Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

31.12.02

:: tyrkinn 05:26 [+] ::


Tyrkinn óskar landsmönnum öllum til sjávar og sveita, gleðilegs nýs árs og vill um leið þakka fyrir það gamla!

Ef til vill væri ráð að skipta um útlit í fyrsta sinn eftir áramót til tilbreytingar. Ef til vill væri ráð að gera árið svo upp í byrjun janúar, en það skal gert eftir þynnkuna.


13.12.02

:: tyrkinn 12:04 [+] ::


Tyrkinn fer í jólafrí
Tyrkinn er farinn í afar hressandi jólafrí og kemur ekki aftur til vinnu fyrr en 10. janúar á næsta ári. Er þá ekki bara ráð að segja; "Gleðilega jól, og allt það"


12.12.02

:: tyrkinn 11:44 [+] ::


Íslensku dívurnar
Tyrkinn sá í sjónvarpinu um daginn hana Védísi Hervör flytja lag af plötunni "Íslensku dívurnar", og aftur í morgunþætti stöðvar 2, þar sem hún kom fram ásamt fjórum ungum óþekktum söngkonum. Þegar tyrkinn heyrði nafnið fyrst hélt hann að þetta væru nú þekktustu söngkonur landsins að belgja sig, en nú kemur í ljós að Ragga Gísla er eina vel þekkta söngkonan í þessu kombói. Þessi lög sem tyrkinn heyrði voru ekki merkileg, einhver erlend sykurlög sem búið var að klína væmnum íslenskum jólatextum á og af þessum sýnishornum er ekki um merkilega afurð að ræða. Í morgun sá tyrkinn ekki betur en þar væru fjórar ungar ágætis söngkonur að rembast við að standa undir þessum "dívu" titli og söngu jólalög með R&B (sem stendur fyrir Rass&Brjóst í orðabók tyrkjans) töktum sem eru hvorki smekklegir né skemmtilegir að mati tyrkjans. Svo á að halda einhvera roknartónleika í Hallgrímskirkju með sinfómeðlimum, einhverjum kórum og látum. Pant ekki fara, þetta verður eflaust einhver íslensk plebba útgáfa af "VH1's Divas" sem getur ekki komið vel út.



:: tyrkinn 10:13 [+] ::


Skandall
Samstarfshópur um að styrkja heilbrigðan lífstíl barna og unglinga veitti fréttakonunni Guðrúnu Gunnarsdóttur viðurkenningu í gær fyrir "að hafa sýnt afgerandi viðspyrnu gegn klámvæðingunni" og var hún nefnd "Ljósberi ársins" á stöð 2 í gær þegar fréttamenn sögðu stoltir af þessu. Þessi "afgerandi viðspyrna" fólst í því að hún neitaði að taka viðtal við Ron Jeremy þegar hann heimsótti landann ekki fyrir svo löngu síðan. Tyrkinn sá viðtalið og fussaði og sveiaði þegar það kom fram í viðtalinu sjálfu að hún hefði neitað að taka það ásamt öðrum fréttamanni. Er þetta góð fréttamennska að neita að taka viðtal út af sínum persónulegum skoðunum? Að koma með svona lummuleg mótmæli sem felast í því að tala ekki við "andstæðinginn". Og tyrkinn sem hélt að góðir fréttamenn væru hlutlausir, eða ættu a.m.k. að sýna hlutleysi. Ef hún væri svona góður fréttamaður, ætti hún ekki frekar að hafa mætt og spurt hann gagnrýnna spurninga á heiðarlegan hátt? Og hvaða snillingi datt í hug að verðlauna fréttamann fyrir "framúrskarandi" störf, þegar hann vinnur ekki einu sinni vinnuna sína? Í þessum samstarfshópi eru starfsmenn frá eftirfarandi aðilum: Félagsþjónustunni í Reykjavík, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur, Neyðarmóttökunni, Lögreglunni í Reykjavík, SAMFOK, Landlæknisembættinu og Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þessi hópur hefur svosum þarft verk að vinna, en er þetta rétta leiðin til þess? Ættu þeir ekki að verðlauna einhvern sem hefur gert eitthvað annað en að mæta ekki í vinnuna? Í viðtali við mbl.is segir hún eftirfarandi um þýðingu viðurkenningarinnar; "Ég held að þetta hafi þýðingu fyrir alla sem berjast gegn ofbeldi, því klám er jú ofbeldi". Þetta þykir tyrkjanum óþolandi, þegar fólk setur klám og ofbeldi undir sama hatt. Vissulega er til klám með ofbeldi, en það er engan vegin hægt að tengja þessa tvo ólíku hluti saman sí svona. Alveg eins væri hægt að segja að foreldrar væru jú ofbeldi, út af því að örfáir foreldrar beiti börnin sín ofbeldi. Tyrkinn heldur því a.m.k. fram að það séu þarfari verk að vinna fyrir þennan hóp en að virða klámmyndaleikara vettugi í viðtölum, væri ekki frekar ráð að taka á ofbeldi hér á landi og beina athygli sinni að börnum og unglingum og það sem fer þeirra á milli. Þetta er skandall!






11.12.02

:: tyrkinn 13:45 [+] ::


Tyrkinn var að fá tölvupóst:

Flott fyrir jólin!!!!

Fyrstur kemur.......

ÞETTA ER ALVÖRU.

Frír Bjor!!!

'Caricacell ' eru ad starta nyrri markadsetningu. Ef thu fillir in formid a netinu their munu senda ther FRIAN kassa af influttum 'Caricacell 'Italskur Bjor sem bragdast vist eins og Stell Artois. Thetta mun standa yfir a Islandi til Desember loka eda thangatil birgdir endast Smelltu ther: <<http://digilander.libero.it/caricacell/>>



:: tyrkinn 13:41 [+] ::


Tyrkjafrúin var að tilkynna tyrkjanum að hann hefði klikkað bæði á 7. og 12. lið af reglunum hér að neðan. Gott að það eru engin viðurlög....



:: tyrkinn 10:23 [+] ::


"THE MAN CODE"

...í boði Brenna

1. Thou shall not rent the movie "Chocolat"

2. Under no circumstances may 2 men share an umbrella.

3. Any man who brings a camera to a bachelor party may be legally killed and eaten by his fellow partygoers.

4. When you are queried by a buddy's wife, girlfriend, mother, father, priest, shrink, dentist, accountant, or dog walker, you need not and should not provide any useful information whatsoever as to his whereabouts. You are permitted to deny his very existence.

5. Unless he murdered someone in your immediate family, you must bail a friend out of jail within 12 hours.

6. You may exaggerate any anecdote told in a bar by 50 percent without recrimination; beyond that, anyone within earshot is allowed to call BULLSHIT . (Exception: When trying to pick up a girl, the allowable exaggeration rate rises to 400 percent)

7. If you've known a guy for more than 24 hours, his sister is off-limits forever.

8. The minimum amount of time you have to wait for another guy who's running late is 5 minutes. For a girl, you are required to wait 10 minutes for every point of hotness she scores on the classic 1-10 babe scale.

9. Complaining about the brand of free beer in a buddies refrigerator is forbidden. You may gripe if the temperature is unsuitable.

10. No man is ever required to buy a birthday present for another man. In fact, even remembering a friends birthday is strictly optional and slightly gay.

11.Agreeing to distract the ugly friend of a hot babe that your buddy is trying to hook up with is your legal duty. Should you get carried away with your good deed and end up having sex with the beast, your pal is forbidden to speak of it, even at your bachelor party.

12. Before dating a buddy's "ex", you are required to ask his permission and he in return is required to grant it.

13. Women who claim they "love to watch sports" must be treated as spies until they demonstrate knowledge of the game and the ability to pick a buffalo wing clean.

14. If a man's zipper is down, that's his problem, you didn't see nothin'.

15. The universal compensation for buddies who help you move is beer.

16. A man must never own a cat or like his girlfriend's cat.

17. When stumbling upon other guys watching a sports event, you may always ask the score of the game in progress, but you may never ask who's playing.

18. When your girlfriend/wife expresses a desire to fix her whiney friend up with your pal, you may give her the go-ahead only if you'll be able to warn your buddy and give him time to prepare excuses about joining the priesthood.

19 . It is permissible to consume a fruity chick drink only when you're sunning on a tropical beach... and it's delivered by a topless supermodel... and it's free.

20. Unless you're in prison, never fight naked.

21. A man in the company of a hot, suggestively dressed woman must remain sober enough to fight.

22. If a buddy is outnumbered, out manned, or too drunk to fight, you must jump into the fight. Exception: If within the last 24 hours his actions have caused you to think, "What this guy needs is a good ass-whoopin", then you may sit back and enjoy.

23. Phrases that may NOT be uttered to another man while weight lifting: "Yeah, baby, push it!" "C'mon, give me one more! Harder!" "Another set and we can hit the showers." "Nice ass, are you a Sagittarius?"

24. Never hesitate to reach for the last beer or the last slice of pizza, but not both. That's just plain mean.

25. If you compliment a guy on his six-pack, you better be referring to his beer.

26. Never join your girlfriend/wife in dissing a buddy, except when she's withholding sex pending your response.

27. Never talk to a man in the bathroom unless you're on equal footing: either both urinating or both waiting in line. In all other situations, a nod is all the conversation you need.

28. If a buddy is already singing along to a song in the car, you may not, unless you are gay.



:: tyrkinn 09:34 [+] ::


Af mbl.is :

Óheppileg þjóðsaga

Lögregla í Bresku-Kólumbíu í Kanada segir að nútímaþjóðsaga hafi orðið til þess að hún fann mikla uppskeru af hassplöntum í húsi nokkru.
Kona hringdi fyrir slysni í lögregluna eftir að sonur hennar sagði henni að ef hringt væri í neyðarnúmerið 911 og tölunni 1 bætt við gæti hún komist að því hvort sími hennar væri hleraður.

Þegar lögreglan svaraði brá konunni í brún og hún lagði á. En lögregla hélt að eitthvað væri að og hraðaði sér á staðinn.

Þegar þangað kom gaf að líta fjölda kannabisplantna í ræktun.

Konan, sem er sextug, og þrír karlar á aldrinum 55-61 árs voru handtekin vegna málsins.


10.12.02

:: tyrkinn 13:16 [+] ::


Föstudagurinn 13.
Að venju hefur verið boðið til aðalfundar R.Í.K. International föstudaginn 13. desember. Tyrkinn er forseti félagsins og hefur gefið út dagskránna sem er óvenju löng þetta skiptið. Mikil ánægja ríkir hjá tyrkjanum því allir félagsmenn hafa boðað komu sína, en útlit var fyrir að tyrkinn væri sá eini sem kæmist á tímabili. Tónskáldið lendir á fimmtudagskvöldið og Gyðnið lendir í hádeginu á föstudaginn. Poppstjarnan er að verja lokaverkefni sitt fyrir hádegi sama dag og verður því sennilega eitthvað búinn að væta sig fyrir fundinn. Tyrkinn fer í jólafrí sitt í hádeginu á föstudaginn og mætir ekki aftur til vinnu fyrr en 10. janúar á næsta ári, og ætti það að saxa eitthvað á uppsafnað frí og stuðla að drykkju og stuði yfir jólin. Þá er aldrei að vita nema hægt sé að sinna þessum farfuglum eitthvað á meðan dvöl þeirra stendur, en drykkjumaðurinn kemur einnig heim, þann 21. des ef tyrkinn man rétt.



:: tyrkinn 13:04 [+] ::


Tyrkinn var að fá upphringingu:
Tyrkinn: "Tyrkinn hérna megin"
Hr. Maður: "Byssan þín er tilbúin!"
Tyrkinn: "Nú, ég var búinn að gleyma henni. Það var talað um að hringja í mig áður en framkvæmdir hæfust"
Hr. Maður: "En hún er búinn, lítur vel út, þú verður örugglega mjög ánægður með hana"
Tyrkinn: "Og hvað kostar svona?"
Hr. Maður: "Það stendur 20 þús á miðanum, en 13 þús hinu megin, ætli lægra verðið verði ekki að duga"
Tyrkinn: "Nú jæja, ætli maður sæki hana þá ekki"

Þannig er mál með vexti að tyrkinn fór með 2 haglabyssur í viðgerð í júlí s.l. Þegar hann var ekki búinn að heyra frá þeim í október, hringdi hann og þá var byssan tilbúin, en ekkert látið vita. Þá hafði tyrkinn látið bíða með aðra, vegna þess hve dýr viðgerðin var. Þegar hann sótti hins vegar hina, stakk byssusmiðurinn upp á því að hann gæti nú eflaust gert þetta fyrir minn, hann var nefnilega að fá tvo belga í læri hjá sér. Svo hringja þeir tveimur mánuðum seinna, búnir að gera allt án þess að semja um verð. Ef þetta hefði verið dýrara hefði fjandanum verið sleppt, en sem betur fer sleppur það vonandi.

Hvað á maður annars að gera við tvær haglabyssur og engar rjúpur?....



:: tyrkinn 12:34 [+] ::


Tyrkjabróðirinn á afmæli í dag
Þungarokkarinn og spéfuglinn hann tyrkjabróðir á afmæli í dag, til hamingju!


9.12.02

:: tyrkinn 15:50 [+] ::


Helgin...
Á þessari "afar listrænu" mynd má sjá tyrkjann og tyrkjafrúnna. Ætti að banna svona myndatökur...



:: tyrkinn 11:34 [+] ::


Helgarskýrsla Tyrkjans
Á föstudaginn var jólahlaðborð í vinnunni og var mikið um dýrðir. Drykkja hófst upp úr 17:00 og var mikill hugur í fólki strax frá upphafi. Borðhald hófst skömmu seinna og var ansi þétt setið þar og voru dæmi um að þegar einn þurfti á örninn þurftu margir að standa upp til að hleypa honum frá. Þá var nokkuð af skemmtiatriðum heimatilbúnum og voru fyrst sýnd viðtöl við starfsmenn þar sem búið var að skipta um spurningar, og voru því svör margra ansi fyndin. Þetta sama var þó gert fyrir 2 árum og voru nokkrir það vel á verði að passa sig að hafa alltaf spurninguna í öllum svörum, og sluppu þeir starfsmenn frá sýningu. Næst kom atriði frá tölvudeildinni, en þar höfðu menn safnað hormottu um skeið og voru margir komnir með ansi myndarlega mottu. Búið var að velja í dómnefnd og einar fjórar konur kusu "kynþokkafyllstu mottuna" og herramennirnir gengu um salinn eins og fegurðardrottningar. Einn herramaður stóð upp úr og var með eina þá flottustu mottu sem tyrkinn hefur augum litið, þétta og þykka sem minnti helst á alvöru "wifebeater" mottu eins og þær gerast bestar. Einhverra hluta vegna var hún ekki valin, sem voru mikil vonbrigði því tyrkinn mundi naga af sér aðra löppina fyrir slíkt prýði. Eftir alveg ágætan mat og töluvert marga drykki fór húshljómsveitin, sem núna er orðin nokkurra ára gömul, á svið og lék vel valin lög fyrir áhorfendur og fór hún á kostum. Eftir nokkra stund var tyrkinn kallaður á svið og var hið stórgóða lag "Dililah" flutt við mikinn fögnuð viðstaddra. Ástandið var orðið hálf vandræðalegt þegar tyrkjafrúin horfði upp á nærbuxnarigningu yfir höfði tyrkjans, en slíkar voru undirtektir áhorfenda. Um miðnætti voru rútuferðir á Astro þar sem poppstjörnurnar héldu uppi fjörinu, en þó í fjarveru Hrellunar, þar sem Hrellan fór í siglingu í Karabíska hafinu í boði brullaupsþáttarins Já, sveiattan. Upp úr 4 far svo haldið heim á leið eftir nær 12 tíma drykku.

Laugardagurinn kom furðulega vel út úr ævintýrinu, fyrir utan nokkrar mín þegar tyrkinn og tyrkjafrúin héldu í graðabæinn þar sem verið var að tendra tré og frænka tyrkjafrúarinnar var að syngja. Tyrkjarnir misstu reyndar af söngnum en fengu þess í stað að hlusta á tvo uber-hressa íslenska-bandaríska jólasveina gaula við hljómborðsleik, en ekki er hægt að mæla með því í þynnkunni. Afgangur helgarinn fór meira og minna í sjónvarpsgláp. Þó gerði tyrkinn heiðarlega tilraun til að klára heimaverkefni fyrir síðasta tímann í rímnatímunum, en það gekk ekki sem skyldi og verður að öllum líkindum bara að hafa það.


6.12.02

:: tyrkinn 13:59 [+] ::


Tyrkinn fer til læknis
Tyrkinn fór til læknis í gær, vegna krónísks kverkaskíts sem hefur verið honum til ama síðastliðin ár. Er tyrkinn var kallaður upp var doktorinn að fara yfir rímnabálk sem eldri maður var að fara yfir á ganginum. Umræddur doktor er frægari fyrir víndrykkju (eða vínsmökkun öllu heldur) en fyrir læknastörf og má sjá hann á föstudagsmorgnum í þættinum "Ísland í bítið" á stöð 2. Tyrkinn var búinn að búa sig undir hálskirtlatöku eftir áramót eftir sína persónulegu læknisfræðilegar kenningar, sem reyndust með öllu byggðar á misskilningi og þekkingarleysi. Eftir að doktorinn var búinn að troða ýmsum tólum í háls og nef tyrkjans og m.a. grípa í tunguna á kauða, vildi hann meina að hálskirtlarnir væru ekki orsökin að öllum líkindum (maður fær aldrei afdráttarlausar útskýringar frá læknum). Vissulega var einhver roði í hálsinum og nefi og ákvað læknirinn að skrifa upp á lyfseðil fyrir tyrkjann. Annars vegar voru þar einhverjar þurrkandi töflur sem eiga að draga úr viðbjóði í háls tyrkjans, og hins vegar eitthvert sterasprey sem tyrkinn á að úða í nefið á sér einu sinni á dag. Meðferðin hófst svo í gærkvöldi og er því töluvert í niðurstöðu, en spreyið skal taka í um 30 daga. Annars átti tyrkinn að hringja eða koma aftur ef þetta virkar ekki. Ef tekið er tillit til fyrri læknisheimsókna tyrkjans má búast við því að ýmislegt verði reynt áður en niðurstaða fæst. Reyndar er ekki ólíklegt að aldrei finnist lausn á þessu vandamáli, það er nokkurs konar "story of his life" fyrir tyrkjann þegar kemur að læknum.

Skemmst er frá því að segja þegar tyrkinn fór í berklapróf í barnaskóla. Þar voru einhverjum ofnæmislyfjum sprautað undir húð tyrkjans sem áttu að valda bólgu ef eitthvað bólaði á berklum. Þegar vika var liðin kom tyrkinn aftur og þá var 7 mm bólga á handlegg tyrkjans, sem akkurat virtist vera viðmiðunin með prófið. Til að prófa betur var tyrkinn sendur á spítala þar sem læknir hóf að sprauta undir húðina aftur, en í þetta skiptið einum 10 sprautum, og var tyrkjanum ekki skemmt. Þá þurfti að koma aftur eftir viku og voru þá 2-3 bólur sem allar voru um 7 mm. Til að toppa þetta allt saman komst læknirinn að þeirri niðurstöðu að tyrkinn væri ekki með berkla, en væri með ofnæmi fyrir prófunarlyfjunum. Dæmigert.

Önnur saga (fyrir þá sem enn eru að lesa) gerðist fyrir um 10 árum síðan þegar tyrkinn var búinn að hósta í marga mánuði og orðinn þreyttur á því. Þá var hann sendur í lungnaspeglun á borgarspítalann. Þar fékk hann kæruleysissprautu og látinn sitja á meðan áhrifin voru að "kikka inn". Það var alveg ágætt, þangað til tyrkinn var keyrður inn á stofu og honum sýndar græjurnar sem samanstóðu af stöng með lítilli myndavél á endanum og einhverjum vír sem stungið er í lungun til að taka sýni. Svo var græjunni smeykt niður nef tyrkjans og niður í lungu og horft á lungun "live" á sjónvarpsskjá. Þá þuldi læknirinn latínunöfn á öllum lungnapípum á leiðinni fyrir læknanema sem fylgdist með herlegheitunum. Að sjálfsögðu kom ekkert út úr þessum rannsóknum.

Síðast fór tyrkinn til læknis út af magaverkjum á morgnana og var látinn fara í alls kyns sýnatökur og látinn éta einhver taugalyf, og að sjálfsögðu kom ekkert út úr því. Ekki furða þótt sumir séu tregir til að leita til lækna...


5.12.02

:: tyrkinn 15:09 [+] ::


Geisp
Undafarin tvö kvöld hefur tyrkinn sofnað á sófanum um tíu leitið sem er ekki frá sögu færandi, nema fyrir það að það kemur ekki oft fyrir að tyrkinn sofni fyrir framan kassann. Ekki er vitað hvað veldur þessu, en tyrkinn er á leið til læknis á eftir og e.t.v. hefur hann einhver svör. Í gær var hins vegar umræða um svefn á sófum í vinnu tyrkjans og var þá lögð fram athyglisverð kenning; Í samböndum á aðeins annar aðilinn það til að sofna oft fyrir framan kassan. Þar ræddi tyrkinn við tvo menn sem báðir áttu þetta til, en konur þeirra ekki. Í tilviki tyrkjans er það tyrkjafrúin sem sofnar nokkur kvöld vikunnar í sófanum, en síðastliðin kvöld eru undantekning. Hvort eitthvað sé til í þessari kenningu er ekki gott að segja, en athyglisvert væri að rannsaka þetta eitthvað betur.

Nú fer að styttast í næsta aðalfund R.Í.K. en hann verður að venju föstudaginn 13. Búið er að panta borð en enn á eftir að útfæra daginn nánar, þótt nokkrar tillögur hafi komið upp. Allar líkur eru á að tyrkinn hefji um mánaðarlangt jólafrí sama dag, og má búast við góðum degi.

Geisp


4.12.02

:: tyrkinn 12:44 [+] ::


Ansi sjúkur "veiðileikur" sem Brenni sendi á tyrkjann



:: tyrkinn 11:29 [+] ::


Tyrkinn er 30% venjulegur, skv. venjulegskönnunar Dr. Gunna



:: tyrkinn 11:11 [+] ::


Jólahlaðborð
Tyrkjafrúin og vinkonur hennar skipulögðu jólahlaðborð fyrir skömmu og var mæting á veitingastaðinn Rauðará á laugardagskvöldið. Þar mættur tyrkirnir, Svenn hjónin, Hrellan, Halla og Gunni og loks mættu Ingalind ásamt Forstjóranum seinna, eftir matinn. Maturinn var svosem ekki merkilegur, ákaflega dæmigerður jólahlaðborðsmatur, alveg ágætur en ekki meira en það. Eigandinn er að erlendu bergi brotinn og fór mikinn í sölumennskunni og hringdi m.a. nokkrum sinnum í skipuleggjendur til að staðfesta komuna, og var ákaflega duglegur að hella Ákavíti í liðið og stóð sig vel. Eftir átuna var farið upp á koníaksstofuna svo hægt væri að hlaða salinn aftur. Þar var setið nokkra stund og drukkið og kjaftað þar til haldið var niður í bæ. Kíkt var inn á aðalstöðvar Skjás eins, Thorvaldsen, en þar var sem áður fullt og var tekið á það ráð að kíkja á svokallaðan rauðan bar, sem er fyrir ofan Einar Ben. Þegar átti hins vegar að fara panta brennivín, guggnuðu allir nema tyrkinn og tyrkjafrúin. Bryddað var upp á ýmsum afsökunum eins og prófum og þessháttar rugli, en sýnt þykir að megnið af þessu liði er algjörlega blóðlaust, og taki þeir til sín sem eiga skilið. Tyrkjarnir sátu hins vegar fram á nótt, drukku brennivín og ræddu málin. Tyrkjafrúin var ákaflega slöpp daginn eftir, en einhverra hluta slapp tyrkinn tiltölulega vel miðað við aðstæður.

Nú er greinilega runnin upp tíð hátíðasukksins. Næsta föstudag verður jólahlaðborð í vinnunni með öllu tilheyrandi og búist við atgangi nokkrum. Húshljómsveitin með Fritz Gerber í fararbroddi mun halda uppi stuðinu, og er búið að gefa það í skyn að allar líkur séu á að tyrkinn verði dreginn upp á svið til að taka hina margfrægu Tom Jones eftirhermu sína, sem alltaf er vafasamt. Einhvern veginn hefur alltaf láðst þó að spyrja tyrkjann að þessu, því tyrkinn er jú ekki mikið fyrir sviðið nema á 14. glasi af og til. Tom Jones grínið hófst fyrir nokkrum árum er tyrkinn var í H-skólanum og varð vinsælt að gaula á kaffibrennslunni og þótti stundum fyndið. Þá kom það fyrir að poppararnir voru að leika á árshátíð deildarinnar og hófu undir lokin að kalla á tyrkjann í söngkerfið fyrir fullu húsi af skólafólki. Þar sem tyrkinn var í ansi annarlegu ástandi lét hann draga sig upp og söng "It's not unusual" sennilega fyrir misjöfnum eyrum. Þetta þótti sumum fyndið og var þetta nokkrum sinnum endurtekið, m.a. á Astro og seinna á gamlárskvöld þar sem poppararnir léku fyrir dansi á Kaffi Reykjavík.


3.12.02

:: tyrkinn 16:59 [+] ::


Akureyrarferð
Tyrkinn skrapp norður á Agureyri ásamt tyrkjafrúnni. Tyrkjamóðirin var á leiðinni á Hofsós þannig að henni var skutlað þangað í leiðinni og því lengdist ferðin lítið eitt og var lending ekki á eyrinni fyrr en seint, og gripinn var borgari á Greifanum að sið innfæddra. Á laugardagskvöldið var ákveðið að lyfta sér ögn upp og var rölt á Kaffi Karólínu og þar snætt og drukkið. Ánægja var bæði með forréttinn, risahörpuskel í villisveppasósu, svo og aðalréttina sem voru heiðargæs og svartfugl í súkkulaðisósu (tyrkinn komst aldrei að því hvernig þeir skýrðu sósuna súkkulaðisósu, en ekkert slíkt bragð var að finna). Þá var setið áfram og brennivín teygað fram eftir. Þá ákváðu þau að skella sér á ball í Sjallanum. Þegar þangað var komið var töluverð ölvun í tyrkjunum og var útlit fyrir ógöngur þegar gengið var inn á þennan stórkostlega stað. Þar inni var hlómsveitin Sóldögg á sviðinu og kváðust þeir vera að spila á sínu seinasta balli, og var tyrkinn ekki frá því að það væri öllum fyrir bestu. Eftir nokkur glös og ófá ölvunarspor var rölt aftur upp í íbúð þá sem tyrkjarnir voru með á leigu ekki svo langt frá. Ratvísin var þó ekki upp á marga fiska og eftir óumbeðna útsýnisferð um brekkur bæjarins var loks komið að húsi. Ofan á þynnkuna, sem var nokkur, lagðist því harðsperrudjöfull á kálfa ferðamannana daginn eftir, og er ekki ólíklegt að útsýnisferðin hafi verið eitthvað lengri en hún er í minnum tyrkjanna. Síðar var farið í dagsferð í Hrísey, en þangað hafði tyrkinn aldrei áður komið, en tyrkjafrúin er ættuð þaðan og hafði komið þangað fyrir all mörgum árum með fjölskyldu sinni. Þetta var á mánudagur undir lok Nóvember og var ekki laust við að innfæddir rækju upp stór augu þegar tveir túristar lögðu för sína þangað. En innfæddir voru ákaflega vinalegir, ólíkt fjandskap sem mætir fólki víðast hvar annars staðar. Er tyrkjarnir spurðu til vegar endaði það með því að þeim var boðin bílferð og þau ekin umhvefis bæinn og þeim sýndir allir helstu staðir, sem þó eru ekki margir. Þegar allt var skoðað (tekur ekki langan tíma á lítilli eyju) var tíminn myrtur þar til þau gátu fengið kvöldverð á veitingastaðnum Brekkunni þar nyrðra. Konan er rekur staðinn bauð tyrkjunum inn, en hún hafði spurt þegar borðið var pantað hvað ætlunin var að borða, sennilega til að ná í tvær steikur á búgarðinn. Tyrkirnir voru eflaust einu gestirnir það kvöldið, og fengu eina þá bestu nautasteik sem tyrkinn hefur nokkurn tíman borðað. Á þriðjudagsmorgun voru tyrkirnir vaktir með þrumuhljóðum miklum og var eins og landshlutinn væri loks að sökkva í sæ, en svo reyndist ekki vera. Tvær F14 Tomcat vélar hringsóluðu kringum bæinn og var eins og þær væru að æfa aðflug að flugvellinum á Akureyri því þetta gekk á fram eftir degi með látum. Þá var haldið heim á leið, en ferðin styttist vegna jarðarfarar Tyrkjaföðurbróðursins.

Karólína: Gott
Sóldögg: Slappt
Nautasteik á Brekkunni (Hrísey): Schnilld



2.12.02

:: tyrkinn 12:08 [+] ::


Smá glens frá Gyðninu:

We all know that it isn't polite to use the "F" word! There are only ten times in history the "F" word has been acceptable for use:

10. "What the f___ was that?" - Mayor Of Hiroshima, 1945

9. "Look at all them f___ing Indians!" - Custer, 1877

8. "Any f___ing idiot could understand that." - Einstein, 1938

7. "It does so f___ing look like her!" - Picasso, 1926

6. "How the f___ did you work that out?" - Pythagorus, 126 BC

5. "You want WHAT on the f___ing ceiling?" - Michelangelo, 1566

4. "Where the f___ are we?" - Amelia Earhart, 1937

3. "Scattered f___ing showers....My ass!" - Noah, 4314 BC

2. "Aw c'mon. Who the f___'s going to find out?"- Bill Clinton, 1999

And number 1 . . .

1. "Shit, I didn't think they'd get this f___ing mad." - Osama bin Laden, 2001



:: tyrkinn 11:23 [+] ::


Tyrkinn er mættur á svæðið...


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra