Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

29.9.03

:: tyrkinn 16:19 [+] ::


Hvalveiðar
Hallgrímur Helgason skrifaði afar fyndna grein með nokkrum góðum punktum um hvalveiðar Íslendinga, greinina má finna hér



:: tyrkinn 15:31 [+] ::


Mánudagur...
Frekar róleg helgi að þessu sinni, tyrkjafrúin ekki enn farin í gang en geta má þess að áætlaður fæðingadagur er 4. okt. sem er næsti laugardagur (plús mínus tvær vikur, svo þetta má fara að gerast). Mikið var hangið yfir kassanum, en á laugardaginn fór tyrkinn til Drykkjumannsins og spilaði þar Catan ásamt Atla drykkjumannsbróðir og Úllí. Þau voru að spila leikinn í fyrsta skipti og tóku þessi tvö spil all marga klukkutíma fyrir vikið. Kannski má kenna samningatækni Drykkjumannsins um það, því hjúin voru ansi snögg að temja sér leikreglur. Í gær fór svo tyrkinn og sló úr nokkrum fötum og var svo glápt á "Hunted" með Tommy Lee Jones og Benicio del Torro. Myndin ágæt, ekki meira en það þó, það var eins og einhver fautalegur klippari hefði klippt 1-2 klst. innan úr myndinni og fyrir vikið vantar nokkuð upp á spennu uppbyggingu henna og hún því ekki sannfærandi. Kannski best að sjá hana bara á RÚV einhvern tíma, eða taka hana með sem gamla spólu. [Geisp, hvað er í sjónvarpinu í kvöld]


26.9.03

:: tyrkinn 09:45 [+] ::


Besta hljómsveit í heimi! - miðað við stærð....
Herra maður spilar - Ath. myndband



:: tyrkinn 09:44 [+] ::


Ein skrýtla ... í boði Edda
A housewife takes a lover during the day, while her
husband is at work. Unknown to her, her 9 year old
son was hiding in the closet. Her husband came home unexpectedly, so she hid her lover in the closet.

The boy now has company.

Boy: "Dark in here."
Man: "Yes it is."
Boy: "I have a baseball."
Man: "That's nice."
Boy: "Want to buy it?"
Man: "No, thanks."
Boy: "My dad's outside."
Man: "OK, how much?"

In the next few weeks, it happens again that the boy
and the mom's lover are again in the closet together.

Boy: "Dark in here."
Man: "Yes, it is."
Boy: "I have a baseball glove."
Man: "How much?"
Boy: "$750."
Man: "Fine."

A few days later, the father says to the boy, "Grab
your glove. Let's go outside and toss the baseball."
The boy says, "I can't. I sold them." The father asks, "how much did you get?" The little boy says, "$1,000." The father says, "That's terrible to overcharge your fr! iends like that. That is way more than those two things cost. I'm going to take you to church and make you confess."

They go to church and the father alerts the priest,
and makes the little boy sit in the confession booth
and closes the door.

The boy says, "Dark in here."
The priest says, "Don't start that shit again.


24.9.03

:: tyrkinn 12:51 [+] ::


T-ónlist viðkunnar
Tónlist vikunnar að þessu sinni er platan "A New Machine for Living" með hljómsveitinni Turing Machine. Þetta ku vera eina skífa sveitarinnar til þessa dags, en hún kom út árið 2000. Einhverjir ættu að kannast við nafn hljómsveitarinnar, en það kemur frá hugmyndafræði um vél sem stærðfræðingurinn Alan Turing fann upp árið 1936, en hugmyndin um vél þessa er grunnhugmyndin og undirstaða tölvunnar eins og við þekkjum hana í dag. Mikil keyrsla einkennir þessa hljómsveit og má e.t.v. lýsa þessu sem hröðu keyrslu rokki sem spilað er af smekkvísi og kraft. Tyrkinn hefur hlustað mikið á plötuna þegar þörf er á að koma sér í gír og geta leiðinlegustu húsverk eins og að ryksuga orðið býsna skemmtileg ef Turing Machine er á fullu blasti í græjunum. Tyrkinn mælir eindregið með því að menn kíki á þetta.



:: tyrkinn 11:04 [+] ::


Öldrun
Eftir vinnu í gærdag komu foreldrar tyrkjanna í létt afmæliskaffi í tyrkjalindinni. Tyrkinn fékk þá baddnabumbupoka í afmælisgjöf frá foreldrum tyrkjafrúarinnar, þrátt fyrir að tyrkjabaddnið ákvað að sýna sig ekki í gær eins og það átti að gera. Tyrkjafrúin gaf tyrkjanum annað sísonið af Simpsons og að auki annan simpsons á DVD sem mun nýtast í endalausa hamingju í foreldraorlofinu næstu vikur. Tyrkjarnir gerðu sér svo dagamun og bauð tyrkjafrúin tyrkjanum á Hótel Holt í kvöldverð. Að venju var Holtið algert brill, þar má fá snilldarmat hvenær sem er. Tyrkinn fékk sér kanínuhryggvöðva og kanínupylsu í forrét (fyrsta skiptið sem hann bragðaði kanínu) og gæs í aníslegi í eftirrétt. Tyrkjafrúin fékk sér snigla í forrét og grís í eftirrét og voru þau sammála um ágæti matarins. Gárungarnir segja að þar sé hægt að ná sér í lúxus hádegisverð á hóflegu verði, litlu hærra en maður er að borga fyrir hammara á Ruby Tuesday eða sambærilegum stöðum, og ku það vera hin mesta snilld.


23.9.03

:: tyrkinn 13:05 [+] ::


Helgarskýrsla Tyrkjans
Um helgina var haldin árshátíð FC Sokks sem átti að vera í maí en var frestað. Til stóð að halda golfmót í upphafi dags, en slíkt var veðrið að hætt var við það og tekinn fótbolti í staðinn í Sporthúsinu. Þar var spilað í einn og hálfan tíma og höfðu heppnari menn 20 stig upp úr krafsinu og einn fékk væg fótameiðsli einnig. Þaðan var haldið á snilldarstaðinn Áslák í mosfellsbæ og þar horft á fótboltaleik og tekið mót í ballskák. Þar var einnig nokkuð drukkið og einnig var heppinn sauður matreiddur ofan í sokkana. Að lokum voru veittar viðurkenningar, Gullsokkurinn afhendur Sigga Viðars og loks var úrslitaleikurinn í ballskákinni spilaður. Þá var haldið heim til Hauks nokkurs og þar drukkinn út bjórsjóður síðasta tímabils. Þar var opnuð ný heimasíða Sokksins sem Fritz og Tyrkinn voru búnir að mixa síðustu dagana fyrir laugardaginn, og var almenn ánægja með síðuna. Harðari menn fóru svo niður í bæ eftir herlegheitin og var glatt á hjalla. Kvöldið var vel heppnað og fóru menn ánægðir heim, horfandi fram á mis erfiða sunnudaga.

Nánar um árshátíðina á www.fcsokkur.com (nýju léni Sokksins)
Myndir frá árshátíðinni



:: tyrkinn 10:24 [+] ::


Aldurinn færist yfir...
Tyrkinn á afmæli í dag, og ku hann vera orðinn 27 ára gamall þótt það sjáist ekki á honum. Afmælisdagurinn hófst á hressandi máta, vakna upp úr klukkan 7:00 og rjúka á miðstöð mæðraverndar með tyrkjafrúnna. Þar fengu þau þau ánægjulegu tíðindi að allt þetta meðgöngusykursýkisvesen var bölvað kjaftæði þar sem niðurstöður úr almennilegri rannsókn úr sykurþolsprófi voru að berast. Tyrkjafrúin getur því hætt að mæta á göngudeild sykursjúkra, í svokallaðan mónitror tvisvar í viku og getur einnig hætt að hitta lækni reglulega. Næsta viðtal verður því bara hjá Ljósmóðurinni sem búin er að fylgjast með tyrkjabaddninu frá upphafi og eru það góð tíðindi. Tyrkjafrúin er búin að lofa að bjóða tyrkjanum út að borða í kvöld og er það alltaf hressandi. [ Senda tyrkjanum hamingjuóskir ]


19.9.03

:: tyrkinn 16:20 [+] ::


Helgin
Um helgina fer fram árshátíð FC sokks sem tyrkinn átti að hósta í maí s.l. en aldrei varð úr. Haugur höbbðingi ætlar að taka málið að sér og býður hópnum í mosfellssveitina annað kvöld. Hátíðin byrjar þó á golfmóti, þar sem spilaðar verða 9 holur undir Texas Scramble fyrirkomulagi með bjórforgjöf. Þaðan verður farið í sund og pott til að þrýfa sokkana, og þaðan á kránna Áslák sem Hafner nokkur rekur ásamt öðrum mis vafasömum restri. Að lokum verður íbúð Haugsins nýtt í djöfulganginn.


18.9.03

:: tyrkinn 11:09 [+] ::


Þessi maður er snillingur



:: tyrkinn 11:06 [+] ::


Sjónvarpsfárið
Eitthvað þykir mönnum sniðugt að setja sjónvarpsstöðvar á hausinn hér á landi, því þrátt fyrir erfiðan rekstur sjónvarpsstöðvanna á landinu, þykir mönnum ráð að bæta við stöðvum (þótt áhorfendum fjölgi ekki í hlutfalli). Lengi hefur skjár einn auglýst að von sé á skjá tveimur, á stöð 2 hefur undanfarið verið að auglýsa stöð 3 sem ku eiga að sýna ameríska þætti og annað gamanefni, og nú síðast var tilkynnt að einhverjir snillingar ætla að hefja útsendingar á stöð 1. Tyrkinn spáir því að ef að allar þessar stöðvar komast í loftið munu a.m.k. 4 af öllum stöðvunum fara á hausinn eða verða lokað innan 2 ára.



:: tyrkinn 09:41 [+] ::


Prófið að lesa eftirfarandi texta óhikað.
Alveg magnað.



Svmkmaæt rnsanókn við Cmabrigde hkóásla þá
stkpiir ekki mlái í hðvaa röð stfiar í oðri eru, það
enia sem stikipr mlái er að frtsyi og stíasði
stinaurfn séu á rtéutm satð. Aillr hniir sfitarnir
gtea vireð í aöljrgu rlgui en þú gtuer smat lseið
það aðvuledlgea. Áæðsatn fiyrr þsesu er að
mnnashgrniuun les ekki hevrn satf friyr sig
hleudr oirðð sem hiled.


17.9.03

:: tyrkinn 12:56 [+] ::


Golf
Nú er tyrkinn sýktur af golf veirunni. Í síðustu viku pantaði tyrkinn sér sett að utan og hefur fiktað eitthvað í því síðustu daga með misjöfnum árangri. Tyrkjamágurinn er einn sá duglegasti í þessu sporti og hefur tyrkinn m.a. farið með honum tvisvar síðstu daga, og þá síðast í gær á Hvaleyrarvöllinn í Habbnafirði. Afar gaman, en ekki mjög vinsælt heima fyrir, ekki vinsælt þegar heimiliskokkurinn stingur af í 4-6 klst. í senn. Ekki seinn vænna að ná sér í sett heldur, á laugardaginn verður árshátíð FC Sokks þar sem spilað verður golf, og svo er golfmót í vinnunni þar næsta laugardag.


15.9.03

:: tyrkinn 13:22 [+] ::


Hin meinta frívika tyrkjanna
Tyrkirnir héldu til nágrennis Flúða á föstudaginn fyrir rúmri viku þar sem þeir höfðu bústað á leigu til vikutíma. Þótt sumarið hafi í sjálfu sér verið búið var meira og minna blíða þar uppfrá þrátt fyrir hinn íslenska "weather sampler" sem alltaf er skemmtilegur. Á laugardaginn kíktu Gyðnið og Herkúles uppeftir og var horft á Ísland-Germanía í góðri stemningu og drukkið upp úr því. "Það var glatt á hjalla, við fórum öll að hlæja". Nú daginn eftir þegar drykkjuhrútarnir voru farnir var haldinn fjölskyldudagur í bústaðnum og mættu Inga Lind og Árni með sín 4 börn og Gerber fjölskyldan mætti í öllu sínu veldi. Eftir helgina var planið að vera alla vikuna uppfrá, en það klúðraðist þegar tyrkjafrúin þurfti að mæta í sykurþolspróf á mánudaginn og þurftu því tyrkirnir að fræsa í bæinn. Það sem var öllu verra var það að tyrkjafrúin "féll" á prófinu og greindist því með meðgöngusykursýki. Því þurftu tyrkirnir að mæta aftur í prógram á þriðjudaginn, en fræstu þó aftur suður til að eyða kvöldinu þar. Á þriðjudaginn var farið í viðtöl ýmiskonar á spítalann, fyrst til sykursýkis-læknis, svo næringafræðings, þá meinatæknis sem kenndi á blóðsykurmælitæki og loks til yfirlæknis sem mun hafa yfirumsjón með fæðingu tyrkjabarnsins. Þá var loks fræst aftur suður með mæligræjur og matarpoka með breyttu innihaldi. Tyrkjafrúin hefur síðan þá mælt blóðsykurinn 4 sinnum á dag, en sykurstjórnunin virðist ganga framar vonum með breyttu mataræði. Það sem mest kom á óvart í þessu öllu saman var sú staðreynd að ávaxtasafi er víst verkfæri djöfulsins og er skv. næringarfræðingnum eitt mesta eitur samtímans.

Tvær skýrnir hafa farið fram síðastliðnar vikur:

Þessi gella heitir nú Salka Eik Bjarkadóttir og er afar hress stúlka. Bjarkinn og Kolla buðu heim í gærdag í skýrnarveislu afganga, og var gott að sjá loksins dótturina með eigin augum. Sú litla var í góðu stuði og var ekkert á því að sofa mikið.


Svenn hjónin skýrðu sinn snáða fyrir rúmri viku og nefndu hann um leið. Kappinn heitir Bjarni Dagur Ákason/Svenn. Þeir feðgar er víst búnir að liggja með einhverja flensu og lítið farið út úr húsið síðastliðna daga.










...og þá er bara að koma tyrkjabarninu út...



4.9.03

:: tyrkinn 10:13 [+] ::


Sumarbústaður
Tyrkirnir eru á leið í sumarbústað á morgun. Bústaður þessi er skammt frá Flúðum og muna glöggir eftir því þegar tyrkirnir voru með þennan sama bústað fyrir rúmu ári síðan. Húsið er nokkuð stórt og fylgir heitur pottur og allt tilheyrandi. Planið er að vera þar eina viku, en vonast tyrkirnir eftir því að fá einhverjar vini sína í heimsókn á laugardaginn í gott sprell. Ef einhverjir fara að efast verður Catan með í för, geri aðrir betur...



:: tyrkinn 10:01 [+] ::


Ofnæmi
Tyrkinn er með ofnæmi, ofnmæmi fyrir því að vakna. Á hverjum morgni þegar hann vaknar fyllist hann af kvef-skít. Síðan er hann hnerrandi fram undir hádegi, en þá virðist þetta skána. Svo hefst leikurinn eftur daginn eftir á sama prósess. Fyrst hélt tyrkinn að kannski væri þetta hársápan eða raksápan sem væri að valda þessu, en nú er hann viss um að sjálft vaknið, uppvakningin eins og hún kýs að kalla sig, sé ábyrgt fyrir þessu. Þá er illt í efni, því erfitt er að koma í veg fyrir það að vakna, og virðist eina ráðið vera að sofna aldrei, sem aftur gæti orðið erfitt. Annars minnir þetta tyrkjann aðeins á einn frasa sem oft var notaður í den þegar kátt var á hjalla; "Partí, gufa og aldrei aftur að sofa". Skál.


2.9.03

:: tyrkinn 12:22 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans, viðburðarík helgi
Síðastliðin helgi var góð helgi, fullt af fólki að hitta og menn almennt í jólaskapinu. Á föstudaginn voru Þóra og Anna Lilja búnar að skipuleggja endurfundi gamla vinahópsins heima hjá Önnu og Adda og var afar góð mæting. Þar mátti m.a. finna fólk eins og Trausta Óskarson, Ingu Rósu og Áslaugu Þorbjörgu sem ekki hafa sést í um 3 ár, og var afar gaman að hitta liðið. Töluvert af víni var í mannskapnum, eða a.m.k. þeim sem ekki gengu með börn, sem voru reyndar ófáir. Mikill hugur var líka í fólki og virtist sem svo að fólk væri komið til þess að dansa eins og gert er í Lundúnum fram á nótt, eða flestir þ.e.a.s., Trausti og Óléttu konurnar fóru flestar heim tiltölulega snemma af augljósum ástæðum. Sigurgeir Agnarson, eða Geiri Agg eins og hann kýs að kalla sig, var þó manna hressastur og léttan panik var hann og Gyðnið komnir í afar hressandi skap eins og sjá má á myndum en þeir voru aðeins tveir um það að láta sig hverfa niður í bæ. Óli hennar Röggu átti stórkostlegt atriði þar sem hann söng fallegan söng með húmor ívafi við gríðarlega góðar undirtektir. Tyrkinn tók einnig léttan Tom Jones, og virtist vera almenn ánægja með skemmtiatriðin. Þegar tyrkinn ætlaði svo heim um 5 leitið var fólk ekkert á því að fara og endaði tyrkinn með því að fara einn heim í leigubíl, og húsið fullt af Garðbæingum dansandi og syngjandi. Kvöldið var yndælt og eiga þær Þóra og Anna heiður skilið fyrir að standa fyrir herlegheitunum. Sérstakan rokk-heiður hlýtur Anna, því hún hóstaði teitið þrátt fyrir það að þurfa fljúga til Skotlands um 08:00 á laugardagsmorguninn, þar sem hún var á leið á ráðstefnu um eitthvað heila-Alzheimer eitthvað. Hress stelpa Anna.

Hér má finna myndir úr þessu baunapartíi....

Á laugardaginn stóð ekki minna til, sjálfur Sigurvi gekk í það heilaga með svokölluðu pompi og svokallaðari prakt. Athöfnin var í Dómkirkjunni klukkan 18:00 og mættu allir sem vettlingi gátu valdið. Séra Vigfús sá um að pússa brúðhjónin saman, enda þekkir hann vel til þeirra og var athöfnin á þeim nótunum. Gerðist hann meira segja svo frakkur að vísa til steggjaveislunnar (sjá hér, ekki fyrir viðkvæmar sálir) í ræðunni við sjálft altarið. Svo bað hann fólk um að klappa fyrir Berþóri Pálssyni sem söng, og að sjálfsögðu fyrir brúðhjónunum, enda er óþolandi þegar ekki má klappa í kirkjum. Semsagt létt og skemmtileg athöfn sem allir voru ánægðir með. Brúðhjónin tóku sér svo góðan tíma í myndatöku út í bæ áður en þau loksins sýndu á sér andlitin í veislunni sem var öll hin veglegasta. Var hún haldin í sal í salahverfinu í Kópavogi sem kom gríðarvel út úr kvöldinu. Boðið var upp á sjampó og jarðaberjafreyðivín eitthvað í fordrykk á meðan fólk beið eftir Sigurvi hjónunum. Í forrétt var svo boðið upp á Parmaskinku og melónubita, en í aðalrétt var eðal matur, sjávarréttahlaðborð sem var gríðar gott. Að venju vildu margir komast að með ræðuhöld og gamanmál og lauk ekki prógramminu fyrr en upp úr klukkan 01:00, eftir myndasýningar, vídíosjóf og alls kyns sögur og skemmtilegheit. Salurinn var pakkaður, um 150 manns mættu og hefðu ekki mikið fleiri komist inn. Dagurinn var semsagt gríðarvel heppnaður, og virtust brúðhjónin bísna ánægð með allt saman, alla vega þangað til nokkrir útvaldir tóku á það ráð að elta þau heim og syngja fyrir þau um þrjú leitið fyrir utan íbúð þeirra. Sagan segir að þau séu farin á eitthvað heilsu-spa á Krít í honnímún sem á að vera voðalegur lúxus og fínlegheit. Tyrkinn óskar þeim hjónum til hamingju með brullaupið.

Myndir úr brúðkaupinu má finna hérna...


Á sunnudaginn var svo Friðfinnsson skýrður og heitir hann Gabríel Friðfinnsson. Gerber fólkið bauð upp á afganga úr skýrnarveislunni um kvöldið og mættu Svenn hjónin einnig með Svenna Svenn yngri.

Loks má nefna það að loksins eru komnar myndir inn á netið úr veiðiferðinni góðu um daginn, þær má finna hér.




TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra