Tyrkinn Rausar // Alltaf hress, alltaf myndarlegur, alltaf tyrkinn... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins //
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

febrúar 21, 2003

:: tyrkinn 11:25 [+] ::

Fyrir þá sem ekki hafa séð "Asíska Prinsinn" er algjört möst að kíkja á þetta



:: tyrkinn 11:17 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Grænmetisleikurinn"
Til þarf: Fólk, brennivín
Ölvun: Meðal
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið
Þessi leikur er algjör klassík og eflaust hafa margir spilað hann gegnum tíðina. Hann má leika hvar sem er og er gott ef fólk er búið að sturta svolítið í sig áður en hann er leikinn, enda er hann svolítið "sillí". Markmið leiksins er að tala án þess að sýna tennurnar, þ.e. varirnar eiga að hylja tennurnar allan tíman. Í upphafi leiks velja allir leikmenn sér einhverja grænmetistegund, og mun það grænmeti vera nafn hvers leikmanns. Sá sem byrjar segir svo nafn sitt tvisvar og segir svo nafn annars tvisvar. Sá segir nafn sitt líka tvisvar og "bendir" svo á annan með sama hætti. Afar einfallt:

Dæmi:
Fyrsti leikmaður: Blómkál, blómkál (hans nafn), Gulrætur Gulrætur
Næsti leikmaður: Gulrætur, gulrætur, Gúrka, Gúrka
o.s.frv.

Leikmenn munu líta út svo asnalega (og líða þannig) og fyrr eða seinna (nema liðið sé þeim mun súrara) munu leikmenn byrja að hlæja og þar með sýna í sér tennurnar. Ef einhver, eða allir, sýna í sér tennurnar við hláturinn þurfa þeir hinir sömu að drekka vel. Ef einhver getur haldið vörunum yfir tönnunum í hlátrinum, hefur sá hinn sami greinilega ekki drukkið nógu mikið fyrir leikinn. Þetta hljómar allt skrítið, en getur gert ljómandi góða stemningu og þar af leiðandi drykkju.



:: tyrkinn 08:52 [+] ::

How decisions are made [Frá tyrkjafrúarbróðurnum]
President George W. and Colin Powell are drinking in a pub close to Old Town Square in Prague. A guy walks in and asks the bartender,"Isn't that Bush and Powell sitting over there?" The barman says, "Yep, that's them." So the guy walks over and says, "Wow,this is a real honor. What are you guys doing in here?" Bush says, "We're planning WW III," and the guy says, "Really? What's going to happen?" Bush says, "Well, we're going to kill 40 million Iraqis this time and one blonde with big tits." A little perplexed the guy exclaimed, "A blonde with big tits? Why kill a blonde with big tits?" Bush turns to Powell, punches him on the shoulder and says, "See, smart ass?! I told you no one would worry about the 40 million Iraqis.


febrúar 20, 2003

:: tyrkinn 14:57 [+] ::

You can't own porn!
Fritz Gerber rakst fyrir tilviljun á disk nokkurn á mp3 formi, sem er ekki frásögu færandi, nema fyrir það að Fritz og Tyrkinn bjuggu til þennan disk af spólum sem Fritz keypti í Lundúnum fyrir mörgum árum. Diskurinn var aðeins búinn til í örfáum eintökum, en birtist svo á netinu mörgum árum seinna og dettur fyrir augu Fritzarans. Í samtali tyrkjans og Brenna sagði Brenni tyrkjanum frá afar skemmtilegri kenningu sem tengist þessu, þótt hún nái yfir ólíkt efni. Kenningin er eitthvað á þá vegu: "Porn er ekki í einkaeign neins, heldur sameign allra karlmanna í heiminum. Maður er alltaf með það í láni, annað hvort frá vinum, ókunnugum, eða kynslóðinni á undan". Nokkuð til í því....



:: tyrkinn 14:15 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Turndrykkja"
Til þarf: Fólk, bjór, léttvín, skot (tekíla eða sambærilegt), sterkt áfengi, bland, glasamottur, ýmis glös, teningur
Ölvun: Mikil (fer þó eftir "heppni")
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið-Meðal
Það getur myndast mikil stemning í þessum leik, en smá áhætta fylgir honum varðandi brotin glös ef ekki er farið varlega (sem er bara gott, ekki?). Byrjað er á því að búa til turn af glösum, og eru glasamottur (úr pappa) settar á milli glasana (röðin er frá toppi turnarins og niður):

1. Skot (Tekíla, epplasnafs, gammeldansk, hot&sweet eða sambærilegt) (er efst á turninum)
2. Lítið glas af blönduðu áfengi (whiskey sour, manhattan eða hvað sem er)
3. Hátt glas af blönduðu áfengi (Tom Collins, G&T, Kapteinn í kók eða hvað sem er)
4. Léttvínsglas (Rauðvín, hvítvín eða rósavín (sem er náttúrulega bara fyrir konur))
5. Stórt Bjórglas (kemur neðst)

Leikmenn kasta teningnum til skiptis. Sá sem fyrstur fær 6 drekkur skotið. Sá sem kastar næst 6 fjarlægir glasamottuna sem var undir skotinu. Sá næsti sem fær 6 drekkur litla bland-glasið, næsti tekur næstu glasamottu o.s.frv. Þegar einhver er að drekka (eða fjarlægja glasamottu) skal beðið eftir honum (og reyndar æskilegt að hvetja drekkandann til dáða), nema þegar bjórinn er drukkinn. Þegar einhver "heppinn" er að drekka bjórinn fer allt á fullt, því ef einhver nær að kasta 6 áður en sá leikmaður nær að klára bjórinn þarf bjórdrykkjumaðurinn að borga fyrir allan turninn (eða greiða eitthvað ef leikið er í heimahúsi, eða jafnvel framkvæma eitthvað annað). Hins vegar ef bjórdrykkjumaðurinn nær að klára bjórinn áður en einhver kastar sexu þarf sá sem næstur kastar sexu að borga fyrir allt gumsið. Eins og gefur að skilja getur þetta skapað bæði mikla drykkju og mikla stemningu.



:: tyrkinn 11:16 [+] ::

Dagblöð
Þessa dagana virðist vera gríðarleg samkeppni á dagblaðamarkaðinum hér heima. Þau fáu skipti sem heimasíminn hringir í tyrkjalindinni er það oftar en ekki einhverjir sölumenn sem tyrkinn hefur yfirleitt nokkra samúð með, því ekki vildi tyrkinn vinna við slíka símasölu. Annað hvort eru þar á ferð sölumenn fyrir einhver tryggingafélög, ráðgjafar fyrir lífeyrissparnað eða einhverjir að selja áskrift af blöðum eða tímaritum. Tyrkjafrúin lét einhvern tíman selja sér áskrift af einhverju glanstímariti frá Fróða, og skipti um blað eftir nokkurn tíma. Fróði tók á það ráð að rukka fyrir bæði tímaritin og senda bæði, og eftir flutningana fara öll þessi blöð ennþá á Ránargötuna, ekki alveg að fylgjast með fólksflutningum þar á bæ. Oftar er þó verið að selja dagblöð og eru bæði DV og Mogginn búin að vera með tilboð í lengri tíma og bjóða ýmis gylliboð. Ekki er mikið varið í DV og þar er Mogginn öllu skárri. Fyrir nokkru síðan hringdi einhver frá mogganum og bauð ókeypis áskrift í einn mánuð þar sem þeir lofuðu að einungis væri hringt eftir mánuðinn og boðin full áskrift, en ekki farið að rukka eftir mánuð eins og margir hafa stundað í gegnum tíðina. Tyrkjunum þótti þetta nú vera ágætis tilboð og áhættulaust og tóku þessu með þökkum. Mogginn barst í pósthólfið á hverjum morgni, en auðvitað var hann aldrei sóttur fyrr en komið var heim úr vinnunni. Fyrir vikið var kannski eitt tölublað af tæplega 30 lesið og safnaðist þetta upp í hauga sem allir voru á leiðina á sorpu fyrr eða síðar. Því var ákriftin afþökkuð þegar hringt var að mánuði liðnum. Nú um daginn var svo hringt aftur, um þremur mánuðum eftir að tyrkjarnir afþökkuðu síðustu áskrift og asnaðist tyrkinn til að taka þessu tilboði þeirra um frían mánuð og hefur ekki verið lesið eitt einasta tölublað hingað til. Verst að enginn arinn skuli vera í tyrkjalindinni, annars kæmi þetta sér vel...



:: tyrkinn 10:47 [+] ::

Þetta eru sannar spurningar úr þjónustuveri Landssímans/BFG (að sögn tölvupósta a.m.k....)

[Frá Tyrkjafrúnni & Jensaranum]

1# Ég er að flytja frá Akureyri til Reykjavíkur í eitt ár. Er hægt að flytja gsm númerið með sér til Reykjavíkur eða eða þarf ég að fá mér nýtt númer???

2# Nei, nei. Þetta er eitthvað bilað hjá ykkur. Ég er búinn að hafa þetta símtæki í 40 ár, og hann fer nú varla að bila úr þessu!!!!!

3# Ég er að fara til USA á morgun, og ætla að taka GSM símann minn með. Þarf ég að taka hleðslutækið með mér líka.

4# Þegar maður er staddur í útlöndum, og hringir heim, þarf maður að setja 354 fyrir framan, en hvað þarf maður að setja fyrir framan þegar maður er að senda tölvupóst erlendis frá???

5# Ég er með breiðvarpið, og horfi mest á spænsku stöðina. Hún er svarthvít hjá mér, og ég er að horfa á matreiðsluþátt. Veistu nokkuð litinn á kökunni sem er á skjánum núna???

6# Hvað á þetta að þýða að loka símanum. Ég gerði allt upp hjá ykkur fyrir nokkrum mánuðum síðan.

7# Ég var að pæla í að gefa stráknum mínum LSD. Getið þið reddað því fyrir mig? (ADSL)

8# Ég stillti GSM símann minn á þýsku, en þegar ég sendi þýskri vinkonu minni SMS, fær hún þau bara á íslensku!!!

[Tyrkinn tekur enga ábyrð á uppruna eða sannleiksgildi þessa]


febrúar 19, 2003

:: tyrkinn 12:04 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Nafnaleikurinn"
Til þarf: Fólk, Bjór
Ölvun: Meðal
Staðsetning: Hvar sem er
Flækjustig: Meðal
Leikmenn sitja í hring (eins og svo oft áður) og einhver byrjar á að segja nefn einhvers sem telst vera frægur, eða að minnsta kosti frægur innan hópsins er situr við drykkjuna. Sá sem situr á vinstri hönd þess sem fyrst nefndi einhvern verður þá að segja nafn einhvers frægs sem byrjar á fyrsta staf í seinna nafni fyrsta nafnsins. Ef þetta kann að hljóma flókið, er það rangur misskilningur... Hér er dæmi:

Björgvin Halldórsson (eða Bo Hall eins og hann kýs að kalla sig)
Homer Simpson
Samuel Jackson
Jón Ólafsson (góði eða vondi)
Ómar Ragnarsson
Ralph Lauren
Leifur Eiríksson


Ef einhver leikmaður getur ekki sagt eitthvað nafn STRAX þá verður sá hinn sami að drekka stöðugt þangað til hann getur fundið gilt nafn. Leikurinn stoppar aldrei, heldur áfram stöðugt þangað til honum er hætt (uppköst eða óskiljanleg þvoglumæli gætu t.d. verið löglegur endir á leik). Ef einhver segir nafn þar sem fornafn og eftirnafn byrja á sama staf (t.d. Þorbergur Þórðarson) þá snýst röðin við. Sama gerist ef einhver segir nafn sem venjulega stendur eitt og sér (Madonna, Jesús, Megas) og gengur þá röðin í hina áttina. Einnig er hægt að bæta við slíkum reglum eftir vild (nota ímyndunaraflið).


febrúar 18, 2003

:: tyrkinn 12:39 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Ofur-klink"
Til þarf: Fólk, bjór, borð (hart yfirborð), nokkur glös og pening (5 kall eða 10 kall)
Ölvun: Mikil - Mjög mikil
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið
Þetta er önnur útgáfa af klink leiknum víðfræga. Einhvejir kjósa að kalla hann "ljósakróna" en tyrkinn kann betur við "ofur-klink" nafnið einhverra hluta vegna. Eitt glasið (wisky glas eða sambærilegt lágt glas er gott) er fyllt af bjór (kalla mætti það glas "Bjórbombuna") og sett á mitt borðið. Svo er sett svolítið af bjór í eitt glas fyrir hvern leikmann og þessum glösum raðað í kringum fulla glasið á borðinu, allir verða að vera með það á hreinu hvaða glas tilheyrir þeim. Leikurinn hefst svo á því að einn leikmaður reynir að "skoppa/skjóta" peningnum í eitthvert glasana. Ef hann hittir ekki þarf hann að tæma sitt glas (sem að sjálfsögðu er fyllt aftur). Ef hann hittir, þá þarf eigandi þess glass sem peningurinn lendir í að tæma það glas. Ef peningurinn lendir í "bjórbombunni" (fulla glasinu) þurfa allir að drekka, og nú gildir að hafa hröð handtök, því sá sem er síðastur að tæma sitt glas og setja það aftur á borðið fyrir framan sig, þarf að tæma "bjórbombuna" líka.



:: tyrkinn 12:24 [+] ::

Gripurinn kominn í hús
Tyrkinn sótti heim Hrafnkel í gær og fékk myndarvélina sem keypt var í baunalandi um helgina. Tyrkinn var orðinn mjög spenntur að fikta í græjunni og fékk loks tækifæri til þess í gær. Auðvitað þurfti bölvaður manjúallinn að vera á baunamáli sem gerir allt fikt á svona græju erfiðara og vonandi er hægt að sækja hann á ensku á netinu. Svo er bara að kynna sér undirstöðuatriði ljósmyndunar betur og vinda sér í keppnis-fikt. Tyrkinn vill þakka Hrafnkeli fyrir reddinguna aftur, því einhverjir 10 þús kallar spöruðust með þessum tilfæringum, enda bara okrarar hér á landi, og ekki er fríhöfnin mikið skárri hvað verð snertir. Hrafnkell keypti sér líka afar fagran Gibson spaða sem ætti að gera sig. Það á reyndar eftir að sýna sig hvort blessuð heimilis tölvan í tyrkjalindinni ráði við myndavélina, því USB portin á henni voru ekki að virka þegar tyrkinn fékk sér fjöltengisnettengingu um árið. Svo þarf eitthvað að rýma fyrir fótósjopp og meðfylgjandi hugbúnaði fyrir myndavélina. Endar svo sjálfsagt með annað hvort nýrri tölvu eða a.m.k. nýjum hörðum disk og skrifara, má sennilega beyta pí reglunni á þessar æfingar allar saman.


febrúar 17, 2003

:: tyrkinn 14:45 [+] ::

Bílagrín (hljóð og mynd)



:: tyrkinn 12:05 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Billabjór"
Til þarf: Fólk, bjór, ballskáksborð
Ölvun: Mikil
Staðsetning: Billiardstofa, bar með billaborði
Flækjustig: Meðal
Þennan leik verður að spila þar sem aðstaða er til, á billiardstofu og er Players í Kópavogi tilvalinn. Hann krefst smá hæfileika í billiard og getur gert hefðbundinn billiard leik skemmtilegan.
Í raun er leikurinn afbrigði af billiard, en þó er kúlunum raðað upp á ólíkan hátt. Öllum lituðu kúlunum er raðað upp í hóp yfir punktinum á borðinu. Hópurinn ætti að líta út svona: (Svarta kúlan er á punktinum)

...7
1 8 2
3 6 4
...5 (þessi kúla er tvílit)

Tvílitu kúlurnar eiga að fara á hliðarnar (sjá mynd fyrir neðan), á aftari hluta borðsins:

O===============O
|................................... |
|................................... |
|................................... | * = Tvílitar kúlur
(.................................... )
|*.................................*| X = Hópur einlitra kúlna
|*................X...............*|
|*................*...............*|
O===============O

Ef leikmaður skýtur einlitri kúlu fær hann að útdeila jafn mörgum drykkjum (sopum) og talan á kúlinni gefur til kynna. Ef leikmaður setur tvílita kúlu í vasa þarf hann að drekka jafn marga gúlsopa og tala þeirrar kúlu gefur til kynna. Ef hvítu kúlunni er skotið niður (eða hann hittir ekki neina kúlu) þarf sá hinn sami að klára það sem eftir er í glasinu sínu. Þegar allar tvílitu kúlurnar eru komnar af borðinu er leikurinn búinn. Þangað til það gerist og það kemur upp að það er aðeins ein einlit kúla eftir, eru allar einlitu kúlurnar settar aftur á sinn stað í hópinn (án kúlu númer 5 sem er tvílit).



:: tyrkinn 11:14 [+] ::

Út að borðaTyrkinn og tyrkjafrúin gerðu sér dagamun á laugardaginn og skelltu sér á Skólabrú. Óhætt er að mæla með þessum stað fyrir þá sem ekki þekkja, þegar á að fara í rómantískan kvöldverð. Tyrkinn fékk sér reykta villibráð í forrétt (Súlu, lunda og svartfugl) og Karfa með humargúi í aðalrétt og var það lostæti. Tyrkjafrúin fór í franska lauksúpu og piparsteik og var hún einnig ánægð með sitt. Rólegur og þægilegur staður og fín þjónusta.



:: tyrkinn 11:09 [+] ::

Að spila spil er góð skemmtun...
Tyrkinn fór á laugardaginn í verslun Eymundsson og keypti afar gott spil er nefnist "Catan-Landnemarnir" (e. Settlers of Catan). Gunnhildur hafði mælt með spilinu um jólin eftir að hafa spilað það með fjölskyldunni sinni, og hafði tyrkinn einnig kynnt sér málið á netinu og litist vel á. Spilið minnir nokkuð á nokkra góða tölvuleiki eins og Settlers leikinn, og má jafnvel tengja það við leiki eins og Civilization eða Age of Empires. Það gengur út á að tryggja sér svæði á leikborðinu og safna hráefni til frekari uppbyggingar (við, ull, korn, leir og málma), og keppa við aðra leikmenn um að vera fyrstur til að ná sér í 10 stig. Einhver þekktur þjóðverji hannaði spilið fyrir nokkrum árum og hefur það hlotið nokkur verðlaun síðan. Spilið var prufukeyrt á laugardaginn, og fór tyrkinn í heimsókn til Gerber fjölskyldunnar og spilaðar tvær umferðir þar til hætt var um 5 leytið um nóttina. Margrét vann fyrstu umferðina og tyrkinn þá síðustu og voru allir ánægðir með leikinn. Eitthvað hefur þetta setið í Fritz og Margréti því morgunin eftir fékk tyrkinn sms skeyti þar sem spurt var hvort tyrkinn hefði nokkuð dreymt spilið en þau dreymdu víst bæði spilið eftir nóttina. Í gærkvöldi fór því tyrkinn og tyrkjafrúin aftur til Gerberanna og aftur var spilað. Tyrkinn er á því að gaman sé að spila góð borðspil og er auðveldlega hægt að gera góða kvöldstund úr góðum spilum. Sérstaklega má þar nefna Risk sem er algjör klassík, jú þetta Catan spil, Scrabble er einnig gott, svo og Hringadróttins spilið sem tyrkinn keypti um jólin. Alla vega er óhætt að mæla með þessu spili og má lesa meira um það hérna og einnig má spila net útgáfu af leiknum hérna. Góðar stundir.



:: tyrkinn 10:40 [+] ::

Tyrkinn fer í leikhús
Á föstudaginn fór vinnuhópur tyrkjafrúnnar í leikhús og var mökum boðið með. Sýningin "Sól og Máni" varð fyrir valinu sem sýnd er í Borgarleikhúsinu. Sagan segir að Karl Ágúst Úlfsson hafi skrifað handritið eftir forskrift frá Guðmundi gítarleikara Sálarinnar og leikur Sálin tónlistina í sýningunni og er raunar í ansi stóru hlutverki þar. Söguþráðurinn er ansi ostalegur að mati tyrkjans og í stuttu máli gengur hann út á stúlkuna Sól sem aldrei hefur brosað og engilinn Mána sem gerir það að hlutverki sínu að fá hana til að brosa. Máni þessi fellur til jarðar þegar málleysingi bendir á hann og úr verður ansi sérkennileg blanda af glensi og uber-dramatík yfir brosleysi stúlkunnar. Eins og við mátti búast er ansi mikið af því að fólk bresti í söng og dans (e. break into song and dance....) og er fyrir vikið mikið um samhæfð dansatriði, en tyrkinn er ekki mikið fyrir slíkt. Reyndar er réttast að gera þann fyrirvara á þessu öllu að tyrkinn er hvorki fyrir söngleiki, né leikhús yfir höfuð, og ætti fólk að hafa það í huga þegar þetta er lesið. Nokkuð var um ágætis brandara inn á milli sem héldu sýningunni gangandi, þótt endalausar vísanir í texta sálarinnar hafi gerst þreyttir þegar líða fór á sýninguna (allt frá "sjúbb-sjúbb-sjarei" til "þið verðið eflaust á endanum hjón") og virtist stundum sem svo að handritið hefði verið skítamixað úr textabrotum sálarinnar, en það virtist þó falla vel í kramið hjá áhorfendum flestum. Undirspil Sálarinnar var þó gott og mörg laganna úr sýningunni sem finna má víst á nýlegum diskum voru meðal betri laga sveitarinnar, og allur hljóðfæraleikur var til fyrirmyndar, en Jón Ólafsson hinn góði er titlaður tónlistarstjóri og lék á hljómborð og orgel með sálardrengjum. Leikararnir voru misgóðir í hlutverkum sínum og þótti tyrkjanum Bergur Þór Ingólfsson sem Máni og Guðmundur Ólafsson sem Ófeigur standa sig best. Stefán Hilmarson var eðlilega besti söngvarinn þótt hann léki ekki eiginlega, en nokkrir háir tónar hjá leikurunum ollu vafasömum óróa í huga tyrjans. Tyrkjanum fannst fyrri hálfleikur vera ágætur, en eftir það var þetta orðið full mikið af hinu "góða" og þorir aðeins að mæla með þessu fyrir gallharða sálar-aðdáendur og þá sem hafa gaman af leikhúsi og söngleikjum yfir höfuð. Þeir sem ekki hafa gaman af slíku mega ekki búast við að "sjá ljósið" eftir þetta stykki, enda ekki mikið að muna eftir.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Mjuzik vikunnar

Eldra