|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
september 27, 2002
Þetta er framtíðin, tyrkjanum líst vel á þessa hugmynd
september 26, 2002
Drykkjuleikur dagsins: Áblástur
Þessi leikur er ákaflega einfaldur í framkvæmd og er auðvelt að útskýra hann fyrir fólki í ýmsu ástandi, og vekur hann gjarnan lukku og kátínu meðal viðstaddra. Uppruni hans er ókunnur tyrkjanum, en leikurinn hefur verið notaður í mörg ár með ágætum árangri. Leikmunir eru; Tóm léttvínsflaska og spilastokkur (má nota tarrot spil eða Uno spil, en venjulegur er sennilega bestur). Í upphafi leiks er flöskunni komið fyrir á borði og spilastokkurinn lagður ofan á stútinn, þannig að hann sé fyrir miðju. Þá koma leikmenn sér fyrir í kringum flöskuna og valið hver byrjar. Markmiðið er að blása a.m.k. eitt spil ofan af stokknum í einum blæstri en óleyfilegt er að draga andann að sér og reyna aftur. Ef ekki tekst að blása a.m.k eitt spil (má blása fleiri), verður sá hinn sami að drekka fyrirfram ákveðið magn af áfengi. Ef einhver blæs síðasta spilið af stútnum verður hann einnig að drekka. Þannig getur fær leikmaður gert næsta manni grikk með því að blása fleiri en eitt spil af og skilja helst bara eitt spil eftir á stútnum, sem lætur næsta mann drekka því hann þarf að ná einu spili af sem er jafnframt það síðasta. Þegar öll spilin eru fokin af stútnum er þeim komið fyrir af næsta leikmanni í röðinni og hann hefur leik að nýju. Betra er að nota plasthúðuð spil og helst nýleg til að leikurinn gangi vel fyrir sig, en spilin geta orðið klístruð ef stuðið er mikið. Góðar stundir.
Helgarhorfur
Á morgun verður haust-sukk svokallað á vegum tyrkjadeildarinnar í vinnunni. Þá er planað að fara í Go-kart (eða farðu karta), bláa lónið og drekka svo brennivín þar til blindu slær á fólk. Tyrkinn hefur ekki farið í bíló síðan í fyrra þegar tyrkinn og gyðnið héldu upp á afmæli sitt saman sem hófst á körtureið mikilli. Þá þarf tyrkinn að öllum líkindum að hreinsa út úr garðskúrnum í tyrkjaslotinu áður en kaupandinn flytur inn á laugardaginn. Annað er óráðið á þessari stundu.
september 25, 2002
Drykkjuleikur dagsins: 6 Glös
Tyrkjafrúin kynnti þennan til leiks er hún kom úr námi frá landi drykkjumanna, Baunalandi. Leikurinn er einfaldur, en ákaflega árangursríkur og þar af leiðandi hættulegur fyrir veikbyggða. Leikmunir: 6 glös (mega vera staup eða lítil glös, einnig hægt að hafa mismunandi stór glös), teningur, brennivín af ýmsum toga. Glösunum er raðað upp í einfalda röð og hverju glasi gefin tala frá 1 upp í 6. Þegar leikur hefst eru glösin öll tóm. Sá sem byrjar leikinn kastar tening og talan sem kemur upp samasvarar glasi með sama númeri. Þegar kastað er og viðkomandi glas tómt, setur kastari áfengi í glasið að eigin vali af sínu brennivíni. Hann ræður hversu mikið eða lítið fer í glasið. Þá kastar næsti og koll af kolli. Þegar einhver kastar og fær tölu á glasi sem inniheldur brennivín, skal hann tæma glasið (í andlitið á sér) og kasta aftur og drekkur þar til hann lendir á tómu glasi og þá setur hann brennivín í það. Þannig getur maður lent í því að fylla glas annars vegar, eða drekka glösin öll þess vegna ef glösin eru öll full þegar röðin kemur að viðkomandi og hann fær allar tölurnar og aldrei þá sömu 6 skipti í röð. Tökum dæmi: Fyrsti leikmaður fær 3 og fyllir glas 3 af rauðvíni. Annar leikmaður fær 2 og hálf fyllir glas 2 af rommi. Þriðji leikmaður kastar 2 og drekkur úr glasi 2 - kastar þá aftur og fær 3 og tæmir einnig það glas- kastar í 3ja skiptið og fær 5 og fyllir það glas af bjór og réttir teninginn á næsta mann. Ef leikurinn gengur hratt og notað er annað en bara bjór getur þetta orðið ansi skrautlegt. Góðar stundir.
Glæpamenn á hjara veraldar
Tyrkinn er ekki frá því að einhver óprúttinn afbrotamaður hafi brotist inn í Albatrossinn í nótt. Bílstjórahurðin var ólæst og ekki nema hálf lokuð þegar tyrkinn kom að honum í morgun. Þá var hólfið á milli sætanna opið, en eini hluturinn sem tyrkinn saknar er einn geisladiskur sem þar var í gær, "Last Broadcast" með Doves í Megas-Megas heimatilbúnu hulstri. Vitni eru vinsamlegast beðin um að hafa sambandi við upplýsingaborð tykjans hið fyrsta.
september 24, 2002
Mannshvarf
Samkvæmt öruggum heimildum skrifstofu tyrkjans, sást síðast til hans á línuskautum með einhverri skonsu á götum Reykjavíkurborgar, borg óttans. Þeir sem aðhyllast kvenmannskenningu um hvarfið vilja meina að þetta staðfesti þá kenningu, en ekki er víst hvort meðskautari Herkúlesar hafi verið í arabaklæðum eða ekki. Allar frekari vísbendingar þegnar.
Afmælisdagur tyrkjans
Eftir vinnu í gær fór tyrkinn og keypti sér smá dót í afmælisgjöf handa sjálfum sér. Svo fór hann heim til þess eins að uppgötva að hann hefði gleymt pappírum sem hann hafði lofað að koma með heim fyrir tyrkjafrúnna úr vinnunni. Tyrkjafrúin var búin að setja sig í myndarlegar stellingar og hóf að undirbúa ljúffenga máltíð fyrir tyrkjan en þá sló rafmagninu af tyrkjalindinni, þ.e.a.s. bara íbúð tyrkjans. Þetta átti ekki að vera mikið mál og fór tyrkinn vopnaður vasaljósi að eiga við töfluna. Þar voru allir rofar í eðlilegum horfum, svo tyrkinn fór í pílagrímsferð að skoða stóru rafmagnstöfluna fram á gangi. Þar virtist einnig allt í lagi, svo þá var farið að angra húsfélagsliðið. Þar var honum bent á hjálpsaman nágranna tyrkjans sem var allur af vilja gerður og fór hann með tyrkjanum að skoða allar töflur í húsinu. Loks komst upp að einhver snillingur (líklega rafvirkinn sem lagði fyrir allt húsið) hafði skítamixað 16 ampera postulínsöryggi í stæði fyrir 35 ampera öryggi. Nú fannst ekkert slíkt öryggi, og þegar það fannst komst það ekki á sinn stað vegna lélegs frágangs. Ævintýrið endaði eftir miklar pælingar í Árbænum þar sem rafvirkinn sem lagði dótið var enn við vinnu um níu leitið. Þar fékk tyrkinn annað 16 ampera öryggi til að skítamixa á ný þangað til búið væri að laga þetta. Pappíarnir voru sóttir í vinnuna og imbakassi einnig sem tyrkinn gaf afa sínum fyrir um einu ári eða svo. Tyrklalindin er því núna prýdd 28 tommu kassa í stað annars ágæts 21 tommu kassa sem fer í svefnherbergið. Eftir að horfa á stærra sjónvarp finnst tyrkjanum eins og textinn á skjánnum sé hannaður fyrir aldrað fólk eftir að hafa horft á minni kassann í um 2 ár.
Ekki hefur náðst í Herkúles síðan hann síðast sást 13. september s.l. Síðast sást til hans þá á Dubliners við drykkju. Að sögn vitna var hann sem óður maður að eiga við símann hans og eru getgátur á lofti um að hann hafi verið að senda smáskilaboð á milli þess sem hann misþyrmdi síma sínum og blótaði er hann virkaði ekki eins og hann vildi. Helstu kenningar um afdrif hans eru tvær; annars vegar um að stúlka sé komin í spilið, en Herkúles er ekki þekktur fyrir annað en að fara afar varlega með að deila slíkum upplýsingum með vinum sínum. Símadútlið og afar sérkennilegt hvarf hans af Dubliners styðja þessa kenningu. Seinni kenningin er sú að hann sé á lokastigi í samningaviðræðum við óþekkta arabaþjóð um vopnasölu, en styðjendur þessarar kenningar vilja meina að símadútlið og hvarfið styðji einnig þessa kenningu. Þeir sem hafa upplýsingar um hvarf Herkúlesar eru vinsamlegast beðnir um að hafa sambandi við upplýsingaborð tyrkjans sem allra fyrst (tyrkinn@hotmail.com).
Og ein skrýtla á engilsaxnesku sem barst tyrkjanum með rafpósti:
A plane was about to crash and there were 5 people on board and only 4 parachutes.
The first person said. " I am Roy Keane, one of the best footballers in Ireland. I am worth a lot of money and my fans need me so I think I should be saved"
The others agreed and gave him one of the parachutes and off he went. The second person said "I am Gerry Adams, a radical Irish politician who can really help my country and I think I should be saved." The others said."o.k." and gave him a parachute.
The third person said "I am David Beckham, captain of the English National squad. I have a wife and 2 sons. Everyone knows I am a really nice guy and everyone thinks I am stupid, but I'm not, so I am taking a parachute." and off he went.
There were two folk left, the Pope and a 10 year old schoolgirl. The Pope said, "child I am old and frail and have lived my life while you are young with everything before you." " You take the parachute and I will stay with the aircraft and take my chance"
"It's o.k.." said the girl, "there are still two parachutes. Beckham picked up my school bag."
september 23, 2002
Ammli
Tyrkinn á afmæli í dag. Um helgina voru því haldnar afmælis/innflutningsveislur. Á föstudaginn var vinum boðið til brennivínsdrykkju. Óhætt er að segja að nokkuð mikið hafi verið drukkið og voru í því tilefni mikið sullað og a.m.k. 2 glös brotin við hátíðlega athöfn. Gleðin stóð til um klukkan 6 um nóttina þegar þeir allra hörðustu fóru heim. Laugardagurinn fór því í marathon sjónvarpsgláp með lágmarks hreyfingu. Eftir að búið var að skúra út mesta gólf-sýrópinu (og málingarflygsum af snilldarlegri skreytingu Kollunnar) var síðan boðið til fjölskyldukaffis á sunnudaginn og var tyrkjafrúin afar myndarleg við bakstur og er það vel. Tyrkjanum til mikillar óvæntrar ánægju lét tyrkjafrúin verða af því að kaupa Spielstation2 (eða pleisteisjön tú eins og hún heitir á frummálinu) fyrir tyrkjann, en var hún búin að spila það kúl lengi og fordæma slíkar vítisvélar svo mikið að tyrkinn datt orðið ekki í hug að versla sér slíkan grip. Tyrkinn vill þakka fyrir afmælis og innflutningsgjafir og góðan selskap um helgina. Tyrkjafrúin á sérstaklega gott skilið, bæði fyrir myndarskap og gjöfina góðu. Þá er bara að kaupa annað djoístikk svo hægt sé að fjölmenna....
Til stendur að undirrita kaupsamninginn á Tyrkjalindinni í dag, en gæti frestast eitthvað vegna yfirlýsingar húsfélags, sem seljandi reyndi að troða á tyrkjann. Vonast er til að geta undirritað söluna á tyrkjaslotinu í lok þessarar viku, eða í upphafi þeirrar næstu.
|
|
|
|
|