Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

23.2.04

:: tyrkinn 11:49 [+] ::

Álftavatn
Tyrkjarnir fóru að Álftavatni á laugardaginn og heimsóttu Drykkjumanninn og Elínu Lilju þar sem þau voru í bústað foreldra Elínar. Bjarki og Guðni urðu samferða og Áslaug vinkona Elínar mætti líka. Eins og hefð er fyrir var öl drukkið og fólk glaðlynt og kátt. Catan var tekið með en þó var aðeins Pictionary spilað, og vann lið tyrkjans að sjálfsögðu. Til að fara eftir öllum hefðum var líka grillað og einnig farið í heitan pott þegar líða fór á nóttina. Eftir að hafa legið dágóða stund í pottinum fannst tyrkjanum tilvalið og raunar mjög sniðugt að fara aðeins út í vatnið sem var aðeins nokkra metra frá húsinu. Þegar í það var komið kom í ljós að 2 cm þykkur ís var yfir vatninu en tyrkinn lét það ekki stoppa sig og notaði sköflungana sem ísbrjóta nokkra metra úr þar sem hann dýfði sér niður í kalt vatnið. Þetta var svo allt endurtekið seinna, en sú ferð þótti ögn kaldari einhverra hluta vegna. Ofan á þynnkuna daginn eftir bættust því all mörg sár á sköflungum, sem einnig voru stokkbólgnir og fínir. Í þynnkuni gafst þó tími til að festa fallegt veður og náttúru í kringum húsið á mynd:

























Um daginn bætti tyrkinn einnig inn myndum úr ungbarnasundinu sem voru teknar á föstudaginn.

Sjá allar partímyndirnar
Sjá allar frostmyndirnar
Sjá allar ungbarnasundsmyndirnar

Gott að vera í fríi...


20.2.04

:: tyrkinn 12:55 [+] ::

Bússstaður
Í gamla daga þótti voða fyndið að gera grín að tyrkjanum þegar hann sagði orðið "Bústaður", og vildu margir einstaklingar meina að það orð kæmi út sem "bússsstaður". Sem betur fer hafa flestir vaxið upp úr svona einelti og viðbjóð. Burtséð frá þessu ætlar tyrkinn ásamt frúnni (og jabbnvel sá stutti) að þiggja boð Drykkjumannsins og frú hans í sumarbústað annað kvöld. Húsið ku vera í eigu foreldra Elínar Lilju og vill Drykkjumaðurinn meina að þar verði stuð og gaman mikið. Alltaf gaman í bústað.


Tyrkirnir eru annars að fara í ungbarnasund á eftir, og verður þetta "myndatíminn" á þessu námskeiði hjá tyrkjunum. Tyrkjafrúin er búin að pakka bæði myndavélinni og vídeóvélinni og sækir tyrkjann á eftir. Svo stendur til að vera bara í fríi alla næstu viku, sem er bara gott.



:: tyrkinn 10:16 [+] ::

Svenni Svenn ráðin í tyrkjavinnuna!
Rétt í þessu var Popparinn og kyntröllið Svenni Svenn (einnig þekktur sem Áki) ráðinn til starfa í tyrkjavinnunni. Tyrkinn óskar honum til hamingju og hlakkar til að fá hann til starfa í byrjun mars.




19.2.04

:: tyrkinn 11:02 [+] ::

The office
Mikil rosaleg snilld eru þessir þættir sem rúv er að sýna þessa dagana. Bretar hafa lengi verið miklir meistarar hvað húmor varðar og er þetta nýjasta snilldin frá þeim. Það sem fyndið við þetta eru þessir snilldar karakterar, og þá fyrst og fremst yfirmaðurinn sem er svo skemmtilega mikið fífl að manni verkjar í heilaberkinn. Þeir sem ekki hafa séð þetta þurfa að stilla viðtæki sín á miðvikudögum á gufusjónvarpið, en athugið að það gæti tekið 2-3 þætti til að detta inn í húmorinn...




18.2.04

:: tyrkinn 15:34 [+] ::

Síðbúin helgarskýrsla
Síðasta föstudag bar upp á þann 13. og var því mikil gleði. Að venju var haldinn aðalfundur R.Í.K. en að þessu sinni var Huginn farinn til Danmerkur og Áki á Ísafirði að spila og því aðeins Tyrkinn og Gyðnið reiðubúnir til fundarstarfa. Það kom þó ekki í veg fyrir góðan fund frekar en fyrri daginn. Tyrkinn mætti til Gyðnisins og fengu þeir sér drykk áður en þeir ruku niður í bæ með skýrsluna sem að þessu sinni var send frá fráfarandi forseta Huga. Sátust þeir niður á Hótel Borg og þar var haldinn símafundur með fjarverandi félögum (fundaþjónusta símans notuð), en Áki var því miður ekki í símasambandi á leið sinni vestur í görn. Eftir að fundinn og skýrslulestur var farið á veitingastaðinn Maru, sem áður hét Sticks & Sushi. Þar átu þeir sushi og drukku sake og hvítvín með. Eftir góðan mat var farið á rölt um bæinn og stoppað m.a. á Celtic Cross, Ölstofunni og víðar, en endað á Dubliners áður en haldið var heim. Gott stuð. Svo á félagið 10 ára afmæli í maí, þá verður gleði.



:: tyrkinn 15:23 [+] ::

Prófíll
Skv. mbl er að koma nýr þáttur í loftið á popptíví í umsjón uber-gellunnar Ragnheiðar Guðnadóttur. Þátturinn á að fjalla um tísku og heilsu og er planið að fylgjast m.a. með poppurunum Hrafnkeli og Jónsa ásamt spúsum þeirra sprikla í gimminu.



13.2.04

:: tyrkinn 11:29 [+] ::


...og það er föstudagurinn 13. í dag, til hamingju strákar!



:: tyrkinn 11:26 [+] ::


FM-hnakkinn 2004
Tyrkinn horfði á hlustendaverðlaun FM í gær og sá þar popparana rúlla þessu upp vægast sagt. Alls hirtu þeir ein sex verðlaun, Bestir á balli - Vinsælastir - Besti söngvarinn - Kynþokkafyllsti popparinn - Plata ársins og Heimasíða ársins. Tyrkinn hélt að Írafár yrðu í þessari stöðu miðað við þann skíthaug af plötum sem það band hefur selt á árinu, en það er engu líkara en flestar plötur hafi verið keyptar af ömmum. En poppararnir mega vel una við sitt, til hamingju strákar. Pétur úr 70 mín (einnig kenndur við Ding Dong) var kynnir í gær, og stóð sig afar vel, hann verður fyndari og fyndari með árunum og er það vel.


9.2.04

:: tyrkinn 16:39 [+] ::


Klikkað lið (sumir kanar eru ekki hægt...)



:: tyrkinn 14:11 [+] ::


Helgarskýrslan
Tyrkjafrúin bauð í mat á föstudaginn og mættu Gerber fjölskyldan og Svenn fjölskyldan í pestó kjúllan hennar. Var almenn ánægja með matinn, enda þessi réttur hennar mikil snilld. Fóru þó flestir snemma heim, enda Svenni Svenn að fara að vinna og fólk þreytt eftir vikuna.

Laugardagurinn fór meira og minna í DC++ hjá tyrkjanum, enda tyrkinn kominn loks með vél með almennilegum hörðum disk. Safnarafíklar geta misst sig í þessu og er tyrkinn farinn að skilja af hverju. Um kvöldið var farið á "Something's gotta give" með Jack Nicholson og Diane Keaton í aðalhlutverkum. Svokölluð tjikk-flikk þar á ferð, en fyrri hálfleikur var reyndar mjög fyndinn og er þessi mynd ekki sú versta (þótt Last Samorai hefði sennilega verið gáfulegri kostur...).

Sunnudagurinn var fjölskyldudagur. Tyrkjafrúarfaðirinn bauð í afmælis-bröns um hádegisbil og svo var farið til Tyrkjamömmunnar seinni partinn. Þar var systkynahlutinn af dánarbúi tyrkjaömmunnar skipt upp og svo snædd svínasteik.

Myndir frá föstudagskvöldinu
Myndir frá afmælinu



6.2.04

:: tyrkinn 14:16 [+] ::


Slagorð
Tyrkinn var á leið til vinnu í morgun og rak augun í stóran dælubíl frá fyrirtæki sem heitir "Dælutækni" eða eitthvað því um líkt. Það sem tyrkjanum þótti fyndið (og tyrkjanum þykir ekki mikið fyndið svona snemma á morgnana) var slagorð fyrirtækisins sem ritað var stórum stöfum í ófögru vörumerki þeirra; "Dælum, Blásum, Sjúgum". Gaman væri að sjá þetta slagorð í enskum bréfahausi fyrirtækisins; "Pumptechnics: Pump, Blow, Suck"... Ekki er ólíklegt að eigendur fyrirtækisins hafi sparað sér "óþarfa" kostnað við að leita til auglýsingastofu og látið einhvern innanbúðarmann um að búa til vörumerkið og slagorð.



:: tyrkinn 11:18 [+] ::


Vídeohornið
Tyrkinn herti sig upp í að skoða vídeoupptöku frá nýársfagnaðinum um daginn, en vídeovélin hefur staðið óhreyfð eftir gleðskapinn mikla. Eins og við var að búast sáust ummerki ölvunar og uber-gleði á myndbandinu, en styttra var það en við var búist. Kvikmyndagúrúinn Tyrkjafrúin, sem var leikstjóri þetta kvöld fór á kostum við gerð "myndarinnar". Eftir nokkrar mín töku sjást hendur tyrkjafrúarinnar bera lok að linsunni og eftir það er hægt að fylgjast með innanverðu lokinu, ásamt teitis-hávaða, í rúmar 30 mín eða þangað til spólan er búin, og á endanum kláraðist batteríið einnig.

...nú fær einhver að heyra það...



:: tyrkinn 11:10 [+] ::


Matarhornið
Tyrkinn fór í fiskbúðina á miðvikudaginn og fisksalinn gaf tyrkjanum eina hrefnusteik með nætursöltuðu ýsunni til að smakka. Þegar heim var komið var ketið matreitt eins og nautakjöt (sem hrefnukjöt líkist kannski helst), hrúga pipar utan á og henda á heita pönnu ca. 1,5 mín á hvorri hlið. Úr varð blóðug og ljúffeng steik, gott stöff. Fyrir þá sem hlustað hafa á Bubba og hafa velt fyrir sér hvort nauðsynlegt sé að skjóta þá, er réttast að benda á það að það er nauðsynlegt. Flóknara er það ekki.



:: tyrkinn 11:07 [+] ::


Græjuhornið
Drykkjumaðurinn sendi tyrkjanum þennan link um snilldar græju sem tengir saman tónlistarsafn á tölvu við græjur annars staðar í húsinu, ýmist með netkapli eða þráðlausu neti (allt stafrænt, ekkert FM bull). Gæti verið gaman.


5.2.04

:: tyrkinn 16:09 [+] ::


Hólísmók!
Fyrir þá sem ekki hafa séð Ameríkan Ædol þættina sem voru sýndir síðustu helgi er nauðsyn að skoða þennan kauða: William Hung




(djöfull eru svona gif myndir leiðinlegar til lengdar....)



4.2.04

:: tyrkinn 10:12 [+] ::


Hressi afmælisdrengurinn
Sonur tyrkjans átti 4 mánaða afmæli í gær. Ekki var þó mikið um hátíðahöld, og þess í stað var sá stutti afar súr og virtist eitthvað vera að angra hann. Kenningar foreldra hans má skipta í tvo flokka, annars vegar gómpirringur og hins vegar magavesen, hvoru tveggja eru krankleikar sem eru víst í mikilli tísku meðal jafnaldra hans. Gærkvöldið var því skrautlegt og náði hann aðeins að festa svefn í 2-3 mín. og grét sáran þess á milli. Hingað til hefur hann aðeins verið þekktur fyrir geðgæði og rólegheit og varð því foreldrunum brugðið. Ofan í allt er sá stutti fullur af kvefi, en er hitalaus. Stuð í tyrkjalindinni.


3.2.04

:: tyrkinn 14:28 [+] ::


Familífótós
Á sunnudaginn komu ættingjar tyrkjafrúarinnar í heimsókn í tyrkjalindina, foreldrar hennar, afi og amma svo og bróðir hennar ásamt tveimur dætrum hans. Gestirnir mættu með kruðerí með kaffinu og bakaði tyrkjafrúin vöfflur (sem hún gerir aldrei bara fyrir tyrkjann...). Náðust þar ágætis myndir af syni tyrkjans í fanginu á langafa sínum.


2.2.04

:: tyrkinn 13:29 [+] ::


Dundur
Tyrkinn gekk framhjá heitum læk í Kópavoginum í gær og tók nokkrar myndir. Gæsahópur er búinn að venja komur sínar þangað og um næsta nágrenni og því skítur út um allt í kringum tyrkjalindina.







:: tyrkinn 12:51 [+] ::


Tónleikar
Tyrkinn fór s.l. föstudag til Gyðnisins og þar var drukkinn bjór og hlustað á ýmsa tónlist. Þegar fór að líða að miðnætti var svo rokið á Grandrokk þar sem Tristian voru að spila. Drengirnir ollu ekki tyrkjanum vonbrigðum frekar en fyrr og var gaman að sjá Pétur fara á kostum. Þrátt fyrir of marga bjóra innvortis tókst tyrkjanum þó að smella af nokkrum myndum af þeim piltum (lýsingin var ekki til fyrirmyndar). Eftir að þeir luku sér af ruku þeir tyrkinn og Gyðnið á annað heimili Gyðnisins, Ölstofuna. Þegar þangað var komið var mest allt loft úr tyrkjanum og því farið heim eftir tiltölulega stutt stopp. Gyðnið var þó eftir í góðu stuði. Fyrir þá sem ekki vita er bannað að taka myndir inni á Ölstofunni og var tyrkinn næstum laminn af dyraverði (eða ekki) eftir að hafa smellt einni af.

Fyrir áhugasama má sækja eitt lag með Tristian á rokk.is sem heitir Sverðlilja og er gaman.


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra