Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

30.4.03

:: tyrkinn 11:27 [+] ::


Á andríki.is er afar áhugaverð uppstilling á því hvað landinn gæti kallað yfir sig 10. maí n.k. Þegar maður sér þetta svona í samhengi fer hrollur um mann og maður verður hræddur, mjög hræddur... Smellið hér og skrollið pínu niður..


29.4.03

:: tyrkinn 14:08 [+] ::


Stóra bílamálið
Vegna yfirvofandi fjölgun skattgreiðenda í tyrkjalindinni var ákveðið hvor kaupa ætti stærri bíl undir allt saman. Fyrir um viku var byrjað að þræða bílasölurnar og leita að einhverju spennandi. Eftir smá skoðun komust Toyota Avensis bílar ofarlega á listann og var leitað að 2-3 ára gömlum slíkum á sæmilegum verðum úti um víðann völl. Fleiri bílasölur virtust til en tyrkinn bjóst við og eru þær flest allar leiðinda búllur. Tyrkjarnir voru búnir með um 20 heimsóknir á slíka staði og aldrei var yrt á þá, og gerði enginn sig líklegann til að reyna að selja þeim neitt. Nóg er þó til af bílum til sölu af ýmsum stærðum og gerðum. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þessar:

1. Opel (flestar tegundir) virðist vera afar leiðinleg tegund á eftirmarkaði, gríðarlegt magn af notuðum Opelum eru á bílasölunum að safna ryki.
2. Allar líkur eru á því að fleiri Toyota Celica bifreiðar séu á bílasölum landans en á götunum.
3. Gríðarlegt magn er af Musso jeppum á bílasölunum, væna röð af slíkum bílum má finna á hverri bílasölu.
4. Grunsamlega mikið er af dýrum bílum eins og nýlegum Bensum og jafnvel 7 milljón króna Porche og Benzar.
5. Þjónustulund sölumanna notaðra bíla er á við þjónustulund langþreyttra ríkisstofnanna.
6. Ansi margir súkkulaðidrengir hafa ofgírað sig og sprungið á greiðslum á of dýrum bílum síðastliðin ár.
7. Nær allar bílasölur eru á moldarflagi og möl, einhverra hluta vegna.

Í miðju fárinu var slysast til þess að kíkja á nýju bílana hjá P. Samúelssyni svona til gamans. Auðvitað leiddi það til þess að tyrkirnir fóru að pæla í einum slíkum og enduðu ósköpin á því að ákveðið var að "kaupa" nýjan Toyota Corolla bíl beint úr kassanum. Þessi svokölluðu "kaup" eru reyndar kaupleiga sem þýðir það að tyrkirnir munu aldrei eignast bílinn, heldur passa upp á hann í þrjú ár og greiða mánaðarlega niður afföllinn af kerrunni þessi fyrstu og dýrustu ár. Bíllinn verður sóttur eftir vinnu á eftir, og er tyrkjafrúin að fara úr límingunum úr spenningi. Kerran er annars ansi myndarlegur bíll, með "sedan" laginu (eða "eins og bíll í laginu" eins og tyrkjafrúin kallar það), svartur að lit, sjálfskiptur, með 1,6 lítra VVT vél (hvað sem VVT þýðir) og ansi lipur og skemmtilegur. Yarisinn fer uppí dæmið, en Albatrossinn er ennþá til sölu, nú fer hver að verða síðastur!


25.4.03

:: tyrkinn 16:12 [+] ::


Af skrifleti og öðru
Tyrkinn er búinn að vera afar latur við að uppfæra síðuna undanfarnar vikur og lofar að venju úrbótum. Undanfarnar vikur eru jú búnar að vera sérkennilegar, ekkert nema frídagar og vesen. Meiri og meiri tími fer orðið í að vesenast með myndarvélina og þennan vef , og er þetta orðið að hinni ágætustu dellu og má búast við að tyrkinn eigi eftir að taka ófáar myndirnar áður en ævi hans er á enda. Ekki verður þetta verra í sumar þegar maður nennir að hanga meira úti og ferðast. Athugulir lesendur hafa tekið eftir því að nokkuð er síðan kom nýr drykkjuleikur, og er jafnvel verið að hugsa um að segja þetta gott, enda eru þeir orðnir 35 talsins sem ætti að vera nóg fyrir hvaða partí sem er. Kannski væri gott að setja upp summary fljótlega. Annars er helgin framundan og er það vel, asnalegir þessir fánudagar. [geisp]


22.4.03

:: tyrkinn 16:39 [+] ::


Ágætis páskar á enda
Lítið var um djöfulgang þessa páskana og fóru tyrkjarnir ekki mikið út úr húsi, nema þá helst til átu og erindaleysu ýmis konar. Á fimmtudaginn var þó gestagangur í tyrkjalindi þegar svenn hjónin og gerber familían mættu í grill. Þar gafst karlpeningnum tækifæri á að skvetta aðeins í augað nokkrum glösum af léttu, þó var ekki mikið um drykkjuleg afrek og var svenni svenn dreginn heim á fjölskyldukonfektinu fyrir allar aldir enda allt liðið illa haldið af bráðsmitandi hjarð-óléttu (S.A.H.P sjá doktor Herkúles í tyrkjaspjallinu). Tengdó buðu tyrkjunum tvisvar í mat yfir páskana og voru því bæði dýrindis lambakjet og hammarahryggur á disk tyrkjans. Þess má geta að vegna tæknilegra örðugleika er aldrei lambakjet á boðstólnum í tyrkjalindinni, og var því matarboðið afar kærkomið, enda ljúffeng skepna þar á ferðinni. Þá var farið í sund, og einnig flestar bílasölur þræddar. Verið er að skoða möguleika á því að selja dósina (og Albatrossinn reyndar líka) og kaupa stærri dós.



:: tyrkinn 15:06 [+] ::


Þetta eru andstyggilegar fréttir....ullabjakk...


14.4.03

:: tyrkinn 16:24 [+] ::


Hver er þessi ógæfumaður, tyrkinn ætlar að lemja hann! - helgarskýrslan
Á föstudaginn var ákveðið að drekka brennivín, brennivínsdrykkjunar vegna sem var ágætis tilbreyting frá síðustu helgum. Í tyrkjalindina mætti þá það sem var síðar kallað félag verðandi feðra og var tekið á því. Popparinn var aldrei þessu vant í fríi og laus við kerlinguna sína og fór hann mikinn. Þá var farið niður í bæinn og nokkrir staðir þræddir, m.a. farið á gaukinn þar sem Akkerið kynnti frægan popparadrykk fyrir viðstöddum, "Drykk Ógæfumannsins" sem samanstendur af þreföldum Bacardi Lemon og Breezer notaður til að fylla glasið. Þegar Gauknum var lokað þótti sniðugt að fara á Glaumbar þangað til lá við ælum. Daginn eftir var sofið til klukkan 18:00 og kom í ljós að drykkur ógæfumannsins væri skemmtilegri samdægurs, gerði ekki mikla lukku daginn eftir. Í dag er svo þriðji í þynnku, sem er ekki gott, og er því enginn drykkjuleikur í dag....


11.4.03

:: tyrkinn 13:19 [+] ::


Hádegisferð
Tyrkinn fór með frúnna í skoðun áðan, og fengu þau ágætis mynd af tyrkjakrílinu. Í einhverju rugli var svo ákveðið að fara á Hlölla í löns, og var það örugglega í síðasta skipti því maturinn var viðbjóður, og virðist aðeins vera óhætt að éta þetta í áfengisvímu. Niðrí bæ eru nokkur hundruð stk. af krökkum að dimmitera í góðum fílíng. Þar má m.a. sjá Austin Powers, svín í sundbolum og mis blóðuga túrtappa sem vöktu kátínu hjá tyrkjanum. Haha h-degisins er þótt þetta samtal:
Túrtappi 1: "Ég er ekkert svo full" [skjögrandi með hálf opin augun]
Túrtappi 2: "Jú, víst"
Túrtappi 1: "Ég er ekkert svo full" [enn skjögrandi með hálf opin augun, gengur svo næstum á tyrkjana] "Góóóðann daginnn"
...alltaf gaman að dimmitera...


10.4.03

:: tyrkinn 15:20 [+] ::


Leikur
Skrítinn leikur sem tyrkinn fann á netinu, Pimpwar gjörið svo vel...


8.4.03

:: tyrkinn 15:32 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "100 skot"
Til þarf: Fólk, bjór, skotglös, klukku
Ölvun: Mjög mikil
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Lágt
Þessi leikur er afar einfalldur, en jafnframt afar ölvandi, enda mikið drukkið á stuttum tíma. Tyrkinn hefur heyrt að hann hafi verið notaður sem inngönguskilyrði í félög, m.a. í baunalandi enda er hann vel til þess fallinn, því ekki eru allir sem ná að klára leikinn. Reglurnar eru afar einfaldar, eitt skot af bjór er drukkið á hverri mínútu í 100 mín. Þetta hljómar kannski ekki erfitt, en 100 skot af bjór eru eitthvað um 9 bjórdósir sem verða að skila sér ofan í maga á rúmlega 1,5 klst. Það verður að teljast nokkuð. Í upphafi leiks skal einn fá það hlutverk að vera tímavörður sem gætir þess að allir drekki á hverri mín. Ef fólk þarf nauðsynlega að hlaupa á klósettið, skal tapið vinnast upp á 3 mín eftir að snúið er aftur. Ekki eru allir sem geta klárað 100 stk., en þeir sem það geta mega vera stoltir.



:: tyrkinn 15:18 [+] ::


Tilkynning
Nú skal það gert opinbert að senn má búast við fjölgun í tyrkjalindinni. Lítill tyrki er búin/n að melda sig í umheiminn í byrjun október, en vildi að þessu sinni ekki gefa upp hvers kyns væri. Meðgangan hefur gengið nokkuð vel og er tyrkjafrúin bara hress þótt krílið hafi ryksugað nokkuð af orku hennar. Tyrkinn er semsagt að verða faðir sem er nú ekki amalegt. Hamingjuóskir sendist á tyrkjann / tyrkjafrúnna .


5.4.03

:: tyrkinn 20:10 [+] ::


Svít
Tyrkinn var rétt í þessu að skila inn skattinum, sem er gott. Ekki getur hann þó mælt með því að reyna að skila framtalinu á netinu ef notuð er tenging frá Fjöltengi, búið að slitna á 5 mín fresti og hefur tyrkinn þurft að stimpla upplýsingar oftar en einu sinni inn vegna sambandsleysi við þetta helvíti....


4.4.03

:: tyrkinn 13:30 [+] ::


Bílaauglýsingar
Venjulega eru bílaauglýsingar afar leiðinlegar, oftar en ekki einhverjir slyddujeppar að keyra í einhverjum sandgryfjum eða á fjöllum og lítið um það að segja. Undanfarið hefur þó farið að bóla á afar steiktum auglýsingum sem eru ekki alveg að gera sig. Nýja Micra auglýsingin er silly, bláar varir sem spyrja mann hvort maður tali "micra", og er ekki vekja áhuga tyrkjans. Önnur leiðinleg auglýsing er í gangi þar sem lítil stelpa gengur inn í bílskúr og inn í bíl í þrumuveðri, sú er of löng og hund leiðinleg. Sú heimskulegasta þó hlýtur að vera nýja C3 augýsingin fyrir Citroen, þar kemur einhver bíll drulluskítugur og veðrið þrífur hann. Á meðan er eitthvað verið að babbla um að leitað hefði verið eftir svipuðum bíl og Yaris komið upp og að hann væri ágætur, enda væri hann framleiddur í Frakklandi. Svo kemur frasinn; "Brimborg þar sem er öruggast að versla" eða eitthvað í þá veruna. Það eina sem situr eftir manni eftir að hafa horft á þessa auglýsingu er "Yaris" og væntanlega er þá auglýsingin að skila þver öfugum áhrifum...



:: tyrkinn 13:14 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Búmm"
Til þarf: Fólk, bjór
Ölvun: Lítil-Meðal
Staðsetning: Hvar sem er
Flækjustig: Lágt-Meðal
Þessi leikur er klassískur, og hefur tyrkinn oft spilað hann í alls kyns ástandi og er hann tilvalinn til að ýta undir frekari kátínu hjá for-ölvuðu fólki sem vill gera sér dagamun. Leikmenn sitja í hring og fyrsti leikmaðurinn hefur leikinn á því að segja hátt og snjallt "einn", sá næsti segir "tveir" (réttsælis hring) og svo framvegis. Og þá kemur reglan, það er bannað að segja "sjö" eða tölu sem er deilanleg með 7, í stað þess að segja slíka 7-tölu, skal segja "búmm" og snúa hringnum við. Ef einhver segir 7, tölu sem er deilanleg með 7 (14,21 o.s.frv.), eða segir "búmm" þegar ekki á að gera það skal hinn sami drekka. Oft myndast mikil stemning og gríðarlegur metnaður að reyna að ná sem hæstri tölu án þess að klikka, og það er oft erfiðara en sýnist.

Til að einfalda leikinn má sleppa því að láta hringinn snúast við, við hvert "búmm", en ekki er mælt með því þar sem snúningurinn getur gefið leiknum skemmtilega vídd (gaman þegar komið er upp í 27-28 (tvöfallt búmm og tvöfalldur snúningur...). Einnig má bæta við því að ekki með segja tölur sem deilanlegar eru með 11.


2.4.03

:: tyrkinn 14:49 [+] ::


John Cleese skrifar um "The Axis of Evil" (á tilverunni), fyndið



:: tyrkinn 13:04 [+] ::


Klan listinn
Tyrkinn er loks farinn að uppfærast á Klan-listanum (hér til vinstri), sem er vel. Eitthvað afar sérkennilegt olli því að listinn hætti að uppfæra tyrkjann og fundust engar eðlilegar útskýringar á vandanum, Simbinn er búinn að leysa málið greinilega, takk takk.


1.4.03

:: tyrkinn 13:39 [+] ::


Drykkjuleikur dagsins: "Kjaftæði"
Til þarf: Fólk, bjór, spilastokkur
Ölvun: Mikil
Staðsetning: Heimahús
Flækjustig: Meðal
Nú reynir á hver kann að ljúga og hver ekki, að því leiti er þessi leikur líkur Meyer leiknum, en þó er þessi einfaldari. Markmið leiksins er að losa sig við öll spil. Í upphafi er öllum stokknum skipt jafnt (eða svo til) á milli leikmanna sem sitja í hring. Þá er byrjað á að setja út ása, fyrsti leikmaður setur út þann fjölda ása sem hann hefur, ef hann á engan ás, er málið að ljúga og setja út eitthvað annað. Ef einhver heldur að leikmaður sé að ljúga, skal hann segja "Kjaftæði". Þá verður leikmaðurinn að snúa við spilinu/spilunum sem hann var búinn að setja út. Ef hann var að ljúga þarf hann að drekka einu sinni fyrir hvert "logið" spil og taka öll spilin sem eru í borði. Hins vegar, ef einhver kallar kjaftæði og ekki var um kjaftæði að ræða skal ásakandinn drekka fyrir hvert spil og taka öll spilin úr borði. Spilið byrjar á ásum, svo koma kóngar o.s.frv. alveg niður í ása aftur. Spilið heldur svo áfram þar til einhver er búinn með öll sín spil, eða þegar aðeins tveir eru eftir.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra