Tyrkinn Rausar // Alltaf hress, alltaf myndarlegur, alltaf tyrkinn... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins //
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

október 4, 2002

:: tyrkinn 13:24 [+] ::

RÚV á botninum

RÚV virðist alveg vera tapa sér í Disney myndum, mynd kvöldsins:

20.10 Disneymyndin - 211
Brettagellurnar
(Rip Girls)
13 ára stúlka erfir landareign á
Hawaii og lærir á brimbretti.

(af www.textavarp.is)



:: tyrkinn 11:11 [+] ::

Ágreiningur
Tyrkjafrúin benti tyrkjanum á það að nafn síðast drykkjuleiks var "Mayer" (sbr. litli mayer og stóri mayer). Einnig bennti hún að það að hún hafi kennt tyrkjanum þennan leik í baunalandi þar sem hún dvaldi meðal bauna í ein 5 ár, og þessvegna ætti hann frekar að heita "Tyrkjafrú" en ekki "Tyrkjaleikurinn". Tyrkinn er ekki sammála því, Tyrkjaleikurinn er þjálli og svo er tyrkinn að kynna þetta fyrir alþjóð og finnst það sjálfsagt að alla vega einn drykkjuleikur verði kenndur við sig. Skál.

Sviðarson hringdi í tyrkjann í gær og benti á það kæruleysi tyrkjans að hafa ekki boðið sér, nágrannanum, í fimmtudagsbjór. Tyrkinn sá við sér að bragði og bauð Sviðarsyni yfir í bjór. Fritz Gerber, hinn nágranni tyrkjans mætti einnig í tyrkjalindina og sátu menn við öl. Mikið var rætt um færibönd (e. snowmobile) og ferðir á hálendinu á slíkum tækjum. Undir lok kvöldsins var Sviðarson farinn að iða í skinninu að komast aftur á fák sinn, þar sem golfið er að líða undir lok, en þess má geta að þessi maður er hobbí óður. Kynnt var hugmynd um að hafa sameiginlegan kvöldverð þessara nágranna og var vel tekið í. Tyrkinn biður velvirðingar á kæruleysinu.

Helgin lítur út fyrir að verða tiltölulega róleg og væntanlega gefst færi á því að taka upp úr síðustu kössunum, en það eru kassarnir sem síðast var pakkað í, kassarnir sem sturtað var í undir lokin. Merkilegt hvað voru margir kassar af alls kyns drasli sem ekki átti heima í sér merktum kössum með sambærilegum hlutum.

Enn hefur ekki heyrst frá Herkúlesi og eru menn farnir að hafa áhyggjur. Síðast sást til Herkúlesar 13. september síðastliðinn. Hann er meðalmaður á hæð, og var klæddur í ljósbrúnan jakka, í hvítum bol og gallabuxum. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Herkúlesar er bent á upplýsingaborð tyrkjans.


október 3, 2002

:: tyrkinn 14:35 [+] ::

The axis of evil...



:: tyrkinn 12:37 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: Tyrkjaleikurinn
Þessi leikur á rætur sínar að rekja til baunalands. Tyrkinn lærði hann á kaffihúsi í Óðinsvéum fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan, en þar er hann það vinsæll að leikmuni er hægt að fá lánaða á öllum betri börum borgarinnar. Að vísu heitir hann eitthvað annað sem tyrkinn ekki man, og skal því vera nefndur eftir tyrkjanum hér eftir á þessu landi. Stuldinn á nafninu má hér eftir kalla tyrkjaránið, því eins og allir vita voru það Alsír búar sem rændu frændur okkar Vestmannaeyjaskeggja hér um árið. Þessi leikur er ögn flóknari en fyrri 2 leikir hér á síðunni, en í raun tekur ekki langan tíma að læra hann og getur hann falið í sér gríðar mikið stuð og áfengisdrykkju. Eins og hefð er með svona leiki er myndaður hringur og gengur leikurinn í hring, mann frá manni.


Leikmunir: Tveir hefðbundnir 6-hliða teningar og tvö ógagnsæ glös. Baunar nota leðurglös eins og gjarnan fylgja með yatsi og þess konar leikjum. Glösin þurfa að vera þeim eiginleikum gædd að hægt sé að setja teningana á botn annars glassins sem stendur á hvolfi og hitt glasið ofan á, en þannig að rúm sé á milli botna glasanna svo teningarnir geti hringlað á milli.

Leikreglur: Fyrsti leikmaður leggur teningana á milli glasanna (eins og áður var útskýrt) og hristir glösin. Þá lyftir hann efra glasinu þannig að aðeins hann sjái tölurnar á teningunum. Þá réttir hann glösin (efra glasið sett aftur á hið neðra) án þess að hrista þannig að tölurnar séu áfram þær sömu, til næsta manns. Þá segir hann töluna sem teningarnir sýna eða lýgur til um hana, lygin spilar stóran part í leiknum sjáið til. Næsti maður þarf annað hvort að rengja fyrri mann (kalla hann lygara) eða fá hærri tölu sjálfur án þess að kíkja á tölur fyrri mannsins. Ef hann rengir fyrsta manninn tilkynnir hann það að hann gruni þann fyrsta um lygi og lyftir efra glasinu af til að taka af allan vafa. Ef fyrsti maður hefur logið, drekkur hann, en ef hann hefur ekki logið drekkur sá sem rengdi hann ranglega. Ef hann trúir hins vegar fyrri kastara, hringlar hann glösunum án þess að kíkja og verður að fá jafn háa tölu og sá fyrri eða hærri. Ef hann nær ekki jafn hárri tölu, verður hann að ljúga einhverri hærri tölu eða jafn hárri og rétta glasið áfram. Þannig verður alltaf að fá hærri tölu og það verður erfiðara að ná henni eftir því sem hún hækkar og meiri líkur eru á að fólk ljúgi. Þá reynir á hve fólk er gott að ljúga, því lélegir lygarar þurfa að drekka meira. Þegar einhver er "böstaður" með að ljúga, þarf sá hinn sami að drekka og leikur hefst að nýju, og sá sem drakk byrjar upp á nýtt að kasta.

Teningatölurnar: Ekki eru lagaðar saman tölurnar á teningunum eins og margir myndu halda, heldur er ákveðið kerfi á því. Talan 5 og talan 1 á teningunum er því ekki 6 heldur 51, hærri talan fyrst og lægri síðan. Þannig verður 3 og 6 á teningunum 63. Ef sama tala kemur á báða teninga, er það par hærra en tvær ólíkar tölur (flestar, sjá neðar). Þannig verður goggunarröðin á tölunum:

3&2 - 32 lægsta mögulega tala
4&1 - 41
4&2 - 42
og þannig áfram...
6&4 - 64
6&5 - 65
1&1 - Ásapar (hærri en allar fyrri tölur, en lægst af pörunum)
2&2 - Tvistapar
....
6&6 - Sexupar (hæsta parið)
1&3 - Litli Tyrki
1&2 - Stóri tyrki (hæsta mögulega kast)

Þannig eru pörin hægri en ósamstæðu tölurnar, nema litli tyrki sem er næst hæstur og stóri tyrki sem er besta tala sem hægt er að fá, ef maður kastar litla tyrkja þarf næsti maður að ná honum líka til að sleppa við drykkju.

Dæmi: Leikmaður A kastar og fær 5&2 (52). Hann segir rétta tölu (52) og réttir glösin með teningunum áfram á leikmann B. Leikmaður B kastar 4&4 (fjarkapar), segir rétta tölu og réttir áfram til C. Leikmaður C kastar 1&3 (litla tyrkja), tilkynnir það og réttir áfram til D. Leikmaður D trúir leikmanni C og kastar því aftur og fær 5%3 (53), nú er leikmaður D í klípu því kastið er ekki nógu hátt og lýgur til um það að hann hafi fengið stóra tyrkja (1&2) og réttir glösin áfram. Leikmaður E trúir því ekki að D hafi fengið stóra tyrkja og rengir hann því og tilkynnir að hann haldi að D sé að ljúga. Því næst lyftir hann efra glasinu alveg þannig að allir sjá að D laug til um útkomuna. Þá þarf D að drekka og hefja leikinn aftur frá byrjun.
Spurningar má senda á tyrkinn@hotmail.com

Góðar stundir...



:: tyrkinn 11:54 [+] ::

Furðufrétt dagsins
Þessi frétt gæti hafa verið komin frá piltunum í Baggalút, en hún er þess í stað á mbl.is , Forsetinn haugsugunni fátækari. Og hvað í ansk... er haugsuga?!



:: tyrkinn 10:59 [+] ::

Í klóm drekans
Loks hefur náðst sátt í málinu um heimildarmyndina "Í klóm drekans" sem gerð var um fegurðarsamkeppni fyrir skömmu. Aðstandendur keppninnar féllust á það að hún væri sýnd ef andlit og hár keppenda væri "blörrað" í nokkrum atriðum, líklega þeim sem þær sjást drekka brennivín og reykja svo foreldrarnir kæmust ekki að þessum syndum fegurðardrottninganna. Tyrkinn hlakkar til að sjá myndina og fagnar þessum fréttum. Þessi mynd minnir tyrkjan á aðra heimildarmynd sem ekki hefur fengið eins mikla auglýsingu, en er áhugaverð engu að síður. Það var meistari Gunnar B Guðmundsson sem rekur Þeir tveir kvikmyndagerð sem gerði myndina fyrir nokkru síðan og fjallaði hún um nútíma fermingar og heitir myndin því viðeigandi nafni "Hræsni". Tyrkinn hefur ekki séð hana enn en hún ku vera góð.


október 2, 2002

:: tyrkinn 14:45 [+] ::

Nýr bimmi

BMW hefur sett nýjan bíl á markaðinn, Z4 Roadster, sem er flottari en forveri hans Z3


október 1, 2002

:: tyrkinn 15:59 [+] ::

Bakþankar Flugleiða
Tyrkinn er farinn að sakna Sopranos þáttanna. Sagan segir þó að ný sería sé farin í gang þar vestra og ef RÚV er ekki alveg að pissa í skóinn þá munum við frónbúar væntanlega sjá til þáttanna áður en yfir líkur. Tyrkinn var að horfa á Jay Leno í gær og hrökk við þegar grínarinn góðkunni sagði brandara um Flugleiðir, "stolt" íslendinga. Þannig er mál með vexti, eftir því sem tyrkinn best skilur, að í nýlegum Sopranos þætti hafi þeir mafíufélagar brugðið sér í Flugleiðavél þar sem flugfreyjurnar hafi verið óvenju "heitar" og var þeim lýst sem kynóðum þokkadísum (eða eitthvað því um líkt) í þættinum. Einnig fylgdi það brandaranum að þeir Flugleiðamenn væru æfir yfir þeirri neikvæðu ímynd sem Flugleiðir (eða Icelandair eins og þeir kjósa að kalla sig þar ytra) hlyti í kjölfar þáttarins alræmda. Tyrkinn veit ekki betur en að einmitt Flugleiðir hafi auglýst stíft í mörg ár á vafasömum nótum, hver man ekki eftir auglýsingaherferð með yfirskriftina "One night stand in Iceland" og eftir gamalli mynd af þremur "nöktum" þokkadísum í einni og sömu stóru lopapeysunni? Nú fyrst þegar þessar herferðir fara að virka og hljóta almenna athygli fara þeir að röfla og vilja ekkert kannast við þessa ímynd sem þeir hafa verið að skapa árum saman. Nú, nema til standi að láta röflið undirstrika þetta betur og vekja meiri athygli á þessu, það kom þeim alla vega í Tonight show....


september 30, 2002

:: tyrkinn 16:08 [+] ::

Helgarskýrsla tyrkjans

Föstudagur: Haustskrall
Á föstudaginn var ræst út úr vinnunni skömmu eftir klukkan 16:00 og stefnan tekin í Reykjanesbæ í körtukeppni (e. go-kart, eða farðu-karta). Var kominn all nokkur keppnishugur í mannskapinn áður en lagt var í hann og því mikil stemning. Keppt var í 2 riðlum (20 hringi) með tímatökum á undan og loks úrslit (8 hringir). Tyrkinn var í fyrri riðli og var á 3 ráspóli eftir tímatökur. Ljóst var snemma að tyrkinn yrði þó ekki í toppbárátunni og voru allir draumar um verðlaunasæti úti þegar hann fauk út af brautinni í fjórða eða fimmta hring. Endaði með því að hann náði aðeins að vinna sig upp en lenti í 5. sæti, en það 4. fór í úrslitin, mikil vonbrigði...

Eftir úrslitin var Fritz Gerber dæmdur sigurverari og hlaut 3 lítra bjórflösku, gullverðlaun og kampavínsflösku að launum (sjá mynd). Eftir nánari skoðun kom þó í ljós að Hey-lo (maðurinn með furðulega svipinn á myndinni með manninum sem er að frussa bjór upp í nefið á sér, sjá myndir að neðan) var réttmætur sigurverari þar sem óprúttinn ökumaður hafði keyrt Fritz Gerber í hring utan um línuna þar sem tíminn er mældur með tölvumælum, en samkvæmt tölunum setti Fritz heimsmet, hringinn á rúmmlega 3 sek. Gerberinn sá sér því sóma í því að skipta við Hey-lo um verðlaun og afhenda honum flöskurnar. Eftir körtuna var haldið í bláa lónið (rétt fyrir lokun) og baðað sig eftir djöfulganginn og einn bjór eða svo drukkinn þar. Þá var haldið í heimahús þar sem kræsingar og drykkjarföng biðu hópsins. Þá var drukkið fram á nótt og mikið sungið og dansað. Að venju var tyrkjanum stillt upp á sófanum og látinn syngja vinsæl Tom Jones lög með öllu tilheyrandi. Einn annars ágætur maður, myndasmiður þessara mynda, gerðist samt óprúttinn og tók bæði myndir og stuttar kvikmyndaklippur á stórsniðuga stafræna myndavél sína.

Nú geta því of margir rifjað ósköpin upp og getur tyrkinn því séð hvernig hann lítur út og hljómar þegar hann gerir sig að fífli. Eftir að tyrkinn hafði látið óðslega, brotið 2 full rauðvínsglös með hálftíma millibili og röflað einhver ósköp var haldið heim á leið. Sem betur fer var stefnan ekki tekin á miðbæ Reykjavíkur, borg óttans, en haldið heim í svefninn. Tyrkjafrúin vildi meina að hún væri þunn á laugardaginn eftir að hafa andað að sér brennívínsgufum tyrkjans í svefni. Tyrkinn er ekki tilbúinn að styðja þá kenningu, en þó er aldrei að vita, enda mundi hann varla eftir heimferðinni.

Hér má sjá nokkrar valdar myndir frá föstudeginum. Til að setja myndirnar beint inn, þarf að borga fyrir pbase.com , og tyrkinn er of nískur fyrir þessháttar....


Laugardagurinn: Það sem ekki á að gera í þynnku
Á laugardaginn þurfti tyrkinn að hysja upp um sig og fara ásamt frúnni í gamla tyrkjaslotið og þrýfa og bera rotnandi garðúrgang út úr útigeymslunni. Tyrkjafrúin hafði fyrr um sumarið ákveðið að setja garðinn í stand og hafði hent ófáum pokum af rotnandi mold og arfa í útigeymsluna. Lyktin af þessum kokteil var afar ógeðfelld og minnti hún helst á rotþró, hálf fulla af kattahlandi. Þetta þurfti að bera út úr geymslunni og garðinum í gegnum húsið og yfir götuna. Tyrkinn var fyrir með harðsperrur í handleggjunum eftir akstur gærdagsins en var vægast sagt ónýtur á kroppinn eftir þessa lífsreynslu, og ákaflega illa lyktandi. Hafa þurfti alla glugga opna á bílnum á leið út í sorpu og alla leið heim. Á leiðinni heim var komið við hjá kaupandanum og honum afhentir lyklar en tyrkinn sættist á að láta hann hafa íbúðina fyrir undirskrift því kaupandinn var að flytja í bæinn að norðan og þyrfti annars að koma draslinu fyrir annars staðar og færa það síðan aftur í tyrkjaslotið. Þá fengu ungar frænkur tyrkjafrúarinnar að vera eina nótt í tyrkjalind um kvöldið og voru pantaðar lummur fyrir mannskapinn og reynt að njóta þynnkunnar yfir kassanum.

Í dag er tyrkinn allur strengdur og ónýtur í höndum, herðum, baki og fótum, en er að fara að flytja eigur afa síns fyrir móður sína eftir vinnu.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Mjuzik vikunnar

Eldra