|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
30.6.03
Keppnisdrykkja; Helgarskýrsla tyrkjans Eftir letilegt föstudagskvöld var tyrkinn rifinn á lappir fyrir allar aldir á laugardaginn og dreginn í sund. Ákveðið var að bleyta sig í Habbnafirði þetta skiptið, og farið í gamaldags bíltúr um furður Heiðmarkar og nágrennis. Svo var komið við í SPAR í Kópavoginum og við kassann "réðst" stór maður að tyrkjafrúnni og rak gsm síma í andlitið á henni svo tyrkjunum þótti nóg um. Kom í ljós að þar var einhver útvarpslúði á ferðinni og gaf hann tyrkjafrúnni lambalæri að gjöf fyrir hrekkinn. Sennilega hefur tyrkjafrúin verið eina manneskjan í allri búðinni sem ekki borðaði lambakjet, og var því skutlað til tyrkjafrúarmóðurinnar sem bauð í staðinn í mat á sunnudaginn. Þá var Drykkjumaðurinn búinn að bjóða í innflutningspartý og var hugur í mönnum. Þar mættu allir "úglendingarnir" nema geiri agg sem enn er í þýskalandi, Gyðnið var þarna, svo og Hugi, Fritz, Bjarkinn, Herkúles, Arna, frú stelpa, Tyrkinn, tyrkjafrúin, Kolla, Atli, Úllí, Hrafnkell drykkjumannsbróðir og Þóra. Ekki leið á löngu þar til blásið var til drykkjuleikja, Áblástur varð fyrstur fyrir valinu og vakti mikla lukku og var meirihluti bollunnar drukkinn í refsingarskyni í þeim leik. Seinna var Baunaspilið spilað og enn var hert á drykkjunni. Eftir söng og djöfulgang var svo smalað niðrí bæ, og þvælst inn á gamla tres lógos sem heitir bar 11 eða eitthvað þannig í dag. Eitthvað virtist drykkjumaðurinn vera utan í einhverjum stúlkum en ekki hafa borist fréttir enn af niðurstöðu kvöldsins hvað það varðar. Að launum hlaut tyrkinn hausverk, sukk-hálsbólgu, ógleði og bak-í-tak skrattans á sunnudaginn. Pant ekki taka til hjá Drykkjumanninum eftir þessa gleði...
27.6.03
Drykkjuleikur dagsins: "Baunaspilið"
Til þarf: Fólk, brennivín, Spilastokk Ölvun: Meðal-Mikil Staðsetning: Hvar sem er Flækjustig: Meðal Þennan leik lærði tyrkinn í nýafstaðinni ferð til Baunaveldis, og kenndu nokkrir ölvaðir baunar honum leikinn í partíi. Einungis þarf spilastokk, ef mjög margir eru að spila má bæta við öðrum stokk. Gefin eru 4 spil á mann sem stillt er upp í ferning fyrir framan hvern leikmann, og einu spili snúið við og stokkurinn lagður við hliðina á því. Þá mega leikmenn aðeins skoða neðri 2 spilin fyrir framan sig en ekki efri spilin 2, aðeins má skoða neðri spilin einu sinni í upphafi hverrar umferðar og verða leikmenn að muna þau ef vel á að ganga. Markmið spilsins er að enda með lægstu summu spilanna fjögurra. Ef leikmaður er með tvö eins (þ.e. tvo kónga eða tvær níur) telja þau tvö spil sem núll og aðeins gilir summa hinna tveggja. Ásar gilda sem 1 og mannspil tölugildi sitt (Kóngur er 13 o.s.frv.) Einn leikmaður hefur svo leikinn og ræður þá hvort hann taki efsta spilið úr stokknum eða spilið sem snýr upp. Þá ræður hann hvort hann hendi spilinu aftur (snúandi upp) og snúi við einu af spilinu í borði, eða setji spilið sem hann dró í stað einhvers spilanna sem er í borði. Þannig snýr hann alltaf einu spili (af þessum 4 í borði) við í hverri umferð. Þá gengur spilið allan hringinn, og svo 3 hringi í viðbót þar til allir hafa snúið öllum fjórum spilum við. Þegar búið að snúa spili við í borði er það fast og má ekki skipta því út. Sá sem fær hæstu summuna í borði af öllum leikmönnum tapar umferðinni og þarf að klára staup af versta brennivíni hússins, eða einhvert staðlað áfengismagn. Þetta spil er mjög skemmtilegt og gengur tiltölulega hratt fyrir sig og hægt er að spila það hvort sem leikmenn eru tveir eða tuttugu. Ekki þarf nema eina umferð til að læra vel inn á það og því afar henntugt til að kenna við drykkju. Tyrkinn fór með íslenskt brennivín sem refsingu í leiknum, en þá kom það á daginn að baunarnir voru með stóra flösku af brasilísku rækjuvíni sem var hræðilegt á bragðið og fékk tyrkinn að kenna á því oftar en einu sinni.
Tolldrykkja
Tyrkinn þáði heimboð Gyðnisins í gær, en skv. hefð Geira Agg bauð Hugi upp á tollinn sinn, en Hugi flaug heim frá baunalandi í gær. Tyrkinn tók á það ráð að kenna drengjunum ansi góðan drykkjuleik er hann lærði meðal bauna í Óðinsvéum fyrr í mánuðinum (verður kenndur hér síðar). Tyrkinn mætti með gríska rétttrúnaðar munkatónlist sem hann keypti á Kýpur, og Guðni leyfði viðstöddum að heyra nýju Radiohead plötuna sem virðst vera anskoti góð. Faðir Gyðnisins opnaði einnig wiský flösku sem hann keypti í Skotlandi, mjög gott stöff þar á ferðinni, en anskoti sterkt. Þetta var eitthvað sem þeir skotar kalla "Casket strength" og er jafn áfengt og það er í tunnunum, eða um 59%. Iljaði fólki bókstaflega um hjartarætur. Tyrkinn hypjaði sig svo heim um miðnætti, en þá voru Drykkjumaðurinn og Bjarki á leiðinni eftir golfleik. Guð má vita hvernig þetta endaði.
24.6.03
Tyrkinn kominn heim Tyrkinn kom aftur heim á klakann ásamt tyrkjafrúnni síðast liðinn sunnudag, með töluvert meiri farangur en fór út. Ferðin var ágæt, en kannski full flókin og mikil ferðalög milli staða. Flogið var til Köben þar sem Hugi og Hanna sýndu tyrkjunum helstu staði þar í bæ. Þaðan var farið til Laurbjerg sem er lítill bær á Jótlandi þar sem móðursystir tyrkjafrúarinnar býr ásamt fjölskyldu. Þar var gist í hjólhýsi og farið í fermingu svo eitthvað sé nefnt. Þaðan var keyrt til Skagen (norðasti hluti Jótlands) í eina nótt, farið að hitta Drykkjumanninn í Árhúsum, og seinna var farið til Óðinsvéa þar sem tyrkjafrúin eyddi um 5 árum í nám og á bæði vini og fjölskyldu. Þá var farið til Kýpur í viku og aftur til baunalands og síðustu dögunum eytt hjá tyrkjasysturinni sem býr í Álaborg. Tyrkinn tók ágætis haug af myndum og má búast við nánari ferðasögu og myndum þegar tyrkinn fær fartölvuna aftur frá tyrkjamóðurinni.
Tyrkinn er semsagt kominn aftur í vinnuna og allt að verða "eðlilegt" aftur. Farfuglarnir eru flestir komnir aftur til landsins nema Geiri Agg sem kemur síðar í sumar. Sagan segir að drykkjumaðurinn ætli að sýna fólki nýja slotið sitt á laugardaginn, en Hugi kemur heim á fimmtudaginn. Sagan segir einnig að Gyðnið sé að flytja á Laugarteig eftir einhverja daga.
Í gær var drykkjumanninum kennt Catan spilið stórkostlega, er tyrkinn, drykkjumaðurinn og Gerber fólkið spiluðu tvo leiki. Tyrkinn vann að sjálfsögðu báða tvo með "yfirburðum". Varð hann svo fyrir því óláni í morgun að hafa stillt klukkuna og vera búinn að fara í sturtu fyrir klukkan hálf sex í morgun, þegar hann áttaði sig á því að klukkan í símanum var ennþá á dönskum tíma. Heldur sundurslitinn og vondur svefn því í nótt.
18.6.03
Fréttaskot Tyrkinn og tyrkjafrúin eru nú komin til Álaborgar þar sem tyrkjasystirin býr. Komu þau frá Kýpur í gærmorgun og fer að styttast í heimferð. Fleira var það ekki í bili, löng ferðasaga í vændum, og vænn haugur af myndum.
|
|
|
|
|