Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

28.2.03

:: tyrkinn 15:13 [+] ::


Klaufi
Ýmislegt gekk á afturfótunum í gær hjá tyrkjanum. Að venju eru leiknar umferðir í Landssokkadeildinni á fimmtudögum og var tyrkinn búinn að hóta leikmönnum þar öllu illu þegar tyrkinn ætlaði að sækja sín fyrstu stig þar í langan tíma (tyrkinn vermir neðsta sætið í deildinni). Þetta fór þó ekki eins og tyrkinn var búinn að plana því í djöfulgangi tyrkjans fór hann einn illa út úr því, sköflungar hans og Fritz Gerbers rákust all harkalega saman og lá tyrkinn eftir en Fritz fann lítið fyrir því. Þegar tyrkinn skreið út af leikvelli eftir 50 mín hlaup og asa fór hann að fölna og sótti flökurleiki og svimi að kappanum í bland við sáran sköflung. Eftir leikinn fór tyrkinn heim og hennti annars ágætum plokkfisk í ofninn, en náði einhvern veginn að brenna sig á græjunni og steikja á sér þumalinn. Seinna náði hann að dúndra olnboganum í dyragátt og toppaði svo kvöldið með því að hálf missa spræt glas og grípa það þannig að það skvettist jafnt yfir nær alla stofuna í tyrkjalindinni. Ágætt stundum að vera ekki heilaskurðlæknir eða eitthvað því um líkt...



:: tyrkinn 14:43 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "21 ás"
Til þarf: Fólk, brennivín, 5 teninga
Ölvun: Meðal - Mikil
Staðsetning: Bar
Flækjustig: Meðal
Þennan leik er gott að spila þegar fólki leiðist á bar. Einfaldur og engin vafaatriði. Einn leikmaður byrjar á því að kasta öllum 5 teningum, og eru allir ásar sem koma upp taldir og lagðir saman. Næsti leikmaður kastar teningunum og leggur alla ása við þá sem komnir voru áður. Sá leikmaður sem kastar sjöunda ásnum fær að velja eitthvað skot sem drukkið er í lok lotunnar. Sá sem kastar 14. ásnum fær þann vafasama heiður að borga fyrir skotið. Sá sem kastar 21. ásnum drekkur skotið. Þegar talan er komin upp í 17 ása fer teningunum að fækka, þannig að þegar er verið að kasta fyrir 21. ásinn er aðeins einum kastað, sbr töfluna hér að neðan:

Ásar komnir / teningum kastað
1-16 / 5
17 / 4
18 / 3
19 / 2
20 / 1
21 - Þú drekkur skotið



27.2.03

:: tyrkinn 12:38 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins :"Trivial Pursuit drykkja"
Til þarf: Trivial Pursuit spil, fólk, bjór
Ölvun: Meðal
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið
Þetta er í raun viðbót við venjulegt Trivjél spil og ætti að gera annars venjulegt Trivjél kvöld að aðeins meira fjöri. Reglurnar eru afar einfaldar, ef maður svarar spurningu rangt þarf maður að dekka einn sopa (og allt liðið ef spilað er í liðum). Ef maður svarar rétt þurfa andstæðingarnir að drekka einn sopa. Ef maður er á svokölluðum kökureitum þarf hins vegar að drekka 5 sopa í stað eins. Þegar leiknum er lokið þurfa þeir sem tapa að tæma glösin sín í einum rykk. Flóknara var það ekki.



:: tyrkinn 10:07 [+] ::


Svefnbærinn
Tyrkinn skrapp í heimsókn til Herkúlesar í gær. Þegar tyrkinn mætti var kúles og bróðir hans að djöflast í hljóðveri Herkúlesar. Eftir að hafa barið húsið að utan í stundarfjórðung og hringja í þá bræður gafst tyrkinn upp og játaði sig sigraðan. Þá kíkti hann í heimsókn í hús tyrkjamóðurinnar sem er á skíðum á Ítalíu þessa dagana. Tyrkjabróðurinn var ekki heima og kom ekki á óvart að tyrkjasystirin sú yngri svaf á sínu græna eyra um sex leytið í gær. Ekkert grín að heimsækja Garðbæinga heim...


26.2.03

:: tyrkinn 14:56 [+] ::


Skrýtla í boði Tyrkjafrúarinnar

Science lesson
The 6th grade science teacher, Mrs. Parks, asked her class, "Which human body part increases to 10 times its size when stimulated?" No one answered until little Mary stood up, angry, and said, "You should not be asking 6th graders a question like that! I´m going to tell my parents, and they will go and tell the principal, who will then fire you!" With a sneer on her face, she then sat back down. Mrs. Parks ignored her and asked the question again, "Which body part increases to 10 times its size when stimulated? " "Anybody?" Finally, Billy stood up, looked around nervously, and said, "The body part that increases 10 times its size when stimulated is the pupil of the eye." Mrs. Parks said, "Very good, Billy, " then turned to Mary and continued, "As for you, young lady, I have three things to say:
(1) you have a dirty mind,
(2) you didn´t read your homework, and
(3) one day you are going to be very, very disappointed.



:: tyrkinn 14:06 [+] ::


Fyrir bloggara:
Fyrir þá sem ekki þekkja er til ágætis forrit sem Sigfús nokkur Oddson skrifaði sem nota má til að henda færslum inn á vefi og heitir það Blogbuddy. Þetta einfalda forrit virkar oft þó svo blogger síðan virðist niðri. Það má nálgast hérna



:: tyrkinn 14:00 [+] ::


Drykkuleikur dagsins: "Fauti"
Til þarf: Fólk, bjór, borð (hægt að spila á gólfi)
Ölvun: Lítil-Meðal
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið
Þessi leikur er afskaplega sillí og ætti aðeins að spilast þegar fólk er með óþarflega mikið af umframorku og í miklu stuði. Í byrjun velja allir sér handahreyfingu sem mun vera einkennandi fyrir hvern leikmann. Þessi hreyfing má vera einföld, kurteisisleg, dónaleg (hmm...) eða hvað sem er en þarf að vera stutt (þ.e. má ekki taka langan tíma). Leikmenn sitja í hring og allir byrja á því að tromma með höndunum stöðugt á borðið. Á meðan trommuleikurinn er í gangi segir sá sem byrjar hástöfum "Hvað heitir leikurinn?" og allir svara "Fauti", þá segir forsprakkinn aftur "...og af hverju spilum við leikinn?" sem svarað er af öllum hinum; "Til að verða full(fullar/fullir)". Þá gerir forsprakkinn sína handarhreyfingu og strax á eftir handarhreyfingu sem einkennir einhvern annan leikmann. Sá sem átti þá hreyfingu gerir svo sína aftur og svo hreyfingu einhvers annars. Ef einhver áttar sig ekki á að einhver gerir sína hreyfingu eða er of lengi að svara, verður sá hinn sami að drekka. Þegar hann hefur drukkið byrja allir aftur að tromma og sá hinn sami byrjar leikinn að nýju. Einnig má nota eitthvað annað sem er kallað (ef einhver klúðrar kallinu er að sjálfsögðu drukkið). Einnig mætti bæta við einhverjum táknum sem hraða leikinn eða hægja hann hvenær sem er.



:: tyrkinn 13:45 [+] ::


Fyrir þá sem ekki þekkja er ágætis þýðingarvél á altavista...


25.2.03

:: tyrkinn 14:33 [+] ::


Breytingar
Tyrkinn er nú búinn að bæta við einum lista á síðuna sem finna má á vinstri spássunni undir "Net leikir". Þar eru nokkrir góðir leikir sem nota má til að eyða dauðum tíma. Einnig voru nokkrar smávillur lagfærðar.



:: tyrkinn 13:26 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "31"
Til þarf: Fólk, Bjór, spilastokk
Ölvun: Mikil
Staðsetning: Hvar sem er
Flækjustig: Meðal
Þessum leik svipar mikið til hins klassíska 21 eða "Black Jack" eins og hann heitir á frummálinu. Þó eru nokkur atriði sem eru frábrugðin. Markmið leiksins er að reyna að fá 31 stig á hendi án þess að fá fleiri. Ásar gilda 11, öll mannspil gilda 10 og önnur spil eftir gildi sínu. Hver leikmaður fær 3 spil, tvö eru lögð niður (þ.e. aðrir sjá þau ekki) og eitt snýr upp. Leikmenn geta svo fengið fleiri spil eins og í 21. Ef leikmaður telur sig vera með góða tölu á hendi (t.d. 28) getur hann "kallað", þá geta hinir leikmennirnir tekið eitt spil í viðbót ef þeir vilja, og svo eru allar hendur sýnar. Sá sem er með lægstu hendina (þeir sem springa þurfa auðvitað að drekka) verður að drekka heilan bjór áður en hann tapar annari hendi. Ef sá sem kallaði er með lægstu heninda verður hann að auki að drekka annan heilan bjór í sekt fyrir lélega frammistöðu. Ef einhver nær ekki að klára bjórinn sinn áður en hann tapar aftur þarf hann að drekka einn aukabjór í sekt. Ef einhver nær einhverntíman 31 stigi, leggur hann spilin niður strax og allir aðrir tapa og drekka. Ef spilið gengur sæmilega hratt getur það endað með látum (sem er gott).



:: tyrkinn 12:52 [+] ::


Helgarskýrsla Tyrkjans
Á föstudaginn var ákveðið að lengja helgina svolítið og vera í fríi eftir hádegi, svo og gærdaginn. Ekki það að mikið stæði til, heldur meira til að slappa af. Til að toppa haugsskapinn voru strax leigðar vídeo spólur, og var "K19 The Widow Maker" fyrir valinu. Tyrkjanum fannst svolítið skondið að þegar sú ræma var fyrst auglýst var nafn Ingvars Sigurðssonar skrifað stórum stöfum mitt á milli Liams Neesons og Harrisons Ford. Væntanlega hefur Ingvari greyinu fundist þetta svolítið púkó og var því nafn hans ekki skrifað stórum stöfum framan á spóluna sjálfa. Lítið bar svo á kappanum fyrri helming myndarinnar, en seinna átti hann mikið hetjuatriði sem hafa verið ágætis sárabætur fyrir að hafa ekki fengið að leika í Starvors myndinni forðum. Myndin var þó svolítið ólík því sem tyrkinn bjóst við af kafbátamynd. Kafbátamyndir eru þó alltaf skemmtilegar og vantaði ekki hin hefðbundnu kafbáta atriði í myndina, sbr. þegar kafað er á meira dýpi en báturinn á að þola og þess háttar. Það má alveg horfa á þessa ræmu þótt hún sé engin shcnilld. Á laugardaginn var skroppið í smáralindina. Fyrst var keypt afmælisgjöf fyrir Viktor nokkurn Gunnarson, Hölluson. Svo var kíkt á bókamarkaðinn, en ekki var hann upp á marga fiska og mátti fleira finna þegar hann var í Perlunni fyrir rúmu ári síðan. Tyrkjafrúin keypti þó 6 stk. Agötu Krístí bækur á 500 kr. stykkið sem hlýtur að teljast ásættanlegt fyrir þá sem af henni gaman hafa. Svo var farið í barnaafmæli með tilheyrandi látum . Tyrkinn er enn í basli með að tengja myndarvélina frægu við heimilistölvu tyrkjanna. Svo er mál með vexti að bölvuð USB portin á vélinni sem aldrei hafa verið notuð eru ekki að virka, ekkert plugg end plei þar á ferðinni. Getur verið að eitthvað þurfi að fikta í biosnum til að þau virki (vinsamlegast skrifið tyrkjanum eða notið tyrkjaspjallið hér á hægri hönd ef þér vitið svarið við þessari spurningu)? Annars er tyrkinn langt kominn í manjúalinum á myndavélinni og er farinn að hlakka til að fara að hrauna myndum. Geisp


21.2.03

:: tyrkinn 11:25 [+] ::


Fyrir þá sem ekki hafa séð "Asíska Prinsinn" er algjört möst að kíkja á þetta



:: tyrkinn 11:17 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Grænmetisleikurinn"
Til þarf: Fólk, brennivín
Ölvun: Meðal
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið
Þessi leikur er algjör klassík og eflaust hafa margir spilað hann gegnum tíðina. Hann má leika hvar sem er og er gott ef fólk er búið að sturta svolítið í sig áður en hann er leikinn, enda er hann svolítið "sillí". Markmið leiksins er að tala án þess að sýna tennurnar, þ.e. varirnar eiga að hylja tennurnar allan tíman. Í upphafi leiks velja allir leikmenn sér einhverja grænmetistegund, og mun það grænmeti vera nafn hvers leikmanns. Sá sem byrjar segir svo nafn sitt tvisvar og segir svo nafn annars tvisvar. Sá segir nafn sitt líka tvisvar og "bendir" svo á annan með sama hætti. Afar einfallt:

Dæmi:
Fyrsti leikmaður: Blómkál, blómkál (hans nafn), Gulrætur Gulrætur
Næsti leikmaður: Gulrætur, gulrætur, Gúrka, Gúrka
o.s.frv.

Leikmenn munu líta út svo asnalega (og líða þannig) og fyrr eða seinna (nema liðið sé þeim mun súrara) munu leikmenn byrja að hlæja og þar með sýna í sér tennurnar. Ef einhver, eða allir, sýna í sér tennurnar við hláturinn þurfa þeir hinir sömu að drekka vel. Ef einhver getur haldið vörunum yfir tönnunum í hlátrinum, hefur sá hinn sami greinilega ekki drukkið nógu mikið fyrir leikinn. Þetta hljómar allt skrítið, en getur gert ljómandi góða stemningu og þar af leiðandi drykkju.



:: tyrkinn 08:52 [+] ::


How decisions are made [Frá tyrkjafrúarbróðurnum]
President George W. and Colin Powell are drinking in a pub close to Old Town Square in Prague. A guy walks in and asks the bartender,"Isn't that Bush and Powell sitting over there?" The barman says, "Yep, that's them." So the guy walks over and says, "Wow,this is a real honor. What are you guys doing in here?" Bush says, "We're planning WW III," and the guy says, "Really? What's going to happen?" Bush says, "Well, we're going to kill 40 million Iraqis this time and one blonde with big tits." A little perplexed the guy exclaimed, "A blonde with big tits? Why kill a blonde with big tits?" Bush turns to Powell, punches him on the shoulder and says, "See, smart ass?! I told you no one would worry about the 40 million Iraqis.


20.2.03

:: tyrkinn 14:57 [+] ::


You can't own porn!
Fritz Gerber rakst fyrir tilviljun á disk nokkurn á mp3 formi, sem er ekki frásögu færandi, nema fyrir það að Fritz og Tyrkinn bjuggu til þennan disk af spólum sem Fritz keypti í Lundúnum fyrir mörgum árum. Diskurinn var aðeins búinn til í örfáum eintökum, en birtist svo á netinu mörgum árum seinna og dettur fyrir augu Fritzarans. Í samtali tyrkjans og Brenna sagði Brenni tyrkjanum frá afar skemmtilegri kenningu sem tengist þessu, þótt hún nái yfir ólíkt efni. Kenningin er eitthvað á þá vegu: "Porn er ekki í einkaeign neins, heldur sameign allra karlmanna í heiminum. Maður er alltaf með það í láni, annað hvort frá vinum, ókunnugum, eða kynslóðinni á undan". Nokkuð til í því....



:: tyrkinn 14:15 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Turndrykkja"
Til þarf: Fólk, bjór, léttvín, skot (tekíla eða sambærilegt), sterkt áfengi, bland, glasamottur, ýmis glös, teningur
Ölvun: Mikil (fer þó eftir "heppni")
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið-Meðal
Það getur myndast mikil stemning í þessum leik, en smá áhætta fylgir honum varðandi brotin glös ef ekki er farið varlega (sem er bara gott, ekki?). Byrjað er á því að búa til turn af glösum, og eru glasamottur (úr pappa) settar á milli glasana (röðin er frá toppi turnarins og niður):

1. Skot (Tekíla, epplasnafs, gammeldansk, hot&sweet eða sambærilegt) (er efst á turninum)
2. Lítið glas af blönduðu áfengi (whiskey sour, manhattan eða hvað sem er)
3. Hátt glas af blönduðu áfengi (Tom Collins, G&T, Kapteinn í kók eða hvað sem er)
4. Léttvínsglas (Rauðvín, hvítvín eða rósavín (sem er náttúrulega bara fyrir konur))
5. Stórt Bjórglas (kemur neðst)

Leikmenn kasta teningnum til skiptis. Sá sem fyrstur fær 6 drekkur skotið. Sá sem kastar næst 6 fjarlægir glasamottuna sem var undir skotinu. Sá næsti sem fær 6 drekkur litla bland-glasið, næsti tekur næstu glasamottu o.s.frv. Þegar einhver er að drekka (eða fjarlægja glasamottu) skal beðið eftir honum (og reyndar æskilegt að hvetja drekkandann til dáða), nema þegar bjórinn er drukkinn. Þegar einhver "heppinn" er að drekka bjórinn fer allt á fullt, því ef einhver nær að kasta 6 áður en sá leikmaður nær að klára bjórinn þarf bjórdrykkjumaðurinn að borga fyrir allan turninn (eða greiða eitthvað ef leikið er í heimahúsi, eða jafnvel framkvæma eitthvað annað). Hins vegar ef bjórdrykkjumaðurinn nær að klára bjórinn áður en einhver kastar sexu þarf sá sem næstur kastar sexu að borga fyrir allt gumsið. Eins og gefur að skilja getur þetta skapað bæði mikla drykkju og mikla stemningu.



:: tyrkinn 11:16 [+] ::


Dagblöð
Þessa dagana virðist vera gríðarleg samkeppni á dagblaðamarkaðinum hér heima. Þau fáu skipti sem heimasíminn hringir í tyrkjalindinni er það oftar en ekki einhverjir sölumenn sem tyrkinn hefur yfirleitt nokkra samúð með, því ekki vildi tyrkinn vinna við slíka símasölu. Annað hvort eru þar á ferð sölumenn fyrir einhver tryggingafélög, ráðgjafar fyrir lífeyrissparnað eða einhverjir að selja áskrift af blöðum eða tímaritum. Tyrkjafrúin lét einhvern tíman selja sér áskrift af einhverju glanstímariti frá Fróða, og skipti um blað eftir nokkurn tíma. Fróði tók á það ráð að rukka fyrir bæði tímaritin og senda bæði, og eftir flutningana fara öll þessi blöð ennþá á Ránargötuna, ekki alveg að fylgjast með fólksflutningum þar á bæ. Oftar er þó verið að selja dagblöð og eru bæði DV og Mogginn búin að vera með tilboð í lengri tíma og bjóða ýmis gylliboð. Ekki er mikið varið í DV og þar er Mogginn öllu skárri. Fyrir nokkru síðan hringdi einhver frá mogganum og bauð ókeypis áskrift í einn mánuð þar sem þeir lofuðu að einungis væri hringt eftir mánuðinn og boðin full áskrift, en ekki farið að rukka eftir mánuð eins og margir hafa stundað í gegnum tíðina. Tyrkjunum þótti þetta nú vera ágætis tilboð og áhættulaust og tóku þessu með þökkum. Mogginn barst í pósthólfið á hverjum morgni, en auðvitað var hann aldrei sóttur fyrr en komið var heim úr vinnunni. Fyrir vikið var kannski eitt tölublað af tæplega 30 lesið og safnaðist þetta upp í hauga sem allir voru á leiðina á sorpu fyrr eða síðar. Því var ákriftin afþökkuð þegar hringt var að mánuði liðnum. Nú um daginn var svo hringt aftur, um þremur mánuðum eftir að tyrkjarnir afþökkuðu síðustu áskrift og asnaðist tyrkinn til að taka þessu tilboði þeirra um frían mánuð og hefur ekki verið lesið eitt einasta tölublað hingað til. Verst að enginn arinn skuli vera í tyrkjalindinni, annars kæmi þetta sér vel...



:: tyrkinn 10:47 [+] ::


Þetta eru sannar spurningar úr þjónustuveri Landssímans/BFG (að sögn tölvupósta a.m.k....)

[Frá Tyrkjafrúnni & Jensaranum]

1# Ég er að flytja frá Akureyri til Reykjavíkur í eitt ár. Er hægt að flytja gsm númerið með sér til Reykjavíkur eða eða þarf ég að fá mér nýtt númer???

2# Nei, nei. Þetta er eitthvað bilað hjá ykkur. Ég er búinn að hafa þetta símtæki í 40 ár, og hann fer nú varla að bila úr þessu!!!!!

3# Ég er að fara til USA á morgun, og ætla að taka GSM símann minn með. Þarf ég að taka hleðslutækið með mér líka.

4# Þegar maður er staddur í útlöndum, og hringir heim, þarf maður að setja 354 fyrir framan, en hvað þarf maður að setja fyrir framan þegar maður er að senda tölvupóst erlendis frá???

5# Ég er með breiðvarpið, og horfi mest á spænsku stöðina. Hún er svarthvít hjá mér, og ég er að horfa á matreiðsluþátt. Veistu nokkuð litinn á kökunni sem er á skjánum núna???

6# Hvað á þetta að þýða að loka símanum. Ég gerði allt upp hjá ykkur fyrir nokkrum mánuðum síðan.

7# Ég var að pæla í að gefa stráknum mínum LSD. Getið þið reddað því fyrir mig? (ADSL)

8# Ég stillti GSM símann minn á þýsku, en þegar ég sendi þýskri vinkonu minni SMS, fær hún þau bara á íslensku!!!

[Tyrkinn tekur enga ábyrð á uppruna eða sannleiksgildi þessa]


19.2.03

:: tyrkinn 12:04 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Nafnaleikurinn"
Til þarf: Fólk, Bjór
Ölvun: Meðal
Staðsetning: Hvar sem er
Flækjustig: Meðal
Leikmenn sitja í hring (eins og svo oft áður) og einhver byrjar á að segja nefn einhvers sem telst vera frægur, eða að minnsta kosti frægur innan hópsins er situr við drykkjuna. Sá sem situr á vinstri hönd þess sem fyrst nefndi einhvern verður þá að segja nafn einhvers frægs sem byrjar á fyrsta staf í seinna nafni fyrsta nafnsins. Ef þetta kann að hljóma flókið, er það rangur misskilningur... Hér er dæmi:

Björgvin Halldórsson (eða Bo Hall eins og hann kýs að kalla sig)
Homer Simpson
Samuel Jackson
Jón Ólafsson (góði eða vondi)
Ómar Ragnarsson
Ralph Lauren
Leifur Eiríksson


Ef einhver leikmaður getur ekki sagt eitthvað nafn STRAX þá verður sá hinn sami að drekka stöðugt þangað til hann getur fundið gilt nafn. Leikurinn stoppar aldrei, heldur áfram stöðugt þangað til honum er hætt (uppköst eða óskiljanleg þvoglumæli gætu t.d. verið löglegur endir á leik). Ef einhver segir nafn þar sem fornafn og eftirnafn byrja á sama staf (t.d. Þorbergur Þórðarson) þá snýst röðin við. Sama gerist ef einhver segir nafn sem venjulega stendur eitt og sér (Madonna, Jesús, Megas) og gengur þá röðin í hina áttina. Einnig er hægt að bæta við slíkum reglum eftir vild (nota ímyndunaraflið).


18.2.03

:: tyrkinn 12:39 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Ofur-klink"
Til þarf: Fólk, bjór, borð (hart yfirborð), nokkur glös og pening (5 kall eða 10 kall)
Ölvun: Mikil - Mjög mikil
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið
Þetta er önnur útgáfa af klink leiknum víðfræga. Einhvejir kjósa að kalla hann "ljósakróna" en tyrkinn kann betur við "ofur-klink" nafnið einhverra hluta vegna. Eitt glasið (wisky glas eða sambærilegt lágt glas er gott) er fyllt af bjór (kalla mætti það glas "Bjórbombuna") og sett á mitt borðið. Svo er sett svolítið af bjór í eitt glas fyrir hvern leikmann og þessum glösum raðað í kringum fulla glasið á borðinu, allir verða að vera með það á hreinu hvaða glas tilheyrir þeim. Leikurinn hefst svo á því að einn leikmaður reynir að "skoppa/skjóta" peningnum í eitthvert glasana. Ef hann hittir ekki þarf hann að tæma sitt glas (sem að sjálfsögðu er fyllt aftur). Ef hann hittir, þá þarf eigandi þess glass sem peningurinn lendir í að tæma það glas. Ef peningurinn lendir í "bjórbombunni" (fulla glasinu) þurfa allir að drekka, og nú gildir að hafa hröð handtök, því sá sem er síðastur að tæma sitt glas og setja það aftur á borðið fyrir framan sig, þarf að tæma "bjórbombuna" líka.



:: tyrkinn 12:24 [+] ::


Gripurinn kominn í hús
Tyrkinn sótti heim Hrafnkel í gær og fékk myndarvélina sem keypt var í baunalandi um helgina. Tyrkinn var orðinn mjög spenntur að fikta í græjunni og fékk loks tækifæri til þess í gær. Auðvitað þurfti bölvaður manjúallinn að vera á baunamáli sem gerir allt fikt á svona græju erfiðara og vonandi er hægt að sækja hann á ensku á netinu. Svo er bara að kynna sér undirstöðuatriði ljósmyndunar betur og vinda sér í keppnis-fikt. Tyrkinn vill þakka Hrafnkeli fyrir reddinguna aftur, því einhverjir 10 þús kallar spöruðust með þessum tilfæringum, enda bara okrarar hér á landi, og ekki er fríhöfnin mikið skárri hvað verð snertir. Hrafnkell keypti sér líka afar fagran Gibson spaða sem ætti að gera sig. Það á reyndar eftir að sýna sig hvort blessuð heimilis tölvan í tyrkjalindinni ráði við myndavélina, því USB portin á henni voru ekki að virka þegar tyrkinn fékk sér fjöltengisnettengingu um árið. Svo þarf eitthvað að rýma fyrir fótósjopp og meðfylgjandi hugbúnaði fyrir myndavélina. Endar svo sjálfsagt með annað hvort nýrri tölvu eða a.m.k. nýjum hörðum disk og skrifara, má sennilega beyta pí reglunni á þessar æfingar allar saman.


17.2.03

:: tyrkinn 14:45 [+] ::


Bílagrín (hljóð og mynd)



:: tyrkinn 12:05 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Billabjór"
Til þarf: Fólk, bjór, ballskáksborð
Ölvun: Mikil
Staðsetning: Billiardstofa, bar með billaborði
Flækjustig: Meðal
Þennan leik verður að spila þar sem aðstaða er til, á billiardstofu og er Players í Kópavogi tilvalinn. Hann krefst smá hæfileika í billiard og getur gert hefðbundinn billiard leik skemmtilegan.
Í raun er leikurinn afbrigði af billiard, en þó er kúlunum raðað upp á ólíkan hátt. Öllum lituðu kúlunum er raðað upp í hóp yfir punktinum á borðinu. Hópurinn ætti að líta út svona: (Svarta kúlan er á punktinum)

...7
1 8 2
3 6 4
...5 (þessi kúla er tvílit)

Tvílitu kúlurnar eiga að fara á hliðarnar (sjá mynd fyrir neðan), á aftari hluta borðsins:

O===============O
|................................... |
|................................... |
|................................... | * = Tvílitar kúlur
(.................................... )
|*.................................*| X = Hópur einlitra kúlna
|*................X...............*|
|*................*...............*|
O===============O

Ef leikmaður skýtur einlitri kúlu fær hann að útdeila jafn mörgum drykkjum (sopum) og talan á kúlinni gefur til kynna. Ef leikmaður setur tvílita kúlu í vasa þarf hann að drekka jafn marga gúlsopa og tala þeirrar kúlu gefur til kynna. Ef hvítu kúlunni er skotið niður (eða hann hittir ekki neina kúlu) þarf sá hinn sami að klára það sem eftir er í glasinu sínu. Þegar allar tvílitu kúlurnar eru komnar af borðinu er leikurinn búinn. Þangað til það gerist og það kemur upp að það er aðeins ein einlit kúla eftir, eru allar einlitu kúlurnar settar aftur á sinn stað í hópinn (án kúlu númer 5 sem er tvílit).



:: tyrkinn 11:14 [+] ::


Út að borðaTyrkinn og tyrkjafrúin gerðu sér dagamun á laugardaginn og skelltu sér á Skólabrú. Óhætt er að mæla með þessum stað fyrir þá sem ekki þekkja, þegar á að fara í rómantískan kvöldverð. Tyrkinn fékk sér reykta villibráð í forrétt (Súlu, lunda og svartfugl) og Karfa með humargúi í aðalrétt og var það lostæti. Tyrkjafrúin fór í franska lauksúpu og piparsteik og var hún einnig ánægð með sitt. Rólegur og þægilegur staður og fín þjónusta.



:: tyrkinn 11:09 [+] ::


Að spila spil er góð skemmtun...
Tyrkinn fór á laugardaginn í verslun Eymundsson og keypti afar gott spil er nefnist "Catan-Landnemarnir" (e. Settlers of Catan). Gunnhildur hafði mælt með spilinu um jólin eftir að hafa spilað það með fjölskyldunni sinni, og hafði tyrkinn einnig kynnt sér málið á netinu og litist vel á. Spilið minnir nokkuð á nokkra góða tölvuleiki eins og Settlers leikinn, og má jafnvel tengja það við leiki eins og Civilization eða Age of Empires. Það gengur út á að tryggja sér svæði á leikborðinu og safna hráefni til frekari uppbyggingar (við, ull, korn, leir og málma), og keppa við aðra leikmenn um að vera fyrstur til að ná sér í 10 stig. Einhver þekktur þjóðverji hannaði spilið fyrir nokkrum árum og hefur það hlotið nokkur verðlaun síðan. Spilið var prufukeyrt á laugardaginn, og fór tyrkinn í heimsókn til Gerber fjölskyldunnar og spilaðar tvær umferðir þar til hætt var um 5 leytið um nóttina. Margrét vann fyrstu umferðina og tyrkinn þá síðustu og voru allir ánægðir með leikinn. Eitthvað hefur þetta setið í Fritz og Margréti því morgunin eftir fékk tyrkinn sms skeyti þar sem spurt var hvort tyrkinn hefði nokkuð dreymt spilið en þau dreymdu víst bæði spilið eftir nóttina. Í gærkvöldi fór því tyrkinn og tyrkjafrúin aftur til Gerberanna og aftur var spilað. Tyrkinn er á því að gaman sé að spila góð borðspil og er auðveldlega hægt að gera góða kvöldstund úr góðum spilum. Sérstaklega má þar nefna Risk sem er algjör klassík, jú þetta Catan spil, Scrabble er einnig gott, svo og Hringadróttins spilið sem tyrkinn keypti um jólin. Alla vega er óhætt að mæla með þessu spili og má lesa meira um það hérna og einnig má spila net útgáfu af leiknum hérna. Góðar stundir.



:: tyrkinn 10:40 [+] ::


Tyrkinn fer í leikhús
Á föstudaginn fór vinnuhópur tyrkjafrúnnar í leikhús og var mökum boðið með. Sýningin "Sól og Máni" varð fyrir valinu sem sýnd er í Borgarleikhúsinu. Sagan segir að Karl Ágúst Úlfsson hafi skrifað handritið eftir forskrift frá Guðmundi gítarleikara Sálarinnar og leikur Sálin tónlistina í sýningunni og er raunar í ansi stóru hlutverki þar. Söguþráðurinn er ansi ostalegur að mati tyrkjans og í stuttu máli gengur hann út á stúlkuna Sól sem aldrei hefur brosað og engilinn Mána sem gerir það að hlutverki sínu að fá hana til að brosa. Máni þessi fellur til jarðar þegar málleysingi bendir á hann og úr verður ansi sérkennileg blanda af glensi og uber-dramatík yfir brosleysi stúlkunnar. Eins og við mátti búast er ansi mikið af því að fólk bresti í söng og dans (e. break into song and dance....) og er fyrir vikið mikið um samhæfð dansatriði, en tyrkinn er ekki mikið fyrir slíkt. Reyndar er réttast að gera þann fyrirvara á þessu öllu að tyrkinn er hvorki fyrir söngleiki, né leikhús yfir höfuð, og ætti fólk að hafa það í huga þegar þetta er lesið. Nokkuð var um ágætis brandara inn á milli sem héldu sýningunni gangandi, þótt endalausar vísanir í texta sálarinnar hafi gerst þreyttir þegar líða fór á sýninguna (allt frá "sjúbb-sjúbb-sjarei" til "þið verðið eflaust á endanum hjón") og virtist stundum sem svo að handritið hefði verið skítamixað úr textabrotum sálarinnar, en það virtist þó falla vel í kramið hjá áhorfendum flestum. Undirspil Sálarinnar var þó gott og mörg laganna úr sýningunni sem finna má víst á nýlegum diskum voru meðal betri laga sveitarinnar, og allur hljóðfæraleikur var til fyrirmyndar, en Jón Ólafsson hinn góði er titlaður tónlistarstjóri og lék á hljómborð og orgel með sálardrengjum. Leikararnir voru misgóðir í hlutverkum sínum og þótti tyrkjanum Bergur Þór Ingólfsson sem Máni og Guðmundur Ólafsson sem Ófeigur standa sig best. Stefán Hilmarson var eðlilega besti söngvarinn þótt hann léki ekki eiginlega, en nokkrir háir tónar hjá leikurunum ollu vafasömum óróa í huga tyrjans. Tyrkjanum fannst fyrri hálfleikur vera ágætur, en eftir það var þetta orðið full mikið af hinu "góða" og þorir aðeins að mæla með þessu fyrir gallharða sálar-aðdáendur og þá sem hafa gaman af leikhúsi og söngleikjum yfir höfuð. Þeir sem ekki hafa gaman af slíku mega ekki búast við að "sjá ljósið" eftir þetta stykki, enda ekki mikið að muna eftir.


14.2.03

:: tyrkinn 13:06 [+] ::


Gaman gaman
Tyrkinn er búinn að taka ákvörðun um kaup á myndavél. Gripurinn er ekki af lakari gerðinni og hlýtur gríðar góða dóma víðast hvar. Keli poppari hefur verið settur í málið og ætlar að versla vélina í baunalandi þar sem þeir popparar eru að fara að leika á þorrablóti á morgun. Því er aldrei að vita nema tyrkinn fari að birta myndir hér við tækifæri.



Hér má sjá ansi ýtarlega umfjöllun um vélina (upp á ca. 24 síður með myndum og skýringum)



:: tyrkinn 12:52 [+] ::


150.000 Ástralir mótmæla hugsanlegu stríði gegn Írak
Að minnsta kosti 150.000 manns söfnuðust saman á götum Melbourne í Ástralíu til að mótmæla hugsanlegu stríði gegn Írak. Lögregla telur að Að minnsta kosti 150.000 manns söfnuðust saman á götum Melbourne í Ástralíu til að mótmæla hugsanlegu stríði gegn Írak. Lögregla telur að 150.000 manns hafi tekið þátt í mótmælunum en skipuleggjendur þeirra segja töluna vera 200.000. Þetta eru fjölmennustu aðgerðir sem gripið hefur verið til í Ástralíu í þágu friðar frá því menn gengu um götur landsins fyrir um 30 árum gegn stríði í Víetnam þar sem ástralskir hermenn börðust við hlið bandarískra.

Þetta er orðrétt frétt af mbl.is, og sjaldan hefur tyrkinn séð jafn illa skrifaða frétt, og það á mogganum sem allir vita jú að lýgur ekki... Annars eru þetta svolítið mögnuð mótmæli, hljómar betur en 10 hræður að raða sokkum í kringum alþingishúsið hér á Íslandi...


13.2.03

:: tyrkinn 17:05 [+] ::


Myndavél
Þessa stundina er tyrkinn að missa sig í hugleiðingum um stafrænar myndavélar. Einna mest er spennan um þetta kvikindi, Canon Powershot G3 sem ku vera hinn fínasti gripur...



:: tyrkinn 13:13 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Snúningur"
Til þarf: Fólk, bjór, borð, pening (5 kall eða 10 kall)
Ölvun: Lág
Staður: Hvar sem er
Flækjustig: Meðal

Þessi leikur krefst smá hæfni og einbeitingar og gengur varla þegar langt er liðið á drykkju. Leikmenn sitja við borð og einn byrjar leikinn. Sá hinn sami stillir peningnum upp á rönd og heldur honum með vísifingri þannig. Þá notar hann hina hendina (eða þá sömu ef hann vill) til að snúa honum (upp á rönd af sjálfsögðu) af stað yfir borðið. Um leið og hann "snýr honum" af stað kallar hann nafn einhvers annars sem situr við borðið. Sá sem kallað var á verður að velja um tvær aðgerðir:

A. Stoppa peninginn með vísifingri án þess að hann detti flatur
B. "Smella" á peninginn (sem enn er á snúning) svo hann haldi áfram að snúast. Þá verður sá hinn sami að kalla nafn einhvers annars.

Ef sá sem "snýr" peningnum þannig að hann fari út af borðinu þarf að drekka. Ef peningurinn hættir að snúast og landir flatur áður en sá sem kallað var á nær að snúa honum áfram eða stoppa hann, verður sá hinn sami að drekka og sá sem snéri peningnum síðast byrjar aftur. Bæta má við reglu þess efnis að ef peningurinn stoppar ákveði hliðin (skjaldarmerkið eða fiskurinn) hvor drekkur.




12.2.03

:: tyrkinn 17:36 [+] ::


Áramótaheitið uppfyllt
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir er komið nýtt útlit á síðuna, og vonandi er það til batnaðar. Vinsamlegast notið græjuna hér til hægri til að koma með uppástungur um breytingar svo síðan verði nú sem fallegust. Góðar stundir



:: tyrkinn 15:36 [+] ::


Breaking news!
WASHINGTON POST JAN. 27, 2003 WASHINGTON D.C. (REUTERS)
Early this morning a devastating fire burned down the personal library of
President George W. Bush. Tragically, both books were lost in the
conflagration. More poignantly, The President, due to his hectic schedule,
had not found time to color in the second one.



:: tyrkinn 11:26 [+] ::


Drykkuleikur dagsins: "Hraða-Klink"
Til þarf: Fólk, bjór, 2 peninga (5 kall eða 10 kall), 1-2 glös (lág glös, wisky glös eru góð), borð með hörðu yfirborði
Ölvun: Meðal-Mikil
Staður: Heimahús
Flækjustig: Lítið
Þetta er afbrigði af hinum klassíska "Klink" leik en þykir skemmtilegri ef óþolinmóðir leynast á meðal drykkjumanna. Nú er kominn hraði í leikinn og verða menn að vera á tánum ef menn vilja standa í lappirnar eftir leikinn. Grundvallar atriðið er það sama og í fyrrnefndum leik en núna skiptir tíminn máli og fylgir leiknum meiri djöfulgangur en þeim fyrri. Leikmenn sitja í kringum borð og er glasið sett í miðjuna. Peningana fá fyrst einhverjir tveir leikmenn sem sitja andspænis hvorum öðrum og er leikurinn hafinn. Þessir leikmenn reyna nú að "skoppa" peningunum af borðinu og ofan í glasið og mega reyna eins oft og þeir vilja. Um leið og leikmanni tekst að skjóta peningnum ofan í glasið réttir hann peninginn yfir á manninn sér á vinstri hönd og hann hefur leik. Þetta heldur svona áfram þar til einhver sem er með pening fær hinn peninginn líka og verður sá hinn sami að drekka fyrirfram ákveðið magn af bjór við fögnuð viðstaddra. Svo hefst leikurinn aftur á sama hátt. Ef margir eru að spila leikinn getur verið betra að hafa tvö glös, þá réttir sá sem nær pening í glasið bæði peninginn og glasið til næsta manns.



:: tyrkinn 11:06 [+] ::


Gláp
Endalaus tími virðist fara í sjónvarpsgláp í tyrkjalindinni sem er varla frásögu færandi er fær þó að flakka hér. Er þetta komið í það mikinn vana að venjulega er setið fyrir framan kassann fram á nótt þrátt fyrir misjafnt sjónvarpsefni. Þetta er frekar leiðinlegur ávani, að glápa á hvað sem er á meðan það er ekki innlit-útlit eða sápuóperur. Fyrir vikið fær náttúrulega annað að sitja á hakanum, svo sem heimilisbókhaldið og smálegar viðgerðir heimafyrir. Stundum stendur tyrkinn sig meira segja að því að klára mökk-súrar bíómyndir út af því einu að hann slysaðist til að horfa á byrjun þeirra. Keypt var ákrift af stöð 2 fyrir nokkru síðan og vill tyrkinn kenna henni um hluta af þessum glataða tíma, því þar er yfirleitt eitthvað sæmilegt að glápa á en skjár 1 virðist vera að missa flugið þessa dagana og lítið þar að hafa orðið. Allir "veruleika" þættirnir eru þræddir orðið, en heimilisfólk virðist ekki ætla að fá leið á þeim einhverra hluta vegna, og þá allt frá Piparveininum á skjá einum til Amazing race á stöð 2. Það væri bara alveg ágætt að fá frí á fimmtudögum eins og í den, þá mundi maður asnast til að gera eitthvað annað, jafnvel skella sér á brettið eða átta sig á því af hverju peningar sogast út af bankareikningum.


11.2.03

:: tyrkinn 15:51 [+] ::


Tyrkinn hirðfífl í fyrra lífi?....


Hvað varst þú í fyrra lífi?


10.2.03

:: tyrkinn 13:19 [+] ::


Drykkuleikur dagsins: "Skellur"
Til þarf: Fólk, Bjór, spil
Ölvun: Mikil
Staður: Heimahús
Flækjustig: Lítið

Mjög einfalldur leiku sem getur orðið ansi skrautlegur, byggir á athygligáfu leikmanna og hraða. Betra er að hafa fleiri en færri keppendur. Einn er valinn "díler" en í hverri umferð skal valinn nýr slíkur, því æskilegt er að dílerinn sé ekki með á meðan hann gefur (hann stendur nefnilega verr að vígi en aðrir). Sá er gefur (gjafmaður?) stokkar spilin og flettir síðan einu í einu upp í bunka á mitt borðið og segir upphátt hvaða tala er á spilinu ("sjöa" eða "kóngur"). Þegar tvö "eins" spil koma upp í röð (t.d. tvær fimmur) eiga leikmenn að reyna að vera fyrstir til að leggja hönd sína ofan á bunkann (þessu mætti frekar lýsa sem "skella höndinni á bunkann"), en sá sem fyrstur er fær þann heiður að mega útdeila drykkjum í samræmi við töluna á spilinu (drottning er að sjálfsögðu 12 o.s.frv.) til annarra leikmanna að eigin vild. Þegar gjafmaður er búinn með öll spilin í bunkanum, skal næsti leikmaður taka við, stokka og hefja leikinn að nýju. Hægt er að bæta við ýmsum reglum til gamans, t.d. er hægt að láta alla vera með "skelli" höndina bak við bak þegar verið er að fletta, eða þá að það megi skella þegar sami "liturinn" komi tvisvar í röð (t.d. spaði tvisvar í röð) eða þegar þegar spil koma í réttri eða öfugri röð (þ.e. nía og tía , eða fjarki og svo þristur).

Ýtarefni: Notkun bjórs í drykkjuleikjum
Þegar bjór er notaður í drykkjuleikjum vill það oft vera á reiki hvað "einn drykkur" eða "ein eining" skuli vera mikill bjór. Gott er að nota "puttaregluna" til þess að skera um magnið í slíkum tilvikum. Þá eru fingurnir lagðir utan á bjórglas þannig að efsti fingurinn nemi við yfirborðið á bjórnum. Þegar þannig skal drekka t.d. "tvær einingar" eða tvisvar er ágætt að miða við tvo putta utan á glasinu, þ.e. drekka þar til fyrirborðið er komið undir annan puttan utan á glasinu (þ.e. yfirborðið komið undir löngutöng). Þetta má af sjálfsögðu einnig nota á blandað brennivín, en í báðum tilvikum er nauðsynlegt að setja slík viðmið áður en leikur hefst. Góðar stundir.



:: tyrkinn 09:55 [+] ::


Fyrir þá sem velt hafa fyrir sér textanum úr Immigrant song (Led Zeppilin)


7.2.03

:: tyrkinn 16:20 [+] ::


Fréttaskot (frá Brenna)
Starfsmenn NASA hafa loks fundið svarta kassann úr geimskutlunni sem sprakk í vikunni eftir mikla leit og vandræðagang. Að sögn yfirmanns hjá NASA voru síðustu orð sem áhöfnin sagði þessa örlagaríku ferð eftirfarandi: "jæja þá, leyfum konunni að prufa..."

[Íslenskað úr erlendri frétt]



:: tyrkinn 14:16 [+] ::


Jesss........



:: tyrkinn 13:20 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Sokkið Glas"
Til þarf: Fólk, bjór, kanna og glös
Ölvun: Lítil-Meðal
Staður: Heimahús eða líbó bar
Flækjustig: Lítið

Einfalldur leikur sem byggist á hæfni leikmanna. Hver leikmaður fær glas af bjór og eitt glas er sett á flot í könnuna sem innheldur slatta af bjór. E.t.v. þarf að setja smá bjór í það glas svo það fari ekki á hliðina. Leikmenn skiptast á að hella bjór úr sínu glasi í glasið í könnunni, 5 sek. þurfa að líða á milli "hellinga" (ath. allir verða að hella einhverju). Sá sem sekkur glasinu þarf að ná því upp úr könnunni og tæma það við fögnuð viðstaddra. Trikkið er að hella það miklu í glasið að næsti maður eigi erfitt með að bæta á það án þess að sökkva því.



:: tyrkinn 11:33 [+] ::


Heimildamynd
Sjónvarpið sýndi í gær heimildarmynd um Michael Jackson sem mikið hefur verið í umræðu undanfarna daga, en myndin heitir "Living with Michael Jackson". Þar var dreginn upp afar vafasöm mynd af kappanum og greinilegt var að tilgangur myndarinnar var að draga upp einhvern skít eins og blaðamönnum einum er lagið. Blaðamaðurinn sem er breti og heitir Bashir náði einhvern veginn að fá Mækúl til að leyfa sér að hanga með sér um stund, og virtist sem svo að myndin ætti að snúast um hversu afbrigðilegur kappinn væri, en greinilegt var að Mækúl var ekki með á nótunum um að það væri tilgangurinn. Eins og flestir vita er kauði ansi skemmdur eftir erfiða æsku og skrautlegt líf, en tyrkjanum fannst myndin vera óþarflega gróf og illa vegið að kappanum. Enn fremur hefur tyrkinn ekki trú á að hann væri níðingur af neinni sort, og að afætum ýmiskonar væri að kenna fyrir sögusagnir og hleypidóma sem uppi hafa verið síðustu ár (hver man ekki eftir lögsókn á hendur honum). Hann er enginn snillingur í að fela það hvað hann er skrýtinn, en það ætti ekki að verða til þess að hann sé talinn öfuguggi. Skrýtinn maður nokk en enginn pervert að mati tyrkjans. Skamm Bashir.


6.2.03

:: tyrkinn 15:31 [+] ::


Drykkuleikur dagsins: "Rússnesk bjór-rúlletta"
Til þarf: Fólk, bjór í dósum
Ölvun: Mikil (fer eftir hversu hratt er spilað)
Staður: Heimahús (eða þar sem má subba vel út)
Flækjustig: Lítið





Þessi leikur er mjög einfaldur og mjög "sillí" og þurfa leikmenn að vera í sérkennilegur stuði eða ástandi til að vilja spila hann. Í hverri lotu þarf eina bjórdós af sömu tegund á hvern leikmann. Ein dósin er tekin og hrist, hrist mikið og vel. Svo er dósunum ruglað þar til enginn veit hvaða dós er sú hrista og þeim dreift á milli leikmanna, ein á haus. Svo opna allir sínar dósir, og halda þeim nærri sér (bannað að halda þeim frá sér, eða bak við eitthvað). Sá "heppni" sem hlaut hristu dósina fær væntanlega mikið úr dósinni yfir sig, hinir hlæja og njóta sinna bjóra. Í sárabætur fær sá blauti að hrista næstu dós og er leikurinn endurtekinn. Leiknum er hætt þegar enginn getur hrist dósina.





:: tyrkinn 13:51 [+] ::


Leikur dagsins: Slingshot
Afar einfalldur en skemmtilegur leikur



:: tyrkinn 13:50 [+] ::


Görn eða Olnbogi? (afar sérkennilegt "próf") í boði Brenna



:: tyrkinn 10:54 [+] ::


Allir í grínstuði í dag
Tyrkjafrúin sendi tyrkjanum þetta, en sagan segir að efnt hafi verið til keppni þar sem fyrri línan í þessum "rímum" hafi átta að vera mjög rómantísk, en sú seinni ekki....

Love may be beautiful, love may be bliss,
But I only slept with you, cause I was pissed.


Roses are red, violets are blue, sugar is sweet, and so are you.
But the roses are wilting, the violets are dead, the sugar bowl's empty and so is your head.


I thought that I could love no other,
Until, that is, I met your mother.


Kind, intelligent, loving and hot,
This describes everything you are not.


I want to feel, your sweet embrace,
But don't take that paper bag, off of your face.


I love your smile, your face, and your eyes-
Damn, I'm good at telling lies!


My darling, my lover, my beautiful wife,
Marrying you, screwed up my life.


I see your face, when I am dreaming,
That's why I always wake up screaming.


My love, you take my breath away,
What have you stepped in, to smell this way.


My feelings for you, no words can tell,
Except for maybe "go to hell".


What inspired this amorous rhyme?
Two parts vodka, one part lime.



:: tyrkinn 10:29 [+] ::


Hvað skal ekki segja við lögregluþjón... (í boði Brenna)
1. I can't reach my license unless you hold my beer. (OK in Texas)
2. Sorry, Officer, I didn't realize my radar detector wasn't plugged in.
3.Aren't you the guy from the Village People?
4. Hey, you must've been doin' about 125 mph to keep up with me. Good job!
5. Are You Andy or Barney?
6. I thought you had to be in relatively good physical condition to be a police officer.
7. You're not gonna check the trunk, are you?
8. I pay your salary!
9. Gee, Officer! That's terrific. The last officer only gave me a warning too!
10. Do you know why you pulled me over? Okay, just so one of us does.
11. I was trying to keep up with traffic. Yes, I know there are no other cars around. That's how far ahead of me they are.
12. When the Officer says "Gee Son....Your eyes look red, have you been drinking?" You probably shouldn't respond with,"Gee Officer your eyes look glazed, have you been eating doughnuts?"



:: tyrkinn 09:18 [+] ::


Skortur á þorrablótsleysi
Tyrkjasystirin eldri býr í Álaborg í Baunalandi. Eins og flestir vita er bauninn búinn að skrúfa fyrir þorramatsinnflutning þangað og þykir það ákaflega miður. Sendi hún tyrkjanum þennan bálk:


Teksti: Valur Einarsson (ætti ekki að vera x hérna, hmmmm, tyrkjasystir?)
Lag: Svantes lykkelige dag - Benny Andersen/Povl Dissing


Sjá þennan þorrafund
þetta er döpur stund
tómlegt er trogunum í
því tollgæslupólití
bannar það strangleg' og býður því við
að borða íslensk svið.

Þeir kíkt höfð' í kassa þá
sem kjötmetið oní lá
og horfðust í augu við haus
og hákarlalyktin upp gaus,
með stífkramp' og riðu þeir stauluðust út
og settu á málið hnút.

Oft flytur trúin fjöll
en fráleitt þó hrútaböll,
við sendiráð sögðu þeir nei!
så hold da kæft fuss og svei,
þið getið étið það sem úti frýs
en hér við borðum grís.

Þorrablótsnefndin þá
þurfti að greina frá
víst er það voðalegt frat
að verð' að fá danskan mat
og hafa skal það sem að hendi er næst
en harla lítið kæst.

Svo hafa þau búðir þrætt
og þó fundið lítið ætt,
það fengust í ferlegri nauð
flísar af mögrum sauð (oná brauð)
en kaupmaður danskur hann dæsti og kvað:
"'I Danmark vi spiser mad".

"Se hvad vi har nu her
en hel gris og medister,
bamse og kylling så blød
så laver vi pølser ´i brød,
et lille styk' rugbrød og leverpostejmad
og så er alle glad".

Kveður sín kuldaljóð
Kári í jötunmóð
nú dug' engin vandræð' og vol
við lyftum upp glösum og "SKÅL!!"
Vér gleðjumst þó söknum við hrútspunga sárt
og senn er kaffið klárt.


5.2.03

:: tyrkinn 16:16 [+] ::


Ein skrýtla í boði Jensarans
In a mental institution, a nurse walks into a room and sees a patient acting as if he's driving a car.
The nurse asks him, "Charlie! What are you doing?"
Charlie replied, "Can't talk right now...I'm driving to Chicago!"
The nurse wishes him a good trip and leaves the room.
The next day the nurse enters Charlie's room just as he stops
driving his imaginary car and asks, "Well Charlie, how you doing?"
Charlie says, "I'm exhausted, I just got into Chicago and I need some rest."
"That's great," replied the nurse, "I'm glad you had a safe trip."
The nurse leaves Charlie's room, and then goes across the hall into Bob's room, and finds Bob sitting on his bed masturbating vigorously.
With surprise she asks, "Bob what are you doing!?"
To which Bob replies, "I'm screwing Charlie's wife -- he's in Chicago!"



:: tyrkinn 15:01 [+] ::


Nýtt lúkk
Tyrkinn er að spá í því að skipta um útlit á www.tyrkinn.com. Þar sem html færni tyrkjans er í lágmarki og þessi síða var unnin með "trial-and-error" forritun ofan á template sem tyrkinn fann á blogger.com eru möguleikarnir ekki endalausir og dettur tyrkjanum fyrst í hug að endurtaka leikinn og fá svokallað "skin" annars staðar og vinna út frá því. Flest svona "skin" eru reyndar ljótari en andskotinn og ekki mikið af einföldum og fallegum "skinnum". Við fyrstu athugun komu eftirfarandi til greina, þótt ekkert þeirra væri gallalaust:

Black Coffee
MidEvil Nights
Bo-ring

Annars er tyrkinn jafnvel að hallast á það að halda áfram með "trial-and-error" á þessa síðu, annars eru allar ábendingar og hugmyndir vel þegnar...



:: tyrkinn 12:52 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Klink"
Til þarf: Fólk, bjór (eða eitthvað annað áfengi), glas (lágt mjólkurglas, wiskýglas eða sambærilegt), tíkall eða fimmkall, borð
Ölvun: Meðal-Mikil
Staður: Heimahús (eða mjög "líbó" bar)
Flækjustig: Meðal

Flestir hafa sennilega heyrt um svipaðan leik, því þessi er býsna vinsæll víða. Leikmenn koma sér fyrir í kringum borð og glasið sett á mitt borðið. Svo reyna leikmenn að "skoppa" peningnum af borðinu og ofan í glasið. Ef tilraunin mistekst, á næsti maður leik. Ef hún heppnast hins vegar má sá skotfimi velja sér fórnarlamb sem þarf þá að drekka tiltekið magn af bjór (eða einhverju öðru) og má svo reyna aftur. Ef einhver gerist svo hittinn að hitta þrisvar í röð má hann búa til reglu. Nokkrar vinsælar reglur eru eftirfarandi:

* Má ekki segja drekka, drakk, drukkið o.s.frv.
* Bannað að benda
* Bannað að nota fornöfn viðstaddra (þ.e. verður að kalla alla öðrum nöfnum, Sbr. kalla Drykkjumanninn ekki skýrnarnafni heldur "Drykkjumanninn")
* Allir drekka eina einingu fyrir hverja skottilraun (þetta mun væntanlega flytja ölvunarstigið úr "meðal" í "mikil")
* Eða hvaða reglu sem er (notið hugmyndarflugið)

Ef einhver brýtur reglu hvenær sem er í leiknum verður sá hinn sami að sjálfsögðu að innbyrða drykk.

Tilbrigði (ef fólk vill breyta einhverju)

* Glasið sem skotið er í inniheldur áfengið sem þarf að drekka (getur orðið subbulegt)
* Ef peningurinn fer í glasabrúnina má reyna aftur (sbr. "stöngin bjargar" úr hinni sígildu einsnertingu)
* Leikmaður má "taka sénsinn" ef hann hittir ekki, þá reynir hann aftur og ef hann hittir má hann reyna aftur til að láta einhvern annan drekka, en ef hann hittir ekki þarf hann að drekka sjálfur
* Ef leikmaður "tekur sénsinn" og hittir ekki má hann reyna enn einu sinni, og ef það tekst ekki þarf hann að drekka t.d. heilan bjór án þess að stoppa.



4.2.03

:: tyrkinn 13:04 [+] ::


Drykkjuleikur Dagsins: "Ekkert"
Til þarf: 5 teningar, fólk, nóg af áfengi
Ölvun: Meðal
Staður: Hvar sem er
Flækjustig: Lítið

Fyrsti leikmaður kastar fimm teningum. Þá eru allir þristar teknir frá og restinni af teningunum kastað aftur. Ef maður fær enga þrista, heldur maður eftir lægsta teningnum og kastar restinni. Þetta er gert þar til allir teningar eru komnir til hliðar, og þá eru tölurnar lagðar saman, en þristarnir gilda þá sem núll. Þegar allir eru búnir að gera þetta, vinnur sá sem er með lægstu summuna og eiga þá hinir að drekka jafn oft (eða jafn margar einingar af áfengi) og summa sigurverarans segir til um. Sigurverari byrjar svo næstu umferð.



Dæmi:
Leikmaður A kastar og fær: 5,2,6,2,3 - tekur þristinn til hliðar og kastar aftur
fær þá 3,3,1,5 - tekur þristana til hliðar og kastar aftur
fær 5 og 2 - tekur tvistinn til hliðar og kastar aftur
fær 6 - tekur sexuna til hliðar og leggur saman
3,3,3,2,6 verður að 8 (þristarnir telja ekkert)

Þá kastar leikmaður B o.s.frv. , ef leikmaður C var með lægstu summuna 4 , þá þurfa allir nema C að drekka 4 sinnum (eða 4 sjússa)


3.2.03

:: tyrkinn 16:00 [+] ::


Hugtak dagsins: Náttborðsvísindi
Fyrir einhverjum árum heyrði tyrkinn fyrst talað um náttborðsvísindi og hefur hugtakið verið notað nokkrum sinnum síðan. Oft er nóg að minnast á það til að gera fólk snælduvitlaust og vafalaust verða einhverjir súrir að lesa þetta, því þetta kalla sennilega margir hinn ágætasta hroka. Náttborðsvísindi er þau vísindi eða fræðigreinar sem víða eru kenndar en nær væri að nema heima hjá sér af áhuga (og þar af leiðandi mætti finna slíka bókmenntir á náttborði fólks), en að leggjast í langskólagöngu yfir. Tyrkinn vill til dæmis setja heimspeki undir þennan flokk, og hefur það reynst frekar óvinsælt til dæmis hjá Drykkjumanninum sem var að skoða einhverja útgáfu af þessu (sem á einhvern óskiljanlegan hátt var tengt hugbúnaði eða tölvunnarfræði) og Herkúlesi sem lesið hefur sitthvað í þessum fræðum. Þetta var einnig það orð sem tyrkjanum datt fyrst í hug þegar tyrkjafrúin tjáði tyrkjanum að frænka sín hyggðist fara til baunalands að nema "kvennafræði" sem reyndar eru kennd hér á landi, en ekki sem fullt nám (e. major). Tyrkinn hefur a.m.k. ekki hugmyndaflug í það hvernig hægt sé að laga 3 ára nám að kvennfólki einu saman, og áttar sig ekki á því hvað "kvennafræðingar" gera sér til atvinnu úr þessu námi. Tyrkinn fór á stúfana til að rannsaka "kvennafræðina" á vef Háskóla Íslands og komst að því að núna heitir þetta víst kynjafræði og skiptist hún niður í kvennafræði, karlafræði og hinsegin fræði [þetta er ekki grín] og er einnig hluti af "nútímafræði". Nánar má lesa um þetta á vef HÍ. Og nú vantar bara "kommentakerfi"...





:: tyrkinn 14:44 [+] ::


Kjaftasaga
Þótt kjaftasögur séu vissulega synd mikil, fær þessi að flakka. Samkvæmt hinum "virta" netmiðli Sunday Mirror mun bjartasta von Íslands, Eiður Guðjohnsen, hafa haldið við sýningarstúlku, en vill ekkert kannast við málið í dag.



:: tyrkinn 12:42 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins - "Kóngar"
Til þarf: Spilastokkur, fólk, ýmis konar áfengi og bland (ekki bjór)
Ölvun: Meðal - Mikil
Staður: Hvar sem er
Flækjustig: Lítið

Mjög einfaldur leikur sem hægt er að spila hvar sem er og getur orðið mjög fyndinn. Leikmenn sitja í hring og einn gefur eitt spil á hvern sem snýr upp, og er það gert í hringi þar til einhver fær kóng. Sá sem fær þann kónginn fær að velja eina brennivínstegund. Svo er haldið áfram að gefa þar sem frá var horfið þar til annar kóngur kemur upp, sá sem fær hann fær að velja bland í það vín sem var valið. Svo er haldið áfram þar til þriðji kóngurinn kemur upp, sá sem fær hann býr til drykkinn eða þarf að borga fyrir hann ef þetta er spilað á bar. Svo er loks haldið áfram og sá sem fær síðasta kónginn í stokknum þarf svo að drekka herlegheitin. Þetta getur orðið skrautlegt ef leikmenn eru "frumlegir" við val á brennivíni og blandi, sérstaklega ef viðkomandi þarf að drekka sullið sjálfur. Góðar stundir.



:: tyrkinn 11:02 [+] ::


Helgarskýrslan
Eins og á horfðist var þetta róleg helgi. Þegar tyrkjafrúin fór í kjaftaklúbbinn skaut tyrkinn þaki yfir poppstjörnurnar þangað til þær fóru að vinna. Kínamatur pantaður frá Kínahofinu og bjór og rauðvín sötrað. Poppararnir fóru svo um 11 og tyrkinn sat eitthvað áfram mildur en fór svo tilölulega snemma að sofa og vaknaði snemma daginn eftir. Annars var lítið um að vera og leiddist tyrkjafrúnni það mikið á tímabili að hún bað tyrkjann um að fá að fara í spielstation í einhvern bílaleik. Var þá Gran Turismo og GTA3 fengnir að láni hjá Fritz, en auðvitað var frúin orðin leið eftir eina keppni eða svo, þannig að tyrkinn mun sennilega sitja einn að þessum snilldarleikjum næstu daga og vikur. Eitthvað var jú horft á handbolta og kom það tyrkjanum nokkuð á óvart að "strákarnir okkar" skyldu merja ólympíusætið á endanum. Það er gott mál, þá nennir maður að horfa á eitthvað á þessum blessuðu ólympíuleikum, því fátt er leiðinlegra en endalausar frjálsar íþróttir, fólk að hlaupa í hringi eða fólk að grýta sjálfu sér eða einhverjum hlutum eins langt og það getur. Gaman að sjá Króata vinna þetta, en þó ekki eins gaman og að sjá svíanna og baunanna falla svo snemma úr fjörinu, að sögn tyrkjafrúnnar var það aðeins formsatriði fyrir baunanna að komast í undanúrslit, hrokinn uppmálaður. Stöð 2 er búin að tryggja sér áhorf tyrkjalindarinnar á sunnudögum. Þar eru komnir nokkrir góðir þættir; 24 er helvíti góður þáttur með skemmtilegu konsepti (allt í rauntíma), boomtown er líka fínn þáttur, svo eru náttla Viltu vinna milljón og 60 mín sem er besti fréttaskýringaþátturinn til margra ára.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email