|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
31.5.02
Erfið helgi framundan... Tyrkinn sér fram á erfiða helgi. Beint eftir vinnu verður farið á Tapas að eta og drekka brennivín, en það mun verða upphitun fyrir ríjúníon á Gauknum seinna um kvöldið. Nú eru nebblilega 10 ár síðan tyrkinn útskrifaðist úr grunnskóla. Tyrkjanum finnst asnalega stutt að aðeins séu 10 ár síðan hann var með hor að bölva gangavörðum, en á hinn veginn man hann glettilega vel eftir þessum tíma, nema þessar minningar séu allar stórbrenglaðar, sem aftur á móti er ekki ólíklegt. Þar á að drekka brennivín fram á nótt og láta óðslega. Tyrkinn, Fritz og poppstjarnan fóru einmitt í það mál í gær að búa til safndiska frá þessu tímabili til að leika í kvöld á gauknum. Þar kenndi ýmissa grasa, í rokkdeildinni mátti til dæmis finna slagara eins og "Dr. Feelgood" með Mötley Crew og "Thunderstruck" með AC/DC. Í poppdeildinni mátti hins vegar finna afar vafasöm lög eins og "No limit" með 2 Unlimited og "Eternal flame" með einhverjum sem tyrkinn man ekki hvað heita. Alls voru gerðir 3 diskar sem vonandi vekja lukku hjá gömlum skólafélögum.
Vondu fréttirnar eru þær að í fyrramálið þarf tyrkinn að rífa sig upp og keyra upp í Hvalfjörð til að hjálpa ættingjum að endurnýja sólpallinn á sumarbústað ömmu Achbar, vænanlega verður tyrkinn ekki í besta ástandi til slíkra æfinga...sjáum til...
Skömmu eftir verklok verður farið í meiri drykkju og endað á sumarhátíð nokkurri þar sem ætlast er til meiri brennivínsdrykku. Væntanlega verður tyrkinn orðinn all súr þegar fer að líða á hana, það eru nefnilega 10 ár síðan hann tók samræmdu sjáið til.
Góðu fréttirnar eru hins vegar að tyrkinn fer í frí eftir rúma viku, frí er gott.
___
Tyrkinn horfði á Frakkland-Senegal áðan með öðru og fannst senegalar nokkuð svalir að taka heimsmeistarana í ósmurt, enda þótt frakkarnir voru meira sannfærandi í leiknum.
Tyrkinn tekur nú þátt í tveimur veðmálum sem bæði eiga sér stað á nokkuð öflugum vef, sem væntanlega er of seint að kynna núna:
http://worldcup.cyki.com/
Verðlaun í báðum veðmálum eru ógrynni af bjór svo til mikils er að vinna, verst er að tyrkinn hefur ekki hundsvit á þessum kappleik og treystir oftar en ekki á tölfræði en fótboltavisku svokallað, sjáum til hvernig það fer.
29.5.02
Annað ammli
Litla systir tyrkjans átti afmæli í gær (22. ára) og bauð tyrkjamóðirin út að borða í því tilefni. Móðirin bauð upp á alvöru franskt sjampó fyrir matinn, óvenju dökkt og frekar sætt þrátt fyrir "Demi-Sec" áletrun á flöskuna. Tyrkinn ásamt móður og spúsu fóru því til Hafnafjarðar á tælenska veitingastaðinn "Síam". Þessi staður er lítll og heimilislegur, enda vinna hjón þar ein, íslensk kona og tælenskur eiginmaður hennar. Eins og allir tælenskir staðir hér á landi er maturinn betri en útlit staðarins gefur til kynna, en einhver innanhús arkitekt mætti taka þennan geira fyrir. Þessi staður er þó betri en aðrir svipaðir hér á landi, maturinn var gríðarlega góður. Hópurinn pantaði nokkra rétti saman svo tyrkinn smakkaði á ýmsu ólíku, en allt var óvenju gott og át hann á sig gat. Get hiklaust mælt með þessum stað, ekki of dýr, og ekki of fansí, en ef maður fer til þess eins að borða er hann vel þess virði. Eina óheppilega við hann er staðsetningin, ekki nennir maður í Habbbnafjörðinn í hvert skipti sem manni langar í góðan austurlenskan mat. Einhvers staðar er hægt að finna matseðilinn á netinu, en reyndist erfitt að ná sambandi á mánudegi, staðurinn lokaður og enginn símsvari eða neitt.
Síam * * * * (af 5 mögulegum)
28.5.02
Gettem væl ðer jöng
Tyrkinn fór fyrir nokkru síðan í Eymundsson á Lækjargötu að kaupa eina eða tvær bækur í afmælisgjafir. Gott ef hann var ekki bara að versla afmælisgjafir fyrir Bjarkann og Sigguna í þetta skiptið. Þegar tyrkinn fór að afgreiðsluborðinu stóð þar afar hjálpsöm kona og bauðst hún til að pakka gjöfunum inn, sem kom sér afar vel. Til að toppa það rétti hún tyrkjanum barnabók í kaupbæti sem tyrkinn þáði með þökkum. Þessi bók var "gefin" út af viku bókarinnar þegar Laxnes var í sem mestum fókus. Bókin heitir "Töfrataflið og aðrar sögur" og samanstendur hún af 11 sögum eftir mismunandi íslenska samtímabarnabókahöfunda. Þar sem sögurnar eru tiltölulega stuttar og einfalldar ákvað tyrkinn að hennar staður á heimilinu væri við hliðina á postulínsstólnum á klósettinu. Lengi hefur tyrkjan dreymt um jafn eigulegt safn af svokölluðum B.C. bókum og Garfield bókum eins og drykkjumaðurinn á, en þessi barnabók varð að duga þangað til. Undanfarna daga hefur tyrkinn gripið til bókarinnar góðu á erfiðum setum á dollunni og lesið eina og eina. Sögurnar eru afar mismunandi á allan hátt, til dæmis er ein sem er skrifuð í tölvupóstformi þar sem stúlka nokkur og móðir hennar skrifast á þegar stúlkan fer til danmerkur á lúðrasveitamót. Aðrar eru fjær veruleikanum þar sem talandi páfagaukar og englar eru í aðalhlutverkum. Ein saga stendur þó hæst í huga tyrkjans. Það er meiriháttar áróðurssaga sem er auk þess illa dulbúin sem slík og gæti þess vegna verið ein ræða Steingríms J af alþingi, þótt eflaust hefði hann fengið bjölluna á sig þar. Ekki man tyrkinn hvað höfundurinn heitir en hann ber að varast þegar keyptar eru bækur handa börnum, vonandi mun nafnið vera birt hér við fyrsta tækifæri. Nú, sagan fjallar um engil sem sendur er niður til jarðar af guði sjálfum til að breyta hlutunum á eyju í Atlandshafi (hvaða eyja ætli það eigi að vera). Reyndar er byrjað á því að minnast á það að guð fengi sjálfur að fremja "prakkarastrik" einu sinni á árþúsundi eða svo, og notaði hann tækifæri sitt í þetta. Engillinn átti að fá vondu ráðamennina á eyjunni til að hætta að hugsa um verksmiðjur og hlutabréf (matreitt eins og verksmiðjur og hlutabréf væru verkfæri djöfulsins) og hugsa þess í stað um hið yndislega hálendi sem átti að fara að grafa í. Til að gera langa sögu stutta tókst englinum með einhvers konar eiturlyfjum eða hugsunarstjórnun að fá vondu ráðamennina til að missa sig dansa og syngja og hætta við allar framkvæmdir á hálendi eyjunnar. Undir lok sögunnar var allt alþingi farið að dansa og syngja og hlaupa út í haga til njóta náttúrunnar sem þeir væntanlega höfðu aldrei séð. Einn frasi var eitthvað á þennan veg: "Aðal ráðamaðurinn var meira að segja syngjandi og hlæjandi svo að allt dökka krullaða hárið hans hristist...". Tyrkjanum finnst hálf smánarlegt að matreiða svona hluti til að lesa fyrir börn og koma þannig skoðunum ákveðinna manna að í kvöldlestri, sérstaklega þar sem krakkar gætu tekið þessu full alvarlega og fara að horfa á verksmiðjur og hlutabréf á verkfæri kölska. Stjórnmálaskoðanir eiga ekki heima í barnabókum að mati tyrkjans, tala ekki um þegar þær eru settar fram einhliða, þessu bjóst tyrkinn alla vega ekki við.
Af vef samtaka iðnaðarins, www.si.is :
TÖFRATAFLIÐ OG AÐRAR SÖGUR Bókin Töfrataflið og aðrar sögur kemur út í tilefni Viku bókarinnar 2002. Bók vikunnar er smásagnasafn eftir 11 íslenska höfunda fyrir börn á aldrinum 9-13 ára. Hún kemur í bókaverslanir á dag og verður gefin viðskiptavinum sem kaupa bækur fyrir 1000 krónur eða meira þessa viku. Höfundar sagnanna eru Aðalsteinn Ásberg, Andri Snær Magnason, Auður Jónsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Helgi Guðmundsson, Iðunn Steinsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Sigrún Eldjárn, Þórður Helgason og Yrsa Sigurðardóttir.
27.5.02
Magnaður "pilot" þáttur úr smiðju japana, sem eru með skrítnan húmor. Fundið á síðu hr. Muzaks (sjá á listanum til vinstri).
Helgarskýrsla Tyrkjans
Sigurrós í höllinni, köttur, kotra, kosið, grill, brennivín, heimboð, partý, þynnka, tónleikar...
Föstudagur: Tyrkinn fór á Hrafnagaldurinn í laugardalshöllinni á föstudaginn ásamt spúsunni. Eins og við mátti búast voru all nokkrir þar sem tyrkinn kannast við, Herkúles var þar einhvers staðar með föður sínum, Gyðnið og Siggan ásamt fjölskyldu hennar, móðir tyrkjans og systkyni og fleiri, þótt tyrkinn hafi ekki komið auga á neinn kunnuglegan, nema kannski Megas sem var víst svo spenntur að hann drap kött fyrir tónleikana, skv. Rás 1. Gaman var að mæta loks á tónleika í þessari hörmulegu höll þar sem maður gat setið á rassgatinu og horft án þess að láta gelgjur og aðra traðka á löppunum á sér, þetta var nær því að fara á tónleika í Háskólabíó. Tyrkinn vissi ekki alveg við hverju var að búast á þessum tónleikum, enda furðulegt kombó á ferðinni. En ekki varð hann fyrir vonbrigðum, þvert á móti. Tónleikarnir voru nefnilega snilld að mati tyrkjans, og vonar hann að þetta komi út á DVD, eða CD í það minnsta. Gríðarlegur kraftur var í hljómsveitinni þar sem rafmagnshljóðfæri Sigurrósar hljómuðu með strengjum og slagverki klassísku tónlistarmannanna, og ætlaði þakið af húsinu undir lokin á meðan öll hár risu á tyrkjanum. Flestir virtust ánægðir með tónleikana, nema stríðsguðinn Herkúles sem fannst hann hafa heyrt margt áður og ýmislegt sem fór í hans fínustu, en hann um það.
Hrafnagaldurinn * * * * * (af 5 mögulegum)
Laugardagur: Eins og flestir vita var gríðar-blíða á laugardaginn. Tyrkinn fór að kjósa í ráðhúsið og fékk sér morgunmat á brennslunni eftir að hafa farið í hár-kött. Svo var haldið heim að spila Kotru á tyrkjasvölunum þar til sólin fór að vera ónotaleg. Seinna komu Herkúles, Gyðnið, Siggan, Bjarkinn, Kollan og Fritz með dóttur sína á euro-kosningavöku. Gyðnið hafði fjárfest í pípu og einhverju furðu-píputóbaki fyrir kvöldið til að lúkka betur, sem hann og gerði, dæmigert Gyðni. Keti ýmiskonar var hennt á grillið og drukkið nokkuð stíft. Eftir nokkur vonbrigði bæði með Eurovision og kosningarnar var sú ákvörðun tekin að drekka stefnulaust og gera gott úr kvöldinu. Þá var haldið í næstu götu í partý hjá vinkonu Kollunnar, allir viðstaddir nema spúsan sem nú var orðin sybbin. Þar var nokkuð gaman og voru græjurnar þanndar og skeggrætt yfir glösum. Þegar flestir voru orðnir hauslausir var ákveðið að ganga niðrá bryggju í góða veðrinu. Þá var kíkt niðrí bæ, en allt var þar að loka og var þá kvöldið kallað dagur, eða þannig. Tyrkinn komst einhvern veginn heim aftur um 6 leitið, býsna þrekaður eftir dólgslætin.
Sunnudagur: Tyrkinn er að verða gamall, hann er ekki frá því að þynnkan ágerst í hvert skipti og er það ekki gott. Í þetta skipti var hún all vond. Þóra söngspýra var að klára söngnámið og hélt burtfarartónleika ásamt vinkonu sinni. Tónleikarnir voru ágætir í ljósi ástands tyrkjans sem óskaði þess að sitja við hurðina til að geta brugðið sér á örninn ef brennivínið ætlaði eitthvað að kíkja aftur upp úr tyrkjanum, en sem betur fer gerðist þess ekki þörf. Svo var boðið heim til hennar í snyttur og brennivín fyrir þá sem vildu. Sökum slappleika var ekki stoppað lengi þar, en haldið heim á sófann að stara út í loft. Tyrkinn var ekkert mjög hress, en ekki skánaði það þegar hann komst að því að sauðurinn Ólafur F-lista maður komst með sjálfan sig í borgarstjórn, það er nú einn vitleysingurinn, uss.
24.5.02
Vorboðinn ljúfi vinsælli en Birta
Loksins vann Ísland í Eurovision! Júróvisjón fugla reyndar, en sigurinn er ekki minni fyrir vikið. Um 30.000 dómarar kusu íslenska keppandann þann besta og er Lóan íslendingum til sóma. Lesa má nánar um þessa stórmerkilegu keppni á moggavefnum eða á vef fuglajúróvisjón. Hlaut að koma að því....
Helgarspáin
Tyrkinn er að fara á Hrafnagaldur í höllinni í kvöld, þar sem búast má við að Sigurrós & Co. fari á kostum, og satt að segja er tyrkjanum farið að hlakka til. Á morgun er svo hár-köttur og euro-vote-grill-bjór í sloti tyrkjans um kvöldið. Á sunnudaginn eru útskrifatartónleikar Þóru sem er að klára söngnám, og e.t.v. verða afréttarar í boði eftir það. Og nú fer að styttast í sumarfrí....
Stjörnustríð: 2. Kapítuli
Tyrkinn skellti sér á nýjustu stjörnustríðsmyndina í gær. Ekki var hann laus við spennu þegar lagið hljómaði í byrjun myndarinnar og formálinn flaug út í geim eins og frægt er orðið. Myndin var ágæt, þótt vankantar voru á henni eins og meiri starwars-nöttarar þora væntanlega ekki að viðurkenna. Öll grafík var náttúrulega til fyrirmyndar og öll "action" atriði mjög góð. Það sem tyrkjanum fannst vanta upp á var almennilegur leikur hjá nokkrum leikurum. Til dæmis gæti leikarinn sem lék Anakin ekki platað ömmu sína með sínum leik, hann saug einfaldlega í rassgat, svo tekið sé sterkt til orða. Reyndar voru flest samtöl og önnur non-action atriði hálf þvinguð öll og ekki sannfærandi, eða flest öll a.m.k. Þetta leit út eins og meistari Lucas hafi flýtt sér einum of mikið með "leiknu" atriðin til að geta eytt tíma í fjörið, þ.e.a.s. brellur og bardaga. Hálfvitalega fígúran Jar Jar Binks fékk einhverra hluta vegna að vera í litlu hlutverki þarna eftir að hafa eyðilagt 1. kapítula sem er sérkennilegt þar sem gríðarlega auðvelt hefði verið að klippa hana út úr þessum kapítula.
Tyrkinn er með kenningu. Fólk í dag er að reyna að gera allt með einum hlut. Hver kannast ekki við forrit sem eiga að gera allt í stað þess að uppfylla eitt hlutverk og skila sínu hlutverki vel. Nýji Mediaplayerinn frá Microsoft er gott dæmi um þetta, hann á að gera allt, kvikmyndir, mp3, spila tónlist af geisladiskum, spila útvarp af netinu og tyrkinn veit ekki hvað og hvað. Fyrir vikið er hann þungur í keyrslu og maður notar hann bara í 1 eða 2 hluti. Margar stórar kvikmyndir eru fastar í sama rugli í dag. Þær eiga einhvern veginn að gera öllum til geðs, vera spennandi, fyndnar, rómantískar og svona fram eftir götunum. Fyrir vikið verða þær flestar ekki nógu góðar fyrir neinn. Stjörnustrið: kapítuli 2 var ekki laus við þetta syndrom sem tyrkinn kýs að kalla Swiss-army-knife-syndrom. Verið er að flækja einhverri ástarsögu og ha-ha karakterum eins og öfugugganum honum Jar Jar Binks inn í þetta annars stór góða plott.
Gömlu "sánd-trakkin" lifa enn góðu lífi í þessari mynd, enda ein bestu lög kvikmyndasögunnar. Heyra mátti Svarthöfða-stefið (Svartöfði er ein besta þýðing á ensku heiti sem tyrkinn hefur heyrt) ljúft undir þegar hr. Anakin tók villuspor um myndina miðja, og í enda myndarinnar voru allir hittararnir spilaðir í nokkurs konar syrpu sem óneitanlega varð til þess að maður skildi við myndina aðeins sáttari, fínt trikk það.
Svona allt í allt var myndin ágæt, en mætti vera betri. Anakin mætti missa sig og Lucas mætti bæta aðeins hefðbunda hlut leikstjórnarinnar en tyrkinn er spenntur að sjá síðustu myndina til að tengja allt saman.
Stjörnustríð: 2 kapítuli * * * (af 5 mögulegum)
23.5.02
Hér má finna vídeo af hundinum úr Conan O'Brien (...for me to poop on) Fundið á Tilverunni . Varúð, ansi stórt vídeó, en fyndið.
Tyrkinn og tyrkjaspúsan voru að velta því fyrir sér hvort þau ættu ekki að bjóða fólki heim á eurokosningar á laugardagskvöldið, ætli sé einhver stemning fyrir því?
Spilun á Róberts-pistlinum var Föstudags, milli 17 og 18 á Rás 1....
...og tyrkinn sem var búinn að ræna útvarpi og allt í gær!
22.5.02
Sagan segir að lagið um hann Róbert verði flutt í sló-mó á milli 17 og 18 í dag á Rás 1...
Tyrkinn vill benda lesendum á gríðarmerkilegar tilraunir hér nokkru að neðan...
Tyrkinn hefur verið að hlusta á ókeypis tónlist Dr. Gunna undanfarna daga. Þetta er ágætis yfirgrip yfir langt tímabil hjá kappanum og góð hlustun, mæli með þessari gjöf Doktorsins.
21.5.02
Helgarskýrsla Tyrkjans
Furðutónleikar, æfing, skytterí, fyllerí, og meiri tónleikar um þessa helgi:
Föstudagur:
Á föstudaginn fór tyrkinn ásamt spúsu sinni á tónleika á þeim hörmulega stað "Broadway". Þar voru tónleikar með hljómsveitinni "Vocal Samplings" sem samanstóð af 6 kúbönskum sæturum sem sungu öll hlóðfæri ásamt hefðbundnum söng eins og hefðbundin salsahljómsveit. Merkilegt þótti tyrkjanum að sjá hversu líkur söngur þeirra var hljóðfæraleik og voru þeir óvenju negldir á öllu og stundum gleymdi tyrkinn sér og fannst hann vera að hlusta á hefðbundna hljómsveit. En salsa tónlist er ekki til að hlusta á lengi og eftir nokkur lög var tyrkinn orðinn leiður á apparatinu, þrátt fyrir aðdáun á uppátæki súkkulaðibrúnu sjarmöranna. Tyrkjaspúsan varð þó ekki leið á þessu og var öll hin ánægðasta með tónleikana, enda vanari því að heyra svona tónlist og dansa ("ég dansa ekki, stelpur dansa" [luftgítar]). Einna minnistæðast var útgáfa þeirra af hinu sívinsæla lagi úr kvikmyndinni 2001, þar sungu þeir eins og sinfóband með öllum illum látum. Stundum sögðu þeir líka brandara en tyrkinn skilur því miður ekki spænsku og fóru þeir brandarar því fyrir ofan garð og neðan. Staðurinn sjálfur er verkfæri djöfulsins, tyrkinn og spúsan þurftu að sitja á rassgatinu í stiga á þessum hálfvitalega stað, það var annað hvort það eða að sitja í sófum þar sem maður sá ekki neitt. Í heildina litið var gaman að sjá hvað hægt er að gera með 6 börkum einum saman, en að mati tyrkjans mætti sýningin vera 20 mínútur en ekki 2 tímar, of mikil sósutónlist á einum degi (salsa þýðir sósa á spænsku, þetta lærði tyrkinn á föstudaginn, salsasósa er því sósasósa á íslensku....)
Laugardagur: Laugardagurinn er að hluta til í móðu, en fyrri partur hans er enn nokkuð óskemmdur. Tyrkinn vaknaði óvenju snemma þennan dag. Klukkan 11:00 var haldið niðrí Hafnarhús að hlusta á æfingu á verki Tónskáldsins með hinu umtalaða ljóði tyrkjans. Verkið vafðist eitthvað meira fyrir söngkonunni og píanóleikaranum en önnur verk þarna og endaði það með því að önnur verk voru afgreidd þegar önnur tónskáld mættu en gripið í hitt þess á milli. Endaði með að tónskáldið og tyrkinn sátu í um tvo tíma þar til tónskáldið var sátt við meðferðina. Því næst rauk tyrkinn heim og hafði til vopnabúr sitt. Því næst var hann sóttur og haldið rétt út fyrir bæinn með 4 skotglaða karlmenn, 4 haglabyssur, 2 riffla, 1 leirdúfukastara, nokkrar skotskífur og ógrynni af leirdúfum og skotum. Þetta var fyrsta leirdúfuskytterí tyrkjans í einhver ár og var árangurinn eftir því. Leirdúfukastari tyrkjans vakti verðskuldaða athygli enda ágætis keppnisgræja (bekkur með gorm og grind sem getur varpað allt að 2 leirdúfum í einu um óralangan veg). Þó fóru nokkrar dúfur í öreindir og voru menn ánægðir í lok dags. Skothólkur tyrkjans stóð þó ekki undir væntingum þennan dag, því ein samskipti hans fóru að gefa sig (skrúfur losnuðu) og hékk hann ekki saman undir lok djöfulgangsins. Þá fékk tyrkinn að taka í fauta-hólk Lýðsins og náði einhvern veginn að hitta leirdúfu með 3 og hálfrar tommu fauta-skoti. (fyrir þá sem ekki þekkja teljast 3 tommu skot vera stór, en þessi skot eru hálfri tommu lengri og all sjaldgæft að byssur séu gerðar fyrir þess konar fauta.) Tyrkinn hlaut að launum svolítinn marblett á öxlina um kvöldið, en að hleypa af slíku skoti er ekki ólíkt því að láta múlasna sparka í hægri öxlina á sér. Planið er að fara nokkuð oft á leirdúfu í sumar á meðan veður helst sæmilegt.
Kvöldið:
Um kvöldið var blásið til bjórs og borgara í hýbýlum Bjarkans við Reykjavíkurflugvöll. Þar var samankominn góður hópur fólks í góðu stuði. Bjarkinn bauð upp á grillaðstöðu á um 30 ára gömlu grilli sem enn var ónotað, svona appelsínugult kolagrill sem hefur verið "top-of-the-line" á sínum tíma, og stóð það fyrir sínu. Mikil kátína var í fólki er leiknar voru gamlar vínilplötur og stóð þar "Róbert, Róbert minn" upp úr þar sem plötuspilarinn spilaði einungis á 33 snúningum í stað 45 snúninga sem lagið var upprunalega gert fyrir. Gyðnið ætlar að gera pistil um þetta meistaraverk í útvarpinu á næstu dögum. Nokkrir létu svo óðslega í frisbee leik í bakgarðinum og var allt grýtt sem fyrir varð. Þegar fólk var orðið all valt var farið í miðbæinn, en þá var allt að loka nokk snemma vegna heilagleika dagsins, það er ekkert gaman að vera heiðingi hér á landi, þ.e.a.s. nema hið lögbundna jólafrí sem flestir ættu að vera sáttir við. Síðustu mínúturnar eru sem áður sagði í móðu og getur tyrkinn ekki gert fyllilega grein fyrir þeim á sannfærandi hátt. Góður dagur í heildina.
Sunnudagur: Og þá kom þynnkan, og ekki var hún skemmtileg í þetta skiptið, hausverkur, ofsaþreyta og köttur í maganum. Eftir nokkran dapran fyrripart var haldið aftur niðrí Listhús - Hafnarhús á tónleikana umtöluðu. Þar var nokkur hópur fólks samankomið til að hlusta á herlegheitin um fimm leitið. Margrét Bóasdóttir sópran og Miklos Dalmay píanóleikari léku þar 8 íslensk sönglög, og íslenskir myndlistarmenn lásu ljóðin upp fyrir hvert lag, en myndlistarmennirnir voru með sýningar í húsinu sem tengdust tónleikunum. Lögin voru mjög mismunandi, allt frá nokkuð "poppuðum" lögum út í "þyngri" lög. Tyrkinn var mjög ánægður með lag tónskáldsins og a.m.k. þorði enginn að mæla gegn því. Myndlistarmaðurinn Jón Óskar las ljóð tyrkjans, og þegar tyrkinn skoðaði myndirnar hans komst hann að því að allt hans myndefni var fengið úr Counter-Strike tölvuleiknum og hétu þær flestar eftir borðum úr þeim leik (Dust, Aztek o.s.frv.), ansi gaman að sjá það vera komið inn á listasafn (eflaust hafa fáir áttað sig á því hvað þetta átti allt saman að þýða, nema leikjafíklar eins og tyrkinn).
Tyrkinn var að horfa á Jay Leno rétt í þessu og Billi Bob kom fram með hljómsveit sinni. Þar sannaðist að leikarar eiga ekki að búa til hljómsveitir eftir að þeir "meika" það í kvikmyndabransanum. Maðurinn kann ekki að syngja. Fyrir nokkrum vikum kom fram sjálfur Gladiator, og ekki var hann skárri, hans hljómsveit var hörmung, samt fær þetta lið að koma fram í vinsælustu þáttunum, vegna hæfileika þeirra á öðrum sviðum. Kannski finnst Leno þetta fyndið, en ætli það...
17.5.02
Meiri tónleikar Tyrkjanum og spúsu hans voru að bjóðast miðar á "Vocal Sampling" í kveld, klukkan 21:00. Þarna eru á ferð einir sex kúbanskir menn sem flytja lög með röddum sínum eins og hljómsveit væri, afar spennandi að sjá.
Svo er planið að fara að skjóta leirdúfur á morgun fyrir síðbúnu afmælisveislu Bjarkans. Pjá, pjá.
Tónleikar Á sunnudaginn verður frumflutt verk eftir tónskáldið sem tyrkinn samdi ljóð við. Tónleikarnir verða í Listasafni Íslands - Hafnarhús (við Tryggvagötu) klukkan 17:00, og þar verða leikin 9 stutt sönglög fyrir Sópran og Píanó. Margrét Bóasdóttir mun syngja og Miklos Dalmay mun leika á slaghörpuna. Frítt inn fyrir áhugasama.
Dántæm Því miður hefur síða tyrkjans legið niðri í nokkra daga og biðst tyrkinn velvirðingar á því. Fyrir hjálpsemi Simbans og Rocco komst hún samt aftur í loftið fyrir tilstuðlan Simba og er hún vistuð á fiski.net sem er í eigu Roccos. Þeir eiga allt gott skilið, enda góðir drengir.
Velgjörðarmenn tyrkjans: http://www.arnithor.com http://www.fiski.net
7.5.02
Áfengistilraunir
Talið barst í áfengistilraunir af ýmsum tegundum fyrir stundu, hér á vinnustað tyrkjans. Datt honum þá í hug einar tvær sem tyrkinn framkvæmdi á vísindalegan hátt fyrir nokkrum árum síðan. Þeirra skal getið hér, öðrum til upplýsinga.
Tilraun 1: Getur maður orðið drukkinn af pilsner?
Tilgangur tilraunar: Að sanna á vísindalegan hátt hvort ölvun gæti hlotist af innbyrðingu mikils magns af Egils pilsner Umsjónarmenn tilraunar: Tyrkinn og Tónskáldið Tilraunadýr: Tyrkinn og Tónskáldið Verkfæri: 2 kassar af Egils pilsner, 2,25% áfengismagn Tilraunastofa: Heimili móður Ingu Rósu, Garðabæ
Framkvæmd tilraunar: Tilraunardýr hófu snemma kvölds að innbyrða eins mikið af pilsner eins og innyfli þeirra leyfðu. Drukkið var í nokkrar klukkustundir og reynt var að meta hver áhrif drykkjunnar væru. Til að gera tilraunina sem samanburðarhæfasta öðrum drykkjukvöldum voru aðrar aðstæður álíka öðrum drykkjukvöldum tilraunadýranna og voru þeir umkringdir vinum sínum sem sumir drukku hefðbundna drykki við slíkar aðstæður.
Niðurstaða: Tilraunadýrin urðu fljótlega vör við rúmmál og kolsýringsinnihald dósanna. Tíðar klósettferðir einkenndu kvöldið og oft á tíðum voru tilraunadýrin ekki alveg viss hvort þeim væri einfaldlega mál að pissa. Eftir um tvær kippur á mann komust þeir að því að einhver ölvun hlýst af drykkju sem þessari. Eftir lengri tíma og meiri drykkju komust þeir einnig að því að ákveðinni ölvun var hægt að ná, en engri umframölvun umfram þetta stig, sem umsjónarmenn kjósa að kalla "Hámarks pilsnerölvun". Sama hversu mikið var drukkið til viðbótar, þá náðu tilraunadýrin ekki hærra ölvunarstigi. Niðurstaðan var sú að aðfarir sem slíkar væru ekki nægar til að ná ákjósanlegri ölvun við flest tækifæri en grípa mætti til þess ef lítilli ölvunar væri óskað og að mönnum væri nokk sama um innyfli sín og vellíðan. Tilraunin heppnaðist vel, engin slys urðu á mönnum og sannanleg niðurstaða hlaust af uppátækinu. Ekki er búist við því að tilraunin verði endurtekin sökum áreynslu á einstaka líkamsparta og líffæri.
Tilraun 2: Er hægt að búa til léttvín úr Skittles sælgætistöflum?
Tilgangur tilraunar: Að sanna eða afsanna hvort hægt væri að búa til áfengt og drykkjarhæft léttvín úr Skittles sælgætistöflum Umsjónarmenn tilraunar: Tyrkinn og Tónskáldið Verkfæri: 5 lítra glerkútur með gúmmítappa (hér nefndur "tilraunaböllurinn"), áfengismælir, sífon (slanga til að ná innihaldi úr tilraunabelli), mæliglas, pottur, sleif (eða hræra), 4 glerflöskur, 4 korktappar, 4 sérprentaðir miðar, töppunarvél, Efni: 4 pokar af Skittles sælgætistöflum, 1 kg. sykur, matarlitur, vatn, brugg-kit (ger, gerstöðvunarefni, fellingarefni, o.s.frv.) Tilraunarstofa: Heimili foreldra tyrkjans Matsmenn: Fritz Gerber, Bjarkinn, Gyðnið, Umsjónarmenn o.fl.
Framkvæmd tilraunar: Eftir miklar vangaveltur um framkvæmd hófust umsjónarmenn handa við tilraunina. Þegar búið var að pæla í hvort rotvarnarefni væru í hjúp taflnana, var ákveðið að taka enga sénsa og þvo hjúpinn af töflunum þar til þær urðu hvítar á lit. Því næst voru þær hitaðar og soðnar í pottinum þar til úr varð sælgætismassi í vökvaformi. Eftir miklar vangaveltur um hvort nægur sykur væri í töflunum til að þær myndu gerjast án þess að missa sætubragð var ákveðið að bæta við nokkuð miklum sykri sem búið var að sjóða upp í sykurlausn. Þá var vökvunum blandað saman og þeir settir í tilraunaböllinn. Þá tók við hefðbundin bruggun léttvíns. Vökvinn var látinn gerjast í tiltekinn tíma, þá var gerjunin stöðvuð og loks var vínið látið falla með þar til gerðum efnum. Þá var víninu fleytt af botnfalli og það litað með skærgrænum matarlit svo vínið minnti sem mest á forföður sinn, Skittles hauginn. Þá var vínið sett á flöskurnar og tappar settir í þær. Að lokum voru miðar settir á flöskurnar. Miðarnir voru unnir þannig að Skittles poki var skannaður inn og hann lagaður til (grömmum var til dæmis breytt í ml, orðið "Skittlesvín" var sett í stað orðsins "Skittles", og áfengisprósentu bætt við, svo eitthvað sé nefnt). Að lokum voru til einar fjórar flöskur af víninu.
Niðurstöður: Útlitslega vakti vínið mikla hrifningu, það var skærgrænt og miðarnir vel lukkaðir. Eftir rannsóknir á áfengisinnihaldi kom í ljós að vínið var rúmlega 13% að styrkleika sem verður að teljast eðlilegt miðað við léttvín. Smakkanir leiddu ýmislegt áhugavert í ljós. Vínið var mjög sætt svo ekki sé meira sagt. Svo sætt var það að ef tilraunin væri endurtekin yrði viðbótarsykri sleppt, eða hann stórminnkaður. En bragðgott var það, þótt ekki væri hægt að drekka mikið magn af því í einu, sökum ofur-sætu. Tyrkinn man eftir ummælum Bjarkans í þessu samhengi; "Þetta er viðbjóðslega gott". Þáttakendur smökkunar voru sammála því að vínið væri gott en of sætt fyrir almenna drykkju. Tillögur bárust um að gott væri að blanda því við Vodka til að búa til skot en ekki hefur það verið prófað enn. Niðurstaðan var því sú að hægt væri að búa til áfengt og drykkjahæft léttvín úr Skittles sælgætistöflum , en jafnframt er mælt með því að endurskoða sykurmagn.
Tyrkinn hvetur báða lesendur til að senda inn tilraunir af slíku tagi ef þeir luma á einhverju svo hægt sé að birta þær. (tyrkinn@hotmail.com)
Þetta er svolítið fyndið kontrí-lag, flash...
6.5.02
Sex dagar, sjö nætur
Frúin var eitthvað að reyna að halda vörnum fyrir þessa vondu ræmu, svo tyrkjanum finnst rétta að hrauna almennilega yfir hana. Þessi mynd er hrikaleg klisja, maður veit allt um hana eftir trailerinn, og jafnvel er nóg að kíkja á spóluhulstrið til að geta skýrt frá söguþræðinum ef söguþráð má kalla. Anne Heche er afburða vond leikkona og fer ekki á kostum í þessari mynd. David Schwimmer er líka ósannfærandi, enda er hann alltaf eins og aulinn Ross úr Friends. Harrison Ford hafði greinilega ekki heldur úr mörgum myndum að velja, því maður sem hefur leikið sjálfan Indiana Jones ætti að geta valið betri myndir. Hann er dáldið fastur líka í einhverri týpu, sem er "grömpí" og þrjóskur en soldið mikill töffari samt, klisja þar. Það er ekkert varið í þessa mynd, svona til að taka þetta saman, varist þessa ræmu.
6 days, 7 nights hauskúpa (af 5 stjörnum mögulegum)
Helgarskýrsla Tyrkjans
Einhverra hluta vegna virðast allir eiga afmæli þessa dagana....
Á föstudaginn var haldið í vinnustaðakeppni í Counter-Stike tölvuleiknum eftir vinnu. Mikil spenna var í fólki og voru um 20 manns mættir til að úthella blóði. Eftir þriggja tíma blóðug átök stóð tyrkinn og samstarfsfélagar hans uppi sem sigurverarar og hömpuðu fögrum bikar, sem tyrkinn lét reyndar útbúa og grafa í fyrr um daginn. Það var og gaman. Eftir það hélt tyrkinn á grillhúsið þar sem hann át og drakk með "óvininum" og var hótað ítrekað að draga hann inn í húsasund og lemja hann fyrir að svívirða hópinn með hæfni sinni með skotvopna, a.m.k. á skjánnum. Því stakk hann af eftir borðhaldið og flúði í slotið þar sem hann var einn á móti um 10 manns. Þegar þangað var komið var frúin búin að leigja "6 days, 7 nights" og farin í saumó, og tyrkinn gerði heiðarlega tilraun til að glápa á þá vondu ræmu sem ekki heppnaðist betur en hann sofnaði værum svefni eftir átök vikunnar.
Á laugardaginn voru stór plön. Bæði Siggan og Bjarkinn voru búin að auglýsa afmælisveislur og nú átti að taka á því. Bjarkinn beilaði reyndar í bili vegna óviðráðanlegra ástæðna, en Siggan hélt afmæli fyrir fjölda manns á vinnustofu sinni. Þar voru um 30-40 manns sem kepptust um að innbyrða áfengi og svæla tóbak, sem var vel. Eftir nokkra setu þar héldu nokkrir útvaldir út á laugarveg og kíktu þeir inn á Vegamót þar sem lítið var að gerast og loks uppastaðinn Kaupfélagið þar sem fólk fékk sér í eitt glas eða svo fyrir svefninn.
Sunnudagurinn fór svo í nokkra leti, en eftir hana var haldið í aðra afmælisveislu, og í þetta skipti hjá Áslaugu, eiginkonu poppstjörnunnar umtöluðu. Þar voru veitingar góðar, enda húsfrúin myndar húsmóðir sem poppstjarnan getur verið stoltur af. Þaðan var haldið í kvöldverð hjá móður tyrkjans og þar setið fram á kvöld og rætt um lífið og tilveruna. Í lok kvölds var haldið heim með góðan stafla af bókum sem tyrkjamóðirin vildi ólm losna við.
Tyrkinn var svikinn um gæðaþáttinn "Geimstöðin" í gær, og var það kostningaumræður sem gerðu á hlut hans í þetta skiptið, en þessi þáttur er ómissandi í sunnudagsþynnkuna.
Næsta fimmtudag mun litla systir tyrkjans hengja upp valdar myndir á "Kaffi Vín" á laugarveginum, og mælir tyrkinn með því að fólk kíki á sýninguna, litla er nefnilega ansi góð með pennann. Einhverra hluta vegna hefur hún erft myndlistargáfur móður sinnar, ólíkt tyrkjanum sem ekki hefur teiknað síðan hann var skammaður fyrir að teikna ógrynni handalausra karla á alla veggi heimilis síns þegar hann var um 2 ára, en svona er þetta bara.
2.5.02
Fréttablaðið
Tyrkinn er með kenningu, og hún er sú að Fréttablaðið sé ekkert í svakalega góðum málum. Þannig er nefnilega mál með vexti að þegar samstarfsmaður Tyrkjans fór út með ruslið í gærkveldi rak hann augun í þrjú búnt (góðan haug af blöðum) af fréttablaðinu í ruslinu hjá sér. Á efsta blaðið var búið að krota orðsendingu sem var eitthvað í áttina að þessu;
Kæri borgari, Ég hef ekki fengið greitt frá Fréttablaðinu fyrir útburð í óratíma og sé mér ekki fært um að halda áfram að bera það út. Því hlýtur þú hér að launum 3 búnt af þessum snepli. Kveðja, Blaðaburðardrengurinn.
Kannski var þetta ekki svona kurteisislegt en innihaldið er nokkurn veginn það sama. Þessi heppni samstarfsmaður tyrkjans hafði verið að fá blaðið af og til inn um lúguna en ekki virtist vera samræmi milli daga, og kvartað undan því. Að launum fékk hann þó góðar byrgðir af uppkveikiefni fyrir sumarbústaðinn, geri aðrir betur.
Fréttablaðið, góíng dán
|
|
|
|
|