|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
febrúar 14, 2003
Gaman gaman
Tyrkinn er búinn að taka ákvörðun um kaup á myndavél. Gripurinn er ekki af lakari gerðinni og hlýtur gríðar góða dóma víðast hvar. Keli poppari hefur verið settur í málið og ætlar að versla vélina í baunalandi þar sem þeir popparar eru að fara að leika á þorrablóti á morgun. Því er aldrei að vita nema tyrkinn fari að birta myndir hér við tækifæri.
Hér má sjá ansi ýtarlega umfjöllun um vélina (upp á ca. 24 síður með myndum og skýringum)
150.000 Ástralir mótmæla hugsanlegu stríði gegn Írak Að minnsta kosti 150.000 manns söfnuðust saman á götum Melbourne í Ástralíu til að mótmæla hugsanlegu stríði gegn Írak. Lögregla telur að Að minnsta kosti 150.000 manns söfnuðust saman á götum Melbourne í Ástralíu til að mótmæla hugsanlegu stríði gegn Írak. Lögregla telur að 150.000 manns hafi tekið þátt í mótmælunum en skipuleggjendur þeirra segja töluna vera 200.000. Þetta eru fjölmennustu aðgerðir sem gripið hefur verið til í Ástralíu í þágu friðar frá því menn gengu um götur landsins fyrir um 30 árum gegn stríði í Víetnam þar sem ástralskir hermenn börðust við hlið bandarískra.
Þetta er orðrétt frétt af mbl.is, og sjaldan hefur tyrkinn séð jafn illa skrifaða frétt, og það á mogganum sem allir vita jú að lýgur ekki... Annars eru þetta svolítið mögnuð mótmæli, hljómar betur en 10 hræður að raða sokkum í kringum alþingishúsið hér á Íslandi...
febrúar 13, 2003
Myndavél
Þessa stundina er tyrkinn að missa sig í hugleiðingum um stafrænar myndavélar. Einna mest er spennan um þetta kvikindi, Canon Powershot G3 sem ku vera hinn fínasti gripur...
Drykkjuleikur dagsins: "Snúningur"
Til þarf: Fólk, bjór, borð, pening (5 kall eða 10 kall) Ölvun: Lág Staður: Hvar sem er Flækjustig: Meðal
Þessi leikur krefst smá hæfni og einbeitingar og gengur varla þegar langt er liðið á drykkju. Leikmenn sitja við borð og einn byrjar leikinn. Sá hinn sami stillir peningnum upp á rönd og heldur honum með vísifingri þannig. Þá notar hann hina hendina (eða þá sömu ef hann vill) til að snúa honum (upp á rönd af sjálfsögðu) af stað yfir borðið. Um leið og hann "snýr honum" af stað kallar hann nafn einhvers annars sem situr við borðið. Sá sem kallað var á verður að velja um tvær aðgerðir:
A. Stoppa peninginn með vísifingri án þess að hann detti flatur B. "Smella" á peninginn (sem enn er á snúning) svo hann haldi áfram að snúast. Þá verður sá hinn sami að kalla nafn einhvers annars.
Ef sá sem "snýr" peningnum þannig að hann fari út af borðinu þarf að drekka. Ef peningurinn hættir að snúast og landir flatur áður en sá sem kallað var á nær að snúa honum áfram eða stoppa hann, verður sá hinn sami að drekka og sá sem snéri peningnum síðast byrjar aftur. Bæta má við reglu þess efnis að ef peningurinn stoppar ákveði hliðin (skjaldarmerkið eða fiskurinn) hvor drekkur.
febrúar 12, 2003
Áramótaheitið uppfyllt Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir er komið nýtt útlit á síðuna, og vonandi er það til batnaðar. Vinsamlegast notið græjuna hér til hægri til að koma með uppástungur um breytingar svo síðan verði nú sem fallegust. Góðar stundir
Breaking news! WASHINGTON POST JAN. 27, 2003 WASHINGTON D.C. (REUTERS) Early this morning a devastating fire burned down the personal library of President George W. Bush. Tragically, both books were lost in the conflagration. More poignantly, The President, due to his hectic schedule, had not found time to color in the second one.
Drykkuleikur dagsins: "Hraða-Klink"
Til þarf: Fólk, bjór, 2 peninga (5 kall eða 10 kall), 1-2 glös (lág glös, wisky glös eru góð), borð með hörðu yfirborði Ölvun: Meðal-Mikil Staður: Heimahús Flækjustig: Lítið Þetta er afbrigði af hinum klassíska "Klink" leik en þykir skemmtilegri ef óþolinmóðir leynast á meðal drykkjumanna. Nú er kominn hraði í leikinn og verða menn að vera á tánum ef menn vilja standa í lappirnar eftir leikinn. Grundvallar atriðið er það sama og í fyrrnefndum leik en núna skiptir tíminn máli og fylgir leiknum meiri djöfulgangur en þeim fyrri. Leikmenn sitja í kringum borð og er glasið sett í miðjuna. Peningana fá fyrst einhverjir tveir leikmenn sem sitja andspænis hvorum öðrum og er leikurinn hafinn. Þessir leikmenn reyna nú að "skoppa" peningunum af borðinu og ofan í glasið og mega reyna eins oft og þeir vilja. Um leið og leikmanni tekst að skjóta peningnum ofan í glasið réttir hann peninginn yfir á manninn sér á vinstri hönd og hann hefur leik. Þetta heldur svona áfram þar til einhver sem er með pening fær hinn peninginn líka og verður sá hinn sami að drekka fyrirfram ákveðið magn af bjór við fögnuð viðstaddra. Svo hefst leikurinn aftur á sama hátt. Ef margir eru að spila leikinn getur verið betra að hafa tvö glös, þá réttir sá sem nær pening í glasið bæði peninginn og glasið til næsta manns.
Gláp
Endalaus tími virðist fara í sjónvarpsgláp í tyrkjalindinni sem er varla frásögu færandi er fær þó að flakka hér. Er þetta komið í það mikinn vana að venjulega er setið fyrir framan kassann fram á nótt þrátt fyrir misjafnt sjónvarpsefni. Þetta er frekar leiðinlegur ávani, að glápa á hvað sem er á meðan það er ekki innlit-útlit eða sápuóperur. Fyrir vikið fær náttúrulega annað að sitja á hakanum, svo sem heimilisbókhaldið og smálegar viðgerðir heimafyrir. Stundum stendur tyrkinn sig meira segja að því að klára mökk-súrar bíómyndir út af því einu að hann slysaðist til að horfa á byrjun þeirra. Keypt var ákrift af stöð 2 fyrir nokkru síðan og vill tyrkinn kenna henni um hluta af þessum glataða tíma, því þar er yfirleitt eitthvað sæmilegt að glápa á en skjár 1 virðist vera að missa flugið þessa dagana og lítið þar að hafa orðið. Allir "veruleika" þættirnir eru þræddir orðið, en heimilisfólk virðist ekki ætla að fá leið á þeim einhverra hluta vegna, og þá allt frá Piparveininum á skjá einum til Amazing race á stöð 2. Það væri bara alveg ágætt að fá frí á fimmtudögum eins og í den, þá mundi maður asnast til að gera eitthvað annað, jafnvel skella sér á brettið eða átta sig á því af hverju peningar sogast út af bankareikningum.
febrúar 11, 2003
Tyrkinn hirðfífl í fyrra lífi?....

Hvað varst þú í fyrra lífi?
febrúar 10, 2003
Drykkuleikur dagsins: "Skellur"
Til þarf: Fólk, Bjór, spil Ölvun: Mikil Staður: Heimahús Flækjustig: Lítið
Mjög einfalldur leiku sem getur orðið ansi skrautlegur, byggir á athygligáfu leikmanna og hraða. Betra er að hafa fleiri en færri keppendur. Einn er valinn "díler" en í hverri umferð skal valinn nýr slíkur, því æskilegt er að dílerinn sé ekki með á meðan hann gefur (hann stendur nefnilega verr að vígi en aðrir). Sá er gefur (gjafmaður?) stokkar spilin og flettir síðan einu í einu upp í bunka á mitt borðið og segir upphátt hvaða tala er á spilinu ("sjöa" eða "kóngur"). Þegar tvö "eins" spil koma upp í röð (t.d. tvær fimmur) eiga leikmenn að reyna að vera fyrstir til að leggja hönd sína ofan á bunkann (þessu mætti frekar lýsa sem "skella höndinni á bunkann"), en sá sem fyrstur er fær þann heiður að mega útdeila drykkjum í samræmi við töluna á spilinu (drottning er að sjálfsögðu 12 o.s.frv.) til annarra leikmanna að eigin vild. Þegar gjafmaður er búinn með öll spilin í bunkanum, skal næsti leikmaður taka við, stokka og hefja leikinn að nýju. Hægt er að bæta við ýmsum reglum til gamans, t.d. er hægt að láta alla vera með "skelli" höndina bak við bak þegar verið er að fletta, eða þá að það megi skella þegar sami "liturinn" komi tvisvar í röð (t.d. spaði tvisvar í röð) eða þegar þegar spil koma í réttri eða öfugri röð (þ.e. nía og tía , eða fjarki og svo þristur).
Ýtarefni: Notkun bjórs í drykkjuleikjum Þegar bjór er notaður í drykkjuleikjum vill það oft vera á reiki hvað "einn drykkur" eða "ein eining" skuli vera mikill bjór. Gott er að nota "puttaregluna" til þess að skera um magnið í slíkum tilvikum. Þá eru fingurnir lagðir utan á bjórglas þannig að efsti fingurinn nemi við yfirborðið á bjórnum. Þegar þannig skal drekka t.d. "tvær einingar" eða tvisvar er ágætt að miða við tvo putta utan á glasinu, þ.e. drekka þar til fyrirborðið er komið undir annan puttan utan á glasinu (þ.e. yfirborðið komið undir löngutöng). Þetta má af sjálfsögðu einnig nota á blandað brennivín, en í báðum tilvikum er nauðsynlegt að setja slík viðmið áður en leikur hefst. Góðar stundir.
Fyrir þá sem velt hafa fyrir sér textanum úr Immigrant song (Led Zeppilin)
|
|
|
|
|