Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

27.11.03

:: tyrkinn 16:22 [+] ::


Traffík
Gaman er að geta þess að heimsóknir á þessa síðu hafa meira en tvöfaldast frá sama tíma í fyrra. Hafiði það...



:: tyrkinn 13:49 [+] ::


Tyrkjakönnunin
Tyrkjakönnun vikunnar leiddi í ljós að fólk vill almennt hafa könnun á síðunni, en 100% aðspurðra voru á því sem er hér um bil sama prósenta og þjóðhöfðinginn Saddam Hussein fékk í frjálsum kosningum áður en Bush missti sig hér um árið. Könnun þessarar viku snýr að útliti síðunnar, en eflaust hafa margir tekið eftir því að tyrkinn setti nýlegri mynd af sjálfum sér á síðuna fyrir nokkrum dögum. Mynd þessi er sjálfsmynd sem tekin var í steggjaveislu Sigurvi sem haldin var fyrir norðan og var tyrkinn undir áhrifum áfengis þegar hún var tekin. Skárri myndir fundust ekki á myndasíðu tyrkjans að þessu sinni og var hún látin vera um sinn. Er fólk almennt á því að hún sé nógu fögur fyrir tyrkjann.com?



:: tyrkinn 09:44 [+] ::


Fylkið
Tyrkinn fór við frú í gær í bíóhús að sjá lokaþátt (vonandi) af Matrix seríunni margfrægu. Höfðu þau áður séð miðhlutann í baunalandi í sumar og þótti sú mynd ákveðin vonbrigði. Var tyrkinn einnig búinn að heyra margar slæmar sögur af þeirri nýju og fékk hún meðal annars falleinkunn á www.rottentomatoes.com svo væntingarnar voru afar hæfilegar. Eftir glápið var tyrkinn þó sæmilega ánægður með myndina, hún var laus við uber-langar kung-fu senur sem einkenndu og eyðilögðu mið hlutann (Reloaded) og var tyrkinn með á nótunum með afar steiktan söguþráð svo ekkert kom á óvart. Tæknibrellur og tölvugrafík voru til fyrirmyndar í þessari mynd og miklar stríðssenur eru næstum nóg til að draga mann í kvikmyndahús til að berja þetta augum. Þeim sem hafa séð fyrri myndirnar er því óhætt að sjá þessa síðustu og e.t.v. er ágætt að reyna svo að gleyma öllu saman.

Eitt sem getur verið leiðinlegt við bíóferðir, hálfvitar sem verða að vera að spjalla í tíma og ótíma og átta sig ekki á því þegar fólk er að snúa sér við og gefa þeim illt auga. T.d. voru tveir miðaldra hálfvitar á Matrix í gær sem samkjöftuðu ekki. Annar þeirra hafði greinilega ekki séð fyrri myndirnar og hinn var að útskýra allt fyrir honum; "sko, það eru tveir heima, tölvuheimur og alvöru heimur..." Svona lið er óþolandi og ættu sætavísur að vísa svona liði úr sætum. Hverjum dettur svo í hug að sjá þriðju myndina af trílógíu sem þessari án þess að hafa séð hinar tvær?


25.11.03

:: tyrkinn 11:52 [+] ::


Sögur að heiman
Heimilisfólkið í tyrkjalindinni er í ágætis stuði þessa dagana, þrátt fyrir kvefpest sem hrjáir tyrkjafeðgana þessa dagana. Leifur sýnir á sér nýjar hliðar á hverjum degi og fullorðnast hraðar en búist var við. Í fyrradag tók hann upp á því að fylgja manni eftir með augunum og hausnum sem ekki gerðist áður. Við þessa litlu breytingu "manneskjast" kappinn töluvert og gaman að sjá að hann sé að fylgjast með manni, en þetta sést best þegar hann situr í stólnum góða sem hann fékk að láni hjá Unu frænku. Í gær tók hann líka upp á því að halda hausnum uppi þegar móðir hans togaði hann upp úr liggjandi stöðu í sitjandi, en áður vildi hann ekkert reyna á hálsinn. Skapið kemur líka meira og meira í ljós og er hann óhræddur að láta vita þegar hann er svangur (þótt það séu nánast einu skiptin sem hann lætur heyra í sér), og hann er farinn að hjala meira og meira. Að öllu jöfnu er hann þó afar rólegur og sérstaklega þegar hann er í pössun eða innan um gesti, þá setur hann upp spariskapið og oftar en ekki brosir hann eitthvað. Brosin eru sérstaklega fyndin (á eftir að ná því almennilega á "filmu") þessa dagana en hann á það til að brosa út í annað og oft er hægt að framkalla bros með því að brosa framan í hann eða syngja fyrir kappann. Hann er sérstaklega sáttur við lífið þegar sungið er fyrir hann og kann hann best að meta lög af "Nú er ég klæddur og komin á ról" plötu meistara Megasar. Ef móðir hans vill hafa áhrif á þennan smekk hans þarf hún að fara að þenja raddböndin...



:: tyrkinn 11:37 [+] ::


Heimilisstjórnun 403 - Fyrir lengra komna
Framkvæmdarnefnd tyrkjalindar ákvað í um daginn að nú skildi endurskoða innkaup heimilisins í því skyni að spara peninga og ferðir, en hingað til hefur þurft að fara oft í búð í hverri viku vegna skorts á skipulagsleysi. Í gær hófst svo framkvæmd á nýja skipulaginu og tyrkirnir örkuðu í Bónus með innkaupalista fyrir alla vikuna að vopni. Þaðan út komu tyrkirnir nokkuð ánægðir með sitt og nokkurn veginn allt til alls fyrir vikuna nema fisk fyrir kvöldið sem ekki er seldur ófrystur í Bónus. Var þetta nokkur léttir því síðasta tilraun tyrkjanna til að eiga við Bónusveldið í Holtagörðum fór hrikalega í vaskinn, en búðin í Smáranum er öllu mannúðarlegri. Herlegheitin kostuðu um 9 þús. kr. sem er náttla böns fyrir mat, en þó vel sloppið miðað við fyrri aðferðir. Þá er bara að búa til almennilegt excel skjal sem býr til matseðla og innkaupalista fyrir vikuna, en það skjal er í vinnslu og gæti ferið á almennan markað fyrir jól. Lasagnia í kvöld.


24.11.03

:: tyrkinn 14:44 [+] ::


Helgarskýrsla Tyrkjans - Föstudagurinn 21. nóv
Á föstudaginn var búið að plana ótímabært jólahlaðborð fyrir all nokkru síðan og gekk það eftir. Ákinn hafði ekki þorað öðru en að panta borð tvo daga í röð til að tryggja að um frídag væri að ræða fyrir þá poppara. Borðað var í Perlunni að þessu sinni, og olli margfrægt hlaðborðið þar ekki vonbrigðum, tyrkinn er ekki frá því að þetta hafi verið besta hlaðborð sem hann hefur notið. Tyrkirnir mættu ásamt Áka, Áslaugu, Hrafnkeli, Ellu og Ingu Lind, en karlinn hennar Árni var að sötra og borða á Apótekinu og sýndi sig ekki. Til að koma fólki enn meira í ótímabært jólaskap voru gefnar gjafir sem vöktu mikla kátínu, allar nema skúlptúr tyrkjans "Hagkaupsverð" sem Áslaug svívirti í hvarvetna þrátt fyrir að um mikið meistaraverk sé að ræða. Tyrkinn reynir ekki skúlptúragerð í bráð. Sjálfur hlaut tyrkinn afar fallegan elg með jólaseríuhornum sem prýða mun tyrkjalindina yfir jólin. Eftir góðan mat og einhverja drykki var kíkt niðrí bæ þar sem margt var um fullan mannin og setið eilítið á Apótekinu, áður en tyrkirnir fóru heim. Óhætt að mæla með Perlunni í svona hlaðborð, panta tímalega.



:: tyrkinn 14:13 [+] ::


Fimmtudagurinn
Á fimmtudaginn skelltu tyrkirnir sér á útgáfutónleika þeirra svörtfötunga í borgarleikhúsinu. Samkvæmt hefð var platan fyrst spiluð í gegn með stuttu spjalli eða sprelli á milli og fór hljómsveitinn mikinn í sviðsframkomu (nema Akkerið sem mest allan tímann stóð negldur við sviðið eins og frelsarinn á krossinum). Til dæmis var söngspíran í leikhús vírum í fyrsta laginu og söng "ég svíf" á meðan hann "sveif" í hringi í vírunum við mikinn fögnuð viðstaddra. Engu var til sparað í leikmunum og ljósasýningu og var sýningin afar mikil og flott, og kom leikhús snúnings-sviðið sér vel þegar öllu var snúið var við undir lokin og við tók nokkurs konar önn-plöggd sjóf þar sem hljómsveitin hennti inn nokkrum gömlum slögurum í kaupbæti fyrir viðstadda og virtist það falla í góðan jarðveg hjá gestum. Tyrkirnir voru þarna að heyra flest lögin í fyrsta skiptið og er tyrkinn ekki hissa á því að platan hafi fengið roknar dóma í mogganum fyrir tónleikana, þarna voru mörg fín lög. Eina sem tyrkinn hefði látið missa sig var eitthvað hálfgert rapplag þar sem meðlimir íslenskrar rapphljómsveitar (tyrkinn man ekki hvað hún heitir) röppuðu með Jónsa og kannski "Ekkert að fela" lagið sem hefur hljómað í sjónvarpinu að undanförnu. Tónleikarnir runnu vel í gegn og virtist hljómsveitin ekkert hafa gert annað en koma fram og gengu meira að segja allir spondant brandarar upp og virtust allir hafa farið ánægðir heim. Ekki fóru þó allir heim, einhverjir söfnuðust saman baka til og afhentu m.a. konur popparanna þeim einhverjar rokk töskur með ýmsu mis vafasömu dóti í og svo var boðið í bjór og snittur á Sólon eftir allt saman. Fín skemmtun það kvöldið.


21.11.03

:: tyrkinn 12:05 [+] ::


Ha-Ha
Á síðu þessa fyndna manns fann tyrkinn þessa snilldar síðu; engrish.com



:: tyrkinn 09:34 [+] ::


Afmælisbarn dagsins
Fritz Gerber á afmæli í dag, og ku drengurinn vera orðinn 27 ára. Í stuttu viðtali við tyrkjann.com sagði Fritz að þetta væri góður dagur til að eiga afmæli, fólk eins og Jói Bald og Björk Guðmundsdóttir ættu einnig afmæli þennan dag. Tyrkinn óskar Gerber til hamingju með afmælið.





20.11.03

:: tyrkinn 16:15 [+] ::


Grettir er alltaf fyndinn, sjóveikisbrandarinn hans er magnaður



:: tyrkinn 16:10 [+] ::


Hr. Fítus
Nú er loksins hægt að taka þátt í könnunum hér á tyrkinn.com. Til stendur að kanna hvaða skoðanir lesendur hafa á hinum og þessum málefnum ef fólk er sátt fyrir þetta fyrirbæri yfir höfuð. Endilega nýtið græjuna hér til vinstri.


19.11.03

:: tyrkinn 09:52 [+] ::


Lunga unga fólksins
Tyrkirnir fóru að heimsækja tyrkjabróðirinn Kristján í gær. Hafði hann farið í aðgerð daginn áður þar sem lungun á honum voru heftuð eitthvað svo þau héldi ekki áfram að falla saman í tíma og ótíma. Aðgerðin heppnaðist vel og vonar Tyrkjabróðirinn að hann komist heim í dag, en í dag verður athugað hvort allt sé að virka rétt með því að hætta tímabundið að blása lofti í lungun á honum. Skrítið var að sjá kappann á hjarta- og lungnaskurðdeild innan um hálf nírætt lið, en Kristján er að verða tvítugur 10. des n.k. Hann hefur ekki legið aðgerðarlaus í sjúkrarúminu því hann var greinilega búinn að skipuleggja tvítugsafmælið sitt sem hann ætlar að halda upp á 12. des þegar hann klárar prófin.



17.11.03

:: tyrkinn 16:59 [+] ::


Breikíng njúfs
Samkvæmt öruggum heimildum er búið að leggja bróður tyrkjans aftur inn á spítala út af lunganu á honum, en fyrir aðeins 6 vikum féll það saman í annað skiptið. Planið er að líma helvítið fast í brjósholinu á kappanum í kvöld. Tyrkinn óskar bróður sínum góðs gengis.






:: tyrkinn 13:32 [+] ::


Hlunkurinn
Frá fæðingu Leifs hefur hann ekki verið að þyngjast mikið og í einar 3 vikur vó hann nánast það sama eða rétt undir 4.000 gr. Tyrkjarnir fóru svo með kauða í skoðun í morgun og hafði hann bætt á sig einum 580 gr. sem samsvarar um 15% þyngdaraukningu á einni viku. Flestir væru í vandræðum ef þeir bættu við sig 15% af massa á einni viku, en sá stutti mátti alveg við þessu. Hann er því loks kominn með pínu bumbu og undirhöku sem þykir fínt á þessum aldri. Hann unir vel við sitt þessa dagana og er afar rólegur og glaðlyndur eins og pabbi sinn.






Smellið á myndirnar að neðan fyrir fleiri










:: tyrkinn 13:16 [+] ::


Helgin
Tyrkirnir fóru á tónleika sinfóníuhljómsveitar Íslands og Todmobile á föstudaginn ásamt hópi fólks úr tyrkjavinnunni. Tyrkinn var ekki búinn að kynna sér tónleikana voðalega vel, og þegar sinfónían ásamt einhverjum 17 ára píanópjakki (Lukás Vondrácek) var búin að djöflast í um hálftíma komst tyrkinn að því að fyrri hluti tónleikanna var todmobile laus og að herra Sergej Rakhmanínov hafði samið allt saman, en ekki Celine Dion eða Þorvaldur Bjarni. En djöfull gat strákurinn spilað. Mikil vonbrigði voru að sjá ekki Geira Agg með sellóið undir hökunni við hlið Eyþórs, en hann var víst í einhverju fríi kappinn. Nú, tónleikarnir byrjuðu mjög vel og eftir annað lagið ("Betra en nokkuð annað") var tyrkinn himinlifandi. Eftir það fór samt skemmtunin dalandi að mati tyrkjans, enda mörg gömul Todmobile lög sem eru ekki til þess fallin að blanda sinfóníuhljómsveit við þau. Í heildina litið voru þetta ágætis tónleikar og fáir illa sviknir. Var þetta fyrsta skiptið sem báðir foreldrar tyrkjasoldánsins skildu við hann og var hann í góðu yfirlæti á heimili tyrkjamóðurinnar. Eftir tónleikana var rennt heim og eitt Catan tekið ásamt Drykkjumanninum og bróður hans. Laugardagurinn var afar rólegur og sunnudagurinn fór í ættarmót hjá föðurætt tyrkjafrúarinnar þar sem tyrkinn kannaðist við fáa. Að venju fór svo mikill tími í Tiger Woods 2004, sem er vel.


14.11.03

:: tyrkinn 12:29 [+] ::


Enn sem fyrr slær baggalútur í gegn, þetta er mjög fyndið!



:: tyrkinn 10:29 [+] ::


Golf
Tyrkinn rakst á ágætis golfleik á netinu þegar hann var að skoða gamla St. Andrews völlinn.


13.11.03

:: tyrkinn 14:56 [+] ::


Málið í dag
Í dag er við að auglýsa tónleika með Muse sem verða í laugardagshöllinni 10. desember n.k. Miðasalan ku hefjast í fyrramálið klukkan 09:00 í verslunum Skífunnar. Tyrkinn hefur verið að hlusta á nýja diskinn undanfarna daga og er óhætt að mæla með honum. Tyrkinn heldur að ekki sé hægt að missa af þessum tónleikum, sérstaklega í ljósi þess hvaða tónleikum hann hefur misst í gegnum tíðina. Nú er mál að smala saman, senda fulltrúa í búðina og gera sér dag úr herlegheitunum. Hverjir eru menn?











:: tyrkinn 14:45 [+] ::


Gjafir
Leifur tyrkjason fékk margar góðar gjafir á skýrnardaginn sinn frá mörgu góðu fólki. Einnig fékk hann peningjagjafir frá ættingjum og gjafabréf frá vinnufélögum tyrkjafrúnnar. Í vikunni var farið í það mál að versla fyrir peningjagjafirnar og gjafabréfið og á Leifur nú "Barnatalstöðvar" (sumir kalla mónítor), vandaðan poka í barnavagninn/kerruna, afar góða dúnsæng frá Dún og fiðri og smærri hluti eins og leikfang á burðarstólinn sem hann fékk frá vinkonum tyrkjafrúarinnar. Tyrkirnir þakka fyrir góðar gjafir.

(á myndinni má sjá afmælisbarn dagsins með Leif Kolka)



:: tyrkinn 14:15 [+] ::


Afmæli
Móðir tyrkjans á afmæli í dag. Tyrkjafjölskyldan og starfsfólk tyrkjans óskar henni til hamingju með afmælið. Sagði hún í viðtali við tyrkjann að hún hefði gleymt þessu og verið búin að bóka sig í saumaklúbb og hvaðeina svo afmælisdinnernum var frestað til morguns. Þá stendur hins vegar til að fara á tónleika, og komast því tyrkinn og tyrkjafrúin ekki í kvöldverð. Tyrkjastubburinn ætlar þó að mæta, enda Perla frænka búin að panta að passa hann frá því hann fæddist.





Hún á ammælídag
Hún á ammælídag
Hún á ammæl' hún Mamma
Hún á ammælídaaaaaaaag

Hún er ........ þrítug í dag, hún er ....


12.11.03

:: tyrkinn 11:44 [+] ::


Af bóksölum, hægðum og öðru...
Hringt var í tyrkjafrúnna á þriðjudaginn og spurt hvort hún mundi vilja fá bóksala í heimsókn frá Eddu. Einhverra hluta vegna játti hún það með þökkum. Í gærkveldi kom svo maðurinn með vörulista fullan af tilboðum og tösku fulla af sýniseintökum. Fyrst hann var mættur með leyfi frúarinnar var ekkert í stöðunni nema bjóða honum inn og fletta helvítis katalóknum. Eftir svolitla stund var þetta þó yfirstaðið eftir að tyrkjafrúin keypti eina bók og fékk tvær tækifærisbækur einnig að gjöf frá glaða sölumanninum sem ætlaði þó að selja tyrkjunum ritraðir fyrir hundruð þúsunda. Einhverra hluta vegna kaupar íslendingar fleirri bækur á haus en aðrar þjóðir. Þetta er þrátt fyrir þá staðreynd að íslenskar bækur eru skrattanum dýrari (enda örfá eintök prentuð í einu). Á hinn bóginn er rétt að mikið er gefið út af eigulegum bókum hér á hverju ári, til dæmis voru margar mjög veglegar og eigulegar bækur í katalók sölumannsins sem tyrkjarnir hefðu sjálfsagt keypt ef þeir ættu pening og hver bók ekki kostað 15 þús. krónur. Tyrkinn hugsar sig alltaf tvistar um áður en hann eyðir 15 þús. krónur í bók, enda aldrei gert.

Magnað hvað skiptir orðið máli í heimilislífinu þessa dagana. Eitt aðal umræðu- og áhyggjuefnið undan farna daga eru hægðamál Leifs. Síðustu vikur hefur snáðinn ekki skitið í bleiurnar sínar nema á viku fresti þrátt fyrir mikinn rembing og viðrekstur. Í gær var hann orðinn mjög pirraður og orgaði svolítið en hætti svo alveg eftir maganudd móður hans. Tyrkinn fékk svo heiðurinn að skipta á strákunum og viti menn, kúkurinn var farinn að flæða útúr. Flestir mundu ekki fagna þessu, en glatt var á hjalla (eftir að vikuskammturinn var farinn vakúmpakkaður í ruslið) á heimili tyrkjanna. Þegar lífið gengur út á að éta, sofa og skíta verða þessar athafnir einhvern veginn mikilvægari en áður, og vill oft verða að fjölskyldan snýst í kringum þessa þætti.

Það er ekki góð lykt af viku skammti af vikugömlum barnakúk, þá vitið þið það.


10.11.03

:: tyrkinn 16:36 [+] ::


Fyrir Megasfólk
Orri Harðarson syngur 12 ára gamlu Megas lögin "Gamla gasstöðin við Hlemm" og "Jónas frá Hriflu" (MP3 í boði Jóns góða)


8.11.03

:: tyrkinn 00:20 [+] ::


Myndasíða tyrkjanna
Nú hefur myndasíðan verið uppi í nokkra mánuði og er búið að skoða hana vel og vandlega nokkur þúsund sinnum. Einn fítus hefur þó aldrei (ekki svo tyrkinn man eftir) verið notaður, svokallað kommenta system. Ef mynd er skoðuð í fullri stærð birtist texti fyrir neðan hana; "Add comment". Þannig getur hver sem er bætt athugasemd við hvaða mynd sem er og komið leiðréttingum eða skoðunum sínum á framfæri. Annar fítus sem er sniðugur og einhverjir hafa nýtt sér er slædsjófið. Ef verið er að skoða möppu birtist lítill "linkur" fyrir efst til vinstri á síðunni sem merktur er með "slideshow". Með þessu er hægt að skoða allar myndir í möppunni sjálfvirkt. Að lokum ber að minnast á það að einhverjir hafa farið á mis við myndirnar úr skírninni, en þær eru í annarri möppu, nefnilega "Vinir og vandamenn (fólk)" en ekki "Barnamyndir" eins og flestar af nýlegum myndum.

Skoða Skírnarmyndir
Skoða slædsjóf með skírnarmyndunum
Skoða myndir af Leifi
Skoða forsíðu

Góða helgi


6.11.03

:: tyrkinn 16:50 [+] ::


Það kostar að búa úti á ballarhafi [Neytendahorn Tyrkjans]
Tyrkinn, er eins og frægt er orðið, kominn með ansi mikla myndavéladellu. Stærsti kosturinn við stafrænar vélar er að ekki þarf að prenta allt út, en að láta framkalla filmur á pappír kostar handlegg og löpp eins og tyrkinn komst að um daginn. Þó er ókostur að eiga ekkert á pappír, svona fyrir bókahilluna til að fletta í gegnum. Þá væri það alveg eftir tyrkjanum ef öll myndagögn færu út í veður og vind. Því hefur alltaf staðið til að velja slatta af myndum og láta Hans Petersen prenta þetta út á góðan pappír og eiga. Það er þó ekki gefið, að prenta út eina mynd í hefðbundinni stærð hjá Hans kostar 65 kr. hver mynd sem er ekkert ódýrt ef maður er að gera mikið af þessu. Tyrkjanum fannst þetta anskoti dýrt og fór út á örkina og athugaði hvað kaninn er að rukka fyrir þetta (kanarnir mega eiga það að þar er alltaf príma samkeppni og verð yfirleitt lægst). Ein síða, To Go Photo, er að rukka 0,18$ fyrir hverja mynd í sömu stærð, sem samsvarar tæpum 14 krónum íslenskum. Þarna er næstum fimmfaldur munur á, og má draga þá ályktun að herra Petersen sé að okra á landanum. Einning mætti geta þess að ákveðin myndavél (Canon 300D) kostar um 1000$ (úti í bandaríkjunum en kostar á sérstöku tilboðsverði hjá HP einar 140 þús kr. Þannig er Hans 83% dýrari en kaninn.



:: tyrkinn 14:23 [+] ::


...á gervihnattaöld
Tímarnir eru fljótir að breytast, og samskiptamátar eru fljótir að breytast. Þróunin virðist fyrst og fremst ganga út á það að maður hittir sjaldnar vini og vandamenn, og talar sjaldnar við þá, en í staðinn kemur skrifmálið inn í auknum mæli. Tyrkinn hefur t.d. orðið var við það að hann heyrir sjaldnar í vinum sínum orðið, en í staðinn koma stuttar orðsendingar í gegnum tölvupóst, msn eða sms. Gott dæmi er fæðing Leifs og skírn hans, í stað þess að hringja í alla og láta vita af fæðingunni voru stutt skilaboð hömruð inn í símann og all margir fengu sms fyrir vikið, og margir svöruðu til baka með sms. Sömu sögu er að segja af fæðingunni. Annað sem hefur breyst, eftir að þessi síða "fór í loftið" á sínum tíma og fleiri eru farnir að lesa þessa vitleysu virðist sem svo að flestir viti hvað tyrkinn er að gera um dagana, en þó öllu verra að tyrkinn veit lítið hvað aðrir eru að gera enda svalar síðan helstu fréttaþörf fólks um tyrkjana. Magnað.

Tyrkinn hafði ekki heyrt í Pétri vini sínum í ár og mánuði um daginn þegar nokkur orð læddust frá honum inn á tyrkjaspjallið hér til hægri. Tyrkinn hafði þá ekki hugmynd um að Pétur vissi af síðunni, eða hvað hann hefur verið lengi að lesa hérna. Fyrir vikið vissi tyrkinn lítið um líf Pétursins fyrr en eftir nokkrar tölvupóst sendingar. Allt ku vera gott að frétta af kappanum og hljómsveitin hans Tristian virðist enn vera í góðum gír (á löngu að vera búin að gefa eitthvað út). Pétur benti tyrkjanum á að hægt er að sækja sér eitt lag þeirra Tristian sveina á rokk.is og má nálgast það hér. Lagið sem heitir Sverðlilja er gríðargott og gefur gömlu Tristian lögunum ekkert eftir, allir að hlusta á það. Að sögn Pétursins mun hann líklega koma eitthvað fram ásamt Önnu Kristínu á tónleikum sem svokallaður Mugison mun halda á Grand Rokk þann 11. nóv, kíkja þangað. Tyrkinn er búinn að bíða mörg ár eftir Tristian Plötu en hafði ekkert heyrt frá þeim í nokkur ár fyrr en í dag, vonandi fer að styttast í slíkan grip. Einhverjir hafa kannski séð afar flott myndband með þeim drengjum í sjónvarpinu, teiknimynd?



:: tyrkinn 13:54 [+] ::


Pestin
Tyrkinn var ekki fyrr byrjaður að vinna á mánudaginn þegar tyrkjafrúin náði sér í þessa fínu flensu, eða inflúensu eins og hún kýs að kalla sig. Strax á mánudaginn var hún eitthvað skrítin og fékk sér einhverjar töflur sem slógu á pestina. Þá fannst tyrkjafrúnni ekkert sniðugara en að fara í labbitúr inn í smáralind með Leif. Þegar tyrkinn kom svo heim úr vinnunni lá tyrkjafrúin og skalf og hafði þá legið all lengi og hríslast til af kulda. Síðan þá hefur hún annað hvort verið að frjósa úr kulda eða stikna úr hita, með tilheyrandi hausverk og leiðindum. Tyrkinn hefur því verið meira og minna heima þessa vikuna og sinnt konu og barni. Leifur hefur sem betur fer sloppið við pestina hingað til og er hinn sprækasti. Una á afmæli í dag og óska tyrkirnir henni til hamingju með afmælið, ekki fylgir sögunni hversu gömul hún er. Tyrkjamóðirin fór í aðgerð á hné í vikunni og líður henni vel eftir hana, en var henni gert að hvíla sig eðlilega.


3.11.03

:: tyrkinn 13:01 [+] ::


Stupid reality
* Tyrkinn er mættur til vinnu, búið að færa borðið hans
* Var póker um helgina
- Fritz vann tyrkjann, drykkjumanninn, Geira Agg og Gyðnið
- Hugi er búinn að biðja um annan póker 19. eða 20. des (hann kemur heim 17. des)


2.11.03

:: tyrkinn 23:45 [+] ::


Skírnarmyndir
Tyrkinn er búinn að setja inn myndir úr skírnarveislunni sem fór fram um helgina. Einnig eru komnar nokkrar aðrar myndir af Leifi. (Smellið á myndina til að sjá fleiri)




.


1.11.03

:: tyrkinn 19:09 [+] ::


Skírn
Sonur tyrkjans var skírður í dag. Um leið fékk hann nafnið Leifur Kolka Haraldsson, Leifur eftir afa sínum heitnum en Kolka nafnið er ættarnafn í móðurlegg tyrkjans. Nánustu fjölskyldu var boðið heim til móður tyrkjans þar sem skírnin og veislan fór fram. Tyrkjafjölskyldan vill þakka öllum sem lögðu hönd á plóg fyrir daginn. (búast má við myndum fljótlega)





TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra