|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
30.6.02
Fótboltafárið á enda....í bili
Nú er HM búið og unnu brassarnir verðskuldaðann sigur. Tyrkinn er sáttur við úrslitin og voru germanar og brassar tvö bestu liðin að mati hans, fyrir utan landa sína, sem lenntu aðeins í þriðja sæti. Hvað á að gera við helvítis myndlykilinn nú?....Keppnin var skemmtileg að mati tyrkjans og var gaman að sjá lið eins og kanana, S-Kóreu og Japan gera það gott. Annað mál er með þá sem lýstu leikjunum sem voru all misjafnir. Jörundur Áki landsliðsþjálfari var bestur í þessu að mati tyrkjans og ávallt yfirvegaður og ekkert að bulla, sem er vel. Tyrkjanum finnst fyndið hvað íþróttafréttamenn og aðrir íþróttanördar eru ginkeyptir fyrir hallærislegum frösum sem virðast komast í tísku í þessum bransa. Ósjaldan fékk maður að heyra frasann "Föstu leikatriði" og tyrkinn vissi ekki hvaðan af stóð veðrið þegar hann heyrði þetta fyrst. Hélt fyrst að e.t.v. væri búið að breyta þessari íþrótt og nú væri komið eitthvað nýtt í boltan eins og rangstaða eða innkast. Svo kemur í ljós að einhver snillingurinn hefur ákveðið að fara að kalla innköst, horn og þessháttar "föst leikatriði" til að láta þetta hljóma eitthvað merkilegra, en það er ekkert töff að segja að "Þjóðverjar séu mjög góðir í þessum föstu leikatriðum". Annar frasi sem fór í taugarnar á tyrkjanum var það að margir íþróttaspekingar núna hafa verið að tala um eitthvað og segja "heilt yfir" sem tyrkinn veit ekki til að sé til í góðri íslenskri tungu. Líklegra telur hann að þetta sé bein og léleg þýðing úr einhverju hrognamálinu.
27.6.02
Ferð 1 : Annual veiðiferð + Akureyrarbónus
Eftir hangs í nokkra daga hélt tyrkinn norður á Akureyri með fríðum hóp ungra veiðimanna. Í för voru Tyrkinn, Sigginn, Sjónvarpsstjarnan, Inginn, Örvarinn, Reynirinn og Sjónvarpsstjórinn. Sjónvarpsstjórinn og Sjónvarpsstjarnan vöktu mikla kátínu annarra ferðafélaga þegar þeir lenntu í blindaþoku og rigningu uppi á miðri heiði á leiðinni og gátu því ekki stoppað til að taka toppinn upp á blæjubíl stjórans og komu þeir nær dauða en lífi að Brú þar sem þeir gátu loks sett toppinn upp. Fjölskylda Siggans á sumarhús í næsta nágrenni Akureyrar og var planið að vera þar í einar 2 nætur áður en haldið væri í ferðina, sem og varð. Fimmtudagskvöldið var óvenju rólegt í Akureyrarbæ þessa helgina, og man tyrkinn ekki eftir því að sjá bæinn svona róglegan. Ekki létu ferðamenn það skemma kvöldið og drukku eins og þeir ættu lífið að leysa og enduðu í pottinum þar sem Sjónvarpsstjarnan vakti mikla lukku viðstaddra með því að "húkka" mönnum upp með "skrúdræver" þar til brennivínið ætlaði upp úr mönnum. Sigginn fór mikinn með Campari flösku og hætti ekki fyrr en menn voru búnir að setja 1 liter ofan í sig í skotalíki, mesta furða að ekkert skilaði sér af þeirri flösku... Daginn eftir var þó ágætis hljóð í fólki og fóru sumir í golf og sumir að kaupa brennivín á meðan Inginn keyrði norðlenska gæs um bæinn, í einum línuskauta og með brúðarslör við mikla kátínu vinkvenna hennar. Um kvöldið hófst drykkja að nýju og var á endanum haldið á eyrina þar sem annar hver maður virtist búa í borginni og á endanum var all stórum hóp smalað upp í bústað að nýju og úr varð gott partí sem stóð vel frameftir.
Daginn eftir var haldið að Fremri Laxá í nágrenni Blönduós city þar sem átti að veiða. All mikill hugur var í mönnum og í þetta skiptið var nær einungis flugu beitt, en fyrri ár hefur tyrkinn einn verið að kasta flugu og veitt nokkuð minna en aðrir fyrir vikið. Til að gera langa sögu stutta ganga þessar ferðir einkum út á það að drekka mikið, borða mikið, rausa mikið og veiða einungis eftir hádegi. Eitt kvöldið reyndi þó Inginn með aðstoð Reynirnum að stíga á bak bykkju nokkurar sem stóð á beit spölkorn frá veiðihúsinu. Þetta var gert um miðja nótt eftir dagsdrykkju og ekki fór betur en svo að Inginn hlaut höfuðmeiðsl af á meðan Reynirinn hló sig máttlausan. Að venju var bílum líka lagt ögn betur þegar á fór að líða á nóttina og þegar hæst stóð var búið að jeppaleggja öllum þremur bílunum, þ.á.m. blæjubíl sjónvarpsstjórans. Aflinn var nokkuð minni en fyrri ár og giskar tyrkinn á að um 30-40 fiskar hafi verið hirtir í þessum túr, en þegar mest lét voru þeir nær 200 (smár urriði). Skýringuna má helst finna í flugunni auk þess sem menn voru ekki eins blóðþyrstir og fyrir 2-3 árum þegar litlu var sleppt.
Á þriðja veiðidegi gat tyrkinn ómögulega byrjað daginn á að sturta í sig bjór og fór því í fyrsta skipti að veiða í þessari á edrú. Áður en tyrkinn náði að hella í sig eftir veiðina var búið að plata hann til þess að keyra alla nema Örvarinn (sem mátti eiga von á því að fá hríðar-hringingu frá frú sinni og þurfa að rjúka í bæinn) á sveitaball í Miðgarði þar sem Poppstjörnurnar léku fyrir dansi. Að sögn þeirra var ballið gríðargott og poppstjörnurnar stóðu sig eins og hetjur að venju. Tyrkinn var enn þunnur daginn eftir þrátt fyrir að hafa verið edrú daginn áður og voru menn vel skítugir og súrir á heimleiðinni. En ferðin var góð.
Fjarvera
Jæja, tyrkinn er búinn að vera í sumarfríi í tæpar 3 vikur núna, og hefur þess vegna ekki sett neinn inn á síðuna. Planið er að reyna að henda inn ferðasögum og öðru góðgæti í réttri tímaröð.
10.6.02
"Tví"farar dagsins Tyrkinn er ekki frá því að einhver svipur sé með markverði portúgala og Lieutenant Dan Taylor úr Forrest Gump, ef hann væri ekki brosandi á þessari mynd munduð þið e.t.v. átta ykkur á því af hverju...

Hr. Muzak skrifar um heimsku síðustu viku hér. Í síðustu málsgrein segir hann aldrei hafa verið framin fleiri morð á skemmri tíma á þessu ári síðan í tyrkjaráninu. Tyrkinn vill koma þeim skilaboðum áleiðis að tyrkjaránið er rangnefni. Eins og flestir vita voru þetta ekki tyrkir sem réðust á Vestmannaeyjar á sínum tíma, tyrkjann minnir að það hafi verið Alsírbúar. Samt er þetta ennþá kallað tyrkjaránið, þrátt fyrir að flestir viti að þetta hafi verið rangur mis-skilningur. Tyrkinn krefst þess að fólk hætti að kalla þetta tyrkjaránið, þessi atburður er ranglega búinn að sverta Tyrkland og nú er kominn tími til að hætta að tala um það á þennan hátt. Þetta minnir tyrkjann á það þegar evrópubúar komu fyrst til bandaríkjanna og sá þar frumbyggja. Þar sem þeir voru dökkir á hörund héldu þeir að um væri að ræða Indverja og eru þeir ennþá kallaðir "indians" í dag, þrátt fyrir augljósan mun á indverjum og frumbyggjum bandaríkjanna. Stöndum saman - stöðvum ofsóknir á hendur Tyrkjum.
 :: how jedi are you? ::
7.6.02
Tvífarar vikunnar Tyrkinn var að horfa á Argentínu-England áðan og þegar hann sá Veron minnti hann tyrkjann á einhvern leikara. Svo hófst leit af viðkomandi leikara sem tók sinn tíma, en tyrkinn á eftir að sofa í nótt.
Tvífara dagsins: Adam Goldberg (Ed TV, A beautiful mind) og Juan Sebastian Veron (Manchester United, Argentína), en þeir ku vera bræður....

6.6.02
...og svo er síðan komin í yfir 4000 heimsóknir, geri aðrir betur...
Megas
Tyrkinn hefur hlustað á Megas í óhófi undanfarnar vikur og mánuði. Fyrir ekki svo löngu síðan fékk hann lánaða eina tvo diska, Megas og Á bleikum náttkjólum, og afritaði þá skammarlaust. Síðan þá hefur hann keypt eina 6 í viðbót og hlustað á lítið annað. Fyrir lánið hafði tyrkinn nánast engin kynni af þessum skemmtilega karakter, en eftir nokkrar hlustanir er ómögulegt að losa sig við þetta. Diskarnir eru allir prýddir þessu fínu textabókum, sem eru ómissandi. Annars vegar skipa textarnir svo stóru hlutverki í tónlist Megasar, og hins vegar er hann oft á tíðum óskiljanlegur, þ.e.a.s. þegar hann er í gríðar-fílíng. Diskarnir eru allir góðir, en bera af sjálfsögðu mikinn keim frá þeim tíma sem þeir voru gerðir. Til dæmis er nýjasti diskur hans (Far...þinn veg) gott nútímarokk, "sándið" á "Þrír blóðdropar" er mjög örlí næntís og fyrsti diskur hans er mjög plein trúbadordiskur án alls hljómsveitarvesens. Í augnablikinu er "Svanasöngur á leiði" í nokkurs konar uppáhaldi, en þar syngur Megas við píanóundirleik Jóns Ólafssonar, hinum góða. Einn galli er þó á gjöf Njarðar, frau Achbar fyrirlítur tónlist Megasar og fær gæsahúð þegar á hann er minnst. Því er einungis hægt að hlusta á hann með "headphones" (á ekki að vera til gott íslenskt orð yfir þetta fyrirbæri?) þegar frúin er heima ef ekki á að vera hætta á heimilisofbeldi á kostnað tyrkjans. Tyrkinn hefur gert nokkrar tilraunir til að breyta skoðun hennar á málinu, en hún stendur óhreyfð og ætlar ekkert að gefa eftir. Þegar tyrkinn verður stór verður keypt hús með vel hljóðeinangruðu tómstundaherbergi til að koma í veg fyrir svona árekstra. Merkilegt er að þegar maður hlustar mikið á tónlist með svo miklum textum í langan tíma hefur það nokkur áhrif á hvað gengur á í hausnum. Til dæmis kemur það orðið oft fyrir á dag að tyrkinn les eitthvað eða heyrir eitthvað sem "triggerar" á svipstundu upp línu úr textum Megasar, mætti kalla þetta Megas-syndrome e.t.v.?
Hér má finna texta um Megas á síðu Jóns hins góða, www.jon.is
5.6.02
Tyrkinn fer í frí í næstu viku. Til að halda upp á það sótti hann afruglara í verslun Skífunnar í fyrradag. Þá verður sko hægt að hanga heima í leti og horfa á boltaleiki, jafnvel væri hægt að kaupa sér öl og hnetur. Svo er bara að vakna snemma, drekka sig fullann og hanga einn heima.....
Tyrkinn er haldinn kvefpest skrattans. Sífellt hnerrandi og óvenju heimskur þessa dagana, og það í þessu veðri, svei...
3.6.02
Haus á haus Rahman í góðum box-fílíng...
Helgarskýrsla Tyrkjans
Eins og við var búist varð helgin óvenju erfið að þessu sinni. Ríjúníon, út að borða, smíðavinna í þynnkunni, meiri drykkja, bæjarrölt og barnaafmæli.
Föstudagur: Kvöldið var tekið snemma og rokið beint úr vinnunni á Tapas þar sem var drukkið og etið af litlum diskum. Um 15 manns söfnuðust þar saman til að hita upp fyrir ríjúníoið sem var að bresta á. Maturinn var góður í þetta skiptið, tyrkinn mælir sérstaklega með hörpudiski og döðlum sem vafið er í beikon, sett á spjót og grillað vel, þetta var lostæti og kom á óvart þar sem þetta hljómar sem vafasöm blanda. Kjúklingur í kókosraspi var líka góður og reykti lundinn, sem frú Achbar gat þó ekki borðað vegna skorts á eldun. Þaðan var svo rokið á gaukinn þar sem gamli árgangurinn var samankominn að drekka óðslega, og suma hafði tyrkinn ekki séð í 10 ár. Gaman var að hitta liðið og sumir voru alveg eins og aðrir óþekkjanlegir. Drykkjan var óvenju stíf og um 3 leytið var tyrkinn nær gólfi en lífi og hélt heim.
Laugardagur: Þá byrjaði gamanið. Tyrkinn vaknaði fyrst klukkan 10, en gafst upp, fékk sér panodil og lagði sig aftur í klukkutíma. Þá fór hann á fætur og var sóttur af frænku sinni og keyrður upp í Hvalfjörð. Þar voru ættingjarnir að rífa sólpall ömmu Achbar í rigningunni, og var það meira verk en á horfðist. Pallurinn var að rotna í sundur og var greinilega kominn tími á endurbætur. Tyrkinn var ekki upp á sitt besta og ekki gerði þetta þynnkunni gott. Þaðan var svo farið heim og eftir stutta hvíld var haldið á grillhúsið í þynnkumat og bjór og þaðan á Stuðmannaball um 10 leytið. Ekki var annað í stöðunni en að þamba G&T og var komin ölvun í stað þynnku um miðnætti. Þegar Stuðmenn hættu að spila var farið niðrí bæ og var setist inn á Prikið, sem greinilega hefur dottið eitthvað niður í vinsældum þegar Skjá 1 liðið flutti sig á Thorvaldsen. Einhverra hluta vegna hitti Tyrkinn aftur skólafélaga sinn Hákon sem hann talaði við á föstudagsinn á gauknum, en þar á undan hafði hann ekki hitt kappan í einhver ár. Hann hafði að segja stórskemmtilegar sögur af reynslu hans á "blind-date" bransanum og hvatti tyrkinn hann til að logga þetta niður og henda á netið, eða safna í bók, þetta er nebblilega mjög áhugaverður bransi og eflaust margir vafasamir sem standa í þessu.
Sunnudagur Skárri þynnka þar en tyrkinn var nokkuð lengi að koma sér á stjá. Alexandra Gerber átti svo afmæli og tyrkinn mætti ásamt spúsu þangað um hálf fimm, en boðið var klukkan 3. Þar var meðal annars horft á box og var áhugavert að sjá annan haus vaxa á haus annars boxarans eftir eitthvað "hnjask". Maðurinn var með stærsta kýli sem tyrkinn hefur á ævinni séð, og hlaut ósigur fyrir vikið.
______
Samlandar tyrkjans stóðu sig svo ágætlega á móti brössunum á HM áðan í stórskemmtilegum leik. Tyrkjar verða heimsmeistarar í ár.... Yfir í hálfleik og fengu svo á sig plat-víti og urðu óheppnir....
|
|
|
|
|