|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
31.1.03
Helgin Útlit er fyrir tiltölulega rólega helgi eftir óhófsemi síðastliðins föstudags. Tyrkjafrúin er að fara í "saumaklúbb" í kvöld og tyrkinn mun líklega hýsa poppstjörnurnar sem verða illa úti við klúbbsamkunduna, a.m.k. áður en þeir fara að vinna. Annars er varla hægt að plana mikið, sbr síðustu helgi þegar ekkert var að fara að gerast og endaði eins og það endaði (ósögð er sagan af því þegar tyrkinn lá á bakinu við hliðina á sviðinu á Gauknum með bjór í annarri og símann í hinni eftir óútskýranlegt hlaup yfir sviðið). Lengi hefur staðið til að taka fjármál heimilisins í gegn og vonandi verður það klárað um helgina. Einnig á eftir að skipa einhverjum bókum milli erfingja tyrkjaömmunnar sem mætti fara að klára. Tyrkjafrúin kláraði Tómstundaherbergi húsbóndans síðustu helgi, svo nú er það komið af "túdú" listanum sem virðist aldrei ætla að taka endi. Nú eða bara spila eða glápa á kassann eins og svo oft áður...
Drykkjuleikur dagsins: "Gefa einn - Drekka einn"
Til þarf:Spilastokkur, fólk, brennivín eða bjór Ölvun:Mikil Staður:Hvar sem er Flækjustig:Lítið
Þessi leikur er mjög einfaldur (þrátt fyrir nokkuð ýtarlegar leiðbeiningar) og áhrifaríkur. Í upphafi skal ákveða hvað "einn drykkur" skuli vera mikið, en 1 gúlsopi af bjór ætti að vera hæfilegt.
Gestgjafi byrjar að gefa. Hann stokkar spilin og gefur 3 spil á hvern þáttakanda sem öll snúa upp. Þá spyr sá sem gefur þann sem er honum á hægri hönd hvort hann vilji byrja á að drekka eða "gefa drykki". Segjum sem svo að hann velji að byrja á að "gefa drykki". Þá dregur sá sem gefur efsta spilið í bunkanum og snýr því við (í annan bunka við hliðina) og segir "Gefa einn". Þá hafa allir þeir sem hafa samsvarandi spil á "hendi" rétt á að gefa hverjum sem er einn drykk (eða öllu heldur láta þann drekka sitt eigið vín eða sameiginlegt vín), og af ef viðkomandi er með 2 eins spil og eru efst í bunkanum má hann af sjálfsögðu láta 2 drekka eða þann sama drekka tvisvar.
Þegar þessu er lokið heldur sá sem gefur áfram og dregur annað spil úr bunkanum og segir "Gefa tvo". Þá gerist það sama, nema núna eru tveir drykkir á hvert spil sem leikmaður er með á hendi. Þá er spil dregið í þriðja skiptið og sagt "Gefa þrjá". Þegar það er búið er 4 spilið dregið og þá er sagt "Drekka einn" og þá þurfa þeir sem hafa samsvarandi spil að drekka einn drykk fyrir hvert samsvarandi spil sem þeir hafa á hendi. Svo gengur röðin svona áfram (Gefa einn, G2, G3, Drekka einn, D2, D3 (ef byrjað er á að "gefa drykki")) í hring þar til spilastokkurinn er búinn og þá eru spilin stokkuð, og næsti maður í röðinni gefur. Þegar leikmenn sjá ekki lengur á spilin skal leik hætt. Góðar stundir. [Senda spurningu á tyrkjann]
Dæmi:
Gunnar, Sveinn, Guðrún og Rúna spila:
Spil á hendi: Gunnar: 4,5,A Sveinn: 2,7,7 Guðrún: 2,D,K Rúna:6,G,D
Sveinn velur að byrjað sé á því að "Drekka". Gunnar dregur upp 7, Sveinn þarf þá að drekka 2x1 drykk (tvo góða gúlsopa af öli). Þá er dreginn tvistur og þá drekka bæði Sveinn og Guðrún. O.s.frv. þangað til komið er að því að "Gefa 3". Þá er aftur dregin 7 og Sveinn fær að "gefa" 3x2=6 drykki til eins (sem þarf þá að drekka 6 sopa) eða tveggja (t.d. Guðrún drekka 3 og Rúna 3). Næst verður Sveinn "dílerinn" og spyr þá Guðrúnu hvort hún vilji byrja á að drekka eða "gefa drykki".
30.1.03
Upprifjun
Þar sem drykkjuleikur dagsins mun verða að reglulegum atburði, finnst tyrkjanum rétt að birta hér lista yfir þá leiki sem eru þegar komnir. Einnig er sú nýbreyttni hér að leikirnir eru komnir á lista á vinstri spássíunni sem verður uppfærður reglulega. Njótið vel...
1. Áblástur 2. Sex glös 3. Tyrkjaleikurinn/Meyer 4. Einn-Tveir-Þrír
Drykkjuleikur dagsins - 1-2-3
Það er orðið ansi langt síðan hér hafa verið kenndir drykkjuleikir, og kominn tími til að bæta úr því. Til stendur að hér verði eitt stk. drykkuleikur á hverjum virkum degi, og ætti að vera hægt að hafa þessa síðu sem hrók alls fagnaðar í samkundum þegar fólk vantar ástæðu til að drekka hraðar og meira en ætlast er til af þeim. Leikur dagsins er ákaflega einfaldur (ágætt að byrja smátt) og ætti hann ekki að vefjast fyrir neinum. Nafn hans er "1-2-3" og allt sem til þarf er einn teningur, og skal hann spilaður á öldurhúsum. Tengingur gengur réttsælis á milli fólks sem kastar hvert á eftir öðru. Sá fyrsti sem fær 6 í kastinu velur einhvern drykk af barnum. Sá næsti sem fær 6 fær drykkinn sem sá fyrsti valdi. Sá þriðji sem kastar sexu borgar fyrir drykkinn. Svo er æskilegt að fólk byrji upp á nýtt. Góðar stundir.
29.1.03
Þorrablót í súginn Dönsk yfirvöld eru búin að vísa frá undanþágubeinum frá íslendingafélögum þar ytra varðandi innflutninga á þorramat (sjá mbl.is). Að sögn tyrkjamágsins sem dvelur við nám í Álaborg, verða í staðinn snædd dönsk grísaeystu, tungur og fasanaaugu...
Kenning dagsins "Tæknimenn á RÚV eru lélegustu tæknimenn í heimi" Hvar annars staðar fer annar hver fréttaþáttur í rugl? Ágætis dæmi eru líka útsendingar frá HM í handbolta, Portúgalir eru reyndar alveg út á þekju líka, en útsendingarnar frá RÚV eru meira og minna í rugli líka.
27.1.03
Extra man on the pitch! (ansi fyndin auglýsing frá Nike)
Tyrkinn vill benda á góðar skrýtlur á síðu Grettis, haha fyndnar
Dauðadrykkja (Helgarskýrslan)
Á föstudaginn var boðið upp á bjór og Gammel Dansk á fundi í vinnu tyrkjans. Mikið var búið að tala um hversu lítið hefði verið um drykkju undanfarna mánuði, og var það upphafið að endanum. Einir fimm svolar (þ.á.m. tyrkinn) sáu þá um að klára afganginn af veitingunum. Þá var haldið niður í bæ og var snætt á Apótekinu og ríflega tekið á drykkjunni. Eftir nokkra stund þar var verulega farið að sjá á fundarmönnum, og þó mis mikið. Tyrkinn fékk sér þann besta saltfisk sem hann hefur á ævinni smakkað á Apótekinu og ætti hvert mannsbarn að smakka þá schnilld. Eftir matinn er allt meira og minna í þoku í huga tyrkjans, sem ætti að vera ágætis mælikvarði á ölvunarstigið. Sniðugari menn fóru þá að stinga af heim til sín, en tyrkinn vatt sér á Gaukinn þar sem poppstjörnurnar voru að spila. Þar var tyrkinn við drykkju þar til staðnum var lokað og fékk hann far heim með poppstjörnunum. Þegar tyrkinn kom heim greip hann ógurlegt hikstakast sem ómögulegt var að losa sig við, en það gilti einu tyrkinn sofnaði um leið og hausinn var nokkurn veginn kominn yfir koddann. Tyrkjafrúin hló að aðförum tyrkjans en hætti að vera skemmt þegar hún var búin að reyna að sofna í eina 2 tíma eftir að tyrkinn lét sjá sig, en þessa 2 tíma hraut hann eins og herforingi og hikstaði ofan í drunurnar vægðarlaust í svefni og endaði með því að þegar eyrnatapparnir voru ekki að standa sig fór hún á sófann. Kvöldið eftir fóru hlutir að koma í ljós. Til dæmis fór tyrkinn að sakna jakka síns með veski og síma og hafði ekki hugmynd um hvar væru niðurkomnir. Eftir að hafa hringt í aðra poppstjörnuna voru líkur leiddar að því að jakkinn hefði orðið eftir í hljómsveitarherberginu á Gauknum og var hringt þangað. Til allrar hamingju var hann þar með öllu innihaldi. Í morgun fóru svo enn fleiri púsl að bætast í myndina þegar rætt var við vinnufélaga. Þá hafði tyrkinn t.d. verið að spjalla við fólk sem virtist hafa lent í svartnætti drykkjunnar, svo og verið að drekka ýmislegt sem hann man ekki eftir að hafa gert. Einn drykkurinn mun hafa verið "Long Island Iced tea" sem gæti verið orsökin af "myrkrinu" þetta kvöldið. Svo kom í ljós að tyrkinn hefði verið að syngja á Apótekinu sem varla telst æskilegt á slíkum stað. Kannski væri ráð að heyra í þeim poppstjörnum aftur og komast að því hvað gerðist á Gauknum það kvöld...
Tyrkinn - blindfullur, og Þorrablótin ekki einu sinni byrjuð...
Gagnatap Á laugardaginn var harði diskur tyrkjans í vinnunni straujaður og nokkur Gíg af tónlist fóru þar í súginn. Hins vegar var XP sett upp fyrir vikið. Mínútu þögn fyrir það...
24.1.03
Tyrkjafrúarbróðirinn sendi þetta: Í Kryddsíld Stöðvar 2 deildu þeir um mannkosti borgarstjórans brottrekna, Ingibjargar Sólrúnar, og meintan skort hvor annars á mannkostum:
Davíð: Fíflið þitt, ég óttast ei Ingibjörgu þessa. Hún er klikkað kellugrey og kvennalistaskessa.
Össur: Mikið ertu ofsahræddur Ingibjörgu við þína að sýna sár og mæddur subbulegu hlið.
Davíð: Þú ert dóni, þú ert perri þú hefur sett X hjá R-i og eflaust kosið asnann Sverri enda ertu eitthvað verri!
Össur: Veldur tjóni víst á Fróni vondur kóni leiður Erkiflónið Davíð dóni drýldinn trjónir reiður.
Davíð: Pabbi þinn er sóða-svín og sjálfur ertu kommi mamma þín er brussu-brýn og bróðir þinn er... geimvera.
Össur: Iðkar dyggðir djöfulsins Díkóds greiðir tap Stelur frá höfundi stafrófsins stundar dónaskap.
Davíð: Össur er auli og algert hræ þó bjáninn bauli ég bara hlæ!
Össur: Ömurlegi íhalds-skúnkur ógeðslegi fjandi. Fúllyndari fituhlunkur finnst ei hér á landi.
Davíð: Einn má finna fúllyndari fituhlunk en mig daunverri og dramblátari; drullusokkinn þig!
Össur: Ruddalegi róni ropa máttu hæst. Dónalegi dóni, dramb er falli næst.
Íslendingabók Líkt og GummiJóh er tyrkinn búinn að fá skráningu í hina svokölluðu Íslendingabók sem er mikið milli tannana á fólki þessa dagana. Að sjálfsögðu var byrjað á því að athuga hvort tyrkinn og tyrkjafrúin væru nokkuð óþægilega mikið skyld, en fyrir er það óþægilegt hvað margir halda að þau séu systkyni. Sem betur fer er ekki svo, en af sjálfsögðu má rekja þau saman aftur um nokkra ættliði eins og alla aðra íslendinga. Þá var farið í það að rekja vini og vinnufélaga og enga náskylda ættingja var að finna þar. Gott að hafa þetta á hreinu. Hins vegar er ekki boðið upp á það að rekja saman tvo aðra einstaklinga en mann sjálfan, og því getur maður ekki komist að því hvort vinir og kunningjar séu að "deita" náfrænkur eða náfrændur sína. Athyglisvert er að skoða nafnagiftir forfeðra sína og hversu duglegt þetta fólk var við að fjölga sér. Tyrkinn rakk meðal annars augun í að ein hjón áttu nokkrar dætur (og syni líka reyndar) en þrjár þeirra hétu sama nafninu, ein var með viðurnefnið "yngri", ein með viðurnefnið "eldri" en sú yngsta var án viðurnefna. Önnur hjón áttu 2 syni og 2 dætur og synirnir hétu sama nafni og einnig dæturnar, ekki mikill frumleiki þar á ferð.
Annars er fátt leiðinlegra en verðlaunaathafnir, hvað þá íslenskar slíkar og því horfði tyrkinn frekar á piparsveininn á Skjá1 en Íslensku tónlistarverðlaunin.
Farmers day...
Í dag segja þeir (gárungarnir) að sé bóndadagur. Tyrkinn fékk ekki morgunmat í rúmmið og var vakinn með símanum....
Hér að neðan má svo finna kvennaníð (gamalt og gott):
Hversu marga karlmenn þarf til að opna bjórdós? Engan, bjórinn á alltaf að vera opinn þegar hún kemur með hann.
Af hverju reynir maður ekki við konuna fyrir framan sig í biðröðinni á féló? Kona sem er í biðröð á féló, getur aldrei haldið þér uppi.
Af hverju hafa konur nettari fætur en karlmenn? Þetta er eitt af grunnatriðum þróunarinnar, sem gerir það að verkum að þær geta staðið nær eldhúsvaskinum.
Hvernig veistu hvenær kona er að fara að segja eitthvað gáfulegt? Hún byrjar setninguna á "Vitur MAÐUR sagði eitt sinn við mig..."
Hvernig gerir þú við kvenmannsúr? Þú gerir ekki við kvenmannsúr, það er klukka á eldavélinni
Af hverju prumpa karlmenn frekar en konur? Konur geta ekki þagað nógu lengi til að byggja upp nægilegan þrýsting.
Ef hundurinn stendur bakdyrameginn og geltir, en konan við aðaldyrnar og kallar, hvoru hleypir þú fyrst inn? Hundinum að sjálfsögðu, hann þagnar um leið og hann kemur inn.
Hvað kallarðu konu sem hefur misst 95% af gáfum sínum? Fráskilda!
Vísindin hafa fundið fæðutegund sem dregur úr kynlöngun kvenna um heil 90% Fæðan er Brúðarterta.
Í upphafi skapaði Guð heiminn og hvíldist. Þá skapaði Guð manninn og hvíldist. Þá skapaði Guð konuna. Síðan þá hefur hvorki Guð eða maðurinn getað hvílst.
Af hverju deyja menn á undan konunum sínum? Þá einfaldlega langar til þess.
Róni gekk upp að konu á Laugaveginum og sagði: "Ég hef ekki borðað í fjóra daga!" Konan horfði á hann og sagði: "Ég vildi að ég hefði þennan viljastyrk!".
Sonurinn: Er það satt pabbi, að í sumum ríkjum Afríku kynnist eiginmaðurinn ekki eiginkonunni, fyrr en hann giftist henni?" Faðirinn: Það gerist í öllum löndum, sonur sæll".
Karlmaður auglýsti í einkamáladálkinum: "Kona óskast". Daginn eftir fékk hann tugi bréfa, sem öllu voru á sama veg: "Þú getur fengið mína".
Besta leiðin til að muna alltaf eftir afmælisdegi konunnar; er að gleyma honum einu sinni.
23.1.03
Furðulegar sögur í boði tyrkjafrúarbróðursins
When his 38-caliber revolver failed to fire at its intended victim during a holdup in Long Beach, California, would be robber James Elliot did something that can only inspire wonder: He peered down the barrel and tried the trigger again. This time it worked.
- The chef at a hotel in Switzerland lost a finger in a meat cutting machine and, after a little shopping around, submitted a claim to his company. The company, suspecting negligence, sent out one of its men to have a look for himself. He tried the machine out and lost a finger. The chef's claim was approved. -
A man shoveled snow for an hour to clear space for his car during a blizzard in Chicago. He returned with his vehicle only to find a woman had taken the space. Understandably, he shot her. Women ... go figure...
-
After stopping for drinks at an illegal bar, a Zimbabwean bus driver found that the 20 mental patients he was supposed to be transporting from Harare to Bulawayo had escaped. Not wanting to admit his incompetence, the driver went to a nearby bus-stop and offered everyone waiting there a free ride. He then delivered the passengers to the mental hospital, telling the staff that the patients were very excitable and prone to bizarre fantasies. The deception wasn't discovered for 3 days. -
An American teenager was in the hospital yesterday recovering from serious head wounds received from an oncoming train. When asked how he the received injuries, the lad told police that he was simply trying to see how close he could get his head to a moving train before he was hit.
-
A mother took her daughter to the doctor and asked him to give her an examination to determine the cause of her daughters swollen abdomen. It only took the doctor about 2 seconds to say "Your daughter is pregnant." The mother turned red with fury and she argued with the doctor that her daughter was a good girl and would never compromise her reputation by having sex with a boy. The doctor faced the window and silently watched the horizon. The mother became enraged and screamed, "Quit looking out the window! Aren't you paying attention to me?" "Yes, of course I am paying attention ma'am. It's just that the last time this happened, a star appeared in the East, and three wise men came. And I was hoping that they would show up again. :-)
Sumarferð tyrkjanna
Tyrkjarnir eru búnir að festa kaup á farseðlum til úglanda í sumar. Ágætis verð náðust á pakkan og var allt bókað á netinu, ekkert símtal né heimsókn fór í þetta. Ferðin til og frá Baunalandi var bókuð í gegnum Iceland Express og kostaði sá pakki um samtals 40 þús fyrir tyrkjann og tyrkjafrúnna báðar leiðir með öllu, sem verður að teljast ágætt. Svo var ferð til Kýpur bókuð á danskri ferðaskrifstofu á netinu, en eins og margir vita var tyrkjafrúin við nám í baunalandi í ein 5 ár og kunni því skil á þessu torkennilega tungumáli. Nú, planið er nokkurn veginn svona: (sumar dagsetningar eru á reiki ennþá)
Keflavík-Köben 28. maí Köben - Kongstrup 28. maí - Frændfólk tyrkjafrúarinnar býr þar Kongstrup - Ferming 1. júní - Frænka tyrkjafrúarinnar fermist Kongstrup - Odense 3. júní - Vinir tyrkjafrúarinnar búa margir hverjir þar Odense - Köben 6. júní - Tónskáldið og spúsa hans búa þar Köben - Kýpur 9. júní - Vika í sól í grennd við Tyrkland Kýpur - Köben 17. júní Köben - Álaborg 17. júní - Tyrkjasystir og fjölskylda hennar búa þar Álaborg - Köben 21. júní - Þar verða tyrkjafrænkurnar með í för Köben - Keflavík 22. júní - Tyrkjarnir og tyrkjafrænkurnar halda heim
22.1.03
Níðvísa Þessi verður að teljast klassík, en fyrrum samstarfsfélagi tyrkjans fór með þessa við eitthvert tækifærið.
Sá er í víti sem þig græði Sá á líti bænirnar Slíti úr þér augun bæði Skíti svo í tóftirnar.
Fyrir bragfræðiáhugamenn er tyrkinn með þá tilgátu að vísan hafi einhvern tíman verið svona:
Sá er í víti sem þig græði sá á líti bænirnar Úr þér slíti augun bæði Í svo skíti tóftirnar
Góðar stundir
Afmælisgjöfin í ár!
Einn ágætur maður er þekkir tyrkjann vill helst fá pipar á allan sinn mat. Gerðist meira að segja svo kræfur að fullyrða að allt væri betra með pipar, nema kaffi, sem sennilega hefur þó verið sagt í gríni. Í hádeginu þegar fólk var að pipra súpurnar sínar sagði hann tyrkjanum frá því að vinur hans ætti einn kostagrip, rafmagnspiparkvörn með ljósi, og væri gripurinn alltaf dreginn fram þegar kæmu gestir og er víst yfirleitt mikið piprað við þau tækifæri. Þegar maður brúkar slíkan grip lýsir hann upp "skotmarkið" um leið og mótorinn malar piparinn mélinu smærra. Þetta finnst tyrkjanum brilliant vara og óskar hér með formlega eftir svona í afmælisgjöf. Á leit sinni á netinu fann tyrkinn ennfremur sönnun á tilvist gripsins og má finna hana hér. Það sem kom meira á óvar var sú staðreynd að til eru fleiri en ein tegund af þessum gripum sem bæði eru með rafmagnskvörn og ljósi.
21.1.03
Örban Leggjends
Tyrkinn horfði á "scream" myndina Urban Legends um helgina og varð þá hugsað til þessa hugtaks (Urban Legends) sem eru kallaðar nútíma þjóðsögur hér á landi. Það er að segja sögur sem ganga manna á milli og eru bull, enda þótt fólk trúi því að það sé að dreifa sannleikanum í sinni tærustu mynd. Í þessari mynd, sem er reyndar ekki upp á marga fiska, voru nefndar nokkrar slíkar sem vinsælar voru í bandaríkjunum og kannaðist tyrkinn við einhverjar þeirra. Minnisstæðust er sennilega sagan um einhver gengi í bandaríkjunum sem stunduðu það að keyra ljóslaus og þegar einhver blikkaði bíl glæponanna snéru þeir við, eltu bílstjórann og tóku hann í karphúsið all verulega. Poppstjarnan sagði tyrkjanum þetta fyrir löngu síðan er hann kom frá St. Luis þar sem hann var skiptinemi og keypti tyrkinn söguna alveg án þess að efast um uppruna hennar. Einnig er sagan um konuna sem ætlaði að þurka köttinn sinn (eða var það hundur) og stakk honum í örbylgjuofninn þar til hann sprakk, kvikmyndagerðarmennirnir vildu meina að þetta væri bull líka. Fyrir rúmu ári síðan kom út íslensk bók um þessar sögur þar sem þær voru sagðar og reynt að rekja hvort eitthvað væri til í þeim, eða hvernig þær komu til. Því miður man tyrkinn ekki hvað hún heitir, og hefur hann ekki lesið hana, en e.t.v. væri ekkert vitlaust að ná sér í eintak af þessari bók.
Tyrkjafrúin vildi koma því á framfæri að: "bókin heitir 'Kötturinn í örbylgjuofninum' og er eftir einhverja mannfræðikvensu"
www.tyrkinn.com Eftir þrautarlausa vinnu tyrkjans og samstarfsaðila, tókst að ná samningum um kaup á veffanginu www.tyrkinn.com og er það komið í gagnið. "Margir" hafa sennilega rekið sig á það að gamla veffangið hefur ekki virkað undanfarna daga og biðst starfsfólk tyrkjans afsökunar á því. Til stendur að gera gagngerar breytingar á vefnum og má búast við nýju útliti innan skamms. Auk þess má búast við breytingum á innihaldi vefjarins og eru einnig hugmyndir um fasta liði ef áhugi reynist fyrir því.
Tyrkinn vill þakka Simbanum og Rocco fyrir aðstoð og hýsingu.
Nú má semsagt nálgast Raus Tyrkjans hér ( http://www.tyrkinn.com eða http://tyrkinn.com )
Overkill
Hvað á 55-15 að þýða, pant ekki vera handboltaáhugamaður í Ástralíu.....
16.1.03
...og þá er það ákveðið
Tyrkinn er búinn að bóka ferð út til danmerkur 28. maí til 22. júní.
Skrýtla í boði Eddans
Gamall maður bjó einn í Þykkvabænum. Hann langaði til þess að stinga upp kartöflugarðinn sinn, en það var mikil erfiðisvinna. Bubbi sonur hans, var sá eini sem hann hafði getað fengið til að hjálpa sér. En Bubbi var lokaður inni á Hrauninu.
Gamli skrifaði honum bréf og sagði honum frá vandræðum sínum:
Elsku Bubbi minn,
Æ, mér líður hálf-illa, því það lítur út fyrir að ég geti ekki sett neinar kartöflur niður í garðinn þetta árið. Ég er bara að verða of gamall til þess að vera að stinga upp beðin. Ef þú værir hérna, ætti ég ekki í neinum vandræðum, því ég veit að þú mundir stinga upp beðin fyrir mig. Kær kveðja til þín, elsku sonur Pabbi
Eftir örfáa daga, fékk hann bréf frá syni sínum :
Elsku Pabbi Í GUÐANNA BÆNUM, ekki stinga upp garðinn ! Ég gróf ránsfenginn og byssurnar þar ! Þinn Bubbi
Í birtingu morguninn eftir komu hópar lögregluþjóna frá embætti Ríkislögreglustjóra og Selfosslögreglunni og umbyltu öllum beðunum, en
fundu hvorki þýfi né byssur. Þeir báðu gamla manninn afsökunar og hurfu á braut.
Sama daginn fékk hann annað bréf frá syninum :
Elsku pabbi Drífðu nú í því að setja niður kartöflurnar. Við núverandi aðstæður get ég ekki gert betur. Þinn elskandi sonur Bubbi
Brynja ég elska þig
Ja sei sei
Tyrkjarnir eru þegar farnir að huga að sumarfríi. Stefnir nú allt í að stigið verði á erlenda grundu þetta sumarið og að öllum líkindum verða Danmörk og Korfú fyrir valinu. Enn er verið að vinna að samningum en búist er við brottför í lok maí og að flug til grísku eyjunnar verði keypt á danskri netsíðu. Í Danmörku er m.a. ferming á dagskránni, svo og heimsóknir til vina og vandamanna vítt og breytt um baunaland.
13.1.03
Helgarskýrslan
Eftir fyrsta vinnudaginn í mánuð fór tyrkinn hálf vankaður heim á föstudaginn, með viðkomu í Sælkerabúðinni við hliðina á Nings. Planið var að elda tælenskan mat eftir uppskrift frá Fritz Gerber sem hann sagði ansi góða. Fljótlega eftir heimkomu var ráðist í málið og úr varð ágætis fjall af tælensku góðgæti. Eftir máltíðina var ekki mikið loft í tyrkjanum og varð sófinn áfangastaður kvöldsins. Á laugardaginn ákváðu tyrkirnir að draga fram humar sem tyrkjafrúin hafði keypt, en hvorugt þeirra kunni að elda herlegheitin. Var því brugðið á það ráð að bjóða Svenn hjónunum í mat og láta frú Svenn um verkstjórn á þeirri eldamennsku. Þau mættu glöð í bragði og fengu viðstaddir sér ágætis Faustino sjampó og hvítvín seinna meir. Maturinn var góður, humarinn steiktur á pönnu með chilli og brauð og salat með, stórgott. Frú Svenn bauð svo upp á sjókulátu köku í eftirrétt. Svo var eitthvað setið við skál, eða þangað til poppstjarnan þurfti að fara að spila. Þá var tyrkinn kominn aðeins í það, en tyrkjafrúin alveg búin á því. Því var brugðið á það ráð að kíkja á drykkjumanninn sem var í fimmtugsafmæli móður sinnar og var þar setið ásamt yngra liðinu úr afmælinu fram á nótt. Ofsaþreyta gerði loks vara við sig í gær og var slappað meira og minna af það kvöldið, og glápt á I am Sam.
Fyrir áhugasama, Tai kjúlli eftir uppskrift Fritz Gerbers; 1 dós græn karrísósa (Tai choice) 1 dós rauð karrísósa (Tai choice) 1 dós (lítil) kókosmjólk (Tai choice) kjúklingabringur grænmeti að eigin vali (Tyrkinn notaði bambusræmur, míní-maís, brokkolí, sveppi, baunaspírur og ananas sem kom vel út)
Hella innihaldi dósanna í pott og hita, steikja kjúllann á wok pönnu. Henda þá grænmetinu á og steikja. Loks er sósunni helt yfir allt draslið og látið malla. Soldið spæsí og gott.
10.1.03
Árið 2002
Nú árið er liðið og þá er hebbð að horfa yfir farinn veg og stilla þessu upp á hefðbundinn hátt, eftir því sem minnið leyfir:
Topp 3 - Myndir ársins 1. Lord of the Rings : The two towers 2. Black Hawk Down 3. Minority Report
Í heildinna var ekki mikið af stórverkum á þessu sviði yfir árið að mati tyrkjans
Topp 5 - Síður ársins 1. Baggalútur.is 2. Grettir.net 3. Dr. Gunni 4. mbl.is 5. Tilveran
Topp 3 - Íslenskar plötur 1. Sigurrós - () 2. Apparat Organ Quartet - Apparat Organ Quartet 3. Megas - Megas (endurútgefin)
Fár ársins Ron Jeremy væðing landans með öllu tilheyrandi
Sjónvarpsþættir ársins 1. Popppunktur 2. 70 mín 3. Af fingrum fram 4. Gnarrenburg 5. Viltu vinna milljón
Topp 3 - Tónleikar ársins: 1. Godspeed You Black Emperor í óperunni í mars 2. Hrafnagaldur óðins 3. Frumflutningur "Dagavillt" verks tónskáldsins við ljóð tyrkjans
Glaðningur ársins Afmælisgjöf tyrkjafrúarinnar, Spielstation 2
Ráðgáta ársins Örlög Herkúlesar er hann hvarf í nokkra mánuði af yfirborði jarðar
Vesen ársins Íbúðarsala á tyrkjaslotinu og kaup á tyrkjalindinni með öllu tilheyrandi
Uppákoma ársins Rímnahátíð á Snæfjallaströnd
Vonbrigði ársins Þessum vafasama titli skipta eftirfarandi "hlutir" á milli sín: 1. Star Wars - Episode 2 - The attack of the clones 2. Die another day
Hryðjuverk ársins 1. Skemmdarverk á Albatrossinum á Hörpugötunni 2. Þjófnaður glæpamanna á öllum perum í útijólaseríu tyrkjalindarinnar 3. Innbrot glæpamanna í Albatrossinn fyrir utan tyrkjalindina
Þynnka ársins Ofurþynnkan eftir rímnahátíðina sem orsakaðist í gjöreyðingu dínu í tjaldi tyrkjans
7.1.03
Hinn staðlaði sólarhringur Þeir segja (gárungarnir) að hægt sé að flokka fólk í tvo hópa, svokallaðar A týpur og B týpur, eftir því hvort það kunni betur við sig á morgnana eða á kvöldin. Tyrkinn er svokölluð B manneskja og kann best við sig á kvöldin, og er þeim mun súrari á morgnana. Nú er tyrkinn búinn að vera í fríi síðan 13. des s.l. og mun mæta aftur til vinnu á föstudaginn. Strax þegar fríið byrjaði hófst aðlögun að þessum B sólarhring tyrkjans sem er frá 12-14 á daginn til 5-7 á næturnar og þannig er sólahringur tyrkjans búinn að vera meira og minna síðan. Tyrkjafrúin er hins vegar þessi A týpa og vaknar alltaf á undan tyrkjanum og er nánast alltaf farin að sofa á undan tyrkjanum. Nú er hún búin að vera að vinna meira og minna yfir frí tyrkjans og hefur því venjan verið að tyrkinn sofnar ca. 1-2 tímum áður en tyrkjafrúin vaknar, en svona er þetta alltaf þegar tyrkinn fer í frí. Tyrkjasólarhringurinn stangast töluvert á við hinn staðlaða sólarhring þar sem flestir vinna á morgnana og því fór hann að hafa áhyggur af því að byrja vinna aftur í gær. Ein hugmyndin var að reyna að fara annan hálfhring fram á við, það er að reyna að vaka vel fram á næsta dag í stað þess að fara að sofa um morguninn, en hin hugmyndin fólst í því að reyna að sofna á "eðlilegum" tíma eitt kvöldið og vakna snemma daginn eftir og snúa því hringnum til baka. Í gær vaknaði tyrkinn klukkan 14:30 og því var ekki útlit fyrir að ná plani B, en einhverra hluta vegna varð tyrkinn afar syfjaður fyrir miðnætti og viti menn, hann sofnaði eins og ungabarn og vaknaði í morgun um 8 leitið.
Tyrkinn las um árið ansi áhugaverða pælingu varðandi sólarhringinn sem var jafn spennandi fyrir tyrkjann eins og hún var óvenuleg. Grunn hugmyndin gekk út á það að stytta vikuna úr 7 dögum í 6 daga og lengja þar með hvern dag, þ.e. að hætta að láta sólina hafa áhrif á það hversu lengi er sofið og hve lengi vakað. Þannig væri hver dagur 28 tímar í stað 24 tíma. Þá var stungið upp á því að vinnudagurinn mundi lengjast aðeins en þeim á móti fækkað niður í 4 daga í stað fimm. Svo væri hægt að "stilla" vikuna af ef fólk vill njóta sólarinnar meira, t.d. stilla hana þannig af að sá tími sem maður mundi vaka um helgar væri akkurat sá tími dagsins þegar sólin væri sem mest á lofti. Þessar pælingar eiga sennilega mis vel við fólk og kannast tyrkinn við fólk sem verður fyrir miklum áhrifum af sólinni, og er t.d. í essinu sínu (hvaða s er alltaf verið að tala um....) á sumrin en ákaflega súrt í skammdeginu. Aðrir eru ónæmari fyrir þessu og gætu sennilega vanið sig á þetta. Gallinn er bara sá að allir eru fastir í þessum staðlaða sólarhring og sennilega þyrfti að breyta sólarhringnum fyrir flesta ef þetta ætti að ganga upp. En hugmyndin er góð, leiðinlegt að tyrkinn man ekki hvar þetta er að finna á netinu. En tyrkinn er glaðvakandi.
|
|
|
|
|