant var trailerinn góður, vakti athygli án þess að gefa of mikið upp um söguþráðinn, var eiginlega allur frá fyrstu mínútum myndarinnar og er það vel. Tyrkinn hélt að þetta væri svona dæmigerð snillingamynd um mann sem bjargar heiminum frá glötun út af því að hann er svo gríðarlega klár og amerískur, en svo var ekki. Til að eyðileggja hana ekki fyrir ykkur hinum ætlar tyrkinn ekki að gefa mikið upp um hana. Vel leikin og góð mynd og óhætt að mæla með henni. Russel er greinilega heitastur í þessum bransa í dag og leikur jafnt skylmingarþræla og stærðfræðing. Jennifer Connelly leikur líka ágætlega, en tyrkinn verður að viðurkenna að hann kannast aðeins við hana úr beib-testinu (sjá link hér til vinstri).

A bjútífúl mænd * * * * (af 5 mögulegum)


12.3.02

:: tyrkinn 12:48 [+] ::


Blakk Hog Dán
Tyrkinn fór í gærkvöldi á þessa eðal stríðsmynd með stríðsguðinum Herkúlesi. Haldið var í smárabíó og náðu þeir í miða í lúxussal, en þangað höfðu þeir ekki farið áður. Salurinn er góður og það munar því að vera í almennilegum sætum í bíó, því þá sleppur maður við sár hné og gyllinæð. Þetta eru nokkurs konar lazyboy stólar, leddarar sem maður getur hallað sér aftur í með lappir upp og nóg pláss í allar áttir. Nú, tyrkinn og Herkúles voru búnir að bíða eftir þessari mynd og nokkuð spenntir að sjá hana, þar sem Jerry Bruckheimer og Ridley Scott bjuggu hana til sem er ávísun á ákveðna geðveiki sem mjög er eftirsótt í herbúðum þeirra Herkúlesar og tyrkjans. Hugmyndir voru reyndar uppi um að taka nokkurs konar Bruckheimer-viku og horfa á hans bestu myndir, mætti sleppa Cyote ugly sem var hörmung. Það eina sem olli vonbrigðum með þessa mynd var mikill skortur á fánaskorts leysi, en flestar Bruckheimer myndir skarta a.m.k. 4-5 fánaskotum, þar sem bandaríski fáninn blaktir í slómó fyrir og eftir helstu hetjuatriði sem höfða eiga til þjóðrembu kananna. Hægt er að "reita" myndirnar hans eftir fánaskotum, til dæmis var "The Rock" 5 fána mynd. Allavega, þessi mynd gerist í Sómalíu og er "byggð" á sönnum atburðum. Um 85% myndarinnar er stanslausir skotbardagar, sprengjur, blóð og tilheyrandi og er það vel, hún dettur aldrei niður í einhverja lognmollu. Hún er líka ágætlega leikin og engar hallærislegir hetjuleikarar sem væntanlega hefur verið freistandi (t.d. henda bruce willis inn), nema þá kannski helst annar gaurinn úr Pörl harbör sem var hvað minnst sannfærandi. Ewan McGregor stóð sig vel, svo og hr. ljótur félagi hans úr Trainspotting. Einnig voru keppnismenn þarna eins og Tom Sizemore sem er fínasti fauti. Að sjálfsögðu var búið að hagræða væntanlegum staðreyndum nokkuð að bandarískum sið og voru Sómalíumennirnir gerðir að vanhæfum og hálf ómennskum karakterum sem hittu ekki görnina á sjálfum sér með byssum sínum og hlupu um göturnar eins og dýrahjarðir frekar en hermenn. Þeir voru alltaf kallaðir "skinnies" eða "mjónur" í íslenskri þýðingu. Þess má geta að aðeins einn svartur maður var í bandaríska herliðinu og hann var einnig látinn skjóta konu sem var að teygja sig í byssu af föllnum félaga sínum... En það er hiklaust hægt að mæla með þessari mynd, og er hún ómissandi fyrir stíðsmyndaunnendur (95% allra karlmanna) og er ekki ósennilegt að tyrkinn kaupi hana á dvd þegar hún kemur, alveg hægt að stilla henni við hliðina á platoon í skápnum. Þess má geta að frasi hr. Bush var heimfærður á yfirmann í myndinni "Make no mistake..." Það hefur kostað stjórnina skildinginn...

Þessa dagana er holskeifla af stríðsmyndum að ausast yfir kvikmyndamarkaðinn, það er eins og að hollywood hafi fengið eitt ár til að undirbúa sig fyrir 11. september. Í bíó voru ekkert nema kynningar og plaggöt af væntanlegum stríðsmyndum og virtust þær flestar ganga út á það sama, og allar eiga þær að höfða til þjóðerniskenndar (ýktar) bandaríkjamanna. Einn treilerinn var allur í 1. pers. fleirtölu, "We have seen war, we have survived evil..." o.s.frv. og var greinilega kostaður af bandaríkjaher eins og flestallar þessar myndir. A leiðinni út úr bíói taldi tyrkinn einar 3 myndir sem eru á leiðinni sem allar voru með svipuðu plaggati; ein með Nicolas Cage, ein með Melinum Gibssyni og ein með Bruce Willis, nú á að æsa lýðinn.

Blakk Hog Dán * * * * 1/2 (af 5 mögulegum)


11.3.02

:: tyrkinn 15:35 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans
Ekki byrjaði þessi helgi vel fyrir tyrkjann. Upp úr hádegi á föstudag fór tyrkinn að finna fyrir ónotum, síkvefið fór að ágerast og til að toppa það fékk hann heiftarlega magakveisu sem hann ætlar að hlífa báðum lesendum sínum við ítarlegri lýsingar á. Kveisan lagaðist fljótlega það kvöldið en kvefpestin ágerðist svo og hálsbólgan. Föstudagskvöldið fór því í sjónvarpsgláp og snýtur. Á laugardaginn var búið að bjóða til brúðkaupsafmælisveislunnar Já í húsarkynnum poppstjörnu nr. 2 og sjónvarpsstjörnunnar Já. Eftir að hafa farið að ráðum Herkúlesar og éta töflur búnar til úr ólífulaufaextrakti skellti tyrkinn sér þangað ásamt fríðu föruneyti og var tekið á drykkjunni það kvöldið. Eftir veislunna var haldið á gaukinn þar sem poppararnir léku fyrir dansi, að frátöldu afmælisbarninu sem var pestarbróðir tyrkjans það kvöldið. Fyrir hádegi á sunnudaginn hringdi síminn á tyrkjastöðum og vakti húsfólk. Á þeim tímapunkti hélt tyrkinn að það væri sitt síðasta. Hálsbóga skrattans, kvef skrattans og þynnka fara ekki vel saman. Í símanum var verið að blása til flutninga fyrir afa og ömmu frú achbars og ekki var hægt að víkja sér undan því af augljósum ástæðum. Í dag er svo tyrkinn mökksúr heima hjá sér og pestin virðist ekkert ætla að fara neitt. sniff.


8.3.02

:: tyrkinn 08:53 [+] ::


....úps, 6-1


7.3.02

:: tyrkinn 16:28 [+] ::


Hraun dagsins
Búðareigendur eru ekki hættir að koma tyrkjanum á óvart með heimsku sinni. Í dag ætlar tyrkinn að hrauna ærlega yfir verslunina Vídd í kópavoginum. Reyndar er tykinn að velta því fyrir sér að sniðganga kópavoginn í heild sinni í framtíðinni, þetta er leiðinda pakk. Verslunin Vídd selur flísar og þessháttar dót, eins og glöggir lesendur kannski vita. Um helgina fór tyrkinn og ætlaði að festa kaup á flísum í sturtuklefann góða, en þegar allt var því næst frágengið voru þær ekki til. Þá fékk tyrkinn loforð um símtal á mánudaginn var þess efnis hvort flísarnar væru að koma frá Indónesíu eður ey. Í dag þegar liðnir eru 4 dagar án svars hringdi tyrkinn í verslunina. Achbar hjónin höfðu skilið eftir nafn og símanúmer á pöntuninni góðu þannig að það ætti ekki að fara á milli mála. Þá kannaðist enginn við málið, og þegar konan var búin að kryfja það hverjir voru að vinna og spyrja þá út í þaula vissi engin neitt, nema einn sem rámaði létt í málið þótt hann væri löngu búinn að gleyma um hvað það snérist. Þá bað hún tyrkjann bara um að mæta á staðinn, sjálfsagt svo hún gæti sagt það í opið geðið á tyrkjanum að enginn kannaðist við neitt, eða þá að flísarnar væru ekki komnar. Af sjálfsögðu lét tyrkinn ekki bjóða sér í aðra óþarfa ferð á hjara veraldar og bað hana kurteisislega að finna út úr málinu og hringja aftur í sig. Það gerði hún reyndar stuttu síðar og tilkynnti að von væri á sendingu næsta mánudag, einar 9 pallettur ef minnið er ekki að svíkja tyrkjann. Síðan kom það í ljós að hún hafði ekki hugmynd um hvað væri í þessari sendingu og hvað ekki. Tyrkinn á bara að hringja á þriðjudaginn og vona að einhver viti eitthvað um hvað er á þessum pallettum. Af hverju vissi hún ekki hvað þau voru að panta?

Málið með allt of margar íslenskar verslanir er að fólk virðist ekki vita um ýmislegt sem tyrkjanum þykir sjálfsagt að vita. Hver kannast ekki við að hafa verið lofað einhverri vöru sem "verður bókað komin eftir helgi" og farið fýluferð? Það virðist sem afgreiðslufólki sé ávallt í því að kaupa sér gálgafrest með því að lofa upp í ermina á sér til að losna við fólk út úr búðinni sem vill kaupa eitthvað sem alltaf er uppselt. Og fólki finnst það alveg sjálfagt að fólk fari nokkrar ferðir í búðina til að vonast til að viðkomandi vara sé til, eins og fólk hafi ekkert betra að gera. Þess vegna kemur það tyrkjanum ekki á óvart að Víddar-konan hafi beðið sig um að mæta þrátt fyrir að vera nokkuð viss um að heimsóknin mundi ekki skila neinum árangri, a.m.k. ekki fyrir tyrkjann. Sama mál með gallaðar vörur. Ef maður kaupir gallaða vöru, þykir búðinni það vera býsna rausnarlegt af þeim að afhenda ógallaða vöru af því gefnu að maður komi aðra ferð í búðina. Af sjálfsögðu ætti maður að fá hana sent heim, og ef vel ætti að vera með skaðabótum einhvers konar. Bæturnar þyrftu ekki að vera miklar, gætu verið sælgæti eða eitthvað, bara rétt til að biðjast afsökunar fyrir ómak viðskiptavinarins. Tyrkinn veit til þess að þessu sé öðruvísi háttað í bandaríkjunum, þar eru menn búnir að átta sig á því að ef maður tekur einhvern í ósmurða görnina kemur viðkomandi líklega ekki aftur (nema hann sé eitthvað fyrir svoleiðis). Hvað ætli það taki fólk langan tíma að átta sig á þessu hérna heima. Eitt er víst, ef eitthvað örlítið er gert fyrir mann í svona aðstæðum sem maður býst ekki við verður maður samstundis tryggur versluninni og talar um það. Það er góð auglýsing. Hins vegar, ef maður fær það í óæðri endann, talar maður óspart um það, sbr. þennan pistil tyrkjans.



:: tyrkinn 14:16 [+] ::


Albatrossinn
Nú eru dýr ráð góð. Bankareikningur tyrkjans er orðinn ansi rýr og er nú leitað allra ráða til að spara. Flottræfilsháttur Achbar hjónanna er að gera út af við tyrkjann og því neyðist hann til að huga að því að selja Albatrossinn eins sárt og það verður/yrði. Tryggingar af 2 bílum er orðið ansi mikil blóðtaka, sérstaklega þegar Achbar hjónin vinna á sama stað. Til dæmis má nefna að í morgun var fyrsta skipti í um viku sem Albatrossinn var hreyfður og tyrkinn sem er nýbúinn að greiða trygginar upp á tugi þúsunda. Ef tyrkinn ætti bílskúr væri honum lagt og hann tekinn af númerum í bili. En svo vel býr tyrkinn ekki og verður því að fara að bjóða hann til sölu.

Fyrir þá sem ekki þekkja er þetta þýskur eðalvagn af gerðinni Mercedes Benz, 230 CE og er hann tveggjadyra sportbíll. Hann er beinskiptur, með rafdrifinni topplúgu, góðum Kenwood græjum og orginal benz álfelgum. Hann lítur næstum því alveg eins út og myndin hér að neðan sem tyrkinn fann af netinu. E.t.v. verða teknar myndir af honum og birta hér síðar. Ef einhver hefur áhuga, eða veit af einhverjum sem hefur áhuga má endilega senda póst á tyrkjann (sjá "hafa samband" hér að ofan).

Snökt...



:: tyrkinn 14:07 [+] ::




:: tyrkinn 12:21 [+] ::


Gwei-lo
Tyrkinn fékk lánaða eina 3 geisladiska fulla af MP3 frá Drykkjumanninum fyrir nokkru síðan. Hefur tyrkinn verið að melta þetta jafnt og þétt og er núna dottinn niður í band er kallar sig Gwei-lo. Þetta er mest megnis instrumental og voða fínt. Ekki ósvipuð tónlist og Mogwai, enda tengja þeir á www.allmusic.com böndin saman sem svipaða tónlistarmenn. Tyrkinn mælir með því að athuga þetta.

...ætli séu einhver tengsl á milli Gwei-lo og J-lo?


6.3.02

:: tyrkinn 09:55 [+] ::


Sölumaður dauðans tekur þátt í verðbólgustríðinu
Skv. frétt á mbl.is hækkar verð á flestum vímuefnum í takt við verðlagsbreytingar, nema verð á "helsælu" eins og þeir kjósa að kalla e-pilluna í stað alsælu. Alsæla hefur greinilega ekki skilað sér sem nógu neikvæður hlutur til neytenda. Ætli kanarnir séu þá ekki farnir að kalla þetta hellstacy í staðinn fyrir ecstasy. Þarna hafa þeir sölumenn sem sérhæfa sig í sölu "helsælu" tekið höndum saman í verðbólgustríðinu til að halda rauða strikinu umtalaða og vonandi má sjá aðra starfsbræður þeirra gera slíkt hið sama til að þetta mikilvæga markmið náist.


5.3.02

:: tyrkinn 15:29 [+] ::


Super-Slut 2002



:: tyrkinn 11:18 [+] ::


Gleymdist í helgarskýrsluna
Tyrkinn getur ekki haldið þessu í sér lengur... Á laugardaginn fór frau Achbar í ljós í fyrsta skipti í langan tíma. Þetta voru víst um 10 mín í einhverjum bekk sem var á stærð við smábíl. Var hún nokkuð ánægð með þetta þangað til að líða fór á kvöldið. Þá varð hún eldrauð og leið eins og hún væri í neðra. Síðan hefur hún ekki geta hreyft sig eðlilega og klórar sér eins og hún eigi lífið að leysa. Pant ekki fara í svona túrbó-bekk, enda er tyrkinn súkkulaði-brúnn....


4.3.02

:: tyrkinn 13:32 [+] ::


Steingrímur J. gerir það gott....
Tyrkinn var að renna yfir DV og fann þessa klausu sem verið var að kvóta í Steingrím J. varðandi Landssímamálið;

"Þrátt fyrir þetta segist Steingrímur ekki ætla að hafa vit fyrir ríkisstjórninni" ;
"Hún mætti mjög gjarnan mín vegna hálsbrjóta sig endanlega á fleiri slíkum málum en ég reikna með að þeir muni hægja á sér. Þarna eru of mikilvægir almannahagsmunir í húfi til að menn geti leikið sér að þeim eins og bandittar."

Þarna lýsir hann því fyrst yfir að hann vilji bókstaflega að stjórninn klúðri sínum málum, og síðan segir hann að það sé of mikið í húfi til að klúðra því. Svo kallar hann þá banditta líka. Nokkuð þversagnakennt að mati tyrkjans.



:: tyrkinn 13:28 [+] ::


Baggalútur hefur fundið upprunalega bréfið frá Össa líffræðing og birtir það á síðu sinni



:: tyrkinn 13:01 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans (annar hluti) - Laugardagur
Tyrkinn var vakinn með látum á laugardaginn, og það á ókristilegum tíma, fyrir hádegi. Eftir að hafa fengið nokkrar mín til að átta sig á stað og stund og hálfan tebolla var hann drifinn út. Þá var haldið í Kópavog city til að skoða flísar innan í sturtuklefann umrædda. Eftir langan tíma í spekúleringar (þess má geta að tyrkinn var með nettan hausverk allan tíman) voru fundnar litlar flísar sem seldar eru í mottum (þ.e. margar flísar festar lauslega saman að aftanverðu til að auðvelda lögn). Eftir drykklanga stund (tyrkinn hefði getað þegið einn bjór eða svo til að vakna almennilega...) var búið að taka til alls kyns lím og grunna, fúa, verkfæri og drasl. Þá voru flísarnar góðu allt í einu orðnar helmingi dýrari með þessu dóti og kostaði pakkinn um 30 þús, sem gerir stóra sturtuklefamálið að 70 þús+ pakka, auk væntanlegrar ómældrar vinnu sem enn á eftir að koma í ljós með gæði og árangur. Ofan á allt komst upp að helvítis flísarnar voru uppseldar, þannig að nú bíður tyrkinn eftir komu þeirra frá austurlöndum fjær. Þá var haldið í hár-kött og þá heim eftir göngu um laugarveginn. Um kvöldið var síðan haldið fyrsta pókerkvöldið í meira en hálft ár, og var kominn tími til. Að þessu sinni voru mættir þeir Fritz Gerber, Herkúles, Bjarkinn og Gyðnið, auk tyrkjans. Þess má geta að klúbburinn er aðeins fyrir karlmenn (af augljósum ástæðum), ákveðið dress-kóði er uppi og mætir hver leikmaður með einar 1000 kr. í pottinn, en leikið er með spilapeninga í seinni tíð. Æskilegt er að drekka mikið af hörðu brennivíni ýmis konar og er viský mikið brúkað í þeim tilgangi, ásamt öðru. Fannst leikmönnum nú vera komin tími á að skýra klúbbinn eftir áralangan félagsskap og hlaut hann nafnið "Pókerklúbburinn Pungur". Í þetta skiptið urðu leikar mun jafnari en áður og fór hópurinn ekki að minnka fyrr en eftir einhverja klukkutíma. Eftir eina 7 klukkutíma voru ennþá þrír eftir og var þá sú ákvörðun tekin að spila ekki til síðasta blóðdropa, því frú Gerber var orðinn óþolinmóð að bíða eftir bónda sínum en hún hafði komið til að sækja hann 2-3 tímum fyrr. Svo fóru leikar að Herkúles fór í fyrsta skipti út með meiri peninga en hann hafði komið með, eða ríflega helming pottarins. Tyrkinn sótti þá fast á hæla hans en hafði þó 3-4 hundruð krónum minna upp úr krafsinu. Gerberinn var einhverju klinki yfir núllið, sem kom þá út í tapi það kvöldið. Rætt var að halda annað pókerkvöld er drykkjumaðurinn kemur til byggða frá Osló í lok mánaðarins.



:: tyrkinn 12:33 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans - Föstudagur
Á föstudaginn bauðst tyrkjanum það tækifæri að drekka brennivín á kostnað ríkisins og að sjálfsögðu var það og gert. Náði tyrkinn að drekka þar einhver prósent af skattpeningum sínum þann daginn og var það vel. Þá var haldið heim og þá í átt að heimili Gyðnisins. Á leiðinni var komið við á Ingólfstorgi þar sem listamenn höfðu komið fyrir gríðarstórum fossi á morgunblaðshúsinu gamla og var hljóðkerfi á staðnum til að leika vatnsdrunur fyrir viðstadda. Þetta var liður í Ljósahátíð Reykjavíkurborgar sem stóð í eina 4 daga einhverra hluta vegna. Fossinn var alveg ágætur sem slíkur, en náttúrulega ekkert á við það eitt að fara bara og sjá foss, ekki þurfum við að fara langt til þess. Einhver ís-listamaður var líka búinn að höggva út íslistaverk á mitt torgið, og var það ljótt með öllu. Auglýst var líka einhver píslaganga frá torginu upp að Hallgrímskirkju. Tyrkinn sá einmitt þessa göngu og samanstóð hún af cirka 16 manns og tveimur kyndlum í halarófu á eftir prest, ekki mikil skrúðganga það. Herkúles og vinkona Gyðnis-Siggu voru í heimsókn hjá Gyðnis-hjónunum og var setið þar að drykkju og ýmis mál þar rædd, en þó aðallega pælingar með reykelsi, en Sigga hafði hlotið eina 10 pakka af indverskum reykelsum eftir reisu vinkonu sinnar. Þá var haldið á Prikið og drukkið þar þangað til tyrkinn var orðinn úrvinda og hélt heim.

Ljósahátíð Reykjavíkurborgar * (af 5 mögulegum)
Inversk reykelsi * (af 5 mögulegum, það er vond lykt af reykelsum)



:: tyrkinn 11:21 [+] ::


Kúkað í buxurnar
Össur Skarphéðinsson er skemmtilegur ræðumaður og ágætis penni. En greindur er hann ekki og virðist ekki lengur nenna að fela það. Þegar upp kemst að starfsmaður bróður hans hafi verið að gramsa í pappírum yfirmanna í Baugi og viðskiptum hætt við ræstingarfyrirtæki Magnúsar ætlar Össur aðeins að hjálpa bróður sínum og sendir hótunarbréf á toppana hjá Baug. Auk þess notar hann fautalegt orðalag sem ekki sæmir þingmanni, hvað þá aðal-spýru Samfylkingarinnar. Lesa má póst hans á grein á mbl.is, og er þetta nokkuð forvitnilegur lestur fyrir þá sem ekki hafa lesið. Svo kemur hann í fréttum í gær og segir að hann hefði ekki orðað þetta svona á opinberum vettvangi, sem tyrkinn túlkar sem svo að hann sé innan við með "skítlegt eðli" (eins og einn þingmaður orðaði svo skemmtilega fyrir nokkrum árum) en sé bara svona "kurteis" og "vel upp alinn" að frontinu til. Tyrkinn telur þetta vera sjálfssköpuð pólitísk jarðaför sem hann kallar yfir sig greyið. Hann ætti e.t.v. að fara frekar í það að kenna grunnskólanemendum líffræði en að vera að standa í þessu.

Össi Líffræðingur * (af 5 mögulegum, stjörnuna hlýtur hann fyrir að vera skemmtilegur ræðimaður þegar hann talar um annað en pólitík)


1.3.02

:: tyrkinn 16:41 [+] ::


B-Dagurinn
Þeir segja að í dag séu 13 ár frá því að þeir loksins leyfðu bjórinn á Íslandi, gárungarnir segja þ.e.

Góða Helgi



:: tyrkinn 10:58 [+] ::


Stört
Tyrkinn fór í gær og festi kaup á sturtuklefa og sturtuhausa-kitti í Tengi hf. í Kópavogi í gær. Á boðstólnum var klefi (eða horn öllu heldur, án botns) úr plasti á 23 þús eða með gleri á ca. 35 þús, og fór tyrkinn í glerið þar sem það var bæði fallegra og gerðarlegra. Tyrkinn er með kenningu um græjur, því þyngri sem þær eru, því betri. Þetta þarf þó ekki að gilda um allt, sbr. síma og þessháttar. Þyngri hljómflutningsgræjur, betri græjur.



:: tyrkinn 10:00 [+] ::


Tvíhöfði
Nú segja þeir að Tvíhöfði sé að hætta, fuss. Þá er ekkert eftir í útvarpi hér á landi sem vert er að hlusta á. Í morgun voru þeir að ræða hvað þeir ætluðu að taka sér fyrir hendur, og ætlaði Jón Gnarr að verða upplýsingafulltrúi Flugleiða. Vont mál, þ.e.a.s. að þeir séu að hætta, ekki með Flugleiðir.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra