Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

30.9.02

:: tyrkinn 16:08 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans

Föstudagur: Haustskrall
Á föstudaginn var ræst út úr vinnunni skömmu eftir klukkan 16:00 og stefnan tekin í Reykjanesbæ í körtukeppni (e. go-kart, eða farðu-karta). Var kominn all nokkur keppnishugur í mannskapinn áður en lagt var í hann og því mikil stemning. Keppt var í 2 riðlum (20 hringi) með tímatökum á undan og loks úrslit (8 hringir). Tyrkinn var í fyrri riðli og var á 3 ráspóli eftir tímatökur. Ljóst var snemma að tyrkinn yrði þó ekki í toppbárátunni og voru allir draumar um verðlaunasæti úti þegar hann fauk út af brautinni í fjórða eða fimmta hring. Endaði með því að hann náði aðeins að vinna sig upp en lenti í 5. sæti, en það 4. fór í úrslitin, mikil vonbrigði...

Eftir úrslitin var Fritz Gerber dæmdur sigurverari og hlaut 3 lítra bjórflösku, gullverðlaun og kampavínsflösku að launum (sjá mynd). Eftir nánari skoðun kom þó í ljós að Hey-lo (maðurinn með furðulega svipinn á myndinni með manninum sem er að frussa bjór upp í nefið á sér, sjá myndir að neðan) var réttmætur sigurverari þar sem óprúttinn ökumaður hafði keyrt Fritz Gerber í hring utan um línuna þar sem tíminn er mældur með tölvumælum, en samkvæmt tölunum setti Fritz heimsmet, hringinn á rúmmlega 3 sek. Gerberinn sá sér því sóma í því að skipta við Hey-lo um verðlaun og afhenda honum flöskurnar. Eftir körtuna var haldið í bláa lónið (rétt fyrir lokun) og baðað sig eftir djöfulganginn og einn bjór eða svo drukkinn þar. Þá var haldið í heimahús þar sem kræsingar og drykkjarföng biðu hópsins. Þá var drukkið fram á nótt og mikið sungið og dansað. Að venju var tyrkjanum stillt upp á sófanum og látinn syngja vinsæl Tom Jones lög með öllu tilheyrandi. Einn annars ágætur maður, myndasmiður þessara mynda, gerðist samt óprúttinn og tók bæði myndir og stuttar kvikmyndaklippur á stórsniðuga stafræna myndavél sína.

Nú geta því of margir rifjað ósköpin upp og getur tyrkinn því séð hvernig hann lítur út og hljómar þegar hann gerir sig að fífli. Eftir að tyrkinn hafði látið óðslega, brotið 2 full rauðvínsglös með hálftíma millibili og röflað einhver ósköp var haldið heim á leið. Sem betur fer var stefnan ekki tekin á miðbæ Reykjavíkur, borg óttans, en haldið heim í svefninn. Tyrkjafrúin vildi meina að hún væri þunn á laugardaginn eftir að hafa andað að sér brennívínsgufum tyrkjans í svefni. Tyrkinn er ekki tilbúinn að styðja þá kenningu, en þó er aldrei að vita, enda mundi hann varla eftir heimferðinni.

Hér má sjá nokkrar valdar myndir frá föstudeginum. Til að setja myndirnar beint inn, þarf að borga fyrir pbase.com , og tyrkinn er of nískur fyrir þessháttar....


Laugardagurinn: Það sem ekki á að gera í þynnku
Á laugardaginn þurfti tyrkinn að hysja upp um sig og fara ásamt frúnni í gamla tyrkjaslotið og þrýfa og bera rotnandi garðúrgang út úr útigeymslunni. Tyrkjafrúin hafði fyrr um sumarið ákveðið að setja garðinn í stand og hafði hent ófáum pokum af rotnandi mold og arfa í útigeymsluna. Lyktin af þessum kokteil var afar ógeðfelld og minnti hún helst á rotþró, hálf fulla af kattahlandi. Þetta þurfti að bera út úr geymslunni og garðinum í gegnum húsið og yfir götuna. Tyrkinn var fyrir með harðsperrur í handleggjunum eftir akstur gærdagsins en var vægast sagt ónýtur á kroppinn eftir þessa lífsreynslu, og ákaflega illa lyktandi. Hafa þurfti alla glugga opna á bílnum á leið út í sorpu og alla leið heim. Á leiðinni heim var komið við hjá kaupandanum og honum afhentir lyklar en tyrkinn sættist á að láta hann hafa íbúðina fyrir undirskrift því kaupandinn var að flytja í bæinn að norðan og þyrfti annars að koma draslinu fyrir annars staðar og færa það síðan aftur í tyrkjaslotið. Þá fengu ungar frænkur tyrkjafrúarinnar að vera eina nótt í tyrkjalind um kvöldið og voru pantaðar lummur fyrir mannskapinn og reynt að njóta þynnkunnar yfir kassanum.

Í dag er tyrkinn allur strengdur og ónýtur í höndum, herðum, baki og fótum, en er að fara að flytja eigur afa síns fyrir móður sína eftir vinnu.


27.9.02

:: tyrkinn 14:24 [+] ::


Þetta er framtíðin, tyrkjanum líst vel á þessa hugmynd


26.9.02

:: tyrkinn 14:10 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: Áblástur
Þessi leikur er ákaflega einfaldur í framkvæmd og er auðvelt að útskýra hann fyrir fólki í ýmsu ástandi, og vekur hann gjarnan lukku og kátínu meðal viðstaddra. Uppruni hans er ókunnur tyrkjanum, en leikurinn hefur verið notaður í mörg ár með ágætum árangri. Leikmunir eru; Tóm léttvínsflaska og spilastokkur (má nota tarrot spil eða Uno spil, en venjulegur er sennilega bestur). Í upphafi leiks er flöskunni komið fyrir á borði og spilastokkurinn lagður ofan á stútinn, þannig að hann sé fyrir miðju. Þá koma leikmenn sér fyrir í kringum flöskuna og valið hver byrjar. Markmiðið er að blása a.m.k. eitt spil ofan af stokknum í einum blæstri en óleyfilegt er að draga andann að sér og reyna aftur. Ef ekki tekst að blása a.m.k eitt spil (má blása fleiri), verður sá hinn sami að drekka fyrirfram ákveðið magn af áfengi. Ef einhver blæs síðasta spilið af stútnum verður hann einnig að drekka. Þannig getur fær leikmaður gert næsta manni grikk með því að blása fleiri en eitt spil af og skilja helst bara eitt spil eftir á stútnum, sem lætur næsta mann drekka því hann þarf að ná einu spili af sem er jafnframt það síðasta. Þegar öll spilin eru fokin af stútnum er þeim komið fyrir af næsta leikmanni í röðinni og hann hefur leik að nýju. Betra er að nota plasthúðuð spil og helst nýleg til að leikurinn gangi vel fyrir sig, en spilin geta orðið klístruð ef stuðið er mikið. Góðar stundir.



:: tyrkinn 13:42 [+] ::


Helgarhorfur
Á morgun verður haust-sukk svokallað á vegum tyrkjadeildarinnar í vinnunni. Þá er planað að fara í Go-kart (eða farðu karta), bláa lónið og drekka svo brennivín þar til blindu slær á fólk. Tyrkinn hefur ekki farið í bíló síðan í fyrra þegar tyrkinn og gyðnið héldu upp á afmæli sitt saman sem hófst á körtureið mikilli. Þá þarf tyrkinn að öllum líkindum að hreinsa út úr garðskúrnum í tyrkjaslotinu áður en kaupandinn flytur inn á laugardaginn. Annað er óráðið á þessari stundu.


25.9.02

:: tyrkinn 12:41 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: 6 Glös
Tyrkjafrúin kynnti þennan til leiks er hún kom úr námi frá landi drykkjumanna, Baunalandi. Leikurinn er einfaldur, en ákaflega árangursríkur og þar af leiðandi hættulegur fyrir veikbyggða. Leikmunir: 6 glös (mega vera staup eða lítil glös, einnig hægt að hafa mismunandi stór glös), teningur, brennivín af ýmsum toga. Glösunum er raðað upp í einfalda röð og hverju glasi gefin tala frá 1 upp í 6. Þegar leikur hefst eru glösin öll tóm. Sá sem byrjar leikinn kastar tening og talan sem kemur upp samasvarar glasi með sama númeri. Þegar kastað er og viðkomandi glas tómt, setur kastari áfengi í glasið að eigin vali af sínu brennivíni. Hann ræður hversu mikið eða lítið fer í glasið. Þá kastar næsti og koll af kolli. Þegar einhver kastar og fær tölu á glasi sem inniheldur brennivín, skal hann tæma glasið (í andlitið á sér) og kasta aftur og drekkur þar til hann lendir á tómu glasi og þá setur hann brennivín í það. Þannig getur maður lent í því að fylla glas annars vegar, eða drekka glösin öll þess vegna ef glösin eru öll full þegar röðin kemur að viðkomandi og hann fær allar tölurnar og aldrei þá sömu 6 skipti í röð. Tökum dæmi: Fyrsti leikmaður fær 3 og fyllir glas 3 af rauðvíni. Annar leikmaður fær 2 og hálf fyllir glas 2 af rommi. Þriðji leikmaður kastar 2 og drekkur úr glasi 2 - kastar þá aftur og fær 3 og tæmir einnig það glas- kastar í 3ja skiptið og fær 5 og fyllir það glas af bjór og réttir teninginn á næsta mann. Ef leikurinn gengur hratt og notað er annað en bara bjór getur þetta orðið ansi skrautlegt. Góðar stundir.



:: tyrkinn 10:03 [+] ::


Glæpamenn á hjara veraldar
Tyrkinn er ekki frá því að einhver óprúttinn afbrotamaður hafi brotist inn í Albatrossinn í nótt. Bílstjórahurðin var ólæst og ekki nema hálf lokuð þegar tyrkinn kom að honum í morgun. Þá var hólfið á milli sætanna opið, en eini hluturinn sem tyrkinn saknar er einn geisladiskur sem þar var í gær, "Last Broadcast" með Doves í Megas-Megas heimatilbúnu hulstri. Vitni eru vinsamlegast beðin um að hafa sambandi við upplýsingaborð tykjans hið fyrsta.


24.9.02

:: tyrkinn 13:24 [+] ::


Mannshvarf
Samkvæmt öruggum heimildum skrifstofu tyrkjans, sást síðast til hans á línuskautum með einhverri skonsu á götum Reykjavíkurborgar, borg óttans. Þeir sem aðhyllast kvenmannskenningu um hvarfið vilja meina að þetta staðfesti þá kenningu, en ekki er víst hvort meðskautari Herkúlesar hafi verið í arabaklæðum eða ekki. Allar frekari vísbendingar þegnar.



:: tyrkinn 11:05 [+] ::


Afmælisdagur tyrkjans
Eftir vinnu í gær fór tyrkinn og keypti sér smá dót í afmælisgjöf handa sjálfum sér. Svo fór hann heim til þess eins að uppgötva að hann hefði gleymt pappírum sem hann hafði lofað að koma með heim fyrir tyrkjafrúnna úr vinnunni. Tyrkjafrúin var búin að setja sig í myndarlegar stellingar og hóf að undirbúa ljúffenga máltíð fyrir tyrkjan en þá sló rafmagninu af tyrkjalindinni, þ.e.a.s. bara íbúð tyrkjans. Þetta átti ekki að vera mikið mál og fór tyrkinn vopnaður vasaljósi að eiga við töfluna. Þar voru allir rofar í eðlilegum horfum, svo tyrkinn fór í pílagrímsferð að skoða stóru rafmagnstöfluna fram á gangi. Þar virtist einnig allt í lagi, svo þá var farið að angra húsfélagsliðið. Þar var honum bent á hjálpsaman nágranna tyrkjans sem var allur af vilja gerður og fór hann með tyrkjanum að skoða allar töflur í húsinu. Loks komst upp að einhver snillingur (líklega rafvirkinn sem lagði fyrir allt húsið) hafði skítamixað 16 ampera postulínsöryggi í stæði fyrir 35 ampera öryggi. Nú fannst ekkert slíkt öryggi, og þegar það fannst komst það ekki á sinn stað vegna lélegs frágangs. Ævintýrið endaði eftir miklar pælingar í Árbænum þar sem rafvirkinn sem lagði dótið var enn við vinnu um níu leitið. Þar fékk tyrkinn annað 16 ampera öryggi til að skítamixa á ný þangað til búið væri að laga þetta. Pappíarnir voru sóttir í vinnuna og imbakassi einnig sem tyrkinn gaf afa sínum fyrir um einu ári eða svo. Tyrklalindin er því núna prýdd 28 tommu kassa í stað annars ágæts 21 tommu kassa sem fer í svefnherbergið. Eftir að horfa á stærra sjónvarp finnst tyrkjanum eins og textinn á skjánnum sé hannaður fyrir aldrað fólk eftir að hafa horft á minni kassann í um 2 ár.

Ekki hefur náðst í Herkúles síðan hann síðast sást 13. september s.l. Síðast sást til hans þá á Dubliners við drykkju. Að sögn vitna var hann sem óður maður að eiga við símann hans og eru getgátur á lofti um að hann hafi verið að senda smáskilaboð á milli þess sem hann misþyrmdi síma sínum og blótaði er hann virkaði ekki eins og hann vildi. Helstu kenningar um afdrif hans eru tvær; annars vegar um að stúlka sé komin í spilið, en Herkúles er ekki þekktur fyrir annað en að fara afar varlega með að deila slíkum upplýsingum með vinum sínum. Símadútlið og afar sérkennilegt hvarf hans af Dubliners styðja þessa kenningu. Seinni kenningin er sú að hann sé á lokastigi í samningaviðræðum við óþekkta arabaþjóð um vopnasölu, en styðjendur þessarar kenningar vilja meina að símadútlið og hvarfið styðji einnig þessa kenningu. Þeir sem hafa upplýsingar um hvarf Herkúlesar eru vinsamlegast beðnir um að hafa sambandi við upplýsingaborð tyrkjans sem allra fyrst (tyrkinn@hotmail.com).


Og ein skrýtla á engilsaxnesku sem barst tyrkjanum með rafpósti:

A plane was about to crash and there were 5 people on board and only 4 parachutes.

The first person said. " I am Roy Keane, one of the best footballers in Ireland. I am worth a lot of money and my fans need me so I think I should be saved"

The others agreed and gave him one of the parachutes and off he went. The second person said "I am Gerry Adams, a radical Irish politician who can really help my country and I think I should be saved." The others said."o.k." and gave him a parachute.

The third person said "I am David Beckham, captain of the English National squad. I have a wife and 2 sons. Everyone knows I am a really nice guy and everyone thinks I am stupid, but I'm not, so I am taking a parachute." and off he went.

There were two folk left, the Pope and a 10 year old schoolgirl. The Pope said, "child I am old and frail and have lived my life while you are young with everything before you." " You take the parachute and I will stay with the aircraft and take my chance"

"It's o.k.." said the girl, "there are still two parachutes. Beckham picked up my school bag."


23.9.02

:: tyrkinn 11:32 [+] ::


Ammli
Tyrkinn á afmæli í dag. Um helgina voru því haldnar afmælis/innflutningsveislur. Á föstudaginn var vinum boðið til brennivínsdrykkju. Óhætt er að segja að nokkuð mikið hafi verið drukkið og voru í því tilefni mikið sullað og a.m.k. 2 glös brotin við hátíðlega athöfn. Gleðin stóð til um klukkan 6 um nóttina þegar þeir allra hörðustu fóru heim. Laugardagurinn fór því í marathon sjónvarpsgláp með lágmarks hreyfingu. Eftir að búið var að skúra út mesta gólf-sýrópinu (og málingarflygsum af snilldarlegri skreytingu Kollunnar) var síðan boðið til fjölskyldukaffis á sunnudaginn og var tyrkjafrúin afar myndarleg við bakstur og er það vel. Tyrkjanum til mikillar óvæntrar ánægju lét tyrkjafrúin verða af því að kaupa Spielstation2 (eða pleisteisjön tú eins og hún heitir á frummálinu) fyrir tyrkjann, en var hún búin að spila það kúl lengi og fordæma slíkar vítisvélar svo mikið að tyrkinn datt orðið ekki í hug að versla sér slíkan grip. Tyrkinn vill þakka fyrir afmælis og innflutningsgjafir og góðan selskap um helgina. Tyrkjafrúin á sérstaklega gott skilið, bæði fyrir myndarskap og gjöfina góðu. Þá er bara að kaupa annað djoístikk svo hægt sé að fjölmenna....

Til stendur að undirrita kaupsamninginn á Tyrkjalindinni í dag, en gæti frestast eitthvað vegna yfirlýsingar húsfélags, sem seljandi reyndi að troða á tyrkjann. Vonast er til að geta undirritað söluna á tyrkjaslotinu í lok þessarar viku, eða í upphafi þeirrar næstu.


20.9.02

:: tyrkinn 10:34 [+] ::


"Móðgandi yfirburðir Spánverja"

Í íþróttablaði moggans er grein með þessari fyrirsögn. Hér er vísað í fyrirsögn á grein í spænska dagblaðinu Marca en tyrkinn er með kenningu. Hún er á þá leið að þetta hafi verið fyrst þýtt á ensku sem "offensive advantage of spanish teams" sem ætti að þýðast "Sóknarlegir yfirburðir spánverja" en var einhverra hluta vegna þýtt sem "móðgandi" hjá mogganum. Skrítin fyrirsögn líka, hvað er móðgandi við yfirburði?


19.9.02

:: tyrkinn 16:50 [+] ::


...og ein skrýtla í boði tyrkjans (og reyndar Lýðs)

It was autumn, and the Indians on the remote reservation asked their new
Chief if the winter was going to be cold or mild.

Since he was an Indian Chief in a modern society, he had never been taught the old secrets, and when he looked at the sky, he couldn't tell what the hell the weather was going to be.
Nevertheless, to be on the safe side, he replied to his tribe that the winter was indeed going to be cold and that the members of the village should collect wood to be prepared.

But also being a practical leader, after several days he got an idea. He went to the phone booth, called the National Weather Service and asked, "Is the coming winter going to be cold?"

"It looks like this winter is going to be quite cold indeed," the Meteorologist at the weather service responded.

So the Chief went back to his people and told them to collect even more wood in order to be prepared.

One week later he called the National Weather Service again. "Is it going to be a very cold winter?" he asked.

"Yes," the man at National Weather Service again replied, "it's going to be a very cold winter."

The Chief again went back to his people and ordered them to collect every scrap of wood they could find.

Two weeks later he called the National Weather Service again. "Are you absolutely sure that the winter is going to be very cold?"

"Absolutely," the man replied. "It looks like it's going to be one of the coldest winters ever."

"How can you be so sure?" the Chief asked. The weatherman replied, "The Indians are collecting firewood like crazy".



:: tyrkinn 14:44 [+] ::


Hvaða græjur?

Tyrkinn vill benda á ágætis vef, What hi-fi! . Þar má finna ágætis ábendingar um hitt og þetta til að fá sem bestu gæði úr græjum, eða hvaða græjur skildi kaupa. Þar er t.d. grein um "Biwire", eða "tvítengingu" eins og tyrkinn kýs að kalla fyrirbrigðið, en þessi fræði ganga út á að nota tvöfaldar hátalarasnúrur til að bæta gæðin. Þegar tyrkinn gægðist á "editors choice" á hlustunarefni var Ágætis byrjun plata Sigur rósar þar meðal fárra. Fínn vefur.


18.9.02

:: tyrkinn 12:42 [+] ::


Bæs-mania
Tyrkjafrúin er ákaflega spennt yfir nýafstaðnum flutningi þeirra tyrkjans. Eins og eðlilegt er vill hún hafa fínt í kringum sig og er aðalatriðið í dag að húsgögnin "tóni" saman. Allar hurðar eru nefnilega Mahogny litaðar, svo og skápar og eldhúsinnréttingin. Tyrkjafrúin er því alveg óð þessa dagana og vill helst bæsa öll eldri húsgögn þeirra með svipuðum lit. Glasaskápurinn víðfrægi var þannig tekinn í gegn, keyptur grænn spegill og bæsaður og nú stendur til að bæsa náttskápana sem allra fyrst. Til stóð að bæsa einnig borðstofuborðið og eina 8 stóla sem allt er lakkað í dag, en sem betur fer fá þau væntanlega dökkt borð og stóla sem amma tyrkjans átti. Tómstundarherbergi húsbóndans hefur enn sloppið við bæs pensilinn, enn sem komið er.

Nóg er að gera þessa vikuna hjá tyrkjanum. Á mánudaginn var kistulagning hjá afa tyrkjans, í dag verður ker ömmu hans jarðsett og á föstudaginn verður útför afa hans. Í dag var tilboði tekið í tyrkjaslotið (eins og áður sagði) og á föstudaginn verður kaupsamningur um tyrkjalindina undirritaður. Svo stendur til að hafa innflutningspartí á föstudaginn í tyrkjalindinni, og fjölskyldusýning á sunnudaginn. Einnig er vert að minnast á afmæli tyrkjans á mánudaginn.


Í spilaranum þessa vikuna:
Gwei-lo (alveg óskild J-lo og Hey-lo) - Gott rokk
Dr. Gunni - allt frá SH-draumi upp í nýjustu lög hans (T, fyrir 100 árum, kviðmágar) (www.this.is/drgunni)
Bris - gott band (www.rokk.is)



:: tyrkinn 11:50 [+] ::


Tyrkinn selur tyrkjaslotið

Tyrkinn hefur selt tyrkjaslotið, og einungis pappírsvinna eftir. Skrifað undir fyrir tyrkjalindina á föstudag, og fyrir tyrkjaslotið eftir 1 - 2 vikur.


17.9.02

:: tyrkinn 14:49 [+] ::


Þriðjudagar eru greinilega brandaradagar...

Aðlögunarhæfni kvenna er aðdáunarverð.....!

Hjón nokkur eru á mjög fínu veitingahúsi að borða þegar allt í einu
birtist gullfalleg stúlka við borðið þeirra og gefur manninum
svakalegan koss, beint á munninn, segist ætla að hitta hann seinna og hverfur jafn
skyndilega og hún birtist.

Konan hans starir á hann og segir: "Hver í veröldinni var þetta??"
"Ó, þessi ? Þetta var viðhaldið mitt, " segir hann rólegur.
"Jæja já !! Þetta fyllir mælinn. Ég heimta skilnað."
"Ég get skilið það," svara eiginmaðurinn, "en mundu eitt, ef við
skiljum
þá þýðir það að þú ferð ekki fleiri verslunarferðir til Parísar, ekki
fleiri vetrarferðir til Barbados, ekki fleiri sumarferðir til Toscana
og það verða ekki lengur BMW og Porsche í bílskúrnum þínum.
Þú missir klúbbskírteinið í skútuklúbbnum og þú þarft ekki mæta meira í
golf, en ákvörðunin er þín."

Einmitt þá kemur inn sameiginlegur vinur þeirra inn á veitinghúsið
með rosa gellu uppá arminn.
"Hver er þessi kona með Svenna?" spyr konan.
"Þetta er viðhaldið hans, " svarar eiginmaðurinn.

Þá segir konan: "Okkar er sætari!"



:: tyrkinn 13:13 [+] ::


Þriðjudagsaulabrandarinn

Iraqi Star Trek Fan
The Iraqi Ambassador to the UN has just finished giving a speech,
and walks out into the lobby where he meets President Bush.
They shake hands and as they walk the Iraqi says,
"You know, I have just one question about what I have seen in
America."
President Bush says "Well your Excellency, anything I can do to help
you, I will do."
The Iraqi whispers "My son watches this show 'StarTrek'
and in it there are Russians, and Blacks, Asians, and Americans,
but never any Iraqis. He is very upset. He doesn't understand why there are
never
any Iraqis in Star Trek."
President Bush laughs and leans toward the Iraqi, and whispers back,
"It's because it takes place in the future...."


16.9.02

:: tyrkinn 13:09 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans

Þetta var fín helgi. Aðalfundur R.Í.K. var afar góður að venju. Poppstjarnan bauð heim í kokteil fyrir fundinn og að þessu sinni bjó Forsetinn til síðsumarkokteil fyrir fundargesti. Þá voru hefðbundin fundarstörf afgreidd og tyrkinn gerður að forseta. Þá var farið á veitingastaðinni Gallileo og var þar snætt. Tyrkinn fékk ljúffenga sveppi í forrétt og hest í aðalrétt, og var maturinn ljómandi góður. Þá var drukkið meira og haldið á Dubliners þar sem Herkúles, Drykkjumaðurinn og Hrafnkell sátu við skál. Að lokum var farið á Gaukinn þar sem poppararnir héldu uppi stemningunni og var óhætt að segja að tyrkinn hafi verið orðið nokkuð ölvaður er hann steig á svið og söng bakraddir með bandinu í síðasta lagi. Svo lagði hann sig aðeins í leigubílnum á leið heim í Kópavog upp úr klukkan 6. Laugardagurinn var rólegur sökum þynnku og var ræman "51st state" leigð. Hún kom nokkuð á óvart þar sem tyrkinn gerði ekki miklar væntingar til hennar. Það er alveg óhætt að glápa á hana. Sunnudagurinn fór í framkvæmdir í nýju íbúðinni og er þetta allt að koma. Aðeins nokkrir kassar eru óafgreiddir eða hálfafgreiddir, en helstu hlutir komnir á sinn stað og ekki þarf að klofa mikið til að komast leiðar sinnar núna. Svo langt er tiltektin komin að tyrkinn og tyrkjafrúin hyggjast bjóða til afmælis/innflutningsveislu næsta föstudag, eða þann 20. september n.k. Svo er plan að hafa fjölskyldu afmæli/hússýningu á mánudaginn þar sem ekki er hægt að bjóða öllum til sætis enn.

Gallileo * * * 1/2
51st state * * *
Tyrkjalind * * * * 1/2


13.9.02

:: tyrkinn 13:55 [+] ::


...Well do you feel lucky punk, do you!?

Í dag er föstudagurinn 13. Eins og flestir vita er sá dagur heilagur í röðum félagsmanna R.Í.K. á Íslandi. Þegar föstudagur ber upp á þann 13. er nefnilega aðalfundur R.Í.K. og er að sjálfsögðu ekki brugðið frá þeirri hefð í kvöld. Bruggmeistari R.Í.K. er að þessu sinni ekki á landinu, en óviðráðanleg útlandavist er eina afsökun félagsmanna fyrir að mæta ekki á fund. Núverandi forseti R.Í.K., eða Gyðnið eins og hann kýs að kalla sig, hefur boðað til fundar í kvöld á heimili poppstjörnunnar klukkan 20:00 í kvöld þar sem hefðbundin fundarstörf verða framkvæmd. Þá mun tyrkinn verða "krýndur" forseti fyrir næsta tímabil sem er óvenju stutt nú, eða fram að 13. desember n.k. Poppstjarnan mun taka við embætti bruggmeistara. Svo stendur til að fara út að borða seinna og gera sér glaðan dag sem þessir hátíðadagar eru ávallt. Tyrkinn hlakkar til kvöldsins og óskar landsmönnum til hamingju með daginn.


11.9.02

:: tyrkinn 15:14 [+] ::


Nostradamus og 11. sept

Tyrkinn minnir aftur á hina frábæru heimasíðu "How stuff works". Þar má finna þessa grein um spádóma Nostradamusar og hvernig margir vilja tengja það við 11. sept 2001 á ýmist vafasaman eða svikulan hátt.

Fleiri sniðugar greinar á "Hvernig hlutir virka" :

Hvernig bílvélar virka
Hvernig yfirnáttúruleg skynjun "virkar"
Hvernig geisladiskabrennarar virka
Hvenig á að pikka upp lása....
Hvernig kjarnorkusprengjur virka
Hvenig á að villa á sér heimildir...
Hvernig vasaþjófar vinna...
Hvernig stafrænar myndvélar virka

....þetta eru aðeins sýnishorn af síðunni



:: tyrkinn 13:54 [+] ::


Afstæðishamingjukenningin

Tyrkinn fékk þennan póst sendan sem tengja má við samanburðarhamingju röflið í gær:

OK THIS ONE IZ A BIT LONG BUT IT'S WORTH READING CAUSE IT WILL MAKE U CRY TEARS OF LAUGHTER, LOL.
Next time you have a bad day at work...think of this guy.
Rob is a commercial saturation diver for Global Divers in Louisiana. He performs underwater repairs on off shore drilling rigs. Below is an E-mail he sent to his sister. She then sent it to "The X" 103.2 on your FM dial in Ft Wayne IN, who was sponsoring a "worst job experience" contest. Needless to say, she won.

"Hi Sue, just another note from your bottom-dwelling brother. Last week I had a bad day at the office. I know you've been feeling down lately at work, so I thought I would share my dilemma with you to make you realize it's not so bad after all. Before I can tell you what happened to me, I first must bore you with a few technicalities of my job. As you know, my office lies at the bottom of the sea. I wear a suit to the office. It's a wetsuit. This time of year the water is quite cool. So what we do to keep warm is this: we have a diesel powered industrial water heater. This $20,000 piece of equipment sucks the water out of the sea. It heats it to a delightful temperature. It then pumps it down to the diver through agarden hose, which is taped to the air hose. Now this sounds like a darn good plan, and I've used it several times with no complaints. What I do, when I get to the bottom and start working, is take the hose and stuff it down the back of my wetsuit. This floods my whole suit with warm water. It's like working in a Jacuzzi. Everything was going well until all of a sudden, my butt started to itch. So, of course, I scratched it. This only made things worse. Within a few seconds my butt started to burn. I pulled the hose out from my back, but the damage was done. In agony I realized what had happened. The hot water machine had sucked up a jellyfish and pumped it into my suit. Now since I don't have any hair on my back, the jellyfish couldn't stick to it. However, the crack of my butt was not as fortunate. When I scratched what I thought was an itch, I was actually grinding the jellyfish into my butt. I informed the dive supervisor of my dilemma over the communicator. His instructions were unclear due to the fact that he, along with 5 other divers, were all laughing hysterically. Needless to say I aborted the dive. I was instructed to make 3 agonizing in-water decompression stops totaling 35 minutes before I could reach the surface to begin my chamber dry decompression. When I arrived at the surface, I was wearing nothing but my brass helmet. As I climbed out of the water, the medic,with tears of laughter running down his face, handed me a tube of cream and told me to rub it on my butt as soon as I got in the chamber. The cream put the fire out, but I couldn't poop for 2 days because my butthole was swollen shut. So, next time you're having a bad day at work, think about how much worse it would be if you had a jellyfish shoved up your butt. Now repeat to yourself, "I love my job, I love my job, I love my job..."


10.9.02

:: tyrkinn 16:34 [+] ::


Grettir skrifar ágætis grein um ofríki og heimsku lögreglumanna á íslandi sem tyrkinn sá sig nauðugann að svara. Síðan hans grettis er ein sú besta, hlaðinn góðum skrítlum og ýmsu öðru "góðgæti".



:: tyrkinn 15:59 [+] ::


Samanburðarhamingja
Mannskepnan er furðulegt fyrirbæri. Tyrkinn var eitt sinn að vinna með manni (sem er ekki furðulegur, topp náungi) er kaus að kalla sig Ómar og í einni pásunni úti á stétt fóru þeir að ræða svokallaða "samanburðarhamingu" (e. Relative happiness, tyrkinn gat ekki þýtt þetta betur, afstæð hamingja?). Samanburðarhamingja virðist vera mönnum eðlislæg en þó virðist sem fólk sé mis fast í þessum samanburði. Hugtakið gengur út á það að hamingjustig eins manns sé bundið hamingju annarra manna, þ.e. ef einum manni líður betur þá líður þér verr og öfugt. Ef einn maður er ríkari en þú, líður þér eins og þú sért fátækari eftir að hafa heyrt um ríkidóm þessara manns. Þannig ber fólk sig saman við fólk sem er í kringum það, fjölskyldu, vini, samstarfsfólk eða nágranna. Þarna gæti leynst útskýringin á því hversu gaman fólk hefur af því að horfa á ófarir annarra, og jafnvel útskýringin á því af hverju "detta á rassinn"- húmor virðist alltaf vera svo fyndinn. Sumir eru alveg fastir í því að óska þeim alls ills sem hafa það betur en þeir og enn aðrir ganga svo langt að hreinlega hata þá sem virðast betur staddir en hinir. Jafnvel er það til í dæminu að fólk leggi það til jafns að græða x marga peninga og að láta nágrannann tapa sömu upphæð (eða öðlast eitthvað annað, ef fólk er viðkvæmt fyrir því að nota peninga sem dæmi). Tyrkinn man eftir að hafa séð þátt um líf fólks í sovétríkjunum sálugu þar sem fólk var alveg sátt við það að standa í biðröð í 2 tíma á dag og virtist alveg sátt við sín kjör, sérstaklega þar sem mikið öryggi fælist í því að geta ekki verið rekið fyrir það að gera lítið sem ekkert. Kannski var það vegna þess að allir voru í sama ruglinu og það hafði engann til að öfunda (nema sennilega einhverja háttsetta sem voru ekki mikið í sviðsljósinu). Sennilegt er að þetta eðli sé til staðar svo fólk reyni allt til að þróast áfram, eða þá að skv. þróunakenningu Darwins hafi þeir öfundssjúkari verið duglegri við að fjölga sér. Sama hvort er, þá er þetta furðulegt fyrirbæri sem getur endað í öfgum.

Þegar tyrkinn fletti upp "relative happiness" á netinu fann hann eina kínverska grein sem kemur niður á þetta.



:: tyrkinn 12:57 [+] ::



Ingibjörg Sólrún stendur við sitt. Hún hefur ákveðið að standa við gefin loforð frá borgarstjórnarkosningunum og mun ekki bjóða sig fram til alþingis. Tyrkinn fagnar þessari ákvörðun hennar, sem aftur á móti er sjálfsögð þar sem hún var búin að lofa því. Ef hún hefði svikist undan væri litlu hægt að trúa frá henni framvegis, en hún veit sínu og er án efa lang starkasta spil samfylkingarinnar.

----

[framvinda stóra flutningamálsins]:
Tyrkinn tengdi uppþvottavélina í gær með smá tilfæringum eftir ráðgjöf tyrkjarfrúarföðurins. Tók svo alla geisladiska upp úr kössum og raðaði þeim aftur í stafrófsröð á sinn stað. Í dag var búið að lofa að koma og bora út lásinn á geymslunni sem tyrkinn hefur ekki enn séð. Lykill af henni hefur týnst og enginn veit hvar hann er. Símagaurinn klikkaði náttúrulega á því að mæta í gær og lét ekkert í sér heyra. Loftnetstengið í stofunni er líka bilað og er ekki hægt að horfa á imbann þar, enn á eftir að finna út úr því. Svo á eftir að kaupa bókahillur.


9.9.02

:: tyrkinn 11:51 [+] ::


Ammli
Og Gyðnið átti afmæli í gær, til hamingu Gyðni!

...og þá styttist í afmæli tyrkjans sem er eftir 2 vikur, þann 23 sept.

Óskalisti tyrkjans:
1. Spielstation 2 (sem tyrkjafrúin ætlar að gefa honum)
2. Holy Grail á DVD
3. Simpsons á DVD
4. Godfather safnið á DVD
5. Brennivín
6. Hlutir



:: tyrkinn 10:39 [+] ::


Tyrkinn er fluttur - Helgarskýrsla tyrkjans

Tyrkinn lauk niðurpakkningu um aðfaranótt laugardags eftir ljómandi hlaðborðs matarboð hjá tyrkjamóðurinni þar sem föðurbróður tyrkjans og hans fjölskylda voru einnig. Laugardagurinn var svo stóri dagurinn, flutningar hófust klukkan 11:00 þrátt fyrir vafasama mætingu. Bróður tyrkjafrúarinnar mætti fyrstur og sótti hann flutningabíl sem hann keyrði svo. Gyðnið mætti fyrstur og hófst handa eins og hann ætti lífið að leysa. Svo fór fólk að mæta. Poppstjarnana og poppfrúin mættu, Bjarkinn, Tyrkjabróðirinn, Sigga nokkur frænka ásamt Oddi sínum, Una, Guðbjörg frænka, tyrkjafrúarmóðirin og nokkrir grislingar. Flutningar gengu vel og tók ekki svo langan tíma að húrra öllu draslinu niður 4 hæðir og inn í bíl. Athygli vakti að þrír vaskir menn létu ekki sjá sig fyrr en mesta vinnan var búin og einungis eftir að dreyfa bjórum, en það voru drykkjumaðurinn, herkúles (en þvottavélin var einmitt eyrnamerkt honum) og Fritz Gerber sem hafði verið að hella í báðar lappir kvöldið áður. Einungis tók svo um 20-25 mín að henda öllu inn um svala hurðina í Tyrkjalindinni. Eldhúsið fékk þó nafn með rentu þegar grind nokkur var lögð á eldavélina og einhver tók sig til og kveikti á henni. Fólk fór að finna brunalykt og skjót viðbrögð urðu til þess að grindinni var hent út á stétt og eldurinn slökktur með kóki áður en meiri skaði hlaust af. Sigga frænka sem gift er slökkviliðsmanni benti þó á að bannað sé að flytja eldinn á milli staða þar sem það getur dreyft honum, en þetta reddaðist allt. Tyrkinn vill nota tækifærið og þakka öllum sem lögðu hönd á plóg. Helgin var svo að hluta til notuð til að koma hlutum á sinn stað þó enn sé allt í kössum og pokum á víð og dreif um íbúðina.

Á sunnudaginn var svo opið hús í gamla tyrkjaslotinu þar sem um 8-9 hópar (frá 1 upp í 3 manns í hóp) skoðuðu slotið. Eitt par kom svo aftur um kvöldið með manni sem tyrkinn skýtur á að sé faðir annnars þeirra. Aldrei að vita nema tilboð komi út úr því.

Tyrkjalind:


6.9.02

:: tyrkinn 16:43 [+] ::



Which Trainspotting Character Are You?



:: tyrkinn 13:33 [+] ::


Tyrkinn fer til tannlæknis

Tyrkinn fór til tannlæknis áðan og var með skemmd í fyrsta skipti. Í tilefni þess var hann deyfður eftir að hafa beðið í 40 mín eftir afgreiðslu. Eftir nokkrar mín hóf tannsi að bora í tennur tyrkjans en þá kom í ljós að deyfingin var ekki alveg að gera sitt, svo enn meiri deyfilyfjum var dælt í kjaft tyrkjans. Nú fóru hlutir að gerast og tyrkinn fór að dofna upp allverulega. Þá hóf tannlæknirinn að atast í málinu og tróð loks hvítu gumsi í tönnina, og ekki lítur hún illa út nú, sést nær ekkert að gruflað hafi verið í henni. Á heimleiðinni sótti tyrkinn sér kvistnós loku og hélt til vinnu. Það er hægara sagt en gert að athafna sig með andlitinu þegar það er nær tilfinningalaust. Ef tekinn er sopi af kókflösku finnur maður bara fyrir helming hans og finnst maður vera að hella yfir hökuna á sér. Og ekki vildi betur til en svo að tyrkinn var langt kominn með að éta á sér neðri vörina með lokunni og var farið að blæða all nokkuð úr henni ögn síðar. Og svo þarf hann að mæta aftur þann 25. , usss.....



:: tyrkinn 09:27 [+] ::


Viðrar vel til loftárása


5.9.02

:: tyrkinn 09:57 [+] ::


Oppereisjön múf
Tyrkinn og tyrkjafrúin pökkuðu í gær eins og ótt fólk með hjálp móður tyrkjafrúarinnar. Pakkað var til að allir kassar voru á þrotum og fer að styttast í annan endann. Flutningar hefjast klukkan 11:00 á laugardaginn.

Sagan segir að Pétur nokkur verði að spila á Kringlukránni í kvöld ásamt söngkonu einhverri, skv. Fréttablaðinu.


4.9.02

:: tyrkinn 11:02 [+] ::


Internet-tenging
Nú er tyrkinn að flytja og fór hann því að athuga með net tengingu sína. Nú er tyrkinn með Fjöltengi frá orkuveitunni, en orkuveitann hefur ekki enn treyst sér til að tengja þessa þjónustu á hjara veraldar, Kópavogi. Tyrkinn gæti því orðið að fara aftur yfir í módem yfir símalínu í einhvern tíma, en er ný búinn að láta tyrkjafrúarbróðurinn hafa sitt módem aftur eftir lán og er því ekki með slíkt tiltækt. Er einhver sem sér sér fært um að lána tyrkjanum slíka græju sem ekki er í notkun?


3.9.02

:: tyrkinn 15:27 [+] ::


Lýður bendir hér á ágætis skoðunar-próf sem er ákaflega fljótlegt.



:: tyrkinn 12:28 [+] ::


Tyrkinn var að skrá sig í námskeið í Endurmenntun HÍ, þar sem hægt er orðið að skrá sig á netinu. Ef einhver hefur áhuga á að taka kúrsinn með tyrkjanum er viðkomandi beðinn um að hafa samband. Gyðnið ætlaði með tyrkjanum, en hann er á leið til Skotlands að nema sagnfræði.



:: tyrkinn 12:11 [+] ::


Albatross sást við Íslandsstrendur í dag... Eins og flestir vita heitir glæsikerra tyrkjans eftir slíkum fugli...



:: tyrkinn 11:09 [+] ::


<--- Einhverra hluta vegna sýnir klan listinn góði ranga tímasetningu á innleggjum tyrkjans. Hann vill alltaf meina að hlutirnir gerist áður en þeir gerast...



:: tyrkinn 09:56 [+] ::


Hjari veraldar
Tyrkinn er þessa dagana að henda öllu sínu hafurtaski í bókakassa (frá Kassagerðinni, vörunúmer: 101972) þessa dagana. Búið er að pakka bókum, diskum, DVD, vídeo spólum, brennivíni og ýmsu smálegu og fara næstu dagar í þetta, ásamt áframhaldandi sýningum á Tyrkjaslotinu sem ætti að birtast í fasteignablaðinu í dag. Auðvitað þurfti að opna 2-3 kassa aftur til að hafa upp á alfræðiorðabókinni til að grufla í goðafræði, en það gekk ágætlega vegna góðra merkinga tyrkjans. Drykkjumaðurinn kom í heimsókn í gær, hann er sá eini fyrir utan bróður tyrkjafrúnnar sem kemur í heimsókn án þess að gera boð á undan sér og alltaf má þekkja hringingu hans á dyrabjölluna því hann hamast á henni eins og óður maður. Tyrkinn og Drykkjumaðurinn tóku tvo kotruleiki og endaði staðan jöfn 4-4 og þurfa þeir því að útkljá þetta seinna.

Fyrir þá sem ekki hafa séð er Grettir kominn með nýtt lúkk, og mælir tyrkinn með innliti þangað.


2.9.02

:: tyrkinn 14:06 [+] ::


Helgarskýrsla Tyrkjans

Tyrkinn fór í mat til tyrkjamóðurinnar á föstudaginn ásamt frú, en systir tyrkjans er á landinu þessa vikuna með fjölskyldu sína vegna jarðarfarar. Maturinn var ljómandi að venju og eftir hann héldu þau til Poppstjörnunnar til brennivínsdrykkju sem endaði með bæjarferð og mikilli ölvun. Á laugardaginn var farið í mat til foreldra tyrkjafrúnnar en þaðan fór tyrkinn til Bjarkans þar sem spilaður var póker. Fritz Gerber, Gyðnið, Bjarkinn, Tyrkinn, Herkúles og Drykkjumaðurinn sátu þar að sumbli, en drykkjumaðurinn ætlar að heiðra íslendinga með nærveru sinni í rúma viku. Þar sem óvenju margir sátu við borðið gekk leikurinn hægt og fóru leikar ekki eins og við var búist. Herkúles sem unnið hafði síðustu 2 pókerkvöld fyrir þetta féll fyrstur úr leik, og það sem merkilegra var, Drykkjumaðurinn fór heim með aura nærstaddra þrátt fyrir mikla ölvun og þá staðreynd að hann hafi verið í eigin heimi mest allt kvöldið. Tyrkinn og Fritz Gerber drukku uppakokteil þetta kvöld sem nefndur er "Mohítos" og þykkir víst flottur í dag. Hann samanstendur af krömdum lime sneiðum, brúnum sykri, myntulaufi (sem ekki fékkst reyndar í 10-11), miklum ís og rommi. Einnig hægt að setja "dass" af sprite eða sambærilegu og varð fresca fyrir valinu. Fínasti drykkur og einn af fáum romm-drykkjum sem er mönnum bjóðandi, en kúbanskir kokteilar eru venjulega ágætir að fenginni reynslu tyrkjans. Sunnudagurinn fór í framkvæmdir á nýju íbúðinni og voru sett upp ljós og rimlagardínur á tyrkjalindina og þótti flott. Tyrkinn minnir á flutninga næstkomandi laugardag.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra