Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

31.12.03

:: tyrkinn 09:48 [+] ::


Tyrkjakönnunin
Spurning vikunnar var: Hvenær á að opna jólakortin?

Atkvæði féllu þannig:
1. Um leið og þau berast 55%
2. Hádegi á Aðfangadag 0%
3. Aðfangadagskvöld 18%
4. Á Jóladag 18%
5. Jóla hvað? 9%

Aðeins 18% höfðu því rétt fyrir sér að þessu sinni, en eins og flestir vita á að opna jólakortin á jóladag, allt fyrir það er svokölluð synd. Tyrkinn þakkar fyrir þátttökuna.


30.12.03

:: tyrkinn 23:22 [+] ::


Myndir
Ýmsir hafa verið að kvarta undan skort á myndaleysi á tyrkjasíðunni undanfarnar vikur og er það ekki að ástæðulausu. Vegna tæknilegra örðugleika er nú töluvert meiri handavinna að henda inn myndum en áður. Til stendur þó að ráða bót á þessu og má búast við örari uppfærslum upp úr áramótunum. Þeir sem eru mynda-þyrstir geta þó skoðað nokkrar myndir sem tyrkinn tók fyrir drengina í Svörtum fötun á tónleikum á Gauknum annan í jólum sem nú eru komnar inn á heimasíðu þeirra.





26.12.03

:: tyrkinn 03:13 [+] ::





















































23.12.03

:: tyrkinn 11:55 [+] ::


Tónlist vikunnar
Þegar tyrkinn hugsar um jólatónlist dettur honum fyrst í hug þessi stórkostlega plata. Einhverra hluta vegna var hún til í plötusafni tyrkjaforeldranna alla tíð (eða frá 1979 a.m.k.) og drógu tyrkjabörnin hana fram í kringum jólin og hlustuðu á. Það sem var fyndið í þessu sambandi var það að einhverra hluta vegna minnti rödd meistara Willie krakkana á föðurbróður þeirra, Kritján heitinn, en enginn kunni skýringu á því því tyrkinn man ekki eftir að hafa heyrt föðurbróður sinn syngja. Blessuð sé minning hans.




:: tyrkinn 11:16 [+] ::


Tíuþúsund lesendur (eða tveir sem lesa oft...)
Gaman að segja frá því svona fyrir jólin, en teljari.is hefur talið rúmlega 10 þúsund heimsóknir á þennan vef síðan mælingar hófust. Tyrkinn á sennilega góðan skerf af þeim sjálfur, en það er önnur saga....


22.12.03

:: tyrkinn 14:29 [+] ::


Helgarskýrslan
Um helgina fór jólapóker Pókerklúbbsins Pungs fram við hátíðlega athöfn. Drykkjumaðurinn bauðst til að hýsa atburðinn, en í ljósi fötlunar hans þótti sú ákvörðun gáfuleg. Kom í ljós að hýbýli Drykkjumannsins er vel til þess fallinn þess arna og virtist vera nóg pláss fyrir 9 fullsterka á tveimur spilaborðum inni í svefnherbergi þeirra Elínar Lilju. Jólapókerinn í ár var óvenju veglegur, bæði hvað varðar mætingu og umgjörð. Að sjálfsögðu var ströng bindisskylda og var engum bindislausum hleypt í hús, og þurftu þáttakendur einnig að geta migið í normalkúrfu til að hljóta inngöngu. Þegar mætt var upp úr klukkan 18:00 á föstudaginn var boðið upp á afar álfadísarlegan en góðan fordrykk á meðan menn voru að tínast í hús. Þá var snætt en kokkur frá Apótekinu hafði verið plataður til að elda ofan í mannskapinn. Í forrétt var svokallað "new style" sashimi, í aðalrétt var boðið upp á dýrindis saltfisk og í eftirrétt var créme brulée [með fyrirvara á stafsetningu] og þótti maturinn gríðargóður. Eftir matinn var hafist handa við spilið á tveimur spilaborðum og að sjálfsögðu var spilað eftir reglum Pungsins sem fyrr. Tyrkinn átti óvenju slæman dag og var búinn að sólunda öllu sínu fé á met tíma og gekk ekkert upp í spilamennskunni. Eftir nokkurra tíma spil stóðu eftir Hugi og Fritz og var byrjunarpotturinn kominn í einar 1.600 krónur. Hugi hafði sigur að launum og tók pottinn heim. Eru menn sammála um að glæsileikinn hafi verið óvenju mikill þetta árið og verður erfitt að toppa þetta næsta ár.

Skoða myndir



:: tyrkinn 13:14 [+] ::


Tyrkjasoldáninn
Tyrkinn er búinn að eiga í smá vandræðum með að uppfæra myndasíðuna síðustu vikur og var því fyrst í nótt að henda inn myndum eftir langa pásu. Einhverjar óánægjuraddir eru farnar að heyrast eftir krókaleiðum þótt enginn virðist þora að bauna mikið á tyrkjann sjálfan. Í nótt tók tyrkinn sér þó tak og hennti inn slatta af myndum handvirkt (tók töluvert lengri tíma en venjulega). Hér að neðan má sjá sýnishorn af þessum myndum:



























Sjá allar myndirnar



:: tyrkinn 12:59 [+] ::


Tyrkjakönnunin
Könnun vikunnar leiddi í ljós að lesendur eru meira og minna jólabörn svokölluð. Spurt var hvenær jólalög ættu að fara að heyrast í útvarpinu og kom í ljós að 67% lesenda vilja heyra þau í byrjun desember, 8% í nóvember og 25% á Þorláksmessu en enginn sagðist aldrei vilja heyra þessi lög. Þar sem jólin nálgast enn fannst tyrkjanum rétt að kanna hvaða hug fólk ber til jólakortanna, hvenær á að opna þau? (mikið hitamál í tyrkjalindinni)


17.12.03

:: tyrkinn 17:04 [+] ::


[Geisp]
Drykkjumaðurinn hóaði saman fólki í gær til að spila Catan og komust færri að en vildu. Tyrkinn mætti og sá þar með í fyrsta skipti ný húsakynni drykkjumannsins þar sem hann býr ásamt ástkonu sinni og tveimur vinkonum hennar. Ákveðið var að spila það sem kallast "Stóra-Catan" sem krefst tveggja grunnspila ásamt sæfara-viðbótinni. Kom á daginn að þetta kombó tók viðstadda (Tyrkinn, Drykkjumaðurinn, Hrafnkell drykkjumannsbróðir og Bjarki) ekki 90 mín eins og viðmiðið er, heldur rúma 4 tíma og enduðu leikar ekki fyrr en rúmlega 2, og marði tyrkinn sigur þósvo að drykkjumannsbróðirinn hafði unnið í næsta leik eða fyrr ef hann hefði ekki talað af sér. Og svo er annar hver maður veikur í dag.


15.12.03

:: tyrkinn 13:31 [+] ::


Helgin
Tyrkinn fékk lánaða ansi fína myndavél yfir helgina og tók sér frí eftir hádegi á föstudag til að prufa gripinn. Svenn hjónin kíktu í heimsókn og var Bjarni Dagur Svenn myndaður í bak og fyrir í tyrkjalindinni. Eftir það fóru tyrkirnir með Svenn fjölskyldunni í barnasund til að skoða aðstæður fyrir janúar þegar Leifur ætlar að byrja í sundinu. Gríðarlegt stuð var á krökkunum í sundinu og verður gaman að fara með Leif í þetta, honum finnst nógu gaman í baðkarinu heima fyrir.

Bróðir tyrkjans hélt upp á tvítugsafmæli sitt á föstudaginn og fagnaði próflokum á sama tíma. Var hann búinn að boða vini sína á "Störnukaffi" á Garðatorgi fyrri part kvölds. Tyrkinn og tyrkjafrúinn kíktu á kauða og skáluðu konum til heiðurs en stoppuðu aðeins stutt það kvöldið. Eitthvað fjör hefur verið á tyrkjabróðurnum þar sem hann sýndi sig rétt aðeins kvöldið eftir og fór í bað fyrir næsta partí. Þetta getur unga fólkið í dag.

Á laugardaginn stóð meira til. Tyrkjafrúin var búin að plana "deit", en það féll í hennar hlut eftir að tyrkinn vann veðmál þegar hann átti betri spá um fæðingardag Leifs. Drengurinn var settur í pössun í Garðabæinn og fóru tyrkinn og tyrkjafrúin á veitingarstaðinn Sjávarkjallarann sem er í gamla Geysis húsinu niðrí bæ. Var fólk sammála um að þarna færi einn sá flottasti staður sem sést hefur á skerinu. Ekki er langt síðan staðurinn opnaði og hefur engu verið til sparað við innréttingar. Afar smekkleg (en þó hippogkúl) húsgögn eru þarna og lýsing og annað þessháttar til fyrirmyndar. Þjónustan sem tyrkirnir fengu var líka til fyrirmyndar og voru allir afar hjálplegir og elskulegir. Matseðlillinn var í styttra lagi en allir réttir hljómuðu vel og allur matur sem tyrkirnir fengu var upp á tíu. Tyrkinn borðaði dúfubringu og hangikjet í "cuba libre" sósu í forrétt og skötusel í aðalrétt en tyrkjafrúin fékk sér risahörpudisk og kolkrabba í forrétt en túnfisk í aðalrétt. Þetta var í fyrsta skipti sem tyrkjafrúin fékk sér túnfisk á veitingastað (og reyndar fisk yfir höfuð) og ætlaði hún alveg að missa sig yfir hvað þetta var gott. Staðurinn fær fullt hús stiga hjá tyrkjunum og er mælir tyrkinn eindregið með því að fólk prufi staðinn sem fyrst. Það sem vakti hvað mesta lukku þetta kvöld var þó vínið. Efsta hvítvínið á vínlistanum hét því skemmtilega nafni "Fat Bastard", en að sögn þjónsins keyptu einhverjir írar (með skopskyn) franska vínekru og nefndu vínið þessu skemmtilega nafni sem tyrkjunum þótti eiga svona skemmtilega við. Og ekki var verra að vínið var ljómandi gott og mætti skoða hvort það megi taka úr hillum ríkisins næstu mánuði. Eftir matinn var farið heim til Svenn hjónanna sem höfðu verið með Jöra, Dísu, Hrafnkel og Ellu í mat. Eftir að drekka svolítið frá Áka var svo farið á Todmobile á NASA og var það óvenju skemmtilegt, mikið stuð. Mjög skemmtilegt kvöld þar.


12.12.03

:: tyrkinn 11:10 [+] ::


Pestin
Tyrkinn hefur sjaldan eða aldrei verið eins kvefaður og núna. Eflaust er hann mjög vinsæll í vinnunni, enda búinn að hnerra 12-15 sinnum síðan í morgun. Nóttin var líka erfið og ætlaði tyrkinn aldrei að festa almennilegan svefn út af hósta, hnerrum og veseni. Vaknaði hann líka oftar en einu sinni í köldu svitabaði skjálfandi og hóstandi. Þetta hlýtur að skána seinni partinn...


Árni Torfason (einnig þekktur sem Árni hamstur) tók afar flottar myndir af Mínus/Mjús tónleikunum á fimmtudaginn og má skoða rúm 60 stykki á heimasíðunni hans sem er ein sú flottasta.



:: tyrkinn 09:22 [+] ::


Operation De-Fat Bastard
Mæling í gær, 105 kg. og þá 12,5 kg. farin síðan í byrjun sept. Fyrsti áfangi verður 102,3 kg. (til að vinna veðmálið), annar 100 kg. og þriðji 90 kg einhvern tíman á næsta ári. Sjáum þó hvað setur yfir jólin....


Tyrkirnir fóru á afmæli hjá Tyrkjabróðurnum í gær, Tyrkjasystirin og tyrkjamóðirin voru búin að mixa dýrindis mexíkó borð sem var ljúffengt. Við það tækifærið fékk hann Slipknot dvd disk og eintak af nýjum geisladisk sem tyrkjasystirin yngri var að "gefa út" í um 50 eintökum. Tyrkinn hefur ekki enn heyrt afurðina en umslagið var eitt það glæsilegasta sem tyrkinn hefur séð, en tyrkjasystirin hannaði það sjálf en hún er afar skemmtilegur teiknari. Tyrkjabróðirinn ætlar að halda upp á afmælið með vinum og vandamönnum á pöbb í Garðabæ í kvöld.


11.12.03

:: tyrkinn 12:50 [+] ::


Mjús
Tyrkinn fór á Mjús tónleikana í gær ásamt Áka, Fritz, Margo, Herkúlesi, Örnu og Drykkjumanninum. Eins og allir vita seldist upp á stuttum tíma og gríðarleg stemning í kringum tónleikana eins og marga aðra tónleika af þessu kaliberi. Tyrkinn hefur hlustað nokkuð á síðustu tvær plötur sveitarinnar og vissi því að þarna var eðal efni á ferðinni en vissi lítið um hljómsveitina sem slíka. Hljómsveitin samanstendur af Cris Wolstenhome bassaleikara, Dominic Howard trommuleikara og Matthew Bellamy sem syngur og spilar á gítar og hljómborð, en Matthew þessi fór mikinn í gær. Ekki er hann bara magnaður söngvari heldur er hann all sprækur á hljóðfærin og átti t.d. gríðar mikla spretti á hljómborðinu í gær. Tyrkinn áttaði sig fyrst á því í gær hvað þeir eiga mörg góð lög, og þrátt fyrir eitthvað pleibakk kom það á óvart hvað þrír menn gátu gert hvað "sándið" varðar. Hins vegar komu kaflar sem gott hefði verið að vera með a.m.k. 1-2 í viðbót á sviðinu. Þeir semsagt stóðu sig vel. Á hinn bóginn kom í ljós að tyrkinn er orðinn of gamall fyrir svona unglingatónleika. Í fyrsta lagi er tyrkinn ekki hár og sá því ekki nógu vel upp á sviðið fyrir hausum og í öðru lagi fer það afar mikið í taugarnar á honum þegar skítugir unglingar eru gangandi utan í hann í tíma og ótíma. Tyrkinn vill sitja á tónleikum, sjá allt sem fer fram á sviðinu, njóta ágætra hljómgæða og geta fengið sér öl eða vínglas á meðan hann hlustar á tónlistina laus við allan djöfulgang frá öðrum tónleikagestum. Hljómsveitin á því hrós skilið, en aðstaðan var ekki upp á marga fiska, hljóðkerfið var ekki að gera góða hluti og salurinn ekki til þess fallinn að höndla tónlist vel. Tyrkinn væri alveg til að sjá bandið í minni sal í útlöndum fjarri geðshræringu íslenskra unglinga sem mæta á alla tónleika útlenskra sveita hér heima stemningarinnar vegna en ekki tónlistarinnar.

Mínus lék á undan og fóru mikið í rokk stælum og djöfulgangi og enduðu þrír meðlimir hljómsveitarinnar atriði sitt berir að ofan og "skjóta" með hljóðfærunum út í loft. Mikið rokk, en gerðu ekki mikið fyrir tyrkjann, ef til vill hefði þetta verið meiri upplifun ef tyrkinn hefði kynnt sér fleiri en þau 2-3 lög sem hann hefur heyrt (og eru reyndar öll ágæt, kannski ekkert rosalega sæt).


10.12.03

:: tyrkinn 12:15 [+] ::


Operation De-Fat Bastard
Tyrkinn hefur lést um 10 kg síðan í september þótt ótrúlegt megi virðast. Breytinguna má fyrst og fremst rekja til mataræðis en síðan tyrkinn fór með tyrkjafrúnni í september til næringarfræðings vegna meintrar meðgöngusykursýki frúarinnar hefur hann dregið úr sykurneyslu (og kolvetnisneyslu almennt) og hefur það skilað sér. Samkvæmt þessum næringarfræðing eru eftirtaldir hlutir verkfæri kölska og því farnir út af matseðli tyrkjans; Sykrað gos, sykrað sælgæti, ávaxtasafi (bæði alvöru og gervi), mjólk og annað sætt drasl. Annað kolvetni eins og brauð, pasta, hrísgrjón og þessháttar hafa fengið skerðingu, en eru þó enn á disk tyrkjans. Fritz Gerber er á hinum kantinum, ætlar að bæta nokkrum á sig og því var ákveðið í síðustu viku að stofna til veðmáls. Fritz ætlar að þyngjast um 5 kg, og tyrkinn ætlar að léttast um 5 kg og sá sem verður fyrr til að ná markmiði sínu vinnur bjór að eigin vali á veitingastað. Fyrsta mæling var síðasta fimmtudag í fótboltanum, og var Fritz þá 74,8 kg en tyrkinn heil 107,3 kg. ...og svo eru jólin á næsta leyti...



:: tyrkinn 11:19 [+] ::


Meirihluti lesenda virðist vera nokkuð sáttur við myndina af tyrkjanum og skal hún því standa. Ný könnun komin á síðuna.



:: tyrkinn 11:15 [+] ::


Afmælisbarn dagsins
Tyrkjabróðirinn er tvítugur í dag, og óska tyrkirnir honum innilega til hamingju með afmælið. Í stuttu viðtali við tyrkjann sagðist Kristján ætla að eyða deginum í próflestur en á morgun er síðasta prófið hjá kappanum. Eitthvað stendur þó til að halda upp á áfangann og er planið að hóa liði saman á púbb á föstudagskvöldið.






9.12.03

:: tyrkinn 15:16 [+] ::


Mjús
Nú fer að styttast all verulega í tónleika Muse en þeir eru jú á morgun. Síðustu fregnir herma að drengirnir í Mínus ætli að hita upp skrílinn á undan og verður gaman að sjá þá leika. Herkúles náði sér í miða í dag samkvæmt heimildum tyrkjans en æslander bauð víst upp á 100 miða fyrir þá sem voru snöggir til. Einhverjar pælingar voru uppi með að hita upp fyrir upphitunina með því góna á DVD disk sem Áki náði sér í fyrir nokkru og ku vera snilld mikil. Það verður stuð, ójá.


Jóla hvað?
Dagskráin er yfirleitt afar þétt í desember og er þetta árið ekkert frábrugðið. Allt verður vitlaust í ýmis konar atburðum og finnst öllum nauðsynlegt að gera sem mest þennan mánuðinn. Sérstaklega er hressandi hjá öllum kórum og þess konar hópum og halda allir tónleika sem það geta. Þeir sem eiga krakka á skólaaldri eiga víst heldur ekki sjö dagana sæla og nota kennarar tækifærið og eru alls kyns sýningar og heimsóknir og sumir sem eiga nettan haug af krökkum borða hvorki né sofa þennan mánuðinn. Jólahlaðborðin eru einnig orðinn stór partur af prógramminu og þeir hörðustu reyna að koma sér í 4-5 hlaðborð til að koma meltingunni í æfingu fyrir jólaátið, og vinnustaðir er gjarnir á að vera með slík hlaðborð eða önnur jólafyllerí. Til að bæta á súpuna datt einhverjum einhvern tíman í hug að bæta svokölluðu jólaglöggi við flóruna svo fólk þornaði ekki í desember. Svo þegar jólin sjálf byrja, byrjar ballið. Flestir fara í einhver jólaboð þar sem ættingjar hittast, gúffa einhverju í sig og styrkja fjölskylduböndin. Tyrkinn var vanur að fara aðeins í eitt jólaboð (fyrir utan "boðin" hjá tyrkjamóðurinni að sjálfsögðu), en eftir að hann nældi í tyrkjafrúnna fjölgaði þeim nokkuð og er frekar þétt prógram yfir aðal jóladagana. Svo er alltaf spurningin hvar fólk er þessa helstu daga og samningagerð um það og um aðrar jólahefðir, tyrkirnir eru líka sérstaklega vinsælir þessi jólin enda Leifur litli mikill sjarmör.

Þetta árið er búið að semja um eftirfarandi:
Aðfangadagur: Blásalir (Þ.e. hjá foreldrum Tyrkjafrúarinnar). Að vísu engin rjúpa þar en nú er hvort eð er svo hart í ári að tyrkjamóðirin er ekki einu sinni með rjúpur. Móðir tyrkjafrúarinnar eldar líka þann besta hamborgarhrygg sem tyrkinn hefur smakkað svo þetta verður ekkert slor. Líklega verður kíkt í heimsókn til tyrkjamömmunnar seinna meir það kvöldið. Ætli það verði ekki mun fleiri jólagjafir þessi jólin þegar Leifur er kominn í heiminn?
Jóladagur: Árlegt jólaboð hjá ömmu og afa tyrkjafrúarinnar í hádeginu. Þar hittist föðurfjölskylda tyrkjafrúarinnar og samkvæmt hefðum er hangikjet snætt, en sveskjugrautur í forrétt (grautur er skrítið fyrirbæri). Til að toppa átið er svo farið í kvöldmat til tyrkjamömmunnar í meira hangikjet, tyrkinn hefur aldrei borðað eins mikið hangikjet og síðasta jóladag, magnað.
Gamlárskvöld: Að þessu sinni verður það í Asparlundinum hjá tyrkjamömmunni, en eftir mat kemur fjölskylda Kristjáns tyrkjafrænda heitins og brennivín drukkið og kveikt í hlutum. Skemmtilegasta kvöld árins.

Svo stendur ýmislegt annað til, t.d. jólaboð 3. í jólum hjá tyrkjamóðurfjölskyldunni, pókerkvöld þann 19. des, deit þann 13. og vonandi fullt af spilakvöldum og rauðvíni inn á milli jóla og nýárs. Einnig er búið að gefa frí í tyrkjavinnunni þann 2. jan og því verður gott frí eftir gamlárs sem er gott. Og svo náttúrulega tónleikarnir á morgun.


8.12.03

:: tyrkinn 12:27 [+] ::


Catan
Catan:Sæfararnir viðbótin er búin að gera góða hluti upp á síðkastið. Leikurinn var skemmtilegur fyrir en viðbótin frískar aðeins upp á hann og er hann nokkuð fjölbreyttari fyrir vikið. Tyrkinn, Gyðnið og Herkúles tóku smá spil í gær og freistuðust til að taka annað þegar klukkan sló 00:00 og kom tyrkinn því ekki heim fyrr en um hálf tvö, sem er hressandi fyrir mánudag í vinnu. Herkúles er sjálfur búinn að kaupa sér grunnspilið og má búast við því að margir fylgi í hans spor yfir jólin, hann benti á að spilið en nokkuð ódýrara í Elko en í Eymundsson okurbúllunni sem munar um rúmlega 15%. Herkúles var í miklum ham í gær, og enduðu leikar þannig að hann vann báða leikina með nokkrum yfirburðum, en þetta voru fyrstu skiptin sem hann vinnur Catan spil.

Baðbókmenntir
Hvergi er meiri friður til lestrar eins og á doddlunni eins og allir vita og sumir viðurkenna. Þessar stundir eru orðnar þær einu sem tyrkinn gefur sér til að glugga í bækur og er ekkert nema gott um það að segja. Jafnvel hefur sú hugmynd komið upp að bæta við lið hér á síðuna sem væri í anda tónlist vikunnar, en mundi heita "Á doddlunni" eða sambærilegu heiti. Guðni sýndi tyrkjanum snilldarbók í gær sem hann hafði keypt í Skotlandi, og heitir gripurinn "Passing time on the loo" og er sver doðrantur með smáu letri. Efni bókarinnar er ansi sniðugt, en í henni er farið í allan andskotann, fróðleikur um eitt og annað í stuttum köflum sem henta vel til slíks brúks. Til dæmis eru ágrip (e. summary) úr ýmsum stórvirkjum heimsbókmenntanna og fróðleikur um alls kyns fræðigreinar, íþróttir og öllu sem höfundinum hefur dottið í hug. Tyrkinn fór að leita af gripnum á netinu áðan og rakst á það að bókin heitir að sjálfsögðu ekki það sama í bandaríkjunum enda er orðið "loo" ekki einu sinni notað þar. Þar heitir hún því uber-ameríska nafni "The Great American Bathroom Book, Volume 1: Single-Sitting Summaries of All Time Great Books". Væri ekkert vitlaust að eignast slíkan grip.



:: tyrkinn 10:05 [+] ::


Plötuumslag dagsins...



5.12.03

:: tyrkinn 09:52 [+] ::


Netpróf
Tyrkinn tók þetta netpróf sem hann sá hjá Gummajóh.

general
You're Generally Indie. There's nothing wrong with
this. You like music all over the map and
aren't adversed to listening to some Top 40
here and there. You just know to comment that
The Neptunes are the best producers around
right now. You don't feel the need to debate
constantly with other music geeks, because you
know that Pavement were the best band of the
90s.


You Know Yer Indie. Let's Sub-Categorize.
brought to you by Quizilla


4.12.03

:: tyrkinn 15:28 [+] ::


...biðin á enda
Hið árlega jólag Baggalúts er komið á netið. Að þessu sinni var enskt þjóðlag fyrir valinu og er það betra en nokkru sinni fyrr.

Hér má nálgast lagið og lesa textann

Snillingar á Baggalút.



:: tyrkinn 12:22 [+] ::


Sauðnaut
Í fréttum í gær var sagt frá máli þar sem tveir lögreglumenn voru dæmdir til fangelsisvistar yfir ólöglegar handtökur og fautaskap og var sýnt frá réttarsalnum þar sem mennirnir tveir reyndu hvorki að hylja á sér andlitin né nauðaskalla sína. Til að toppa málið veittu þeir viðtöl og voru mjög hneykslaðir á dómnum og voru alveg á því að málið færi í hæstarétt þar sem þeir myndu örugglega vinna. Þeir kváðust hafa stuðning annarra lögreglumanna, en hneyksluðust á því að stéttarfélag lögreglumanna væri ekki þar til að styðja þá. (Tyrkinn hélt að stéttarfélög ættu að einbeita sér að því þegar atvinnuveitendur brytu á félagsmönnum sínum, ekki þegar félagsmenn brytu lögin...). Til að toppa snilldina enn meira mættu kapparnir í viðtal í Ísland í dag á stöð 2 í gær. Vægast sagt kúkuðu þeir í buxurnar þar, komu út eins og verstu "skinheads" sem þekkjast vel erlendis fyrir fautaskap ýmis konar. Þegar annar þeirra var þráspurður af hverju hann hafði handtekið ungan mann sem tók mynd af honum niðrí bæ, svaraði hann alltaf einhverju allt öðru og hélt að hann væri að massa viðtalið en fékk alltaf spurninguna aftur. Einnig var magnað að sjá annan þeirra réttlæta það að úða táragasi í augu manns sem nálgaðist hann óþarflega hratt að sögn þess seka, en ástæðuna sagði hann vera þá staðreynd að maðurinn sem var úðaður væri afar stór og stæðilegur. Eftir viðtalið er tyrkinn sannfærður um sekt þessara tveggja, sem greinilega þjást af minnimáttakennd og hafa misnotað vald sitt í fleiri en einu tilviki. Tyrkinn er afar hræddur um að fleiri rotin epli leynist í lögreglunni hér heima sem annars staðar, menn sem gjarnan hafa leitað í dyravarðastörf á unglingsárum sínum eða önnur störf sem gefa þeim tækifæri á að lúskra á fólki án þess að skammast sín fyrir það.


2.12.03

:: tyrkinn 12:38 [+] ::


Nörrahornið
Tyrkinn keypti "Sæfararnir" viðbótina við hið gríðar góða Catan borðspil um daginn, en það er nýkomið út á íslensku í verslunum Eymundson. Viðbótina á að nota með gamla grunnspilinu og breytir leiknum töluvert. Var gripurinn prufaður á sunnudaginn þegar misþunnir menn (tyrkinn, drykkjumaðurinn, gyðnið og Geiri Agg) léku einn leik. Þrátt fyrir almenna heimsku þetta kvöldið varð úr skemmtilegur leikur, og vann tyrkinn naumlega eftir að gyðnið var búið að vera með yfirhöndina (jú eða undirtökin) allan tíman. Í þessari viku á svo að koma 5-6 manna stækkunin á leikinn til landsins og fer hún beinustu leið á jólagjafalistann hjá tyrkjanum, svo margir eru farnir að spila spilið oft komast færri að en vilja. Umræða eftir síðasta leik bar það þó með sér að Catan grunnspilið færi á jólagjafalistann hjá flestum sokkunum sem er ekkert nema gott. Alltaf gaman að spila svona...


1.12.03

:: tyrkinn 13:34 [+] ::


Maður lifandi
Síðastliðinn laugardag bauð Guðni heim til sín og voru þar nokkrar hræður við drykkju. Tyrkirnir létu sig ekki vanta og mættu allir þrír, og þar með fór hálfmeterinn í sitt fyrsta partí. Eitthvað var farið að ræða um Huga Guðmundsson og vildu menn óðir heyra í honum hljóðið. Eftir nokkra stund, nokkur árangurslaus símtöl og kenningasmíði komust menn að þeirri niðurstöðu að Hugi væri látinn, sennilega í skurði í úthverfum Kaupmannahafnar. Höfðu menn af þessu töluverðar áhyggjur. Í dag kom þó annað á daginn, Hugi hafði samband við tyrkinn gegnum msn og sagðist lifandi og við hestaheilsu. Góðar fréttir þar. Hann ku koma heim 17. des, en hefur eitthvað verið að skipta um símanúmer af ókunnum ástæðum.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra