|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
30.4.04
Operation De-Fat Bastard
Öðrum fasa er nú lokið. Við viktun í gær kom í ljós að tyrkinn vó 100,00 kg. og er þá búinn að losa sig við 17,5 kg. síðan í september, sem er frekar hressandi.
29.4.04
Myndir
Eitthvað hefur borið á kvörtunum vegna skorts á myndaleysi að undanförnu og bætti tyrkinn aðeins úr ástandinu í gærkvöldi. Sumar þessara mynda eru orðnar heldur til gamlar, en þær fengu þó að fljóta með þar sem extra langur tími hefur liðið frá síðustu uppfærslu á myndasíðunni.
Leifur, apríl 2004, myndir við ýmis tækifæri:
  
Páskar 2004 á Hofsósi:
  
Jónína, apríl 2004:
  
Sumardagurinn fyrsti, Ráðhús Reykjavíkur:
  
Þetta er allt í bili (smellið á myndirnar og þá koma fleiri "þumalneglur")
28.4.04
Skrítla [í boði JHG]
Tveir giftir sitja á barnum og eru að spjalla saman. "Ég skil ekkert í þessu, í hvert skiptið sem ég fer heim af barnum þá slekk ég á aðalljósunum á bílnum og læt hann renna hljóðlega inn í innkeyrsluna. Ég passa að skella ekki hurðinni og læðist á sokkunum upp stigann, fer úr fötunum áður en ég kem inní svefnherbergi og leggst varlega í rúmið. Samt æpir konan mín á mig að ég eigi ekki að koma svona seint heim því ég veki hana alltaf!" "Iss" segir hinn. "Þú ert að gera þetta alveg vitlaust. Þegar ég fer Heim þá stilli ég á háu ljósin þegar ég kem inn götuna og skransa inn í bílastæðið og flauta. Ég skelli hurðinni og hleyp upp stigann, hossa mér uppí rúm, slæ hana á rassinn og segi HVER ER GRAÐUR?" "Einhvern veginn þá þykist hún alltaf vera sofandi."
26.4.04
Breikíng njúfs!
Tyrkjarnir keyptu á laugardaginn hæð í tvíbíli í Garðabænum. Skal húsið hér með vera þekkt sem tyrkjanes. Bar þetta ansi fljótt upp og lauk fljótt af enda sumir ekki þekktir fyrir annað en "skjóta og góða" ákvarðanatöku. Fjölskyldan alsæl, enda býsna smart húsnæði og töluvert stærra en tyrkjalindin. Stefnt er að flutningum í júlí eða byrjun ágúst. Nú gefst fólki færi á að kaupa tyrkjalindina sem er náttúrulega í toppstandi, enda aðeins verið búið þar í tæp 2 ár. Búast má við Tyrkjalindinni á netið á morgun með afar fögrum myndum sem tyrkinn tók í gær. Síðustu dagar eru náttúrulega búnir að fara meira og minna í þetta, pæla í Tyrkjanesinu, skoða fjármál heimilisins, þrífa og taka til í Tyrkjalindinni og þessháttar. Þó gafst smá tími í gærkveldi til að skunda á golfvöllinn með Svenna Svenn, þótt árangurinn af nýliðakennslunni sé ekki farinn að gera mikið vart við sig. Gott stuð þó. Rökkrið gleypti líka nokkra bolta seinni hlutann, sem er minna stuð.
Eitthvað er búið að safnast upp af myndum sem er eftir að setja upp á myndasíðuna, sbr. páskamyndir frá hofsósi, svokallaðar "jónínumyndir" og annað héðan og þaðan og stendur til að bæta úr því næstu daga (nema tyrkirnir verði að sýna Tyrkjalindina daginn út og inn).
Tyrkjastubburinn er búinn að vera hálf grömpí (svona miðað við hann a.m.k.) síðustu daga og um helgina kom í ljós af hverju, fyrsta tönnin er að líta dagsins ljós þessa dagana og virðist það hafa einhver áhrif á svefnvenjur hans sem hafa riðlast aðeins til. Rúmið hans virðist einnig haldið illum anda því í hvert skipti sem hann er lagður ofan í það vaknar hann og lætur eins og verið sé að steikja hann á teini.
21.4.04
Golf grín [í boði Haddockmaster]
Tyrkinn viðurkennir hér með vítaverða skrifleti og á eftir að fara yfir ýmislegt hér og uppfæra myndasíðuna. Í sárabætur kemur hér svokölluð myndskrítla sem Haddaway sendi tyrkjanum rétt í þessu (tyrkjanum fannst þetta mjög fyndið).

19.4.04
Meistari...
 You are a MASTER of the English language!
While your English is not exactly perfect, you are still more grammatically correct than just about every American. Still, there is always room for improvement...
How grammatically sound are you? brought to you by Quizilla
16.4.04
Kóreska prinsessan Wing
Poppstjarnan sendi tyrkjanum þennan link: Listen to Wing
Má segja að þetta sé Leónsí þeirra Nýsjálendinga....
1.4.04
Eshóls
Frétt í mogganum í dag segir afkomendur þræla í bandaríkjunum ætli að höfða mál gegn elsta tryggingafélagi Lundúna, vegna þess að félagið tryggði skip sem notað var í þrælasölu frá Afríku. Ansi langsótt þykir tyrkjanum, pantar að búa ekki við svona réttarkerfi... (sjá blaðsíðu 18 í mogganum í dag)
|
|
|
|
|