Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

27.5.03

:: tyrkinn 13:03 [+] ::


Síðasti dagur fyrir brottför
Nú fer að styttast í frí, vinna í 4 tíma, heima að pakka og svo út í fyrramálið. Það verður nú alveg ágætt að komast út. Planið er að koma sér fyrir á hótelinu í Köben fyrst og svo verður tyrkinn að öllum líkindum dreginn í einhverjar búðir. Um kvöldið verður sennilega eitthvað farið að éta með Hugunum. Svo er treyst á Huga til að halda uppi skemmtunum fram á laugardag. Vonandi kemst tyrkinn eitthvað í netið á þessum ferðalögum öllum svo hann geti sagt hér frá, og ef allt gengur upp má jafnvel sjá myndir á myndasíðunni áður en tyrkirnir snúa heim. [Tyrkinn segir; Eeeeeiiiiddddnnnn]


26.5.03

:: tyrkinn 16:04 [+] ::


Allt að gerast
Nú fer að styttast all verulega í Úglönd2003, en ræs er á miðvikudagsmorguninn. Aldrei að vita nema kvöldið verði nýtt í niðurpökkun og planleggingar. Búið er að henda nýjustu innanbumbumyndunum af tyrkjakrílinu á myndarsíðuna, en einhverra hluta vegna vill það ekki láta taka myndir af sér. Til að reyna að forðast sónargræjuna var bakinu snúið út og reynt að skýla sér bak við legkökuna sem skyggir ansi vel á aðra myndina. Tyrkjafrúin vildi a.m.k. halda því fram að vinkonur sínar hefðu fengið töluvert skýrari myndir af sínum afkvæmum, væri jafnvel hægt að sjá að greyið popparabarnið hefði erft nefið frá pabba sínum, tyrkinn vonar að það hafi bara verið grín...Ætli tyrkjakrílið viti að pabbi þess er með ljósmyndadellu?...... [Tyrkinn segir; Tvvvveeeeeeeeiiiir!]


25.5.03

:: tyrkinn 18:04 [+] ::


Tyrkir sigruðu Júróvisjón....að sjálfssögðu
Að sjálfssögðu vann tyrkland júró í gær, Ísland hefði mátt vera í öðru sæti en þetta hlýtur að teljast fínt. Dakk


23.5.03

:: tyrkinn 15:22 [+] ::


Júró-helgin gengur í garð
Veðrið snilld, er að koma helgi, styttist í sumarfrí og Júró fjörið í algleymingi á morgun. Gott, mjög gott. Eftir bolta í gær, hringdi Sigurvi í tyrkjann og bauð í öllara í bakgarðinum þar sem kappinn með hjálp Ingans hafði lagt þetta fínt blómabeð inn í þessa fínu girðingu sem hann setti í kringum blettinn. Kvöldsólin var tilvalin í ölsopa, enda stutt í helgina. Að sjálfsögðu var tyrkinn með myndavélina og voru nokkrar leynimyndir teknar (myndir komnar á myndasíðuna). Í morgun var svo farið í Sónar með tyrkjafrúnna. Að venju vildi krílið ekki sýna sig almennilega og snéri baki í græjuna og vildi ekkert með hana hafa. Allt virtist þó vera í himnalagi og má búast við þessum myndum hingað inn um helgina (á myndir.tyrkinn.com). Í kvöld verður svo tyrkjanum hent á dyr þegar tyrkjafrúin ætlar að hýsa vinkonur sínar í kerlingaathafnir ýmis konar (oft kallað saumó). Þá verður fátt um fína drætti, ef einhver vill leika við tyrkjann í kvöld má láta hann vita... Á morgun er svo útskriftarveisla á versta tíma (milli 18-20) og svo innflutningspartí hjá Haugnum sem fluttur er í sveitina. [Tyrkinn segir: Fffffiiiiiiiiimmmmmm]



:: tyrkinn 09:32 [+] ::


Aðeins í Ameríku [Tyrkjafrúarbróðirinn sendi]

A TRUE FACT....
Only in America......can a pizza get to your house faster than an ambulance. Only in America......are there handicap parking places in front of a skating rink.
Only in America......do drugstores make the sick walk all the way to the back of the store to get their prescriptions while healthy people can buy cigarettes at the front.
Only in America......do people order double cheeseburgers, large fries, and a diet coke.
Only in America......do banks leave both doors open and then chain the pens to the counters.
Only in America......do we leave cars worth thousands of dollars in the driveway and put our useless junk in the garage.
Only in America......do we use answering machines to screen calls and then have call waiting so we won't miss a call from someone we didn't want to talk to in the first place.
Only in America......do we buy hot dogs in packages of ten and buns in packages of eight.
Only in America......do we use the word 'politics' to describe the process so well: 'Poli' in Latin meaning 'many' and 'tics' meaning 'bloodsucking creatures'.
Only in America......do they have drive-up ATM machines with Braille lettering.

EVER WONDER .....
Why the sun lightens our hair, but darkens our skin?
Why women can't put on mascara with their mouth closed?
Why don't you ever see the headline "Psychic Wins Lottery"?
Why is "abbreviated" such a long word?
Why is it that doctors call what they do "practice"?
Why is it that to stop Windows 98, you have to click on "Start"?
Why is lemon juice made with artificial flavor, and dishwashing liquid made with real lemons?
Why is the man who invests all your money called a broker?
Why is the time of day with the slowest traffic called rush hour?
Why isn't there mouse-flavored cat food?
When dog food is new and improved tasting, who tests it?
Why didn't Noah swat those two mosquitoes?
Why do they sterilize the needle for lethal injections?
You know that indestructible black box that is used on airplanes? Why don't they make the whole plane out of that stuff?!
Why don't sheep shrink when it rains?
Why are they called apartments when they are all stuck together?
If con is the opposite of pro, is Congress the opposite of progress?
If flying is so safe, why do they call the airport the terminal?


22.5.03

:: tyrkinn 14:46 [+] ::


Kántdán
Nú fer að styttast í sumarfrí tyrkjans. Tyrkjafrúin fór í frí í gær, en tyrkinn ætlar að vinna út þriðjudaginn. Á miðvikudaginn verður svo flogið til Baunalands þar sem ferðalagið hefst. Fyrst verður stoppað í Köben í nokkra daga og verður Hugi gerður ábyrgur fyrir skemmtanahaldi þar að stærstu leyti. Þá fara tyrkirnir til bæjarins Langå þar sem ættingjar tyrkjafrúarinnar búa, og er m.a. ferming á sunnudaginn þar eftir. Þá er búið að plana löns með Drykkjumanninum í Århus klukkan 12:00 við stóra kirkjuturninn í miðbænum, mánudaginn 2. júní. Drykkjumaðurinn verður á einhverjum þvælingi frá 28. maí til 5. júní þegar kappinn flýgur heim til Íslands, enda búinn að komast að því að Noregur er skítapleis eins og Alkæda liðið. Nú, þá á að kíkja til Skagen eitthvað og fara svo til Óðinsvéa í nokkra daga þar sem vinir og ættmenni tyrkjafrúarinnar búa. Þaðan verður farið aftur til Köben og flogið til Kýpur í rúma viku. Þaðan aftur til Baunalands og loks til Álaborgar þar sem tyrkjasystirin býr ásamt fjölskyldu. Þegar tyrkjasystirin er búin að skemmta tyrkjunum í nokkra daga verður loks snúið aftur um 23. júní. Þá er bara að hefja kántdánið [tyrkinn segir: Seeeeeeeex]


19.5.03

:: tyrkinn 16:20 [+] ::


Helgarskýrsla Tyrkjans
Til að innsigla flottræfilsháttinn var ákveðið að fara út að borða síðast liðinn föstudag. Austur Indía fjelagið varð fyrir valinu að þessu sinni, og mættu tyrkirnir, Fritz Gerber og Svenn hjónin. Hópurinn lét þjóninn bara útbúa sýnishornaveislu svo allir gætu smakkað marga rétti, og voru þeir allir snilld mikil. Þeir sem ekki hafa borðað þarna vinsamlegast drullið ykkur þangað sem allra fyrst, maturinn þarna er hreint lostæti. Eftir matinn var rölt á Felix þar sem sjónvarpsstjórinn var með eitthvað partí þar sem Hrellan var fyrir, en þaðan var farið á Sólon, eftir að hafa reynt aðra staði sem voru fullir. Náði hópurinn að tryggja sér borð eitt á efri hæðinni og var ágætt þar til einhver FM hnakkinn fór að þeyta skífum og Justin Timberlake og R&B pakk eitthvað var við það að gera út af við tyrkjann. Eitthvað var þó drukkið þar og tók Gerber upp á því að drekka Long Island Ice Tea sem getur ekki endað vel. Eftir einn slíkann var ákveðið að kíkja á Gaukinn, en tyrkjafrúin var farin að geispa og fór heim að sofa. Voru menn í mis miklu stuði og voru Svenni Svenn og Keli dregnir út á hnetunum fyrir allar aldir af óléttunum, þrátt fyrir að þeir hafi virst vera í nokkru stuði. Tyrkinn og Gerber héngu þar og hlýddu á Buff fram eftir nóttu sem var ágætis fjör. Svo vildi Gerber ganga heim, en tyrkinn tók það ekki í mál.

Laugardagurinn var frekar erfiður framan af, tyrkinn svaf til klukkan eitt og var ekki orðinn góður fyrr en upp úr þrjú, en síðar var farið í afmæli hjá tyrkjarfrúarfrænkunum sem báðar áttu afmæli í síðustu viku. Þar var vel af kaffi og kökum og tók tyrkinn nokkrar myndir að venju. Eitthvað var rætt um spil um kvöldið en samkvæmt öruggum heimildum þá sofnuðu flestir á sófanum það kvöldið. Geisp.


14.5.03

:: tyrkinn 12:34 [+] ::


Póstur dauðans
Tyrkinn pantaði tvær bækur um daginn á amazon, eina ferðamannabók um Kýpur og eina um stafræna ljósmyndun. Amazon-búar ákváðu að skipta sendingunni í tvennt, og kom Kýpur bókin eftir nokkra daga. Ekkert bólaði samt á hinni fyrr en í gær, en þá barst allt í einu ítrekun frá pósthúsinu í Kópavogi, en tyrkjarnir hafa hvorki heyrt né séð til þeirra póstmanna, og enga gula miða séð í póstinum. Tyrkinn þarf sem sagt að sækja pakkann og borga einhver ríkisgjöld. Pósturinn er þó ennþá eins og versta ríkisstofnun, hefur ekkert skánað síðan hann var aðskilinn frá símanum. Þegar tyrkinn fór að grenslast fyrir um opnunartíma kom í ljós að það er opið frá klukkan 9:00 til 16:30, akkurat þegar allir aðrir eru í vinnunni. Af hverju í anskotanum geta þeir ekki haft opið a.m.k. til klukkan 18:00, gætu jafnvel opnað bara upp úr 10:00 í staðinn. Þetta er nefnilega alveg furðulegt, flestar búðir og þjónustusalar eru bara með opið á "office-hours" þegar allir eiga að vera í vinnunni, ekki þvælast eftir einhverju drasli. Það er næstum eins og þetta kerfi allt saman sé hannað utan um rassa húsmæðra, sem hlýtur að teljast gamaldags hugsun þar sem flestir eru komnir út á vinnumarkaðinn.


13.5.03

:: tyrkinn 15:03 [+] ::


Amli
Tyrkjarnir héldu upp á afmæli tyrkjafrúarinnar í gær með pompi og prakt. Pompið var ekkert mál en praktin er sko ekkert til að grínast með. Tyrkinn gaf frúnni dekurpakka einhvern sem hún ætlar að nýta sér í lok næstu viku þegar hún fer í sumarfrí. Einhverra hluta vegna ætlar hún í sumarfrí áður en tyrkinn kemst í sumarfrí, og finnst mörgum hreinn kvikindisskapur. Nú, tyrkjafrúarmóðirin leit í heimsókn og gaf dóttur sinni málm skál/fat sem lítur býsna vel út og ferður höfuðdjásn á einhverju borðinu í tyrkjalindinni, og er ekki ólíklegt að tyrkinn geti eitthvað notað apparatið sem myndefni. Til að kóróna daginn bauð tyrkinn svo frúnni út að borða. Sommelier varð fyrir valinu og mættu þau um 20:00 í snæðing. Enginn annar virðist hafa fengið sömu hugmynd þetta kvöldið og voru tyrkirnir einu gestirnir í gær. Þetta var ljómandi kvöldstund, engir leiðinlegir gestir, aðeins ein stelpa að þjóna og tyrkirnir í góðum fílíng. Svolítið fyndin stemning var þarna því tónlistin var óvenjuleg fyrir svona stað. Lengst framan af var brjálað fönk í spilaranum og í kjölfarið kom Air og Röyksopp með ljúfa tóna. Vínþjónnin mælti svo með afar góðu rauðvíni (Terrale Primitivo, IGT, Puglia, Calatrasi, Ítalía '00) sem óhætt er að mæla áfram með. Svo kom snilldin, sniglar á Sommelier eru hreinasta snilld og ætti enginn að fara á mis við þá. Tyrkinn borðaði svo lamb, tyrkjafrúin naut og var allt mjög gott. Matseðillinn er afar einfaldur þarna, 4 forréttir, 5-6 aðalréttir, 4-5 eftirréttir og 3000+ tegundir af víni. Tyrkinn mælir með þessum stað, sérstaklega á mánudagsköldi þegar er einn stafsmaður á hvern gest.


12.5.03

:: tyrkinn 16:02 [+] ::


Húúúúúúnnnnááá.....
Tyrkjafrúin á afmæli í dag eins og önnur hver manneskja í hennar fjölskyldu. Það vill svo skemmtilega til að hún er nokkrum mánuðum eldri en tyrkinn, sem getur komið sig vel þegar maður fer að nálgast fimmtugsaldurinn. Starfsfólk Tyrkinn.com óskar tyrkjafrúnni innilega til hamingju með daginn. Ef þú vilt gera slíkt hið sama, endilega sendu henni afmæliskveðju á tyrkjafru@tyrkinn.com


9.5.03

:: tyrkinn 17:08 [+] ::


Gott kaffi
Tyrkinn fór ásamt Fritz í gær til Bjarkans til Catan-spilunar. Spilið var afar hressandi að venju, og var gott að sækja meistar Bjarka heim. Spilaðir voru þrír leikir eða þar til klukkan var að verða 01:00, og fóru leikar þannig að Bjarkinn stóð við loforð sitt og sigraði tvisvar, Fritz vann einu sinni en tyrkinn lá. Bjarkinn bauð upp á úrvals Gvatemala kaffi, gulrótarköku og hraunbita af miklum myndarskap. Þó varð þessi eini kaffibolli til þess að tyrkinn svaf illa í alla nótt, og ætti það að kenna honum lexíu, ekki það að hann hafi ekki brennt sig á þessu áður. Ekki gott að sofa laust og illa, og dreyma Catan spilið í bland við annað.

Kosningar framundan, spennandi kvöld á morgun. Tyrkjafrúaramman á afmæli á morgun og býður öllu liðinu út að borða á Lækjarbrekku. Eftir það verður sennilega einhver stemning og verður hún þefuð uppi og þjóðnýtt. Vonandi verður þetta ekki hörmung, kosningarnar þ.e. Góða helgi.


8.5.03

:: tyrkinn 14:20 [+] ::


Ljóskuskrýtla [Tyrkjafrúin sendi]
Það voru tvær konur að horfa á fréttir. Önnur rauðhærð og hin ljóshærð. Myndavélarnar beindust að manni sem stóð á þakbrún og leit út fyrir að hann ætlaði að stökkva. Þessi rauðhærða sagði við hina: " Ég þori að veðja uppá 10.000.- að hann stekkur". Ljóskan tók þessu og þær horfðu spenntar á. Eftir smá stund stekkur maðurinn niður og "splash" verður að köku á stéttinni fyrir neðan. Ljóskan segir: "Jæja rétt skal vera rétt" og réttir rauðhærðu konunni 10.000.- Þá sagði sú rauðhærða: "Æi, ég get ekki tekið við þessu... ég sá þetta í fréttunum fyrr í dag". "Það er allt í lagi" sagði ljóskan " Ég sá þetta líka en datt bara ekki til hugar að hann stykki aftur"



:: tyrkinn 09:52 [+] ::


Baggalútur hefur að sjálfssögðu komið upp apparati á netinu fyrir þá sem enn eru óákveðnir fyrir kosningarnar. Hér má finna afar fyndnar myndir af frambjóðendum.


6.5.03

:: tyrkinn 23:05 [+] ::


Myndir
Tyrkinn var að grisja myndasafnið sitt og bætt við nokkrum myndum á myndasíðuna fyrir vikið



:: tyrkinn 17:14 [+] ::


Löng helgi
Tyrkinn tók sér bæði frí á föstudaginn var, svo og í gær. Ekkert var þó um drykkju og ólæti, heldur var þessi langa helgi öll á siðsamlegum nótun. Albatrossinn var settur í stand á föstudaginn, settur nýr geymir í hann og sett loft í dekkin, og eitthvað var ryksugað í honum líka. Svo bauð tyrkjamóðirin í grill, þetta fína líka lambaket. Á sunnudaginn var kíkt á kosningaplögg sjálfstæðisflokksins í Garðabænum sem poppstjörnufrúin stóð fyrir og þar var margt um manninn. Davíð var í essinu sínu í ræðu sinni og sló ítrekað á létta strengi við mikinn fögnuð viðstaddra. Á sunnudagskvöldið fór tyrkjafrúin að kvarta undan sting í bumbunni. Þegar hann var ekki horfinn daginn eftir var pantað viðtal hjá ljósmóðurinni og hún heimsótt. Kom þá í ljós að tyrkjafrúin var tognuð í bumbunni, einhver sin var eitthvað ekki í stuði og fyrir vikið getur tyrkjafrúin varla hreyft sig.


2.5.03

:: tyrkinn 04:33 [+] ::


Myndir á tyrkinn.com !
Nú er í fyrsta skipti í sögu tyrkjavefjarins boðið upp á myndasíðu. Verið er að bæta við myndum en nú þegar eru nokkrar komnar þangað inn. Tyrkinn vill enn einu sinni þakka velgjörðarmanni tyrkinn.com honum Rocco fyrir örlæti hans og hjálpsemi. Hérna má sjá apparatið

Í gær fóru tyrkinn og tyrkjafrúin í bíltúr í þessu fína gluggaveðri og skoðuðu Þingvelli í afar fallegu veðri, nokkrar myndir fóru á nýju myndasíðuna. Í dag er tyrkinn í fríi og stendur til að koma Albatrossinum í stand aftur fyrir sölu, enda er hann búinn að standa á planinu hjá tyrkjamóðurinni í marga mánuði eða síðan hann var skoðaður á sínum tíma. Svo stendur til að koma geymslunni í stand um helgina og henda upp hillum sem keyptar voru fyrir páska. [geisp]


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra