Tyrkinn Rausar // Alltaf hress, alltaf myndarlegur, alltaf tyrkinn... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins //
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

apríl 5, 2003

:: tyrkinn 20:10 [+] ::

Svít
Tyrkinn var rétt í þessu að skila inn skattinum, sem er gott. Ekki getur hann þó mælt með því að reyna að skila framtalinu á netinu ef notuð er tenging frá Fjöltengi, búið að slitna á 5 mín fresti og hefur tyrkinn þurft að stimpla upplýsingar oftar en einu sinni inn vegna sambandsleysi við þetta helvíti....


apríl 4, 2003

:: tyrkinn 13:30 [+] ::

Bílaauglýsingar
Venjulega eru bílaauglýsingar afar leiðinlegar, oftar en ekki einhverjir slyddujeppar að keyra í einhverjum sandgryfjum eða á fjöllum og lítið um það að segja. Undanfarið hefur þó farið að bóla á afar steiktum auglýsingum sem eru ekki alveg að gera sig. Nýja Micra auglýsingin er silly, bláar varir sem spyrja mann hvort maður tali "micra", og er ekki vekja áhuga tyrkjans. Önnur leiðinleg auglýsing er í gangi þar sem lítil stelpa gengur inn í bílskúr og inn í bíl í þrumuveðri, sú er of löng og hund leiðinleg. Sú heimskulegasta þó hlýtur að vera nýja C3 augýsingin fyrir Citroen, þar kemur einhver bíll drulluskítugur og veðrið þrífur hann. Á meðan er eitthvað verið að babbla um að leitað hefði verið eftir svipuðum bíl og Yaris komið upp og að hann væri ágætur, enda væri hann framleiddur í Frakklandi. Svo kemur frasinn; "Brimborg þar sem er öruggast að versla" eða eitthvað í þá veruna. Það eina sem situr eftir manni eftir að hafa horft á þessa auglýsingu er "Yaris" og væntanlega er þá auglýsingin að skila þver öfugum áhrifum...



:: tyrkinn 13:14 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Búmm"
Til þarf: Fólk, bjór
Ölvun: Lítil-Meðal
Staðsetning: Hvar sem er
Flækjustig: Lágt-Meðal
Þessi leikur er klassískur, og hefur tyrkinn oft spilað hann í alls kyns ástandi og er hann tilvalinn til að ýta undir frekari kátínu hjá for-ölvuðu fólki sem vill gera sér dagamun. Leikmenn sitja í hring og fyrsti leikmaðurinn hefur leikinn á því að segja hátt og snjallt "einn", sá næsti segir "tveir" (réttsælis hring) og svo framvegis. Og þá kemur reglan, það er bannað að segja "sjö" eða tölu sem er deilanleg með 7, í stað þess að segja slíka 7-tölu, skal segja "búmm" og snúa hringnum við. Ef einhver segir 7, tölu sem er deilanleg með 7 (14,21 o.s.frv.), eða segir "búmm" þegar ekki á að gera það skal hinn sami drekka. Oft myndast mikil stemning og gríðarlegur metnaður að reyna að ná sem hæstri tölu án þess að klikka, og það er oft erfiðara en sýnist.

Til að einfalda leikinn má sleppa því að láta hringinn snúast við, við hvert "búmm", en ekki er mælt með því þar sem snúningurinn getur gefið leiknum skemmtilega vídd (gaman þegar komið er upp í 27-28 (tvöfallt búmm og tvöfalldur snúningur...). Einnig má bæta við því að ekki með segja tölur sem deilanlegar eru með 11.


apríl 2, 2003

:: tyrkinn 14:49 [+] ::

John Cleese skrifar um "The Axis of Evil" (á tilverunni), fyndið



:: tyrkinn 13:04 [+] ::

Klan listinn
Tyrkinn er loks farinn að uppfærast á Klan-listanum (hér til vinstri), sem er vel. Eitthvað afar sérkennilegt olli því að listinn hætti að uppfæra tyrkjann og fundust engar eðlilegar útskýringar á vandanum, Simbinn er búinn að leysa málið greinilega, takk takk.


apríl 1, 2003

:: tyrkinn 13:39 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Kjaftæði"
Til þarf: Fólk, bjór, spilastokkur
Ölvun: Mikil
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Meðal
Nú reynir á hver kann að ljúga og hver ekki, að því leiti er þessi leikur líkur Meyer leiknum, en þó er þessi einfaldari. Markmið leiksins er að losa sig við öll spil. Í upphafi er öllum stokknum skipt jafnt (eða svo til) á milli leikmanna sem sitja í hring. Þá er byrjað á að setja út ása, fyrsti leikmaður setur út þann fjölda ása sem hann hefur, ef hann á engan ás, er málið að ljúga og setja út eitthvað annað. Ef einhver heldur að leikmaður sé að ljúga, skal hann segja "Kjaftæði". Þá verður leikmaðurinn að snúa við spilinu/spilunum sem hann var búinn að setja út. Ef hann var að ljúga þarf hann að drekka einu sinni fyrir hvert "logið" spil og taka öll spilin sem eru í borði. Hins vegar, ef einhver kallar kjaftæði og ekki var um kjaftæði að ræða skal ásakandinn drekka fyrir hvert spil og taka öll spilin úr borði. Spilið byrjar á ásum, svo koma kóngar o.s.frv. alveg niður í ása aftur. Spilið heldur svo áfram þar til einhver er búinn með öll sín spil, eða þegar aðeins tveir eru eftir.


mars 31, 2003

:: tyrkinn 12:09 [+] ::

Drykkjuleikur dagsins: "Buffaló"
Til þarf: Fólk, áfengi
Ölvun: Mikil
Staðsetning: Heimahús, úti
Flækjustig: Lítið
Þessi leikur er afar einfaldur og getur verið skemmtilegur. Leikurinn er þess eðlis að fólk þarf ekki að vera bundið honum nema að litlu leyti og er ágætt að leika hann þegar margir sitja við drykkju. Aðeins ein regla gildir í leiknum; Allir þurfa að drekka með vinstri hendinni (nema örvhentir, þeir nota hægri hendina). Ef maður sér að einhver er að drekka með hægri hendinni (sem er ekki örvhentur) skal byrjað að kalla "Buffaló, Buffaló, Buffaló" og klappa eða berja í borð í takt, þegar einn byrjar á þessu skulu allir slást í hóp með honum og einblína á reglubrjótinn. Reglubrjóturinn skal þamba úr glasinu þar til það er tómt eins hratt og hann getur, sama hvað mikið er í því, og skulu köllin og klappið ekki stoppa þar til glasið er tómt. Engar undantekningar leyfðar, ef drukkið er með rangri hendi skal klárað úr glasinu. Flóknara er það ekki.



:: tyrkinn 11:32 [+] ::

Á vellinum
Hringt var í tyrkjann á föstudagskvöldið, um kvöldmatarleytið. Þar var á ferðinni hópur af vinu tyrkjans sem höfðu mælt sér mót í Glaskow til að glápa saman á knattspyrnuleikinn þar ytra. Gríðarleg stemning var á mannskapnum og var hver og einn kynntur hátíðlega í símann af hópnum sbr; "Frá Noregi, Eiiiiiiigiillll Páálsssooooon", sem var pínu fyndið. Þarna voru flest heimshornakvikindin mætt, Gyðnið frá Skotlandi, Huginn frá Baunalandi, Geiri Agg frá Germaníu, Drykkjumaðurinn frá Noregi og loks fulltrúi Íslands Fritz Gerber. Eitthvað sást í smettin á þessum ófríðu mönnum í sjónvarpinu og virtust menn ekki eins hressir og á föstudaginn daginn eftir á leiknum, enda tapaðist leikurinn.



:: tyrkinn 09:48 [+] ::

Nikótín
Þeir segja (gárungarnir) að það sé erfiðara að venja sig af nikótíni en heróíni og er tyrkinn farinn að trúa því. Reyndar hefur tyrkinn ekki lagt í heróín, en tóbaksdraugurinn er búinn að elta tyrkjann á röndum í nokkur ár. Nú á að gera betur úr því, í nokkrar vikur hefur verið stefnt af því að hætta tóbaksneyslu, en það ekki gert fyrir fullt og allt. Nokkuð er síðan tyrkinn hætti að reykja heima hjá sér, en eins og margir vita er tyrkinn jafnvígur á tóbak og hefur tekið í vöruna í vinnunni um skeið. Nú var ekkert tóbak notað um helgina og nú er ekkert troðið í vör, og er óhætt að segja að tyrkinn sé ögn trekktur fyrir vikið og má búast við súrri viku, sérstaklega þar sem klára þarf skattinn líka þessa vikuna.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Mjuzik vikunnar

Eldra