Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

29.1.04

:: tyrkinn 15:04 [+] ::


Tristian
Tyrkinn heyrði í Pétri Þór í gær í fyrsta skipti í langan tíma og var hann afar hress. Svo kom SMS rétt í þessu þar sem kauði tilkynnir að Tristian verði að spila á Grand Rokk á morgun, föstudag, klukkan 11:30. Svo eiga þeir að vera núna á rás 2!














28.1.04

:: tyrkinn 15:34 [+] ::


Skrýtla [Jón Halldór sendi]

Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og
pantar sér í glas. Þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann í
barþjóninn: - Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?

Á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið
blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: - Áður en þú segir
þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast ? af því að þú
ert nú blindur ? að ég fræði þig um fáein atriði:
1. Barþjónninn er ljóshærð kona.
2. Útkastarinn er ljóshærð kona.
3. Ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate. Og ég er
ljóshærð.
4. Konan við hliðina á mér er ljóshærð og er Íslandsmeistari í lyftingum.
5. Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er Íslandsmeistari í
vaxtarrækt.
Hugsaðu þig nú vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara
þinn?

Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið og segir: -
Nei, ætli það. Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum.


27.1.04

:: tyrkinn 15:30 [+] ::


Sniðugar ljósmyndanörra síður:
DPChallenge: Stafræn ljósmyndasamkeppni
DPReview: Allt um stafrænar myndavélar
Photosig: Ljósmyndarar deila vinnu sinni og gagnrýna
Fred Miranda: Umsagnir um ýmsar linsur á SLR myndavélar
Canon EOS: SLR myndavélar og linsur frá Canon
Photodo: Linsudómar
Computer Darkroom: Ýmis trikk í Photoshop
NeatImage: Snilldar forrit til að hreinsa "grain" úr myndum
F45: Rolfe Horn ljósmyndari, flottar myndir
Michael Kenna: Flottar myndir
Photo.net: Allt um ljósmyndun
Auroras Northern lights: Allt um ljósmyndun norðurljósa
Photosecrets: Ýmis ráð varðandi ljósmyndun



:: tyrkinn 14:42 [+] ::


Nörrahornið
Hvað er meira nördalegt en LED binary klukka?


26.1.04

:: tyrkinn 16:47 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans
Á föstudaginn var bóndadagurinn, sem ku vera upphafið af Þorranum ef tyrkinn man rétt. Að minnsta kosti var boðið upp á Þorramat í hádeginu í vinnunni og svo var annað Þorrablót um kvöldið. Það var haldið í Íþróttahúsi Svefnbæjarins með pompi og prakt, alla vega pompi. Einhverra hluta vegna myndaðist þessi fína stemning og 300 manna þorrablótið varð að 900 manna Stuðmannaballi með öllu tilheyrandi. Fólk á öllum aldri mætti til þess eins að drekka brennivín og hafa gaman af því og var það vel. Tyrkjamóðirin var meira að segja mætt í roknar stuði og dansaði eins og gert er í Lundúnum. Tyrkjunum var boðið í fordrykk til Hönnu Lilju og Lúlla á undan og var sukkað til um þrjú um nóttina með tilheyrandi skemmtilegheitum á laugardaginn. Laugardagskvöldið fór í Catan eins og svo oft áður og voru leiknir tveir leikir, Guðni vann þann fyrri en tyrkinn valtaði yfir þá Egil og Guðna 13-3-3 í þeim seinni og muna menn varla eftir slíkum glersalla.



:: tyrkinn 15:30 [+] ::


Geiri-gegnumsláttur
Tyrkinn fór s.l. fimmtudag á tónleika sinfóníuhljómsveitarinnar þar sem Sigurgeir Agnarsson var í aðalhlutverki. Tyrkinn fór ásamt poppurunum og var þetta í fyrsta skipti í 6-7 ár sem tyrkinn fór að hlusta á Melabandið (eins og Geiri kallar það). Þetta kvöld voru leikin 5 mismunandi verk (sjá neðar) og var eitt þeirra Sellókonsert í C dúr eftir Josef Haydn þar sem Geiri fékk að láta ljós sitt skína. Ljós hann skein svo sannarlega og ætlaði allt að verða vitlaust þegar kappinn hafði lokið sér af, en það ku ekki vera vinsælt að blístra eða klappa á meðan flutningurinn fer fram. Daginn eftir voru tónleikarnir endurteknir og fóru þangað þeir sem ekki komust á fimmtudaginn. Tyrkjanum hafði bísna gaman af öllu saman, þá sérstaklega flutningi Geira, Nótt á nornagnýpu og djöfulgangsins í 1812 forleiknum sem skartaði m.a. fallbyssuskotum (menn voru mis sáttir við hvernig þau framkvæmd). Allir í sinfó.


21.1.04

:: tyrkinn 12:20 [+] ::


Sá stutti
Tyrkinn bætti við nokkrum myndum af þeim stutta í fyrradag og má finna þær hér. Enn þann dag í dag má næstum sjá dagamun á kappanum og alltaf er hann að læra eitthvað nýtt. Aðeins eru nokkrir dagar síðan hann fór að hlægja reglulega og svo er hann að uppgötva röddina á sér meira og meira þessa dagana. Stundum tekur hann tarnir þar sem hann galar eins hátt og hann getur (sem er ekki svo hátt) eins og hann sé að kalla á einhvern sem vinnur á skurðgröfu. Svo er hann loksins farinn að halda hausnum nokkuð öruggt þannig að hann er orðinn öllu meðfæranlegri. Og sem betur fer er hann afar glaðlyndur, jabbnvel einn sá glaðasti á landinu, ekki þarf meira en að horfa á hann til að fá hann til að brosa. Tyrkinn er farinn að huga að því að festa kaup á heykvísl til að stjaka burtu óðum stúlkum frá tyrkjalindinni þegar hann verður eldri.



:: tyrkinn 09:10 [+] ::


Geir Agg slær í gegn
Ef það hefur farið fram hjá einhverjum er rétt að minna á það að Geiri Agg verður í aðalhlutverki á tónleikum sinfóníuhljómsveitar Íslands á morgun fimmtudag og einnig á föstudag. Þar mun hann flytja sellókonsert eftir Josef Haydn í C-dúr en nokkur önnur þekkt verk verða einnig flutt. Tyrkinn hvetur alla til að mæta annað hvort kvöldið, en mun sjálfur sennilega mæta annað kvöld að sjá snilldina. Á heimasíðu sínfóníuhljómsveitarinnar (Melabandsins) má sjá allt um málið (og mynd af kappanum á forsíðunni í þokkabót).

Efnisskráin er þessi:
Johannes Brahms: Tilbrigði um stef eftir Josef Haydn
Josef Haydn: Sellókonsert í C dúr
Modest Mússorskíj: Nótt á nornagnípu
Sergej Rahkmanínov: Vocalise
Pjotr Tsjajkovskíj: 1812 Forleikur


19.1.04

:: tyrkinn 17:20 [+] ::


Helgarskýrsla tyrkjans
Ekki fór framhjá neinum að ædol-snörnuleit úrslitakeppnin fór fram á föstudaginn. Tyrkirnir fóru í því tilefni í tyrkjalundinn þar sem tyrkjasystir og fjölskyldan buðu vinum og vandamönnum heim til að fylgjast með. Tyrkirnir eru búnir að fylgjast nokkuð vel með herlegheitunum og nokkuð búin að spá í úrslitin. Voru þeir sammála um að vilja sjá Önnu Katrínu vinna þrátt fyrir að hún hafi átt ansi mörg slök kvöld að undanförnu sökum raddbrests. Svo fór eins og flestir vita að Kalli B. vann með nokkrum yfirburðum, enda afar öruggur og samkvæmur sjálfum sér út alla keppnina, og frekar leiðinlegur fyrir vikið að mati tyrkjans. Hann átti þetta þó fyllilega skilið og leysti sín verkefni ágætlega þótt röddin og týpan séu varla að fara gera neina sérstaka hluti á komandi árum. Tyrkinn spáir því að fleiri kannist við Önnu Katrínu heldur en Kalla eftir 10 ár eða svo. Könnunin fór á þann vega að 56% töldu Önnu vinna, 44% Kalla en enginn spáði hinum tveimur (gerð fyrir rúmri viku) sigri. Merkilegt hvað Jóni Ólafssyni hinum góða og Stebba Hilmars náðu að semja viðbjóðslegt lag fyrir keppnina, þetta var ekki hundum bjóðandi (bætti ekki úr skák að þurfa að heyra það þrisvar plús endalausar endursýningar með bútum úr þessu ógilla lagi). Nóg um Það.

Á laugardaginn fór tyrkinn og tyrkjafrúin í bíó um hálf sex leytið og sáu "Love Actually" sem er ágætis ræma ef maður kann að meta breskan húmor. Fór offorsi í happy-endings þó undir lokins, eins og þó mátti búast við. Eftir mat var flautað til Catan spils heima hjá Drykkjumanninum. Þar var fyrst prufuð 5-6 manna útgáfan og náði Gyðnið að merja lúmskan sigur á öðrum (tyrkinn, Geiri Agg, Bjarki og Drykkjumaðurinn), en tyrkinn náði svo að vinna "sæfara-catan" eftir að Geri Agg lét sig hverfa.

Tyrkinn gerði þau mistök um daginn að installa C&C Generals á nýju tölvuna. Þegar kemur að strategy leikjum er sjálfsstjórn tyrkjans ekki upp á marga fiska og er búið að hanga nokkuð í honum síðustu daga. Á gömlu vélinni var enginn leikur og var það vel. Þetta lagast þegar tyrkinn fær nýju myndavélina, þá verður gaman (e.t.a. 7. feb).

[Geisp]


Að öðru, tyrkinn rakst á einhverja "Dabnir Krabkao" síðu á forsíðunni á blogger og rakst á þessa sérlega opinskáu og skrítnu grein: Herra opinskáa bloggið


16.1.04

:: tyrkinn 09:10 [+] ::


Myndir
Tyrkinn er búinn að setja inn myndir frá síðustu helgi þegar Svenn hjónin voru heimsótt í sumarbústað í Skorradalnum. Einnig fóru nokkrar myndir inn (undir Baddnamyndir) sem teknar voru af syni Tyrkjans í fyrradag, enda frekar langt síðan myndir af honum voru birtar einar og sér.




14.1.04

:: tyrkinn 10:34 [+] ::


Bandaríkjamenn fella 7 Íraka.... [Baggalútur]



:: tyrkinn 09:33 [+] ::


Ríííl-gúdd....


13.1.04

:: tyrkinn 11:23 [+] ::


Tyrkjatölva
Undanfarnar vikur hafa tyrkirnir verið að velta því fyrir sér hvort þeir ættu að kaupa tölvu. Tyrkjamóðirin hefur undanfarið ár verið að lána þeim fistölvu nokkra sem er komin til ára sinna í tölvuárum talið, og þarf tyrkjasystirin að nota hana í útlandinu í lok mánaðarins. Tyrkirnir kíktu í BT í gær og varð svo úr að þeir gengu út með þessa fínu vél undir hendinni. Nú er loks hægt að djöflast í myndvinnslu og þessháttar án þess að bíða daginn út og inn.









Fyrir nörrana:
Pentium 4 - 3.0 GHz
512MB innra
160 GB harður diskur
15" LCD skjár
DVD drif
DVD skrifari
128 AGP skjákort


12.1.04

:: tyrkinn 09:56 [+] ::


Tyrkjasystirin trúlofar sig
Tyrkirnir fóru í mat í gær til tyrkjamóðurinnar þar sem átti að kveðja Tyrkjaömmuna og Stefán sem eru á leiðinni til Kanaríeyja enn eitt árið. Við það tilefni tilkynntu Unnur og Bára trúlofun sína og var skálað fyrir þeim fyrir vikið. Tyrkinn óskar þeim báðum til hamingju.














9.1.04

:: tyrkinn 13:02 [+] ::


Tölfræði
Vissir þú að 71% "landsmanna" eyddi ekki neinu í flugelda....



:: tyrkinn 12:47 [+] ::


Lord off ðe ríngs - rítörn off ðí kíng
Tyrkinn og tyrkjafrúin fóru loks á LOTR í gær, enda var frúin alveg að missa sig af spenningi (hún er fan). Eins og við mátti búast er myndin góð og ekki síðri en hinar, fyrir utan aðeins of væminn og langan enda sem við mátti þó búast. Restin var þó þrumu góð og verður gaman að eignast allt á dvd extended version einn góðan veðurdag. Það væri líka ágætis áskorun að reyna að horfa á allar myndirnar á einum sólarhring, og þá helst lengdar útgáfur af þeim öllum. Það ætti að vera 12-14 tíma verk með stuttum pásum.

Bjöbbi hák (Bóndadurgurinn) sendi tyrkjanum annars ágætar grín myndir sem ber saman ensku knattspyrnuna og Hringadróttinssögu á myndrænan og skemmtilegan hátt:

























8.1.04

:: tyrkinn 15:00 [+] ::


Stubbastuð, hlunkurinn fær sína fyrstu sprautu
Tyrkirnir fóru með Leif í svokallaða þriggja-mánaða-skoðun áðan. Tyrkjafrúin var búin að kvíða fyrir því að sjá kappann stunginn með sprautu í fyrsta skiptið, en á móti var hún spennt að sjá hversu stór og þungur hann væri orðinn. Að sjálfsögðu fékk hann topp einkunn hjá lækninum, enda ekki betra eintak á sveimi hér á landi. Og hann ætlar að stækka hraustlega, hann var búinn að bæta á sig næstum kílói og 5 sentimetrum á einum mánuði sem verður að teljast nokkuð gott fyrir ekki stærri dreng. Vegur hann í dag 6.740 gr. á adamsklæðum og er orðinn einir 64,5 cm á lengd sem þýðir um 13 cm lenging frá fæðingu. Í þessari lotu náði hann því að koma sér yfir á næstu vaxtakúrfu á barna-stækkunar-línuritinu sem nýlegir foreldrar ættu að kannast við, en var þó um kílói léttari en Bjarni Dagur vinur hans var á sínum tíma skv. heimildum tyrkjans. Þegar kom svo að því að reka nál í óæðri endan á honum var það ekki eins mikið mál og móðir hans hafði gert ráð fyrir, hann roðnaði ögn og setti upp hálfan móðgunarsvip en tók þessu eins og karlmaður og var ekkert að æsa sig yfir einni sprautu eða svo.



:: tyrkinn 10:05 [+] ::


Á jóladag var svokölluð möndlugjöf gefin í fyrsta skipti á heimili tyrkjamóðurinnar. Að þessu sinni gerðist Hekla tyrkjafrænka heppin og hreppti möndluna og geymdi hana lengi í munninum áður en hún vitjaði verðlaunanna. Fékk hún "Celebrations" konfektkassa að launum og var nokkuð ánægt með. Við nánari skoðun á kassanum kom í ljós að áletrun var á botninum á kassanum; "Do not read whilst box is open!". Þetta hefur sennilega verið sett þarna til að koma í veg (?) fyrir að fólk mundi hella innihaldinu úr kassanum ef það hallaði honum til að lesa áletrunina, of seint í rassinn gripið að vara fólk við að lesa aðvörunina.... Only in America....


7.1.04

:: tyrkinn 15:27 [+] ::


Tónlist vikunnar
Belle & Sebastian er skemmtileg hljómsveit sem kemur tyrkjanum alltaf í gott skap. Gummi nokkur Jóh benti í dag á heimasíðu þeirra sem tyrkinn hefur verið aðeins að skoða í dag og þar má finna m.a. alla texta á útkomnu efni, en lögin eru afar vel til þess fallin að lesa textan á meðan maður hlustar, meistarar í textagerð að mati tyrkjans.

Annars hefur verið óvenju erfitt þetta árið að koma sér úr jólagírnum, ofsaþreyta og ofát jólanna hefur sett sitt mark á vikuna og sér tyrkinn ekki fyrir endann á þessu, geisp.



:: tyrkinn 14:20 [+] ::


Samkvæmt fréttablaðinu á nafni tyrkjans afmæli í dag...


5.1.04

:: tyrkinn 20:25 [+] ::


Jólalok
Nú eru jólin að líða undir lok og hafa þetta verið góðir dagar nú sem fyrr. Tyrkirnir fóru í all mörg boð þessi jólin og hefur tyrkjastubburinn aldrei hitt eins marga jafn oft og síðustu daga. Á aðfangadag voru tyrkirnir í mat hjá foreldrum tyrkjafrúnnar og snæddu þar dýrindis hamborgarhrygg sem hvergi bragðast betur. Tyrkirnir fengu margar fallegar gjafir og er stubburinn t.d. sennilega fataður fyrir árið eftir jólin. Eftir það fóru þeir heim til tyrkjamóðurinnar þar sem enn var allt á fullu og fólk ennþá að taka upp gjafirnar. Eftir það boðið var haldið í miðnæturboð heim til Sigga og Siggu en þar á bæ er hefð fyrir aðfangadagsmiðnæturboði. Þar sátu tyrkirnir (sá stutti svaf reyndar þar, alveg búinn á því) fram eftir í góðu yfirlæti þar til haldið var heim í tyrkjalindina. Daginn eftir tók annað eins við, hádegisboð hjá ömmu og afa tyrkjafrúarinnar þar sem snætt var hangikjet með öllu tilheyrandi. Um kvöldið var svo haldið til tyrkjamóðurinnar í annað hangikjetsboð. Þetta er þriðja árið í röð sem tyrkirnir gúffa í sig hangikjöti tvisvar á dag yfir jóladag. Annan í jólum var svo frí frá boðum en eitt fjölskylduboð hjá tyrkjamóðurinni þann þriðja þar sem systkyni hennar og afkomendur komu saman og snæddu og skemmtu sér. Daginn eftir það var svo farið til frænda tyrkjafrúarinnar í kaffiboð. Ansi stíf törn þessi jólin.

Á gamlársdag var svo farið eina ferðina enn til tyrkjamóðurinnar í kalkúnaveislu. Eftir matinn kíktu tyrkirnir heim til Svenn hjónanna þar sem úrvals útsýni var fyrir flugeldasýninguna í Garðabæ. Þaðan var kíkt til foreldra tyrkjamóðurinnar þar sem stórfjölskyldan horfði á skaupið, en þaðan var aftur farið til tyrkjamóðurinnar. Þar var skálað fyrir áramótunum og var glatt á hjalla. Fjölskylda föðurbróður tyrkjans var þar að venju og skemmti fólk sér vel fram eftir. Gaman að sjá þá fjölskyldu, en fjölskyldurnar hittast orðið ekki oft eftir að heimilisfeðurnir féllu frá.




Á nýársdag stóð svo mikið til. Tyrkinn og Fritz höfðu skipulagt hinn fyrsta árlega nýársfögnuð vinahópsins og var ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. Sextán manns voru í mat og það í tyrkjalindinni sem er ekki stærsta húsnæðið til slíkra veisluhalda. Til að leggja ekki alla eldamennsku á tyrkina líka (það hefði aldrei gerst...) var ákveðið að skipta verkum meðal gestanna. Voru verkefni ákveðin og svo dregið um hver gerði hvað og allir látnir vita. Að lokum varð til gríðar vel heppnuð veisla, sameiginlegur fordrykkur, 6 aðalréttir (túnfiskur, nautakjet, humarsalat, kjúklingaréttur, svínaréttur og saltfiskur) og eftirréttur, en allt var þetta borið á eitt langborð sem náði þvert yfir tyrkjastofuna. Eftir matinn tók við teiti sem stóð eitthvað frameftir með dansi söng og fíflalátum ýmiskonar. Eru menn sammála (að því er tyrkinn veit) um að þarna hafi farið góð skemmtun og að hún skuli endurtekin að ári liðnu.


Loksins hefur tyrkinn dælt inn myndum á síðuna frá hinum ýmsu tækifærum:

Jólaboðin: Aðfangadagur, Jóladagur og helgin þar á eftir

Gamlársdagur: Öll boðin og flugeldar

Nýársdagur: Fagnaðurinn mikli (ekki fyrir börn og viðkvæma)


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra