Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

29.3.04

:: tyrkinn 14:39 [+] ::

Páskar
Allt útlit er fyrir að tyrkirnir fari norður að Hofsósi yfir páskana þar sem tyrkjamóðirin og tyrkjasysturnar ætla að fjölmenna með fjölskyldum. Leggja á lokahönd á neðri hæð ættaróðalsins með parketi auk þess að hafa það gott og éta páskasteikina. Alltaf stuð á Hofsós-city.

Annars er allt að verða vitlaust í fjölskyldunni. Tyrkjasystirin yngri og unnusta hennar eru búnar að kaupa íbúð í vesturbænum sem þær fá afhenta í maí, tyrkjasystirin eldri og hennar fjölskylda eru búin að kaupa sér raðhús í Garðabænum og þess á hún von á barni og komin einar 15 vikur á leið samkvæmt nýjustu tölum. Tyrkjamóðirin sjálf er í þeim hugleiðingum að selja húsið sitt og kaupa sér minni íbúð, enda verða þau mæðginin aðeins tvö eftir heima og húsið er full stórt fyrir þau tvö.



:: tyrkinn 11:22 [+] ::

Skítasnepill
Tyrkinn er sammála Simbanum. DV hefur alltaf verið skítasnepill en eftir síðustu breytingar er hann fyrir neðan allar hellur heimsins. Tyrkinn skilur ekki alveg hvaða almannaheill er falinn í því að fremja mannorðsmorð löngu áður en dæmt er í málum. Að vera steiktur í blöðunum er ekkert betra en að vera steiktur af dómstólum og er vegið að tilgangi dómstólanna ef nota á fjölmiðla til að traðka á mannorðum til þess eins að bjarga sökkvandi skipi frá gjaldþroti (DV að sjálfsögðu). Tyrkirnir eru búnir að heita því að borga aldrei fyrir þennan viðbjóð og bíða eftir því að þetta sökkvi.

Tyrkinn var staddur út í 10-11 um daginn og var þar eldri kona við kassann. Þá sagði hún skömmustulega við afgreiðslustúlkuna; "Ég var beðin um að kaupa þennan snepil þarna" og benti á DV. Segir ýmislegt, þegar fólk er farið að skammast sín meira fyrir að kaupa svona sora en hörðustu klámblöð...


25.3.04

:: tyrkinn 12:07 [+] ::

Litapróf
Lýður sendi þessa skemmtilegu síðu, prufið þetta endilega (skiptir engu máli og tekur enga stund, tvöþúsund): Litapróf



:: tyrkinn 12:03 [+] ::

Bolti og bjór
Fritz Gerber kíkti í heimsókn í gær og fékk lánað borasett, sem er ekki frásögu færandi svosum, en þegar hann skilaði því stakk hann upp á því að rölta yfir götuna á Players og kíkja á síðari hálfleik Tjélsí-Arsenik sem reyndist vera ágætis hugmynd. Náðu þeir báðum mörkum leiksins í troðfullum salarkynnum Players, eitthvað eru eigendur þess staðar að raka inn þessa dagana. Eiður Smári, bjartasta von Íslands, átti ljómandi takta og skoraði fyrri mark leiksins sem Arsenik menn svöruðu skömmu seinna fyrir. Fínn hálfleikur yfir einum potti af bjór. Er leiknum lauk ruku út ca. 500 manns eftir bjór og bolta og heim til sín. Nema hvað, löggan var búin að stilla sér upp við gatnamótin og stoppaði alla bíla. Einhverjir hafa sennilega þurft að hringja á bíl upp úr því, lúmskir djöflar. Be warned.


24.3.04

:: tyrkinn 12:01 [+] ::

Myndir
Tyrkinn setti inn nokkrar myndir af tyrkjasyninum um daginn og má finna þær hér.









:: tyrkinn 11:58 [+] ::

Af sérkennilegur siðferði ameríkana
Tyrkinn rakst á þessa sérstæðu frétt á mbl.is: Berbrjósta stafnmynd hneykslar

Ekkert er eins svakalegt og djöfullegt eins og bert kvenmannsbrjóst í ameríku, gildir einu hvort það sé "alvöru" eða höggmynd. Ætli það sé ekki bannað innan 20 ára inn á listasöfn í bandaríkjunum? Grískar höggmyndir hjóta að vera argasta klám þar ytra. Og svo er MTV allt í lagi þar sem þessu djöfullegu líkamspartar eru "á huldu".... Gott uppeldi á krökkunum þarna, allt í lagi að sýna fólk sprengt upp í loftu, en guð forði þeim frá beru holdi sem mundi sennilega skaða þau á líkama og sál.


22.3.04

:: tyrkinn 16:10 [+] ::

Hringurinn í sumar
Tyrkirnir ætla að keyra hringinn í sumar. Það má þó búast við traffík því samkvæmt könnun tyrkjans ætla 73% mannkyns að ferðast um Ísland akkurat í sumar, geri aðrir betur. Aðeins 9% ætla í borgarferðir, en restin ætlar að sitja heima hjá sér.



:: tyrkinn 12:11 [+] ::

Íslensk fréttamennska
Tekið beint af íþróttasíðu mbl.is (ekki klippt aftan af henni):

"Hagi þjálfar Galatasaray
Rúmeninn Gheorghe Hagi var í dag ráðinn þjálfari tyrkneska knattspyrnuliðsins Galatasaray í stað Fatih Terim sem sagt var upp störfum þegar Galatasaray var slegið út í UEFA-keppninni fyrr í þessum mánuði. Hagi er þekktasti knattspyrnumaður Rúmena fyrr og síðar en hann lék í nokkur ár með Galatasaray. Hagi, known as "Maradona of the Carpathians" during this playing days for his sublime ball skills, took up the post immediately"

..."fréttamaðurinn" hefur greinilega gleymt/ekki nennt að þýða afganginn af fréttinni...


19.3.04

:: tyrkinn 16:42 [+] ::

Operation De-Fat Bastard
...er komið aftur á skrið eftir stöðnun yfir áramótin. Við mælingar í gær voru 15,5 kg. farin síðan all-time-fattest í september s.l. Skv. veðmáli skuldar því Fritz nokkur Gerber tyrkjanum eins og einn bjór að eigin vali á einhverju af betri öldurhúsum stór-Reykjavíkursvæðisins. Nú styttist óðum í stærsta takmarkið sem sett var fyrir jól, komast undir 0,1 tonn markið, og ætti það að nást fyrir sumarið. Þá er bara að versla sér þrönga speedo skýlu fyrir Nauthólsvíkina í sumar....



:: tyrkinn 13:32 [+] ::

Alþjóðlegi klippingar dagurinn...
Síminn fór að pípa á tyrkjann klukkan 11:30 í dag, "Klipping" stóð á skjánnum. Hann alveg búinn að gleyma þessu og bíllaus því að tyrkjafrúin þurfti að nota bílinn til að komast sjálf í klippingu. Tyrkinn sníkti þá far niður í bæ hjá vinnufélaga, en hann var að bíða eftir að heyra í vin sínum sem var í klippingu. Þá rauk tyrkinn til að öðrum vini sínum sem var að koma í hús eftir að hafa verið í klippingu, og fékk lánaðann bílinn hans til að komast í þessa klippingu. Tilviljun?


18.3.04

:: tyrkinn 16:19 [+] ::

Baggalútur does....
...meistari Jakob


11.3.04

:: tyrkinn 14:07 [+] ::

Er ekki í lagi....
Frétt á mbl: Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar (!?) segir að opinberum störfum þurfi að fjölga um 380 í Eyjafirði

...af hverju í andskotanum, er ekki eðlilegt að hlutfallslega fleiri vinni hjá ríkinu í höfuðborg lýðveldisins? Að fólk skuli láta svona út úr sér....



:: tyrkinn 13:22 [+] ::

Af einelti húsfélaga
Á þriðjudaginn var húsfundur á sama tíma og ungbarnasundið var á dagskrá. Tyrkirnir skiptu því liði, Tyrkjafrúin fór á fundinn og Tyrkjafeðgarnir fóru með Guðna í sundið á meðan. Eftir sundið fóru drengirnir heim og var þá Tyrkjafrúin í öngum sínum eftir fundinn. Þegar átti að kjósa ritara (síðasti flutti úr húsinu, sennilega eftir einelti) tóku allir allt í einu upp á því að benda á tyrkjafrúnna og virtust allir þekkja hana með nafni (tyrkirnir þekkja varla hræðu í húsinu). Hún sagði þá nei, nei, nei en fólk brosti bara og klappaði og fóru í næstu kosningu án þess að blikka. Búið er að hafa samband við Regnbogabörn. Til hamingju með stöðuna frú ritari....


9.3.04

:: tyrkinn 16:14 [+] ::

Dilli alltaf góður... [án góðfúslegs leyfis mbl]













5.3.04

:: tyrkinn 10:29 [+] ::

Vandræðalegt...
Aular galore...


4.3.04

:: tyrkinn 14:53 [+] ::

Hakaranaija!
Tyrkinn fór við frú í kvikmyndahús í gærkveldi. Frúin stakk upp á Gothika (með Halle Berry í aðalhlutverki), sem lítur út fyrir að vera svona bregðu-mynd og fannst tyrkjanum það ekki sniðugt. Því var stungið upp á þessari fínu Samúræja flikku, og kom hún vel út. Eins og við mátti búast var hún afar flott sjónrænt séð, enda mikill klassi á gamalli japanskri menningu. Ef fólk hefur áhuga á að sjá þessa, er gott að gera það á meðan hún er ennþá í bíó, nema viðkomandi eigi þeim mun flottari sjónvarpsgræjur.



3.3.04

:: tyrkinn 16:55 [+] ::

Litli-Tyrki 5 mánaða í dag
Sá stutti á "afmæli" í dag, en einir 5 mánuðir eru frá fæðingu hans. Greyið er þó rétt að jafna sig á mestu veikindunum en hann tók upp á því í síðustu viku að ná sér í svokallaðan RS-vírus, slæman hósta og eyrnabólgu með tilheyrandi skemmtilegheitum. Tyrkjafrúin gat ekki verið minni, og náði sér nokkurn veginn í sama pakka og er búið að vera óvenju mikið af læknaferðum undanfarna viku. Tyrkjafrúin er búin að fara oft til læknis undanfarna daga (hún fékk eitthvað sem kallast æðaæxli (hljómar verr en það er) og þurfti að láta fjarlægja það á skurðarborði og taka saumana seinna). Þau sitja nú saman heima og bryðja pensilín, en eru að komast á fullt skrið. Tyrkinn tók sér fríviku í þeirri síðustu, en fór varla út úr húsi vegna heimilis-stuðsins, en var feginn að geta verið heima á meðan á þessu stóð.

Tyrkjasysturnar eru báðar búnar að fá samþykkt tilboð í húseignir og er allt að gerast í þeim málunum á þeim bænum, sú eldri náði í eign í Garðabænum en sú yngri í vesturbænum. Tyrkjamóðirin hyggst fara að selja og farin að gera ráðstafanir, sjálfur er tyrkinn feginn að vera ekki að standa í þessu, fátt er leiðinlegra en íbúðarvesen.

Happy-happy joy-joy countdown: 4 dagar

Nýjar myndir:
Sá stutti heima veikur
Ungbarnasund (annar hluti)


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra