Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

31.10.02

:: tyrkinn 15:06 [+] ::



Take This Quiz!



:: tyrkinn 14:44 [+] ::





Even Superman once worked in a team

Take the Cartoon Hero Quiz?.



:: tyrkinn 13:49 [+] ::


Brrrrrr
Nú er kalt, tyrkinn þurfti að skafa nokkur kíló af frosnu vatni af Albatrossinum í morgun, bæði að utan og innan. Tyrkinn er ekki einn af þeim sem fagnar fyrstu snjókomunni eins og sumir. Þeim sem líkar snjór og kuldi má skipta í þrjá flokka:

Fyrsti flokkurinn samanstendur af jeppanördum og hjálparsveitamönnum (sem oft er einn og sami maðurinn). Þeir eru uppá sitt besta þegar veður er brjálað og fara þá gjarnan út að leita að fólki sem fast er í snjósköflum, ýmist í borginni eða á vegum úti á landi. Þeir fá mikið út úr því að hjálpa bágstöddu fólki, skítköldu og döpru, og leiðist ekkert að réttlæta bifreiðakaup sín með þessum hætti; "Ha,ha, og þú sem fattaðir ekki afhverju ég eyddi 3 millum í "leiktæki", haha". Það er alltaf gott að vita af þessum köppum (þetta eru mestmegnis karlmenn einhverra hluta vegna...) þegar maður áttar sig á því að maður er fastur í skafli og kemst ekki heim. Tveir slíkir björguðu deginum þegar Herkúles, Tónskáldið og tyrkinn voru á ferð um Garðabæinn í blindhríð um árið og festust tvisvar illa á leið heim til Herkúlesar á níðþungum BMW 750 á sumardekkjum. Skottlokið beyglaðist víst í djöfulganginum, en ferðalangarnir komust heim á lífi, þökk sé þessum "fyrsta flokks" mönnum.

Annar flokkurinn samanstendur af útivistarfólki sem stundar skíði, snjóbretti og snjósleða á veturna. Þetta fólk má gjarnan sjá fyrir framan tölvur að skoða beina útsendingu úr Hlíðafjalli fyrir norðan og æpir hástöfum þegar fyrstu snjóflygsurnar falla til jarðar. Svo má sjá sama fólk seinna í biðröðum upp í fjall, eða á hveravöllum að bera saman tegundir af færiböndum, "Allt annað en Polaris er djönk, og hana nú". Þetta fólk sættir sig við hálku og snó í bænum því það getur huggað sig við að það snjói yfirleitt líka í fjöllin þegar það er að skafa á morgnana. Mjög margir tilheyra þessum flokki og það líklega ástæðan fyrir því að landflótti héðan er ekki meiri en raun ber vitni.

Þriðji flokkurinn samanstendur af fólki sem finnst bara snjór vera "kósí". Þetta er yfirleitt fólk sem heldur mikið upp á jólin, og finnst alveg ómögulegt að hafa ekki allt hvítt yfir jólin. Tyrkinn er ekki einn af þessu fólki, en hann var ákaflega glaður þegar snjólaus jól blessuðu landann fyrir nokkrum árum síðan. Tyrkjafrúin er hins vegar mikið fyrir snjóinn og brosti út að eyrum við fyrstu kornin í vetur. Tyrkinn getur ekki verið svo jákvæður út í þetta, enda með ákaflega lélegt veður minni. Tyrkinn er alltaf jafn hissa á því þegar sumarið kemur í "allri sinni dýrð" og það er hægt að vera á stuttermabol úti í eina 2 mánuði eða svo. Aftur á móti er hann líka hissa þegar allt er á kafi í snjó, og heldur alltaf að hver vetur sé sá versti frá upphafi.

En að öðru, einhverra hluta vegna er mjög lítill straumur á nýju sturtunni í tyrkjalindinni, mun meiri straumur er t.d. á baðkarinu og sturtuhausnum í því. Búið er að reyna að eiga við skrúfurnar sem notaðar eru til að skrúfa fyrir vatnið þegar blöndunartækin eru tekin af. Er einhver með reynslu af pípulögnum sem kannast við vandamálið? Endilega sendið skilaboð á tyrkjann, því það er helvíti kalt undir hálfri bunu á morgnanna, brrrrr.....



:: tyrkinn 11:27 [+] ::


Starfsmaður mánaðarins

Farið hingað, og veljið starfsmenn og skoðið bókhaldara fyrirtækisins....

Í boði Bjöbba Hák


30.10.02

:: tyrkinn 17:28 [+] ::


Ljósaperan að verða úrelt
Sagan segir að gamla ljósaperan eins og fólk þekkir hana sé að verða úrelt, svo og flúorsent perur. Það sem koma skal eru svokallaðar ljósdíóður (LED) sem verið er að þróa svo nota megi til að skapa birtu á heimilum og vinnustöðum. Þróunin hefur verið mikil síðustu ár og áratugi og spá menn að slíkar perur verði nógu orkusparandi og ódýrar til að brjóta endanlega niður klassísku ljósaperuna (fann ekki Edison hana upp á sínum tíma?) og flúorinn líka innan 10 ára og verða þá mun hagkvæmari á allan hátt. Hagfræðingurinn greindi frá.



:: tyrkinn 15:45 [+] ::


Framtíðaráform
Mikið er tyrkinn duglegur í dag....
Tyrkinn er búinn að móta framtíðina, að stórum hluta a.m.k. Planið grundvallast af því að frúin verður vel launaður forstjóri og tyrkinn fer af almennum vinnumarkaði og fer að gera eitthvað annað. Skrifa kannski 2-3 misheppnaðar bækur um eitthvað sniðugt og ryksuga á hverjum degi (tyrkjafrúin er reyndar ekki alveg að kaupa þrifa hlutann af planinu ennþá einhverra hluta vegna). Reyndar er tyrkjafrúin bara ekki alveg að kaupa allt planið, líst ekkert á blikuna satt að segja. Eru konur kannski ekki tilbúnar að snú við þessu "gömlu kynjahlutverkum"? Nú vantar "kommenta" kerfi á síðuna...



:: tyrkinn 15:36 [+] ::


Útgáfutónleikar
Á föstudaginn verða útgáfutónleikar þar sem poppstjörnurnar ætla að fara mikinn, og að sögn þeirra verður þetta nær sýningu en tónleikum, slíkar verða dýrðirnar. Allir að mæta á völlinn, forsala í skífunni. Sjá meira hérna



:: tyrkinn 14:58 [+] ::


Staðreynd dagsins: Beinir styrkir til bænda í evrópusambandinu nema um 40 milljörðum Evra
...eða um 3.460 milljörðum króna á ári. Samkvæmt Hagfræðingnum (the Economist vikublaðinu) kemur þetta ekki bara niður á neytendum í umræddum löndum, heldur einnig á vanþróuðum löndum þar sem evrópulöndin "dömpa" afgangsframeiðslu (sem styrkirnir valda) á þau og gerir líf bænda í vanþróuðu lönum erfitt. Pólitíkusar í löndum eins og frakklandi þar sem bændur eru með logsuðutangir á eistum þeirra, reyna hvað þeir geta til að fresta eða eyða öllum tillögum á breytingum á þessu fáranlega kerfi. Enda eru franskir bændur ansi duglegir við að mótmæla og sturta þá gjarnan afurðum sínum í hauga í stórborgum landsins. Landbúnaðarstyrkir eru verkfæri djöfulsins, víðar en á Íslandi.



:: tyrkinn 14:38 [+] ::


Athugandinn: "Sillí hlutir sem fólk gerir í símanum"
Af hverju notar fólk hendurnar þegar það er að útskýra hluti í símann? Mjög fyndið að standa fólk að þessu; "Þú beygir til vinstri við Kringluna [bendir í vinstri með vinstri hendi, heldur á símanum í þeirri hægri] og keyrir sirka 2 kílómetra...". Annað er líka sérkennilegt, hvað fólk notar hendurnar mis mikið eftir umhverfi, þ.e. t.d. fólk frá suður ameríku notar lúkurnar nær alltaf þegar það talar á meðan íslendingar nota þær nær einungis til að benda þegar það er í símanum (með undartekningum að sjálfsögðu). Vinkona tyrkjans var til dæmis sem skiptinemi í Argentínu í eitt ár, og þegar hún kom heim gat hún varla sagt hvað hún hét án þess að baða höndunum út og suður eins og vitleysingur, þetta fannst tyrkjanum fyndið. Fólk fer væntanlega að gera þetta ómeðvitað þegar það er umkringt fólki sem gerir svona lagað. Sumir virðast líka næmari fyrir svona hlutum, fer að apa venjur annarra fyrr en aðrir. Önnur vinkona tyrkjans var í bandaríkjunum í 1 ár sem skiptinemi og þegar hún kom heim gat hún ekki komið upp úr sér setningu á íslensku án þess að hugsa mikið og hafa mikið fyrir þessari einu setningu. Þegar hún loksins náði að rifja upp íslenskuna (móðurmál sitt frá blautu barnsbeini [n.b. orðatiltækið "frá blautu barnsbeini" er rangur misskilningur, aðeins lauslega þýtt úr dönsku þar sem tyrkjanum skilst blöde vera mjúkt en ekki blautt]) tók það hana um 2-3 mánuði að losna við amerískan hreim af máli sínu, það var fyndið, mjög fyndið. Tyrkinn fékk eitt sinn lánaða mjög sniðuga bók um líkamstjáningu frá Tónskáldinu sem var ákaflega áhugaverð og hvetur tykinn alla til að lesa bækur um það efni, því líkamstjáning er lúmskt stór hluti af tjáningu mannskepnunar. En nóg um það....



:: tyrkinn 12:32 [+] ::


Bloggnördar
Í stúdentablaðinu sem nú fylgir mogganum er heil opna um þennan svokallaða "bloggheim", hann útskýrður lauslega og viðtöl tekin við nokkra harða bloggara. Til gamans eru hér að neðan þær síður sem nefndar voru í þessari grein, tyrkinn hefur ekki enn skoðað margar þessara síðna, en mun athuga þær, alla vega flestar;

www.hi.is/~bjorgvo
www.katrin.is
www.glymur.com
www.potturinn.com
www.nagportal.net
rss.molar.is
www.bre.klaki.net
http://rss.molar.is/skraningar.shtml
www.gudjon.net
www.kaninka.net/stefan

"Uppáhalds blogg" viðmælenda:

www.svansson.net
www.thegeir.net
www.raunvis.hi.is/~ardise/dagbok
www.krist.klaki.net
www.vidar.blogspot.com
www.laedan.blogspot.com
www.eoe.is
oddur.blogspot.com
www.hi.is/~gunnare
www.this.is/drgunni/gerast.html
ylfa.blogspot.com
www.hyperorg.com/blogger
www.simnet.is/muzak
www.scripting.com
www.helviti.com/punknurse
www.isleifur.blogspot.com
mar.anomy.net



:: tyrkinn 09:58 [+] ::


Ágætis pistill á baggalútnum...


29.10.02

:: tyrkinn 13:35 [+] ::


Sukk unga fólksins
Tyrkinn rak augun í sjónvarpskassann um daginn þar sem nokkrir unglingar voru í viðtali í "Íslandi í dag" eða sambærilegum þætti. Þar hafði móðir ein verið að úthúða lánastofnunum fyrir að taka ekki ábyrgð á sukki sonar síns [tyrkinn áskilur sér rétt til þess að fara rangt með allar staðreyndir í þessum pistli, enda langt síðan umræddur þáttur var á dagskrá og einungis annað auga tyrkjans að fylgjast með]. Unglingarnir vorkenndu sér mjög fyrir hve erfitt væri að lifa og allt væri dýrt. Einn ungur maður sagði þá eitthvað á þá leiðina, "Ja, sko, svo eru, sko, sko, þarf maður að fara einu sinni eða tvisvar til útlanda á sumri og sumarlaunin fara í það svo það er, sko, ekki mikið eftir fyrir veturinn". Tyrkinn vorkennir ungu fólki sem hugsar svona ekki neitt, er það sjáflsagt að unglingar sem eru í skóla fari út oftar en einu sinni á ári til að sukka og kvarti svo yfir skorti á peningaleysi ofan á það? Ekki fannst tyrkjanum það sjáflsagt að hann kæmist til útlanda öll sumur, og hvað þá tvisvar sama sumarið þessa fáu mánuði sem gáfust til þess að vinna sér inn aur fyrir veturinn. Að fólk sé svo að væla yfir því að það hafi steypt sér í skuldir fyrir sumarsukkið, og hvað þá að opinbera heimsku sína í sjónvarpi. Og hvað með foreldra sem röfla í sjónvarpi yfir því sem börn þeirra gera og kenna öðrum um? Hver á þá að ala krakkana upp og kenna þeim að bera smá ábyrgð? Skál.



:: tyrkinn 13:12 [+] ::


Ekki lesa þetta:

Eitt flottasta "trikkið" í auglýsingabransanum um þessar mundir eru svokallaðar "tíser" auglýsingar, eða stríðnisauglýsingar eins og tyrkinn kýs að kalla þær. Þessa dagana fer mikið fyrir auglýsingum þar sem fólk er hvatt til þess að kynna sér ekki það sem "auglýst" er. Auglýsingarnar eru á hinum ýmsu miðlum og er fólk hvatt til þess að hringja ekki í ákveðinn síma, stilla ekki á 97,7 á útvarpinu og fara ekki á www.ekkikoma.is. Þetta vekur alltaf mikla athygli og ýtir undir gríðarlega forvitni landans. Og þetta virkar, annars væri þetta ekki skrifað hér. Gefið er til kynna að um sé að ræða veitingastaðakeðju sem er hér "fyrst í evrópu" og eru orðin "ljúffengt XXX" og "keim af XXX" notuð til að undirstrika það. Svo er fólk hvatt til þess að mæta á eitthvað bílastæði að sjá þá sem standa fyrir uppátækinu í svörtum eðalvagni annað kvöld. Tyrkinn er með kenningu, þetta er ekki veitingastaður. Hvaða eigandi veitingastaðar mundi taka upp á því að sýna sjálfan sig á "limmó" á einhverju bílastæði úti í bæ til að kynna staðinn? Ekki væri það merkilegur pappír. Tyrkinn heldur því fram að þar séu á ferðinni "Hausverks" öfuguggarnir með nýja útvarpsstöð sem væntanlega verður á áður tilgreindri tíðni. Þeir eru akkurat týpurnar í það að auglýsa á fullu það að þeir ætla að vera á einhverjum eðalvagni að merkilegast. Tyrkinn býst því við einn einni handónýtri útvarpsstöð með sprelliköllum sem mættu frekar vera á einhverjum leikskólanum en í eyrunum á fólki. Á hinn bóginn virkar þessi herferð, a.m.k. þangað til sauðirnir baða sig í sjálfsköpuðum frægðarljóma á bílastæði. Usss. Ekki fara, í alvöru....


28.10.02

:: tyrkinn 15:41 [+] ::


Kyngir niður kaldri fönn
kölska verk úr víti
Nú er víst að sagan sönn,
að snjórinn honum hlýti


25.10.02

:: tyrkinn 14:10 [+] ::


Íslenskt Greindavísitölupróf
Tyrkinn skoraði 138 (51/60)



:: tyrkinn 11:23 [+] ::


Ron Jeremy
Tyrkinn fór á frumsýningu heimildarmyndarinnar "Porn Star - The legend of Ron Jeremy" í gær í Háskólabíói. Aldrei hefur verið eins erfitt að fá bílastæði þar, en áhugavert var að sjá að tónleikar Sinfoníuhljómsveitar Íslands var að ljúka þegar tyrkinn mætti á svæðið ásamt Fritz Gerber og Bjarkanum. Þegar uppáklædda áhugafólkið um klassíska tónlist var að yfirgefa húsið streymdu helstu klámhundar landsins í gagnstæða átt, áhugaverð blanda þar. Myndin átti að byrja klukkan 22:00 en tíu mín yfir var enn lokað og þúsund manns voru eins og sardínur í dós í anddyri Háskólabíós að bíða sýningarinnar. Þegar loks var opnað inn í sal var troðist inn að íslenskum sið og þegar tyrkinn komst loks að dyrunum voru all nokkrir búnir að missa fullar gosdrykkjaumbúðir á gólfið og margt lauslegt var þar í hrúgu sem fólk hafði misst í látunum, m.a. skór sem einhver óheppinn sýningargestur hafði glatað í djöfulgangnum. Þá var myndin kynnt hátíðlega og dvergurinn úr Íslandssímaauglýsingunni hljóp um sviðið í fullri múderingu og hafði upp samfaraleik að hætti auglýsingarinnar (sem er mikil snilld) og löðrungaði einnig kynnin til að kóróna leikinn. Þá var myndin sýnd og fannst tyrkjanum hún vera mjög góð, en ekki slöpp og fyrirsjáanleg eins og snilldin vill meina. Þar var á ferðinni vel gerð, skemmtileg og fyndin heimildarmynd sem skilaði sínu fyllilega. Alveg óhætt að mæla með henni. Eftir myndina kom svo Ron Jeremy sjálfur og svaraði nokkrum mis gáfulegum spurningum og faðmaði meðal annars einn leikhúsgest að gestsins bón. Hann var þó afar svekktur að hann væri kominn til Íslands þar sem konurnar eru fallegastar og fær bara að faðma bólugrafinn unglingsstrák. Hann svaraði mjög vel og var mjög fyndinn og fræðandi um leyndardóma klámiðnaðarins. Hann var svo kvaddur með standandi klappi og þegar tyrkinn fór var fólk að hrúgast á sviðið, líklega til að fá eiginhandaráritun. Afar sérkennilegur karakter sem þráir það helst að vera venjuleg kvikmyndastjarna, en pornó stimpillinn kemur í veg fyrir það því miður og ver. Dómur: Gríðar gott

Eitt er þó að angra tyrkjann; í miðri sýningu þurftu þeir endilega að hafa hlé á sýningunni enda þótt hún væri bara um 80 mín. Þetta er sér íslenskur siður og tyrkinn heldur að hann sé ekki einn um að vera illa við þessi endalausu hlé í bíó. Þau eru líka yfirleitt illa tímasett í myndum, koma oft í miðjum spennuatriðum og gera ekkert gagn nema að venja gesti á það að kaupa sælgæti í miðri mynd í stað þess að kaupa fyrir sýninguna. Gaman væri ef fólk tæki sig saman og mundi ekki standa upp í hléi í eina viku eða svo í öllum bíóum þar til bíóin mundu sjá við sér og hætta þessum andskota. Hvernig hljómar sú hugmynd? Þyrfti helst að fá neytendasamtökin eða eitthvert batterí til að auglýsa þetta og fá fólk til að mixa þetta.

Annað mál, Tyrkinn fór í gær með albatrossin í viðgerð sem er varla frásögu færandi. En þegar hann spurði bifvélavirkjann hvort hann væri með svokallaðan posa, kvaðst hann ekki vera með svona og þurfti tykinn að fara í hraðbanka og borga með seðlum, og var upphæðin námunduð við næsta þúsundkall. Það þarf ekki að spyrja að því hvort þetta verði gefið upp, en margir einyrkjar eru í þessum bransa og má sjá margar sjóðsvélar (búðarkassa) opna í sjoppum til að geta stungið undan skatti. Þetta er óþolandi, fólki finnst ekkert sjálfsagðara en að stinga svolítið undan skatti og margir telja sig heppna þegar einhver sokkur býður þeim að hafa allt svart og heldur fólk gjarnan að það sé að græða á þessu. Raunin er sú að almennir skattborgarar eru að borga hærri skattprósentu út af þessum glæpamönnum og enginn græðir nema glæpamennirnir sem virðast geta stundað þessa iðju nokkuð áreytislausir þó svo að allir viti af þessu. Um verulegar fjárhæðar er að ræða og telur tyrkinn að þetta sé eitt mesta þjóðþrifamál sem hægt sé að taka fyrir. Ein hugmyndin væri sú að koma upp nokkurs konar hotline sem gæti verið í formi síma og netpósts þar sem allir væru hvattir til þess að senda línu á skattmann þegar þeir vita af þessum svikum og hægt væri að gera það nafnlaust ef fólk vill ekki vera bendlað við málið. Þá gæti skattmann rannsakað þá (jafnvel bara þegar fleiri en ein ábending kemur) og telur tyrkinn það að þótt þetta gæti kostað nokkra auka starfsmenn hjá skattmann mundi þetta marg borga sig. Ekki síst fyrir fælingarmáttinn, ef glæpamennirnir vissu að í hvert skipti sem þeir mundu ýja að því að þeir vildu gera þetta svart (sumir bjóða ekki einu sinni upp á annað) þá ættu þeir á hættu að fá skattmann í heimsókn að taka allt út. Þetta ætti að geta stórlækkað skattprósentu launaþega og skattgreiðendur gætu hætt að borga fyrir svikarana. Ef yfirbygging ríkisins mundi lækka sömuleiðis gætu íslendingar farið að greiða jafnvel lægri skattprósentu sem mundi búa til mikinn drifkraft í þjóðfélaginu og mikla gleði, endalausa djöfulsins hamingjugleði að hætti HAM.

Ragnhildur tyrkjafrænka var að eignast sitt fyrsta barn þann 21. okt. s.l. Þar var stúlkubarn á ferð og vó hún ekki nema 6 merkur og var 41 cm við fæðingu, en dafnar að sögn móður vel í hitakassa um þessar mundir. Til hamingju Ragga.

Hér má sjá myndir af "tröllastúlkunni" svokölluðu


24.10.02

:: tyrkinn 10:41 [+] ::


Bíódagar

Tyrkinn skall í bíó í gær ásamt tyrkjafrúnni að sjá Red Dragon. Tyrkinn var voða lítið búinn að heyra um hana, einungis að hún ætti að vera í "silence of the lambs" seríunni og ætti að gerast fyrir fyrstu myndina með Jodie nokurri Foster. Þar sem Hannibal, önnur myndin sem kom út, var ekki upp á fullt af fiskum, gerði tyrkinn hæfilegar væntingar til myndarinnar og hefði varla stungið upp á að fara á hana í kvikmyndahús, en frúin stóð fyrir herlegheitunum. Seinna kom í ljós að þetta er hin fínasta mynd, og stjörnuprídd svo meira sé ekki sagt. En til að segja meira eru þarna leikarar eins og Edward Norton sem klikkar aldrei, Anthony Hopkins sem er snillingur í krípinu Lecter, Harvey Keitel sem er alltaf traustur, Ralph Fiennes (nú sem vondi kallinn), Philip Seymore Hoffman (Magnolia, Boogie nights), Emily Watson og fleiri góðir leikarar og öll virðast þau fædd inn í þessi hlutverk. Tyrkinn er ekki frá því að a.m.k. Nortoninn og Hoffman séu ofarlega á "uppáhaldsleikaralistanum" hans, en Hoffman er snillingur í því að vera svona hæfilega viðbjóðslegur án þess að hafa mikið fyrir því. Án þess að segja mikið frá söguþræðinum er hún að sjálfsögðu í anda hinni myndanna en þó betri en sú síðasta, sem er vel. Dómur: Gott

Tyrkinn er að fara á þessa mynd í kvöld og hlakkar bara til. Myndin er tilnefnd sem besta heimildarmynd ársins af Chicago Film Critics Association, og ekki er viðfangsefnið amalegt... Væntanleg umfjöllun á morgun.

Nú stendur til að fara með Albatrossinn í viðgerð á eftir að gera við margt smálegt. Svo stendur til að selja gripinn fljótlega. Vantar þig glæsikerru?


22.10.02

:: tyrkinn 14:49 [+] ::


Megas
Tyrkinn sá meistara Megas rölta upp laugaveginn áðan og keypti af því tilefni þrjá diska sem endurútgefnir voru nú fyrir skömmu. Þá fer Megs-safn tyrkjans að verða nokkuð gott, en furðu vekur að hvergi virðist vera hægt að sjá yfirlit yfir verk hans á netinu, eflaust eru nokkrar plötur sem ekki finnast í búðum í dag, og er það ekki vel.

Megas-safnið:
1. Megas (endurútgefin með aukalögum)
2. Millilending
3. Fram og aftur blindgötuna
4. Á bleikum náttkjólum (með Spilaverkinu, endurútgefið)
5. Loftmynd
6. Drög að sjálfsmorði (2föld tónleikaplata)
7. Englaryk í tímaglasi (Bláir draumar platan endurútgefin)
8. 3 blóðdropar
9. Svanasöngur á leiði
10. Far .... þinn veg

Þá vantar plötur eins og; Haugbrot, Nú er ég klæddur og kominn á ról, Hættuleg hljómsveit og glæpakvendi, Í góðri trú, paradísarfuglinn (reyndar safnplata) og eflaust fleiri "týndar" plötur....



:: tyrkinn 11:43 [+] ::


"Eldra"
"Eldra" flokkurinn á vinstri spássíunni hefur ekki virkað lengi, en fyrir tilstilli Simbans var það lagað í dag. Takk Simbi.


21.10.02

:: tyrkinn 13:48 [+] ::


Ferðin og helgin
Tyrkinn fór ásamt Birni nokkrum bónda á rjúpuveiðar á miðvikudaginn. Stefnt var á Hofsós þar sem gera átti út frá ættaróðali tyrkjans, Skjaldbreið. Snemma var lagt á stað og var ákveðið að rölta á Holtavörðuheiðinni þrátt fyrir traffík nokkra á þeim slóðum. Lítill snjór sást og stefndu þeir félagar á eina skaflinn sem þeir komu auga á, en hann var nokkuð hátt uppi og gott labb var yfir mýrasvæði til að nálgast fjöllin. Ekki var þar mikið af fugli og eina kvikindið sem sást til flaug upp á milli tyrkjans og annars veiðimanns sem var á göngu skammt undan. Veiðimaðurinn snéri svo við og elti fuglinn þannig að tyrkinn rölti bara áfram. Eftir gott trimm var haldið áfram á Hofsós og hvílt fyrir daginn eftir. Þá var rölt á jörð skammt frá Hofsósi og var tíðindalítið framanaf. Björn bóndi náði þó í eitt kvikindi eftir nokkra göngu og var ákveðið að fara hærra en farið var í fyrra og kom þar í ljós nokkurs konar dalur með litlum vötnum og rjúpulegu landi þar ofar. Þar var þunnt lag af snjó yfir öllu og erfitt að skanna eftir fugli. Björn fór mikinn fann að lokum nokkra fugla innst í þessum dal og skaut tvo í viðbót, en tyrkinn var áfram bráðarlaus. Eftir 7 tíma stranga göngu var komið aftur af bílnum, en áður var tyrkinn búinn að koma sér í ógöngur í miðjufjalli og þurfti að klöngrast með hólkinn á bakinu yfir skriður sem gnæfðu yfir kletta og er óhætt að segja að hjarta tyrkjans hefði verið komið niður í buxur á tímabili. Engu skoti var sem sagt hleypt af byssu tyrkjans en nokkuð erfitt var að hreyfa sig eftir djöfulganginn. Sökum líkamsástands var lítið gert á föstudaginn annað en að glápa á kassann og "mastera" þá list að anda án þess að hreyfa sig sem minnst.

Á laugardaginn var tyrkinn lokkaður í Kringluna á vafasömum forsendum. Þar var snætt og lokst náði tyrkinn að toga það upp úr tyrkjafrúnni að hún ætlaði nú að kíkja á einhver föt, svona fyrst þau voru þarna niðurkomin. Tyrkinn náði þó að snúa sig út úr málinu þegar hann rakst á þá ömurlegu staðreynd að það var enginn "mér-er-alveg-sama-kauptu-það-sem-þú-vilt"- stóll í fyrstu búðinni. Þá rölti hann yfir í skífuna og missti sig ögn. Þar keypti hann tölvuleikinn "Hitman 2" á spielstation vélina og eina tvo DVD diska, "Apocalypse Now:Redux" og "Black Hawk Down". Það verður væntanlega langt í að tyrkjafrúin reyni að draga tyrkjann aftur í búðir eftir þau kaup, tyrkjafrúin hatar nefnilega fátt meira en stríðsmyndir og tölvuleiki. Og þá gerðist hið ótrúlega, tyrkinn eldaði kvöldmat og í þetta skiptið ekki með kortinu heldur á eldavélinni. Ákveðin tilraun var í gangi og bjó tyrkinn til Risotto að hætti Jóa Bald eftir að hafa fengið uppskriftina í gegnum símann. Eldamennskan var óvenju viðamikil fyrir tykjann og fóru ófáar pönnur og pottar í atganginn. Í grautinn var settur Kjúlli og sveppir (kastaníu og portabella) og kjúklingasoð sem var ekki að gefa vel. En maturinn varð ágætur og verður þetta eflaust reynt aftur þegar nennt verður. Til að prufa enn meira var reynt að útbúa einn portabella svepp í eins konar forrétt þar sem hann var hálf soðinn í sojasósu, en það reyndist einum of salt út af sósunni og verður reynt að blanda sósuna með hvítvíni eða einhverju næst. Eftir mat var haldið til poppstjörnunnar og setið að drykkju. Tyrkjafrúin var á leiðinni í eitthvað tíkar-teiti og poppstjörnurnar að fara að spila í Keflavík seinna um kvöldið. Þegar tyrkinn áttaði sig á því að hann var sá eini sem var að drekka og ekki að fara neitt, ákvað hann að fara bara með poppurunum til Keflavíkur og láta óðslega sem var og gert. Þar fylgdist hann með bransaköllunum sem stóðu sig vel að venju þrátt fyrir lélega mætingu það kvöldið. Daði hljóðmaður sýndi tyrkjanum hvernig græjurnar virkuðu og fór mikinn, enda maður góður. Eftir langa drykkju og mikla var haldið heim á leið og var tyrkinn kominn heim, snarölvaður, upp úr hálf sex um morguninn, enda varð gærdagurinn í hlutfalli við það.

Tyrkinn leigði þessa á föstudaginn, án þess að átta sig á því að hann hefði farið með Herkúlesi á hana í bíó, í þá daga sem Herkúles lét sjá sig meðal manna. Ágætis mynd, melurinn hetja að venju enda er maðurinn búinn að leika allar helstu hetjur bandaríkjanna og bretlandseyja þrátt fyrir að vera ættaður frá fanganýlendunni Ástralíu. Eins og í mörgum myndum átti hann sæg af börnum eins og í raun og veru og er tyrkinn farinn að halda að einum sæg barna sé bætt í allar myndir eftir að í ljós komi að melurinn leiki aðalhlutverk. Stríðsmyndir eru skemmtilegar og er þessi ágætlega gerð, og má þar sérstaklega nefna óvenjugrafísk atriði sem fengu tyrkjafrúnna til að neyða magainnihald aftur niður hálsinn á sér til að forðast óþrifnað. Dómur: Gott.


Tyrkinn keypti þessa eins og áður sagði, og var horft á hana í þynnkunni í gær. Tyrkinn var ekki búinn að sjá þessa "Redux" útgáfu fyrr og því nokkuð spenntur. Nokkuð löng myndskeið eru í þessari sem ekki eru í upprunalegri útgáfu og var engin nauðsyn að klippa þau út á sínum tíma, nema ef væri til þess að friða bíóhúsaeigendur, en einar 49 mín eru "nýjar" í myndinni. Til dæmis er nokkuð langt atriði þar sem áhöfnin hittir hóp frakka sem eru að vernda landsvæði fjölskyldu þeirra. Þar má heyra ýmsar gagnrýnisraddir sem eflaust hafa þótt of sterkar fyrir kanana á þessum tíma. Einnig er komið atriði inn þar sem þeir skipta olíutunnum fyrir örlitla stund með playboy stúlkunum sem einnig sáust í fyrri myndinni. Þar sjást brjóst sem e.t.v. hefur ekki þótt gott þegar hún kom fyrst út, ja eða svo börn gætu séð þessa stríðsmynd, en kanarnir eru merkilegir með þetta, allt í lagi að sjá blóð og gor en aldrei kvennmannsbrjóst. Myndin er orðin nokkuð löng eða um þrír tímar og korter, en þráðurinn er skýrari í henni eftir viðbótina og hún er jú meistaraverk bæði fyrir og eftir. Dómur: Schnilld.


15.10.02

:: tyrkinn 16:46 [+] ::


Tyrkinn tekur sér frí
Tyrkinn fer í fyrramálið norður á Hofsós city og þaðan verður gerð út rjúpuveiði. Vonandi verða ekki allar rjúpurnar staddar í bakgörðum á Blöndósi eins og í fyrra, en líklegt er að blessaðir fuglarnir séu farnir að læra inn á trikkið, þ.e. að hanga þar sem ekki má skjóta þá. Gæsirnar hafa lært inn á þetta eins og sjá má á reykjarvíkurstofninum sem gjarnan má sjá í makindum sínum í kringum háskólann í góðum fíling. Sagan segir að einhverra hluta vegna hafi nokkrir fuglar verið vængstífðir fyrir nokkrum árum síðan og síðan þá hafa afkomendur fuglanna áttað sig á því að veiðimenn fara út fyrir borgarmörkin til að skjóta sér í soðið. Reyndar hafa einnig heyrst sögur af svokölluðum fólki ættuðu frá Asíu sem eitthvað hafa misskilið málið og hafa verið að sækja sér í soðið á tjörninni, litlum börnum til mikils ama þar sem þau koma til að gefa fuglunum brauð. Ef blessaðar rjúpurnar eru áfram að dunda sér á Blönduósi verður þetta bara ágætis trimm.

Nú er farið að kólna all verulega og þurftu sumir að skafa í morgun að sögn sjónarvotta. Það ku vera ágætt til veiðanna, en mikið leiðist tyrkjanum veturinn. Þar sem bæði jeppa- og færibandavírusinn hefur ekki náð í skottið á tyrkjanum er snjórinn einungis til ama og leiðinda. Vonandi eru spár um hæsta meðalhita í 400 ár eða svo að verða að veruleika, þetta er orðið gott af kulda.

Tyrkinn hefur tekið til notkunar nýjan skala til að gæðaflokka hluti eftir smekk hans. Því verður horfið frá stjörnukerfinu, en skalann má sjá á vinstri spássíu síðunnar. Vonandi er þetta meira lýsandi en títt umtalaðar stjörnur.

Tyrkinn mun væntanlega ekkert senda frá sér fyrr en á mánudaginn eftir viku, góðar stundir.

Fyndið: Nullify the vegetarian moral crusade:


14.10.02

:: tyrkinn 16:17 [+] ::


Helgarskýrslan
Helgin var tiltölulega róleg. Á föstudaginn voru opnaðir nokkrar einingar af miði og rölt yfir til Fritz Gerbers sem sat ásamt Bjarkanum við fótboltaspil. Þá voru leiknir nokkrir leikir í "Atvinnu-þróunnar-knattspyrnu" leiknum hans Fritz gerbers. Hæfileikar Tyrkjans í spielstation tölvunni virtust ekki meiri í raunveruleikanum og tapaði tyrkinn öllum viðureignum. Syfja sótti einnig snemma að tyrkjanum eftir vikuna og var rölt aftur til rekkju. Á laugardaginn var haldið í íbúð ömmu tyrkjans heitinnar þar sem ættingjar tyrkjans voru að vinna í að skipta upp eigum hennar. Amma tyrkjans var mikið fyrir fallega hluti og fór mikill tími í að taka fram ýmsa silfurmuni, kristal og málverk sem skipt var milli barna ömmunnar, tyrkjapabbans heitins, tyrkjapabbabróðursins og klikkuðu tyrkjababbasysturinnar. Skiptin gengu tiltölulega vel fyrir sig, en að venju tók furðufrænkan upp á því að öskra svolítið og gráta og láta vorkenna sér. Að sjálfsögðu var hún líka farin að grínast hálftíma seinna þegar hún áttaði á sig að vorkunnar taktíkin var ekkert að gefa í aðra hönd, enda flestir farnir að læra inn á aðferðir hennar. Þessir fáu klukkutímar tóku því óvenju mikið á viðstadda og fóru flestir heim úrvinda. Kvöldið var rólegt og var því eytt fyrir framan kassann að mestu. Tyrkjafrúarbróðirinn kom á sunnudaginn með dætur sínar tvær sem hringdu á undan sér til að tryggja nægjanlega góðar viðtökur og var tyrkinn sendur eftir vöfludufti um hæl, enda tyrkjafrúin gestgjafi góður. Bróðirinn er einnig dugnaðarforkur mikill og ekki leið á löngu þar til hann var kominn með puttana í raflagnir tykjans og endaði með því að helgarverkin voru unnin á mettíma. Dimmer var settur í stofukastarana, tvær hálfkúpur settar á stofuvegginn, rússunum skipt út fyrir loftljós í sverberginu og tómstundaherbergi húsbóndans, pera sett í útiljósið, lásinn á svalahurðinni lagaður og umframsnúra á borðstofuljósinu stytt. Þar með lauk all flestum rafvæddum húsverkum í bili, en eftir á að setja 1-2 dimmera í viðbót, en aðeins fékkst 1 stk í Byko. Tyrkjamóðirin bauð svo til kvöldverðar í gær, og var hann ljúffengur að venju. Boðið var upp á svokallað And-pasta sem samanstóð af góðu brauði, kryddlegnu grænmeti, tómötum með osti og kryddlegi, melónur með ítalskri pylsu nokkuri. Svo var pasta með völdu grænmeti og sveppum í heimalöguðu pesto sem var gríðar gott. Sannkölluð fjölskylduhelgi hjá tyrkjanum.

Á miðvikudaginn er planað að fara norður á Hofsós þar sem rölt verður á rjúpu. Vonir standa til að veiðin verði betri en í fyrra en þá sá tyrkinn aðeins eina rjúpu og var hún þá þegar dauð á vélarhlíf fararskjótans eftir að Bjössi nokkur hafði náð í skottið á eina af tveimur rjúpum sem þessi þriggja manna hópur sá í þriggja daga túr.


11.10.02

:: tyrkinn 11:36 [+] ::



Tyrkinn fór ekki á Októberfest í gær en gaf þess í stað bróður sínum þessa miða. Spurning um að fá skýrslu hjá honum seinni partinn (ef það hefur verið gaman hjá honum).

Tyrkinn fór að venju í fótbolta í gær með FC Sokk sem er varla frásögu færandi. Sennilega er óhætt að fullyrða að tyrkinn sé undantekningalaust lélegasti maðurinn á vellinum. Það er eflaust hægt að finna öfuga fylgni á milli þess hvað tyrkinn fær margar sendingar miðað við tíma, þ.e. fleiri sendingar í upphafi tímans en mun færri þegar líður á leikinn. Þetta má helst útskýra með skammtímaminni, þ.e. þegar tímarnir byrja eru flestir búnir að gleyma hversu lélegur hann er, en þegar hann er búinn að klúðra hæfilega miklu koma ekki sendingar nema öll önnur sund séu lokuð. Einnig fær tyrkinn fleiri sendingar þegar gestir spila með sem ekki hafa séð til tilburða tyrkjans áður. Seinni hálftíminn fer því meira í hlaup fram og aftur völlinn, sem er gott og vel þar sem hreyfingin er ágæt sem verður að teljast aðalatriðið með þáttöku tyrkjans. Eftir leikinn í gær sagði poppstjarnan tyrkjanum frá fyrirhuguðum útgáfutónleikum hljómsveitarinnar í lok mánaðarins. Þar á að vera mikið um dýrðir og hefjast þeir tiltölulega snemma á föstudegi og er fyrirhugðuð mikil drykkja í kjölfarið sem er vel. Að sögn stjörnunnar eru þeir kappar að leggja lokahönd á gripinn og verður hann sendur í prentun eftir helgi. Tyrkinn fékk demo fyrir all löngu síðan og fékk tækifæri á að spreyta sig við að henda í einhverja texta, en það fór fyrir ofan garð og neðan í öllu íbúðaruglinu og hefur tyrkinn reyndar ekki fundið depo-diskinn eftir flutningana.

Herkúles er enn ófundinn eftir mánuð og hefur hvorki sést né frést (er þetta skrifað svona...?) af honum í þennan tíma, fyrir utan afar vafasamar fregnir af honum á rúlluskautum fyrir all nokkru síðan. Ef hann fer ekki að sýna sig verður haldin útför með tóma kistu fljótlega.

Útlit er fyrir rólega helgi. Tyrkjafrúin er að fara á eitthvert vinnuskrall í kvöld þannig að tyrkjalindindinn verður út af fyrir tyrkjann. Tyrkjafrúin var tók þátt í svokölluðum rauðvínspotti í vinnunni í fyrsta skipti í gær og vann einar 7 rauðvínsflöskur strax, þannig að tyrkinn getur gert sér glaðan dag í kvöld, ef svo má að orði komast. Annars stendur ekkert til ennþá. Nú er nær alveg búið að taka upp úr kössum og koma öllu á sinn stað eftir flutningana og verður GYM Tyrkinn tilbúið í kvöld. Þá á aðeins eftir að hengja upp nokkrar myndir og setja nokkur ljós upp fyrir rússa og þá er þetta komið.

Rocco er búinn að laga www.fiski.net sem hýsir þessa síðu, en tyrkinn og Simbinn hafa ekki getað bloggað undanfarna daga út af einhverri villu. Tyrkinn vill koma áfram þökkum til þeirra bræðra fyrir hjálpina.


halim.klanid.com er í boði Rocco og Simbans


10.10.02

:: tyrkinn 11:25 [+] ::


Tyrkinn er Jesú.... skv. þessu prófi amk... ætti þetta ekki að vera Múhammed?






What alien are you? test by
koolerthanjesus


9.10.02

:: tyrkinn 13:21 [+] ::


....það virðist vera eitthvað vesen með að henda pistlum hér inn, og tíminn er alltaf rangur á klan listanum, hvað er að gerast....hmm



:: tyrkinn 12:30 [+] ::


Oktober fest...
Tyrkinn var að fá eina 4 miða á Október fest á Broadway (skemmtistað óttans) fyrir tilviljun. Á heimasíðu broadway er að finna þessa auglýsingu, og það lítur út fyrir að þar verði, ja tjah, eins mikið október fest og staðurinn getur boðið upp á.... vafasamt, en gæti orðið fyndið...


8.10.02

:: tyrkinn 17:35 [+] ::


Tyrkinn skrifar undir
Skrifað var undir kaupsamning á tyrkjaslotinu nú síðdegis. Bölvað þakið fór að leka eylítið um daginn og á eftir að ganga frá þeim málum. Afsal fer svo fram við lokagreiðsluna þann 28. nóvember. Annars er ekkert að gerast....


7.10.02

:: tyrkinn 16:30 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans

Helgin var róleg að þessu sinni, föstudagurinn fór í vídeogláp og á laugardaginn fór tyrkinn ásamt frú út að snæða og henda nokkrum bjórum í andlitið á sér:

Tyrkinn fór á leiguna og tók þessa ræmu á föstudaginn eftir að hafa lesið mikið lof frá dr. gunna fyrr um daginn. Steve Buscemi leikur í henni, og góður sem fyrr ásamt nýstirninu Thora Birch sem sennilega er þekktust fyrir hlutverk sitt í American beauty. Myndin fjallar um tvær ungar stúlkur sem eru að útskrifast úr gaggó og eru ekki alveg klárar á því hvað tekur við. Stúlkurnar eru hálf bitrar báðar og gera lítið annað en að setja út á allt og alla. Einn dag gera þær at í aulalegum plötusafnara (Steve) sem verður til þess að aðalleikonan kynnist honum nánar. Þeir sem eru fyrir mikla spennu og djöfulgang ættu ekki að taka þessa mynd, en hún er góð og alveg þess virði að eyða einni kvöldstund yfir. * * * 1/2 (af 5)

Þessa dagana virðist ameríski skemmtanabransinn ganga meira og minna út á stríð og stríðshetjur, og er það vel. Þessi ræma gerist í herfangelsi nokkru sem fólk kýs að kalla virkið. Róbert Redford leikur þar aðalhlutverkið sem margverðlaunaður og virtur hershöfðingi sem stungið er í steininn fyrir misgjörðir sínar innan hersins. James Galdolfini (Tony Soprano) leikur fangelsisstjórann sem að sjálfsögðu er vondi kallinn og eru fangarnir orðnir leiðir á ómannúðlegum aðferðum hans. Án þess að fara mikið í söguþráðinn er óhætt að segja að þarna sé á ferðinni ágætis pjá-pjá mynd þótt Redford hafi svolítið misst töffaraímynd sína frá fyrri dögum (sbr. the horse wisperer og bridges over madison county). Gandolfini er fínasti fauti, enda í góðri æfingu úr mafíuþáttunum góðu. Djöfulgangur og fínasta her-vella. * * * (af 5)

Til að toppa velluna var þessi ræma tekin í gær. Myndin er nokkurn veginn eins og hulstrið gefur til kynna, spennumynd þar sem fyrrv. herra heimur fer mikinn. Að sjálfssögðu er hún nær algjörlega fyrirsjáanleg og því ágæt í sunnudags-gláp þegar allar hugsanir eru til ama. Arnold er hetju-slökkivliðsmaður sem missir konu og barn í hryðjuverkaárás og hefnir sín að venju með stælum. Þetta fellur vel inn í tíðarandann í usa núna, hetjan er slökkviliðsmaður, vondi kallinn er hryðjuverkamaður og fórnarlömbin saklaus. * * 1/2 (af 5)

Gallileo
Tyrkinn og frú fóru á þennan ágæta stað á laugardaginn. Þar fékk tyrkinn ágætis kjúlla-risotto og frúin pasta, og var maturinn alveg ágætur, þótt þjónustan hafi ekki verið upp á marga fiska þótt maturinn hafi komið óvenjufljótt. Tyrkinn fór þangað í september og fór þá í meiri pakka og fékk alveg frábæra Portabello sveppi í forrétt sem óhætt er að mæla með og mjög góðan hest í aðalrétt. * * * 1/2 (af 5)

Annars er Poppunktur á skjá 1 að gera góða hluti, tyrkinn skemmtir sér stórkostlega yfir þessu og fussar mikið í þau fáu skipti sem hann veit eitthvað sem gestirnir vita ekki. Sem betur fer fór Ham áfram í gær þrátt fyrir harða keppni og vafasaman endi á þættinum (liðin voru jöfn undir endann og dr. gunni þurfti að fara að grúska í skalatösku til að finna spurningu, sjá síðuna hans dr. gunna).



:: tyrkinn 11:09 [+] ::


Gríðar sniðug leitarvél

Tyrkinn fann þessa gríðar sniðugu leitarvél á síðu Jóns Arnars (eða Rocco eins og hann kýs að kalla sig). Hún er gerð í flash og sýnir m.a. hvernig síður tengjast saman og er auðveldlega hægt að bæta við skilyrðum, t.d. að bæta við orði til að þrengja leitina eða sleppa orðum til þess sama.


4.10.02

:: tyrkinn 13:24 [+] ::


RÚV á botninum

RÚV virðist alveg vera tapa sér í Disney myndum, mynd kvöldsins:

20.10 Disneymyndin - 211
Brettagellurnar
(Rip Girls)
13 ára stúlka erfir landareign á
Hawaii og lærir á brimbretti.

(af www.textavarp.is)



:: tyrkinn 11:11 [+] ::


Ágreiningur
Tyrkjafrúin benti tyrkjanum á það að nafn síðast drykkjuleiks var "Mayer" (sbr. litli mayer og stóri mayer). Einnig bennti hún að það að hún hafi kennt tyrkjanum þennan leik í baunalandi þar sem hún dvaldi meðal bauna í ein 5 ár, og þessvegna ætti hann frekar að heita "Tyrkjafrú" en ekki "Tyrkjaleikurinn". Tyrkinn er ekki sammála því, Tyrkjaleikurinn er þjálli og svo er tyrkinn að kynna þetta fyrir alþjóð og finnst það sjálfsagt að alla vega einn drykkjuleikur verði kenndur við sig. Skál.

Sviðarson hringdi í tyrkjann í gær og benti á það kæruleysi tyrkjans að hafa ekki boðið sér, nágrannanum, í fimmtudagsbjór. Tyrkinn sá við sér að bragði og bauð Sviðarsyni yfir í bjór. Fritz Gerber, hinn nágranni tyrkjans mætti einnig í tyrkjalindina og sátu menn við öl. Mikið var rætt um færibönd (e. snowmobile) og ferðir á hálendinu á slíkum tækjum. Undir lok kvöldsins var Sviðarson farinn að iða í skinninu að komast aftur á fák sinn, þar sem golfið er að líða undir lok, en þess má geta að þessi maður er hobbí óður. Kynnt var hugmynd um að hafa sameiginlegan kvöldverð þessara nágranna og var vel tekið í. Tyrkinn biður velvirðingar á kæruleysinu.

Helgin lítur út fyrir að verða tiltölulega róleg og væntanlega gefst færi á því að taka upp úr síðustu kössunum, en það eru kassarnir sem síðast var pakkað í, kassarnir sem sturtað var í undir lokin. Merkilegt hvað voru margir kassar af alls kyns drasli sem ekki átti heima í sér merktum kössum með sambærilegum hlutum.

Enn hefur ekki heyrst frá Herkúlesi og eru menn farnir að hafa áhyggjur. Síðast sást til Herkúlesar 13. september síðastliðinn. Hann er meðalmaður á hæð, og var klæddur í ljósbrúnan jakka, í hvítum bol og gallabuxum. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Herkúlesar er bent á upplýsingaborð tyrkjans.


3.10.02

:: tyrkinn 14:35 [+] ::


The axis of evil...



:: tyrkinn 12:37 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: Tyrkjaleikurinn
Þessi leikur á rætur sínar að rekja til baunalands. Tyrkinn lærði hann á kaffihúsi í Óðinsvéum fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan, en þar er hann það vinsæll að leikmuni er hægt að fá lánaða á öllum betri börum borgarinnar. Að vísu heitir hann eitthvað annað sem tyrkinn ekki man, og skal því vera nefndur eftir tyrkjanum hér eftir á þessu landi. Stuldinn á nafninu má hér eftir kalla tyrkjaránið, því eins og allir vita voru það Alsír búar sem rændu frændur okkar Vestmannaeyjaskeggja hér um árið. Þessi leikur er ögn flóknari en fyrri 2 leikir hér á síðunni, en í raun tekur ekki langan tíma að læra hann og getur hann falið í sér gríðar mikið stuð og áfengisdrykkju. Eins og hefð er með svona leiki er myndaður hringur og gengur leikurinn í hring, mann frá manni.


Leikmunir: Tveir hefðbundnir 6-hliða teningar og tvö ógagnsæ glös. Baunar nota leðurglös eins og gjarnan fylgja með yatsi og þess konar leikjum. Glösin þurfa að vera þeim eiginleikum gædd að hægt sé að setja teningana á botn annars glassins sem stendur á hvolfi og hitt glasið ofan á, en þannig að rúm sé á milli botna glasanna svo teningarnir geti hringlað á milli.

Leikreglur: Fyrsti leikmaður leggur teningana á milli glasanna (eins og áður var útskýrt) og hristir glösin. Þá lyftir hann efra glasinu þannig að aðeins hann sjái tölurnar á teningunum. Þá réttir hann glösin (efra glasið sett aftur á hið neðra) án þess að hrista þannig að tölurnar séu áfram þær sömu, til næsta manns. Þá segir hann töluna sem teningarnir sýna eða lýgur til um hana, lygin spilar stóran part í leiknum sjáið til. Næsti maður þarf annað hvort að rengja fyrri mann (kalla hann lygara) eða fá hærri tölu sjálfur án þess að kíkja á tölur fyrri mannsins. Ef hann rengir fyrsta manninn tilkynnir hann það að hann gruni þann fyrsta um lygi og lyftir efra glasinu af til að taka af allan vafa. Ef fyrsti maður hefur logið, drekkur hann, en ef hann hefur ekki logið drekkur sá sem rengdi hann ranglega. Ef hann trúir hins vegar fyrri kastara, hringlar hann glösunum án þess að kíkja og verður að fá jafn háa tölu og sá fyrri eða hærri. Ef hann nær ekki jafn hárri tölu, verður hann að ljúga einhverri hærri tölu eða jafn hárri og rétta glasið áfram. Þannig verður alltaf að fá hærri tölu og það verður erfiðara að ná henni eftir því sem hún hækkar og meiri líkur eru á að fólk ljúgi. Þá reynir á hve fólk er gott að ljúga, því lélegir lygarar þurfa að drekka meira. Þegar einhver er "böstaður" með að ljúga, þarf sá hinn sami að drekka og leikur hefst að nýju, og sá sem drakk byrjar upp á nýtt að kasta.

Teningatölurnar: Ekki eru lagaðar saman tölurnar á teningunum eins og margir myndu halda, heldur er ákveðið kerfi á því. Talan 5 og talan 1 á teningunum er því ekki 6 heldur 51, hærri talan fyrst og lægri síðan. Þannig verður 3 og 6 á teningunum 63. Ef sama tala kemur á báða teninga, er það par hærra en tvær ólíkar tölur (flestar, sjá neðar). Þannig verður goggunarröðin á tölunum:

3&2 - 32 lægsta mögulega tala
4&1 - 41
4&2 - 42
og þannig áfram...
6&4 - 64
6&5 - 65
1&1 - Ásapar (hærri en allar fyrri tölur, en lægst af pörunum)
2&2 - Tvistapar
....
6&6 - Sexupar (hæsta parið)
1&3 - Litli Tyrki
1&2 - Stóri tyrki (hæsta mögulega kast)

Þannig eru pörin hægri en ósamstæðu tölurnar, nema litli tyrki sem er næst hæstur og stóri tyrki sem er besta tala sem hægt er að fá, ef maður kastar litla tyrkja þarf næsti maður að ná honum líka til að sleppa við drykkju.

Dæmi: Leikmaður A kastar og fær 5&2 (52). Hann segir rétta tölu (52) og réttir glösin með teningunum áfram á leikmann B. Leikmaður B kastar 4&4 (fjarkapar), segir rétta tölu og réttir áfram til C. Leikmaður C kastar 1&3 (litla tyrkja), tilkynnir það og réttir áfram til D. Leikmaður D trúir leikmanni C og kastar því aftur og fær 5%3 (53), nú er leikmaður D í klípu því kastið er ekki nógu hátt og lýgur til um það að hann hafi fengið stóra tyrkja (1&2) og réttir glösin áfram. Leikmaður E trúir því ekki að D hafi fengið stóra tyrkja og rengir hann því og tilkynnir að hann haldi að D sé að ljúga. Því næst lyftir hann efra glasinu alveg þannig að allir sjá að D laug til um útkomuna. Þá þarf D að drekka og hefja leikinn aftur frá byrjun.
Spurningar má senda á tyrkinn@hotmail.com

Góðar stundir...



:: tyrkinn 11:54 [+] ::


Furðufrétt dagsins
Þessi frétt gæti hafa verið komin frá piltunum í Baggalút, en hún er þess í stað á mbl.is , Forsetinn haugsugunni fátækari. Og hvað í ansk... er haugsuga?!



:: tyrkinn 10:59 [+] ::


Í klóm drekans
Loks hefur náðst sátt í málinu um heimildarmyndina "Í klóm drekans" sem gerð var um fegurðarsamkeppni fyrir skömmu. Aðstandendur keppninnar féllust á það að hún væri sýnd ef andlit og hár keppenda væri "blörrað" í nokkrum atriðum, líklega þeim sem þær sjást drekka brennivín og reykja svo foreldrarnir kæmust ekki að þessum syndum fegurðardrottninganna. Tyrkinn hlakkar til að sjá myndina og fagnar þessum fréttum. Þessi mynd minnir tyrkjan á aðra heimildarmynd sem ekki hefur fengið eins mikla auglýsingu, en er áhugaverð engu að síður. Það var meistari Gunnar B Guðmundsson sem rekur Þeir tveir kvikmyndagerð sem gerði myndina fyrir nokkru síðan og fjallaði hún um nútíma fermingar og heitir myndin því viðeigandi nafni "Hræsni". Tyrkinn hefur ekki séð hana enn en hún ku vera góð.


2.10.02

:: tyrkinn 14:45 [+] ::


Nýr bimmi

BMW hefur sett nýjan bíl á markaðinn, Z4 Roadster, sem er flottari en forveri hans Z3


1.10.02

:: tyrkinn 15:59 [+] ::


Bakþankar Flugleiða
Tyrkinn er farinn að sakna Sopranos þáttanna. Sagan segir þó að ný sería sé farin í gang þar vestra og ef RÚV er ekki alveg að pissa í skóinn þá munum við frónbúar væntanlega sjá til þáttanna áður en yfir líkur. Tyrkinn var að horfa á Jay Leno í gær og hrökk við þegar grínarinn góðkunni sagði brandara um Flugleiðir, "stolt" íslendinga. Þannig er mál með vexti, eftir því sem tyrkinn best skilur, að í nýlegum Sopranos þætti hafi þeir mafíufélagar brugðið sér í Flugleiðavél þar sem flugfreyjurnar hafi verið óvenju "heitar" og var þeim lýst sem kynóðum þokkadísum (eða eitthvað því um líkt) í þættinum. Einnig fylgdi það brandaranum að þeir Flugleiðamenn væru æfir yfir þeirri neikvæðu ímynd sem Flugleiðir (eða Icelandair eins og þeir kjósa að kalla sig þar ytra) hlyti í kjölfar þáttarins alræmda. Tyrkinn veit ekki betur en að einmitt Flugleiðir hafi auglýst stíft í mörg ár á vafasömum nótum, hver man ekki eftir auglýsingaherferð með yfirskriftina "One night stand in Iceland" og eftir gamalli mynd af þremur "nöktum" þokkadísum í einni og sömu stóru lopapeysunni? Nú fyrst þegar þessar herferðir fara að virka og hljóta almenna athygli fara þeir að röfla og vilja ekkert kannast við þessa ímynd sem þeir hafa verið að skapa árum saman. Nú, nema til standi að láta röflið undirstrika þetta betur og vekja meiri athygli á þessu, það kom þeim alla vega í Tonight show....


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra