|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]
19.10.04
Soldáninn farinn að ganga!
Soldáninn fékk í gær afmælisgjöf frá fjölskyldunni, lítinn vagn sem hann getur gengið með á undan sér og ferjað drasl. Græjan er hönnuð til að hjálpa krökkum að læra að labba með stillanlegri bremsu á hjólunum, voða fínt. Gríðarlegt stuð var á honum í gær og hann þaut út um allt hús skríkjandi af ánægju. Í dag er hann svo farinn að ganga eins og herforingi, greinilega fengið smá sjálfsöryggi í látunum í gær.
15.10.04
Vafasamur húmor...
Einhverra hluta vegna virðist svona húmor alltaf standa fyrir sínu.... Halle Berry is Cat Litter Woman [Gyðnið sendi]
13.10.04
Tyrkinn lýkur prófi
Tyrkinn tók próf í gær í fyrsta skipti ansi lengi. Síðustu dagar hafa farið meira og minna í þetta en það hafðist. Náði 80% sem þykir fínt.
Tyrkjamóðirin er búin að selja húsið sitt og flytur næstu daga ef allt gengur upp.
5.10.04
Vantar þig myndavél
Ef þig vantar netta stafræna myndavél þá á mágur tyrkjans eina slíka ónotaða til sölu. Tyrkjamágurinn hlaut vélina í happdrætti á einhverri ráðstefnu, en hann átti fína vél fyrir og vill því koma henni í verð. Vélin er að sjálfsögðu ennþá í kassanum (frá Nýherja), og selst með góðum afslætti. Nánar um vélina hér og á síðu Nýherja sem selur hana á 39.900.
4.10.04
Fyrsta afmælið
Soldáninn átti afmæli í gær og var haldin veisla honum til heiðurs í tyrkjanesinu. Haugur af fólki mætti til að samgleðjast með honum og gefa honum góðar gjafir. Undir lokin var sá stutti orðin vel tjúnaður og virtist til skiptis hálf sofandi og skríkjandi eins og kría. Veislan var góð og þakka tyrkirnir öllum sem mættu. (Þeir sem mættu ekki og var boðið mega fara í fúlan pytt, fullan af draugum)
2 Athugasemdir:
Til hamingju með afmælin (bæði þitt og soldánans). Og til hamingju með litla frænda. Hugsi
Takk fyrir það. Tyrkjastuð.
Post a Comment
|
|
|
|
|