|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
10.6.04
Tyrkjalindin seld!
Nú er orðið of seint fyrir þig lesandi góður að tryggja þér Tyrkjalindina, því í dag var hún seld. Skoðuð í gærkvöldi, tilboð kom í morgun og tyrkirnir gerðu gagntilboð sem var tekið nú fyrir nokkrum mínútum. Flutningar verða um næstu mánaðarmót þegar báðar íbúðir verða afhentar, tyrkjalindin og tyrkjanesið. Svokallað kviss-bang. Hamingjuóskir og umsóknir um að taka þátt í flutningunum (engir stigagangar í þetta skiptið) sendast hingað (tyrkinn) og hingað (tyrkjafrú).
Annars hefur verið mikil skrifleti hér að undanförnu, enda allir í sumarfríi. Vikan á Hellu var afar góð, nokkur gestagangur, golf, grill og hamingja. Tyrkinn open 2004 fór fram á Strandavelli og var Sigurvi nokkur hlutskarpastur og vann mótið með 41 punkti og örfáum höggum (meira um það seinna). Tyrkinn náði meira að segja að lækka forgjöfina á vellinum (eftir mótið reyndar) og átti ágætis daga.
|
|
|
|
|