|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans]
30.8.04
Nýtt nafn!
Tyrkinn var rétt í þessu að senda fax til Hagstofunnar þar sem hann bað um að láta breyta nafni sínu. Breytingarnar felast í því að millinafni tyrkjans eytt og í stað þess kemur ættarnafn móðurfjölskyldunnar. Þetta gerir maður ekki á hverjum degi, enda bannað að breyta nafni oftar en einu sinni á lífsleiðinni nema sérstakar aðstæður kalli þar á. Í dag á svo að koma ný filma á útidyrahurðina í tyrkjanesinu með nýja nafninu.
Helgin leið óvenju hratt að þessu sinni. Fritz Gerber bauð í grillveislu á laugardaginn þar sem nokkur ölvun átti sér stað. Pössun á Soldáninum klikkaði reyndar á síðustu stundu svo tyrkinn mætti einn fyrir hönd fjölskyldunnar eftir matinn. Media tölva Gerbers vakti lukku og fyrir vikið voru engir geisladiskar eyðilagðir og ansi langur "playlisti" fékk að ganga allt kvöldið.
Afi tyrkjafrúarinnar átti afmæli á sunnudaginn og var blásið í kaffi að venju.
7 Athugasemdir:
Til hamingju með nýja nafnið! Er ekki skylda að halda skírnarveislu??
Takk fyrir það, góður punktur, þarna er komið ágætis tilefni til skírnarveislu. Verður tilkynnt síðar....
Annars er rétt að óska Sigurvi til hamingju með að vera sá fyrsti fyrir utan tyrkjann til að nota athugasemdakerfið! (Annað hvort eru eini lesandinn, eða aðrir of hræddir við nýju tæknina...)
Þetta eru stórmerkilegar fréttir og að ég held í fyrsta skipti að ég heyri um svona lagað. Gaman væri að fá frekari skýringar á þessari ákvörðun. Merkilegast þótti mér að láta "Agnar" detta út, var það ekki í höfuðið á afa þínum? Eins er ég með smá söguskoðun: Haraldur Agnar Leifsson varð á sínum tíma að styttingunni H.A.L. eða HAL Þaðan var að sjálfsögðu bein leið í HALim (eða Halim A.L., eftir því hvað menn kjósa). Halim varð svo að Tyrkjanum sem er orðinn órjúfanleg heild af þér, ekki satt? Er verið að afneita fortíðinni? Engu síður, til lukku með nafnið. Hugi
Tyrkinn er ekkert á förum.
Það er löng hefð fyrir nafnabreytingum í fjölskyldu tyrkjans. Báðar ömmur tyrkjans breyttu t.d. fornöfnum sínum og báðar systur og bróðir tyrkjans hafa bætt ættarnafninu við nöfn sín. Millinafn tyrkjans var heldur ekki mikið notað og þá helst við undirskriftir og þess háttar formlegheit. Tyrkinn hefur verið að hugsa lengi um þetta og ákvað að skella þessu í gegn í vikunni.
Margir héldu að þetta væri grín og til dæmis fékk einn starfsmaður tölvudeildar á vinnustað tyrkjans að heyra það fyrir að hleypa tyrkjanum í það að breyta nafninu í póstkerfinu í "þessu gríni". Þetta er þó ekkert grín, fúlasta alvara...
Bíddu.. nú er maður orðinn spenntur. Hvað heitir Tyrkinn þá fullu nafni þessa dagana ?
--jonarnar
Nú, Halim Kolka Achbar...
Shalom Shalam með það !
--jonarnar
Post a Comment
27.8.04
Eitt og annað
Langt síðan tyrkinn bloggaði, hér er smá pistill í loftskeytastíl. Jón Halldór er kominn heim af spítalanum og virðist vera að ná fullum bata á mettíma, lítur vel út og er að ná fyrri kröftum hægt og rólega. Tyrkirnir skrifuðu undir afsal af tyrkjalindinni í vikunni, tyrkjanes afsalið í næstu viku. Síðasta laugardag flutti eldri tyrkjasystirin og hennar fjölskylda innan Garðabæjarins. Eftir flutningana var kíkt aðeins á menningarnótt á meðan Soldáninn var hjá ömmu sinni. Fékk svo aftur hita það kvöld og eftir læknisheimsóknir var komist að því að sá stutti var með bullandi eyrnabólgu og fékk hann pensillín og er allur annar maður eftir það (tyrkirnir mæla ekki með læknavaktinni fyrir ungabörn a.m.k., tóku ekkert eftir bólgunni þrátt fyrir að kíkja í eyrun). FC Sokkur hóf Landssokkadeildina í gær eftir sumarfrí, menn stirðir að venju en skemmtu sér vel. Svenn hjónin buðu í mat í gær, ljúffengur kjúlli a la Áslaug, takkk fyrir tyrkjann. Svo er grill og gilli á morgun hjá Gerberfólkinu. Eitthvað er verið að ræða um James Brown líka, er það eitthvað sniðugt?
20.8.04
Ekki vitlaus Bond, Djeims Bond
Skv. mbl.is er verið að skoða þennan kauða sem næsta bond Ekki vitlaus týpa í hlutverkið, ekki?
18.8.04
Hjartaaðgerð
Bróðir tyrkjafrúnnar, Jón Halldór, var búinn að finna fyrir eymslum fyrir brjósti í nokkra mánuði þegar hann fór upp á spítala eftir hálendisferðina um daginn. Fyrst fékk hann þá greiningu á sunnudaginn að um væri að ræða gollurhúsbólgu sem hann þyrfti að fá lyf fyrir. Daginn eftir fór hann hins vegar í sneiðmyndatöku á spítalanum og kom þá í ljós að ósæðin í hjartanu væri farin að rifna. Var hann því drifinn í uppskurð á mánudaginn með litlum fyrirvara. Uppskurðurinn tók rúma 7 tíma og fékk hann gerviósæð, gerviloku og leitt var fram hjá ónýtri kransæð. Aðgerðin gekk vel og er hann á batavegi og verður á spítalanum í einhvern tíma á meðan hann jafnar sig. Magnað að þetta skuli koma fyrir 33 ára gamlan þrælhraustan mann svona nánast fyrirvaralaust, en þetta ku vera vegna fæðingargalla. Tyrkinn óskar kappanum skjóts bata.
Lúxuskvöld
Í tilefni ammlisins í gær gerðu tyrkirnir sér glaðan dag. Soldáninn var settur í pössun til ömmu sinnar í Garðabænum og tyrkirnir fóru í Laugar. Þar var farið í 30 mín nudd (vildu kalla það partanudd einhverra hluta vegna) og svo slappað af í baðstofu (e. spa) á eftir. Nuddið var fínt, stúlkan tók nokkuð vel á því og djöflaðist með olnbogan á milli vöðva og beina þar til tyrkinn hvítnaði (eða svo til). Eftir á að koma í ljós hvort þetta hafi gert gagn en einu breytingarnar núna eru eymsli og harðsperrur. Baðstofan er snilld, þar er gott að slappa af. Einar 6 mismunandi gufur/sánur er þar að finna með mismunandi hitastigi, rakastigi, lykt (piparmyntu, sítrónu o.fl.) og innréttingum gáfu sérstaka upplifun, og auk þess eru pottar, fótaböð, hvíldarherbergi og fleira. Ungfrú Julia Stiles mætti í baðstofuna til að heilsa upp á tyrkina og ku hafa verið afar vinaleg við tyrkjafrúnna í kvennasturtunni. Þessi aðstaða er til fyrirmyndar (fyrir utan völundarhús með augnskönnum fyrir áttavillta) en er nokkuð dýr og verður varla reglulegur liður hjá tyrkjunum.
Eftir lauga prógrammið var haldið á Sjávarkjallarann þar sem var snætt. Sá veitingastaður er snilldin ein. Skemmtilegt umhverfi og snilldarmatur, en þjónustan er meira svona "vinaleg" en mjög góð þótt það eyðileggi ekki upplifunina. Tyrkinn fékk sér "túnfiska- og laxa cieveche 'spycy'" í forrétt og "tai andabringu" í aðallrétt, hvoru tveggja mjög ljúffengt og skemmtilegt. Tyrkjafrúin fór í "Íslenskan Humar 'pick-me-up'" sem forrétt og lambakjöt í aðalrétt og bar því góða söguna. Óhætt að mæla með þessum stað.
17.8.04
Ammli
Tyrkinn og Tyrkjafrúin hafa í dag verið saman í 3 ár. Í tilefni dagsins stendur til að fara í nudd og baðstofu í Laugum og snæða svo rómantískan kvöldverð á Sjávarkjallaranum. Segja má að þessi 3 ár hafi verið tekin með trompi, tyrkirnir búa nú saman í þriðju íbúðinni og eru búin að búa til þennan líka fína soldán, geri aðrir betur.
16.8.04
Ólympíugrín (ekki handboltalandsliðið...)
http://home.datacomm.ch/marco.fernando/fla/bozzetto/olympics.swf
1 Athugasemdir:
Annað hvort er enginn að lesa þessa blessuðu síðu, eða allir haldnir skrifleti...
Post a Comment
15.8.04
Helgin
Mögnuð helgi að baki. Föstudagurinn kom upp á 13. að þessu sinni og að sjálfsögðu var haldinn aðalfundur R.Í.K. í tilefni þess. Dagurinn var tekinn aðeins fyrr en venjulega, enda var verið að halda upp á 10 ára afmæli félagsins að þessu sinni. Þeir sem komust fóru fyrst út fyrir bæinn og var skotið á mark. Þaðan var haldið í hegningarhúsið við Laugarteig þar sem fundur var settur. Þá var farið á VOX og þar snætt og drukkuð. Popparinn þurfti að skjótast eftir það að spila, en hitti hina svo aftur í hegningarhúsinu. Loks var farið niður í bæ á áframhaldandi skrall. Gott kvöld.
Morgunin eftir héldu tyrkirnir upp á hálendið þar sem fjölskylda tyrkjafrúarinnar á hlut í fjallaskála í Jökuldölum. Þaðan var farið í bíltúr um nágrennið, enda fjölmargt að sjá. Tyrkinn tók að sjálfsögðu gommu af myndum.
 
(Smellið á myndirnar til að sjá fleiri)
12.8.04
Myndir
Tyrkinn setti inn slatta af myndum í gær frá verslunarmannahelginni. Koma svolítið seint en það verður að hafa það. Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir er komið eitthvað "athugasemda" drasl á síðuna sem ekki enn er farið að virka sem skyldi, en málið er í vinnslu. Veit einhver af hverju Blogger er svona djöfulli lengi að "rípöblisja" bloggið eftir breytingar á "templetum"?
Herbergi Soldánsins var tekið í gegn:
 
Grillpartíið var einnig mjög skrautlegt og skemmtilegt (eftir að grislingarnir fóru í pössun):
 
Allar myndirnar má finna hér
1 Athugasemdir:
Ja, svona setur maður inn athugasemdir. Lúkkar kannski ekki vel strax, kannski spurning um að heyra í einhverjum snillingum. Flottar myndir mar.... [hóst] Tyrkinn
Post a Comment
11.8.04
Gleðilegt sumar!

9.8.04
Bróðir mislingsins....
Soldáninn náði sér í pest um helgina. Í gærdag fór hann að hitna mjög og var orðinn sjóðandi heitur undir kvöld. Draumstautar náðu að ganga nokkuð á hitann en greyið var ansi aumur og heitur og svaf seint og lítið. Nóttin var því skrautleg og heimilisfólk svaf lítið. Í morgun var soldáninn skoðaður af lækni sem vill meina að sonur tyrkjans sé haldinn af svokölluðum mislingabróðir. Það ku lýsa sér með 39-40 stiga hita í 3 daga sem endar svo í útbrotasýningu eftir 3 daga. Stuð á tyrkjanesi [geisp]
Milljón evrur í lommen.....
Tyrkinn heppinn, ókeypis milljón evrur, og hann sem keypti ekki einu sinni miða.... :
EURO MILLIONS LOTTERY INTERNATIONAL. FROM: INTERNATIONAL PROMOTION/PRIZE AWARD DEPT. REF: OGS/2211777009/01 BATCH: 12/024/IPD /SL RE: WINNING NOTIFICATION / FINAL NOTICE Sir/Madam We are pleased to inform you of the result of the Euro millions Lottery Winners International programs held on the 14th of may 2004. Your e-mail address attached to ticket number 30001415966-629 with lucky main number 01 03 21 32 39 drew lucky star numbers 02 06, which consequently won in the 2nd category, you have therefore been approved for a lump sum pay out of 1.000.000.00 Euro. (One Million Euro) CONGRATULATIONS!!! Due to mix up of some numbers and names, we ask that you keep your winning information confidential until your claims has been processed and your money remitted to you. This is part of our security protocol to avoid double claiming and unwarranted abuse of this program by some participants. All participants were selected through a computer ballot system drawn from over 100,000 company and 50,000,000 individual email addresses and names from all over the world. This promotional program takes place every three year. We hope with part of your winning you will take part in our end of year 50 million Euro International lottery. To file for your claim, please contact our fiducial agent: DR.PETER STRANSSER (ALEXANDER CONSULTANT &SECURITIES) TEL:618-394-066. Email: alexanderconsultancy@emailaccount.com Remember, all winning must be claimed not later than 18th of August 2004. After this date all unclaimed funds will be included in the next stake. Please note in order to avoid unnecessary delays and complications please remember to quote your reference number and batch numbers in all correspondence. Furthermore, should there be any change of address do inform our agent as soon as possible. Congratulations once more from our members of staff and thank you for being part of our promotional program. Note: Anybody under the age of 18 is automatically disqualified. Sincerely yours, Mrs.Alonso Perez Antonia Lottery Coordinator.
6.8.04
Eitt fíflið
Að einhver skuli vilja kalla þetta helvíti yfir sig....
5.8.04
Breyttir tímar
Soldáninn er byrjaður hjá Dagmömmu og Tyrkjafrúin er farinn að vinna aftur eftir um 11 mánaða langt hlé. Allir sáttir, enda soldáninn löngu orðinn leiður á að hanga með foreldrum sínum einum saman og tyrkjafrúin orðin spennt fyrir að fara að vinna aftur.
Helgin var tekin með sæmilegu trompi miðað við engin ferðalög. Grillað og drukkið var í tyrkjanesinu á laugardagskvöldið (myndir seinna). Sunnudagskvöldið fór í pókerkvöld, Daði kenndi mönnum Texas Hold'em sem þótti skemmtilegri en sá hefðbundni. Herkúles tók 9 þús. kr. í pottinum, en spanderaði því mestu á barnum.
|
|
|
|
|