|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
30.4.02
Pólitík
Tyrkinn tók þetta próf. Það á að sýna hvar maður stendur, svona pólitískt séð.
Your political compass Economic Left/Right: 4.12 Authoritarian/Libertarian: -3.33
Skalinn er -10 til 10 , lóðrétt og lárétt.
Svo tyrkinn geri eins og Hr. Muzak, þá má staðsetja hann svolítið neðar og soldið nær lóðrétta ásnum en Milton Friedman. Að mati tyrkjans er þetta besti staðurinn á áttavitanum.... Nokkuð á hægri vængnum hagfræðilega og á frjálsari hliðinni.
Tyrkinn mælir með laga síðu Dr. Gunna. Þarnar er ágætis yfirlit yfir lög hans, fyrr og síðar.
29.4.02
Helgarskýrsla Tyrkjans
Þessi helgi var óvenju erfið. Eftir rafhlöðuhleðslu á föstudagskvöldið var haldið á vit ævintýranna síðast liðinn laugardag. Herkúles átti afmæli á sumardaginn fyrsta og var því ákveðið að gera eitthvað gott grín á laugardaginn, og rættust þau plön. Dagurinn var tekinn tiltölulega snemma. Herkúles, Tyrkinn, frú Achbar, Gyðnið og Siggan hittust á gráa kettinum á Hverfisgötu til að byrja með og fékk liðið sér eitthvað í gogginn, mis subbulegt þó. Tyrkinn komst þar að því að Grái Kötturinn er algjör snilld í þynnkumat, því margt löðrandi var á matseðilinum. Gyðnið var að snæða einhverja beikon-hrúgu og Herkúles var að gæða sér á pönnukökum dauðans með sírópi og súkkulaði. Sjálfur fór tyrkinn í beyglu með túnfisksalati sem var gríðar góð, en frúin fór í beyglu einnig. Þaðan var haldið í bláa lónið. Það er alltaf gott að kíkja þangað og liggja og fylgjast með túristum ljósmynda þetta undur jarðar. Í þetta skiptið var óvenju stór og leiðinlegur hópur íslendinga í miðju lóninu í "hver-getur-sungið-hæst-og-falskast" keppni, líklega einhverjir að útskrifast. Þegar búið var að bleyta upp í liðinu nokkuð vel var haldið aftur til höfuðborgarinnar, og fólk farið að skvetta duglega í sig af miði, þ.e.a.s. allir nema frúin sem keyrði og Siggan sem var að ljúka vaktinni í borginni. Þá var Siggan sótt og haldið í hina áttina frá bænum, og var stefnan tekin á Stokkseyri City. Einhverra hluta vegna hafði tyrkinn aldrei séð þessa stórkostlegu bæi sem Eyrarbakki og Stokkseyri eru. Þegar hópurinn nálgaðist bæinn var kominn nokkur galsi í liðið og var tækifærið notað og Herkúles myndaður fyrir framan litla-hraun, þó réttu megin við girðinguna, a.m.k. í þetta skiptið. Og þá var kominn tími á snæðing, humar staðurinn "Við fjöruborðið" (eða eitthvað því um líkt, tyrkinn var á þessum tímapunkti ekkert að spá í því...) varð fyrir valinu þar sem fólk hefur gefið honum góða einkunn. Sá sem pantaði fyrir okkur hefur sennilega ekki komið mjög vel fyrir þar sem við vorum sett í upphitað tjald sem búið var að splæsa við staðinn og greinilega ætlað fyrir stærri hópa. Fyrir var eitthvað fjölskyldufólk í nokkurra metra fjarlægð. Þegar frúin kveikti sér í sígarettu kom þjónninn askvaðandi innan mínútu eða svo og sagði fjölskyldufólkið vera að kvarta undan reyk. Tyrkinn fann ekki einu sinni lykt þótt hann væri um 7 metrum nær frúnni en viðkvæma fjölskylduliðið sem greinilega leiddist eitthvað. Af sjálfsögðu var drepið í þó, en hið viðkvæma lið fékk ekki betra í staðinn. Þar kom nefnilega haugur af mjög drukknum skólafélögum, eða svokallað "ríjúníon" með ca. fimmtugu fólki sem lét óðslega. Fjölskyldufólkið flúði þá með fýlusvip. Matseðillinn var mjög einfaldur. Hægt var að velja 250 gr., 300 gr. eða 400 gr. af humar, og meðlæti var keypt aukalega. Humarinn kom svo í stóru fati fyrir alla á borðinu með kartöflum. Ljúffengur var hann en subbulegur til átu þar sem þetta var allt brotið og snætt í lúkunum. Ekki fór betur en svo að tyrkinn náði að merkja peysuna sína með humar-löguðum fitublett þegar eitt kvikindið hefndi sín með því að ráðast á tyrkjann þar sem hann reyndi að af-skela það. Áfram var drukkið og var fólk ánægt með heimsóknina á þennan furðulega stað þegar hópurinn fór með fulla vasa af bjórflöskum eftir prútt við þjónana. Þá var haldið aftur að heimili tykjans og þar áfram drukkið ótæpilega. Á endanum var farið á "Nasa" en þangað hafði tyrkinn ekki áður komið. Eftirleikurinn er í hálfgerðri móðu en tyrkinn man þó eftir að hafa farið með Herkúlesi á Klístró eftir Nasa, slíkt var ástandið á liðinu. Þaðan hélt tyrkinn heim en skildi Herkúles eftir, sem enn var í góðum fílíng og fór óðslega. Laugardagurinn heppnaðist þannig gríðar vel.
Sunnudagurinn var í hlutfalli við laugardaginn, þó með öfugum formerkjum. Tyrkinn reyndi oftar en einu sinni að fara á lappir, en höfuðverkurinn reyndist þó bærilegri á koddanum. Fréttir herma að þeir Herkúles og Gyðnið hafi ekki verið hressir á Sunnudaginn og segja menn að Herkúles hafi faðmað postulínið duglega að venju.
24.4.02
Jennifer Bush...
Brostnar forsendur
Að venju lætur Hr. Muzak gagnrýni ekki afskiptalausa. Á köflum er hann þó full æstur og dónalegur (skamm skamm) fyrir tyrkjann:
"Auðvitað væri sniðugt ef Herra Muzak myndi svara Tyrkjanum með einhverjum smellnum hagfræðirökum, en rök Herra Muzak í þessu máli eru hjartans rök. Því segir Herra Muzak: Troddu því upp í trompetið á þér Tyrkjagrey!!! Hafðu þínar hommalegu harðstjóra-smáborgaraskoðanir, þú dissaðir hvort eð er tónlistina mína... ;-)"
En talandi um smáborgaraskoðanir, þá finnst tyrkjanum Muzak ekki vera skárri en hann sjálfur. Hinn dæmigerði Íslendingur verður að vera sinn eigin herra og helst vilja allir vera sínir eigin forstjórar, sbr. brandarann um róðrarkeppnina við japani (einn að róa og 6 að stýra bátnum hjá íslendingum...). Ef Hr. Muzak getur ekki unað sínu nema vera einn í sínu horni þá fellur hann væntanlega undir sama flokk í þessum efnum. En enn má benda á ýmislegt vafasamt í greinum Hr. Muzaks, og má til dæmis nefna trillurómantík muzaks. Einhverjar fáránlegar forsendur liggja þar að baki. Ef maður ber saman togara og trillu þá kemur það ekki út eins og muzak vill meina, þ.e.a.s. að það sé vistvænna, betra og hagvæmara að veiða fisk með trillu. Ef togari og trilla ættu til dæmis að veiða 100 tonn af þorsk mundi trillan eyða mun meiri olíu þar sem hún þarf að rjúka á haf út margoft en togarinn getur farið einu sinni út, veitt sín tonn og farið með allan afla að landi. Þá er kostnaður við hvern veiddan þorsk mun minni á togara en trillu auk minni hlutfallslegrar fyrirhafnar. Þannig er hver þorskur ódýrari til neytenda á virkum markaði, og þannig þjóðinni til góða. Ef trillukarlinn er að eyða meiru í olíu, tíma (það gleymist oft að taka þann þátt inn í) og annan kostnað þá er hann ekki að gera neinum greiða nema smáborgara komplexinum sínum. Auk þess má benda á að þegar margir vinna á togara er nær hvergi eins mikil beintenging tekna og launa, þannig að allir hagnast sem þar vinna ef vel gengur, ekki síst hásetunum, þannig að "vondi peningamaður" hr. muzaks er ekki einn að græða á þessu. Kerfið sem við búum við bíður þannig upp á það að hægt er að taka lán (og nota fjármagn) til þess að fjárfesta í aukinni hagkvæmni, sem aftur kemur öllum til góða, skipseignanda, lánveitanda svo og hásetunum. Tyrkinn sér ekki þessi "hjartans rök" virka, alla vega svona í raunveruleikanum.
Auðvitað verða allir af hafa taumhald á kapítalismanum eins og á öllum öðrum stefnum, þannig er bara mál með vexti að tyrkjanum finnst hann ekkert vera taumlaus eins og hann er í dag. Reyndar mætti gefa honum svolítið meira lausan tauminn, og til dæmis laga þessi landbúnaðarmál, sbr. síðastu grein. Frekar ætti að horfa til taumhalds á sósíalisma eða kommúnisma, því að mati tyrkjans hafa þau mál farið nokkuð verr í fortíðinni heldur en hin.
Í sambandi við trúmál, þá er tyrkinn sammála um að "Marteinn saurnum Lúther og hyski hans" (svo maður vitni í fólk eins og Muzak, Megas af plötunni Megas) gerðu ágætis hluti fyrir kristni, en samt sem áður er margt ennþá rotið í þeim bransanum. Lengi getur vont skánað, án þess að verða gott.
Nóg í bili, góðar stundir
23.4.02
Langlokan, hraun dagsins
Tyrkinn var að lesa grein Hr. Muzaks þar sem hann fer mikinn að venju. Að mati tyrkjans tekur Hr. Muzak oftar en ekki of mikið upp í sig. Þar miklar hann allt og ýkir að venju og alhæfir ýmislegt og talar eins og þessu landi sé stjórnað af vondum forstjóra, sem flestir vita að ekki er rétt. Einnig stillir hann, eins og svo margir aðrir, upp peningum upp við hliðina á satan sjálfum og virðist halda að allir þeir sem vinna að því að gera vörur ódýrari fyrir almenning vera einnig að vinna að markmiðum kölska með að grafa undan einstaklingum og frelsi þeirra. Tyrkinn telur þetta vera bull. Reyndar hljómar hann alveg eins og hann vonar að hann hljómi ekki, eins og "sjálfsþurftarbúskapar afturhaldsframsóknarmaður". Stór hluti af markaðsbúskapi er einmitt frjáls vinnumarkaður, ekki er fólki skipað í ákveðin störf af alvaldinu, það má frekar kenna við kommúnisma en kapitalisma. Og af hverju þarf að skipa "almenna lífshamingju" og "ódýrt vöruverð" sem andstæður? Tyrkinn veit ekki um Muzak, en ódýrar vörur auka svo sannarlega á skálar lífshamingju tyrkjann (svona til að vera hátíðlegur...). Og af hverju heldur Hr. Muzak að fólk hætti að vera einstaklingar um leið og þeir hætta að vera einyrkjar. Hann vill t.d. örugglega vera þar sem hann er í dag í vefstjórn en að rembast við að rækta nægar kartöflur í kvöldmatinn. Ekki er það einyrkjan sem hefur skilað honum því sem hann hefur í dag.
Einnig má benda á villur í "málflutningi" Muzaks þar sem hann ýkir með að allt væri "hagkvæmara" með að t.d. rækta allt nautakjet á einu risabúi í bandaríkjunum. Til er nefnilega eitt gott lögmál sem kallað er lögmál minnkandi jaðarafkastagetu. Í hnotskurn gengur það út á það að ef maður bætir stanslaust við ákveðnum framleiðsluþáttum þá eykst ekki hagvæmnin stöðugt heldur minnkar þegar ákveðnu magni er náð og skreppur loks saman. Eitt bú mundi þannig fljótt verða of stórt þar sem fjarlægðir í beitarland og neytendur yrði gríðarlegt, auk annara vankanta. Muzak hefur sjálfsagt ætlað að nota þetta dæmi sem ýkt dæmi, en því miður er öll grein hans á þann veg og verður því merkingarlaus að mestu.
Muzak segir: "Einstaklingurinn skiptir nefnilega nýja kapítalismann engu máli, einstaklingsfrelsið er frelsi til neyslu og meiri neyslu, því neyslufrelsi þýðir aukin velta í samfélaginu, aukið rúll á peningum, aukin verksmiðjuframleiðsla og mannfirring." Þetta er ekki rétt, einstaklingsfrelsið er hvergi meira en í þeim löndum sem viðhalda markaðsbúskap, því meiri forsjárhyggja þeim minni frelsi. "Nýji kapítalisminn" er keyrður áfram af einstaklingum sem hafa frelsi til að gera hluti, og gera þá vel án óþarfa afskiptum ríkisvalds.
Muzak heldur því líka fram að "fjármagn" hafi afar skakkt gildismat. Ekki veit tyrkinn til þess að fjármagn hafi neitt gildismat, og hvað þá að fjármagn geri almenningi illt. Tyrkinn reiknar t.d. fastlega með því að þetta sama fjármagn geiri Muzak kleyft að kaupa sér íbúð og að reka fjölskyldu sína á fyrri helming lífs síns. Fjármagn er ekki af hinu illa, það gerir fólki kleyft að gera stóra hluti í krafti stærðarhagvæmni eins og að reisa spítala eða útvega tæki til framleiðslu (og þar af leiðandi létta fólki störf sín) sem ekki væri hægt ella.
Svo talar muzak um hversu rangt það er að fólk hafi mis mikil laun. Ef svo væri ekki væri enginn hvati til þess að gera betur, enginn hvati til framfara. Hver mundi t.d. fara í langt nám eins og læknisfræði í dag vitandi það að viðkomandi fengi jafn mikið af aurum fyrir að gera eitthvað sem þarfnaðist minni fyrirhöfn.
Og bændapólitíkin! Heilagi Allah. Hr. Muzak segir "Ef hann gerði það ekki, er ég viss um að verkfræðingar, kennarar, nemendur og forstjórar væru með ósköp svipuð laun, vegna þess að þeir eru að skila mjög svipuðu verðmæti úr sinni vinnu, það eina sem knýr verðmæti bóndans niður eru tæki þeirra sem eiga peningana, massainnkaup og niðurþvinganir á verði, langt niður fyrir það sem er rétt og gott verð." Staðreyndin er sú að bændastéttin er föst í holu sem framsóknarafturhaldssinnar hafa búið til. Það er getur svo sannarlega verið rétt að íslenskt kjet sé of ódýrt, en það er bara ekkert ódýrt í raun og veru. Skattborgarar þessa ágæta lands eru að borga bændum styrki fyrir að framleiða. Og svo að allt þetta niðurgreidda kjet fari ekki á haugana hafa verið settir kvótar á bændurna sem gjarnan vilja framleiða meira. Þar eru komin alltof mörg bú með of fá kvikindi og enginn er ánægður með sitt nema þeir sem kjamsa á íslensku lambi og átta sig ekki á því hverju þeir eru að fórna fyrir það í raun og veru. Af hverju má ekki leyfa þessum bændum að ráða þessu sjálfum og taka alla styrki af þeim fyrir vikið. Þá framleiða þeir eins mikið og fólkið vill borða. Þeim mundi væntanlega fækka, en margir gætu skriðið upp úr þessari afturhaldsholu og snúið sér að einhverju sem þeir geta gert vel, hinir sem eftir væru mundu geta framleitt eins og þeir vildu og eðlilega af því án þess að rukka skattborgara fyrir það. Kannski mundi verð á afurðunum hækka, en þá væri bara það fólk að kaupa þær sem metur þær á því verði sem þær kostuðu. En eitt má hafa í huga, "massainnkaup" lækka verðið og þannig lækkar verð til neytenda sem hlýtur að vera gott. Þetta hvetur líka bændur til að gera betur, bruðla ekki með auðlindir sínar, og þar fáum við þessa góðu hagkvæmni, sem væntanlega hljómar eins og "þjóðarmorð" eða eitthvað þessháttar í eyrum muzaks. Af hverju ekki að leyfa markaðinum að ráða fram úr þessu, sagan segir okkur að það lagi hag neytenda til langs tíma. Hið "rétta og góða verð" ætti að vera það verð sem fólk er reiðubúið að greiða fyrir vörur, þ.e.a.s. það verð sem fólk metur að sé jafnt eða minna en gildi vörunnar fyrir því.
Að lokum sér tyrkinn ekki hvernig svokallað "óðagot" í frjálsum viðskiptum komi niður á manneskjum. Hann sér einfaldlega ekki hvernig hann fær þessa niðurstöðu í öllum sínum fullyrðingum. En hann kann allavega að vitna í einhvern snilling, sem tyrkinn sér aftur ekki hvað kemur efni hans við. Vonandi særir þessi gagnrýni ekki tilfinningar Hr. Muzaks, en þegar svo stór orð eru notuð má búast við einhverjum svörum. Góðar stundir.
Skemmtileg landskynning þar (lesið textann...)
22.4.02

which "monty python and the holy grail" character are you?
this quiz was made by colleen
Helgarskýrsla Tyrkjans
Tyrkinn þykir leitt að greina frá því að brennivínsneysla hans hefur dregist saman töluvert undanfarna mánuði. Ekki er gott að segja hvort það stafi af öldrun eða skort á kerlingarleysi, en það er eflaust álitamál. Hér áður fyrr var oftar en ekki teknar báðir helgardagar í duglega drykkju og voru drykkjumaðurinn og Herkúles yfirleitt kappsbræður tyrkjans við þá iðju. Nú heyrir það til undantekninga að báðir dagar séu haldnir heilagir, og oft líður helgin án allrar drykkju. Þessi helgi fór þó ekki í súginn því eftir mikið vídeo gláp á föstudaginn var skvett aðeins í aðra löppina á laugardaginn. Tyrkinn ásamt spúsu sinni, Herkúlesi og Gyðninu fóru á djasstónleika á Stúdentakjallaranum til að byrja með. Orri nokkur, nýútskrifaður trompetleikari úr FÍH, var þar að leika lög eftir sjálfan sig auk "standarda" og hljómuðu herlegheitin vel að mati tyrkjans. Stúdentakjallarinn hefur tekið stakkaskiptum frá því að tyrkinn var í Háskólanum, og hefur nú ábyrgur aðili tekið reskturinn að sér. Staðurinn lítur mjög vel út þótt lítill sé og skilst tyrkjanum að þar eigi enn einu sinni að reyna að reka djass stað, en það hefur hingað til ekki tekist vel, sbr. djassbarinn á lækjargötu. Nú, eftir að hafa náð síðustu lögunum þar var haldið að heimili tyrkjans þar sem áfram var drukkið ótæpilega af brennivíni áður en haldið var á rölt. Þessi fríði hópur gerði tvær tilraunir til að fara inn á vafasaman list-dans stað, en var í báðum tilvikum neitað um inngöngu vegna þess að kvenmaður var í hópnum. Lögfræðileg hlið þessa máls var eitthvað rædd við dyraverði, en eins og gefur að skilja fóru þær umræður fyrir lítið sökum gáfnafars þeirra dyravarða, að mati þessa gegnsósa hóps. Að lokum var farið inn á vegamót og var liðinu hennt þar út þegar staðnum var lokað, enda var sennilega kominn tími á liðið. Sunnudagurinn fór í almenna sunnudags vanlíðan og gláp.
19.4.02
Spáin Útlit er fyrir bjórslyddu á suðvestur horninu um helgina. Spáð er sunnan köldum öl seinni partinn í dag, eða á morgun, en styttir upp á sunnudaginn. Búast má við 6-7 ölvunarstigum fyrri part helgar, en um 8-9 þynnkustigum undir lok helgarinnar. Á sunnudaginn færast lægðarskil yfir suðurland og vestur eftir.
18.4.02
Mismunaflokkurinn
Tyrkinn gleymdi alveg að minnast á Mismunaflokkinn tilvonandi. Þessi hugmynd kom upp er tyrkinn, drykkjumaðurinn og Herkúles voru að ræða heimsmálin fyrir nokkru. Þá kom upp sú hugmynd um að stofna nýjan stjórnmálaflokk, nefnilega Mismunaflokkinn. Hugmyndin um mismunaflokkinn kom upp þegar jafnaðarmennskan var farin að fara í taugarnar á borðgestum, og fannst mönnum að kominn væri tími á það að hætta að reyna að jafna alla út í öfgar. Þá þótti mönnum mun skemmtilegra að fara alveg í hina áttina og mismuna bara fólki hraustlega. Ekki voru menn alveg sammála um það hvernig þetta væri framkvæmt, en ef tyrkinn man rétt varð hugmyndin um að "mismuna öllum jafnt" upp á. Þar væru fyrirfram ákveðnar kríteríur til og fólki síðan mismunað á grundvelli þeirra. Þannig væru ýmsir möguleikar um að mismuna eftir öllum hugsanlegum eiginleikum fólks. Ef fólk væri þannig "hagstætt" gagnvart "kríeríunum" mundi það fólk ekki borga skatta, og jafnvel fá borgað með hverri krónu sem það ynni inn. Þeir sem væru ekki kríteríunum að skapi mundu hins vegar borga gríðarháa skatta og ekki njóta sömu hlunninda og hinir fyrrgreindu. Þannig mættu kannski sumir ekki mega keyra bíla, ekki ferðast á ákveðnum svæðum og vera neyddir til að vinna ákveðin störf í tiltekinn tíma, meðan aðrir gætu gert það sem þeim sýndist og vel það. Þarna væri komið gríðar gott afl til að breikka alla umræðu um öll málefni og væru elskaðir af sumum og hataðir af öðrum. Kannski væri alla vega hægt að koma einhverjum á þing til að hrista vel upp í málunum.
Nú vantar bara "kommenta" fítusinn á þessa síðu, því margir vilja eflaust láta heyra í sér núna... Tyrkinn bendir því á e-mail addressuna sína fyrir áhugasama, tyrkinn@hotmail.com .
Hint?
Tyrkinn er enn að reyna að túlka sængurfatakaup frúnnar í gær. Svo er mál með vexti að frau Achbar fór í gær og keypti ný sængurföt, og voru þau með snákaskinns mynstri. Að sögn hennar var ekkert til nema einhver viðbjóðsleg mynstur með stráum eða blómum ýmis konar, og þetta var minnst silly, þótt silly væri. Reyndar eru svona hlutir að jafnaði ljótir eins og svo margt annað, og óvenju ljótir í Rúmfatalagernum. En ætlir frau achbar sé að gefa eitthvað í skyn?...
Aðrir hlutir sem eru ljótir eru skór. Tyrkinn hatar að versla skó. Verslunarleiðangrar af þessari sort ganga yfirleitt út á það að versla sér sem minnst ljóta skó. Nær allir skór eru ljótir að mati tyrkjans, alla vega þegar hann þarf að versla sér slíka. Íþróttaskór eru þó allra skóa ljótastir og vekur það furðu tyrkjans hvað hönnuðum þeirra gengur til. Einhverra hluta vegna líta þó skór betur út á fólki þegar það er í skóm á annað borð, þetta á þó ekki við íþróttaskó, þeir eru alltaf ljótir.
17.4.02
Duglegur Tyrkinn kláraði skattinn í gær, en hann fékk einmitt frest til 19. þessa mánaðar. Einnig tók hann sig til og boraði fyrir hluta-grind í sturtuna góðu (þess má geta að enginn mætti á sýningartíma) og festi hana upp, skipti um peru í svefnherberginu (mikið stunt, stól ofan á rúmið, bráð lífshætta þar) og losaði fúu-stífluna í sturtunni. Duglegur tyrki. Í fyrra klúðraðist skatturinn hjá tyrkjanum þegar það vantaði ein tvö lán inn á skýrsluna, og varð það til þess að tyrkinn þurfti að greiða all nokkra tugi þúsunda í álagningunni í lok síðasta árs. Kæruna fékk hann svo í hausinn aftur frá skattinum með skömmum. Tyrkinn pantar að vinna ekki hjá skattinum.
Frúin fór og keypti grindina umtöluðu í sturtuna í gær, þetta átti ekki að vera mikið mál, ein horngrind fyrir sjampóbrúsa og þessháttar drasl en það er ekkert úrval af þessu dóti í þessum búðum. Frúin komst einnig að því að Húsasmiðjan er okurbúlla og að lokum náðust samningar í Byko. Achbar fjölskyldan er komið með óþol fyrir verslunum, og sérstaklega svona innréttingar og flísaverslunum.
16.4.02
Sörvævör
Tyrkinn játar það að hafa gaman af Survivor á skjá 1. Í gær horfði hann á þáttinn og var bara nokkuð ánægður að vanda. Honum finnst alveg merkilegt hvað þetta lið getur verið vitlaust, sumir bjóða beinlínis upp á það að tapa með heimskulegum rifrildum og kommentum. Gaurinn sem fékk að fjúka í gær var til dæmis alveg merkilega heimskur þegar hann bjó til einhver leiðindi úr engu. Svo og nokkrir liðsmenn hans sem áttu sér þar leik á borði með að halda sér í keppninni en klúðruðu því á einhvern óskiljanlegan hátt. Heimskustu gaurarnir eru án efa tveir "snillingar" Blámaður úr Harlem með gríðarlegt "attitude"-vandamál og óheyrilega heimskur vinur hans, örugglega frá miðríkjum bandaríkjanna sem getur varla komið upp orði án þess að koma upp um haustóm sitt. Náunginn sem vann síðast gerði þetta alveg rétt, halda sig á hliðarlínunni og vera bara svona næs og ísí og renna þannig í gegn án þess að reyna að stjórna öllum og vera með atgang. Team Tyrkinn mundi taka þessa keppni í görnina, ef eitthver hópur fengi að keppa sem áður þekktust væri leikurinn ekki að ganga út á heimskulega félagsfræði bandaríkjamanna, heldur hverjir gætu lifað og unnið keppnir á eyðieyjunni.
15.4.02
Stóra Sturtumálið (Finale) - Helgarskýrsla Tyrkjans Lof sé allah. Stóra Sturtumálið er loks á enda og tyrkinn fór í sturtubað er hann vaknaði í morgun. Það að hafa sturtu eða bað eru stórlega vanmetin gæði hér á landi. Tyrkjanum finnst að allir ættu að prófa að vera sturtulausir í nokkrar vikur a.m.k. einu sinni á ævinni til að meta að fullu þessa nautn sem búk-hreinlæti í skjóli heimilisins er. Helgin fór meira og minna í sturtukvikindið í þetta skiptið, ekkert var drukkið þessa helgi og einkenndist hún einkum af duglegheitum og sjónvarpsglápi. Í kvöld er því opið hús á milli 19:00 og 20:00 þar sem fólk getur komið og barið kvikindið augum og dáðst að handbragði tyrkjans og spúsu hans, miðaverði verður stillt í hóf.
Ammli Móðir frú Achbar átti afmæli þann 13. síðastliðinn og var því haldið að heimil hennar í gær í mat. Frú Achbar eldaði Lasagnía af stakri snilld. Frúin keypti "Stóru Draumaráðningabókina" handa móður sinni, því ekki er sjaldgæft (alltaf gaman af tvöfaldri neitun) að móðirin hringi og lætur dóttur sína fletta upp á ráðningum á draumum sínum. Tyrkinn notaði tækifærið í Eymundsson og keypti sér Íslenska orðabók. Gott að eiga svona orðabók þar sem orðaforði tyrkjans er svosum ekki upp á marga fiska. Einnig gaman að eiga svoleiðis þegar frúin heldur því fram að einhver orð séu ekki til. Til dæmis má nefna að hún hló upp í opið geðið á Tyrkjanum þegar hann notaði orðin "Sauðnaut" (um bróður sinn), "Garnakvef" (þegar hann var súr í maganum) og "Kverkaskítur" (Tyrkinn er með krónískann kverkaskít). Einnig gott til að hafa hemil á heimilisofbeldi þegar "Scrabble" er spilað.
Hálfvitar mánaðarins Hálfvitar mánaðarins eru Ítalir, allir með tölu. Þessir snillingar bjuggu til sturtuklefann umtalaða, og mátti margt betur fara. Leiðbeiningarnar voru t.d. ekki upp á marga fiska og einnig vantaði nokkur göt á grindina sem voru á myndum en tyrkinn þurfti að bora í prófílstálið með tilheyrandi veseni. Hálfvitar, allir með tölu. Frúin var svo að stinga upp á því að fara til Flórens í sumar, sjáum til með það....
Geimverur Tyrkinn horfði á "Aliens" í gær, en poppstjarnan lánaði honum fyrstu tvær myndirnar í þeirri seríu fyrir nokkru. Tyrkinn er ekki frá því að fleirtölu myndin sé betri en sú sem í eintölu er eftir að hafa horft á þær báðar aftur. Fínt aksjón og Sígörní víver stendur sig mjög vel. Poppstjarnan sagði hana vera fyrstu kvenkyns aksjón-kvikmyndastjörnuna, og er tyrkinn ekki hissa á því að hún hafi rutt þá braut. Kannski væri Lara Croft Larry Croft ef Sigörní hefði ekki verið svona töff.
12.4.02
Stóra sturtumálið Tyrkinn er skítugur, skítugur tyrki. Þó ekki alvarlega því hann fór í fótbolta í gær með öðrum meðlimum FC Sokks. Nú fer þó að líða að því að hann geti farið að þrífa sig eins vel og hann gerði fyrir stóra sturtumálið. Þannig er nefnilega mál með vexti að í gær var svokölluð "fúa" sett á milli flísanna margumtöluðu. Nú á bara eftir að setja soldið sílí á samskeyti og skella klefanum góða upp. Þá verður gaman. Þetta er orðið svo mikið ferli að það liggur við að haldið verði uppsetningar-partý í sloti tyrkjans þegar þessu líkur.
Asni góður grikkur það, frá hrokafulla hagfræðinemanum
11.4.02
Góð íslensk síða með íslensku rokki, hljómsveitin bris hljómar ekki sem verst
Dumb it down- counter stike á netinu, um 1 MB (gæti verið lengi að hlaðast inn)
Bölvaðir gyðingarnir!
Nýr bloggari mættur
Hann Lýður er góður drengur, og auk þess er hann helvíti skemmtilegur penni að mati Tyrkjans. Hann er kominn með nýja síðu Þar sem hann deilir skoðunum sínum með samborgurum.
10.4.02
Ríkissjónvarpið hraunar á alþingi
Tyrkinn var að horfa á fréttir í fyrradag og þar var frétt um að umræður á alþingi væru um hvort fólk mætti dreyfa ösku sinni yfir hálendið eða úti á sjó eftir líkbrennslu. Yfirskrift fréttarinnar var "Léttúð" og ekki að ástæðulausu. Þingmönnum þótti þetta málefni hin besta skemmtun og hló fólk og flissaði eins og smástelpur þegar þingmenn skiptust á að vera fyndnir í pontu. Einhver "sniðug" þingkona sagði eitthvað á þessa leið; "...það er ekki eins og fólk muni þurfa vaða í einhverjum gjóskulögum uppi á hálendi ef þetta verður heimilað...". Tyrkjanum finnst þetta óviðeigandi og að mati hans náði sjónvarpið þeim í bólinu þegar það sýndi viðbrögð þeirra fáu sem voru í salnum og þeirra sem stóðu rétt út á gangi við salinn. Þetta er greinilega allt saman grín fyrir þeim.
Töffari dagsins
Dirty Harry (1971)
Harry Callahan: I know what you're thinking. Did he fire six shots or only five? Well, to tell you the truth, in all this excitement, I've kinda lost track myself. But being as this is a .44 Magnum, the most powerful handgun in the world, and would blow your head clean off, you've got to ask yourself one question: Do I feel lucky? Well, do ya punk?
...þetta er náttúrulega algjör klassík
9.4.02
Hraun dagsins Tyrkinn slysaðist inn á stað á lækjargötu í hádeginu til að næla sér í eitthvað að snæða. Þetta er sérkennilegur staður sem heitir "This" og var á sínum tíma auglýstur sem einhver heimsklassa keðja en ekki íslensk vegasjoppa (Auglýsingin var "This is it" með Hjúví Lúvis). Fókusinn á staðnum er líka furðulegur, auglýsa ódýrasta ís í bænum og selja nammi auk landsbyggðarborgara og ákaflega sérstakar lokur, eða "björgunarbáta" eins og þeir kjósa að kalla það. Sérkennilegar innréttingar, og maður fær á tilfinninguna að þeir hafi ekki alveg verið búnir að ákveða hvurn andskotan þeir ætluðu að gera með þennan stað. Það sem leit skárst út á matseðlinum var "björgunarbátur" með aspas, skinku osti og grænmeti. Þetta kom svo í furðulegu brauði (einna líkast kebab brauði), en bitinn var vita bragðlaus og efnislítill, og hreint ekki góður. Þegar tyrkinn ætlaði að borga (auðvitað virkaði posinn ekki) var hann spurður hvað honum fyndist um bitann. Þegar hann umlaði og tautaði til að svívirða ekki konuna, bar hún það fyrir sig að bátarnir væru ennþá í þróun og bauðst hún til að slá um 10% af vegna þess þegar hún sá að tyrkinn var ekki par ánægður. Tyrkinn mælir ekki með þessum stað, nema einhver þori í ódýrasta ísinn á landinu, en það verður að vera á ábyrgð lesenda. Tyrkinn er orðinn svangur aftur...
Sendibréf
Kæra ríkisstjórn, Þannig er mál með vexti að skortur á peningaleysi er að hrjá mig þessa dagana, og ég veit að þið getið reddað mér. Mig langar voða mikið í jeppa, vélsleða og hús á Spáni. Væruð þið ekki til í að ganga í ábyrgð fyrir mig svo ég geti látið þetta verða allt að veruleika? Ég veit að dr. Kári fékk svoleiðis og svo fengu flugleiðir ábyrgð upp á skrilljónir líka. Það væri miklu auðveldara að redda mér bara pínu, plís?
Virðingarfyllst, Halim Al Achbar
Bond-dama slasast við tökur á nýju bondmyndinni
Halle Berry fékk brot úr reyksprengju í augað á sér á spáni við tökur á nýju íslands-bond-myndinni. Hún mun vera lifandi en rauðeygð. Þess má geta að hún heitir "Jinx" í myndinni....
Hryðjuverk á Hörpugötu
Albatrossinn varð fyrir hriðjuverkum á Hörpugötu, fyrir utan heimili Bjarkans. Þar var honum parkerað á föstudaginn var er haldið var á árshátið FC Sokks og ekki sóttur fyrr en rétt áðan. Er tyrkinn ræsti kaggann og ætlaði að halda aftur til vinnu tók hann eftir óvenju vondri útsendingu á útvarpinu. Þá var honum litið aftan á vagninn og viti menn, hryðjuverkamenn höfðu haft loftnet albatrossins með sér á brott. Ekki er enn vitað hvaða aðferðir hryðjuverkamennirnir notuðu til að spjalla bílinn, en tyrkinn reiknar með að sprengjusérfræðingur hafi komið að málinu. Enginn hefur enn líst yfir ábyrgð á ódæðinu, þannig að óvíst er hvort um sé að ræða Ísraelsmenn eða félag íslenskra þjóðrembusinna.
Hani Tyrkinn tók þá ákvörðun á leiðina í vinnuna í morgun að fara ekki beint þangað heldur skreppa í sund, eða svo. Svo hann yrði ekki allt of seinn fór hann reyndar bara í sturtu, en góð var hún. Laugardalslaugin (eða Laugadagslaugin eins og sumir kjósa að kalla hana) varð fyrir valinu, því hún er jú alveg ágæt. Baðvörðurinn vekur þó óhug hjá tyrkjanum, hann er eitthvað ekki alveg. Menn með skalla og tagl eru væntanlega allir með eitthvað óhreint í pokahorninu. Sturtan er nebblilega ekki komin upp...
8.4.02
Helgarskýrsla Tyrkjans
Þessi helgi var í erfiðari kantinum. Á föstudaginn var árshátíð FC Sokks, og var hún haldin heima hjá Bjarkanum að þessu sinni. Hún var tiltölulega einföld í framkvæmd og samanstóð hún einkum af lummum og brennivíni. Eftir að hafa tekið vel á því þar var haldið á Gaukinn þar sem hópur úr afmæli Hrellunnar var samankominn (kom frá Thorvaldssen (tyrkinn ekki alveg með nafnið á hreinu)) og poppstjörnurnar áttu að leika fyrir dansi. Þegar þangað var komið var tyrkinn eitthvað hálf þreyttur eftir eril vikunnar, en þeirr þreytu var útrýmt með ótæpilega miklu magni af brennivíni. Partýtrikk mánaðarins var kynnt af Begga og hétu herlegheitin "Sambuca Crazy". Trikkið gengur út á það að setja staup á undirskál og hella vel af Sambuca (magamyrðandi skot-brennivín með anískeim) í staupið þangað til flæðir yfir brúnir þess. Því næst er kveikt í sullinu og látið loga smá stund með bjórglas á hvolfi yfir. Þá er bjórglasið fært neðar þangað til það kæfir eldinn og safnast fyrir áfengisgufur inni í glasinu. Þá heldur einhver fyrir glasið (í þessu tilfelli barþjónninn) svo gufurnar fari ekki út. Þá er fórnarlambið látið klára úr staupinu með röri og strax þegar staupið er tómt skal það sjúga gufurnar undan undir bjórglasinu svo vel rífi í öll innyfli. Ágætis trikk, einnig gott fyrir athyglissjúka þar sem þetta er tilkomumikið show fyrri óvana. Þegar fór að líða á kvöldið tóku tyrkinn og Herkúles þá afdrifaríku ákvörðun að standa á löppum þangað til þeim væri hennt út og láta óðslega, og svo varð úr. Eftir að hafa farið á svið og sungið bakraddir með poppstjörnunum og dansa eins og hauslaus hæna var tyrkjanum ásamt fríðu föruneyti hent út af Gauknum upp úr klukkan 6 þann morguninn. Laugardagurinn var gríðar erfiður eins og vita mátti kvöldið áður. Tyrkinn svaf til hálf fimm og hékk svo ónýtur yfir kassanum fram á nótt með harðsperrur (eða hass-perur eins og tyrkinn kýs að kalla þær) í hálsinum eftir djöfulganginn á dansgólfinu. Þó náðist að grunna og vatnsverja tilvonandi sturtuklefann sem nú er orðinn nokkurra vikna verkefni.
5.4.02
Helgarútlitið Í kvöld er allt að gerast. Þá á að vera árshátíð FC Sokks sem er reyndar enn laus í liðunum, en planið er enn sem komið að éta eitthvað á einhverjum að ekki-bestu-veitingastöðum borgarinnar, láta óðslega og drekka svo brennivín í heimahúsi. Tyrkinn "hóstaði" partíið seinast og var mikill djöfulgangur í liðinu, hann sleppur því við að endurtaka leikinn í ár. Reyndar var mikið til sama lið í afmæli tyrkjans og gyðnisins á síðasta ári, en þá sá lögreglan sér ástæðu til að grípa inn í málin. Svo verður reyndar afmælisveislan Já líka í kvöld. Þá er bara að skrappa í mjólkurbúðina...
Júðarnir á tal.is vildu ekki birta "halim.klanid.com" skjámynd á síma á vef sínum, vanþakkláta pakk!
2.4.02
Mjög áhugaverð og metnaðarfull síða!
Páskaskýrsla Tyrkjans Þar sem skammtímaminni tyrkjans er ekki upp á marga fiska verður reynt að tíunda páskana eftir besta minni, engin ábyrgð er tekin á tímasetningum.
Á miðvikudaginn var ráðist í stóra sturtu-málið. Af sjálfsögðu kom það í ljós að vandinn var mun meiri en tyrkinn hafði þorað að vona. Það má segja að snillingurinn sem átti íbúðina árið 1991 sé hálfviti og mun reiði allah mæta honum á dauðadegi. Sá snillingur hafði riggað upp sturtunni með tveimur spónarplötum ofan á veggina, skrúfað með 50 skrúfum, sparslað yfir skrúfuhausana og málað herlegheitin síðan. Þetta er ekki sniðugur frágangur á sturtu, því eins og flestir vita eru slík apparöt oftar en ekki bleytt ósjaldan og spónarplötur og vatn eru ekki góðir vinir. Þegar tyrkinn var búinn að rífa plöturnar af veggnum kom í ljós að undir þeim var ekki falleg sjón, aðrar flekkóttar rakar og ógeðslegar spónarplötur. Reynt var að kaupa svoleiðis plötur á laugardaginn, en það kom í ljós að BYKO og Húsasmiðjan nenna ekki að saga niður þessar plötur sem seldar eru í iðnaðar-stærðum nema í ákveðnum verslunum á ákveðnum tíma þegar þeir hafa ekkert betra að gera. Svo vita þessir snillingar ekki neitt ef hringt er í þá, og vilja bara fá mann á staðinn til að komast að því að ekkert er til. Verkefnið Sturta 2002 sem átti að ljúka yfir páskana er því enn á byrjunarstigi. Þegar ekki var hægt að klára það var bara eitt til ráða, reyna að koma einhverju brennivíni í liðið.
Á skírdag var haldið í kvöldmat hjá móður tyrkjans og heim til Poppstjörnunnar þar sem matarboð var haldið sama kvöld. Þar var setið að drykkju á meðan kvenpeningurinn dansaði við gamlar lummur. Poppstjarnan sýndi viðstöddum hin stórkostlegu undur expresso-vélarinnar sem hún fékk í jólagjöf frá frúnni, poppstjarnan er nefnilega kaffisjúklingur hinn mesti og mun það væntanlega enda með einhvers konar meðferð. Tyrkinn mælir frekar með grænu tei, "Green Energy" frá Yogi Bhajan's er t.d. góður valkostur fyrir kafffi.
Föstudagurinn langi var nokkuð langur og erfiður, vegna ofdrykkju kvöldið áður. Tyrkinn er ekki frá því að hann hafi alla vega verið um 29 klukkustundir, og er það ekki vel. Gott ef sá dagur fór ekki bara í þynnku, og e.t.v. bíóferð með Herkúlesi og Drykkjumanninum.
Á laugardaginn var þynnkan að renna úr Achbar fólkinu og því tekið á það ráð að bjóða fólki yfir í almenna drykkju. Kúles og Drykkjumaðurinn voru þar ásamt Gyðninu, Siggu, Alla (sem er vinur Siggu) , og Gústi og Ilmur (einnig vinir Siggu). Þar var eitthvað drukkið en þó í hófi og endaði kvöldið friðsamlega. Mikil örtröð var í geislaspilara tyrkjans þetta kvöldið og vildu flestir koma sínu að. Afleiðing af þessari biðröð var sú að fólk virtist ekki geta haldið á diskunum og var fólk alltaf að missa þá í gólfið, sem gerðist a.m.k 10-12 sinnum og var tyrkjanum farið að leiðast það sport. Engin slys urðu þó á fólki.
Á Páskadag var svo haldið í mat hjá tengdó og var hann góður. Eftir það var svo haldið í innflutningspartý hjá Bjarkanum sem búið var að bíða eftir alla páskana. Íbúðin þeirra Kollu var flott og var Kollan búin að skreyta hana eins og henni einni er lagið og var hún hin snotrasta, fyrir utan það að ekki var hægt að loka klósetthurðinni sem var með stóru gati í stað skráar. Þetta kom í veg fyrir það að tyrkinn gæti "eyðilagt" postulínið hjá þeim, en það kom ekki að sökum, sökum brennivínsdrykkju.
Mánudagurinn var ömurlegur í flesta staði, sökum drykkju sunnudagsins (þetta helst allt í hendur). Eftir mikla þynnkulegu var þó haldið til móður tyrkjans í rjúpur og svínakjet til að kveðja "Stóru" eins og hún kýs að kalla sig (eldri systir tyrkjans) og hennar fjölskyldu sem voru að fara eftir 2 vikna dvöl.
|
|
|
|
|