|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]
31.12.04
Hneyksli ársins
Fangelsiskeppni fer úr böndunum
28.12.04
Jólamyndir
Tyrkinn er búinn að setja jólamyndirnar inn á netið Jólamyndir 2004
27.12.04
Hátíðarnar
Jólin (eða aðalhluti þeirra) fór fram með hefðbundnum hætti í ár eins og önnur ár. Þorláksmessa var nokkuð róleg í þetta skipti og engin bæjarferð sökum ofsakulda og eyrnabólgu. Tyrkinn smakkaði þó skötu í fyrsta skipti og er útlit fyrir að það verði framvegis fastur hluti af jólarútínunni. Á aðfangadag fór tyrkinn í kirkju að venju og svo var matur og gjafaserimónía heima hjá tyrkjamóðurinni. Fyrstu jólin í nýja húsinu hennar og mættu öll afsprengi hennar ásamt sumum mökum og öllum barnabörnum. Mikill æsingur var í tyrkjafrænkunum þetta árið er þær útdeildu gjöfum á ljóshraða með röddina áttund ofar en venjulega en samt var fjörið ekki búið fyrr en hálf tólf. Þá setti Soldáninn persónulegt met í vöku og sofnaði í bílnum á leiðinni heim.
Jóladagur byrjaði á hádegisboði hjá ömmu og afa tyrkjafrúarinnar með miklu hangikjetsáti. Þykir alltaf sjokkarandi þegar tyrkinn afþakkar sveskjugrautinn og er mikið atriði að yngri kynslóðin fái sér væna slummu á diskinn, en grauturinn er vinsælli meðal eldri kynslóða. Þaðan var farið beint í jólaboð til Hrellu þar sem yngstu börnin fengu almennilega jólaballastemningu (Hurðaskellir hræddi þar líftóruna úr þeim yngstu) og tyrkinn fékk í fyrsta skipti rjúpu í tvö ár. Hrafnkell á þar heiður skilinn fyrir að bjarga jólum tyrkjans og akkerisins (megi f.v. umhverfisráðherra fara í fúlan pytt, fullan af draugum). Tvöfallt át þar á ferð.
Annar í jólum var ekki minni veisludagur, tyrkja-tengdó voru með kalkúnaveislu klukkan 17 og þaðan var farið beint í árlegt fjölskylduhlaðborð klukkan 18 (tyrkjafrúin alveg óð að vera sein í báðar veislur). Tveir forréttadiskar og tveir aðalréttadiskar það kvöldið. Undir kvöld var Soldáninn þó búinn að fá nóg á þessu regluleysi og var ekki upp á sitt besta undir lokin, enda löngu kominn háttatími á þann stutta.
Draga má nokkurn lærdóm af þessum jólum;
*Best er að klára sem mest af jólainnkaupum vel fyrir jól* -Lífhættulegt er að vera á götum borgarinnar þessa síðustu daga fyrir jól. Fólk virðist sem strekkt á striga og vænsta fólk lagði líf sitt og annarra í hættu með fautaskapi í umferðinni. Ætli umferðaróhöpp margfaldist ekki í desember miðað við nóv og jan? Klára allt í október næst.
*Sykurlaust súkkulaði er ekki allt það sem það er séð* -Ekki er það bara dýrara en andskotinn sjálfur, heldur hefur það undarleg áhrif á meltingarfæri. Á meðan Toblerone er ódýrara en sviðasulta, kostar lítil askja með sykurlausu "súkkulaði" handlegg og fót. Einn lítill moli með kókosbragði virðist líka orsaka um 1 rúmlíter af metangasi sem er alltaf vinsælt í jólaboðin.
*Bannað að fara í bónus daginn fyrir Þolla* -Tyrkinn þurfti að slást um innkaupakörfu við innganginn, beita ótrúlegri ökufærni sinni í búðinni (skilja körfuna eftir hér og þar af og til til að sækja hluti á staði með mesta kraðakinu) endaði svo á því að þurfa að bíða í klukkustund í röð að kassanum hlustandi á tvær eldri konur röfla um frágang á sviðakjömmum og fleira. Hagkaup eru næstum tóm á sama tíma (skoða tímakaupið)
*Eiga til nettan óskalista á reiðum höndum* -Hjálpar óákveðnum og tryggir góðar gjafir (Tyrkinn fékk góðar gjafir í ár, shutter release á myndavélina, "The great photographers of LIFE" ljósmyndabók og Baggalútsbókina, auk annarra góðra óvæntra gjafa)
*Skata, gott stöff* -Jafnast á við góðan þorramat, sérstakt að borða (maður finnur fyrir ilm-gufum áður en bitinn er kominn upp í mann). Gott í hófi ef maður þarf ekki að eyðileggja húseignir með lykt fyrir jólin (betra á bragðið en lyktina).
*Búa til tíma fyrir jólaspil* -Ekkert var spilað þessa jóladaga, vonandi verður bætt úr því næstu daga. Fátt er jólalegra en að spila góð spil við vini og vandamenn. Tyrkinn saknar þess, enda góð venja. Lengja mætti svona stutt jólafrí til að bæta úr þessu. Popppunktsspilið gæti komið sterkt inn hérna.
*Klára jólakortin í tíð og tíma* -Kemur í veg fyrir að þurfa að þurfa að hætta sér í umferðinni að óþörfu (sjá lið 1)
Góðir jóladagar að baki, ennþá eftir nokkrir (jólin búin 6. janúar). Mikil eftirvænting eftir nýárspartíinu og gott stuð. Tyrkinn þakkar fyrir sig.
24.12.04
Gleðileg Tyrkjajól!

Tyrkirnir óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Jólamyndir af soldáninum
8.12.04
Jólin nálgast!
Eina almennilega nýja jólalagið þessi jólin er komið út. Baggalútur færir lýðnum jólastemninguna að venju með þessu fagra lagi: Kósíheit par exelans
7.12.04
Læti
Soldáninn er kominn á ferð og flug. Lætin eru að gera út af við hann þessa dagana og er hann hálf hlaupandi fram úr sér og fleygir sér á magann ef hann er nógu spenntur. Slíkur er gauragangurinn í honum að á föstudaginn var flaug hann á hausinn hjá dagmömmunni og vildi ekki betur til en að hann gerði þetta fína gat á hausinn á sér. Úr varð nokkuð blóðbað og sóttu tyrkirnir hann og fóru með á slysó. Þar voru saumuð nokkur spor í ennið á kappanum en sá stutti stóð sig eins og hetja og kvartaði ekki fyrr en honum var haldið niður til að setja sporin. Þetta hefur þó ekki hægt neitt á honum og í gær var það sannað vísindalega að þurrkaðir ávextir virðist nóg til að setja soldáninn í bullandi sykurvímu og hljóp hann hlægjandi í hringi og fór mikinn alveg þar til hann fékk pelann fyrir svefninn.
Myndir frá heimsókn Perlu, Hlöbba, Heklu, Margrétar og Egils litla
|
|
|
|
|