Tyrkinn Rausar // Alltaf hress, alltaf myndarlegur, alltaf tyrkinn... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins //
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

mars 6, 2003

:: tyrkinn 10:50 [+] ::

Tilviljun dauðans
Tyrkinn var að glápa á kassann í gærkvöldi á "Law and order" á skjá einum, sem er varla frásögu færandi. Nema hvað að þar kom atriði þar sem fólk var að keyra þegar bíll kemur á fleygiferð og klessir á þau svo bílstjórinn dó. Það var konan á myndini, en þessi leikkona heitir Jill Hennessy. Þá sagði tyrkinn "Þetta var snyrtileg afgreiðsla, ekkert verið að skrifa hana út úr þættinum, heldur drepa hana bara einn tveir og þrír. Í hvaða nýja þætti ætli hún hafi fengið hlutverk?". Þá skipti tyrkinn strax yfir á stöð 2, og viti menn, sama leikkona var þar á skjánnum í nýjum þætti þar sem heitir "Crossing Jordan". Afar fyndin tilviljun, eða það fannst tyrkjunum að minnsta kosti...



:: tyrkinn 09:24 [+] ::

...og nú segja þeir að það sé ekkert spes vatn hérna...


mars 5, 2003

:: tyrkinn 15:53 [+] ::

Fyrsta dónasagan
Tyrkinn fann fyrir tilviljun þessa skemmtilegu síðu sem inniheldur Bósa sögu ok Herrauðs sem verður að teljast fyrsta íslenska pornóið...



:: tyrkinn 13:13 [+] ::

Hvaða lag var efst á vinsældarlistum þar ytra er þú fæddist? [Tyrkjafrúin]
Ðiss dei inn mjúsik



:: tyrkinn 13:10 [+] ::

Tyrkinn tók ansi vafasamt próf á annars vondri heimasíðu þar sem spurningarnar voru meira en lítið leiðandi og hlutdrægar, enda ekki við öðru að búast. En samkvæmt þessu prófi er tyrkinn sjálfur foringinn....





Þú ert Davíð Oddsson:

Þér finnst þú vera frábær og flestir aðrir
aumingjar (nema Össur; hann er dóni). Þú ert oft hnyttin(n) og
skemmtileg(ur) en þeir þættir týnast þó í valdhrokanum sem er að sliga þig.

Taktu vafasama "Hvaða stjórnmálaleiðtogi ert þú?" prófið







:: tyrkinn 12:11 [+] ::

Drykkuleikur dagsins: "Víkingur"
Til þarf: Fólk, Áfengi
Ölvun: Lítil
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lítið
Þetta er afar einfaldur leikur en reyndar afar heimskulegur líka. Leikmenn geta verið nokkuð margir þótt ekki sé mælt með fleiri en 10 leikmönnum. Leikmenn sitja í hring og einhver byrjar leikinn. Sá leikmaður gerir "Víkingahorn á hreyfingu" (þumlar í eða við eyrun og hreyfa hina puttana fram og aftur upp í loft) í 1-2 sek, svo klappar hann lófunum saman og bendir þeim (samanklemmdum) á einhvern annan leikmann. Sá leikmaður gerir þá "víkingahornin" en leikmennirnir sem sitja við hlið hans báðu megin verða að "róa bátnum" á meðan. Þetta þýðir að sá sem situr á vinstri hönd víkingsins róir til vistri við sig, en sá til hægri róir til hægri. Þá klappar víkingurinn saman lófunum og tilnefnir annan víking með bendingu. Þetta heldur áfram þar til einhver áttar sig ekki nógu fljótt á því að bent sé á hann, eða annar hvor ræðari klikkar á að róa (og réttu megin). Þeir sem klikka drekka að sjálfsögðu. Sá sem klikkar hefur svo leikinn að nýju.



:: tyrkinn 10:20 [+] ::

Maður getur víst ekki valið og hafnað.... [Bjarkinn sendi]


mars 4, 2003

:: tyrkinn 15:00 [+] ::

Þetta hlýtur að vera ein athyglisverðasta auglýsing sem sést hefur DV. [He-lo & Drykkumaðurinn sendu]

Var í gær, undir smáauglýsingaflokknum "Ýmislegt".

"Hvar varst þú 24.maí 1994
Varst þú að fagna sigri R-listans í borgarstjórnarkosningunum. Hittirðu stelpu sem datt og fékk skurð á ennið? Fórstu með henni heim, svafstu hjá henni og varst síðan farinn þegar hún vaknaði. Þessi nótt gat af sér barn sem langar að hitta pabba sinn."



:: tyrkinn 14:44 [+] ::

Drykkuleikur dagsins: "Upp og niður ánna"
Til þarf: Slatti af fólki, bjór og a.m.k. 2 spilastokkar
Ölvun: Mikil
Staðsetning: Heimahús eða salur
Flækjustig: Lítið
Þessi leikur er mjög góður þegar margir eru við drykkju, ef til vill fyrir árshátíðina? Hann er ögn skyldur "Drekka 3 - gefa 3" en þó nokkuð frábrugðinn.
Ef aðeins 6 eða færri leikmenn spila er nóg að vera með einn spilastokk, en bæta þarf öðrum við við hverja 8-10 umfram spilara.
Leikur hefst á því að fólk situr í hring og sá sem gefur lætur hvern leikmann hafa 4 spil sem snúa upp fyrir framan hvern leikmann. Sá sem gefur hefur svo leikinn á leið "upp ánna" með því að snúa við einu spili. Þá þurfa allir sem hafa samsvarandi spil fyrir framan sig að drekka einu sinni. Ef leikmaður hefur tvö slík spil (t.d. tvo gosa) þarf hann að sjálfsögðu að drekka tvisvar. Sá sem gefur snýr því næst öðru spili við, en í þetta skipti þurfa leikmenn að drekka tvisvar fyrir hvert samsvarandi spil sem þeir hafa. Næst eru 3 sopar á spil og loks fjórir á hvert spil.
Eftir fjórða spilið, snýr gjafarinn leiknum við og fer "niður ánna". Þá snýr hann við fimmta spilinu og þá mega þeir sem eru með samsvarandi spil "gefa" 4 sopa (þ.e. láta aðra drekka) á hvert samsvarandi spil sem þeir hafa, það mega vera fjórir á einn annan leikmann eða einn sopi á fjóra leikmenn. Að sjálfsögðu mega þeir gefa 8 drykki ef þeir eru með tvö samsvarandi, jú eða 12 ef þeir eru með þrjú. Sá sem gefur heldur svo áfram "niður ánna" og næst má gefa 3 sopa á hvert spil, þá 2 og loks einn drykk á hvert spil.
Ef stokkurinn klárast, eru spilin tekin saman aftur og stokkuð og gefið aftur. Að lokum hefur sá sem gefur að "telja spil" frá 1 upp í 13. Þá segir hann 1 og snýr við fyrsta spilinu o.s.frv. Ef talan sem hann segir og talan á spilinu er sú sama þurfa allir að drekka jafn marga drykki og talan segir um (t.d. ef hann segir 11 og gosi kemur upp þurfa allir að drekka 11 sopa).
Leiknum er svo haldið áfram þar til allir eru búnir að fá ógeð á leiknum, eða ógeð af ölvun.



:: tyrkinn 10:05 [+] ::

Dónakall í umferð
Tyrkinn var að fá ansi vafasama aðvörun í tölvupósti:
Aðvörun!!
Staðfest hefur verið við okkur að í nágrenni Salaskóla hafi verið maður að lokka börn (stúlkur) upp í bíl, notar hann sælgæti og önnur gylliboð. Lögreglan hefur staðfest að í síðustu viku hafi maður verið handtekinn í Breiðholtshverfum við slíka iðju. Miklar sögusagnir eru um að maður sé á ferli í Linda- og Salahverfi í viðlíka erindagjörðum en það getum við ekki staðfest. Við viljum vekja athygli foreldra á því að brýna fyrir börnum sínum að hafna öllum gylliboðum frá ókunnugum og alls ekki að fara upp í bíla hjá einhverjum sem þau ekki þekkja. Skólastjórnendur Salaskóla.



:: tyrkinn 09:12 [+] ::

Gyðnið dónakaddl vildi koma þessu á framfæri


mars 3, 2003

:: tyrkinn 15:49 [+] ::

Helgarskýrsla tyrkjans
Það var allt útlit fyrir rólega helgi þegar hringt var í tyrkjann á föstudagskvöldið. Þar var frænka tyrkjans í símanum að hringja frá samkomu fyrrverandi samstarfsfélaga tyrkjans á kringlukránni sem tyrkinn var búinn að steingleyma, en auðvitað skellti tyrkinn sér að hitta liðið. Þangað var komið fólk á öllum aldri, alveg upp í einn harðan kappa sem var eitthvað kominn yfir sjötugt og var í gríðar góðu stuði á 7. tvöfalda vodkanum sínum sem að sjálfsögðu var blandaður í vatn. Þar sem tyrkinn mætti of seint var fólk komið með gott forskot og einhver "snillingurinn" tók það upp að fara láta fólkið syngja og varð "Undir bláhimni" fyrir valinu af einhverjum sérkennilegum ástæðum. Merkilegt hvað það bölvaða sönglag birtist oft og það hvað þetta eina lag getur verið leiðinlegra en endajaxlataka. Þó var gaman að hitta marga gamla vinnufélaga sem tyrkinn hafði ekki séð í 4-5 ár. Einn mikill snillingur riggaði svo partíi upp heima hjá konu einni sem kom engum vörnum við og var þeim hörðustu hesthúsað þangað þegar hópurinn fór að þynnast. Var þar veitt vel og eitthvað setið áfram þangað til fólk fór að komast á trúnó og tyrkinn lét sig hverfa.
Á laugardaginn var hóað í Catan spil, en þess má geta að það spil hefur verið spilað hverja helgi (og stundum 2svar sömu helgina) síðan tyrkinn fjárfesti í þeim snilldargrip. Bjarkinn kom sterkur inn sem nýliði og ásamt tyrkjanum og Fritz gerber spilaði hann ein 5 spil áður en var hætt um 4 leitið. Eitthvað virðist þetta spil sækja á huga þeirra sem hafa spilað það, en allir (nema kannski tyrkjafrúin) hafa dreymt það og munað eftir því eftir spilakvöld sem spilað hafa það með tyrkjanum, sem er bara gott. Þessir draumar voru einmitt ræddir á laugardaginn og Bjarkinn dreymdi svona strax á sunnudagsmorguninn.
Svo voru að sjálfsögðu bollur á matseðlinum í gær, enda komin hefð á að taka forskot á sæluna á þeim bænum.



:: tyrkinn 15:23 [+] ::

Drykkuleikur dagsins: "Lúser"
Til þarf: Fólk, bjór, spilastokkur
Ölvun: Meðal - Mikil
Staðsetning: Hvar sem er
Flækjustig: Meðal - Mikið
Þó þessi leikur sé ögn flóknari en margir leikir hér á tyrkjasíðunni, er hann langt frá því að vera of flókinn fyrir fólk sem komið er í glas. Markmið hans er að sjálfsögðu að verða ekki "lúserinn" og verða þeim mun fyllri (þótt margir keppast gjarnan að því takmarkinu). Í upphafi er stokknum skipt á milli leikmanna þannig að allir fái jafn mörg spil OG að minnsta kosti eitt spil verði afgangs. Ef 3 leikmenn spila fá þannig allir 17 spil og eitt er afgangs, ef 4 leikmenn spila fá allir 12 spil og 4 verða afgangs. Afgangs spilið eða spilin eru lögð á mitt borðið og snýr eitt upp (Borðspilið svokallaða) en hin eru ekki gerð sýnileg. Ef aðeins tveir spila fá báðir 13 spil.

Einn leikmaður hefur leik (sá sem situr síðasta lúser á vinstri hönd ef ein umferð er búin) og er spilað í slögum. Sá sem byrjar má spila út einu spili, pari, 3 eins, 4 eins eða litaröð sem inniheldur a.m.k. þrjú spil (t.d. 3,4 og 5 í laufum). Leikurinn gengur hringsælis og þurfa allir að leika samskonar samsetningu spila (t.d. allir að leggja út litaröð með 3 spilum), en ef þeir geta það ekki mega þeir segja pass og skipta þá einu spili út fyrir Borðspilið (þennig geta seinni leikmenn skipt út spili fyrir það spil). Taka skal fram að leikmenn þurfa ekki að leggja fram betri hönd, aðeins samskonar samsetningu og sá sem byrjaði (ef hann leggur niður par, þurfa hinir líka að leggja niður eitthvað par). Þegar litaröð er spiluð út þurfa hinir að hafa hana jafn langa (þ.e. jafn mörg spil í röð í sama lit).

Þegar allir leikmenn hafa leikið (sett út samsetningu, eitt spil eða passað og skipt spili), eru spilin tekin til hliðar og sá sem var með hæstu samsetninguna vinnur höndina og byrjar næstu lotu. Ef upp kemur jafntefli, ef til dæmis tveir leikmenn leika út sitthvorum stökum ás, vinnar sá sem spilaði honum út fyrr (jafnteflisreglan). Ef það kemur upp að sá sem vinnur á engin spil eftir á hendi vinnur sá sem var með næst bestu hendina (takið jafnteflisregluna til greina). Ef einhver hefur sagt pass getur hann að sjálfsögðu ekki unnið hendi. Ef sú sérkennilega staða kemur upp að engin getur hafið leik (allir sagt pass eftir fyrsta sem kláraði spilin sín) er pappír-skæri-steinn leikurinn til að ákveða hver hefur næstu lotu.

Refsingar:
Sá sem tapar lotu verður að drekka einu sinni.
Ef fleiri en einn tapa (t.d. ef tveir segja pass) drekka báðir, en allir sem segja pass eru taldir hafa tapað lotu.
Þegar aðeins einn á eftir spil á hendi er hlýtur sá hinn sami hinn vafasama heiður að vera kallaður "Lúserinn", og verður að drekka hálfan bjór (eða hálft glas af öðru víni) og verður að gefa í næsta leik. Ef tveir síðustu leikmennirnir klára spilin sín í sömu lotu er jafnteflisreglan notuð og aðeins annar verður lúserinn. Ef öll spil af einhverri tegund koma upp (allir kóngarnir) í einni lotu verða allir að drekka sem leika því spili fram.

Ábendingar
-Borðspilið er mjög mikilvægt. Léleg hendi getur stórbatnað ef hægt er að skipta einu spili út.
-Litaröðin er mjög mikilvæg, ef einhver getur sett langa röð fram getur verið erfitt fyrir aðra að leika það eftir, og viðkomandi leikmaður getur losað mörg spil út í einu.
-Ef þú virðist ekki geta unnið, spilaðu þá lægsta spilinu þínu, það gæti bjargað þér seinna að eiga hátt spil frekar en lágt
-Ef þú ætlar þér að tapa, láttu alla vega aðra drekka með þér....
-Notaðu Borðspilið skynsamlega, það sem þú setur út í staðinn fyrir það sem er þegar í borði getur hjálpað öðrum meira en þú græðir á skiptunum (ath. má sleppa því að skipta spili þegar sagt er pass)

Spurningar má senda á tyrkjann


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Mjuzik vikunnar

Eldra