Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

29.8.03

:: tyrkinn 10:26 [+] ::


Spil
Tyrkinn og tyrkjafrúin fóru ásamt Gyðninu til Drykkjumannsins í gær að spila Catan. Þar fengu þau loksins að sjá kvonfang drykkjumannsins en þau eru búin að vera að stinga saman nefjum í einhverjar vikur. Sú heppna, sem kýs að kalla sig Elínu Lilju, kom afar vel fyrir og var hress og skemmtileg. Kannski væri nær að tala um drykkjumanninn sá heppna. Tyrkinn vann auðvitað Catanið.


27.8.03

:: tyrkinn 10:33 [+] ::


Skrítnir tjallafrasar...
"And Bob's my oncle"
"I'm as happy as Larry"


26.8.03

:: tyrkinn 16:52 [+] ::


Helgarskýrslan
Tyrkinn fór norður að Fremri Laxá á föstudaginn í hádeginu. Þetta var sjötta árið í röð sem tyrkinn fer í þennan túr og klikkar hann aldrei. Á föstudaginn mættu tyrkinn, Sigurvi nýsteggur, Feitsjó, Johnny5 og Ýsu-Örvar til leiks, en Dr. Kári mætti á laugardaginn beint úr öðrum túr en steggurinn var sendur heim í staðinn. Fiskurinn var eitthvað tregari í ár við stöng tyrkjans og komust menn að því að þetta væri rasistafiskur upp til hópa sem er náttúrulega leiðindamál. Ekki leiddist tyrkjanum þó, frekar en öðrum í þessari ferð. Nokkur breyting var á ferðinni í ár, mönnum var fækkað vegna minna húss, og var mestri geðveikinni skipt út fyrir hærri standard, og þá sérstaklega á mat og þynnku. Örvar sá um matargerðina og var t.d. í fyrsta skipti grillaður silli, en aldrei hafði neinum dottið það í hug þrátt fyrir að sjaldan færu færri en 100 stk. heim í kassa. Einnig var boðið upp á eina þá bestu steik sem tyrkinn hefur bragðað, og beikon og egg í morgunmat sem er bara fínt. Tyrkinn tók að sjálfsögðu eitthvað af myndum sem fljótlega má finna á myndasíðunni. Sett var í um 50-60 kvikindi í ferðinni og fóru menn sáttir heim á sunnudeginum, þrátt fyrir engan lax.

Í gær var svo vinnuferð á Gallileo þar sem Brenni nokkur var kvaddur með mat og drykk. Tyrkinn fékk fínan skötusel og Portobello svepp í forrétt, mjög fínt enda ágætur staður. Eftir matinn var svo kíkt á Dubliners þar sem var roknar stemning, fyrst írskt þjóðlagaband og svo trúbadorinn súri Ingi Valur hélt uppi roknar stemningu en útlendingarnir dönsuðu og létu óðslega. Tyrkinn vissi ekki að hægt væri að komast í svona stemningu á mánudagskvöldi í Reykjavík. Þegar tyrkinn kom heim voru komnar myndir af dpcprints.com sem tyrkinn pantaði. Um var að ræða nokkrar af myndum tyrkjans, og komu þær gríðarlega vel út, jabbnvel í 10x15 tommu stærð.

Það er óneytanlega pínu þreyta í mannskapnum í dag, [geisp]


22.8.03

:: tyrkinn 12:06 [+] ::


FCsokkur hefur göngu sína á ný
Í gær byrjaði nýtt síson í Landssokkadeildinni, og mættu 10 gallvaskir til leiks. Menn voru margir hverjir stirðir, en enginn meiddist og voru spilaðir 2 leikir sem báðir enduðu með 6-0 sigri. Aðeins einn sokkur náði að vinna báða leikina, það var meistari Halli Jens, en Einar poppari átti fyrsta mark tímabilsins. Menn töngluðust svo á því eftir tímann að tyrkinn skuldaði enn lokapartý fyrir að hafa verið neðstur á síðasta tímabili. Verið er að vinna að endurbótum á heimasíðu FC sokks.

Tyrkinn hitt í gærkvöldi Gunnhildi og Guðna, en Gunnhildur er búin að vera á landinu í allt sumar án þess að sýna sig og heldur aftur út til Amster á sunnudag. Herkúles ætlaði að mæta líka, en eftir að hafa frestast 2-3 beilaði hann eins og eyminginn sem hann er. Hugi fór víst líka í dag, þar sem hann er á leið til Noregs á eitthvað tónskáldamót og svo til Þýskalands þar sem hann mun bítast um vegleg peningaverðlaun fyrir besta tónverkið fyrir VW verksmiðju nokkra.

Sjálfur er tyrkinn á leið í annual veiðitúrinn í Fremri Laxá og kemur aftur á Sunnudaginn. Góða helgi



:: tyrkinn 10:22 [+] ::


Gúdd fökking riddans!


20.8.03

:: tyrkinn 23:38 [+] ::


Radíó Reykjavík vs. Skonrokk
X-ið getur verið afar þreytandi útvarpsstöð á köflum og tyrkinn nýbúin að uppgötva góða stöð í staðinn, nebblilega Radíó Reykjavík. Þar má iðulega heyra skemmtilega tónlist, mikið af gömlu rokkið og hefur Tool m.a. heyrst þar oftar en einu sinni. Til að gefa nýju stöðinni Skonrokk séns líka ákvað tyrkinn að hafa einskonar keppni. Í hvert skipti sem sest er inn í bíl er tékkað á báðum stöðum og sú stöð sem er með betra lag (eða röfl) í gangi fær eitt stig. Staðan er núna 2-0 fyrir Radíó Reykjavík, m.a. út af því að Skonrokk virtist vera að útvarpa hljóðrásinni af stöð 2 langt fram á kvöld á fyrsta starfsdegi sínum, sem er ekkert spes.

Fyrir þá sem vilja spreyta sig:
Skonrokk 90,9
Radíó Reykjavík 104,5



:: tyrkinn 23:33 [+] ::


Svenn myndir
Tyrkirnir kíktu á Svenn hjónin í kvöld í Hreiðrið svokallað sem er á fæðingardeildinni á Landsspítalanum. Fjölskyldunni leið vel og allir að sjálfssögðu ánægðir með drenginn. Uppeldið byrjar snemma, drengurinn var látinn hlusta á Miles Davis strax eftir fæðingu, og föðurbróðir hans færði honum Liverpool samfellu og smekk svo hann færi ekki á mis við það félag fyrstu dagana. Myndir af stráknum má að sjálfsögðu finna hér.



:: tyrkinn 11:17 [+] ::


Breiking njúfs
Svenn hjónunum fæddist sonur eftir rúmlega 2 sólahringa fæðingarstuð í nótt. Kauði ku vera ein 4.000 grömm á þyngd (16 merkur á forn máli) og 55 cm á lengd. Öllum líður vel eftir átökin og er glatt á hjalla á þeim bænum. Tyrkinn óskar Svenn-hjónunum til hamingju með soninn (yngri).


19.8.03

:: tyrkinn 13:53 [+] ::


Plata vikunnar er að þessu sinni platan "Change Giver" með hinni ágætu hljómsveit "Shed Seven". Segja má að þetta sé svona flassbakk tónlist fyrir tyrkjann, en hann gróf þessa plötu upp um daginn, en lög af henni hringla alltaf reglulega í hausnum á tyrkjanum, enda afar skemmtileg lög. Góðar stundir



:: tyrkinn 11:08 [+] ::


Bráðsmitandi hjarðóléttan; öppdeit
Að sögn tyrkjafrúarinnar er frú Svenn búin að vera með hríðir í ca. sólarhring núna og eru ca. 7 mín á milli hríða fyrir þá sem vita hvað það þýðir. Búist er því við litlu Svenn-barni í dag.


18.8.03

:: tyrkinn 16:26 [+] ::


Steggur 2003
Operation Steggur 2003 var framkvæmd um helgina. Sigurvi ofursteggur var plataður norður til Agureyrar þar sem setið var fyrir honum með brennivín í trogum. Búast má við all mörgum myndum eftir ritskoðun. Einnig er líst eftir mönnum með sterkan maga í ritskoðunina.



:: tyrkinn 16:23 [+] ::


Viti menn
Tyrkinn og tyrkjafrúin hafa nú notið samvista hvors annars í tvö ár og var því fagnað í gær. Fyrir valinu varð rómantískur kvöldverður á Einari Ben. Dakk.



:: tyrkinn 16:22 [+] ::


Bráðsmitandi hjarðóléttan; nýjustu fréttir
Sagan segir að Poppstjarnan Svenni Svenn og frú hans, frú Svenn, standi nú í ströngu í að koma erfingjanum út. Tyrkinn óskar þeim góðs gengis og hlakkar til að sjá verðandi poppstjörnuna.



:: tyrkinn 16:19 [+] ::


Fyrsta salan
Einhver heppinn varð þess heiðurs aðnjótandi að kaupa fyrstu myndina af tyrkjanum um helgina. Myndin (sjá minnkaða útgáfu hér til vinstri) er ein af mörgun sem tyrkinn tók eitt fagurt júlíkvöld við gróttu og má að sjálfsögðu finna litlar útgáfur af þeim flestum á Myndasíðunni. Svo má hins vegar bara kaupa útprentanir af nokkrum fögrum myndum tyrkjans hérna.


14.8.03

:: tyrkinn 22:36 [+] ::


Friðfinnsson
Tyrkinn og tyrkjafrúin fóru síðastliðinn sunnudag til Gerber fjölskyldunnar í heimsókn. Margrét var þá nýkomin af fæðingardeildinni með nýbakaðan son, og var húsið fullt af gestum og glatt á hjalla. Tyrkinn tók nokkrar myndir.


13.8.03

:: tyrkinn 10:18 [+] ::


Ðis djöst inn !!
Saddam Hussein is being held captive in a house in his home town of Tikrit by Iraqi freedom fighters. The American government have offered them $35 Million dollars for his capture.

Chelsea have offered $40 Million


12.8.03

:: tyrkinn 12:31 [+] ::


Myndir
Undanfarna viku hefur tyrkinn verið að gera nokkrar af sínum myndum tilbúnar fyrir sölu á útprentunum á dpcPrints. Áhugasamir geta valið um að kaupa þar ein 6 meistaraverk, og fleiri eru á leiðinni. Tyrkinn pantaði sjálfur nokkur eintök í gær og hlakkar til að sjá þau koma til landsins.




Hér má finna myndasíðu tyrkjans: Myndir tyrkjafjölskyldunnar
Hér má finna myndir tyrkjans á dpchallenge: Ljósmyndasemkeppnin
Hér má finna myndir tyrkjans til sölu: Útprentanir til sölu


11.8.03

:: tyrkinn 11:44 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans; Catan helgin
Af skiljanlegum ástæðum er mikið Catan æði gripið um sig meðal vina tyrkjans. Allir sem spilað hafa þetta snilldar spil vilja lítið annað gera heldur en að spila það meira og hafði þessi nýja fíkn sitt að segja um helgina. Á fimmtudaginn var gripið í spilið heima hjá Drykkjumanninum í Eskihlíðinni (Egill skrítni í Eskihlíðinni) og þar kynntist Hugi spilinu fyrst og var satt að segja snöggur á ná tökum á því. Fór svo að Hugi vann sitt fyrsta spil, en spilað var til 01:30 sem verður að teljast gott fyrir fimmtudagskvöld. Á föstudagskvöldið var lítið annað í stöðunni en að spila meira og var því rúllað aftur á Drykkjumanninn. Þar komu saman Tyrkinn, Drykkjumaðurinn, Gyðnið, nýbakaði faðirinn Fritz og Hugi. Drykkjumaðurinn og Gyðnið fóru reyndar á tónleika, en hinir spiluðu aftur þar til Drykkjumaðurinn snéri aftur og tók síðasta spilið sem endaði eitthvað um 04:30. Hugi náði það kvöldið að vinna annað spilið sitt, Fritz Gerber vann eitt spil, en tyrkinn náði að vinna ein 3 spil og vill hann þakka Baltika bjórnum fyrir það, enda vinsælasti bjórinn í Rússlandi að sögn seljandans. Á Laugardaginn ætluðu tyrkirnir að kíkja á Geipræd skrúðgönguna niður í bæ, en lentu í umferðarteppu og sáu ekkert nema einhverja fána yfir bílþökin á Snorragötunni. Um kvöldið fóru tyrkinn og tyrkjafrúin ásamt Svenn-hjónunum á Galileo veitingastaðinn niður í bæ og snæddu. Tyrkinn fékk þar afar gott pasta með kjúlla og er óhætt að mæla með þeim disk. Frú Svenn átti að eiga á fimmtudaginn var, en varla var hægt að sjá það, enda hún eldhress og spræk og virðist ekkert ætla að standa í þessu í bráð. Eftir matinn var farið heim í tyrkjalindina og þar spilað eitt Catan spil, og virtust Svenn hjónin afar ánægð með spilið eins og aðrir. Catan í kvöld?



:: tyrkinn 10:54 [+] ::


Njúfs flesj
Bjarkinn og Kollan áttu í gærmorgun lítið stúlkubarn. Daman vó einar 12 forn-merkur (um 3000 gr.) og var 48 cm. á lengd. Fæðingin gekk víst eins og í sögu og heilsast öllum vel. Tyrkinn óskar þeim hjartanlega til hamingju með dótturina.

... 2 down, 3 to go...


6.8.03

:: tyrkinn 14:40 [+] ::


Brimborg, öruggur staður til að vera á...
...what's up with that slogan?!



:: tyrkinn 12:19 [+] ::


Breiking njúfs!
Fritz Gerber og Margrét áttu í dag lítinn dreng. Sá stutti (51 cm) kom í heiminn klukkan 11:02 og vó að sögn föður síns ein 4005 grömm sem ku vera einar 16 forn-merkur (sem er alveg óskiljanlegur mælikvarði....). Allt gékk vel og heilsast öllum vel. Stuð þar á bæ.


3.8.03

:: tyrkinn 22:37 [+] ::


Grillað í tyrkjalindinni
Í gær var grillað í tyrkjalindinni, og var það vel. Veðrið var upp á sitt besta og var því setið úti á verönd fram á nótt og lá vel á mönnum. Einar 4 konur voru viðstaddar þetta kvöld, og vildi svo skemmtilega til að þær voru allar óléttar og allar nema Tyrkjafrúin eiga að eiga í næstu viku og því myndarlegar bumbur þar á ferð. Tyrkinn tók nokkrar myndir að venju og má sjá þær flestar ef smellt er á myndina hér til vinstri.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra