Tyrkinn Rausar // Alltaf hress, alltaf myndarlegur, alltaf tyrkinn... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins //
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

janúar 31, 2003

:: tyrkinn 16:00 [+] ::

Helgin
Útlit er fyrir tiltölulega rólega helgi eftir óhófsemi síðastliðins föstudags. Tyrkjafrúin er að fara í "saumaklúbb" í kvöld og tyrkinn mun líklega hýsa poppstjörnurnar sem verða illa úti við klúbbsamkunduna, a.m.k. áður en þeir fara að vinna. Annars er varla hægt að plana mikið, sbr síðustu helgi þegar ekkert var að fara að gerast og endaði eins og það endaði (ósögð er sagan af því þegar tyrkinn lá á bakinu við hliðina á sviðinu á Gauknum með bjór í annarri og símann í hinni eftir óútskýranlegt hlaup yfir sviðið). Lengi hefur staðið til að taka fjármál heimilisins í gegn og vonandi verður það klárað um helgina. Einnig á eftir að skipa einhverjum bókum milli erfingja tyrkjaömmunnar sem mætti fara að klára. Tyrkjafrúin kláraði Tómstundaherbergi húsbóndans síðustu helgi, svo nú er það komið af "túdú" listanum sem virðist aldrei ætla að taka endi. Nú eða bara spila eða glápa á kassann eins og svo oft áður...



:: tyrkinn 15:05 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Gefa einn - Drekka einn"

Til þarf:Spilastokkur, fólk, brennivín eða bjór
Ölvun:Mikil
Staður:Hvar sem er
Flækjustig:Lítið

Þessi leikur er mjög einfaldur (þrátt fyrir nokkuð ýtarlegar leiðbeiningar) og áhrifaríkur. Í upphafi skal ákveða hvað "einn drykkur" skuli vera mikið, en 1 gúlsopi af bjór ætti að vera hæfilegt.

Gestgjafi byrjar að gefa. Hann stokkar spilin og gefur 3 spil á hvern þáttakanda sem öll snúa upp. Þá spyr sá sem gefur þann sem er honum á hægri hönd hvort hann vilji byrja á að drekka eða "gefa drykki". Segjum sem svo að hann velji að byrja á að "gefa drykki". Þá dregur sá sem gefur efsta spilið í bunkanum og snýr því við (í annan bunka við hliðina) og segir "Gefa einn". Þá hafa allir þeir sem hafa samsvarandi spil á "hendi" rétt á að gefa hverjum sem er einn drykk (eða öllu heldur láta þann drekka sitt eigið vín eða sameiginlegt vín), og af ef viðkomandi er með 2 eins spil og eru efst í bunkanum má hann af sjálfsögðu láta 2 drekka eða þann sama drekka tvisvar.

Þegar þessu er lokið heldur sá sem gefur áfram og dregur annað spil úr bunkanum og segir "Gefa tvo". Þá gerist það sama, nema núna eru tveir drykkir á hvert spil sem leikmaður er með á hendi. Þá er spil dregið í þriðja skiptið og sagt "Gefa þrjá". Þegar það er búið er 4 spilið dregið og þá er sagt "Drekka einn" og þá þurfa þeir sem hafa samsvarandi spil að drekka einn drykk fyrir hvert samsvarandi spil sem þeir hafa á hendi. Svo gengur röðin svona áfram (Gefa einn, G2, G3, Drekka einn, D2, D3 (ef byrjað er á að "gefa drykki")) í hring þar til spilastokkurinn er búinn og þá eru spilin stokkuð, og næsti maður í röðinni gefur. Þegar leikmenn sjá ekki lengur á spilin skal leik hætt. Góðar stundir. [Senda spurningu á tyrkjann]

Dæmi:

Gunnar, Sveinn, Guðrún og Rúna spila:

Spil á hendi:
Gunnar: 4,5,A
Sveinn: 2,7,7
Guðrún: 2,D,K
Rúna:6,G,D

Sveinn velur að byrjað sé á því að "Drekka". Gunnar dregur upp 7, Sveinn þarf þá að drekka 2x1 drykk (tvo góða gúlsopa af öli). Þá er dreginn tvistur og þá drekka bæði Sveinn og Guðrún. O.s.frv. þangað til komið er að því að "Gefa 3". Þá er aftur dregin 7 og Sveinn fær að "gefa" 3x2=6 drykki til eins (sem þarf þá að drekka 6 sopa) eða tveggja (t.d. Guðrún drekka 3 og Rúna 3). Næst verður Sveinn "dílerinn" og spyr þá Guðrúnu hvort hún vilji byrja á að drekka eða "gefa drykki".


janúar 30, 2003

:: tyrkinn 13:52 [+] ::

Upprifjun

Þar sem drykkjuleikur dagsins mun verða að reglulegum atburði, finnst tyrkjanum rétt að birta hér lista yfir þá leiki sem eru þegar komnir. Einnig er sú nýbreyttni hér að leikirnir eru komnir á lista á vinstri spássíunni sem verður uppfærður reglulega. Njótið vel...

1. Áblástur
2. Sex glös
3. Tyrkjaleikurinn/Meyer
4. Einn-Tveir-Þrír



:: tyrkinn 12:17 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins - 1-2-3
Það er orðið ansi langt síðan hér hafa verið kenndir drykkjuleikir, og kominn tími til að bæta úr því. Til stendur að hér verði eitt stk. drykkuleikur á hverjum virkum degi, og ætti að vera hægt að hafa þessa síðu sem hrók alls fagnaðar í samkundum þegar fólk vantar ástæðu til að drekka hraðar og meira en ætlast er til af þeim. Leikur dagsins er ákaflega einfaldur (ágætt að byrja smátt) og ætti hann ekki að vefjast fyrir neinum. Nafn hans er "1-2-3" og allt sem til þarf er einn teningur, og skal hann spilaður á öldurhúsum. Tengingur gengur réttsælis á milli fólks sem kastar hvert á eftir öðru. Sá fyrsti sem fær 6 í kastinu velur einhvern drykk af barnum. Sá næsti sem fær 6 fær drykkinn sem sá fyrsti valdi. Sá þriðji sem kastar sexu borgar fyrir drykkinn. Svo er æskilegt að fólk byrji upp á nýtt. Góðar stundir.


janúar 29, 2003

:: tyrkinn 15:26 [+] ::

Þorrablót í súginn
Dönsk yfirvöld eru búin að vísa frá undanþágubeinum frá íslendingafélögum þar ytra varðandi innflutninga á þorramat (sjá mbl.is). Að sögn tyrkjamágsins sem dvelur við nám í Álaborg, verða í staðinn snædd dönsk grísaeystu, tungur og fasanaaugu...



:: tyrkinn 11:24 [+] ::

Kenning dagsins
"Tæknimenn á RÚV eru lélegustu tæknimenn í heimi"
Hvar annars staðar fer annar hver fréttaþáttur í rugl? Ágætis dæmi eru líka útsendingar frá HM í handbolta, Portúgalir eru reyndar alveg út á þekju líka, en útsendingarnar frá RÚV eru meira og minna í rugli líka.


janúar 27, 2003

:: tyrkinn 15:55 [+] ::

Extra man on the pitch! (ansi fyndin auglýsing frá Nike)



:: tyrkinn 13:58 [+] ::

Tyrkinn vill benda á góðar skrýtlur á síðu Grettis, haha fyndnar



:: tyrkinn 13:18 [+] ::

Dauðadrykkja (Helgarskýrslan)
Á föstudaginn var boðið upp á bjór og Gammel Dansk á fundi í vinnu tyrkjans. Mikið var búið að tala um hversu lítið hefði verið um drykkju undanfarna mánuði, og var það upphafið að endanum. Einir fimm svolar (þ.á.m. tyrkinn) sáu þá um að klára afganginn af veitingunum. Þá var haldið niður í bæ og var snætt á Apótekinu og ríflega tekið á drykkjunni. Eftir nokkra stund þar var verulega farið að sjá á fundarmönnum, og þó mis mikið. Tyrkinn fékk sér þann besta saltfisk sem hann hefur á ævinni smakkað á Apótekinu og ætti hvert mannsbarn að smakka þá schnilld. Eftir matinn er allt meira og minna í þoku í huga tyrkjans, sem ætti að vera ágætis mælikvarði á ölvunarstigið. Sniðugari menn fóru þá að stinga af heim til sín, en tyrkinn vatt sér á Gaukinn þar sem poppstjörnurnar voru að spila. Þar var tyrkinn við drykkju þar til staðnum var lokað og fékk hann far heim með poppstjörnunum. Þegar tyrkinn kom heim greip hann ógurlegt hikstakast sem ómögulegt var að losa sig við, en það gilti einu tyrkinn sofnaði um leið og hausinn var nokkurn veginn kominn yfir koddann. Tyrkjafrúin hló að aðförum tyrkjans en hætti að vera skemmt þegar hún var búin að reyna að sofna í eina 2 tíma eftir að tyrkinn lét sjá sig, en þessa 2 tíma hraut hann eins og herforingi og hikstaði ofan í drunurnar vægðarlaust í svefni og endaði með því að þegar eyrnatapparnir voru ekki að standa sig fór hún á sófann. Kvöldið eftir fóru hlutir að koma í ljós. Til dæmis fór tyrkinn að sakna jakka síns með veski og síma og hafði ekki hugmynd um hvar væru niðurkomnir. Eftir að hafa hringt í aðra poppstjörnuna voru líkur leiddar að því að jakkinn hefði orðið eftir í hljómsveitarherberginu á Gauknum og var hringt þangað. Til allrar hamingju var hann þar með öllu innihaldi. Í morgun fóru svo enn fleiri púsl að bætast í myndina þegar rætt var við vinnufélaga. Þá hafði tyrkinn t.d. verið að spjalla við fólk sem virtist hafa lent í svartnætti drykkjunnar, svo og verið að drekka ýmislegt sem hann man ekki eftir að hafa gert. Einn drykkurinn mun hafa verið "Long Island Iced tea" sem gæti verið orsökin af "myrkrinu" þetta kvöldið. Svo kom í ljós að tyrkinn hefði verið að syngja á Apótekinu sem varla telst æskilegt á slíkum stað. Kannski væri ráð að heyra í þeim poppstjörnum aftur og komast að því hvað gerðist á Gauknum það kvöld...

Tyrkinn - blindfullur, og Þorrablótin ekki einu sinni byrjuð...



:: tyrkinn 10:55 [+] ::

Gagnatap
Á laugardaginn var harði diskur tyrkjans í vinnunni straujaður og nokkur Gíg af tónlist fóru þar í súginn. Hins vegar var XP sett upp fyrir vikið. Mínútu þögn fyrir það...


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Mjuzik vikunnar

Eldra