|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
febrúar 28, 2003
Klaufi
Ýmislegt gekk á afturfótunum í gær hjá tyrkjanum. Að venju eru leiknar umferðir í Landssokkadeildinni á fimmtudögum og var tyrkinn búinn að hóta leikmönnum þar öllu illu þegar tyrkinn ætlaði að sækja sín fyrstu stig þar í langan tíma (tyrkinn vermir neðsta sætið í deildinni). Þetta fór þó ekki eins og tyrkinn var búinn að plana því í djöfulgangi tyrkjans fór hann einn illa út úr því, sköflungar hans og Fritz Gerbers rákust all harkalega saman og lá tyrkinn eftir en Fritz fann lítið fyrir því. Þegar tyrkinn skreið út af leikvelli eftir 50 mín hlaup og asa fór hann að fölna og sótti flökurleiki og svimi að kappanum í bland við sáran sköflung. Eftir leikinn fór tyrkinn heim og hennti annars ágætum plokkfisk í ofninn, en náði einhvern veginn að brenna sig á græjunni og steikja á sér þumalinn. Seinna náði hann að dúndra olnboganum í dyragátt og toppaði svo kvöldið með því að hálf missa spræt glas og grípa það þannig að það skvettist jafnt yfir nær alla stofuna í tyrkjalindinni. Ágætt stundum að vera ekki heilaskurðlæknir eða eitthvað því um líkt...
Drykkjuleikur dagsins: "21 ás"
Til þarf: Fólk, brennivín, 5 teninga Ölvun: Meðal - Mikil Staðsetning: Bar Flækjustig: Meðal Þennan leik er gott að spila þegar fólki leiðist á bar. Einfaldur og engin vafaatriði. Einn leikmaður byrjar á því að kasta öllum 5 teningum, og eru allir ásar sem koma upp taldir og lagðir saman. Næsti leikmaður kastar teningunum og leggur alla ása við þá sem komnir voru áður. Sá leikmaður sem kastar sjöunda ásnum fær að velja eitthvað skot sem drukkið er í lok lotunnar. Sá sem kastar 14. ásnum fær þann vafasama heiður að borga fyrir skotið. Sá sem kastar 21. ásnum drekkur skotið. Þegar talan er komin upp í 17 ása fer teningunum að fækka, þannig að þegar er verið að kasta fyrir 21. ásinn er aðeins einum kastað, sbr töfluna hér að neðan:
Ásar komnir / teningum kastað 1-16 / 5 17 / 4 18 / 3 19 / 2 20 / 1 21 - Þú drekkur skotið
febrúar 27, 2003
Drykkjuleikur dagsins :"Trivial Pursuit drykkja"
Til þarf: Trivial Pursuit spil, fólk, bjór Ölvun: Meðal Staðsetning: Heimahús Flækjustig: Lítið Þetta er í raun viðbót við venjulegt Trivjél spil og ætti að gera annars venjulegt Trivjél kvöld að aðeins meira fjöri. Reglurnar eru afar einfaldar, ef maður svarar spurningu rangt þarf maður að dekka einn sopa (og allt liðið ef spilað er í liðum). Ef maður svarar rétt þurfa andstæðingarnir að drekka einn sopa. Ef maður er á svokölluðum kökureitum þarf hins vegar að drekka 5 sopa í stað eins. Þegar leiknum er lokið þurfa þeir sem tapa að tæma glösin sín í einum rykk. Flóknara var það ekki.
Svefnbærinn Tyrkinn skrapp í heimsókn til Herkúlesar í gær. Þegar tyrkinn mætti var kúles og bróðir hans að djöflast í hljóðveri Herkúlesar. Eftir að hafa barið húsið að utan í stundarfjórðung og hringja í þá bræður gafst tyrkinn upp og játaði sig sigraðan. Þá kíkti hann í heimsókn í hús tyrkjamóðurinnar sem er á skíðum á Ítalíu þessa dagana. Tyrkjabróðurinn var ekki heima og kom ekki á óvart að tyrkjasystirin sú yngri svaf á sínu græna eyra um sex leytið í gær. Ekkert grín að heimsækja Garðbæinga heim...
febrúar 26, 2003
Skrýtla í boði Tyrkjafrúarinnar
Science lesson The 6th grade science teacher, Mrs. Parks, asked her class, "Which human body part increases to 10 times its size when stimulated?" No one answered until little Mary stood up, angry, and said, "You should not be asking 6th graders a question like that! I´m going to tell my parents, and they will go and tell the principal, who will then fire you!" With a sneer on her face, she then sat back down. Mrs. Parks ignored her and asked the question again, "Which body part increases to 10 times its size when stimulated? " "Anybody?" Finally, Billy stood up, looked around nervously, and said, "The body part that increases 10 times its size when stimulated is the pupil of the eye." Mrs. Parks said, "Very good, Billy, " then turned to Mary and continued, "As for you, young lady, I have three things to say: (1) you have a dirty mind, (2) you didn´t read your homework, and (3) one day you are going to be very, very disappointed.
Fyrir bloggara: Fyrir þá sem ekki þekkja er til ágætis forrit sem Sigfús nokkur Oddson skrifaði sem nota má til að henda færslum inn á vefi og heitir það Blogbuddy. Þetta einfalda forrit virkar oft þó svo blogger síðan virðist niðri. Það má nálgast hérna
Drykkuleikur dagsins: "Fauti"
Til þarf: Fólk, bjór, borð (hægt að spila á gólfi) Ölvun: Lítil-Meðal Staðsetning: Heimahús Flækjustig: Lítið Þessi leikur er afskaplega sillí og ætti aðeins að spilast þegar fólk er með óþarflega mikið af umframorku og í miklu stuði. Í byrjun velja allir sér handahreyfingu sem mun vera einkennandi fyrir hvern leikmann. Þessi hreyfing má vera einföld, kurteisisleg, dónaleg (hmm...) eða hvað sem er en þarf að vera stutt (þ.e. má ekki taka langan tíma). Leikmenn sitja í hring og allir byrja á því að tromma með höndunum stöðugt á borðið. Á meðan trommuleikurinn er í gangi segir sá sem byrjar hástöfum "Hvað heitir leikurinn?" og allir svara "Fauti", þá segir forsprakkinn aftur "...og af hverju spilum við leikinn?" sem svarað er af öllum hinum; "Til að verða full(fullar/fullir)". Þá gerir forsprakkinn sína handarhreyfingu og strax á eftir handarhreyfingu sem einkennir einhvern annan leikmann. Sá sem átti þá hreyfingu gerir svo sína aftur og svo hreyfingu einhvers annars. Ef einhver áttar sig ekki á að einhver gerir sína hreyfingu eða er of lengi að svara, verður sá hinn sami að drekka. Þegar hann hefur drukkið byrja allir aftur að tromma og sá hinn sami byrjar leikinn að nýju. Einnig má nota eitthvað annað sem er kallað (ef einhver klúðrar kallinu er að sjálfsögðu drukkið). Einnig mætti bæta við einhverjum táknum sem hraða leikinn eða hægja hann hvenær sem er.
Fyrir þá sem ekki þekkja er ágætis þýðingarvél á altavista...
febrúar 25, 2003
Breytingar Tyrkinn er nú búinn að bæta við einum lista á síðuna sem finna má á vinstri spássunni undir "Net leikir". Þar eru nokkrir góðir leikir sem nota má til að eyða dauðum tíma. Einnig voru nokkrar smávillur lagfærðar.
Drykkjuleikur dagsins: "31"
Til þarf: Fólk, Bjór, spilastokk Ölvun: Mikil Staðsetning: Hvar sem er Flækjustig: Meðal Þessum leik svipar mikið til hins klassíska 21 eða "Black Jack" eins og hann heitir á frummálinu. Þó eru nokkur atriði sem eru frábrugðin. Markmið leiksins er að reyna að fá 31 stig á hendi án þess að fá fleiri. Ásar gilda 11, öll mannspil gilda 10 og önnur spil eftir gildi sínu. Hver leikmaður fær 3 spil, tvö eru lögð niður (þ.e. aðrir sjá þau ekki) og eitt snýr upp. Leikmenn geta svo fengið fleiri spil eins og í 21. Ef leikmaður telur sig vera með góða tölu á hendi (t.d. 28) getur hann "kallað", þá geta hinir leikmennirnir tekið eitt spil í viðbót ef þeir vilja, og svo eru allar hendur sýnar. Sá sem er með lægstu hendina (þeir sem springa þurfa auðvitað að drekka) verður að drekka heilan bjór áður en hann tapar annari hendi. Ef sá sem kallaði er með lægstu heninda verður hann að auki að drekka annan heilan bjór í sekt fyrir lélega frammistöðu. Ef einhver nær ekki að klára bjórinn sinn áður en hann tapar aftur þarf hann að drekka einn aukabjór í sekt. Ef einhver nær einhverntíman 31 stigi, leggur hann spilin niður strax og allir aðrir tapa og drekka. Ef spilið gengur sæmilega hratt getur það endað með látum (sem er gott).
Helgarskýrsla Tyrkjans Á föstudaginn var ákveðið að lengja helgina svolítið og vera í fríi eftir hádegi, svo og gærdaginn. Ekki það að mikið stæði til, heldur meira til að slappa af. Til að toppa haugsskapinn voru strax leigðar vídeo spólur, og var "K19 The Widow Maker" fyrir valinu. Tyrkjanum fannst svolítið skondið að þegar sú ræma var fyrst auglýst var nafn Ingvars Sigurðssonar skrifað stórum stöfum mitt á milli Liams Neesons og Harrisons Ford. Væntanlega hefur Ingvari greyinu fundist þetta svolítið púkó og var því nafn hans ekki skrifað stórum stöfum framan á spóluna sjálfa. Lítið bar svo á kappanum fyrri helming myndarinnar, en seinna átti hann mikið hetjuatriði sem hafa verið ágætis sárabætur fyrir að hafa ekki fengið að leika í Starvors myndinni forðum. Myndin var þó svolítið ólík því sem tyrkinn bjóst við af kafbátamynd. Kafbátamyndir eru þó alltaf skemmtilegar og vantaði ekki hin hefðbundnu kafbáta atriði í myndina, sbr. þegar kafað er á meira dýpi en báturinn á að þola og þess háttar. Það má alveg horfa á þessa ræmu þótt hún sé engin shcnilld. Á laugardaginn var skroppið í smáralindina. Fyrst var keypt afmælisgjöf fyrir Viktor nokkurn Gunnarson, Hölluson. Svo var kíkt á bókamarkaðinn, en ekki var hann upp á marga fiska og mátti fleira finna þegar hann var í Perlunni fyrir rúmu ári síðan. Tyrkjafrúin keypti þó 6 stk. Agötu Krístí bækur á 500 kr. stykkið sem hlýtur að teljast ásættanlegt fyrir þá sem af henni gaman hafa. Svo var farið í barnaafmæli með tilheyrandi látum . Tyrkinn er enn í basli með að tengja myndarvélina frægu við heimilistölvu tyrkjanna. Svo er mál með vexti að bölvuð USB portin á vélinni sem aldrei hafa verið notuð eru ekki að virka, ekkert plugg end plei þar á ferðinni. Getur verið að eitthvað þurfi að fikta í biosnum til að þau virki (vinsamlegast skrifið tyrkjanum eða notið tyrkjaspjallið hér á hægri hönd ef þér vitið svarið við þessari spurningu)? Annars er tyrkinn langt kominn í manjúalinum á myndavélinni og er farinn að hlakka til að fara að hrauna myndum. Geisp
|
|
|
|
|