Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

30.10.03

:: tyrkinn 15:30 [+] ::


Já og....
Tæger vúdds pí gí ei túr 2004 á Spielstation er ljómandi góð afþreying. Tyrkinn keypti þennan um daginn og hefur hangið í honum töluvert að undanförnu. Leikurinn fær ljómandi góða dóma, t.d. á gamespot og er tyrkinn ekki hissa á því. Tyrkjafrúin þyrfti að hafa minnsta áhuga á tölvuleikjum og helst golfi líka til að nýta 2 player fídusana þó...



.



:: tyrkinn 01:20 [+] ::


Af meintri skrifleti og öðru
Rétt væri að biðjast afsökunar á tilbreytingarleysi á þessari síðu, það vill oft verða þannig að þegar tyrkinn hefur sem mestan frían tíma verður sem minnst úr skrifum og öðru "gagnlegu". Eins og búast mátti við gengur lífið þessa dagana meira og minna út á SúperStubbinn sem verður 4 vikna gamall á föstudaginn. Sólarhringurinn stjórnast þannig af einföldum þörfum og starfsemi ungabarna, flest það sem stubburinn gerir verður til þess að foreldrar hans geri eitthvað. Svefninn hjá kauða er ennþá afar óreglulegur, en þó er hann yfirleitt farinn að sofa lengur og vaka lengur í einu þegar allt er upp á sitt besta. Suma daga er maginn á honum þó eitthvað að stríða honum og þá sefur fjölskyldan ekki lengi í einu með tilheyrandi fjöri. Sérstaklega gaman er að fylgjast með breytingum á honum þessa fyrstu daga, á hverjum degi breytist eitthvað og oft getur það verið mjög fyndið. Tyrkjarnir þykjast vera farnir að greina einhvern vott að brosi eða glotti þessa dagana og stubburinn er farinn að gefa frá sér sérkennileg hljóð þegar hann hnerrar (sem er ósjaldan) svo dæmi séu nefnd. Eðlilega hefur verið nokkuð um heimsóknir til tyrkjanna enda mjög vinsælt að skoða þann litla. Þó eru nokkrir ekki búnir að berja hann augum enn, en fleiri hundruð heimsóknir eru hins vegar komnar á myndasíðuna sem tyrkinn hefur verið tiltölulega duglegur að uppfæra þessa dagana. Á laugardaginn kemur stendur svo til að skýra stubbinn og nefna áður en stubbsnafnið festist við hann. Skýrnin mun fara fram á heimili tyrkjamóðurinnar og mun séra Sigurður frændi tyrkjans sjá um athöfnina. Aðeins fjölskyldufólki er boðið en þrátt fyrir það virðist þetta ætla að slaga í fermingarveislu hvað fjöldann varðar.


16.10.03

:: tyrkinn 00:17 [+] ::


Stúlkubarn fætt
Í dag eignuðust þau Hrafnkell og Ella stúlku. Að sögn fróðra vó hún einar 14 merkur og var 53 cm. á lengd og með mikið dökkt hár (miðað við aldur sennilega). Tyrkirnir óska þeim að sjálfsögðu til hamingju. Þá líkur þessari barnalotu, enda böns af nýjum böddnum á stuttum tíma.

Af tyrkjunum er annars allt gott að frétta. Lífið í tyrkjalindinni er með einfalldari móti og snýst allt um hvernig Stubburinn sefur, borðar og hraunar, og vill stundataflan fara mikið eftir því. Magnað er að sjá hvað svona ungir krakkar breytast hratt og má sjá oft dagamun á kappanum, Stubburinn er auðvitað afar snöggur að læra og ætti að vera farinn að lesa fyrir áramót... Nokkuð hefur verið um gestagang eins og við mátti búast, enda margir sem vilja berja snillinginn augum (Stubbinn þá, ekki tyrkjann). Myndirnar á myndasíðunni hafa einnig vakið lukku, og hefur fyrsta myndaserían með tyrkjastubbnum verið skoðuð 533 sinnum þessa fyrstu daga, og ku það vera met á þeirri síðu.


5.10.03

:: tyrkinn 16:39 [+] ::


Fleiri myndir komnar inn
Nú er tyrkjafjölskyldan öll komin heim og gengur allt vel. Ljósmóðirin heimsækir fjölskylduna reglulega og stubburinn gerir lítið annað en að drekka og sofa. Að venju er búið að taka slatta af myndum og má finna þær hérna.


3.10.03

:: tyrkinn 18:48 [+] ::


Tyrkjasonurinn fæddur!
Klukkan 12:06 í hádeginu í dag fæddist tyrkjasonurinn. Hann vó 3.750 grömm og ku vera 51 cm á lengd og er altalað á fæðingardeildinni að þarna sé faddlegasta barn fyrr og síðar, enda vel ættað. Tyrkjafrúin tók upp á því að fara af stað upp úr 2 í nótt, og gekk fæðingin tiltölulega hratt fyrir sig frá upphafi til enda. Fyrir vikið er tyrkinn ekki búinn að sofa í eina 34 tíma þegar þetta er skrifað og er afar hress. Flábært!

Finna má slatta af myndum af frumburðinum hérna



:: tyrkinn 01:56 [+] ::


Fréttaskot
Tyrkjafrúin er búin að missa vatnið! Nú má búast við að hlutirnir fari að gerast. Tyrkinn er á leiðinni upp á fæðingardeild...


2.10.03

:: tyrkinn 20:41 [+] ::


Óléttufréttir
Tyrkinn og tyrkjafrúin fóru í mæðraskoðun í dag sem átti að vara í 30 mín. Ekki fór þó svo því eitthvað prótein mældist í þvagi og eru því einhverjar líkur á að meðgöngueitrun svokölluð sé í uppsiglingu. Varð það til þess að tyrkjafrúin var lögð inn þar sem fylgst verður með henni og prótein og blóð mælt. Ef þetta er ekki þriðja falska aðvörunin í meðgöngunni gæti farið svo að tyrkjafrúin verði sett í gang næstu daga, enda er stóri dagurinn á laugardaginn og ekki seinna vænna. Svo skemmtilega vildi til að þegar tyrkjafrúin var lögð inn komu Hrafnkell og Ella 5 mín síðar og fengu stúlkurnar að vera saman á herbergi. Þetta kom sér vel og hafa þær félagsskap af hvorri annarri og engir "ókunnugir" eru að þvælast inn á þær. Þeim líður báðum vel, en óþolinmóðar að fara að fæða eins og gefur að skilja. Þetta virðist vera einhver voða spítaladagur því tyrkjabróðirinn var lagður inn hinu megin við götuna eftir að lungað á honum féll saman í annað skiptið á nokkrum árum. Hann fór í aðgerð í dag (loftröri komið fyrir í lungað til að halda því opnu meðan það grær) og má búast við að þurfa að liggja í einhverja daga. Spítalalega á ekki vel við hann því maðurinn getur varla staðaðið kyrr í 2 mín.

Tyrkinn reyndi að sms blogga í dag (undirbúningur undir fæðinguna...) en svo virðist sem það hafi ekki skilað sér. Líklega verður því að styðjast við sms varðandi fæðingarfréttir þegar þær berast (vonandi fljótlega)



:: tyrkinn 20:32 [+] ::


Athyglisverðir tvífarar á snilldinni! (heimasíða FC sokks er hóm frí í þessu sambandi....)



:: tyrkinn 10:45 [+] ::


Still nó njúfs
Nú eru aðeins 2 dagar í stóra daginn, en tyrkjafrúin virðist ekkert ætla að fæða fyrir helgina a.m.k. Fór hún til Ellu í gær þar sem þær vinkonur hittust og notaði tyrkinn tækifærið og bauð heim í Catan. Fritz, Gyðnið og Herkúles mættu sprækir, en þó ekki sprækari en svo að tyrkinn vann báða leikina og hefur núna unnið a.m.k. síðustu 5 leiki sem hann hefur spilað. Geri aðrir betur, tyrkinn skorar á fólk að sigra sig, það virðist orðið ómögulegt.... Eftir spilið var glápt á tvo simpsons þætti á DVD, sem var vel. Mæðraskoðun á eftir og fæðing um helgina (sjö, níu....)


1.10.03

:: tyrkinn 09:53 [+] ::


Morgunógleði
Þegar tyrkinn vaknaði í morgun og skellti sér í sturtu kom tyrkjafrúin inn á baðherbergi furðulostin á svip og spurði hvort tyrkinn væri geðveikur. Eftir stutta umhugsun vildi hann meina að svo væri ekki, en kom þá í ljós að klukkan var 2 um nóttu og tyrkinn hafði aðeins sofið í stutta stund áður en hann vaknaði og dreif sig á lappir. Þetta hefur ekki komið fyrir tyrkjann í langan tíma og er aldrei skemmtilegt. Tyrkjanum þykir þetta öllu heldur ekki skemmtilegt, en tyrkjafrúin skemmti sér hins vegar konunglega. Hún var að kafna úr hlátri og gerði mikið grín að tyrkjanum sem var ekki skemmt. Það fyrsta sem tyrkinn fékk svo að heyra í morgun var "Ætlaru ekki að drífa þig í sturtu?..." með stríðnisglotti. [Geisp]


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra