|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
31.3.03
Drykkjuleikur dagsins: "Buffaló"
Til þarf: Fólk, áfengi Ölvun: Mikil Staðsetning: Heimahús, úti Flækjustig: Lítið Þessi leikur er afar einfaldur og getur verið skemmtilegur. Leikurinn er þess eðlis að fólk þarf ekki að vera bundið honum nema að litlu leyti og er ágætt að leika hann þegar margir sitja við drykkju. Aðeins ein regla gildir í leiknum; Allir þurfa að drekka með vinstri hendinni (nema örvhentir, þeir nota hægri hendina). Ef maður sér að einhver er að drekka með hægri hendinni (sem er ekki örvhentur) skal byrjað að kalla "Buffaló, Buffaló, Buffaló" og klappa eða berja í borð í takt, þegar einn byrjar á þessu skulu allir slást í hóp með honum og einblína á reglubrjótinn. Reglubrjóturinn skal þamba úr glasinu þar til það er tómt eins hratt og hann getur, sama hvað mikið er í því, og skulu köllin og klappið ekki stoppa þar til glasið er tómt. Engar undantekningar leyfðar, ef drukkið er með rangri hendi skal klárað úr glasinu. Flóknara er það ekki.
Á vellinum Hringt var í tyrkjann á föstudagskvöldið, um kvöldmatarleytið. Þar var á ferðinni hópur af vinu tyrkjans sem höfðu mælt sér mót í Glaskow til að glápa saman á knattspyrnuleikinn þar ytra. Gríðarleg stemning var á mannskapnum og var hver og einn kynntur hátíðlega í símann af hópnum sbr; "Frá Noregi, Eiiiiiiigiillll Páálsssooooon", sem var pínu fyndið. Þarna voru flest heimshornakvikindin mætt, Gyðnið frá Skotlandi, Huginn frá Baunalandi, Geiri Agg frá Germaníu, Drykkjumaðurinn frá Noregi og loks fulltrúi Íslands Fritz Gerber. Eitthvað sást í smettin á þessum ófríðu mönnum í sjónvarpinu og virtust menn ekki eins hressir og á föstudaginn daginn eftir á leiknum, enda tapaðist leikurinn.
Nikótín
Þeir segja (gárungarnir) að það sé erfiðara að venja sig af nikótíni en heróíni og er tyrkinn farinn að trúa því. Reyndar hefur tyrkinn ekki lagt í heróín, en tóbaksdraugurinn er búinn að elta tyrkjann á röndum í nokkur ár. Nú á að gera betur úr því, í nokkrar vikur hefur verið stefnt af því að hætta tóbaksneyslu, en það ekki gert fyrir fullt og allt. Nokkuð er síðan tyrkinn hætti að reykja heima hjá sér, en eins og margir vita er tyrkinn jafnvígur á tóbak og hefur tekið í vöruna í vinnunni um skeið. Nú var ekkert tóbak notað um helgina og nú er ekkert troðið í vör, og er óhætt að segja að tyrkinn sé ögn trekktur fyrir vikið og má búast við súrri viku, sérstaklega þar sem klára þarf skattinn líka þessa vikuna.
28.3.03
Drykkjuleikur dagsins: "Heilasköddun"
Til þarf: Fólk, bjór, spilastokkur Ölvun: Lág-Mikil (fer eftir fjölda leikmanna) Staðsetning: Heimahús Flækjustig: Meðal-Mikið Mjög góður leikur hér á ferð. Án efa vex hann í augum fólks þegar hann er fyrst útskýrður, en eftir eina stutta umferð eru venjulega allir með á nótunum. Byrjað er á því að taka einn spila stokk og taka úr honum allar áttur, allar níur og rauðu tíurnar (tígul og hjarta níurnar). Gildi spilanna er svona;
| Mannspil | 0,5 stig |
| Ásar | 1,0 stig |
| 2-7 | Gildi spilanna |
| Tíur | Frjálst gildi (vældkard) |
Markmið leiksins er að ná 7,5 stigum, og er ekki ósvipað leiknum "21" (e. Black Jack).
Byrjað er á því að allir fá eitt spil til að ákvarða hver byrjar að gefa. Sá sem fær hæsta gildið (sjá töflu) byrjar að gefa (Tía mundi gilda sem 7,5, en sjöa er mjög gott líka). Röðin ákvarðast frá hæsta gildi til þess lægsta. Þetta er mjög áríðandi því bannað er að yfirgefa leikinn nema maður sé búinn að gefa. Þess vegna er mjög gott að byrja að gefa, en sá sem gefur síðast er sagður hljóta "Heilasköddun".
Sá sem gefur fyrst gefur eitt spil niður fyrir framan fyrsta leikmann (spil snýr niður) og annað niður fyrir framan sjálfan sig. Leikmaðurinn kíkir á spilið og veðjar hvaða magni af bjór sem er, stórt skotglas er ágætis hámark þó.
Leikmaðurinn sýnir ekki fyrsta spilið sitt, og getur fengið eins mörg spil í viðbót (sem sjást) eins og hann vill. Ef hann fær fleiri en 7,5 stig er hann sprunginn og verður að tilkynna það strax og drekka það magn sem hann veðjaði. Ef hann springur ekki, segir hann stop og sá sem gefur snýr sínu spili við og tekur eins mörg spil í viðbót eins og hann treystir sér til þangað til hann heldur að hann sé með hærra gildi en leikmaðurinn. Ef sá sem gefur springur drekkur hann "pottinn". Þegar sá sem gefur er sáttur við sína hönd, snýr leikmaðurinn við fyrsta spilinu, og sá sem er með lægra gildi drekkur pottinn. Ef jafntefli kemur upp verður leikmaðurinn að drekka. Svo heldur sá sem gefur áfram og byrjar á næsta leikmanni, og heldur þannig áfram þangað til stokkurinn er búinn.
Ef leikmaður getur tekið 5 spil án þess að springa, vinnur hann strax og sá sem gefur getur ekki unnið á jafntefli og þarf að drekka pottinn.
Ef sá sem gefur byrjar að gefa á einn leikmann og er með færri en 6 spil í stokknum, eru þau lögð niður öll og leikmaðurinn veðjar, báðir draga eitt spil og sá sem er með lægra spil drekkur (jafntefli - leikmaður drekkur). Spilað er þangað til allir hafa gefið.
Poppkort Tyrkinn var svo heppinn að eignast sín fyrstu poppkort í gær. Þarna eru á ferðinni svona spil sem eiga að mynda mikinn skiptimarkað meðal yngri kynslóða landsins, og stendur Ölgerðin fyrir útgáfunni í nafni Pepsi. Það sem er verulega skemmtilegt við þessi spil er það að nú er hægt að eignast spil með myndum af poppstjörnunum á og segja fróðir menn að til séu tvær mismunandi myndir af hverjum popparanum. Tyrkinn á til dæmis tvær eins myndir af Euro-Einari og auglýsir eftir skiptum fyrir spil með mynd af Svenna Svenn eða Kela rokk.
26.3.03
Ljósmyndun Afar skemmtileg síða hér, dpchallenge, fyrir áhugamenn um ljósmyndun
Drykkjuleikur dagsins: "Kappróður"
Til þarf: Fólk (jafna tölu, 10 manns er ágætt), Slatta af bjór Ölvun: Mjög mikil Staðsetning: Heimahús Flækjustig: Lágt Þetta er klassískur leikur og hentar afar vel þar sem tveir hópar eða lið kljást, mundi til dæmis vera tilvalinn sem liður í stærri keppni milli liða. Liðin standa andspænis hvoru öðru, mjög gott er til dæmis ef þau geta setið andspænis hvoru öðru sitt hvoru megin við langborð. Þá eru glös fyllt og á eitt glas að standa fyrir framan hvern leikmann á borðinu. Enginn snertir svo sitt glas fyrr en hann má. Þegar leikur hefst skal fyrsti maður í hvoru liði byrja að drekka bjórinn, og setja glasið aftur á borðið þegar það er tómt. Þegar glas leikmanns er komið aftur tómt á borðið, má næsti maður byrja að drekka, hann má ekki snerta sitt glas fyrr en glas fyrri leikmans snertir borðið. Svona gengur þetta þangað til glas síðasta leikmanns í öðru hvoru liðinu er komið tómt á borðið. Fyrsta liðið til að tæma öll glös vinnur leikinn.
Ef fólk vill gera leikinn stærri í sniðum má breyta honum svolítið. Til dæmis gætu verið tvö glös fyrir framan hvern og röðin gengur út á enda og svo aftur til baka, sem þýðir það að sá sem er síðastur þarf að drekka tvö glös í röð. Einnig mætti hafa fleiri en tvö lið ef svo ber undir. Eftir leikinn ættu leikmenn að vera komnir vel í það, og jafnvel svolítið blautir.
Man will become ex-wife's stepfather when he marries her mother [Lýður sendi]
A man who ended his marriage after just 10 days will become his ex-wife's stepfather when he marries her mother. George Greenhowe, 22, will marry Pat Smith, 44, in Arbroath, and his ex-wife Allison has agreed to act as bridesmaid. The wedding will take place in the town's Register Office - the same venue for the wedding of Allison, 19, and George last year. Until recently, the three lived under the same roof in Wardykes, Arbroath, says the Daily Record. Allison only moved back in with her father, Allan, because there was no room in the council house she shared with her mum, ex-husband and pets, including an alsatian, five pups, two cats, a hamster and a parrot. Pat says Allison has forgiven her for taking her husband. "Allison told us she hopes we are happy and she even calls my future husband her stepdad."
But Patricia Williamson, Pat's elderly mother, has disowned her daughter. She said: "I have completely washed my hands of my daughter. It is news to me that they are getting married. I certainly won't be going to the service and I don't know anyone from the family who will be attending."
Story filed: 08:22 Wednesday 19th March 2003
Þarna á "White trash" hugtakið vel við!
http://www.ananova.com/news/story/sm_762233.html?menu=news.quirkies
25.3.03
Drykkjuleikur dagsins: "BjórKotra"
Til þarf: Tvo leikmenn, bjór, Kotruspil (e. Backgammon) Ölvun: Meðal Staðsetning: Hvar sem er Flækjustig: Lágt (ef maður kann Kotru) Þeir sem þekkja Kotru vita að hér á ferðinni ein mesta snilld sem spilaheimurinn býður upp á. Tyrkinn er meðlimur í Kotruklúbbnum Kúk, en því miður hefur ekki verið mikið spilað að undanförnu vegna óþarfa ferðagleði meðlima, en þessi útgáfa af Kotru er kærkomin í klúbbinn og ætti að bæta leikinn ef það er hægt. Leikurinn er leikinn eins og venjulega, en í hvert skipti sem maður missir "leikmann" (kotru-pökk) upp á miðjuna (þ.e. andstæðingurinn "rekur hann heim") skal drukkið. Einnig skal drukkið í hvert skipti sem "pökkur" er tekinn út af leikborðinu (undir lok leiksins þegar týnt er af borðinu). Afar einfallt og skemmtilegt.
Fluggrín [Tyrkjafrúin sendi]
Farþegar í flugvél nokkurri voru að bíða eftir að vélin færi í loftið þegar tveir menn, í flugstjórabúningum og með sólgleraugu, koma gangandi eftir gangi vélarinnar. Annar þeirra með blindrastaf og hinn með blindrahund. Vandræðalegur hræðsluhlátur berst um vélina þegar mennirnir fara inn í flugstjórnarklefann og loka á eftir sér. Síðan er vélin gangsett og byrjað að gera klárt fyrir flugtak.
Farþegararnir eru farnir að skima í kringum sig og bíða eftir að einhver komi og segi að þetta sé bara grín, þegar vélin gefur í og fer hraðar og hraðar en virðist ekkert vera á leiðinni í loftið. Þegar farþegarnir átta sig á því að vélin stefnir beint á stöðuvatn við enda brautarinnar í stað þess að taka á loft, byrja allir að öskra í hræðslukasti, en um leið tekur vélin sig mjúklega á loft eins og ekkert sé.
Inn í flugstjórnarklefanum segir aðstoðarflugmaðurinn við flugstjórann:
"Veistu Binni! Einn góðan veðurdag eiga þau eftir að öskra of seint... og við deyjum öll!"
---
Flugvél var nýkomin í loftið frá Keflavík og flugstjórinn var að ávarpa farþegana: "Góðir farþegar, velkomin í flug númer CC888 til Alicante. Þetta er flugstjórinn sem talar. Nú, flugskilyrði eru góð. Við fáum meðvind og komum til með að fljúga í 33.000feta hæð og... AAAAAARRGG, GUÐ MINN GÓÐUR, HVAÐA..."
Löng þögn...
Síðan kemur flugstjórinn aftur í kallkerfið: "Góðir farþegar. Þetta er flugstjórinn sem talar. Mér þykir leitt ef ég hef hrætt ykkur áðan, en aðstoðarflugstjórinn missti kaffibollann sinn yfir mig. Þið ættuð bara að sjá framaná buxurnar mínar..."
"Það er ekkert," kallar einn farþeginn, "hann ætti að sjá aftan á mínar!"
24.3.03
Bespelled Bætti þessum leik á linkana á vinstri spássíunni, mjög góður, svolítið langur en er ekki með klukku þannig að hægt er að grípa í hann á milli verka.
Helgarskýrsla tyrkjans Eftir nokkuð langan þurrk var loksins einhverju brennivíni skvett um helgina. Á föstudagskvöldið var boðið í afmæli til Sigga Siggu sem nú er orðin 25 ára. Afmælið var með veglegra móti og var haldið á gamla Skuggabarnum sem þó ber ekki það nafn í dag. Tyrkinn hafði ekki komið þangað í 2-3 ár og er óhætt að segja að nokkuð sé búið að breyta staðnum. Staðurinn minnir meira á koníaksstofu eða "country-club" en subbulegan forvera sinn, Hann er orðinn öllu bjartari og eru Chesterfield sett í öllum hornum og bókaskápar og wiskýskápar í flestum hornum. Þarna voru mættir nokkrir meistarar sem gaman var að sjá aftur, og fór mis mikið fyrir mönnum og er ferskust í minni sagan hans Feitsjó um það þegar hann skeit í brækurnar á ólympíuleikunum 1992 þegar hann horfði á handboltaleik. Annars voru flestir frekar penir, en tyrkinn fór heim frekar snemma ásamt Fritz og frú þar sem vikuþreytan var farin að segja til sín. Á laugardaginn stóð mikið til, enda árshátíð vinnunnar með öllu tilheyrandi á dagskrá. Gleðin hófst með forpartíi þar sem fólk kom sér í gírinn. Árshátíðin hófst svo fyrir alvöru upp úr 19:00 og þá hófst dagskrá kvöldins. Þorsteinn Guðmundsson fór á kostum með sínu custom-made stand upp dæmi með glærusýningu, enda er maðurinn snillingur. Alveg óhætt að mæla með honum í svona vinnu glens, hann hefur alltaf staðið fyrir sínu í þau 3-4 skipti sem tyrkinn hefur séð til hans, og er sjóvið aldrei eins hjá honum sem er vel. Svo kom hápunktur kvöldsins, sýning myndbands sem húshljómsveitin hafði unnið hörðum höndum að undanfarnar vikur. Það vakti mikla lukku, enda var tyrkinn þar í einu hlutverkinu. Vikuna áður hafði bandið farið í hljóðver og tekið upp nokkur lög, þ.á.m. lag tyrkjans "Dililah". Upptakan á því var fyndin, enda var það í fyrsta skiptið sem tyrkinn söng það edrú, en það kom á daginn að það er töluvert betra að mýkja raddböndin með brennivíni áður en það er sungið. Eftir nokkrar tökur var þó mixað eitthvað úr því og látið standa, en þó er vafasamt að þetta sé komið á plast. Þá átti tyrkinn leiksigur á myndbandinu og þótti fyndið. Þá var drukkið fram á nótt og eftir að Broadway var lokað var bara farið (þeir allra hörðustu) á Wall-Street barinn við hliðina á og þar drukkið til klukkan 5 um morguninn. Fyrir vikið var gærdagurinn frekar erfiður og annar í þynnku er að verða frekar erfiður. Og þá þarf maður að fara að leiða hugan að skattinum, össs...
21.3.03
Drykkjuleikur dagsins: "Keppnis-bjór"
Til þarf: Fólk, bjór, glös Ölvun: Mikil Staðsetning: Heimahús, jafnvel er sniðugt að vera úti fyrir Flækjustig: Mjög lítið Þessi leikur er ákaflega einfaldur, en jafnframt subbulegur og getur valdið mikilli ölvun og kátínu. Leikur hefst á því að allir fylla glös sín (sem þurfa að vera jafn stór) af bjór. Svo byrja allir að þamba bjórinn eins hratt og þeir geta. Til að gefa til kynna að þú hafir lokið við bjórinn skal glasinu snúa glasinu á hvolf fyrir ofan hausinn á þér. Ef einhver gerir það þurfa allir leikmenn að gera það sama undir eins, sama hvort þeir hafi lokið við að drekka bjórinn. Athygli skal vakin á því að maður þarf ekki að hafa lokið við bjórinn til að hvolfa glasinu fyrir ofan hausinn (og þar með vinna leikinn), sá vinnur leikinn sem fyrst gerir það, sama hvort þeir hafi lokið við bjórinn eður ei. Góðar stundir.
20.3.03
Speki dagsins: [Hei-lo sendi] "You know the world is going crazy when the best rapper in the world is a white guy, the best golfer in the world is a black guy, France is accusing the US of arrogance and Germany doesn't want to go to war."
19.3.03
Bréf [Hei-lo sendi]
Terry Jones (meistarinn úr Monty Python hópnum) sendi þetta bréf til London observer sunnudaginn 26. janúar: I'm really excited by George Bush's latest reason for bombing Iraq: he's running out of patience. And so am I! For some time now I've been really pissed off with Mr Johnson, who lives a couple of doors down the street. Well, him and Mr Patel, who runs the health food shop. They both give me queer looks, and I'm sure Mr Johnson is planning something nasty for me, but so far I haven't been able to discover what. I've been round to his place a few times to see what he's up to, but he's got everything well hidden. That's how devious he is. As for Mr Patel, don't ask me how I know; I just know - from very good sources - that he is, in reality, a Mass Murderer. I have leafleted the street telling them that if we don't act first, he'll pick us off one by one. Some of my neighbours say, if I've got proof, why don't I go to the police? But that's simply ridiculous. The police will say that they need evidence of a crime with which to charge my neighbours. They'll come up with endless red tape and quibbling about the rights and wrongs of a pre-emptive strike and all the while Mr Johnson will be finalising his plans to do terrible things to me, while Mr Patel will be secretly murdering people. Since I'm the only one in the street with a decent range of automatic firearms, I reckon it's up to me to keep the peace. But until recently that's been a little difficult. Now, however, George W. Bush has made it clear that all I need to do is run out of patience, and then I can wade in and do whatever I want! And let's face it; Mr Bush's carefully thought-out policy towards Iraq is the only way to bring about international peace and security. The one certain way to stop Muslim fundamentalist suicide bombers targeting the US or the UK is to bomb a few Muslim countries that have never threatened us. That's why I want to blow up Mr Johnson's garage and kill his wife and children. Strike first! That'll teach him a lesson. Then he'll leave us in peace and stop peering at me in that totally unacceptable way. Mr Bush makes it clear that all he needs to know before bombing Iraq is that Saddam is a really nasty man and that he has weapons of mass destruction - even if no one can find them. I'm certain I've just as much justification for killing Mr Johnson's wife and children as Mr Bush has for bombing Iraq. Mr Bush's long-term aim is to make the world a safer place by eliminating 'rogue states' and 'terrorism'. It's such a clever long-term aim because how can you ever know when you've achieved it? How will Mr Bush know when he's wiped out all terrorists? When every single terrorist is dead? But then a terrorist is only a terrorist once he's committed an act of terror. What about would-be terrorists? These are the ones you really want to eliminate, since most of the known terrorists, being suicide bombers, have already eliminated themselves. Perhaps Mr Bush needs to wipe out everyone who could possibly be a future terrorist? Maybe he can't be sure he's achieved his objective until every Muslim fundamentalist is dead? But then some moderate Muslims might convert to fundamentalism. Maybe the only really safe thing to do would be for Mr Bush to eliminate all Muslims? It's the same in my street. Mr Johnson and Mr Patel are just the tip of the iceberg. There are dozens of other people in the street who I don't like and who - quite frankly - look at me in odd ways. No one will be really safe until I've wiped them all out. My wife says I might be going too far but I tell her I'm simply using the same logic as the President of the United States. That shuts her up. Like Mr Bush, I've run out of patience, and if that's a good enough reason for the President, it's good enough for me. I'm going to give the whole street two weeks - no, 10 days - to come out in the open and hand over all aliens and interplanetary hijackers, galactic outlaws and interstellar terrorist masterminds, and if they don't hand them over nicely and say 'Thank you', I'm going to bomb the entire street to kingdom come. It's just as sane as what George W. Bush is proposing - and, in contrast to what he's intending, my policy will destroy only one street.
18.3.03
Bara í bandaríkjunum [Lúnal sendi]
Það er komið að því aftur að íhuga hverjir eigi að fá hin árlegu Stellu verðlaun. Stellu verðlaunin eru nefnd eftir hinni 81 árs gömlu Stellu sem hellti kaffi yfir sig og náði að lögsækja McDonald's. Þetta atvik varð til þess að Stella verðlaunin voru sett á legg, fyrir fáránlegustu lögsóknir í Bandaríkjunum. Hér er það sem kemur til greina í ár:
1. Kathlenn Robertson í Austin, Texas, fékk $780,000 fyrir að hafa ökklabrotnað. Hún féll um 1 árs krakka sem var á hlaupum í húsgagnaverslun. Eigendur verslunarinnar voru vitanlega mjög hissa er hún vann þessa lögsókn, þar sem hinn óþekki krakki var sonur hennar (frú Robertson)!!!
2. Hinn 19 ára Carl Truman í Los Angeles vann $74,000 og fékk greidda allan lækniskostnað, eftir að nágranni hans keyrði yfir hönd hans á Honda Accord bíl. Truman tók víst ekki eftir því að það væri einhver við stýrið á bílnum, er hann reyndi að stela hjólkoppunum af bíl nágrannans.
3. Terrence Dickson frá Bristol, Pennsylvaníu, var í þann mund að yfirgefa hús sem hann hafði lokið við að ræna. Hann ætlaði útum bílskúrsdyrnar, en gat ekki opnað hurðina þar sem hurðaopnarinn var bilaður. Hann gat ekki farið aftur inn í húsið, þar sem dyrnar læstust eftir honum er hann lokaði þeim. Fjölskyldan var í fríi, og Dickson var læstur þar inni í 8 daga. Hann lifði á kassa af Pepsi sem hann fann og þurrmat handa hundum. Hann kærði heimilisfólkið, þar sem hann hélt því fram að hin 8 daga prísund hefði skaðað hann andlega. Kviðdómur dæmdi honum í vil, $500,000.
4. Jerry Williams frá Little Rock, Arkansas, fékk $14,500 og greidda allan lækniskostnað, eftir að hafa verið bitinn í rassinn af hundi nágrannan. Hundurinn var í ól innan girðingarinnar í garði nágrannans. Hann fékk lægri upphæð en hann hafði sóst eftir, þar sem kviðdómurinn komst að þeirri niðurstöðu að hundurinn hefði verið ögrað örlítið af Jerry Williams, sem í sífellu skaut hann með loftbyssu.
5. Amber Carson fékk $113,500 eftir að hún lögsótti veitingastað í Philadelphia fyrir að hafa runnið í gospolli og brotið rófubeinið. Drykkurinn hafði hellst á gólfið stuttu áður, er Amber var að rífast við kærasta sinn. 6. Kara Walthon í Claymont, Delaware vann mál gegn eiganda næturklúbbs. Hún datt úr baðherbergisglugganum og braut báðar framtennurnar. Þetta átti sér stað þegar hún laumaði sér í gegnum baðherbergisgluggann til að komast hjá því að borga aðgangseyri. Hún fékk $12,000 í sinn hlut og tannlæknakostnaðinn.
7. Hann Merv Grazinski frá Oklahoma City gæti auðveldlega unnið Stellu verðlaunin í ár. Hann keypti sér glænýjan húsbíl. Hann keyrði útá hraðbrautina og stillti cruise control á 70 mílna hraða og fór aftur í bílinn til að hella sér uppá kaffi!!!! Eins og við er að búast, þá fór bílinn af götunni, keyrði á og valt á hliðina. Grazinski kærði bílaframleiðendurna fyrir að hafa ekki útskýrt í leiðavísinum að cruise controlið gæti ekki stýrt bílnum. Kviðdómurinn dæmdi honum í hag $1,750,000 og nýjan húsbíl. Framleiðendurnir breyttu leiðarvísinum eftir þessa lögsókn
Drykkjuleikur dagsins: "Sigra Barþjóninn"
Til þarf: Sand af seðlum Ölvun: Mjög mikil Staðsetning: Bar Flækjustig: Lítið
Þessi leikur er einungis fyrir klikkaða, og varla er hægt að biðja um hærra ölvunarstig. Þetta er fyrsti og sennilega eini einstaklingsleikurinn sem hingað hefur komið, enda þurfa menn sennilega að vera í súru skapi til að vilja spila hann. Sagan segir reyndar að engin hafi enn unnið þennan leik, og spurning um hversu margir hafa lagt í hann.
Nokkrar ráðleggingar: - Ekki spila þar sem margir eru á barnum (annars missir maður barþjóninn mikið úr leiknum) - Vertu viss um að starfsmenn staðarins hafi húmor fyrir leiknum (mjög mikilvægt til að forðast jafntefli) - Ekki vera búinn að skipuleggja neitt daginn eftir
Leikurinn er mjög einfaldur: 1. Drykkjumaðurinn nálgast barinn og pantar eitthvað skot (Viskí, vodka, Sambouca eða eitthvað því um líkt) 2. Drykkjumaðurinn borgar fyrir drykkinn með seðli sem er of hár fyrir drykkinn (borga t.d. með 1000 kr. seðli fyrir 350 kr. skot) 3. Þegar barþjónninn fer í burtu til að ná í skiptimynt, skal skotinu skellt í andlitið með hraði. 4. Þegar barþjónninn kemur til baka með skiptimynt, skal farið aftur á þrep 1.
Leiknum er lokið þegar eitthvað af eftirfarandi á sér stað: - Drykkjumaðurinn drepst áfengisdauða (barþjónninn vinnur) - Barþjónninn handrotar drykkjumanninn (Jafntefli) - Drykkjumanninum er hennt út (Jafntefli) - Barnum er lokað (Drykkjumaðurinn vinnur leikinn)
17.3.03
Drykkjuleikur dagsins: "Auli, Böllur, Náriðill"
Til þarf: Fólk, bjór Ölvun: Lítil-Meðal Staðsetning: Hvar sem er Flækjustig: Lítið Þessi leikur er einfaldur, en ætti aðeins að spila meðal leikmanna sem þekkja hvern annan nokkuð vel, alla vega svo vel að enginn verði sár þótt hann sé uppnefndur af krafti. Í hnotskurn eru reglurnar þessar; þú getur ekki kallað aulara aula, og getur ekki horft í augun á náriðli. Hljómar ruglingslega en er það ekki. Einn byrjar leikinn á því að horfa á einhvern leikmann og kalla hann "aula". Sá sem var horft á getur þá gert eitthvað af eftirfarandi:
1. Horft á annan leikmann og kallað "Auli". Þá þarf sá sem var á að gera. 2. Horft í augun á þann sem kallaði hann aula og kallað "Böllur". (Þá á hinn aftur leik) 3. Sagt "Náriðill" án þess að horfa á þann sem kallaði hann aula. (Þá á hinn aftur leik)
Eins og með aðra drykkuleiki þarf sá sem klikkar að drekka.
Helgarskýrslan
Helgin var í rólegri kantinum að þessu sinni. Smá rispa var tekin í tómstundarherbergi húsbóndans en það herbergi er búið að vera í tilvistarkreppu frá því kaup voru fest á tyrkjalindinni. Frá því að flutt var inn var herbergið meira og minna notuð sem geymsla og hefur sjaldnast verið hægt að ganga þar um án þess að þurfa að klofa yfir kassa og annað dót. Nú er flest komið í geymsluna, enda hún smekkfull, en tómstundarherbergið skánað fyrir vikið. Fyrir rúmri viku voru fest kaup á nýjum sófa í stofuna, ágætis gripur, mahóní litað leður með blómavals-lykt. Merkileg lykt af kvikindinu, þegar tyrkinn kemur heim úr vinnunni mætir honum megn lykt sem einungis hefur verið hægt að tengja við lyktina inni í blómaval, sem er náttúrulega stór furðulegt, ef ekki merkilegt. Þegar búið var að koma þeim sófa fyrir í stofunni, þurfti að koma hinum fyrir einhvers staðar, og var enginn staður til nema tómstundarherbergið, og þá hófst ballið. Gamla sófanum var komið fyrir í tómstundarherberginu, og þurfti kommóða þaðan að hverfa í staðin. Hún var sett inn í svefnherbergið og sjónvarpið þaðan var flutt í tómstundarherbergið á móti ásamt vídeoi og Spielstation tölvunni. Þá var orðið ansi þröngt á þingi og í gær var gamla skrifborði tyrkjans fundið nýtt heimili á Sorpu. Fyrir vikið myndaðist smá pláss og er nú hægt að ganga um herbergið án þess að klofa yfir hluti. Þar er því komin ansi skemmtileg blanda af sjónvarpsherbergi, spielstation aðstöðu, setustofu og að sjálfsögðu er tyrkjagimmið þar ennþá. Þarna má því planta börnum fyrir framan vídeo eða DVD, og tyrkinn getur leikið sér í spielstation að vild á gamla sófanum. Tyrkjafrúin er líka í essinu sínu þessa dagana og fór m.a. tvisvar í IKEA um helgina að kaupa drasl og snurfusa tyrkjalindina með alls kyns glingri og nytjahlutum.
Ekki tókst að smala í Catan um helgina þar sem tyrkinn og Fritz voru einir til taks, en í staðinn tóku þeir netta rispu í "Need for speed 2" um helgina í húsakynnum Fritz með hljálp nokkurra öllarra. Einnig var kíkt á þáttinn um "Don't do this at home" með asnakjálkunum úr Jackass þar sem allt var sýnt. Að venju var hægt að hlæja að þessum kjánum, en ýmislegt kom í ljós sem ekki er talið hæft til sýninga á MTV. Einna minnistæðast var atriði þar sem Steve-O og vinir hans ákváðu að maka eldfimu efni yfir brjóst og maga einhverrar gellu sem var svipað rugluð og kveikja í. Minnstu munaði að daman fuðraði upp, en einu öryggis ráðstafanir sem þeir höfðu til taks var blautt handklæði sem var ekki alveg að gera sig. Einni þótti tyrkjanum fyndið þegar umræddur Steve-O (sem er á leið til landsins) rakaði nokkur punghár af sér og vafði í jónu sem "heppinn" vinur hans reykti grunlaus. Svo var rakettu skotið upp úr rassgati Steve-O sem var drepfyndið. Það væri kannski ráð að sjá þessa vitleysinga á sviði í Háskólabíói ef ekki er uppselt.
Tyrkinn var að festa kaup á prýðis góðum þrífæti sem Bill nokkur tjalli seldi honum fyrir aumar 1.000 krónur. Þá er ljósmyndaver tyrkjans að fara að smella saman, tyrkinn er með laptop að láni frá tyrkjamóðurinni og getur loks dælt myndum af myndavélinni góðu yfir á vél þar sem hægt er að eiga við þær, og vonandi koma yfir á netið við tækifæri. Vonandi verður svo hægt að dæla einhverjum skemmtilegum myndum inn á síðuna við tækifæri.
Afsakið hlé Því miður hefur síðan legið niðri um hríð vegna tæknilegra vandræða á fiski.net , en hún er loksins komin upp. Tyrkinn biðst velvirðingar.
14.3.03
Skrýtla [Tyrkjafrúarbróðirinn sendir]
DINNER CONVERSATION GONE BAD
WIFE: "What would you do if I died? Would you get married again?" HUSBAND: "Definitely not!"
WIFE: "Why not - don't you like being married?" HUSBAND: "Of course I do."
WIFE: "Then why wouldn't you remarry?" HUSBAND: "Okay, I'd get married again."
WIFE: "You would? (with a hurtful look on her face)." HUSBAND: (makes audible groan).
WIFE: "Would you sleep with her in our bed?" HUSBAND: "Where else would we sleep?"
WIFE: "Would you replace my pictures with hers?" HUSBAND: "That would seem like the proper thing to do."
WIFE: "Would she use my golf clubs?" HUSBAND: "No, she's left-handed."
WIFE: - - - silence - - HUSBAND: "Shit."
11.3.03
Stutt skrýtla í boði Fritz Tumi litli fór inn í herbergi til pabba síns og sá hann sitjandi á rúminu setjandi á sig smokk. Pabbi Tuma reyndi að fela stífan, smokki klæddan vininn með því að beygja sig fram eins og hann væri að líta undir rúm. Tumi litli spurði forvitinn: "Hvað ertu að gera pabbi?" Faðir hans svaraði snögglega: "Mér fannst ég sjá rottu skjótast undir rúmið." Þá sagði Tumi: "...og hvað ætlar þú að gera, ríða henni!!
Gyðnið vildi benda á þessa síðu sem verður að teljast klassík
6.3.03
Tilviljun dauðans
Tyrkinn var að glápa á kassann í gærkvöldi á "Law and order" á skjá einum, sem er varla frásögu færandi. Nema hvað að þar kom atriði þar sem fólk var að keyra þegar bíll kemur á fleygiferð og klessir á þau svo bílstjórinn dó. Það var konan á myndini, en þessi leikkona heitir Jill Hennessy. Þá sagði tyrkinn "Þetta var snyrtileg afgreiðsla, ekkert verið að skrifa hana út úr þættinum, heldur drepa hana bara einn tveir og þrír. Í hvaða nýja þætti ætli hún hafi fengið hlutverk?". Þá skipti tyrkinn strax yfir á stöð 2, og viti menn, sama leikkona var þar á skjánnum í nýjum þætti þar sem heitir "Crossing Jordan". Afar fyndin tilviljun, eða það fannst tyrkjunum að minnsta kosti...
...og nú segja þeir að það sé ekkert spes vatn hérna...
5.3.03
Fyrsta dónasagan Tyrkinn fann fyrir tilviljun þessa skemmtilegu síðu sem inniheldur Bósa sögu ok Herrauðs sem verður að teljast fyrsta íslenska pornóið...
Hvaða lag var efst á vinsældarlistum þar ytra er þú fæddist? [Tyrkjafrúin] Ðiss dei inn mjúsik
Tyrkinn tók ansi vafasamt próf á annars vondri heimasíðu þar sem spurningarnar voru meira en lítið leiðandi og hlutdrægar, enda ekki við öðru að búast. En samkvæmt þessu prófi er tyrkinn sjálfur foringinn....

Þú ert Davíð Oddsson:
Þér finnst þú vera frábær og flestir aðrir aumingjar (nema Össur; hann er dóni). Þú ert oft hnyttin(n) og skemmtileg(ur) en þeir þættir týnast þó í valdhrokanum sem er að sliga þig.
Taktu vafasama "Hvaða stjórnmálaleiðtogi ert þú?" prófið
Drykkuleikur dagsins: "Víkingur"
Til þarf: Fólk, Áfengi Ölvun: Lítil Staðsetning: Heimahús Flækjustig: Lítið Þetta er afar einfaldur leikur en reyndar afar heimskulegur líka. Leikmenn geta verið nokkuð margir þótt ekki sé mælt með fleiri en 10 leikmönnum. Leikmenn sitja í hring og einhver byrjar leikinn. Sá leikmaður gerir "Víkingahorn á hreyfingu" (þumlar í eða við eyrun og hreyfa hina puttana fram og aftur upp í loft) í 1-2 sek, svo klappar hann lófunum saman og bendir þeim (samanklemmdum) á einhvern annan leikmann. Sá leikmaður gerir þá "víkingahornin" en leikmennirnir sem sitja við hlið hans báðu megin verða að "róa bátnum" á meðan. Þetta þýðir að sá sem situr á vinstri hönd víkingsins róir til vistri við sig, en sá til hægri róir til hægri. Þá klappar víkingurinn saman lófunum og tilnefnir annan víking með bendingu. Þetta heldur áfram þar til einhver áttar sig ekki nógu fljótt á því að bent sé á hann, eða annar hvor ræðari klikkar á að róa (og réttu megin). Þeir sem klikka drekka að sjálfsögðu. Sá sem klikkar hefur svo leikinn að nýju.
Maður getur víst ekki valið og hafnað.... [Bjarkinn sendi]
4.3.03
Þetta hlýtur að vera ein athyglisverðasta auglýsing sem sést hefur DV. [He-lo & Drykkumaðurinn sendu]
Var í gær, undir smáauglýsingaflokknum "Ýmislegt".
"Hvar varst þú 24.maí 1994 Varst þú að fagna sigri R-listans í borgarstjórnarkosningunum. Hittirðu stelpu sem datt og fékk skurð á ennið? Fórstu með henni heim, svafstu hjá henni og varst síðan farinn þegar hún vaknaði. Þessi nótt gat af sér barn sem langar að hitta pabba sinn."
Drykkuleikur dagsins: "Upp og niður ánna"
Til þarf: Slatti af fólki, bjór og a.m.k. 2 spilastokkar Ölvun: Mikil Staðsetning: Heimahús eða salur Flækjustig: Lítið Þessi leikur er mjög góður þegar margir eru við drykkju, ef til vill fyrir árshátíðina? Hann er ögn skyldur "Drekka 3 - gefa 3" en þó nokkuð frábrugðinn. Ef aðeins 6 eða færri leikmenn spila er nóg að vera með einn spilastokk, en bæta þarf öðrum við við hverja 8-10 umfram spilara. Leikur hefst á því að fólk situr í hring og sá sem gefur lætur hvern leikmann hafa 4 spil sem snúa upp fyrir framan hvern leikmann. Sá sem gefur hefur svo leikinn á leið "upp ánna" með því að snúa við einu spili. Þá þurfa allir sem hafa samsvarandi spil fyrir framan sig að drekka einu sinni. Ef leikmaður hefur tvö slík spil (t.d. tvo gosa) þarf hann að sjálfsögðu að drekka tvisvar. Sá sem gefur snýr því næst öðru spili við, en í þetta skipti þurfa leikmenn að drekka tvisvar fyrir hvert samsvarandi spil sem þeir hafa. Næst eru 3 sopar á spil og loks fjórir á hvert spil. Eftir fjórða spilið, snýr gjafarinn leiknum við og fer "niður ánna". Þá snýr hann við fimmta spilinu og þá mega þeir sem eru með samsvarandi spil "gefa" 4 sopa (þ.e. láta aðra drekka) á hvert samsvarandi spil sem þeir hafa, það mega vera fjórir á einn annan leikmann eða einn sopi á fjóra leikmenn. Að sjálfsögðu mega þeir gefa 8 drykki ef þeir eru með tvö samsvarandi, jú eða 12 ef þeir eru með þrjú. Sá sem gefur heldur svo áfram "niður ánna" og næst má gefa 3 sopa á hvert spil, þá 2 og loks einn drykk á hvert spil. Ef stokkurinn klárast, eru spilin tekin saman aftur og stokkuð og gefið aftur. Að lokum hefur sá sem gefur að "telja spil" frá 1 upp í 13. Þá segir hann 1 og snýr við fyrsta spilinu o.s.frv. Ef talan sem hann segir og talan á spilinu er sú sama þurfa allir að drekka jafn marga drykki og talan segir um (t.d. ef hann segir 11 og gosi kemur upp þurfa allir að drekka 11 sopa). Leiknum er svo haldið áfram þar til allir eru búnir að fá ógeð á leiknum, eða ógeð af ölvun.
Dónakall í umferð Tyrkinn var að fá ansi vafasama aðvörun í tölvupósti: Aðvörun!! Staðfest hefur verið við okkur að í nágrenni Salaskóla hafi verið maður að lokka börn (stúlkur) upp í bíl, notar hann sælgæti og önnur gylliboð. Lögreglan hefur staðfest að í síðustu viku hafi maður verið handtekinn í Breiðholtshverfum við slíka iðju. Miklar sögusagnir eru um að maður sé á ferli í Linda- og Salahverfi í viðlíka erindagjörðum en það getum við ekki staðfest. Við viljum vekja athygli foreldra á því að brýna fyrir börnum sínum að hafna öllum gylliboðum frá ókunnugum og alls ekki að fara upp í bíla hjá einhverjum sem þau ekki þekkja. Skólastjórnendur Salaskóla.
Gyðnið dónakaddl vildi koma þessu á framfæri
3.3.03
Helgarskýrsla tyrkjans
Það var allt útlit fyrir rólega helgi þegar hringt var í tyrkjann á föstudagskvöldið. Þar var frænka tyrkjans í símanum að hringja frá samkomu fyrrverandi samstarfsfélaga tyrkjans á kringlukránni sem tyrkinn var búinn að steingleyma, en auðvitað skellti tyrkinn sér að hitta liðið. Þangað var komið fólk á öllum aldri, alveg upp í einn harðan kappa sem var eitthvað kominn yfir sjötugt og var í gríðar góðu stuði á 7. tvöfalda vodkanum sínum sem að sjálfsögðu var blandaður í vatn. Þar sem tyrkinn mætti of seint var fólk komið með gott forskot og einhver "snillingurinn" tók það upp að fara láta fólkið syngja og varð "Undir bláhimni" fyrir valinu af einhverjum sérkennilegum ástæðum. Merkilegt hvað það bölvaða sönglag birtist oft og það hvað þetta eina lag getur verið leiðinlegra en endajaxlataka. Þó var gaman að hitta marga gamla vinnufélaga sem tyrkinn hafði ekki séð í 4-5 ár. Einn mikill snillingur riggaði svo partíi upp heima hjá konu einni sem kom engum vörnum við og var þeim hörðustu hesthúsað þangað þegar hópurinn fór að þynnast. Var þar veitt vel og eitthvað setið áfram þangað til fólk fór að komast á trúnó og tyrkinn lét sig hverfa. Á laugardaginn var hóað í Catan spil, en þess má geta að það spil hefur verið spilað hverja helgi (og stundum 2svar sömu helgina) síðan tyrkinn fjárfesti í þeim snilldargrip. Bjarkinn kom sterkur inn sem nýliði og ásamt tyrkjanum og Fritz gerber spilaði hann ein 5 spil áður en var hætt um 4 leitið. Eitthvað virðist þetta spil sækja á huga þeirra sem hafa spilað það, en allir (nema kannski tyrkjafrúin) hafa dreymt það og munað eftir því eftir spilakvöld sem spilað hafa það með tyrkjanum, sem er bara gott. Þessir draumar voru einmitt ræddir á laugardaginn og Bjarkinn dreymdi svona strax á sunnudagsmorguninn. Svo voru að sjálfsögðu bollur á matseðlinum í gær, enda komin hefð á að taka forskot á sæluna á þeim bænum.
Drykkuleikur dagsins: "Lúser"
Til þarf: Fólk, bjór, spilastokkur Ölvun: Meðal - Mikil Staðsetning: Hvar sem er Flækjustig: Meðal - Mikið Þó þessi leikur sé ögn flóknari en margir leikir hér á tyrkjasíðunni, er hann langt frá því að vera of flókinn fyrir fólk sem komið er í glas. Markmið hans er að sjálfsögðu að verða ekki "lúserinn" og verða þeim mun fyllri (þótt margir keppast gjarnan að því takmarkinu). Í upphafi er stokknum skipt á milli leikmanna þannig að allir fái jafn mörg spil OG að minnsta kosti eitt spil verði afgangs. Ef 3 leikmenn spila fá þannig allir 17 spil og eitt er afgangs, ef 4 leikmenn spila fá allir 12 spil og 4 verða afgangs. Afgangs spilið eða spilin eru lögð á mitt borðið og snýr eitt upp (Borðspilið svokallaða) en hin eru ekki gerð sýnileg. Ef aðeins tveir spila fá báðir 13 spil.
Einn leikmaður hefur leik (sá sem situr síðasta lúser á vinstri hönd ef ein umferð er búin) og er spilað í slögum. Sá sem byrjar má spila út einu spili, pari, 3 eins, 4 eins eða litaröð sem inniheldur a.m.k. þrjú spil (t.d. 3,4 og 5 í laufum). Leikurinn gengur hringsælis og þurfa allir að leika samskonar samsetningu spila (t.d. allir að leggja út litaröð með 3 spilum), en ef þeir geta það ekki mega þeir segja pass og skipta þá einu spili út fyrir Borðspilið (þennig geta seinni leikmenn skipt út spili fyrir það spil). Taka skal fram að leikmenn þurfa ekki að leggja fram betri hönd, aðeins samskonar samsetningu og sá sem byrjaði (ef hann leggur niður par, þurfa hinir líka að leggja niður eitthvað par). Þegar litaröð er spiluð út þurfa hinir að hafa hana jafn langa (þ.e. jafn mörg spil í röð í sama lit).
Þegar allir leikmenn hafa leikið (sett út samsetningu, eitt spil eða passað og skipt spili), eru spilin tekin til hliðar og sá sem var með hæstu samsetninguna vinnur höndina og byrjar næstu lotu. Ef upp kemur jafntefli, ef til dæmis tveir leikmenn leika út sitthvorum stökum ás, vinnar sá sem spilaði honum út fyrr (jafnteflisreglan). Ef það kemur upp að sá sem vinnur á engin spil eftir á hendi vinnur sá sem var með næst bestu hendina (takið jafnteflisregluna til greina). Ef einhver hefur sagt pass getur hann að sjálfsögðu ekki unnið hendi. Ef sú sérkennilega staða kemur upp að engin getur hafið leik (allir sagt pass eftir fyrsta sem kláraði spilin sín) er pappír-skæri-steinn leikurinn til að ákveða hver hefur næstu lotu.
Refsingar: Sá sem tapar lotu verður að drekka einu sinni. Ef fleiri en einn tapa (t.d. ef tveir segja pass) drekka báðir, en allir sem segja pass eru taldir hafa tapað lotu. Þegar aðeins einn á eftir spil á hendi er hlýtur sá hinn sami hinn vafasama heiður að vera kallaður "Lúserinn", og verður að drekka hálfan bjór (eða hálft glas af öðru víni) og verður að gefa í næsta leik. Ef tveir síðustu leikmennirnir klára spilin sín í sömu lotu er jafnteflisreglan notuð og aðeins annar verður lúserinn. Ef öll spil af einhverri tegund koma upp (allir kóngarnir) í einni lotu verða allir að drekka sem leika því spili fram.
Ábendingar -Borðspilið er mjög mikilvægt. Léleg hendi getur stórbatnað ef hægt er að skipta einu spili út. -Litaröðin er mjög mikilvæg, ef einhver getur sett langa röð fram getur verið erfitt fyrir aðra að leika það eftir, og viðkomandi leikmaður getur losað mörg spil út í einu. -Ef þú virðist ekki geta unnið, spilaðu þá lægsta spilinu þínu, það gæti bjargað þér seinna að eiga hátt spil frekar en lágt -Ef þú ætlar þér að tapa, láttu alla vega aðra drekka með þér.... -Notaðu Borðspilið skynsamlega, það sem þú setur út í staðinn fyrir það sem er þegar í borði getur hjálpað öðrum meira en þú græðir á skiptunum (ath. má sleppa því að skipta spili þegar sagt er pass)
Spurningar má senda á tyrkjann
|
|
|
|
|