Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

28.5.04

:: tyrkinn 10:35 [+] ::

Éfferífríið x 3
Sumarfrí tyrkjans er hafið! Ýmislegt er á döfinni, Tyrkinn open, sumarbústaður, hringferð og annað skemmtilegt. Eitthvað verður lítið bloggað á meðan, en þó eitthvað að öllum líkindum. Góðar stundir.

0 Athugasemdir:

Post a Comment


26.5.04

:: tyrkinn 16:48 [+] ::

Brad Pitt og Nick Drake, voddahell!
Gyðnið greindi frá skemmtilegum þætti á BBC í stuttu viðtali við Tyrkjan.com í morgun. Þar greinir Pitturinn frá því að hann er mikill aðdáandi Nick heitins og fer leikarinn knái yfir sögu þessa snillings sem dó ungur eftir stuttan feril. Hægt er að hlusta á upptöku af þættinum hér: Nick Drake þáttur BBC

Góðar stundir

0 Athugasemdir:

Post a Comment


25.5.04

:: tyrkinn 16:19 [+] ::

Vantraust
Þá er tyrkjafrúin snúin aftur úr "húsmæðraorlofinu" (allar útivinnandi). Fór hún út á fimmtudagsmorgun og kom á aðfaranótt mánudags. Í fjarveru hennar fóru tyrkjafeðgarnir m.a. í útskriftarveislu hjá Tyrkjabróðurnum sem var að klára FG og fékk plagg upp á það á laugardaginn. Einhverra hluta vegna virtust margir furðulostnir á því að tyrkinn skildi vera einn heima með son sinn á meðan móðirin skrapp til útlanda. Alls er óvíst hvort þetta séu viðbrögð vegna gamals hugsunarhátts eða hvort tyrkinn líti út fyrir að vera svona skrambi óábyrgur, hvoru tveggja vont. Í dag snéri svo tyrkinn aftur til vinnu eftir stutt frí (fimmtudagur-mánudags), en strax fer að styttast í sumarfríið! Á föstudaginn hefst svo hið eiginlega sumarfrí, sumarbústaður í viku og svo hringurinn seinna í júní ef allt fer eftir planinu. Á laugardaginn verður hið fyrsta "Tyrkinn open" golfmót að Hellu og eru 8 manns búnir að bóka sig til leiks og einn til kylfuburðar.

Svo er útlit fyrir flutninga í miðjum júlí.

0 Athugasemdir:

Post a Comment


20.5.04

:: tyrkinn 22:02 [+] ::

Myndir í sjónvarpið
Tyrkinn sá rétt í þessu einar 30-40 myndir sem hann tók í sjónvarpinu. Myndirnar eru í trailer fyrir brúðkaupsþáttinn Já á skjá einum, birtar margar í röð svarthvítar. Sjá má nokkrar þeirra í lit hérna.

0 Athugasemdir:

Post a Comment



:: tyrkinn 13:24 [+] ::

Myndir
Tyrkinn hefur bætt við slatta af myndum á myndasíðuna, smellið á myndirnar að neðan til að sjá fleiri. Tyrkjafrúin er nú farin til úglanda og verður fram á aðfaranótt mánudags.


Leifur, maí 2004, myndir við ýmis tækifæri:










Eurovision partý hjá Ingu Lind:










Myndataka fyrir trailer:










Fleira var það ekki (smellið á myndirnar og þá koma fleiri "þumalneglur")

0 Athugasemdir:

Post a Comment


13.5.04

:: tyrkinn 12:52 [+] ::

Afmæli á afmæli ofan
Tyrkjafrúin átti afmæli í gær. Tyrkinn tók sér frí eftir hádegi í tilefni þess og fór með frúnna að versla á hana gönguskó í afmælisgjöf. Einnig fékk hún rósir og afar rómantískan golfhanska frá sínum heittelskaða. Til að toppa daginn bauð tyrkinn henni á Tvo fiska í kvöldverð. Óhætt er að mæla með þeim stað, afar girnilegur matseðill (ef menn eru fyrir fiskirétti), mjög góð þjónusta, góður matur og þægilegt Feng-shui umhverfi. Frúin valdi afar gott hvítvín, Rosemount GTR sem óhætt að mæla með.

Í dag á R.Í.K. 10 ára starfsafmæli og vill tyrkinn óska félögum sínum í þessu stórkostlega félagi til hamingju með daginn. Föstudaginn 13. ágúst verður svo aðalfundur og verður áfanganum fagnað almennilega. Lifi R.Í.K.!

0 Athugasemdir:

Post a Comment


12.5.04

:: tyrkinn 11:27 [+] ::

Til hamingju!
Tyrkjafrúin á afmæli í dag (ásamt hálfri fjölskyldu hennar)! Starfsfólk tyrkjans.com óska henni til hamingju með afmælið, og megi hún eiga góðan dag. Hamingjuóskir sendast á Tyrkjafrúnna

0 Athugasemdir:

Post a Comment


11.5.04

:: tyrkinn 13:25 [+] ::

Hitt og Þetta
Á fimmtudaginn verður skrifað undir kaupin á tyrkjanesinu, enda tyrkirnir búnir að fá samþykki fyrir skuldasöfnuninni. Tyrkjalindin er enn óseld og fer hver að verða síðastur að skoða hana, enda glæsileg eign.

Golf tímabilið er hafið og er tyrkinn í fyrsta skipti með í vorfjörinu. Taktarnir eru þó ekki glæsilegir enn, en þó skárri en í haust þegar golfsettið var keypt. Nú er planið að fá skráða forgjöf (byrja í 36 eftir að skila inn þremur 9 holu hringjum) og reyna svo að geta spilað á þeirri forgjöf í sumar. Tyrkjafrúin hafði ekki prufað að sveifla golfkylfu fyrir 2 vikum síðan, en nú hafa tyrkirnir farið þrisvar út á tún að slá og virðist hún vera sýkt af golfbakteríunni og útlit fyrir að hún gangi í klúbb fyrr en síðar. Golf er gaman.

Planið er að fara að mynda fyrir þáttinn hennar Ellu eftir vinnu í dag, en hana vantar nokkrar myndir í einhvern trailer sem verið er að vinna í. Fengin verður vél að láni fyrir verkið og verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út.

Í lok mánaðarins fá svo tyrkirnir sumarbústað á Hellu að láni í eina viku. Fínasta hús, með potti und alles, og það sem er best er sú staðreynd að húsið stendur nánast á miðjum golfvellinum þar. Hér með er lýst eftir barnapíu á reglulegum golftímum...

0 Athugasemdir:

Post a Comment


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra