Tyrkinn Rausar // Röfla meira og meira, meir-í-dag en í gær... ::www.tyrkinn.com::

Bloggarar


Einu sinni pr. dag

::Myndir Tyrkjans ::
::Tyrkinn ::
::Gamalt ::
::Baggaluturinn ::
::FC-Sokkur ::
::Mogginn ::
::Tilveran ::
::Grettir ::
::Simbinn ::
::Rocco ::

Drykkjuleikir

:: 1. Ablastur::
:: 2. Sex glos::
:: 3. Meyer::
:: 4. 1-2-3::
:: 5. Gefa 1 - Drekka 1::
:: 6. Kongar::
:: 7. Ekkert::
:: 8. Klink::
:: 9. Bjor-rulletta::
:: 10. Sokkid glas::
:: 11. Skellur::
:: 12. Hrada-Klink::
:: 13. Snuningur::
:: 14. Billabjor::
:: 15. Ofur-Klink::
:: 16. Nafnaleikurinn::
:: 17. Turndrykkja::
:: 18. Greanmetisleikurinn::
:: 19. "31"::
:: 20. Fauti::
:: 21. Trivial drykkja::
:: 22. Tuttuguogeinn as::
:: 23. Looser::
:: 24. Upp & Nidur anna::
:: 25. Vikingur::
:: 26. Auli-Bollur-Naridill::
:: 27. Sigra barthjoninn::
:: 28. Keppnis-Bjor::
:: 29. BjorKotra::
:: 30. Kapprodur::
:: 31. Heilaskoddun::
:: 32. Buffalo::
:: 33. Kjaftaedi::
:: 34. Bumm::
:: 35. 100 skot::
:: 36. Baunaleikurinn::

Netleikir
Hlutir

Takk
Design MKdesign&Tyrkinn // Host Fiskinet // Template Blogskins // ?
Raus:

Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]

30.7.04

:: tyrkinn 14:09 [+] ::

Zardoníska
Einhverra hluta vegna varð tyrkjakönnunin þýdd yfir á zardónísku og því upprunalegi íslenski textinn ólesanlegur. Þess í stað verður boðið upp á könnunina á útlensku í staðinn.

Fáir virðast ætla út á land af vinum tyrkjanna að þessu sinni, en þó virðist vera einhver brennivínshugur í mörgum í tilefni helgarinnar. Tyrkjafrúin búin að melda sig í einhverja "hvítvínsdrykkju" í kvöld með einhverjum kvenpeningi en einnig hefur verið rætt um eitthvað grill&bjór stúss og svo hefur pókerklúbburinn legið lengi á hakanum.

Tyrkjarnir byrjuðu að mála herbergi soldánsins í gær, tyrkjafrúin afar spennt og búin að skipuleggja allt hólf og gólf.

Tyrkinn heyrði í Huganum áðan og hann sagðist hafa verið með stúkusæti á byssuvarginn á Agureyri um daginn, horfði á víkingasveitina úti í garði hjá sér að glíma við varginn. Hugi blótaði sjálfum sér fyrir að hafa ekki verið með stafræna myndavél því hann var víst vitni að þessu öllu saman allt frá því að dólgurinn hlóð byssuna uppi í brekku og þar til hann var leiddur á brott með úlpu yfir höfuðið. Tyrkinn hefði ekki verið þarna myndavélalaus... (Hvað borgar DV fyrir svona mannraunasögur?)

0 Athugasemdir:

Post a Comment


29.7.04

:: tyrkinn 16:00 [+] ::

Endalok brandararíkjanna?

 


Tyrkjarnir horfðu á Fahrenheit 9/11 í gærkvöldi. Fín mynd og nauðsynlegt að sjá en þó ekki gallalaus frekar en flestar aðrar myndir. Eins og í Bowling of Columbine er stíllinn skemmtilegur og margt áhugavert og jafnvel fáránlegt (þá hvað er í gangi þar ytra, ekki myndin sjálf...). Herra Moore er þó oft á köflum aðeins of ýktur og aldrei langt í samsæriskenningarnar sem sumar eru steiktar eða skipta litlu máli. Til dæmis gerði kauði of mikið úr því að margir sádar fóru til síns heima 13. sept. 2001 án þess að vera yfirheyrðir (þá aðallega Bin Laden fjölskyldumeðlimir), en tyrkinn efar það að yfirheyrslur á þeim hefði skilað einhverju. Sennilega var gáfulegt að hleypa liðinu heim áður en það yrði fyrir ofsóknum að hendi óðra kana. Flest var þó í góðu lagi í myndinni. Áhugavert er t.d. að sjá hversu mikið er um afar vafasöm hagsmunatengsl stjórnarmanna við hin og þessi fyrirtæki (og þá vopnaframleiðendur sérstaklega), og hversu heimskur forsetinn virðist vera. Moore flaggaði einmitt mörgum frábærum klippum þar sem Georg lætur sitt litla ljós skína. Nauðsynlegt fyrir alla að sjá þessa mynd, sérstaklega í ljósi þess að forsetakosningar þar ytra eru á næsta leiti (áhugaverðari en skrípaleikurinn hér heima um daginn). Ef kanarnir kjósa þennan sauð aftur yfir sig eftir s.l. 4 ár fara þeir allir til fjandans með hraðlest og sennilega fjöldinn allur af öðrum saklausum.


Tyrkinn setti nokkrar myndir inn í gær sem hann dundaði sér við að taka um daginn fyrir DPC.

 

 

 

 


0 Athugasemdir:

Post a Comment


27.7.04

:: tyrkinn 12:20 [+] ::

Bond í vaskinn?
Samkvæmt frétt á mbl á Orlando Bloom að verða næsti Bond. Ekki nóg með það, heldur á myndin að fjalla um framhaldsskólaár Bonds! Nú eru menn eitthvað að missa sig, það er bannað að breyta Bond svona mikið, og velja einhverja álfadís til að leika hann. Hvað varð um flagarann og hraustmennið James? Heldur vildi tyrkinn fá Roger Moore í málið aftur ("Roger Moore er dáinn!" [Tvíhöfði]).

0 Athugasemdir:

Post a Comment



:: tyrkinn 09:08 [+] ::

Blákaldur veruleiki íslenskra "söng-goðanna"
Rétt í þessu var Tinna Marína ædolstjarna að ljúka við flutning "You can't hurry love" (Supremes) í Íslandi í bítið (morgunsjónvarp stöðvar 2). Flutningurinn minnti helst á kareokee og virtist einstaklega þunnur og eitthvað út úr kú svona snemma um morgun. Þetta virðast vera verðlaunin fyrir þessar ædol stjörnur, aumkunarverð "gigg" oftar en ekki með undirleik á spólu eða "kareokee vol. 34" geisladisk. Sumir fá hlutverk í ofur-þreyttum sálarlausum söngleikjum, aðrir eru að troða sér í einhverja þætti í sjónvarpinu og gefa út coverlög sem spiluð eru á bylgjunni. Sorglegast er með sigurverarann, fyrstu mánuðina þurfti hann að syngja þetta viðbjóðslega lag sem samið var fyrir úrslitaþáttinn í ædol fyrir hvern sem heyra vildi og ekkert annað, enda maðurinn í eigu Norðurljósa í vænan tíma eftir úrslitin. Svo tekur Bylgjulestin við... Það er erfitt að vera frægur þar sem annar hver maður er frægur, lítið upp úr því að hafa...

0 Athugasemdir:

Post a Comment


26.7.04

:: tyrkinn 14:24 [+] ::

Róleg helgi að baki...
Helgin var tiltölulega róleg að þessu sinni. Tyrkirnir fóru á spæderman 2 en hún var ekki eins góð og þeir höfðu heyrt þótt hún hafi verið áhorfanleg. Svo fór mestur tími í húsverk ýmis konar, bera á pallinn, slá blettinn, setja upp hillur í þvottahúsinu, setja upp ljós og þess háttar. Tyrkinn staðfesti einnig máttleysi sitt í golf íþróttinni í gær (6 punktar á fyrri 9, þar af 4 á 9. holu...).

Svo fer að koma tími á innflutningspartý, tyrkjafrúin fer að gefa gó á þetta hvað og hverju enda allt að verða spikk-en-spen í tyrkjanesinu. Spurning um að fara setja niður dagsetningu, eru allir að fara um verslunarmannahelgina?....

...svo er búið að sanna vísindalega að Clint Eastwood sé flottari en Bronson:


1.  Clint Eastwood 67%
2.  Charles Bronson 33%

0 Athugasemdir:

Post a Comment


23.7.04

:: tyrkinn 14:51 [+] ::

Tvífarar daxins
Áki sendi tyrkjanum þennan hlekk áðan: http://www.bobsagetisgod.com/
Með því hefur hann sennilega verið að ýja að guðdómleika sínum, en flestir vita að Áki var eitt sinn þekktur sem Bob Saget er hann bjó í brandararíkjunum og var með þáttinn "Fönníest hóm vídjós"

 





  

  

  

  

  





0 Athugasemdir:

Post a Comment


19.7.04

:: tyrkinn 10:25 [+] ::

Dæmisaga: Hvernig saklausir leikir verða að hörmungum
Um helgina lærðu nokkrir ungir menn mikla lexíu og fannst tyrkjanum það vera sín siðferðislega skilda að deila þessari reynslu með umheiminum öðrum til varnaðar.

Eins og oft áður ákváðu nokkrir piltar að hittast eitt laugardagskvöld og fá sér í aðra tánna og ræða heimsmálin í góðu næði. Nema það, "hugsuðir" hópsins tóku upp á því að finna upp nýjan boltleik; "Krossbolta", sem gengur þannig fyrir sig að tveir gáfumenn henda litlum gúmmíbolta í jörðina þannig að þeir skoppa samtímis að grípara sem þarf að grípa þá báða með sitthvorri hendinni án þess að missa þá. Sjá skýringarmyndir:

 






 
 


Uppfinningamennirnir voru nokkra stund að fínpússa þessa nýju íþrótt og höfðu ekki hugmynd um hvaða hörmungar þessi nýji leikur þeirra hefði í för með sér. Inn á milli laumuðust menn í bjór, mohijtos og aðra drykki og var glatt á hjalla. Þegar fór að líða á kvöldið urðu menn æfðari í leiknum þrátt fyrir að veigarnar væru farnar að segja til sín. Fór þar einn fremstur meðal jafningja, Gyðnið nokkurt, og virtist hann vera í eiturformi og vær orðinn all æstur þegar leikar stóðu sem hæst. Hér að neðan má sjá hvar hann nær í fyrsta skipti þeim merka áfanga að grípa báða boltana eftir "crossover" sem ku vera erfiðasta stig "Krossbolta":








 

 

Á þessum tímapunkti var komið það mikið kapp í menn að annar keppnisboltinn gaf upp öndina, hrökk í sundur í tvo gúmmíhelminga og þar með ekki hægt að spila leikinn lengur. Gyðnið var þó orðið svo upptjúnað af djöfulgangnum að hann tók að reyna að festa annan boltahelminginn á ennið á sér með sogkraftstækninni. Ætlaði það eitthvað að ganga illa, boltinn var úr þykku gúmmíi sem var þurrt að auki. Bleytti hann þá kantana og reyndi að þrýsta honum vel á ennið á sér. Málið gekk þó ekki upp fyrr en Hugi hjálpaði honum svolítið, tók um hnakkann á honum með annarri hendi og þrýsti boltanum inn með hinni. Viðstöddum til mikillar hörmungar heyrðist hátt soghljóð og boltinn saug sig fastann á ennið á greyið gyðninu. Fórnarlambið hljóðaði og reyndi eftir öllum sínum mætti að taka vítistólið af hausnum sér en það ætlaði ekki af. Eftir nokkra baráttu hafði gyðnið þó betur og boltahelmingurinn féll í valinn. Gyðnið lá þó ekki ósárt eftir því vítistólið hafði rist djöfullega upphafsstafi sína á zardonísku á ennið á fórnarlambi sínu inn í rauðbláan hring, og er alls óvíst hvort merkið hverfi nokkurn tíman.








 
 


Tyrkinn vonar að þetta verði víti til varnaðar, og að enginn reyni aftur að finna upp nýja boltaleiki því myrkrahöfðinginn teygir anga sína víða. Vissulega var ákveðin blanda af aðstæðum sem ollu þessu sennilega (strákar, vín, boltar, sumar, ofl.) en allir ættu þó að hafa varann á. Gyðnið er til viðtals í hegningarhúsinu á milli 20 og 22 öll kvöld til að miðla af reynslu sinni.

Fleiri myndir frá þessu kvöldi má finna hérna



0 Athugasemdir:

Post a Comment


14.7.04

:: tyrkinn 10:37 [+] ::

Draugagangur
Svo virðist sem húsdraugurinn Jónas hafi fylgt tyrkjunum frá Tyrkjagötu til Tyrkjalindar og þaðan út á Tyrkjanes. Í versta falli er nýr draugur í Tyrkjanesinu því þar er reimt svo mikið er víst. Heimilisfólk hefur þó ekki verið að kvarta því draugurinn virðist aðeins ráðast á húsbóndann. Þessar örfáu nætur sem tyrkinn hefur því gist í Tyrkjanesinu hafa ekki verið algjör dans á rósum (þótt það hljómi heldur ekki vel), og hefur tyrkinn ekki náð að sofa nema stuttan tíma í senn og er sívaknandi. Síðustu nætur hefur Jónas (eða arftaki hans) gerst enn grófari en áður og er hann farinn að beita ofbeldi. Ofbeldið felst í því að valda fórnarlambinu heiftarlegan sinadrátt í kálfa og er ekki þægilegt að vakna við það helvíti nótt eftir nótt. Ef einhver þekkir góðan særingarmann eða á einhverjar þulur uppi í erminni má hann láta tyrkjann vita.

Tyrkinn (haltur eftir helvítið hann Jónas)

0 Athugasemdir:

Post a Comment


12.7.04

:: tyrkinn 16:28 [+] ::

Þá er það ljóst
...að 73% landsmanna telja Dabba foringja vera búinn að hrauna illa í brækurnar, aðeins 23% telja hann gallalausann.

0 Athugasemdir:

Post a Comment



:: tyrkinn 11:12 [+] ::

Helgin
Um helgina var hin árlega veiðiferð tyrkjans og var brunað úr bænum á fimmtudagskvöldið. Í þetta skiptið var farið í fyrsta skiptið í aðra á en venjulega og var ákveðið að fara í Fljótaá í fljótunum fyrir norðan. Átta vaskir menn mættu í allt of góðu veðri og voru fisk-kvikindin ekkert að fara að gefa sig heldur lágu í sólbaði á botninum. Eftir nokkra viðveru var ákveðið að breyta Veiða-og-sleppa aðferðinni í sleppa-því-að-veiða aðferðina og áin hvíld svolítið. Á meðan æfðu menn sig í ofstopadrykkju og ofáti sem tókst svona líka vel. Þegar veiði hvíldinni lauk nokkru seinna var aftur reynt, en allt fyrir ekkert og greinilegt að áin væri eitthvað biluð. Spurning um hvert verður farið að ári liðnu, en ferðin var góð og engum leiddist.

Myndirnar

Tyrkinn setti einnig inn nokkrar myndir frá flutningunum um daginn og aðrar myndir sem teknar voru í lok júní og byrjun júlí: Sumarmyndir

0 Athugasemdir:

Post a Comment


7.7.04

:: tyrkinn 14:39 [+] ::

Fyrirkoma
Tyrkirnir eru á fullu þessa dagana að koma sér fyrir í Tyrkjanesinu. Að sjálfsögðu var byrjað á að koma tómstundarhlutum fyrir, ásamt fataskápum og eldhúsdraslinu. Flest húsgögn eru kominn á sinn stað og er þá bara eftir að fylla þau af hlutum. Tómstundarherbergi Húsbóndans (einnig þekkt sem THH) er komið í gagnið að mestu leyti og er það mikill léttir, enda fór síðasta THH í vaskinn um árið í Tyrkjalindinni þegar "skipulagsstjórinn" ákvað að þar skildu verða hlutir eins og barnarúm, skiptiborð, barnaföt og þessháttar þar sem áður var sófi og Spielstation tölva. Þetta aukaherbergi mun gera gæfumuninn í tyrkjanesinu.

Soldánninn er búinn að vera meira og minna í pössun hjá ömmu sinni og afa á meðan djöfulgangurinn hefur gengið yfir, en hann kemur í fyrsta skiptið heim til sín í nýja slotið í dag enda tyrkjafrúin að bresta úr söknuði og kominn tími á að afi og amma fái smá hvíld (tanntaka í loftinu og sá stutti farinn að geta meitt sig almennilega á eigin spýtur).

Tyrkinn fer sjálfur í veiðiferð eftir vinnu á morgun. Um er að ræða árlegu veiðiferðina og á að fara í Fljótá fyrir norðan í fyrsta skipti. Ef allt gengur að óskum verður búið að taka upp úr öllum kössum þegar húsbóndin kemur aftur heim...

0 Athugasemdir:

Post a Comment


6.7.04

:: tyrkinn 09:36 [+] ::

Tyrkirnir fluttir
Flutningar fóru fram í gær og gengu þeir mjög vel. Vaskur her sá til þess að kassar og húsgögn komust í tyrkjanes á mettíma og í einu lagi. Þá taka við svokallaðar kassalífsvikur þegar allt er í pappakössum og ekkert finnst. Tyrkirnir eru búnir að fá smjörþefinn af þessu. Tyrkinn lýsir hér með eftir rafmagnssnúrunni í vídeótækið....

Tyrkirnir vilja þakka eftirtöldum aðilum fyrir hjálpina:
Jón Halldór
Mummi
Lilja
Siggi V.
Drykkjumaðurinn
Bjarki
Guðni
Hlöbbi
Fritz Gerber
Áki
Hrafnkell
Slumma
Ella

0 Athugasemdir:

Post a Comment


5.7.04

:: tyrkinn 09:22 [+] ::

Tyrkjaflutningar
Tyrkjarnir flytja í dag! Tyrkinn og tyrkjafrúin eru búin að sitja sveitt alla helgina og pakka í kassa og í dag fá þau tyrkjanesið og verður flutt klukkan 18 í kvöld. Hægt er að biðja um að fá að hjálpa til með því að senda umsókn hingað, bjór og lummur í boði fyrir duglega.

0 Athugasemdir:

Post a Comment


2.7.04

:: tyrkinn 15:32 [+] ::

Monkeylover
Yeah, you are a monkeylover! [Flash](Akkerið sendi)

0 Athugasemdir:

Post a Comment


1.7.04

:: tyrkinn 13:26 [+] ::

Tyrkinn Open 2004





























0 Athugasemdir:

Post a Comment



:: tyrkinn 13:06 [+] ::

Fréttir
Þá er tyrkinn kominn úr fríi. Ýmislegt stendur þó til og ér nóg að gera. Fyrirhugaðir eru flutningar í næstu viku, og reikna tyrkirnir með flutningum á miðvikudagskvöldið. Það má varla klikka því tyrkinn ætlar í sína árlegu veiðiferð á fimmtudagskvöldið í næstu viku.

Fríið er búið að vera gott, vika á Hellu í sumarbústað, vika í þvæling norður á Hofsós og Akureyri og svo afslöppun og Golf í bænum. Búast má við einhverjum myndum næstu daga.

Sá stutti er kominn á fulla ferð, farinn að skríða og standa upp (og yfirleitt detta aftur niður með viðeigandi drama) og er varla hægt að fá hann til að vera kyrran lengur, verður stuð þegar hann fer að ganga. Er hægt að fá hjálma á 9 mánaða gamla stubba?

Tyrkjamóðirin festi í gær kaup á raðhúsi í Garðabænum, og það án þess að skoða það sjálf með berum augum. Hún skoðaði það aðeins að utan og á netinu, en sendi tyrkjasysturina og mann hennar í málið og voru þau afar ánægð með eignina. Tyrkjamóðirin ætlar ekki einu sinni að koma í bæinn til að kíkja á málið strax heldur ætlar hún að þvælast eitthvað um landið um sinn.

Tyrkjabróðirinn náði að rokk-slasa sig um daginn á Grand-rokk svo sauma þurfti sin eftir að hún fór í sundur á brotnu bjórglasi fyrir framan sviðið. Rokkarinn lét ekki segjast og fór á Hróaskeldu eins og aðrir sannir rokkarar.

Þetta voru svona helstu fréttir sem tyrkinn man eftir í bili, góðar stundir

0 Athugasemdir:

Post a Comment


TyrkjaSpjall

Viltu svona a thina sidu?
Nafn

URL eda email

Raus (Broskaddlar)

Tónlist vikunnar

Eldra