|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
febrúar 7, 2003
Fréttaskot (frá Brenna) Starfsmenn NASA hafa loks fundið svarta kassann úr geimskutlunni sem sprakk í vikunni eftir mikla leit og vandræðagang. Að sögn yfirmanns hjá NASA voru síðustu orð sem áhöfnin sagði þessa örlagaríku ferð eftirfarandi: "jæja þá, leyfum konunni að prufa..."
[Íslenskað úr erlendri frétt]
Jesss........
Drykkjuleikur dagsins: "Sokkið Glas"
Til þarf: Fólk, bjór, kanna og glös Ölvun: Lítil-Meðal Staður: Heimahús eða líbó bar Flækjustig: Lítið
Einfalldur leikur sem byggist á hæfni leikmanna. Hver leikmaður fær glas af bjór og eitt glas er sett á flot í könnuna sem innheldur slatta af bjór. E.t.v. þarf að setja smá bjór í það glas svo það fari ekki á hliðina. Leikmenn skiptast á að hella bjór úr sínu glasi í glasið í könnunni, 5 sek. þurfa að líða á milli "hellinga" (ath. allir verða að hella einhverju). Sá sem sekkur glasinu þarf að ná því upp úr könnunni og tæma það við fögnuð viðstaddra. Trikkið er að hella það miklu í glasið að næsti maður eigi erfitt með að bæta á það án þess að sökkva því.
Heimildamynd
Sjónvarpið sýndi í gær heimildarmynd um Michael Jackson sem mikið hefur verið í umræðu undanfarna daga, en myndin heitir "Living with Michael Jackson". Þar var dreginn upp afar vafasöm mynd af kappanum og greinilegt var að tilgangur myndarinnar var að draga upp einhvern skít eins og blaðamönnum einum er lagið. Blaðamaðurinn sem er breti og heitir Bashir náði einhvern veginn að fá Mækúl til að leyfa sér að hanga með sér um stund, og virtist sem svo að myndin ætti að snúast um hversu afbrigðilegur kappinn væri, en greinilegt var að Mækúl var ekki með á nótunum um að það væri tilgangurinn. Eins og flestir vita er kauði ansi skemmdur eftir erfiða æsku og skrautlegt líf, en tyrkjanum fannst myndin vera óþarflega gróf og illa vegið að kappanum. Enn fremur hefur tyrkinn ekki trú á að hann væri níðingur af neinni sort, og að afætum ýmiskonar væri að kenna fyrir sögusagnir og hleypidóma sem uppi hafa verið síðustu ár (hver man ekki eftir lögsókn á hendur honum). Hann er enginn snillingur í að fela það hvað hann er skrýtinn, en það ætti ekki að verða til þess að hann sé talinn öfuguggi. Skrýtinn maður nokk en enginn pervert að mati tyrkjans. Skamm Bashir.
febrúar 6, 2003
Drykkuleikur dagsins: "Rússnesk bjór-rúlletta"
Til þarf: Fólk, bjór í dósum Ölvun: Mikil (fer eftir hversu hratt er spilað) Staður: Heimahús (eða þar sem má subba vel út) Flækjustig: Lítið
Þessi leikur er mjög einfaldur og mjög "sillí" og þurfa leikmenn að vera í sérkennilegur stuði eða ástandi til að vilja spila hann. Í hverri lotu þarf eina bjórdós af sömu tegund á hvern leikmann. Ein dósin er tekin og hrist, hrist mikið og vel. Svo er dósunum ruglað þar til enginn veit hvaða dós er sú hrista og þeim dreift á milli leikmanna, ein á haus. Svo opna allir sínar dósir, og halda þeim nærri sér (bannað að halda þeim frá sér, eða bak við eitthvað). Sá "heppni" sem hlaut hristu dósina fær væntanlega mikið úr dósinni yfir sig, hinir hlæja og njóta sinna bjóra. Í sárabætur fær sá blauti að hrista næstu dós og er leikurinn endurtekinn. Leiknum er hætt þegar enginn getur hrist dósina.
Leikur dagsins: Slingshot Afar einfalldur en skemmtilegur leikur
Görn eða Olnbogi? (afar sérkennilegt "próf") í boði Brenna
Allir í grínstuði í dag Tyrkjafrúin sendi tyrkjanum þetta, en sagan segir að efnt hafi verið til keppni þar sem fyrri línan í þessum "rímum" hafi átta að vera mjög rómantísk, en sú seinni ekki....
Love may be beautiful, love may be bliss, But I only slept with you, cause I was pissed.
Roses are red, violets are blue, sugar is sweet, and so are you. But the roses are wilting, the violets are dead, the sugar bowl's empty and so is your head.
I thought that I could love no other, Until, that is, I met your mother.
Kind, intelligent, loving and hot, This describes everything you are not.
I want to feel, your sweet embrace, But don't take that paper bag, off of your face.
I love your smile, your face, and your eyes- Damn, I'm good at telling lies!
My darling, my lover, my beautiful wife, Marrying you, screwed up my life.
I see your face, when I am dreaming, That's why I always wake up screaming.
My love, you take my breath away, What have you stepped in, to smell this way.
My feelings for you, no words can tell, Except for maybe "go to hell".
What inspired this amorous rhyme? Two parts vodka, one part lime.
Hvað skal ekki segja við lögregluþjón... (í boði Brenna) 1. I can't reach my license unless you hold my beer. (OK in Texas) 2. Sorry, Officer, I didn't realize my radar detector wasn't plugged in. 3.Aren't you the guy from the Village People? 4. Hey, you must've been doin' about 125 mph to keep up with me. Good job! 5. Are You Andy or Barney? 6. I thought you had to be in relatively good physical condition to be a police officer. 7. You're not gonna check the trunk, are you? 8. I pay your salary! 9. Gee, Officer! That's terrific. The last officer only gave me a warning too! 10. Do you know why you pulled me over? Okay, just so one of us does. 11. I was trying to keep up with traffic. Yes, I know there are no other cars around. That's how far ahead of me they are. 12. When the Officer says "Gee Son....Your eyes look red, have you been drinking?" You probably shouldn't respond with,"Gee Officer your eyes look glazed, have you been eating doughnuts?"
Skortur á þorrablótsleysi Tyrkjasystirin eldri býr í Álaborg í Baunalandi. Eins og flestir vita er bauninn búinn að skrúfa fyrir þorramatsinnflutning þangað og þykir það ákaflega miður. Sendi hún tyrkjanum þennan bálk:
Teksti: Valur Einarsson (ætti ekki að vera x hérna, hmmmm, tyrkjasystir?) Lag: Svantes lykkelige dag - Benny Andersen/Povl Dissing
Sjá þennan þorrafund þetta er döpur stund tómlegt er trogunum í því tollgæslupólití bannar það strangleg' og býður því við að borða íslensk svið.
Þeir kíkt höfð' í kassa þá sem kjötmetið oní lá og horfðust í augu við haus og hákarlalyktin upp gaus, með stífkramp' og riðu þeir stauluðust út og settu á málið hnút.
Oft flytur trúin fjöll en fráleitt þó hrútaböll, við sendiráð sögðu þeir nei! så hold da kæft fuss og svei, þið getið étið það sem úti frýs en hér við borðum grís.
Þorrablótsnefndin þá þurfti að greina frá víst er það voðalegt frat að verð' að fá danskan mat og hafa skal það sem að hendi er næst en harla lítið kæst.
Svo hafa þau búðir þrætt og þó fundið lítið ætt, það fengust í ferlegri nauð flísar af mögrum sauð (oná brauð) en kaupmaður danskur hann dæsti og kvað: "'I Danmark vi spiser mad".
"Se hvad vi har nu her en hel gris og medister, bamse og kylling så blød så laver vi pølser ´i brød, et lille styk' rugbrød og leverpostejmad og så er alle glad".
Kveður sín kuldaljóð Kári í jötunmóð nú dug' engin vandræð' og vol við lyftum upp glösum og "SKÅL!!" Vér gleðjumst þó söknum við hrútspunga sárt og senn er kaffið klárt.
febrúar 5, 2003
Ein skrýtla í boði Jensarans In a mental institution, a nurse walks into a room and sees a patient acting as if he's driving a car. The nurse asks him, "Charlie! What are you doing?" Charlie replied, "Can't talk right now...I'm driving to Chicago!" The nurse wishes him a good trip and leaves the room. The next day the nurse enters Charlie's room just as he stops driving his imaginary car and asks, "Well Charlie, how you doing?" Charlie says, "I'm exhausted, I just got into Chicago and I need some rest." "That's great," replied the nurse, "I'm glad you had a safe trip." The nurse leaves Charlie's room, and then goes across the hall into Bob's room, and finds Bob sitting on his bed masturbating vigorously. With surprise she asks, "Bob what are you doing!?" To which Bob replies, "I'm screwing Charlie's wife -- he's in Chicago!"
Nýtt lúkk Tyrkinn er að spá í því að skipta um útlit á www.tyrkinn.com. Þar sem html færni tyrkjans er í lágmarki og þessi síða var unnin með "trial-and-error" forritun ofan á template sem tyrkinn fann á blogger.com eru möguleikarnir ekki endalausir og dettur tyrkjanum fyrst í hug að endurtaka leikinn og fá svokallað "skin" annars staðar og vinna út frá því. Flest svona "skin" eru reyndar ljótari en andskotinn og ekki mikið af einföldum og fallegum "skinnum". Við fyrstu athugun komu eftirfarandi til greina, þótt ekkert þeirra væri gallalaust:
Black Coffee MidEvil Nights Bo-ring
Annars er tyrkinn jafnvel að hallast á það að halda áfram með "trial-and-error" á þessa síðu, annars eru allar ábendingar og hugmyndir vel þegnar...
Drykkjuleikur dagsins: "Klink"
Til þarf: Fólk, bjór (eða eitthvað annað áfengi), glas (lágt mjólkurglas, wiskýglas eða sambærilegt), tíkall eða fimmkall, borð Ölvun: Meðal-Mikil Staður: Heimahús (eða mjög "líbó" bar) Flækjustig: Meðal
Flestir hafa sennilega heyrt um svipaðan leik, því þessi er býsna vinsæll víða. Leikmenn koma sér fyrir í kringum borð og glasið sett á mitt borðið. Svo reyna leikmenn að "skoppa" peningnum af borðinu og ofan í glasið. Ef tilraunin mistekst, á næsti maður leik. Ef hún heppnast hins vegar má sá skotfimi velja sér fórnarlamb sem þarf þá að drekka tiltekið magn af bjór (eða einhverju öðru) og má svo reyna aftur. Ef einhver gerist svo hittinn að hitta þrisvar í röð má hann búa til reglu. Nokkrar vinsælar reglur eru eftirfarandi:
* Má ekki segja drekka, drakk, drukkið o.s.frv. * Bannað að benda * Bannað að nota fornöfn viðstaddra (þ.e. verður að kalla alla öðrum nöfnum, Sbr. kalla Drykkjumanninn ekki skýrnarnafni heldur "Drykkjumanninn") * Allir drekka eina einingu fyrir hverja skottilraun (þetta mun væntanlega flytja ölvunarstigið úr "meðal" í "mikil") * Eða hvaða reglu sem er (notið hugmyndarflugið)
Ef einhver brýtur reglu hvenær sem er í leiknum verður sá hinn sami að sjálfsögðu að innbyrða drykk.
Tilbrigði (ef fólk vill breyta einhverju)
* Glasið sem skotið er í inniheldur áfengið sem þarf að drekka (getur orðið subbulegt) * Ef peningurinn fer í glasabrúnina má reyna aftur (sbr. "stöngin bjargar" úr hinni sígildu einsnertingu) * Leikmaður má "taka sénsinn" ef hann hittir ekki, þá reynir hann aftur og ef hann hittir má hann reyna aftur til að láta einhvern annan drekka, en ef hann hittir ekki þarf hann að drekka sjálfur * Ef leikmaður "tekur sénsinn" og hittir ekki má hann reyna enn einu sinni, og ef það tekst ekki þarf hann að drekka t.d. heilan bjór án þess að stoppa.
febrúar 4, 2003
Drykkjuleikur Dagsins: "Ekkert"
Til þarf: 5 teningar, fólk, nóg af áfengi Ölvun: Meðal Staður: Hvar sem er Flækjustig: Lítið
Fyrsti leikmaður kastar fimm teningum. Þá eru allir þristar teknir frá og restinni af teningunum kastað aftur. Ef maður fær enga þrista, heldur maður eftir lægsta teningnum og kastar restinni. Þetta er gert þar til allir teningar eru komnir til hliðar, og þá eru tölurnar lagðar saman, en þristarnir gilda þá sem núll. Þegar allir eru búnir að gera þetta, vinnur sá sem er með lægstu summuna og eiga þá hinir að drekka jafn oft (eða jafn margar einingar af áfengi) og summa sigurverarans segir til um. Sigurverari byrjar svo næstu umferð.
Dæmi: Leikmaður A kastar og fær: 5,2,6,2,3 - tekur þristinn til hliðar og kastar aftur fær þá 3,3,1,5 - tekur þristana til hliðar og kastar aftur fær 5 og 2 - tekur tvistinn til hliðar og kastar aftur fær 6 - tekur sexuna til hliðar og leggur saman 3,3,3,2,6 verður að 8 (þristarnir telja ekkert)
Þá kastar leikmaður B o.s.frv. , ef leikmaður C var með lægstu summuna 4 , þá þurfa allir nema C að drekka 4 sinnum (eða 4 sjússa)
febrúar 3, 2003
Hugtak dagsins: Náttborðsvísindi
Fyrir einhverjum árum heyrði tyrkinn fyrst talað um náttborðsvísindi og hefur hugtakið verið notað nokkrum sinnum síðan. Oft er nóg að minnast á það til að gera fólk snælduvitlaust og vafalaust verða einhverjir súrir að lesa þetta, því þetta kalla sennilega margir hinn ágætasta hroka. Náttborðsvísindi er þau vísindi eða fræðigreinar sem víða eru kenndar en nær væri að nema heima hjá sér af áhuga (og þar af leiðandi mætti finna slíka bókmenntir á náttborði fólks), en að leggjast í langskólagöngu yfir. Tyrkinn vill til dæmis setja heimspeki undir þennan flokk, og hefur það reynst frekar óvinsælt til dæmis hjá Drykkjumanninum sem var að skoða einhverja útgáfu af þessu (sem á einhvern óskiljanlegan hátt var tengt hugbúnaði eða tölvunnarfræði) og Herkúlesi sem lesið hefur sitthvað í þessum fræðum. Þetta var einnig það orð sem tyrkjanum datt fyrst í hug þegar tyrkjafrúin tjáði tyrkjanum að frænka sín hyggðist fara til baunalands að nema "kvennafræði" sem reyndar eru kennd hér á landi, en ekki sem fullt nám (e. major). Tyrkinn hefur a.m.k. ekki hugmyndaflug í það hvernig hægt sé að laga 3 ára nám að kvennfólki einu saman, og áttar sig ekki á því hvað "kvennafræðingar" gera sér til atvinnu úr þessu námi. Tyrkinn fór á stúfana til að rannsaka "kvennafræðina" á vef Háskóla Íslands og komst að því að núna heitir þetta víst kynjafræði og skiptist hún niður í kvennafræði, karlafræði og hinsegin fræði [þetta er ekki grín] og er einnig hluti af "nútímafræði". Nánar má lesa um þetta á vef HÍ. Og nú vantar bara "kommentakerfi"...
Kjaftasaga
Þótt kjaftasögur séu vissulega synd mikil, fær þessi að flakka. Samkvæmt hinum "virta" netmiðli Sunday Mirror mun bjartasta von Íslands, Eiður Guðjohnsen, hafa haldið við sýningarstúlku, en vill ekkert kannast við málið í dag.
Drykkjuleikur dagsins - "Kóngar"
Til þarf: Spilastokkur, fólk, ýmis konar áfengi og bland (ekki bjór) Ölvun: Meðal - Mikil Staður: Hvar sem er Flækjustig: Lítið
Mjög einfaldur leikur sem hægt er að spila hvar sem er og getur orðið mjög fyndinn. Leikmenn sitja í hring og einn gefur eitt spil á hvern sem snýr upp, og er það gert í hringi þar til einhver fær kóng. Sá sem fær þann kónginn fær að velja eina brennivínstegund. Svo er haldið áfram að gefa þar sem frá var horfið þar til annar kóngur kemur upp, sá sem fær hann fær að velja bland í það vín sem var valið. Svo er haldið áfram þar til þriðji kóngurinn kemur upp, sá sem fær hann býr til drykkinn eða þarf að borga fyrir hann ef þetta er spilað á bar. Svo er loks haldið áfram og sá sem fær síðasta kónginn í stokknum þarf svo að drekka herlegheitin. Þetta getur orðið skrautlegt ef leikmenn eru "frumlegir" við val á brennivíni og blandi, sérstaklega ef viðkomandi þarf að drekka sullið sjálfur. Góðar stundir.
Helgarskýrslan
Eins og á horfðist var þetta róleg helgi. Þegar tyrkjafrúin fór í kjaftaklúbbinn skaut tyrkinn þaki yfir poppstjörnurnar þangað til þær fóru að vinna. Kínamatur pantaður frá Kínahofinu og bjór og rauðvín sötrað. Poppararnir fóru svo um 11 og tyrkinn sat eitthvað áfram mildur en fór svo tilölulega snemma að sofa og vaknaði snemma daginn eftir. Annars var lítið um að vera og leiddist tyrkjafrúnni það mikið á tímabili að hún bað tyrkjann um að fá að fara í spielstation í einhvern bílaleik. Var þá Gran Turismo og GTA3 fengnir að láni hjá Fritz, en auðvitað var frúin orðin leið eftir eina keppni eða svo, þannig að tyrkinn mun sennilega sitja einn að þessum snilldarleikjum næstu daga og vikur. Eitthvað var jú horft á handbolta og kom það tyrkjanum nokkuð á óvart að "strákarnir okkar" skyldu merja ólympíusætið á endanum. Það er gott mál, þá nennir maður að horfa á eitthvað á þessum blessuðu ólympíuleikum, því fátt er leiðinlegra en endalausar frjálsar íþróttir, fólk að hlaupa í hringi eða fólk að grýta sjálfu sér eða einhverjum hlutum eins langt og það getur. Gaman að sjá Króata vinna þetta, en þó ekki eins gaman og að sjá svíanna og baunanna falla svo snemma úr fjörinu, að sögn tyrkjafrúnnar var það aðeins formsatriði fyrir baunanna að komast í undanúrslit, hrokinn uppmálaður. Stöð 2 er búin að tryggja sér áhorf tyrkjalindarinnar á sunnudögum. Þar eru komnir nokkrir góðir þættir; 24 er helvíti góður þáttur með skemmtilegu konsepti (allt í rauntíma), boomtown er líka fínn þáttur, svo eru náttla Viltu vinna milljón og 60 mín sem er besti fréttaskýringaþátturinn til margra ára.
|
|
|