|
|
|
|
Tyrkinn talar: [Heim][Skrifa Tyrkjanum][Myndasafn Tyrkjans][Kaupa myndir tyrkjans]
26.1.05
Pestarbæli
Tyrkjanesið er búið að vera eitt alsherjar pestarbæli síðustu vikurnar og hefur soldáninn farið verst út úr því. Eftir puttaslysið náði hann sér í ansi skæða gubbu og pmr pest sem stóð í meira en viku og upp úr því kom flensupestin með látum. Nú hefur eyrnastuð bæst í hópinn en rörin virðast vera að gera sitt þar sem betur fer. Tyrkinn og tyrkjafrúin hafa heldur ekki sloppið og er stemningin búin að vera ansi lúin síðustu vikurnar.
Tyrkinn rændur
Tyrkinn var rétt í þessu að vafra um netið og rakst fyrir tilviljun á ritstuld. Síðan party.is hefur á hrottafenginn hátt rænt a.m.k. tveimur drykkjuleikjum af síðu tyrkjans án þess að biðja um leyfi eða minnast á höfund að neinu marki. Lögfræðingur tykjans er kominn í málið.
7.1.05
Byrjar vel...
Soldáninn er afar hress þessa dagana. Svo hress var hann s.l. þriðjudag að hann náði næstum því að ná af sér puttanum. Greyið kappinn rak litla fingur hægri handar inn í dyrafals hjá dagmömmunni þegar dóttir hennar var að loka hurðinni og klemmdist sá litli á milli. Beinið brotnaði ekki, en allt annað hékk á því á agnar litlu skinni. Ekki var þetta fögur sjón og þegar tyrkinn mætti að sækja hann var þetta svo grafískt að lá við yfirliði hjá pabbanum, kósvitnaði og þurfti að setjast niður og langt frá því að vera ökufær. Önnur ferðin á slysó var því aðeins mánuði seinna en sú fyrsta en soldáninn fékk tiltölulega hraða þjónustu og læknirinn saumaði fingurinn saman aftur. Verkið var svo tekið út aftur á fimmtudaginn og leit það eftir atvikum vel út, blóðflæði virtist vera í lagi og engin sýking. Sá stutti stóð sig eins og hetja að venju og strax daginn eftir var hann eins og hann átti sér að vera og það án verkjalyfja.
1.1.05
Gleðilegt nýtt ár!

1 Athugasemdir:
migratory restlessness through the Led Zeppelin forest
Post a Comment
|
|
|
|
|