|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
21.11.02
Popparar fá gagnrýni
Tyrkinn var að lesa gagnrýni Árna Matthíassonar í Morgunblaðinu á nýjustu plötu þeirra svartklæddu drengja. Greinin ber yfirsögnina "Ekki bara Stuðsveit" má finna á síðu 59 í Mogganum í dag, og hvetur tyrkinn alla til að lesa hana.
Horfurnar Föðurbróðir tyrkjans lést í gær eftir langa og erfiða baráttu við krabbamein, blessuð sé minning hans.
Tyrkinn tekur sér frí frá og með morgundeginum og verður frá alla næstu viku. Planið er að fara norður á Akureyri þar sem tyrkinn og tyrkjafrúin eru með íbúð í hjarta þorpsins til einnar viku. Þó er enn óvíst hvort þau verði þar allan tíman, vegna andláts föðurbróðursins. Lítið má alla vega búast við skrifum hér frá og með morgundeginum í eina viku eða svo. Hins vegar má endilega benda tyrkjanum á hvað sé hægt að gera á Agureyri, og það sem allra fyrst.
Sjónvarpsþáttalög Fritz Gerber, sam á afmæli í dag, benti tyrkjanum á þessa stórkostlegu síðu. Einhver þýskur snillingur hefur tekið saman helstu sjónvarpsþáttalög fyrr og síðar og má finna mikil gullkorn þarna. Hér að neðan má finna dæmi um slík:
Beverly Hills 90210 Derrick He-man á þýsku! Miami Vice Benny Hill
Njótið
Flugvallaöryggi Fritz Gerber sendi þetta, ótrúlegt hvað þessi nýja tækni virkar vel!
20.11.02
Gærdagurinn
Tyrkinn leigði myndbandssnældu í gær, er kallaðist "24 hour party people" eða "sólarhringsteitisfólkið". Fyrir þá sem ekki þekkja er þetta svona nokkurs konar heimildarmynd í afar skemmtilegum búningi, þar sem "hetjan" talar oft við myndavélina og segir frá atburðunum sem gerðust, en myndin er þó leikin og lítið af gömlum upptökum notaðar. Hetjan er Tony Wilson nokkur, en hann var sjónvarpsmaður sem fór út í útgáfurekstur, klúbbarekstur og annað með misjöfnum árangri, og var fremstur í flokki þeirra sem hófu nýbylgjuna á loft í Manchester á sínum tíma, en sagan byrjar það herrans ár 1976. Myndin hefst reyndar á fyrstu tónleikum Sex Pistols þegar fyrrnefndur Tony fékk hugljómun og vildi hafa meiri áhrif á tónlist en áður. Hann hóf því að pródúsera bönd og átti m.a. stóran þátt í velgengni Joy Division, sem seinna varð New Order, og Happy Mondays. Myndin gefur skemmtilega sýn á hvernig þessi bransi var á þessum tíma, og væntanlega er hún betri ef maður þekkir vel til þessa tíma og þessara hljómsveita, en þett gerðist allt fyrir blómaskeið tyrkjans. Alveg hægt að mæla með henni, sérstaklega fyrir eldri hunda sem betur þekkja til. Dómur: Gott
Poppstjarnan og Beggin kíktu svo í stutta heimsókn í gær til að fá smá hjálp með lokaverkefni sitt í skólanum, en svo virðist sem þessir góðu drengir séu komnir á ystu nöf, enda eiga þeir að skila verkefninu í dag. Tyrkinn og tyrkjafrúin hjálpuðu eins og þau gátu á svo stuttum tíma og vonandi nýtist það í verkefnið svo drengirnir geti útskrifast með sæmd. Poppstjarnan tilkynnti svo tyrkjanum, sem er forseti R.Í.K., að búið væri að færa vörn verkefnisins til föstudagsins 13. des. n.k. og því getur popparinn mætt á aðalfund þann dag, en í það stefndi að hann þyrfti að verja verkefni sitt daginn eftir, sem kemur í veg fyrir almenn fundarstörf eins og ofdrykkju. Þetta er mikið gleðiefni, en á tímabili var útlit fyrir að aðeins tyrkinn gæti mætt á fundinn, en nú verður hann fullskipaður, og eiga landflóttamenn heiður skilið fyrir að bóka flug heim tímalega.
Tyrkinn fjárfesti í óðfræðiforritinu Braga á námskeiðinu á mánudag, og setti það upp á vél sína í gær. Þá tók hann sig til og færði ljóð sín í gagnagrunn forritsins til varðveislu. Fyrir áhugamenn um bragfræði og rímur er þetta forrit ómissandi og sérstaklega er skemmtilegt hvað höfundar hafa sett upp gott kerfi til að sýna fram á form mismunandi bragarhátta. Þá tók tyrkinn rispu í GYM-Tyrkinn rétt fyrir miðnætti til að hrista af sér kvöldmatinn.
Dagur 3
Dagur: 19/11/02 Vegalengd: 1,8 km Tími: 25 mín OrkuReiðin(PowerRider 3000): 50 samfelldar orkureiðar Á fóninum: "Lateralus" - Tool (þessi plata ætti að vera spiluð allan sólarhringinn í æfingarstöðum) Þyngd: ekki mæld í þetta skiptið, út af ótta við árangursleysi...
19.11.02
Frí
Tyrkinn var að fá tölurnar fyrir uppsafnað frí í vinnunni. Kom í ljós að einir 32,4 vinnudagar hafa safnast upp í frí og var tyrkjanum hótað öllu illu (svo til...) ef hann væri ekki búinn að eyða því fyrir lok apríl. Þetta skapar hin mestu vandræði fyrir tykjann, hann er ómögulegur þegar kemur að því að taka út frí. Taka átti góða rispu í sumar sem endaði með 2 x 3 vikur í frí, en allt fyrir ekki, gamalt uppsafnað frí er að bíta í halann og nú eru góð ráð dýr. Þá er bara að taka gott jólafrí, eða ráða sig í byggingarvinnu í einn og hálfan mánuð.
Dagur 2
Dagur: 18/11/02 Vegalengd: 2,2 km Tími: 30 mín OrkuReiðin(PowerRider 3000): 50 samfelldar orkureiðar Á fóninum: "Lateralus" - Tool (frábær æfingatónlist) Þyngd: 0,1085 tonn (ennþá, tyrkinn hélt að maður ætti eitthvað að léttast....)
Norsk gáta frá drykkjumanninum Börn hlægja af því, fullorðnir fara í fangelsi út af því, þú mætir því í lestinni og getur keypt það í Hagkaup. Hvað er það??? Vinsamlegast sendið kenningar eða svör á tyrkjann
18.11.02
GYM-Tyrkinn hefur göngu sína
Tyrkinn opnaði GYM-Tyrkinn í gær með pompi og prakt (hvað sem það nú þýðir). Líkamsræktar stöð þessi er staðsett í tómstundarherbergi húsbóndans í Tyrkjalindinni og samanstendur af hlaupabretti nokkru sem tengdó lánaði tyrkjunum, PowerRider 3000 maskínu (sjá mynd) og hljómflutningstækjum tyrkjans. Enn sem stendur er ekki hægt að kaupa kort í stöðina, en til reynslu eru tyrkinn og tyrkjafrúin aðeins með kort. Til að gera smá prógramm úr þessu hefur tyrkinn þegar hafið skráningu á æfingum ásamt þyngd í töflu nokkra í undraforritinu "Excel" sem er besta forrit í heimi fyrir þá sem ekki þekkja. Reyndar var þjófstartað í ágúst en þá var ákveðið að flytja og því hefur stöðin ekki verið virk fyrr en í gær. Búast má við fréttaskotum af árangri tyrkjans næstu mánuðina, það er að segja ef árangurinn er ekki neikvæður, en mælieiningin skal vera mæld í þyngd sem er jú viðurkenndur mælikvarði í þessum fræðum. Eins og ástand tyrkjans er um þessar mundir er honum varla stætt á að byrja með látum, en einungis smá hreyfingu þarf orðið til að gera rakastigið í tómstundarherberginu hættulegt fyrir óstöðuga hluti eins og parket gólfið og önnur húsgögn.
Dagur: 17/11/02 Vegalengd: 2,1 km Tími: 31 mín OrkuReiðin(PowerRider 3000): Engin í þetta skiptið Á fóninum: "Englaryk í tímaglasi" - Megas Þyngd: 0,1085 tonn
Tvífarar dagsins
 
Gyðnið sendi þessa skrýtlu alla leið frá Skotlandi.
15.11.02
Á tilverunni má finna áhugaverða gamla hreyfimynd sem sýnir frá gamalli tilraun þar sem hermenn voru látnir prufa LSD.
Komið hefur í ljós að kenning tyrkjans um forvitnisauglýsingarnar svokölluðu féll um sjálfa sig. Tyrkinn stóðst ekki freistinguna þó og fjárfesti í einni flösku af svokölluðu Vanillu Kóki til að svala forvitni sinni sem og þorsta. Áður en fyrsti sopinn var tekinn þefaði tyrkinn af drykknum margumtalaða og kom þá aðeins eitt til hugar, kafteinn í kók. Svo var smakkað og enn var þetta eins og kafteinn í kók. Þar sem kafteinn í kók er ekki uppáhaldsdrykkur tyrkjans mun þessi gosdrykkur því varla keyptur aftur. En forvitninni er svalað, og sjónvarpsauglýsingin er góð. (Ágætt að þeir höfðu hann þó ekki tvöfaldan vanillu í kók...)
Þegar tyrkinn lagðist til svefns í gærkveldi fór hann að fikt á fjarstýringunni að sjónvarpinu og rakst á, sér til mikillar ánægju og furðu, Sopranos's. Þetta er mikið gleðiefni, enda hefur ekkert spennandi verið á RÚV lengi, og tyrkinn er búinn að sakna þessara þátta mikið síðan þeir hurfu sporlaust af dagskrár ríkisbálknsins á sínum tíma.
Tyrkinn fór á "æfingu" hjá FC Sokk í gær þrátt fyrir að vera enn fullur af kvefi. Mikil steming er komin í hópinn eftir að nýtt kerfi var sett á leikfyrirkomulag og svokölluð Landssokkadeild sett á laggirnar, enda getur núna orðið blóðugt að missa úr tíma ef maður vill ekki eiga á hættu að þurfa að bjóða í teiti í lok vertíðar, en sá stigalægsti hlýtur það vafasama hlutverk. Einnig settu tyrkinn og Fritz Gerber upp æðisgengna heimasíðu fyrir knattspyrnufélagið þar sem menn geta svívirt náungann. Heimasíðu þessa má finna hér. Tyrkinn var reyndar ekki að gera góða hluti í boltanum í gær, enda lá við spýjublettum á fína gerfigrasinu í gær þegar tyrkinn var búinn að pústa í aðeins 15 mín eða svo og svitastig andrúmsloftsins hækkaði um ein 18% eða svo, einungis af tyrkjanum. Eftir æfingu var svo síðasti dimmerinn settur upp í tyrkjalindinni og lokahönd lögð á GYM-Tyrkinn. Allt útlit er fyrir tiltölulega rólega helgi, enn sem komið er a.m.k.
14.11.02
Afmælisvertíð Tyrkjamóðirin átti afmæli í gær. Í tilefni þess var boðið í dýrindiskvöldverð að heimili hennar. Eftir langar samningaviðræður sættist tyrkinn á það að láta sækja hann og tyrkjafrúnna svo tyrkjamóðirin gæti komið einhverju brennivíni ofan í þau. Að gjöf frá þeim og tyrkjasysturinni eldri fékk tyrkjamóðirin einhverja afskaplega fína dekurmeðferð hjá "Mecca Spa" þar sem allar heldri frýr láta dekra við sig að sögn fróðra, og virtist hún afar sátt við þá ráðagerð. Að venju var allur matur til fyrirmyndar og var boðið upp á dýrindis rauðvín og sælgætislíkjör eftir máltíðina. Þá var setið og heimsmálin rædd og að venju var tyrkjasysturinni yngri og tyrkjabróðurnum mikið niður fyrir á köflum og lá við handalögmálum þegar tyrkjasystirin fékk ekki að klára setningar sínar um mannkynssögu tíbeta. Þá var ekki komist að niðurstöðu hvort Afríkuþjóðir væru betur settar eða verr eftir afskipti vesturlanda. Einnig sagði tyrkjasystirin að hún hefði tapað árs vinnu í tösku nokkurri, annað hvort á Píanóbarnum eða í leigubíl þaðan. Taskan inniheldur nefnilega tvær bækur þar sem tyrkjasystirin hefur teiknar afar fallegar myndir sem sárt er saknað. Myndir þessar eru teiknaðar með hár fínum svörtum penna og eru mikill missir, sérstaklega í ljósi þess að hún var einungis einni mynd frá því að geta sýnt þær allar sem seríu, og hlakkaði tyrkinn mikið til þess að berja þær augum. Ef einhver hefur töskuna með bókunum undir höndum eða veit eitthvað um afdrif hennar má hinn sami endilega senda póst á tyrkjann, fundarlaun í boði.
Tyrkjasystirin eldri á einnig afmæli fljótlega, eða þann 26. n.k. Í tilefni þess sendi hún afar vandaðan netpóst sem boðskort og hló tyrkinn við skoðun þess. Þar er boðið í sal nokkurn í Álaborg þar sem hún er niðursett þessi árin og eiga afmælisgestir að mæta klæddir sem sín uppáhalds hetja. Þá voru myndir af frægu fólki þar sem andliti tyrkjasysturinnar hafði verið skeytt inn fyrir andlit fræga fólksins, og var það ákaflega vel gert. Sérstaklega vöktu kátínu myndir af henni sem Einstein, Davíð Oddson og Móðir Theresa, en tyrkinn er ekki frá því að tyrkjasystirin hafi hreinlega heitið Albert í fyrra lífi.
Að öðrum og verri fréttum, bróðir tyrkjaföðursins liggur nú þungt haldinn á spítala eftir erfiða baráttu við krabbamein. Í rúmt ár hefur gæfan ekki leikið við tyrkjafjölskylduna, en tyrkjafaðirinn lést úr krabbameini fyrir rétt rúmu ári síðan, og nýlega létust bæði tyrkjaamman og tyrkjafinn með einungis 10 daga millibili. Tyrkjamóðirin á heiður skilinn fyrir framgöngu sína á þessum erfiðu tímum, en hún hefur reynst öllum vinum og ættingjum ákaflega vel þennan tíma, þrátt fyrir erfiðleikana.
13.11.02
Það virðist vera eitthvað að blogger....
Fritz Gerber sendi þennan afar álfadísalega dans sem köngurlóamaðurinn stígur við nýja "Macarena" lagið
Veruleikafirrtasti Íslendingur allra tíma
...og hann á stórkostlega heimasíðu....
Jóla hvað?!
Tyrkinn heyrði sína fyrstu jóla útvarpsauglýsingu á leið til vinnu í morgun. Ef eitthvað er leiðinlegra en jólalag, þá er það jólaauglýsing, og ef eitthvað er leiðinlegra en jólaauglýsing, þá er það jólaauglýsing með jólabjöllum í bakgrunni. Þá er bölvað jólafarganið byrjað, ekki það að tyrkinn fyrirlíti jólin, heldur er það farganið sem kemur á undan jólunum sem fer í taugarnar á honum. Um miðjan nóvember má búast við því að ekki verði lengur hægt að hlusta á útvarp, horfa á sjónvarp né fara í verslanir án þess að verða fyrir sífelldu jóla angri sem er alveg til að gera mann ljóshærðann. Tyrkjafrúin er líka farin að þrýsta á tyrkjann með skreytingar og hótar núna að öll tyrkjalindin verð skreytt hátt og lágt fljótlega, ekki einu sinni á Þorláksmessu þegar á að skreyta. Hún hótar því einnig að nú verði keypt jólatré í tyrkjalinda, alvöru stórt jólatré, en hún var eitthvað ósátt við það annars ágæta jólatré sem hvílir í skáp nokkrum í tyrkjalindinni. Þá hótar hún einnig því versta, að spila jólalög eins og vitlaus manneskja "yfir jólin" sem virðast byrja hjá henni í nóvember, eða snemma í desember, þegar enn eru þrjár vikur rúmlega í jólin. Bagglútur bað Ikea vinsamlegast um daginn að eyðileggja ekki önnur jól í október og virðist sem svo að Ikea hafi ekki haft það í sér að virða ekki þá ósk, en undanfarin ár hafa þeir verið fyrstir til að eyðileggja jólin síðsumars. Það er allt útlit fyrir að tyrkinn þurfi að fara að kaupa sér vasadiskó fyrir næstu vikurnar.
Enn af rímum Tyrkinn fór aftur á skólabekk á mánudaginn að nema bragfræði og rímur. Að þessu sinni var aðeins afslappaðri stemning þar sem allir vissu hvað var í vændum, ólíkt fyrri tíma. Að venju fer fyrri hlutinn í bragfræðina en Steindór sér um seinni hlutann. Mikill tími fer í spjall og að segja sögur tengdar rímum og kvæðamönnum og segir Steindór skemmtilega frá og er margfróður um umræðuefnið. Tyrkinn mælir með þessum tíma fyrir áhugasama, þótt kennsluefnið sé hálf formlaust á að líta. Hann leyði okkur meðal annars að hlusta á upptöku sem væntanleg er á plötunni "Rímur og Rapp" sem kemur út fljótlega. Þar kvað Steindór gamlar rímur við undirleik Hilmars Arnar og Erpur Eyvindar rappaði sína eigin texta þess á milli. Þessi furðulega blanda kom vel út og ekki síst tónlist Hilmars sem var þétt sniðin að kveðskap Steindórs. Hann leyði okkur aðeins að hlusta á þetta eina lag, og hefur tyrkinn ekki hugmynd um hvað er annað sniðugt á þessum disk, en ekki er ólíklegt að hann verði keyptur þegar hann kemur út. Eftir hlustun spilaði kvæðamaðurinn fyrir okkur upptöku frá 1935 með sömu rímum og lét loks hópinn kveða þær fullri raustu. Loks benti hann okkur á nýja heimasíðu Kvæðamannafélagsins Iðunnar sem finna má á alnetinu undir slóðinni www.rimur.is .
Síkvef Tyrkinn fagnar nú viku afmæli kvefsins sem hann er fullur af þessa dagana. Vonir eru til þess að það verði farið á morgun fyrir vikulega fótbóltann sem tyrkinn missti af í síðustu viku sökum kvefs. Búið er að setja mjög gott kerfi á fyrirkomulag í boltanum sem ætti að hleypa eldmóði í félagsmenn. Það funkerar þannig að dregin eru spil fyrir hvern leik til að skipta í lið þannig að sjaldan spila sömu menn saman. Þá er spilað þannig að annað liðið er alltaf með núll, en hitt með einhver mörk yfir, þ.e. alltaf mæld mörkin sem eru yfir en ekki heildar mörk beggja liða. Þegar annað liðið kemst 6 mörkum yfir hitt, hljóta allir liðsmenn 10 stig og dregið er aftur í lið. Þegar tíminn er liðinn hlýtur það lið jafn mörg stig og það er mörkum yfir og leiknum er lokið. Stigin eru skráð á hvern leikmann eftir hvern leik og er nokkurs konar einstaklingsdeild í gangi sem birt er á heimasíðu FC Sokks sem er nánast full búin þessa dagana. Þetta kerfi hljómar afar vel og var því miðlað til Fritz Gerbers af Gumma Gumm nokkrum sem lét vel af því. [sniff]
12.11.02
Tyrkinn fær bréf frá aðdáanda...
11.11.02
Litli Oscar Þráhyggja Íslendinga að verða stórþjóð endurspeglast vel í öllu þessu Eddu verðlauna fári sem er búið í bili sem betur fer. Alveg finnst tyrkjanum þetta fáránlegt, að hafa verðlaunaafhendingu fyrir kvikmyndir á Íslandi á hverju ári, ekki er mikið úrval af myndum til þess. Enda fékk hafið nánast öll verðlaun sem snéru að kvikmyndum, þ.á.m. öll leikaraverðlaun, bestu mynd, handrit og leikstjórn. Væri ekki nær að hafa lítil verðlaun fyrir sjónvarp þar sem væri hægt að sleppa þessu gala-klænaðar kjaftæði og afhenda verðlaunin í kyrrþey og hafa svo kvikmyndaverðlaun á 5 ára fresti, þegar komnar væru fleiri en ein bíómynd fyrir tímabilið. Sveppi nokkur hraunaði á liðið að sögn sjónarvotta og sagði frá því hvernig væri best að svindla á kosninguni, sem er ágætis framlag. Og svo segja þeir að ansi stór hluti landsmanna eyddu kvöldstund í að horfa á leikara-elítuna klappa hverjum öðrum á bakið og dásama hvern annan. Usss...
7.11.02
Fróðleiksmoli dagsins Íslenska krónan vegur 4 gr. frá og með árinu 1989 þegar hún var nikkelhúðað stál. Þannig vega milljón krónur 4 tonn og einn milljarður 4.000 tonn. Þvermál hennar er 21,5 mm og á framhlið hennar er bergrisi úr landvættamerkinu og bakhlið er þorskur. [heimildir www.sedlabanki.is] Verði ykkur að góðu.
Tyrkjafrúin tjáði tyrkjanum að það að dreyma í kvikmyndastíl segði manni að manni vantar jarðtenginu, en tyrkinn er þekktur fyrir lítið annað en að vara afar jarðtengdur, eða hvað?....
Pí -reglan Tyrkinn er búinn að sannreyna kenninguna um pí, sbr stóra sturtuklefamálið. Kenningin um pí gengur út á það að þegar maður tekur sér eitthvað fyrir hendur og þekkir ekki framkvæmdina vel verður verkið alltaf 3,14 sinnum meira en á horfðist, og kostar yfirleitt líka 3,14 sinnum meira. Sturtuklefinn átti að klárast á sínum tíma yfir páskana en varð akkurat 3,14 meira mál en á horfðist. Tyrkjafrúin er einmitt að reka sig á þetta þessa dagana. Vinkona hennar plataði hana grandlausa um daginn til að taka að sér að aðstoða aðra vinkonu sína með prófkjör og sjá um fjármálin er varða það. Þessi "vinkona" hennar seldi henni hugmyndina þannig að hún væri að "aðstoða" hana við fjármálin og fjáröflun til að fjármagna auglýsingar og annað til að koma frambjóðandanum á lista. Eftir að hafa fundað með frambjóðandum er að koma meira og meira í ljós þessi stærð, pí. Það er hægara sagt en gert að fá fyrirtæki og aðra aðila til að styrkja einn frambjóðanda til prófkjörs þar sem fjölmargir eru að sækjast eftir sömu peningum, og þá kemur á daginn að tyrkjafrúin á ekki bara að aðstoða, heldur að sjá um, og eins og allt svona stapp tekur svona ómældan tíma og fyrirhöfn. Þá er bara að vona að hún nái að hafa gaman að þessu öllu saman, og að þetta komi ekki niður á tyrkjanum. Vonandi þarf hann ekki að flytja til tyrkjamóðurinnar á meðan á þessu stendur....
Aaaaaaaatttjúúú
Tyrkinn er kominn með "full-scale" kvef og sýgur upp í nefið á sér eins og hann eigi lífið að leysa. Hóstaði í allan gærdag og var að sögn tyrkjafrúnnar afar sjúskaður í morgun, með augun sokkin ofan í hnakka. Annars er þetta eins og kvef-auki, eins konar bónus ofan á sí-kvef tyrkjans. Annars eru draumfarir tyrkjans með allra fjörugasta móti þessa dagana. Það er ekki oft sem tyrkinn man drauma að morgni en í morgun var annar morguninn í röð sem tyrkinn man drauma sína og gat sagt frá þeim í morgunástandinu.
Morgundraumurinn: Tyrkinn var ásamt einhverju liði að ferðast á sleða að einhverju húsi sem var út fyrir bæinn, í einhvers konar skógi. Þegar í húsið var komið var þar mafía í öllu sínu veldi og var hún vinveitt tyrkjanum, eða hann öllu heldur hluti af henni. Eftir að hafa beðið doninn um wiskýtár var tyrkinn tekinn afsíðis af elsta mafíósanum (ekki ósvipaður gamla karlinum í ðí sópranós) sem sagðist vera hættur við að stinga af (var líklega orðinn elliær) og bað hann tyrkjann um að fara á neðri hæðina og kippa inn fyrir sig tösku sem hann var búinn að taka til fyrir brottförina. Hann tjáði tyrkjanum að í henni væru náttföt (bleik!?), skammbyssa og peningar (dollarar ef tyrkinn man rétt). Þá hélt tyrkinn niður og áttaði sig á því að húsið var hús móður hans í tyrkjalundi en þar var komin ný útidyrahurð þar sem enginn hurð er í dag. Tyrkinn fann töskuna, tók hana inn og skoðaði innihaldið. Í þeirri andrá var húsið "böstað" af lögreglunni, en allir lögreglumenn voru í skotheldum vestum. Lögreglan tók sig til og fór að taka allar mafíu-byssurnar í sundur en þær virtust allar vera samsettar úr tveimur helmingum, hægri og vinstri, en lögreglan hirti aðeins annan hlutann af hverri byssu. Þá komst tyrkinn að því að hægt væri að nota tvo hluta af sitt hvorri byssunni og setja saman. Þá var tyrkinn vakinn í annað eða þriðja skiptið af tyrkjafrúnni og fór á fætur.
6.11.02
Doktorinn og aðrar stuttar sögur...
Tyrkinn tók sig til í dag og pantaði tíma hjá Einari Thoroddsen vínlækni, en nú er um mánaðarbið þannig að tyrkinn fékk ekki tíma fyrr en 5. des n.k. Þannig er mál með vexti að tyrkinn er haldinn krónískum kverkaskít sem er að gera hann ljóshærðann. [Viðkvæmir hætti að lesa hér, fara beint á næstu málsgrein]. Þetta lýsir sér þannig að á hverjum morgni vaknar tyrkinn (eða hálf vaknar a.m.k.) fullur af slími og viðbjóði (e. full og shit) og er að hósta upp úr sér um hálfum lítra af óæskilegum hlutum í sturtunni. Hálsinn og nefið eru hálf stífluð og telur tykinn þetta hafa áhrif á svefn m.a. en tyrkinn er þekktur fyrir sínar karlmannlegu hrotur sem glatt hafa margann ferðalanginn síðast liðin ár. Reyndar dró úr hrotum þegar tyrkinn keypti sér kodda nokkurn sem kenndur var við eitthvað læknisfræðilegt og fæst í apótekum (nokkur mubla, og er ómissandi eftir viku notkun), en skíturinn er enn til staðar. Stundum verður þetta svo slæmt að tyrkinn kúgast er hann reynir að losa þetta. Tyrkinn biðst afsökunar ef þessar lýsingar hafa sært bligðunarkennd lesenda. En nú er planið að vita hvort læknirinn góði, sem margir hafa séð staupa sig á föstudagsmorgnum í "Ísland í bítið" á stöð 2, geti ekki fjarlægt einhver líffæri úr tyrkjanum. Tyrkinn leitaði til hans eftir að hafa heyrt Þóru nokkra söngkonu dásama hann eftir að hann fjarlægði hálskirtlana úr henni þegar þeir voru farnir að hafa áhrif á söng hennar. Gott ef hún sagði hann ekki hafa sagt að hálskirtlar væru verkfæri djöfulsinns (eða eitthvað í þá áttina) og þá ætti að fjarlægja úr öllum við fyrsta tækifæri.
() Tyrkinn keypti þessa geislaplötu um daginn og er mjög ánægður með hana eftir 2 hlustanir eða svo. Svo virðist vera að sumir séu ekki jafn ánægðir með þessa nýjustu afurð drengjanna í Sigur-rós, en tyrkinn skilur ekki af hverju. Hljómsveitin er búin að vera spila þessi lög, a.m.k. mörg hver, á tónleikum í 1,5-2 ár og bjóst tyrkinn ekki við neinu öðru af þeim en það sem platan býður upp á. Hún er nokkuð "live" ef svo má að orði komast og er nánast eins og þeir hafi tekið þetta upp eins og þeir væru að spila á tónleikum, sem er vel að mati tyrkjans því þetta er þannig tónlist og fáar hljómsveitir geta toppað tónleikaupplifun Sigur-rósar. Mörgum virðist þykja "nafn" plötunnar og nafnleysi laganna vera tilgerðarlegt, en það finnst tyrkjanum ekki. Nöfn laga þjóna oft litlum tilgangi, og hvaða nöfn ættu svosem að vera á lögum sem enga texta hafa (reyndar eru til nokkurs konar "óopinber nöfn" á flest lögin, en það gildir einu). Einnig fynnst tyrkjanum það vera ágætt að hafa heila plötu án texta, eða eins og einhver orðaði það, þegar hlustendur geta búið til sína eigin meiningu textans og myndað sér skoðun um hvað lögin fjalla um, sem sagt túlkað tónlistina án þess að láta textann segja sér alla söguna. Tónlistin ein og sér ber með sér sína sögu sem tyrkjanum fynnst ljómandi gott. Dómur: Schnilld
5.11.02
Sérkennileg kennslustund Tyrkinn sast aftur á skólabekk í gær er hann hóf námskeiðið "Bragfræði rímna og rímnakveðskapur" í Endurmenntunardeild HÍ. Þar kenndu Krisján Eiríksson íslenskufræðingur og Steindór Anderssen Kvæðamaður. Aðeins um 10-12 manns voru í tímanum og hóf hann á bragfræðikennslu Kristjáns sem fór mikinn og virtist kunna endalaust að gömlum rímum sem hann tók sem dæmi um hitt og þetta. Seinn hluti tímans fór í kveðskapinn sjálfann, og Steindór lét alla nemendur hlusta á upptökur frá árunum 1935-36 þegar Kvæðamannafélagið Iðunn ákvað að varðveita þessar menningargersemar á silfurplötum svökölluðum. Svo voru allir látnir kveða rímurnar aftur hástöfum í kór. Afar sérkennileg stemning. Hér má sjá stutt vídeó af jólafundi kvæðamannafélagsins iðunnar sem tyrkinn fann á alnetinu...
Ja viti menn, á bænum þar sem tyrkinn fór í sveit er staddur storkur í góðum fíling, alla vega samkvæmt frétt á mbl.is
4.11.02
Helgarskýrsla tyrkjans
Vísindaferð, tónleikar, spielstation, vöfflur og vídeogláp...
Á föstudaginn var allsherjar vísindaferð í vinnu tyrkjans og var all góður haugur af fólki mættur til að innbyrða bjór og fræðast að hætti vísindamanna. Þorsteinn Guðmundson fóstbróðir mætti og hélt tölu og var gríðar fyndinn og gerði "gott mót" eins og margir mundu orða það. Þaðan var haldið í Austurbæjarbíó þar sem poppstjörnurnar héldu útgáfutónleika að stórstjörnusið. Mikið var lagt í sýninguna og voru meðlimir í sérsaumuðum artí-fötum, geislaljósadýrð mikil og jafnvel flugeldar í bland við tónlistina. All mikið var um píkuskræki og virtist almenn ánægja með framtak drengjanna. Athygli vakti að Sveinn Sveins, eða Áki eins og hann kýs að kalla sig, var íklæddur pilsi úr landslagsefni einhverju og var því mikið velt upp hver hefði náð að fá þann mann í slíka flík, enda ekki þekktur fyrir kvennleika að neinni sort. Aðspurður kvaðst hann þó hafa beðið sérstaklega um að fá pilsið góða, en ekki hafa verið þvingaður í málið. Eftir tónleikana var svo partí í bíóinu og var vel veitt. Þaðan fóru veislugestir margir hverjir á Nasa og þar drukkið áfram. Tyrkinn getur því miður ekki miðlað miklum upplýsingum um hvað fór þar fram, enda orðinn ölvaður með eindæmum, en það sem tyrkinn man var ágætis skemmtun og töluverð gleði.
Að venju fór laugardagurinn í það að lágmarka hreyfingar og hámarka tíma í sjónvarpsgláp. Töluvert var hangið í "Need for Speed, hot persuit 2" sem tyrkinn keypti á spielstation í síðustu viku og svo var horft á sjónvarp til um klukkan 4 um nóttina, mest alla sjónvarpsdagskrá og eina ræmu til. Þar sem tyrkinn var sendur í ræmubúðina var "Hart's war" leigð með hæfilegum væntingum í huga, en þar sem myndin fjallar um stríð var hún tilvalin, enda eru þannig myndir aldrei leiðinlegar. Bruce nokkur Willis er í forgrunni á kápunni sem fylgir myndinni, en í raun er hann ekki aðal gaurinn eins og búast mætti við, heldur er sagan sögð frá sjónarhóli annars manns, sem heitir Hart. Svo gengur myndin ekki út á hefðbundið stríð, heldur gerist hún nær öll í fangabúðum nasista og innri pólitík og flækjur innan þeirra. Ræma þessi var betri en á horfðist og má vel horfa á hana, jafnvel tyrkjafrúin var nokkuð sátt, en þess má geta að hún hefur andúð á stríðsmyndum. Dómur: Sleppur.
Á sunnudaginn var haldið í hefðbundna vöffluveislu að heimkynnum tyrkjafrúarforeldranna, en það ku vera vikulegur atburður. Svo var kíkt í þynnkubæli poppstjörnunnar sem lá undir sæng á naríunum og horfði á fótbolta og Bubba til skiptis. Ekki er búið að venja Tyson af því að reyna að troða blautu nefi sínu í vasa og handarkrika og er það ekki vel, en þrátt fyrir það er alltaf gott að sækja þau hjón heim, og var meira að segja reynt að bjóða í mat, en ástand tyrkjans bauð ekki upp á það í þetta skipti.
Drykkjumaðurinn, eða Egill Pálsson eins og mamma hans kallar hann, biður að heilsa frá Oslo, borg sárasóttarinnar (ekki það að drykkjumaðurinn hafi enn sótt sér þá sýki). Hann kveðst ætla að heiðra samlanda sína með nærveru sinni frá 21. des n.k. til 5. janúar. Enn fremur auglýsir hann eftir afsökun til þess að koma einnig yfir helgi eða svo í byrjun desember, en hann ku þurfa að eyða bónusgreiðslum sem hann á von á og langar til íslands aftur ef eitthvað "stuð" verður í upphafi desember. Hann tjáði talsmönnum tyrkjans einnig að hann hefði náð sér í nafnbótina MCE sem ku vera ákaflega fínt, en þó ekki eins fínt og MCSD en það ku vera það allra flottasta. Hann stendur enn og aftur í flutningum þessa dagana og er víst að flytja inn á nokkrar saklausar norskar píur og ekki leiðist honum það. Tyrkinn lýsir eftir skemmtilegum atburðum á íslandi í byrjun des, svo við getum fengið Drykkjumanninn, MCE, í heimsókn.
Af mbl.is
Veröld/Fólk| 4.11.2002 | 09:05 Emilana Torrini flytur lag í Hringadróttinssögu Emiliana Torrinu flytur aðallagið í myndinni Turnunum tveimur en það er önnur myndin í þriggja mynda flokki sem gerður er eftir Hringadróttinssögu. Faðir Emiliönu staðfestir þetta í DV í dag. Lagið heitir Gollums Song.
Þetta finnst tyrkjanum magnað, hann vissi ekki betur en hún Emiliana væri alveg búin á því þar sem ekkert hefur heyrst af henn lengi. Þetta ætti að vera ágætis breik fyrir hana, þetta er jú stórmynd.
Dr. Gunni stendur fyrir undirskriftarlista til Skjás eins um að setja Conan aftur á dagskránna. Þeir sem vilja styðja þetta átak vinsamlegast farið hingað og leggið ykkar af mörkum.
1.11.02
Tyrkinn sá aðeins úr Andreu þættinum í gær, og þar var verið að tala við einhvern hóp af konum sem hittast á hverju ári og voru þær allar íklæddar smóking fötum að sið karla. Þær voru ákaflega hressar og töluðu mikið um hvað þetta væri allt saman æðislegt. Þá sagði ein þeirra eitthvað á þessa leið: "Já og við enduðum á strippstað í fyrra, á óðali og enduðu meira að segja margar uppi á sviði [þá skýtur önnur inn] ... já, það var áður en við vorum á móti þessum stöðum...." (need i say more....)
Gunnhildurin hringdi áðan og er á landinu að æfa með einhverju tríói, en fer víst aftur á sunnudaginn. Þetta jet-set lið...
Annars er vísindaferð núna, og svo á tónleikana góðu. Endar eflaust með vandræðum einum...
Útgáfutónleikar í kvöld Poppararnir eru með útgáfutónleika í kvöld, og er mikið um dýrðir að sögn Ákans, enda hafa þeir ráðið leikstjóra til að halda utan um sýninguna, en svo mikið er lagt í glimmer að þeir kalla þetta frekar sýningu en tónleika. Arnar á mbl.is tók viðtal við drengina.
|
|
|
|
|