|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
apríl 11, 2003
Hádegisferð Tyrkinn fór með frúnna í skoðun áðan, og fengu þau ágætis mynd af tyrkjakrílinu. Í einhverju rugli var svo ákveðið að fara á Hlölla í löns, og var það örugglega í síðasta skipti því maturinn var viðbjóður, og virðist aðeins vera óhætt að éta þetta í áfengisvímu. Niðrí bæ eru nokkur hundruð stk. af krökkum að dimmitera í góðum fílíng. Þar má m.a. sjá Austin Powers, svín í sundbolum og mis blóðuga túrtappa sem vöktu kátínu hjá tyrkjanum. Haha h-degisins er þótt þetta samtal: Túrtappi 1: "Ég er ekkert svo full" [skjögrandi með hálf opin augun] Túrtappi 2: "Jú, víst" Túrtappi 1: "Ég er ekkert svo full" [enn skjögrandi með hálf opin augun, gengur svo næstum á tyrkjana] "Góóóðann daginnn" ...alltaf gaman að dimmitera...
apríl 10, 2003
Leikur Skrítinn leikur sem tyrkinn fann á netinu, Pimpwar gjörið svo vel...
apríl 8, 2003
Drykkjuleikur dagsins: "100 skot"
Til þarf: Fólk, bjór, skotglös, klukku Ölvun: Mjög mikil Staðsetning: Heimahús Flækjustig: Lágt Þessi leikur er afar einfalldur, en jafnframt afar ölvandi, enda mikið drukkið á stuttum tíma. Tyrkinn hefur heyrt að hann hafi verið notaður sem inngönguskilyrði í félög, m.a. í baunalandi enda er hann vel til þess fallinn, því ekki eru allir sem ná að klára leikinn. Reglurnar eru afar einfaldar, eitt skot af bjór er drukkið á hverri mínútu í 100 mín. Þetta hljómar kannski ekki erfitt, en 100 skot af bjór eru eitthvað um 9 bjórdósir sem verða að skila sér ofan í maga á rúmlega 1,5 klst. Það verður að teljast nokkuð. Í upphafi leiks skal einn fá það hlutverk að vera tímavörður sem gætir þess að allir drekki á hverri mín. Ef fólk þarf nauðsynlega að hlaupa á klósettið, skal tapið vinnast upp á 3 mín eftir að snúið er aftur. Ekki eru allir sem geta klárað 100 stk., en þeir sem það geta mega vera stoltir.
Tilkynning Nú skal það gert opinbert að senn má búast við fjölgun í tyrkjalindinni. Lítill tyrki er búin/n að melda sig í umheiminn í byrjun október, en vildi að þessu sinni ekki gefa upp hvers kyns væri. Meðgangan hefur gengið nokkuð vel og er tyrkjafrúin bara hress þótt krílið hafi ryksugað nokkuð af orku hennar. Tyrkinn er semsagt að verða faðir sem er nú ekki amalegt. Hamingjuóskir sendist á tyrkjann / tyrkjafrúnna .
|
|
|