|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]
28.9.04
Misskilningur lífs míns...
Tyrkinn fann þessa sniðugu síðu á netinu þar sem fólk opinberar misheyrn sína á hinum ýmsum textum. Hver kannast ekki við það að hafa raulað einhverja djöfulsins vitleysu með einhverju lagi í mörg ár þegar loks kemur í ljós hver textinn var í raun og veru?
'scuse me while i kiss this guy....
24.9.04
Ha-ha

Gú-shí
Tyrkinn og tyrkjafrúin fóru út að borða í gær af tilefni afmælis tyrkjans. Ákváðu þau að fara á veitingastaðinn Síam sem er í iðaðarhverfi í Habbnafirðinum. Þessi staður klikkar aldrei, besti tælenski matur sem tyrkinn hefur fengið og á fínu verði í snyrtilegu umhverfi. Tyrkinn mælir með að allir sem ekki hafa prufað þennan stað kíki þangað við fyrsta tækifæri, einnig hægt að sækja mat þangað (DR Gunni gaf staðnum 8.8 af 10). Vel hægt að mæla með "himnesku nautakjöti" og Massman kjúlla. Tyrkinn fékk þessa fínu ljósmyndunarbók frá Tyrkjafrúnni í afmælisgjöf.
Tyrkjafrændinn nýbakaði
Tyrkinn er búinn að setja inn fyrstu myndir af nýfæddum tyrkjafrænda sínum. Tyrkirnir heimsóttu snáðann upp á fæðingadeild (Hreiðrið) í hádeginu í gær til að berja snáðann augum. Alveg hreint fínasta eintak, enda kominn af góðu fólki. Tyrkjasystirin og mágur eru sennilega komin heim núna og eru afar ánægð með lífið og tilveruna en líklega afar þreytt því þau fengu litla sem enga hvíld nóttina eftir herlegheitin. Systur stubbsins eru að springa úr stolti eftir langa bið.
Fleiri myndir af kappanum má finna hér
23.9.04
Tyrkjafrændi!
Í gærkvöldi klukkan 21:00 fæddi systir tyrkjans þennan fína líka son. Allt gekk vel og er fjölskyldan hæst ánægð með lífið og tilveruna. Er tyrkinn spurði pabbann hvað hann væri stór var svarið "smá tittur" en eftir viðtal við móður tyrkjans fékk hann tölfræðina; 14 merkur (3,5 kg) og 53 cm. Pilturinn er víst vel hærður með dökkan hárlit eins og eldri systir hans en hún var einmitt búin að panta sér dreng sem væri alveg eins og soldáninn nema með hennar hárlit, hún heppin.
Ef tyrkjasystirin hefði getað beðið með þetta í 3 tíma hefði sá stutti verið hin fínasta afmælisgjöf því tyrkinn fæddist einmitt þann 23. sept. einhvern tíma á áttunda áratugnum. Myndir af þeim stutta við fyrsta tækifæri.
20.9.04
Helgin
Um helgina fór fram árshátíð FC Sokks sem var gríðar skemmtileg að venju. Sokkarnir voru sóttir á Players á alvöru poppararútu og var brunað að Grindavík þar sem golfmót FC Sokks fór fram. Leikið var með Texas Drunk Scramble fyrirkomulagi og voru þung viðurlög við of góðum eða of lélegum leik. Eftir golfið var farið í Bláa lónið þar sem menn skoluðu af sér og Áki kenndi mönnum að synda eins og hvalir. Því næst var farið á Sjávarperluna sem er veitingastaður í Grindavík og þar var snætt og verðlaunaafhending fór fram. Eftir það var keyrt í bæinn og stoppað stutt í tyrkjanesinu áður en haldið var í miðbæ Reykjavíkur. Dagurinn var hinn ánægjulegasti en hins vegar reyndist þunnudagurinn erfiður fyrir marga. Myndir af herlegheitunum má finna hér (ekki fyrir viðkvæma).
3 Athugasemdir:
Sælir nu. Tyrkinn a hros skylid fyrir finasta hressiefni a tessari agætu sidu.
Begginn er ekki fra tvi ad hann hafi bara hreinlega ordid ølvadur eftir ad hafa skodad myndirnar fra arshatid sokksins, greinilega ansi hressandi dagur tar a ferdinni.
kv, Begginn
Ef þú bara vissir, þetta var algjör snilld. Stemningin í "lænernum" náði hættulegum hæðum. Tómt rugl að fara til Baunalands þegar svona stendur til....
jamms, i tvi samhengi getur Begginn verid sammala tyrkjanum, tom vitleysa allveg. A næsta ari gerir Begginn ser ferd heim til ad njota dagsins med samsokkum fc sokks.
Post a Comment
17.9.04
Uppeldishornið
Eins og margir vita hefur Soldáninn verið meira og minna veikur síðan hann byrjaði hjá dagmömmu í ágúst. Í gær fór hann til læknis í þriðja skiptið á einni viku eftir að útbrot komu í ljós á löppum og bumbu. Tyrkjafrúin var þá búin að fá hugmyndir um að hans hátign væri kominn með hlaupabólu og þyrfti að húkka heima í 7-10 daga, en læknirinn vildi meina að um væri að ræða ofnæmi fyrir pensillíninu sem hann fékk s.l. föstudag. Þetta mun hafa verið sjötta læknisheimsóknin á ca. mánuði og er útlit fyrir 2 slíkar í viðbót í næstu viku, til að kíkja í eyrun á honum og svo rannsókn á þessu meinta ofnæmi. Tyrkinn bannar hér með öll veikindi í október.
14.9.04
Takk Haddi!
Haddi er til fyrirmyndar og er þegar búinn að gefa tyrkjanum afmælisgjöf. Gjöfin var ekki af verri endanum, ekta tyrkneskt te sett en flestir vita að tyrkinn er mikill tedrykkjumaður og vantaði einmitt alvöru tyrkneskt tesett til að geta boðið heiðursfólki í te og kotru. Rétt er að benda fólki á að afmælisdagurinn er skammt undan, þann 23. september, svo fólk getur farið að safna fyrir afmælisgjöfum. Að neðan er mynd af tesettinu fræga:

13.9.04
Heimilishornið
Tyrkirnir tóku sig til um helgina og bjuggu til veggljós í stofuna. Ljósið er komið upp á vegg og eru þeir bara mjög ánægðir með útkomuna enn sem komið er.
Fyrst var búið til mót úr leir sem harðnar. Þá var settur álpappír ofan á leirinn sem skapar sérstaka áferð og kemur í veg fyrir að gifsið festis við leirinn.
Tyrkjafrúin lagar hér gifsblöndu (eldhúsið undirlagt í gifsryki á meðan)
Þá var gifsinu hellt í mótið og krókum komið ofan í það áður en það harðnaði. Aðeins var grynnt á gifsinu í miðjunni þar sem ljósið kom.
 Ljósið komið upp á vegg í stofunni. Áður var fest flúorljós á vegginn langsum eftir plötunni.
Hér eru stærri myndir af öllu
10.9.04
Operation De-Fat Bastard
Nú er liðið ár síðan "Operation De-Fat Bastard" hófst (formáli) og hafa aðgerðir gert sitt yfir þetta ár. Við mælingu í gær kom í ljós að Tyrkinn hefur losað sig við ein 24,5 kg. yfir þetta ár eða rúm 20% af líkamsþyngd og þykir fínt. Til að setja þetta í smá samhengi er þetta svipað á þyngd og rúmir 2 soldánar, 25 mjólkurfernur eða 6.125 krónupeningar (nýkrónur). Eftir ár verður gefin út bók; "Operation De-Fat Bastard: How to look like the tyrkinn in only a year without the hassle". Ekki er búið að ákveða útsöluverð.
9.9.04
Skrýtla [í boði Hadda]
Giftur maður átti í leynilegu ástarsambandi með eiknaritaranum sínum. Dag einn þegar ástríðan tók völdin ákváðu þau að fara heim til hennar þar sem þau áttu villta eftirmiðdagsstund. Eftir öll lætin voru þau orðin dauðþreytt og sofnuðu. Klukkan 20:00 vöknuðu þau og þegar maðurinn byrjar að klæða sig á fullu, segir hann einkaritaranum sínum að fara með skóna hans út og nudda þeim í grasið og moldina. Furðu lostin konan skilur ekki alveg hvers vegna hann biður um þennan greiða, en hlýðir engu að síður. Hann skellti sér svo í skóna og keyrði heim. ,,Hvar hefuru eiginlega verið maður ? spurði konan eiginmanninn þegar hann kom inn um dyrnar. ,,Elskan ég get ekki logið að þér, ég á í leynilegu ástarsambandi við einkaritarann minn og við erum búin að vera á fullu í bólinu allan dag, svo sofnuðum við og ég vaknaði ekki fyrr en klukkan 8. Konunni varð litið á skónna hans og sagði: ,,Helvítis lygarinn þinn, þú ert búinn að vera að spila golf í allan dag !!!
8.9.04
Skrýtla [í boði Hadda]
Kona var að halda framhjá manni sínum og var í rúminu með elskhuganum. Allt í einu heyra þau sér til mikillar skelfingar að eiginmaðurinn stingur lyklinum í skrána á útidyrahurðinni. Konan reynir að finna eitthvað ráð í flýti. Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður. Hún hellir olíunni yfir elskhugann og hellir svo púðrinu yfir hann þannig að hann lítur út eins og stytta. "Ekki hreyfa þig fyrr en ég segi að þú megir það," segir hún og klæðir sig í flýti. "Stattu bara þarna grafkyrr." Maðurinn kemur inn í svefnherbergið og spyr: "Elskan hvað er nú þetta?" "Þetta, æji þetta er bara stytta," segir konan kærulaus.? Gunna og Jón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda mér einni líka, þetta er svo smart." Ekkert er rætt meira um "styttuna", ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um nóttina læðist maðurinn fram úr rúminu, fer fram í eldhús, nær í samloku og mjólkurglas og réttir styttunni. "Gjörðu svo vel," segir hann. "Ég stóð eins og hálviti hjá Jóni og Gunnu í heila tvo daga og enginn bauð mér vott né þurrt."
Uppeldishornið
Hvaða foreldri kannast ekki við það ástand sem myndast þegar barn er orðið mjög þreytt og pirrað en fæst ekki til að sofna? Ef þitt barn er rokkari að upplagi er tyrkinn með lausn á þessu vandamáli. Í samstarfi við Soldáninn hefur tyrkinn þróað aðferð til að svæfa ungabörn sem klikkar aldrei á heimili tyrkjanna, svokallaðann Rokk-Svefn (c).
Framkvæmd Rokk-Svefns (c): Foreldri sest fyrir framan heimilistölvuna og setur barn sitt á annað læri sitt og heldur um það með annarri hendi (vinstri hendi ef foreldri er rétthent). Þá skulu hátalarar stilltir nokkuð hátt án þess að æra neinn þó. Því næst skal leika góða rokktónlist, plata vikunnar "13th Step" með hljómsveitinni "A Perfect Circle" virkar mjög vel en einnig hafa klassískar hljómsveitir eins og "AC/DC" og "Led Zeppelin" gefið sig mjög vel. Þá skal dunda sér eitthvað á meðan í tölvunni, tyrkinn hefur gaman af léttum leikjum (nokkrir góðir á zone.com) og eftir nokkur augnablik sofnar barnið værum Rokk-Svefni (c) og dreymir fagra Rokk-Drauma.
Þetta hefur aldrei klikkað með Soldáninn þegar hann er kominn í ofangreint ástand, enda sannur rokkari þar á ferð.
...nafnspjald
Tyrkinn bað um ný nafnspjöld fyrir einhverjum vikum og mánuðum síðan. Þau bárust svo í gær, en þá með "gamla" nafninu mátulega...
Ónotuð ný nafnspjöld til sölu, einnig nokkuð til af eldri gerðum á sérlega góðu verði....
Simpsons
[Varúð: Nördatal] Snilldar þáttur í gærkvöldi ("Save me Jebus"), sá besti lengi. Hins vegar er saga að segja frá því að Tyrkjafrúin sagði tyrkjanum um daginn að Maude Flanders væri dáin í þáttunum en tyrkinn keypti það ekki (annars vegar vegna þess að hún er tiltölulega stór karakter og hins vegar vegna þess að tyrkjafrúin hefur lítinn sem engan áhuga á þessum snilldarþáttum). Í fyrradag var hins vegar sýndur þessi þáttur þar sem hún dó og var þátturinn hinn furðulegasti. Tyrkjafrúin vildi ólm að tyrkinn tæki á sig þennan nörda-ósigur (að trúa sér ekki) og gerir hann það hér með.
Gyðnið sendi tyrkjanum þetta afar nákvæma kort af Springfield um daginn (fyrir hörðustu Simpsons nörrana)
Tyrkneska 101
Haddi var að snúa aftur frá móðurlandinu og býður hérna upp á létta tyrkesku kennslu á síðunni. Eins og við var búist var þetta snilldarleg ferð og mælir hann með að allir skelli sér þangað við tækifæri enda land og þjóð eins og best gerist í heiminum. Eina sem menn verða að varast er að slasa sig, Haddi náði sér í pínu lítið sár á olnbogann og fékk heiftarlega sýkingu í sárið viku seinna og er nú í fatla og á alls kyns lyfjum og veseni. Hann fær þó að halda handleggnum að sögn lækna.
Tyrkneska 101: Góðan daginn: Günaydin Blessaður og sæll: Merhaba Bless: Allah ismarladik Já: Evet Nei: Hayir Vinur: Arhadas Sjáumst: Görüsürüz
Fleira verður ekki í þættinum að sinni, veriði sæl (Allah ismarladik)
Afmælisbarn dagsins!
Meistari Guðni á afmæli í dag og fagnar hann 28 ára afmæli í þetta skiptið. Tyrkinn og starfsfólk tyrkinn.com óskar Gyðninu til hamingju með þennan stóra áfanga í lífi hans og vonar að hann eigi góðan dag. Þeir sem vilja senda honum afmæliskveðju geta sent honum línu hingað
2 Athugasemdir:
dakk dakk - nú er bara 2 ár í sextugs afmæli Guðnaldar Lómasonar!!!
...og þá verður Galim drukkinn í lítravís, aftur! [hik]
Post a Comment
7.9.04
Af pestum og hrakföllum
Tyrkinn liggur núna heima með óþekkta pest (enn ekki með einkenni holdsveiki né limafallasýki) sem hann náði sér í um helgina. Dagurinn í dag er þó skárri en gærdagurinn svo þetta er allt á réttri leið. Soldáninn (af Kolka?) hefur einnig vera meira veikur en frískur síðustu vikur eða allt frá því hann byrjaði hjá dagmömmu. Í síðustu viku var hann með nokkuð háan hita og einhvern hálsbólguvírus eftir að vera nýbúinn að losa sig við síðasta hitakast þegar hann fékk eyrnabólgu. Eftir að vera búinn að losa sig við hitann tók hann svo hressandi ælukast á aðfaranótt sunnudags og er þvottavélin búin að vera á fullu síðan.
Faðir Tyrkjafrúarinnar var svo að slasa sig í gær. Hann fór norður í veiðiferð en áður en hann náði að bleyta færið rann hann í blautri gras brekku og við lendinguna heyrir hann smell og finnur nístandi verk í löppinni. Hann var þá keyrður á Hvammstanga þar sem löppin á honum var gifsuð og krossböndin sögð slitin. Mamma tyrkjafrúarinnar sótti hann norður og á spítala í bænum. Í dag kom svo í ljós að hann náði að tvíbrjóta sköflunginn á sér. Fyrir þá sem ekki þekkja er Mummi einn sá óheppnasti hvað beinbrot varðar en hann hefur sennilega brotið fleiri bein en sjálfur Evel Knievel. Mamma tyrkjafrúarinnar er því núna með tvo sjúklinga í heimili sem báðir eru nýkomnir úr aðgerð og geta lítið hreyft sig. Óheppin fjölskylda þessa dagana.
|
|
|
|
|