|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]
30.11.04
Helgin að baki
Róleg helgi að baki og nú fer að styttast í jólageðveikina. Tyrkjafrúin þegar komin í jólastuð og setti meira að segja upp grenidót og jólaseríu á handriðið við tyrkjanesið á laugardaginn við litlar undirtektir tyrkjans. Toppaði svo allt með að útbúa nýmóðins aðventukrans á sunnudaginn (reyndar með þeim flottari af þeirri sort), enda var fyrsti sunnudagur í aðventu samkvæmt tyrkjafrúnni sem þegar er farin að huga að jólakortum og jólagjöfum.
Fyrir helgina voru útgáfutónleikar með poppurunum í Austurbæ. Tyrkinn mætti með nýju græjurnar og myndaði eins og óður maður innan um kvikmyndavélarnar. Helgin fór svo í það að vinna myndirnar og henda þeim á netið. Tyrkinn er bara nokkuð ánægður með útkomuna að þessu sinni, enda allt annað að hafa sæmilegar græjur í þetta. Um helgina bættist líka við nýtt dót í töskuna, svokallaðar Kenko Extension Tubes. Dótið gerir tyrkjanum kleift að taka svokallaðar nærmyndir (e. macro) af smærri hlutum.
Myndir af tónleikunum:
  
 
Allar myndirnar má sjá hérna (Stærri og fleiri)
2 Athugasemdir:
High Tyrkinn, found your weblog. What a pitty we can´t understand your language. We just started our weblog in German, so it´ld be the same for you. Maybe we meet again. Yours Susanne and Hugo
Flottar myndir! Greinilega mega græjur sem þú ert kominn með. Hugsi
Post a Comment
23.11.04
Tyrkinn býður þjónustu sína
Nú þegar fer að styttast í visa reikninginn fyrir nýju vélinni datt tyrkjanum í hug að bjóða upp á þjónustu fyrir vini og vandamenn fyrir vægt gjald. Hugmyndin var að mynda börn í mynda-jólakortin sívinsælu ef einhver áhugi er fyrir því. Athuga ber að tyrkinn er enginn atvinnumaður og ber að stilla væntingar af við nýrri myndir tyrkjans ;)
1 Athugasemdir:
"Við heimtum aukavinnu! Við heimtum ennþá meiri aukavinnu!"
"As soon as you're born they make you feel small By giving you no time instead of it all Till the pain is so big you feel nothing at all A working class hero is something to be
They hurt you at home and they hit you at school They hate you if you're clever and they despise a fool Till you're so fucking crazy you can't follow their rules A working class hero is something to be" J. Lennon
Skrapa skrapa fyrir jólunum ... :)
Post a Comment
Pestin
Síðustu helgi voru tyrkjarnir búnir að útvega sér sumarhús nokkuð til afnota fyrir helgina og átti að gera sér glaða helgi. Kom það því ekki á óvart þegar pestin náði sér bólfestu í sjálfum Soldáninum á föstudagseftirmiðdag. Sá stutti fékk hita og hraunveiki og gott ef hann fann ekki bara til í gómunum líka litli anginn. Því var beðið með ferðina til laugardags ef hann skyldi eitthvað hressast. Laugardagurinn var bærilegri fyrir soldáninn en hraunveikin og lystarleysi var enn til staðar og því var ekkert farið út úr bænum. Svo kom annað hitakast á sunnudaginn og það öllu verra og gat hann lítið sofið fyrir pestinni. Gærdagurinn var svo öllu betri og fór hann til dagmömmu í dag.
Fyrstu myndir af Soldáninum með nýju myndavélinni Súper-Soldáninn (fleiri myndir)
18.11.04
Brandari [í boði JHG]
Jói keypti sér nýjann riffil og ákvað einn daginn að fara á bjarnaveiðar. Hann ferðaðist til Alaska sá lítin brúnan björn og skaut hann. Stuttu síðar var komið við öxlina á honum, og þegar hann sneri sér við sá hann stóran svartan björn. Svarti björninn sagði: "þetta voru mjög slæm mistök hjá þér, björnin sem þú skaust var frændi minn". Ég ætla að gefa þér 2 valmöguleika. Annaðhvort lem ég þig til dauða, eða ég fæ að misnota þig." Eftir stutta umhugsun, ákvað Jói að samþykkja seinni valmöguleikann. Þannig að svarti björnin sinnti þöfum sínum á honum. Jafnvel þótt hann væri aumur í 2 vikur, náði Jói sér bráðlega og lofaði sjálfum sér að ná fram hefndum. Hann fór í aðra ferð til Alaska þar sem hann fann svarta björninn og skaut hann til bana. Strax á eftir var komið við öxlina á honum. Í þetta skipti var risavaxinn skógarbjörn sem stóð við hliðina á honum. Skógarbjörninn sagði: "þetta voru slæm mistök, Jói. Þetta var frændi minn og núna hefuru 2 valmöguleika. Annaðhvort lem ég þig til dauða eða við stundum gróft kynlíf." Aftur hugsaði Jói sig um og ákvað að það væri betra að vera samvinnufús frekar en að vera barinn til dauða. Þótt hann hefði lifað af tók það þógnokkra mánuði fyrir Jóa að ná sér í þetta skipti. Núna var Jói gersamlega brjálaður, þannig að hann fór aftur til Alaska tókst að finna skógarbjörninn og skaut hann til bana. Hann fann fyrir sælutilfinningu fyrir að hafa fengið fram hefndir, en örfáum augnarblikum seinna var bankað á öxlina á honum. Hann sneri sér við og sá risastórann ísbjörn fyrir aftan sig. Ísbjörninn leit á hann og sagði að lokum "viðurkenndu það jói... þú kemur ekki hingað til að veiða, er það?"
17.11.04
Skemmtileg tölfræði
Fyrir þá sem ekki hafa séð þetta, þá er þetta afar athyglisvert.
14.11.04
Allt að gerast...
Tyrkjafrændinn var skírður í dag, sá stutti heitir nú Egill Kolka Hlöðversson og var nokkuð flottur við athöfnina þótt hann hafi sofið allan tíman. Að sjálfsögðu mættu tyrkirnir og tyrkinn var með nýju myndavélina á lofti;

Tyrkinn setti einnig inn nokkrar myndir af soldáninum og tyrkjafrúnni teknar á nýju græjuna;

2 Athugasemdir:
Hlýtur að vera svekkjandi að búast við að kappinn yrði skírður í höfuðið á Tyrkjanum, en í staðinn er hann nefndur eftir Drykkjumanninum.... Til hamingju samt. Hugsi
...já þetta er hið furðulegasta mál, að velja drykkjumanninn yfir tyrkjan hvað nöfn varðar er náttúrulega út í hött!
Post a Comment
12.11.04
Tyrkjamyndir í símann þinn
Nú er í fyrsta skipti hægt að kaupa myndir eftir tyrkjann sem skjámynd í gsm síma. Tyrkinn er með nokkrar myndir í sölu hjá Hexia.net.
Smellið á borðann að neðan til að skoða úrvalið: (myndir tyrkjans má finna t.d. undir "svalt frá næslandi" og "krúttípútt")

Staupasteinsviska [í boði Arnars]
..the "smartest" thing Cliff EVER said on Cheers! One afternoon at Cheers, Cliff Clavin was explaining the Buffalo Theory to his buddy Norm. And here's how it went: "Well ya see Norm, it's like this.... A herd of buffalo can only move as fast as the slowest buffalo. And when the herd is hunted, it is the slowest and weakest ones at the back that are killed first. This natural selection is good for the herd as a whole, because the general speed and health of the whole group keeps improving by the regular killing of the weakest members. In much the same way, the human brain can only operate as fast as the slowest brain cells. Excessive intake of alcohol, as we all know, kills brain cells, but naturally it attacks the slowest and weakest brain cells first. In this way, regular consumption of beer eliminates the weaker brain cells, making the brain a faster and more efficient machine. That's why you always feel smarter after a few beers."
10.11.04
Kominn tími á skrif....
Einhverra hluta vegna hefur tyrkinn ekki komist í það að uppfæra síðuna um nokkurt skeið. Ýmislegt hefur þó verið að gerast og verður hér gerð tilraun til að summa það upp.
Soldáninn fékk eyrnabólgu um daginn í sjötta skiptið á ekki svo löngum tíma og var sú ákvörðun tekin að setja rör í eyrun á honum og fjarlægja nefkirtil. Litla skinnið var nú ekkert alltof hress þegar hann vaknaði eftir svæfinguna á mánudaginn var, en er í dag allt annar og er gott að vita til þess að þurfa ekki að spá í því í tíma og ótíma hvort eyrun séu að angra hann (hrikalegt að horfa upp á svona stubba þjást án þess að vita hvað er að). Hans hátign er líka orðinn ansi öflugur á gönguskónum sínum og má heyra ný orð hjá honum oftar og oftar ásamt ýmsum töktum sem leiðinlegt væri að missa af.
Frændi Soldánsins verður svo skírður á laugardaginn kemur. Sagan segir að hann verði nefndur eftir tyrkjanum, enda bara eðlilegt.
Þá er ansi löng bið á enda, tyrkinn er kominn með nýja myndavél. Vélin er keppnis og er búin að vera efst á óskalista tyrkjans ansi lengi. Ásamt vélinni fékk tyrkinn sér 2 auka linsur (sjá græjur á myndinni) auk húmongús tösku sem leit út fyrir að vera töluvert minni á myndinni. Síðasta ár er búið að einkennast af þráhyggjukenndri geðveiki vegna þessa skorts á græjuleysi en ætti það tímabil að vera á enda.
Að lokum má benda á nýlegar myndir sem tyrkinn tók á "gömlu" en hafa ekki verið auglýstar fyrr: Ýmsar norðurljósamyndir Dýramyndir (rebbi, Guttormur og félagar) Fjölskylduferð í Húsdýragarðinn
2 Athugasemdir:
Til lukku með græjurnar, verður samt að segja aðeins meira frá ;-) hvaða tegund og hvaða linsur.
Mikill munur að setja rör en alltaf erfitt að fara með þessi grey í svæfingu, ég hef farið með mínar stelpur í nokkur skipti, setja í rör og skipta um. En þeim líður miklu betur með rörin, það er engin spurning.
Fyrir ljósmyndanörrana:
Canon EOS 20D, 8.2MP SLR Canon EF 18-55mm f/3.5-5.6 kit lens Canon EF 70-200mm f/4 L USM (hvíti djöfullinn á myndinni) Canon EF 50mm f/1.8 II Tamrac Expedition 7 bakpoki fyrir myndavélar B+H 67mm UV filter (fyrir L linsuna) Canon 52mm UV filter (fyrir normal linsuna) Sandisk Ultra II 1GB CF kort
Post a Comment
|
|
|
|
|