Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

29.8.02

:: tyrkinn 15:25 [+] ::


Óborganlegur japanskur húmor (vídeó)



:: tyrkinn 14:20 [+] ::


Tyrkinn syrgir

Amma tyrkjans lést á þriðjudaginn var. Hennar verður sárt saknað.


26.8.02

:: tyrkinn 02:45 [+] ::


Stadis ríport
Tyrkinn er enn í fríi og er mest lítið að gera nema að stússast í þessum íbúðamálum öllum. Á þriðjudaginn ætti tyrkjaslotið að birtast í fasteignablaðinu og mætti búast við einhverjum skoðunum í kjölfarið á því. Tyrkinn var búinn að heyra ýmsar hryllingssögur með hvað tæki langan tíma að fá rimlagardínur eftir pöntun og því ákváðu tyrkinn og frú að drífa í því á miðvikudaginn var svo að þau þyrftu ekki að vera lengi gardínulaus á jarðhæð. Í Álnabæ mættu þau á sitthvorum bílnum og pöntuðu herlegheitin auk þess að skoða ljós í búð handan götunnar. Eftir það ákváðu þau að fara á einum bíl í Kópavoginn og skoða hvar ljós ætti að setja. Ekki vildi betur til en svo að þau gleymdu að sækja albatrossinn aftur í Álnabæ og mundu þau ekki eftir því fyrr en kvöldið eftir. Þegar átti að sækja drekann á fimmtudaginn brá þeim í brún því glæpamennirnir sem vinna þar höfðu látið draga Albatrossinn í bílageymslur Vöku, og rassgat var það. Svo kom í ljós að gardínurnar voru strax tilbúnar 2 dögum síðar en ekki mánuði eins og fólk vildi halda. Í morgun/dag (mánudag) verður greiðslumatið sótt upp í banka og það flutt til fasteignasölunnar, en þaðan fer það í Íbúðalánasjóð sem ætti að vera 7-10 daga með það ef allt gengur vel. Eftir það er hægt að skrifa undir samninginn endanlega. Flutningar eiga að verða laugardaginn 7. sept og eru allir sjálfboðaliðar beðnir að gefa sig fram við tyrkjann ef fólk getur hjálpað til.


20.8.02

:: tyrkinn 22:38 [+] ::


Flutningar yfirvofandi
Tyrkinn fór ásamt tyrkjafrúnni upp í sumarbústað á föstudaginn, í nes það er kennt er við Grím. Á leiðinni þangað komu þau við hjá Fasteignasalanum til að gera gagntilboð á gagntilboð seljanda íbúðarinnar margumtöluðu á hjara veraldar. Gagntilboð seljandans rann út klukkan 17:00 þann dag, en rétt áður en búið var að senda gagntilboð tyrkjanna kom annar fasteignasokkur askvaðandi inn á skrifstofu og sagði að seljandinn hefði fengið tilboð jafnhátt og þeirra tilboð og hafði tyrkinn og frú einar 7 mínútur til að ákveða sig hvort taka átti tilboði þeirra og loka "dílnum". Það var og, og nú á bara eftir að kvitta undir eftir greiðslumat og þess háttar. Tyrkjaslotið er því komið á sölu og eru einir tveir aðilar nú þegar búnir að skoða slotið, áður en það er auglýst.

Eftir þessi ósköp var haldið suður og var helgin góð. Margt var um gesti á laugardaginn og sunnudaginn og lét fólk vel að stemningunni. Tyrkinn og tyrkjafrúin náðu meira að segja að sólbrenna sig eftir sunnudaginn, og það í ágúst á Íslandi... Á laugardaginn komu Fréttakonan, Forstjórinn og forstjórafrúin ásamt nýjasta króganum, og Hjördísin með Leonardo nokkurn sem er hinn vænsti maður þrátt fyrir að vera ítali sem lítur út fyrir að vera svíi. Þá var tyrkinn plataður á hestbak hjá Eldhestum og var ferðin bara mun minna leiðinleg en á horfðist, en þess má geta að tyrkinn hefur ekki stigið á bak bykkju síðan ein slík hennti honum af baki fyrir einum 15 árum eða svo. Svo var hangið í pottinum og drukkið, étið og pottað og drukkið meira, sem var vel. Daginn eftir fóru allir nema fréttakonan, en poppstjörnurnar mættu báðar ásamt brúðkaupsstjórnandanum Já ásamt dóttur. Einnig komu Bjarkinn og Kollan og Fritz Gerber og frú með dótturina, og Herkúles mætti á svæðið með háaldraðan hund sem átti að draga upp á hálendið, og ekki í fyrsta skiptið í sumar. Herkúles hefur nýtt sumrið manna best í fjallgöngur og fékk til þess hund og landkrúser sem óspart eru nýttir. Nú, aftur var drukkið og setið í pottinum og var helgin góð.

Þessa dagana fer mestur tími í að kaupa og selja íbúðir með öllu tilheyrandi veseni og pappírsvinnu. Röðin hjá Skattstjóra var ekki spennandi í dag, 20 manns um miðjan þriðjudag, uss. Handsterkir mega búast við hringingu fljótlega því stefnt er á að flytja þann 7. sept, og eflaust verður bjór í boði fyrir hjálpfúsa. Þó ekki sé spennandi að bera niður slots-stigana er minnsta mál í heimi að henda hlutum inn í nýju íbúðina því hurð er nánast út við götu og íbúðin á jarðhæð.


16.8.02

:: tyrkinn 14:07 [+] ::


Njúfs flesh

Tyrkinn er aftur kominn í frí og er því ekki duglegur að skrifa. Helst er í fréttum að tyrkinn og tyrkjafrúin gerðu tilboð í íbúð í gær og eru allar líkur á að kaupin verði að veruleika og flutt verði úr póstnúmeri 101 í íbúð 101 á hjara veraldar. Íbúðin er góð og mega einhverjir eiga von á annarri innflutingsveislu innan skamms, þ.e.a.s. þeir sem hjálpa til við flutninga ef af kaupunum verður.

Annars er tyrkinn á leið í sumarbústað núna á eftir í Grímsnes og er búist við gestagangi. Tyrkjafrúin er búin að þola tyrkjan í ár á morgun og mun því væntanlega fagnað á morgun í sumarbústaðnum.

Síðasta helgi fór meira og minna í útilegu á Snæfellsnes sem tyrkinn mun vonandi útlista síðar, eða í næstu viku. Áhugasamir um innlit í bústaðinn vinsamlegast hringið í tyrkjann.

...og frúin alveg að missa sig yfir þessum íbúðamálum....


8.8.02

:: tyrkinn 12:58 [+] ::


Sniðugt tól !

Borgarvefsjá. Þarna er hægt að sjá nokkuð góða loftmynd af þaki manns, gríðar gott....



:: tyrkinn 11:02 [+] ::


Síðbúin helgarskýrsla tyrkjans

Tyrkinn biðst afsökunar á seinagangi við skrif á þessa síðu, en svona var síðasta helgi; sú er oft er nefnd verslunamannahelgin þar sem allir fá frí nema verslunarmenn.

Eftir vinnu á föstudaginn var stefnan tekin norður á Hofsós City. Tyrkjafrúin var búin að vera í fríi og var því búin að "læna" flestu upp, sækja lykla , kaupa mat og þess háttar. Spáin var þannig að veðrið átti að vera einna best á norðurlandi og austurlandi og vonuðust þau til að Hofsós væri ekki of vestarlega upp á veðrið. Þótt umferðin væri mikil keyrðu allir eins og vitleysingar og því gekk allt eins og smurt og var ferðin ekki lengri en meðal norðurferð. Þar sem illa gekk að smala liði á Tyrkjasetrið á Hofsósi var nú ekki tekið mikið á því í drykkjunni og varð ferðin meira róleg og þægileg. Á laugardaginn var tyrkjafrúin orðin óð að fara að veiða, en í sumar er lengi búið að standa til að kenna henni að kasta flugu. Byrjað var að labba út á tún og kenna helstu handtök fluguveiði og voru köstin hjá henni orðin nokkuð góð eftir skamma stund. Þegar tyrkinn rölti niður á veitingastaðinn Sóltún sem selur veiðileyfin var einhver fauti búinn að taka ánna frá bæði laugardag og sunnudag og því varð ekkert úr veiðinni. Þá rann Herkúles í hlað á stórum Landkrúser sem hann hafði að láni frá vöðvatrölli nokkru. Þegar hann opnaði skottið kom í ljós hundskvikindi sárfætt sem skalf eins og kanarífugl í snjóhríð. Herkúles, sem fékk bílinn að láni gegn hundapössun, hafði verið að ganga lónsöræfi með kvikindið í eftirdragi og höfðu loppur þess farið í mauk á æfingunum og gat því hundurinn varla staðið í lappirnar undir lokin. Hundurinn vill sjálfsagt aldrei sjá fjöll og Herkúles aftur sama daginn, en að sögn vitna er hann allur kominn til og er úr lífshættu. Þá var ákveðið að skjóta úr tyrkjarifflinum og var hringt í innfæddann til að spyrja um stað til að stilla upp skotskífum. Ekki stóð á Jóni granna og var nokkrum skotum hleypt af við sumarhús meistara nokkurs steinsnar frá bænum. Þá var haldið að óðalinu og setið við rökræður um hljómsveitabransann í nokkra stund. Þá var farið að hella aðeins í, og loks var kveikt í grillinu. Herkúlesi tókst ekki að plata hin á Kontríhátíð og keyrði hann heim á leið eftir erfiða viku. Tyrkinn og tyrkjafrúin sátu við spil og drykkju fram á kvöld, og ekki tókst að klára eitt Scrabble sökum öls. Á sunnudaginn var komið skítaveður og ákváðu þau að halda heim á leið. Boðið var heim um kvöldið og spiluðu tyrkinn, tónskáldið og Gyðnið póker fram á nótt við drykkju en Herkúles leit við og drakk te. Tyrkjafrúin gat ekki verið með sökum pepperoni árásar sem átti upptök sín á lummu í Hyrnunni í Borgarnesi. Tyrkinn er mjög feginn að hafa ekki farið til eyja eða á aðrar útihátíðir, þetta leit ekki beint vel út í sjónvarpinu...

Á föstudaginn fer tyrkinn aftur í sumarfrí og er það vel. Þann 16. er hann með sumarbústað að láni í nokkra daga í Grímsnesi og skal hann brúkaður. Tyrkinn talaði við Drykkjumanninn um síðustu helgi og var hann að tala um að heiðra íslendinga með nærveru sinni fljótlega, en það er óstaðfest.


2.8.02

:: tyrkinn 13:49 [+] ::


A man's philosophy on life...

Fritz gerber sendi þetta á tyrkjann sem aftur sá ástæðu til að henda því hingað inn:

1. It is important to find a woman that cooks and cleans.
2. It is important to find a woman that makes good money.
3. It is important to find a woman that likes to have sex.
4. It is important that these three women never meet.


1.8.02

:: tyrkinn 11:16 [+] ::


Helgin
Tyrkinn ætlar á Hofsós city um helgina. Þótt planið hafi komið seint vonast hann enn til þess að einhverjir fleiri séu til í að kíkja á Achbar-óðalið á Hofsósi að drekka brennivín og láta óðslega. Reyndar hefur ekki náðst í alla og ekki hafa hinir hafa ekki enn staðfest. Bjarkinn er víst einhvers staðar í kringum Egilsstaði og einhver "snillingur" ákvað að lána Herkúlesi einhvern forstjórajeppa og hefur ekki spurst til hans síðan. Herkúles er að eigin sögn búinn að fá sér síma aftur eftir að hafa týnt sínum fyrir mörgum mánuðum síðan, en hann er að venju utan þjónustusvæðis, sennilega á Vatnajökli eða þar um bil. Semsagt, spurning um fjöldan á óðalinu, en búast má við drykkju og veiði svo eitthvað sé nefnt.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra